Vísir - 21.07.1932, Side 2
V 1 S I R
))KteTHm&ÖLSEM
Nýjar kartöflur.
Koma með Dettifossi.
Hindenburg forseti
gefur út einræðisboðskap um ráðstafanir til að varðveita frið-
inn í landinu. Ráðstafanirnar hafa þegar haft þau áhrif, að
öfgaflokkarnir hafa kyrt um sig.
I morgun er símað, að kyrð sé á komin um gervalt Þýska-
land.
Berlín 20. júlí.
United Press. - FE.
Hindenburg forseli liefir gef-
íð út einræðisboðskap um að
hernaðarlög skuli gilda í Berlín
og Brandenburg héraði.
Berlín, 20. júlí.
United Press. - FB.
í boðskap Hindenburgs for-
seta eru feld úr gildi um stund-
arsakir ýms ákvæði stjórnar-
skrárinnar um rétlindi manna.
í boðskap forsetans er lögð líf-
látsliegning við landráðastarf-
semi, ikveikjum í opinberum
byggingum og sömuleiðis er
lögð líflátsliegning við því, ef
menn gerast forgöngumenn í
því að stofna til óeirða, sem
beint er gegn ríkinu.
Berlín 21. júlí: Yfirleitt er alt
með kyrrum kjörum í morgun
um gervalt landið. — Er talið,
að hin hörðu ákvæði um hegn-
ingu fyrir brot á einræðisregl-
um Hindenburgs, hafi þcgar
haft þau áhrif, að kyrð hefir
komist á i landinu, a. m, k. um
stundarsakir, en eigi verður
neinu um það spáð, hvort sú
kyrð helst.
ímskeyti
Washington 20. júlí.
United Press. - FB.
Úrskurður í deilumáli.
Árin 1917 og 1918 voru tvö
sænsk skip, Gustav Adolf og
Pacific, kyrsett i Bandaríkjun-
um. Ivröfðust Svíar $ 3,012,173
i skaðabætur. Varð það að sam-
komulagi, að svissneSkur pró-
fessor, Eugene Borel, úrskurð-
aði hvort taka skyld kröfuna til
greina eða ekki. Hefir bann nú
úrskurðað, að ekki beri að taka
kröfu Svía til greina.
Rómaborg 20. júlí.
United Press. - FB.
Frá Italíu.
Mussolini iiefir endurskipu-
lagt ráðuneyti sitt. Ilefir liann
sjálfur telcið að sér embætti
Grandi utanríkismálaráðharra,
isem hefir Ijeðist lausnar. De
Francisci prófessor tekur við
embætti Rocco dómsmálaráð-
herra og Guido Jung tekur við
embætti Mosconi fjármálaráð-
herra.
Lnndnnahásköli.
London í júlí. FB.
Fyrir iiðlega öld siðan átti
Lundúnaborg engan liáskóla.
Það var skáldið Tliomas Camp-
bell, sem benti á hve mikil
nauðsvn það væri stórborg, að
hafa sinn eigin háskóla, og
hann átti mikinn þátt í því, að
almennur áhugi vaknaði fyrir
háskólastofnun í Lundúnaborg.
Hann átti þvi hvað mestan þátt
í stofnun Lundúnaháskóla
(London University). Og þessi
stofnun dafnaði vel og er nú
talin einhver merkasta menta-
stofnun í heimi og er ein af
stærstu mentastofnunum heims.
Til þessa hefir háskólinn
slarfað í mörgum deildum, og
hcfir oft verið talsverð vega-
lengd milli þeirra húsa, sem
deildirnar hafa haft aðsetur sitt
í. Hefir mönnum lengi verið
Ijóst, að mikil þörf væri á að
koma því til leiðar, að öllum
byggingum báskólans væri
komið fjrrir á»tiltölulega htlu
svæði, til þess að koma á nán-
ara sambandi og samvinnu
milli allra greina háskólans og
milli liáskólanemandanna, en
þeir eru nú 11.452 talsins, en
voru að eins 4.950 árið 1913.
Þessu varð þó eigi komið í
framkvæmd af tveimur orsök-
um. Háskólinn átti ekki kost á
hentugum stað. Hin orsökin var
fjárskorlur. Nú hafa menn
unnið bug á báðum þessum
erfiðleikum. Háskólinn á nú
kost á hentugum stað til þess að
reisa nýjar háskólabyggingar, í
Bloomsbury, tiltölulega skamt
frá miðhluta Lundúnaborgar.
Og nægilegt fé er nú fyrir
hendi. Aðalbyggingin verður
mikið hús og fagurt, en aðrar
bvggingar \erða reislar hring-
inn í kring um aðalbygginguna.
Áætlað er, að kosfnaðurinn við
að reisa nýju liáskólabygging-
arnar verði alls um þrjár mil-
jónir sterlingspunda. Og tak-
markið verðm* altaf það sama
og verið hefir: Að greiða fyrir
mönnum af öllum stéttum,
körlum og konum, sem sækjast
eftir æðri mentun.
(Úr blaðatilk. Bretastjórnar).
Oddnr Gfslason,
bæjarfógeti á ísafirði og sýslu-
maður i ísafjarðarsýslu, and-
aðist í gær í sjúkrahúsi ísa-
fjarðar.
Hann fékk snert af heila-
blæðingu fyrir skömmu og hef-
ir legið rúmfastur síðan.
Slakað á kröfnnum.
Það er alkunna, að þeir, sem
með völdin fara í Rússlandi,
eru altaf að slaka til á kröfun-
um, sem kommúnistar gerðu í
upphafi, eftir þvi sem iðnaðar-
og vélamenningin cykst þar í
landi, og reynslan flytur komm-
únistunum þann boðskap, að
ýmsar kenningar kommúnista
séu óframkvæmanlegar, enda
er þá ekki hikað við að hverfa
frá þeim og fylgja sömu að-
ferðum og venjum og tíðkast i
auðvaldsríkjunum. Þannig hafa
kommúnista-leiðtogarnir rúss-
nesku þegar rekið sig á, að það
getur ekki blessast, að allir
menn fái sömu laun, heldur
hafa þeir sannfærst um það,
sem alda gömul reynsla auð-
valdsríkjanna svo kölluðu hef-
ir sannað, að menn eiga að fá
laun sín í réttu hlutfalli við þá
vinnu, sem þeir láta í té. Su
stefna, að allir u])pskeri jafnt,
slóðinn jafnt og dugnaðannað-
urinn, er lirein og bein land
eýðustefna, sem hvergi getur
átt neitt fylgi til lengdar, nema
meðal landevðanna, skrílsins,
sem gengur æpandi og syngj-
andi um götur og torg, en forð-
ast eftir getu að vinna nokkurt
ærlegt handtak.
Rússar voru kúgaðir, eins og
allir vita, á keisaraveldisdögun-
um, á ýmsan hátt. Þeir höfðu
þá. ekki frekara en nú umráð
yfir eigum sínum. Litið dæmi
skal nefnt. Yfirvöldin i Rúss-
landi og yfirforingjar í hernum
o. s. frv. gátu heimtað hesta af
bændum eftir þörfum, til þarfa
hersins, til notkunar handa
starfsmönnum ríkisins, o. s. frvr.
Bóndinn gat ekkert gert til að
aftra þessu. Þegar kommúnist-
ar brutust til valda urðu bænd-
ur ekki betur settir í þessu efni,
heldur ver. Hestarnir þeirra
voru nú teknir til kornflutn-
inga, alveg eins og kornið var
tekið af bændum nauðugum,
og hestarnir voru teknir til
notkunar við vegagerðir o. s.
frv. — En þeir, sem nú stjórna
Rússlandi, hafa breytt um
stefnu. Stjórnin hefir gefið út
boðskap um það, að heslaeig-
endur skuli hafa full umráð vf-
ir hestum sínum, þeim skuli að
eins skylt að lána liestana, þeg-
ar brýnasta nauðsyn krefji og
eingöngu samkvæm t boði
istjórnarinnar, og alt gegn sann-
gjarnri þóknun, en til þessa
fengu þeir enga þóknim. Þetta
er viðurkenning á eignarrétti
og' umráðarétti bænda yfir eign-
um þeirra. — Ýmsar líkur
benda til, að smám sam-
an sveigist á sömu braut i
Lótlð
Félagsprentsmidj una
prenta fyrir yður.
Sigli (Seglmærke) búin til eftir ósk hvers eins.
Rússlandi og í auðvaldsríkjun-
um: Dugnaður einstakhngs
verði ráðandi um það livað
hann ber úr býtum fyrir erfiði
sitt og að hann fái full umráð
yfir því, sem honum áskotnast,
svo sem tiðlcast í öðrum lönd-
um. — Sannast hér sem fyrri,
að það er hægt að láta allskon-
ar hugmvndir líta vil út á
pappirnum og gylla þær í aug-
um fólksins, en seinna verða
menn að lilusta á rödd rejmsl-
unnar og menn blýða boðskap
hennar, af þvi einstaklingnum
og ríkinu er mestur liagur i þvi,
þegar til lengdar lætur.
Einn ennl
—o—
Veitingamðurinn í Baldurs-
liaga hefir eftir 38 daga bið
fengið rúm í Mbl. 10. þ. m. fvr-
ir gremjugrein út af lögreglu-
samþykt Mosfellsbrepps. Vegna
þess að hann er granni minn og
góðkunningi virði eg grein bans
þess, að svara henni fám orð-
um (ef eg fæ rúm hjá Vísi;
býst ekkl við að þýði neitt að
senda Mbl. svarið, úr því grein
Þ. J., sem þó er í þess anda,
beið svo lengi byrjar).
Nauðsynjarlaust er að fara
vegleysu til að fá leyfi landráð-
anda í Mosfsv. til hvers sem er,
því þar er einn eða fleiri vegir
að liverju bygðu bóli; bilfært að
ílestum. Annars mundi verða
hlutverk dómara að ákveða um
það, hvort nauðsyn hafi krafið,
ef kært er um landtraðk utan
vega. — Sími er á 14 bæjum í
sveitinni (3.-liverjum).
Miðhluti greinar Þ. J. er átak-
anleg' lýsing á því, hvert „ónæði
og ófögnuð" hann hafi liðið,
síðan samþ. kom í gildi, af uppi-
vöðsluseggjum, er liann nefnir
„ómenni“, „mannræfla“ o. þvíl.
—- Það er skiljanlegt, að fyr-
verandi næturviðskiftamönnum
lians hafi brugðið illa, fyrst í
stað, meðan samþ. var ókunn.
En það lagasl vonandi er þeir
venjast af næturkomum þar.
Fyrir gistihús er engin þörf á
þeim stað, og því hætt við, að
næturviðskiftin hafi þar helst
vcrið við menn af þeirri tegund
og háttum, sem Þ. J. er hér að
lýsa; en eðlilega Iieijjr báttsem-
in fremur verið umborin, með-
an næturslarkið var leyfilegt.
Nú er tækifærið að kenna samþ.
um, eins og áfengisvinum hætt-
ir til að kenna bannlögunum
um flesta ósiði og lagabrot. —-
Til þess vcrður ekki ætlast, að
löggæslumenn séu við böndina
hvenær sem er á hverjum bæ í
sveit. Og nú kvað þeim vera
sagt upp staríi, sem helst hefir
verið liðs að leita lijá fyrir þá,
sem óspektarmenn liafa ónáð-
að hér í nánd við kaupstaðina.
Heimafólk verður að reyna til
að ná í einkenni á sökudólgum,
og*sannanir fyrir seld þeirra,
og síðan kæra þá.
Þá talar Þ. J. um skaðabóta-
kröfu og sveitarhjálp sér til
handa — vegna lögreglusamþ.,
sem gerir honum fært að ná
rétti sinum á óspektarmönnun-
um, er valda honum skaða.
lálcki var samþ. um að kenna i
ársbyrjun 1928, en þá sagði
hann sig til sveitar, eftir fjögra
ára dvöl hér, vegna Veikinda á
sér og sínuni.
10. gr. samþ. liefir Þ. J. al-
gert misskilið (og líkl. fleiri).
Eftir maílok 1932 eru ógeltir
hundar réítlausir í sveitinni.
Þteir, sem eiga ógelta hunda eft-
ir þann tíma, eiga á hættu, að
~Py
_^OA. •fzúx. WZA.
CrþaLC^i nxLL <•
tcc.
4 • 1eor*ni
Teofani
þeim verði lógað, ef þeir fara á
flæking, og geta ekki kært um
það, en skyldaðir til að gelda
þá fyrir þann tíma eru memr
ekki.
Loks segist Þ. .1. „ekki geta
samþykt lokunartíma“ þann, er
lögreglusamþ. ákveður, „meðan
hér rétt við túnfótinn eru stað-
ir, sem levfist eða líðsl að liafa
veitingar marga nótt“. Nú er
enginn annar löglegur veitinga-
staður við sama veg og Baldurs-
hagi i Mosfhr., og enginn nær en
Botnar í Seltjarnarnesbr. Hvað
á Þorfinnur Jónsson við með
þessum orðum ? Sé um ólögleg-
ar veitingar að ræða, er hann
veit um, ber honunx að kæra
um það til sýslumanns, en ekki
að dylgja um slíkt í blöðum.
Lögreglusamþ. Mosflir. er
birt i Stjórnartíð., en blöðin
hafa ekki fengist til að birta
hana. (Grein í Mbl. í dag út af
sama efni er svo milcið rugl og
fjarstæður, að eklci er svara-
verð).
Grafarb., 14. júli 1932.
B. B.
Iðnsýningm.
—o---
Framh.
Prentsmiðjan Aeta liefir
prentunarsýnishorn í stofir nr.
21, einnig bókbandssýnishorn.
Acta leysir af liendi bóka og
blaðaprentun. Er það alkunna.
að prentsmiðja þessi leggur á-
lierslu á vandað vinnu, enda eru
t. d. margar bækur, sem i henni
liafa verið prentaðar, prýðilega
vandaðar að frágangi. Á bók-
bandsstofu prentsmiðjunnar er
aðallega unnið að J)vi að búa til
vélunnið band (maskinuband),
bókaheftingu o. s. frv.
Forstöðumaður prentsmiðj-
unnar er Guðbjöm Guðrnunds-
son, áhuga og dugnaðarmaður
og sanngjarn i viðskiftum.
í prentsmiðju Ágiists Sigurðs-
scmar er aðallega unnið að alls-
konar smáprentun. Hefir prenl-
smiðja Ágfists baft ærið að
starfa við að prenta bréfhausa,
reikninga, heimsóknaspjöld o.
m. m. fl. Er vinnan vel af hendi
leyst. Prentsmiðjustjórinn er
gamall og góðkunniu- Reykvík-
ingur og allcunna er að hann er
maður góður viðskiftis.