Vísir - 21.07.1932, Page 3
V I S I R
19 Islenska kvenfélag
fer skemtiför föstudaginn 22. |). m. — Farið verður fram á
Seltjarnarnes, að Gróttu og þaðan suður að Shell. Og að síð-
ustu stansað i húsi Elísar Jónssonar kaupmanns, og þar
drukkið kaffi. Lagt verður á stað frá Lækjartorgi kl. IV2
eftir miðdag.
Ferðin kostar kr. 2.25.
Bestn og ddýrostn þvottapottarnir.
með eða án krana fást lijá okkur. — Verðið ótrúlega lágt.
Helgi Magoússon & Co.
Hafnarstræti 19.
Þá sýnir prentsmiðjan Gut-
-cnherg framleiðslu sína i sömu
stofu. Prentsmiðja þessi cr nú
eign ríkisins og rekin af þvi og
er forstöðumaður hennar Stein-
.grimur Guðmundsson, en liann
stundaði lengi prentiðn i Dan-
mörku og er vel fær maður í
sinni grein. Gutenberg var áð-
ur eign hlutafélags og var Þor-
varður Þorvarðsson alla tíð
forstöðumaður prentsmiðjunn-
ar, á meðan hún var eign liluta-
félagsins.
Hafði prentsmiðjan ávalt
góða starfskrafta og fjölhreytt
letur. Fór mikið orð af því hve
vel prentsmiðja þessi leysti
vandasöm verkefni af höndum
•ng yrði það löng upptalnig, ef
ielja ætti upp þau öll, en nægja
mun að benda t. d. á verk eins
ng orðahók Sigfúsar Blöndals.
Mynda- og myndablaðaprentun
hefir prentsmiðjan leyst vel af
hendi, sbr. „Óðinn“ t. d., sem
altaf líefir verið prentaður í
•Gutenberg. Nú vinnur prent-
smiðjan aðallega fvrir ríkið og
npinherar stofnanir, en tekur
cinnig verk fyrir einstaka menn
•og félög.
í sömu stofu eru sýnishorn
frá Isafoldarprentsmiðju, sem
er alkunn stofnun hér í bæ. —
Var hún stofnuð af Bimi heitn-
um Jónssyni, ritstjóra Isafoldar
og síðar ráðherra. Er prent-
tsmiðjan nú eign hlutafélags. —
Prentsmiðjan tékur að sér bóka
og blaðaprentun o. s. frv., en
hókbandsstofa er einnig rekin í
sambandi við prentsmiðjuna.
F orstöðum. prentsmiðjunnar
er nú Gunnar Einarsson, fær
maður i sinni grein, áhugasam-
ur og stjórnsamur. Tók liann
við stjórn prentsmiðjunnar af
Herbert heitnum Sigmundssyni,
er liann stofnaði prentsmíðju
sína i Bankastræti (Herberts-
prent).
Alþýðuprentsmiðjan hefir
einnig sýnishorn af prentun i
stofu nr. 21. Alþýðuprentsmiðj-
an er við Hverfisgötu og prent-
ar aðallega Alþýðublaðið og
vikuútgáfu þess, en tekur að sér
öókaprentun og blaða og smá-
prentun ýmiskonar, eftir þvi
sem hægt er.
Forstöðumaður Alþýðuprent-
smiðjunnar er Hallbj. Halldórs-
•son, ágætlega mentur i sinni
.grein og lipurmenni mesta. Var
liann um langt skeið verkstjóri
í setjarasalnum í prentsmiðj-
unni Gutenberg, b. f.
Arsæjl Arnason sýnir loks
skrautband á Guðbrandarbiblíu
i stofu nr. 21 og niun það álit
flestra, að það sé svo prýðilega
af hendi leyst, að fegurri grip-
ur sé vart eða ekki á sýning-
ainni.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 15 st., ísafirði
-.9, Akureyri 9, Sey'ðisfirÖi 7, Vest-
Tnannaeyjum 10, Stykkishólmi 11,
Blönduósi 9, Raufarhöfn 6, Hólum
i Hornafirði 10, Grindavík 13, Fær-
-eyj uni 11, Julianehaah 11, Jan Ma-
;yen 7, Angmagsalik 9, Hjaltlandi
12, Tynemouth 12 st. (Skeyti vant-
ar frá Kaupmannahöfn). Mestur
hiti hér í gær 16 st., minstur 10.
Sólskin í gær 11.8 st. Yfirlit:
Grunn lægð yfir íslandi. — Horf-
ur: Suðvesturland, Faxaflói: NorÖ-
vestan kaldi- í dag'. Hægviðri í nótt.
Bjartviðri. Breiðaf jörðttr: Norð-
austan gola. Léttir til. Vestfirðir,
Norðurland, norðausturland, Aust-
firðir : Norðan og norðaustan gola.
Úrkomulaust. Suðausturland: Hæg-
viðri. Sumstaðar smáskúrir.
Atvinnubæturt
Fjárhagsnefnd hélt fund á skrif-
stofu liorgarstjóra í gær til jiess að
ræða um atvinnuleysið og hverjar
bætur yrði á j)ví ráðnar. Borgar-
stjóri skýrði frá jiví, að hann hefði,
samkv. ályktun síðasta fundar. átt
tal við bankastjómir og ríkisstjórn.
Hefðu bankastjórnirnar engin fyr-
irheit getað gefið um lánveitingu
til atvinnubóta, að svo stöddu, og
ríkisstjórn hefði heldur ekki að svo
stöddu séð sér fært að taka neina
ákvörðun. —- Fjárhagsnefndin
leggur til, að bæjarstjórnin kjósi
sérstaka. jiriggja manna nefnd, til
jiess, ásamt fulltrúum frá stjórn-
um Sjómannafélags Reykjavíkur
og verkamannafélagsins Dagsbrún-
ar, að ræða við ríkisstjórnina og
leita samvinnu við hana um fram-
kvæmd á atvinnubótum, og skili
nefndin tillögum jiar að lútandi til
fjárhagsnefndar i tæka tíð fyrir
næsta bæjarstjórnarfund. — Nefnd-
in leggur áherslu á, að 70—ioö
inenn úr hópi atvinnulausra manna,
jieirra, sem lakast eru stæðir, gæti
komist i vinnu hjá bænum jiegar
i næstu viku, Jiar til víðtækari at-
vinnubætur komast í framkvæmd í
næsta mánuði.
Gengið í morgun.
Sterlingspund .......... kr. 22.15
Dollar ............. — 6.23)4
100 ríkismörk............ — 148.42
— frakkn fr.............— 24.60
— belgur ............. — 86.27
— svissn. fr............— 121.56
— lírur .............. — 32.00
— pesetar .............. — 50.33
— gyllini ............. — 251.53
— tékkósl. kr........•— 18.63
— sænskar kr...........— n 3.97
— norskar kr...........— 110.45
— danskar kr...........— 119.41
Gullverð
ísl. krónu er nú 59.87.
Fyrirspurn til lögreglunnar.
Er hverjum einutn borgara heim-
ilt að festa upp auglýsingar um
fundahöld og annað víðsvegar um
bæinn, án jiess að leyfi lögreglu-
stjóra komi til ? Eg spyr sakir jiess
sérstaklega, að kommúnistar klíndu
á húsveggi og girðingar víðsvegar
i gær einhverskonar fregnmiða eða
fundarboði, sem mestmegnis var ó-
sæmilegt raus og ójiverri. Meðal
annars var jiessu klínt á opinberar
byggingar, svo sem pósthúsið. —
Mér Jiætti vænt um, að fyrirspurn
þessari yrði svarað.
Borgari.
M.s. Dronning Alexandrine
fer frá Siglufirði kl. 7 í kveld.
Væntanleg hingað annað kveld.
Búnaðarfélag íslands.
Stjórn Búnaðarfél. Islands hef-
ir sagt búnaðarmálastjórunum, Sig.
Sigurðssyni og M. Stefánssyni, upp
störfum Jieirra frá næstu áramót-
um að telja. Samkvæmt lögum fé-
lagsins, er aðeins gert ráð fyrir ein-
um búnaðarmálastjóra, og Búnað-
arjúngið i fyrravetur gekk
í rauninui út frá þvi, að sú skipun
kæmist á um síðastl. áramót, en svo
varð eigi. Nú er ráðgert, að breyt-
ingin komist á um næstu áramót.
Vilji Búnaðarþings í jiessu kom
fram í ]>ví, að á f járhagsáætlun var
gert ráð fyrir launum handa aðeins
einum búnaðarmálastjóra, en eng-
in bein ályktun var um jietta gerð
á þinginu.
Frídagur verslunarmanna
2. ágúst verður haldjnn hátiðleg-
ur að þessu sinni á Akranesi. —
Hefir nefnd manna starfað að und-
irbúningi undir hátíðahöldin og má
fullyrða, að þeim hafi tekist vel.
Hafa verið fengnir til afnota stórir
grasvellir, þar sem veitingatjökl
verða reist, og hátíðahöldin fara
fram. Verður mönnum skemt með
ræðuhöldum, íþróttum, söng og
hljóðfæraslætti. Þar að auki munu
margir fræknustu glímukappar
landsins keppa um Merkúraskinn,
sem Lárus Saíómonsson, glímukon-
ungur, vann i fyrra. — Bráðlega
verður hér í blaðinu auglýst öll til-
högtin um förina og hátíðahöldin á
Akranesi. 'Ættu menn að kynna sér
j>á auglýsingu, áður en Jieir ákveða
að fara eitthvað annað 2. ágúst.
Sendisveinadeild Merkúrs
heldur fund í kveld kl. 8jú í
fundarsalnum í Brattagötu. Verða
til umræðu ýms mál, sem alla
sendisveina varða. T. d. mun full-
trúi fyrir lífsábyrgðarfélag eitt hér
í bænum skýra fyrir mönnmn til-
gang og gagnsemi lí ftrygginga. en
i:m J>au mál öll eru sendisveinar
harla fáfróðir. — Einnig verður
rætt um þátttöku sendisveina í há-
tíðahöldunum 2. ágúst. — Allir
sendisveinar eru boðnir á fundinn.
Frá skátum.
Bandalag ísl, skáta og Skáta-
fél. Væringjar og' Ernir, bjóða
drengjum í Reykjavík á aldrin-
11111 12—l(i ára, að taka Jiátt í
útilegu uni næstu heIgi,Ail Jiess
að kynnast útilifi og verða að-
njótandi þeirrar ánægju og
liressingar, er útilíf i náttúr-
unni hefir að bjóða. Mun for-
eldrum óliætt að treysta J)vi,
að séð verði vel um drengina,
og Jiess gætt í livivetna, að sem
best fari um Jiá, enda skyldi
útbúnaður Jieirra vera sem hér
segir: 1. Vel klæddir og hafa
góða skó, regnkápu, eina sokka
og peysu. 2. Tvö teppi (eða
svefnpoka). 3. Handklæði, sápu,
greiðu og lannbursta. 4. Tvo
diska, drykkjarkönnu, lmífa-
pör og diskaj)urku. 5. Smurt
brauð i Jirjár máltíðir. Lagt
verður af stað frá miðbæjar-
barnaskólanum á laugard. kl. 7
síðd. og skulu allir Jiátttakendur
vera mættir 10 mín. fyr. Mun
Jiá litið eftir að útbúnaður all-
ur sé góður og farangur Jieirra.
er ekki hafa bakpoka, en ætla
að fara á reiðhjólum tekinn til
flutnings, en skal vel merktur.
Þáttlaka skal tilkynnast i síð-
asta lagi fyrir hádegi á föstu-
dag, og liggja listar frammi til
áskrifta i versl. Gunnars Gunn-
arssonar Austurstræti 7, og i
húsgagnaversl. Bankastr. 14 hjá
Jóni Oddgeiri. Þátttökugjald
fyrir bjólreiðamenn er kr. 1,25
en aðra er fara í bíl kr. 2,50.
Nefndin.
ÞjáU
kemur út á morgun. — Dreng-
ir komi í Félagsprentsmiðjuna
kl. 2 e. h.
45 ára afmæli
á í dag Jón Pálsson, Ránargötu
32-
í gæsluvarðhald
var nýlega settur Hjörtur
Helgason, samkvæmt úrskurði
Ólafs Þorgrímssonar, sem hefir
með liöndum rannsóknir í
sambandi við kommúnista-
óeirðirnar, sem urðu liér í bæ
fyrir liálfum mánuði.
Unglingafélagið Þröstur
i Austurbæjarskólanum hefir
gott tjald standandi i Þrasta-
skógi, til afnota . fyrir báðar
deildir félagsins. Félagsmenn
geta dvalist Jiar, Jiegar ástæður
leyfa, livort sem er vfir helgar
eða lengri tíma. Stjórn Þraslar
og skógarvörðurinn í Þrasta-
skógi gefa nánari upplýsingar.
Kommúnistar /
liéldu fund i gærkv. og fóru að
honum loknum í „kröfugöngu.“
Þátttakendur í lienni kunna að
hafa verið um 200, en fráleitt
fleiri. Fjöjdi manna slóst í för-
ina og, gekk á eftir „kröfugöng-
unni“ sér til gamans. Stað-
næmdist allur skarinn á Skóla-
vörðustig skamt frá fangahús-
inu. Hélt einn maður J)ar ræðu.
Kommúnistar fóru nú friðsam-
lega og var einhver „útfarar-
bragur“ á kröfugöngunni. Síð-
ar löbbuðu Jæir heim að húsi
dómsmálaráðherrans, en höfðu
þar skamma viðdvöl.
Hið íslenska kvenfélag:
fer skemtiför föstud. 22. j). 111.
Farið verður fram á Seltjarnarnes
að Gróttu og jiaðan suður að Shell.
Að síðustu verður staðnæmst við
hús Elísar Jóssonar kaupmanns
og drukkið þar kaffi. Lagt verður
af stað frá Lækjartorgi kl. 1 )4 e.
h., og farið i bifreiðum frá B.S.R.
Konur eru ámintar um að mæta
stundvíslega. Sjá augl. í blaðinu í
dag.
Reykjavíkur-kepnin.
Fimti leikur mótsins fer fram í
kveld kl. 8)4. Fram og Valur keppa.
Búist er við snarplegri viðureign.
Farþejíar á Brúarfossi
til útlanda voru liðlega 20. A
meðal Jieirra voru: Jón Oddsson og
frú, Tryggvi Ófeigsson og frú, ung-
frúmar Svanhildur ólafsdóttir,
Soffía Thorsteinsson, frú K. Bene-
diktsson, Gunnar Þorsteinsson, Jó-
hanna Magnúsdóttir o. fl.
Skátafélagið „Ernir“.
Innanfélags kapphjólreiðar, frá
Kolviðarhóli til Reykjavikur, fara
fram næsta fimtudagskvöld. Þátt-
takendur eiga að gefa sig fram við
Þórarin eða Hemming, fyrir
þriðj.udagskvöld. Kept verður um
bjkar og Jirjá verðlaunapeninga.
Laugarvatn.
Samkv. augl. í blaðinu í dag kost-
ar fæði fyrir fastagesti kr. 3.50,
miðað við j)að. að ]>eir séu eigi
A Lauprvatni
kostar ódýrara fæðið fvrir fasta
gesti (miðað við að þeir sé
minst 3 daga)
kr. 3,50 á dag.
Einnig er hægt að fá dýrara
fæði fyrir J)á sem Jiað vilja.
Allar upplýsingar hjá
Ferðaskrifstofn
íslands,
(í gömlu simastöðinni).
E.s. Nova
fer héðan mánudag 25. þ. m.
ki. 12 á hádegi vestur og norð-
ur um til útlanda, samkv. áætl-,
un.
Vörur tilkynnist í síðasta
lagi fyrir kl. 3 á laugardag.
Farseðlar sækist fyrir sama
tíma.
Nle. Bjarnason & Sralth.
t
I Kaupið 1 dag |
Deklc „Moselev“ á 7,00
Dekk „P. P.“ * - 4,25
Slöngur - 1,50
Pumpur - 0,65
Skerma pr. par. - 2,25
Bjöllur - 0,50
Bögglabera - 1,00
Handföng - 0,75
„ÖRNINN“,
Laugaveg 8
skemur en 3 daga. Dýrara fæði geta
þeir fengið, sem óska. Rúm geta
menn fengið fyrir kr. 1,50 yfir
nóttina, og jafnvel minna, ef marg-
ir slá sér saman um nokkuð stór
herbergi nokkurar njetur.
Gs. Botnia
kom til Leitb í gær kl. 1.
Heimatrúboð leikmanna,
Vatnsstíg 3. Almenn samkoma i
kveld kl. 8. '
Útvarpið í dag.
10,00 Veðurfregnir.
12,15 Hádegisútvarp.
16,00 Veðurfregnir.
19.30 Veðurfregnir.
19,40 Tónleikar — (Útvarps-
tríóið).
20.00 Klukkusláttur.
Grammófón: Battistiiii
syngur: Allor che tu coli’
estro úr „Tannháuser“,
eftir Wagner, og Cava-
tine úr „Faust“ eftir Gou-
nod. — Titta Ruffo syng-
ur: Dio possente, Dio
d’amor úr „Faust“ eftir
Gounod og Largo factö-
tum della cittá úr „Rak-
aranum“ eftir Rossini.
Fiðlu-sóló: Fritz Kreisler
leikur Meditation úr
„Thais“ eftir Massenet,
og Tambourin Cliinois,
eftir sjálfan sig.
20.30 Fréttir.
Músik.