Vísir - 30.07.1932, Qupperneq 4
V 1 S I R
Qrípiö gleðistundirnar á fiuginu
.VERICHROME"
með
filmu.
Jafnvel þótt ekki sé nema hinn minsti
möguleiki til þess, nær þó „Verichrome“
myndinni, „Verichrome“ er sérstaklega
hraðvirk og hefir gífurlega mikið svig-
rúm. A fúlviðrisdögum — jafnvel þó að
rigni — og á heiðríkum dögum breytir
„Verichrome“, sem kemur með mynd í
hvert sinn sem i fjöðrinni smellur, hug-
myndumyðar um það,hverjumyndavél-
in yðar fái afrekað. — „Verichrome“ er
fljótari fihnan, meistarafilman frá Ko-
dak.
í lieildsölu lijá
Hans Petersen,
Bankastræti 4, Reykjavík.
og fæst hjá öllum þeim, er Kodak-vörur selja.
ELOCHROM fllmup,
(ljós- og litnæmar)
8X9 cm. á kr. 1,20
»ysxu--------i,5o
Framköllun og kopíering ,
------- ódýrust. ------
Sportvöruhúa Reykjavlkur.
Islensk
-<-------
kaupi eg
ávalt
hæsta
verði.
Gísli Sigurbjömsson.
Lækjargötu 2. Sími: 1292.
hver slys kunni að hljótast af
þessum trassaskap, heldur láta
setja grindur fyrir opin og
handrið við þrepin tafarlaust.
Hefir þetla vcrið vanrækt alt of
lengi, og hefði ekki átt að þurfa
að vera að skrifa um slíkt í
blöðin. —
A Lækjartorgi er eini síma-
sjálfsahnn, sem allir vita um, ef
þeir á annað borð fara nokkuð
um borgina. — Aðrir sjálfsalar
eru víst einhversstaðar á stangli,
en um þá vita fáir. — Ætti nú
ekki að vera nema sjálfsagt, að
eini útisjálfsali borgarinnar
væri í lagi og nokkurnveginn
sæmilega útlítandi. Vita nú all-
ir að símasjálfsali þessi er borg-
arbúum til háðungar og munu
margir útlendingar taka mynd-
ir af honum til minnis um
smekkvísina á Islandi. Það er
svo margt, sem aflaga fer í
jjessari borg, að ekki er rúm til
að tala um það í þessari grein.
Hefir hér að eins verið bent á
grasið á götunum, kjallaraopin
Kaupmenn I
Kaujjið PET dósamjólkina, hún er drýgst og ódýrust.
M. Benediktsson & Co.
Sími 8 (4 línur).
Áætlunarferdip tii Búðardals
og Blönduóss þrlðjudaga 09 föstudaga.
5 manna bifreiðir ávalt til leigu i lengri og skemri
skemtiferðir.
Bifreiöastööin HEKLA,
simi 970. — Lækjargötu 4 — sími 970.
og sjálfsalann á Lækjartorgi.
Verður gaman að sjá, hvort
langt verður að biða, að þessi
mörgu og „stóru“ mál verði
tekin til athugunar og fram-
kvæmda eða livort fyrst muni
þurfa að skrif^ langar og ítar-
legar svargreinir til varnar.
Ungur maður.
Hitt og þetta.
Bandaríkin og Canada
hafa nú loks, að því er amerisk
blöð lierma, náð samkomulagi
um að grafa skipaskurði á leið-
inni frá Duluth Minnesota, að
St. Lawrence-ánni í Canada
þar sem þörf er á. — Þegar
Daglegar feröir að
Laugarvatni
frá Aðalstððinni.
skipaskurður þessi er fullgerð-
ur, geta Atlantshafs farþega-
skipin stóru siglt alla leið til
Duluth og annara stórborga við
vötnin miklu íCanadaogBanda-
rikjum. Samningar liafa staðið
lengi yfir um þetta risavaxna
áform. Áætlað er, að kostnaður-
inn við framkvæmd verksins
muni nema 800 miljónum doll-
ara.
Lillu-
límonaði-
púlver
gefur besta
og ódýrasta
drykkinn.
Hentugt í ferðalög.
H.f.Efnagerð Reykjavíkur.
Til Akureyrar á föstudag kl.
8 árdegis, ódýr fargjöld.
Til Sauðárkróks, Blönduóss
og Hvammstanga á mánudag
kl. 8 árd.
5 manna bifreiðar altaf til
leigu í skemtiferðir.
Bifreiðastöðin Hringurinn.
Skólabrú 2.
Sími 1232. Heima 1767.
Ðaglega
nýtt
grænmeti
í
| LEIOA TTTT""|
Góðar slægjur til leigu á
Kjalarnesi. — Uppl. hjá Frans
Benediktssyni, Traðarkotssundi
6. (812
Hestar til leigu með reiðtýgj-
um. Upjd. i Nýju Kjötbúðinni.
Sími 1947. (799
1. flokks iiálfkassabill, sem
liefir sæti fyrir 6—7 manns og
hús á palli fyrir 8, er til
leigu i langtúra. Sími 1174.
(787
r
KAUPSKAPUR
Lítið notuð kerxa til sölu. —
Uppl. Eskihlíð C við Laufásveg.
(816
KÝR
sem á að bera fimta kálfi 29.
ágúst, er til sölu. — Uppl. gef-
ur Páll Zóphóníasson. (809
Rósir og fleiri afskorin blóm,
einnig kaktusar í pottum, í Hellu-
sundi 6. Seld allan daginn. Simi
230. (742
r
HUSNÆÐÍ
\
Ödýr íbúð, 2 herbergi'og eld-
hús, til leigu. Uppl. á Spítala-
stig 8.____________________(813
Til leigu 1. okt. skemtileg
íhúð á Sólvöllum, 4 herbergi
og eldhús með öllum nýtisku
þægindum. A. v. á. (806
2 herbergi og eldliús ásamt
geymslu til leigu 1. ágúst. Uppl.
gefur Brynjólfur Árnason lög-
fræðingur, Laugavegi 79. (818
Gott lierbergi i kyrlátu húsi
til leigu. Sími 715. (817
VINNA
Kaujjalcona óskast austur í
Hrunamannahr. Uppl. á Hverf-
isgötu 119 3ju hæð. (814
Stúlku vantar 1. ágúst. Uppl.
i Kirkjustræti 2 (Herkastalinn).
Sími 203. (815
Stúlka óskast strax á fáment
heimili. Uppl. Smáragötu 12.
.(811
Teljia fyrir innan fermingu
óskast til að gæta barns. Norð-
urstíg 3. (807
Barnavagnar teknir til við-
gerðar og gerðir sem nýir.
Sömuleiðis allar viðgerðir á
reiðh j ólum. Reiðli j ólaverk-
stæðið „Þór“, Thomsenssundi.
(712
| TAPAÐFUNDIÐ |
Svartur kvenjakki úr ]>rjóna-
silki var skilinn eftir i sólskýl-
inu i sundlaugunum. Finnandi
er beðinn að skila i Vonarstr. 8.
Fundarlaun. (810
Böggull með prjónasilki
fundinn 3. þ. m. A. v. á. (80&
Nikkeleruðplata af framstuð-
ara á Hu]>mobil tapaðist i gær
á leið frá Þingvöllum. Finn-
andi er beðinn að gera viðvart
í síma 108. (817
FÉLAGSPRENTSMIÐJÁN.
Klumbufótur.
vingjamlegur karl og kátur og' Rinlendingur að ætt.
Francis kynti mig veitingamanninum og gat þess,
að eg væri bróðir sinn, nýkominn af sjúkraliúsinu.
1 viðræðu minni við veitingamanninn lýsti eg hinni
voldugu sókn Breta við Somne og því hversu öflug-
ur lier þeirra væri, vel vigbúinn og liklega ósigrandi.
Þóttist eg gera föðurlandi minu töluvert gagn með
frásögn minni.
Við snæddum því næst miðdegisverð og atliuguð-
um landabréfið.
„Eftir landabréfinu að dæma“, mælti eg, „eru
hérumbil fimtíu mílur liéðan og til Bellevue. Eg hefi
liugsað mér, að við séum á ferð um nætur, en liggj-
um fyrir á daginn, því að ekki kemur til mála að við
fáum okkur gistingu, þar sem eg er vegabréfslaus
Eg held áð okkur væri lientugast, að lialda okkur
ekki i námunda við Rin, því að förum við meðfram
henni, verðum við að fara i gegnum Wesel, en þar
er vigi. Og vígi eru okkur óhentug og óholl.,,
Francis var önnum kafinn að borða og kinkaði
kolli.
„Sem stendur er okkur óhætt að gera ráð fyrir, að
myrkt sé í tólf stundir af sólarhringnum,“ mælti eg
ennfremur. „Við verður að gera ráð fyrir að ein-
liver tima fari i það, að leggja þessa lykkju á leið
okkar, ennfremur til hvíldar og í það, að liugsast
gæti, að við viltumst eitthvað af vegi. En þó að gert
sé ráð fyrir öllu þessu, líst mér svo á, sem við ætt-
um að geta náð til Bellevue á þriðju nótt liéðan í
frá. Ef veður helst eins og það er, verður þetta ekki
svo afleitt. En taki að rigna verður það frámunalega
<>þægilegt fyrir okkur. Jæja — vilt þú ekki leggja
eitthvað til málanna?“
Bróðir minn félst á, að fara eftir tillögum mín-
um, enda liafði hann fúslega fallist á að gera alt að
mínum vilja, síðan er fundum okkar har saman.
Hann var búinn að eiga svo illa æfi, vesalingurinn,
og virtist því feginn, að einliver annar tæki að sér,
að ráða fram úr hvað gera skyldi.
Þegar klukkan var hálf átta að kveldi, stóðum við
með poka okkar á bakinu, fyrir utan borgina, og
vorum þá komnir að vegi þeim, sem liggur til Cre-
feld. í brjóstvasa á frakka þeim, er eg hafði hnupi-
að í ölkjallaranum, fann eg hlaðna skammhyssu
(flestir af gestum okkar höfðu borið vopn á sér).
„Þú geymir skjalið, Francis“, mælti eg. „Það er
best, að þú hafir vopnið lika!“ sagði eg og rétti fram
skammbyssuna.
En Francis drap við henni hendi.
„Nei — lialt þú gripnum“, sagði hann íbygginn á
svíp. „Þú kant að þurfa á honum að lialda í stað
vegabréfsins“.
Eg stakk skammbyssunni aftur i vasa minn.
Ivaldur regndropi féll nú í andlit mér.
„Hver fjárinn!“ lirópaði eg. „það er þá byrjað að
rigna!“
Þannig liófst ferðalag okkar.
¥ * * ¥ ¥
Gönguförin var líkust martröð. Regnið streymdí
úr loftinu án afláts. Á daginn lágum við fyrir ná-
kaldir og holdvotir og höfðumst ýmist við i votum
skurðum eða runnum, sem gátu ekki skýlt okkur
fyrir ísköldu regninu. Við vorum stirðir og altekn-
ir af liarðsperrum og fætur okkar voru þrútnir og
með stórum blöðrum. Við kviðum þvi án afláts, að
einliver kæmi að okkur, þar sem við lágum i leyni.
En jafnframt kviðum við liverri nóttu og þvi, að
þurfa að hefja gönguna á ný. En þrátt fyrir það
livikuðum við ekki frá áætlun okkar. Og þegar
klukkan var hérumhil átta, að kveldi hins þriðja
dags, höltruðum við sárfættir eftir vegi þeim, sem
liggur frá Cleves til Calcar. Þótti okkur þá, sem
við hefðum þegið rikulega umbun, fyrir þrfiði
okkar og illa líðan, er við komum aug'a á langa