Vísir - 04.08.1932, Síða 3
y I s i r
Es. Dettifoss
fór til útlanda í gærkveldi. Á meÖ-
al farþega voru: Gu'ðm. Thorodd-
sen prófessor og frú. Þóroddur
Jónsson, Eiríkur Leifsson, Sveinn
Ingvarsson, Gísli Jónsson, Thor
Magnússon, Árni B. Árnason,
Björgvin Finnsson, Haraldur Sig-
urðsson, Ingólfur Gíslason, Jóhanna
Guðmundsdóttir, Victor Gestsson.
Ófeigur Ófeigsson, Jón Sigurðsson,
Kristján Hannesson, Ingimundur
Stefánsson og Jónas Þorhergsson.
ÍJamalmennaskemtunin
'verður haldin á sunnudaginn við
Elliheimilið. Allir styrktarmenn,
sjálfboðaliðar og gefendur eru
vinsamlega beðnir að snúa sér til
Haralds Sigurðssonar, simi 1080.
:Skógræktarmál.
Fasteignanefnd bæjarins hefir
samþykt, „að leggja til við ltæjar-
stjórn, að Skógræktarfélagi Is-
lands verði lánaðir ca. 8—10 ha. i
Fossvogi, sem takmarkist að sunn-
an af landamerkjum Reykjavíkur,
Kópavogs og Digraness, en að
norðan af öðrum skurði í ræktaða
landinu i Fossvogi, rétt neðan við
safngryfjuna, að vestan af Hafn-
arf jarðarvegi, og að austan af
væntanlegum skurði í óræktaða
svæðinu.“
Skoðun bifreiða og bifhjóla.
Á morgun ber að koma með til
skoðunar bifreiðir og bifhjól RE
701—750.
Guðspekifclagið.
Næstkomandi sunnudag, 7. þ. m.,
er ákveðin skemtiför inn undir
Vatnagarða (milli Laugarness og
Klepps), kl. 1 miðdegis, ef veður
verður gott. Farið verður fótgang-
andi eða í strætisvögnum. — Til
skemtunar verður upplestur og
ræðuhöld. — Æskilegt er að allir
félagar, sem eru í bænum, verði
tneð. Heimilt er að taka með sér
gesti.
Garðskemtun
(Garden Party) verður haldin
annað kveld i garði Hressingar-
skálans við Austurstræti. Hefir
þegar verið haldin ]>ar ein slik
skemtun, hin fyrsta sinnar tegund-
ar hér á landi. Var garðurinn all-
ur skreyttur margvíslega litum
ljósum, og var garðurinn upplýst-
ur svo fagur, að öllum þótti mesta
unun á að horfa. — Garðskcmtan-
ir þessar verða vafalaust vinsælar,
•enda var vel af stað farið að öllu/
leyti, þvi að á orði var haft um
fyrstu garðskemtunina, að rnikill
prúðmenskubragur hefði þar verið
á öllum, en það verður því mjður
eigi sagt urn rnargar skemtanir,
sem haldnar eru hér í bæ.
Rv.
Spennandi kapplcikur.
I kvöld kl. 8 keppa Frarn og Val-
ur síðari kappleik sinn i Reykja-
víkurkepninni, og verður hann vafa-
laust mjög fjörugur, eins og hinir
fyrri leikir milli þessara félaga. Fé
Jögin hafa tvisvar kept í sumar, og
vann Frajn fyrra sinnið með 1—
•en Valur i hið síðara með 3—2.
Hvor sigrar i kvöld? íþ.
Hjálparbeiðni.
Hér í bæ er ekkja ein ntjög bág-
stödd og dettur mér í hug, hvort
góðir menn mundu ekki vilja likna
henni eitthvað og liðsinna, þó að
þröngt sé nú í búi-hjá mörgunt
Kona sú, sem hér uni ræðir, misti
rnann sinn síðastliðið haust og er
eignalaus með öllu. Hún er svo
biluð að heilsu, að hún getur lítið
eða ekkert unnið, og alls ekki neina
vinnu, sem erfiði fylgir. Hefir einn
María Markan
songmær
Ný bók:
er fyrir skömmu komiu heim
frá Þýskalandi. Efnir hún til
liljómleika i Gamla-bíó næstk.
föstudag.
María Markan hefir nú dval-
ið í Þýskalandi við söngnám
hálft fjórða ár. Hefir liún notið
kenslu i Berlín í söngskóla
Ellu Schmucker. — Er söng-
kennari þessi kunnur um alt
Þýskaland og Norðurlönd fyr-
ir ágæta kensluhæfileika. Ella
Schmucker hefir liið mesta álit
á Maríu Markan og er fullviss
um, að hún eigi frægðarferil
fyrir höndum. Hefir liún stutt
hana með ráðum og dáð, m. a.
veitt henni ókeypis kenslu. Hef-
ir hún gert það vegna þess, að
hún hefir skilning á því, að
María Markan hefir óvanalega
sönghæfileika, sem ekki mundu
fá notið sín, nema henni
væri gerð léttari liin erfiða
ganga á framabrautinni. Er
þessi góði skilningur, samúð og
hjálpfýsi við íslenska stúlku,
sem er að brjóta sér veg til
frama með erlendri stórþjóö,
svo lofsvert, að eigi verður nóg-
samlega lofað.
Söngvinir allir liér i bæ
muna vel heimkomu Maríu
Markan sumarið 1930. Söngur
hennar lireif þá alla og hélt hún
hér þá alls 9 hljómleika.
María Markan hefir sungið
opinberlega í Þýskalandi, m. a.
í útvarp i Hamborg. Ennfremur
isöng hún opinberlega ásamt 4
neinendum Ellu Sclimúcker, á
25 ára kennaraafmæli hennar.
Voru liæfustu nemendumir
valdir til þess. Dómar þeir, sem
blöðin birtu um söng M. M. þá,
voru og liinir lofsamlegustu.
f vor fór fram alþjóðasöng-
kepni i Vinarborg. Voru þátt-
takendur 700, en 200 voru vald-
ir úr og var M. M. í þeim hópi.
Af þessum 200 fengu 30 heið-
ursskírteini í viðurkenningar-
skyni fvrir frammistöðu sina
og var M. M. einnig i þeim
hópi.
Mag. Árni Fridriksson:
Aldahvörf í dýraríltiiiu:
255 bls. með 46 myndum. Verð 5 kr. ób.
Fovndýrafræðin eða rannsóknirnar á þróunarsögii
dýra og manna hefir ávalt þótt með merkari við-
fangsefnum, sem vísindin hafa fengist við. í hók
þessari er skýrt frá niðurstöðum þessara rann-
sókna, sagt frá upphafi lífs á jörðinni, eftir því sem
best er hægt að gera sér grein fgrir því, frá skrið-
dýrunum miklu, risaeðlunum, sem eru forfeður
etstu fuglanna og toks frá því er maðurinn kom til
sögunnar. Bókin er óvenju skemtilega rituð, með
fjölda af mgndum til skýringar, og mun vera
fgrsta bók á íslensku, sem segir svo ítarlega frá
þessum merka þætti náttúruvísindanna, og jafn-
framt einhver ódýrasla bók, sem komið hefir á
árinu.
Fæst hjá bóksölum.
Bókadeild Menningarsjóðs. -
Aðalútsala og afgreiðsla hjá
Austurstræti 1. Simi 26.
Maríu Markan var í vor boðin
staða við óperuna i Elberfeld-
Barmen um árs bil, en sú ráða-
gerð varð eigi framkvæmd
vegna þess að bæjarstjórnin í
Elberfeld-Barmen samþykti,
að ekki mætti veita erlendu
söngfólki stöður við óperuna.
Gera Hitlers-sinnar í Þýskalandi
háværar kröfur um það, að
Þjóðverjar séu látnir sitja
fyrir og þar næst þeir, sem öðl-
ast hafa þýskan ríkisborgara-
rétt. Væntanlega rætist þó úr
þessu, þegar meiri kyrð kemst
á i landinu, þvi að Þjóðverjar
hafa altaf kunnað að ineta góða
erlenda söngkrafta og mun svo
enn verða. Stendur Maríu stað-
an til hoða, er leyfi fæst lil ráðn-
ingarinnar.
María liefir verið beðin að
syngja oi>inberlega, er „íslenska
vikan“ verður haldin i Stokk-
hólmi í liaust. Væntanlega fær
hún þá tækifæri til þess að
syngja opinberlega viðar á
Norðurlöndum.
Á föstudagskveld syngur M.
M. m. a. nokkur íslensk lög, eft-
ir S. Ivaldalóns, Sig. Þórðarson,
S. Einarsson og Árna Thor-
steinson; enn fremur 2 lög eft-
ir Rich. Strauss (Vögguljóð og
( Ástarljóð), lag eftir Tauliert
(Fugi í skógi), aríu úr óperettu
(Leðurblakan) eftir J. Strauss
og ariur úr óperunum Tosea og
Butterfly, eftir Puccini, og loks
aríu ’Þ' óperunni La Traviata,
eftir Verdi. — F^ú Valborg Ein-
arsson verður við hljóðfærið.
María Markan liefir nú aflað
sér álits erlendis fyrir söng sinn,
eins og erlendir blaðadómar
bera órækt vitni um. Þekking
liennar og æfing er nú vafalaust
meiri en þegar hún kom liér
siðast og lireif alla, er á liana
lilýddu. Það þarf þvi engu að
spá um liljómleikana annað
kveld. I>eir verða Maríu til sóma
og áheyröndum til ánægju.
—a.
af hestu og þektustu læknum bæj-
arins sagt henni, að hún þyldi ekki
neitt erfiði. Konan á fyrir barni að
sjá, og stendur nú uppi allslaus, en
þykir sárt að verða nianna-þurfi.
Það eru því vinsamleg tilmæli mín,
að góðir bæjarbúar leggi nokkuð af
mörkum til þessarar bágstöddu
konu. Þess er ekki að vænta, að um
stórgjafir geti orðið að ræða. en
„safnast þegar saman kemur" og
væri óskandi, að sem flestir sæi sér
miEH
Kgl. liirðsali.
Hressmgarskálinn.
Föstudaginn 5. ágúst:
GALA
GARDEN-PARTY
með
SOUPER FROID
(framreitt milli kl. 20-21 '/2 )•
m
G.s. Island
fært að rétta hjálparhönd. Dag-
lilaðið „Vísir“ hefir góðfúslega
loíað að taka á móti samskotum.
Reykjavík, 2. ágúst 1932.
Sii/urður Hannesson.
Héraðsmót
verður haldið í Reykholti a
sunnudaginn kemur. Ferðaskrif-
stofa íslands auglýsir í blaðinu í
dag ódýrar ferðir þangað, fram og
aftur.
Aðgöngumiðar seldir ti!
hádegis á föstudag.
Ekknasjdður
Reykjavíknr
heldur
Adalfund
sinn í húsi K. F. U. M. föstu-
dagskveldið 5. þ. m. kl. 8.
STJÓRNIN.
Á skemtisamkomnna
í Reykholti á sunnudaginn kost-
ar farið (um Borgarnes á laug-
ardagskveld). fram og til baka,
að eins 15 krónur.
Bílar fara lika um Ivaldadal
á laugardagskveld og til baka
um Hvalfjörð á sunnudags-
kveld.
Ferðaskrifstofa Islands
Sími 1991.
íþróttakepni K. R.
Á föstudagskvöldið kl. 8ýý, fer
fram stangarstökk og á sunnudags-
morgun kl. 10 fimtarþraut.
Heimatrúboð leikmanna,
Vatnsstíg 3. Almenn samkoma i
kvöld kl. 8.
r
fer laugardaginn 6. þ. m. kl. 8
síðd. hraðferð til Kaupmanna-
hafnar (um Vestmannaeyjar og
Thorshavn).
Farþegar sæki farseðla á
morgun.
Tilkynningar um vörur komi
sem fyrst.
Skrifstofa C. Zimsen.
DÖMUTÖSKUR
SKJ ALAMÖPPUR.
SEÐLAVESKI.
BUDDUR.
SEÐLABUDDUR.
LYKLABUDDUR.
HANDTÖSKUR.
FERÐATÖSKUR,
allar stærðir,
mjög ódýrar.
Hljððfærabúsið
Austursti'æti 10.
Hljóðfærahús Austurbæjar
Laugaveg 38.
Búð
til leigu neðst á Laugaveginum.
Tilboð, merkt: „Búð“, leggist
inn á afgr. Visis fvrir sunnudag.
8est ið aoglfsa í YlSI.
Fram og Valup keppa í kveld kl. 8
Stundví