Vísir - 05.08.1932, Qupperneq 3
V I S I R
Til Þingvalla daglega, laugardaga og sunnudaga oft á dag.
Magniis Skaftfjeld*
öðs'jarbílsföð/
Sími 695.
að kreppan kemur Grund í
full fjárþrot. Og miklum meiri
liluta bæjarbúa mundi falla
illa, að Grund væri boðin upp
á „nauðungaruppboði“ fyrir
liaustið.
Vona má að vel rætist úr
öllu, enda líkur til að nú sé
komið „i dýpsta dalinn", og
ekki þurfi annað en sæmileg
samtök til að færast upp á við
og smálosna við þyngstu bvrð-
arnar.
En hvað sem öllu öðru líður,
þá munið eftir að láta það
berast, að gamalmennaskemt-
unin verður hjá Grund á
sunnudaginn kemur, og liefst
kl. hálf tvö, — og lálið vita um
alla aðstoð í síma 1080 eða
2296.
Þökk fyrir lesturinn og góð-
ar undirtektir.
S. Á. Gíslcison.
Norðmðnnom fapað
—o—
Úti á s.s. „Stavangerfjord“
var mikill gleðskapur í fyrra-
kveld. Áttu forgöngu að þeim
fagnaði ýmsir menn, búsettir
hér í bæ, vinveittir Noregi. —
Iiom O. Ellíngsen kaupm. (síð-
ast form. félags Norðmanna
hér og umboðsmaður „Nord-
mannsforbundet" hér) því til
leiðar, að dálítil aukaskemtun
var haldin fyrir farþegana um
kveldið kl. 9. Veðrið var gott
um það leyti ög söfnuðust far-
þegarnir saman á efsta þilfari.
Eftir að O. Elbngsen hafði
skýrt lrá því með nokkrum orð-
um, að söngflokkurinn og
glimuflokkurinn, sein von væri
á, hefðu fúslega orðið við beiðni
um að skemta farþegunum án
endurgjalds, og enn fremur, að
söngfiokkurinn væri sá sami,
•sem heimsótti Noreg fyrir
nokkrum árum, og ávann sér
mikla hylli þar fyrir frammi-
stöðu sína, og loks að glímu-
flokkuriim væri sá sami, sem
nú ætti bráðlega að koma fram
fyrir hönd íslands á „íslensku
vikunni“, sem lialdin verður i
Stokkhólmi, og sýna þar isl.
gbmu — hófst skemtunin með
þvi, að Ben. Sveinsson f.v. for-
seti Alþingis, ávarpaði farþeg-
ana með stuttri og snjallri ræðu
á islensku. Var henni mjög vel
tekið, en vara-ræðismaður
Norðmanna hér, hr. Wendel-
boe þýddi ræðuna á nörsku og
tókst prýðilega.
IÞvi næst söng Karlakór K. F.
U. M. undir stjórn Jóns Hall-
•dórssonar rikisféhirðis jjessi
3ög: —•
Ja vi elsker (eftir R. Nord-
raak).
Ó, Guð vors lands (eftir
Sv. Sv.).
Sla ring om gamle Noreg
(eftir Joh. Haarklou).
Móðurmálið (eftir Sv. Sv.).
Nýkominn
])ressaður saltfiskur á 20 aura
y2 kg. Ágætur liarðfiskur og
súgfirskur riklingur á 1 krónu
% kg.
PÁLL HALLBJÖIINS.
(VON).
Simi 448.
Olav Trygvason (eftir Reis-
siger).
Þá sýndi flokkur glímumanna
úr Glimufél. Ármanni ghmu
undir stjórn hr. leikfimiskenn-
ara Jóns Þorsteinssonar.
Söngmönnum og' glímu-
mönnum var þakkað fvrir
skemtunina með dynjandi lófa-
taki.
Alt þetta fór vcl fram og í
umræðum á eftir var söngur-
inn mjög rómaður, en um glim-
una gátu farþegarnir siður
dæmt. Ivváðust farþegarnir vart
liafa heyrt betri kórsöng.
Fyrir liönd farþeganna þakk-
aði hr. lýðháskólastjóri Islands-
moen fyrir skemtunina og við-
tökurnar og sagði m. a. að jætta
yrði þeim ógleymanleg stund.
Vonaði liann að þetta yrði til
þess, að eigendur skipsins létu
skip sin koma hingað oftar.
Eftir að skemtuninni lauk,
var sest að veitingum, er skip-
stjóri lét fram reiða.
Loks var stiginn dans fram
undir miðnætti og skemtu
menn sér hið besla.
Þegar söngflokkurinn lét frá
borði, söng hann á ný „Ja vi
elsker“ og auk þess, „Nár fjor-
dene bláner“.
Lagt var fast að skipstjóra
(og framkvæmdarstjóra skipa-
félagsiiis, sem var með skipinu)
að koma hingað aftur næsta ár
og mun gleðskapur þessi, sem
var fslandi til sóma, ýta undir
að svo verði gert.
4. ágúst.
x.
Grænlandsðeilan.
Samkvæmt tilk. frá sendi-
herra Dana, eru Danir ánægð-
ir yfir úrskurði alþjóðadóm-
stólsins í Iiaag. Muneh utan-
rikismálaráðherra segir m. a..
að dómstóllinn Iiafi hafnað
kröfu Norðmanna að beiðni
Dana.
Ráðherrann drepur einnig á
það, að Norðmenn lialdi því
fram, að Danir hafi slakað til,
og hafi það haft áhrif á hvern-
ig úrskurðurinn varð, en það
sé fjarri, að um nokkurt „und-
anhald“ sé að ræða af Dana
hálfu. Ðanir hafi við réttar-
haldið í engu hvikað frá skoð-
unum sinum um yfirráðarétt
sinn á þeim svæðum, sem um
er að ræða, en úrskurður sá,
sem dómstóllinn hefir kveðið
upp, segir Muncli, má vera
Dönum gieðiéfni.
HAUST-NfJBNGAR 1932.
Skoðid sýningasfcápinn.
NINON
Litil sýnisliornasending.
Ullarkjólar frá 35,00.
odio - 23—rr
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavik 14 st., ísafirði
10. Akureyri 11, SeyðisfirSi 11,
Vestmannaeyjum 12, Stykkishólmi
11, Blönduósi 13, Raufarhöfn 9,
Hólum í Hornafirði 12, Grindavík
13, Færeyjum 12, Julianehaab 4,
Jan Mayen 4, Angmagsalik 8,
Hjaltlandi 12, Tynemouth 14 stig.
Mestur hiti hér i gær 17 st., minst-
ur 11. Sólskin í gær 13,8 st. Yfir-
lit: Ný lægð suðvestur af Reykja-
nesi á hreyfingu austur eftir. —
Horfur: Suðvesturland, Faxaflói:
Suðaustan og austan kakli. Skýjað
loft. en úrkomulaust aS mestu.
BreiÖafjörður, Vestfirðir, Norður-
land: Austan og norðaustan gola.
Úrkomulaust og viða léttskýjað.
Norðausturland, Austfirðir, suð-
austurland: Hægviðri. Skýjað loft
og sumstaðar lítilsháttar rigning.
Bæjarráðið.
Kosið var í „Bæjarráð Reykja-
víkur“ á fundi bæjarstjórnar i gær-
kveldi. — Kosningu hlutu af hálfu
sjálfstæðismanna, þeir Jákob Möl-
ler, Pétur Halldórsson og Guðm.
Ásbjörnsson. — Jafnaðarmenn og
framsóknarmenn brugðu sér i „flat-
sængina“ og kusu í sameiningu þá
Stefán Jóh. Stefánsson og Her-
mann Jónasson. •— Munu þar með
vera jöfnuð gömul hrossakaup viÖ
tvennar kosningar i niðurjöfnunar-
nefnd.
Knud Zimsen,
borgarstjóri hefir, með samþykki
bæjarstjórnar, tekið sér hvíld frá
störfum nú um hríð. Hefir hann
verið hinn mesti starfsmaður, en
er nú þreyttur orðinn, og telja
læknar honum all-langa hvíld frá
störfum nauðsynlega. — Guð-
mundur Ásbjörnsson, hæjarfulltrúi,
hefir verið settur borgarstjóri.
Aflinn
er samkv. skýrslu Fiskifé-
lagsins sem hér segir: 1. ágúst
1932: 51,969 tonn (324,809
skpd.). — 1. ág. 1931: 61,759
tonn (385,995 skpd.). — 1.
ágúst 1930: 64,348 tonn (402,-
174 skpd.). — 1. ágúst 1929:
56,252 tonn (351,577 skpd.).
Fiskbirgðir
eru samkv. skýrslu gengis-
nefndar sem liér segir: 1. ágúst
1932: 34.072 tonn (212.951
skp.). — 1. ágúst 1931: 50.863
tonn (317.892 skp.). — 1. ágúst
1930: 40.683 tonn (254.271
skp.). — 1. ágúst 1929: 31.437
tonn (196.483 skp.).
Gengið í dag.
Sterlingspund .......... kr. 22.15
Dollar................... — 6.33J4
100 ríkismörk ........ — 151.12
—• frakkn. ír...........— 24.95
— belgur .............. — 87.77
— svissn. fr............— 123.61
~ lirur ............. — 32.45
— pesetar ............. — 51.45
— gyllini ............. — 255.62
— tékkóslóv. kr......— 18.88
— sænskar kr. ...... — 113.91
— norskar kr............— 111.11
— danskar kr............— 119.09
Gullverð
ísl. krónu er nú 58.90.
Geir
fór áleiðis til Englands í gær-
kveldi með 2000 körfur isfiskj-
ar.
E.s. Suðurland
fór til Borgarness kl. 1 e. h. i
dag.
G.s. ísland
kom að norðan í morgun.
Atvinna.
Bifreiðarstjóri, sem getur sett
trvggingu fyrir hifreiðakaup-
um, getur fengið keypta ágæta
7 manna bifreið, án útborgunar
við afhendingu. A. v. á.
Þessi skemtibátur
fæst leigður í lengri og skemmri
ferðir með vélstjóra. Upplýs-
ingar gefur Lárus Elieserson,
Vesturgötu 40. Sími 612.
Hjúskapur.
í dag verða gefin saman í
hjónaband af síra Bjarna Jóns-
syni ungfrú Jóna S. Hannes-
dóttir og Óskar Gunnarsson,
gjaldkeri i Félagsprentsmiðj-
unni.
Heimdallur,
félag ungra Sjálfstæðis-
manna, efnir til skemtiferðar i
Þjórsárdal á morgun. Sjá augl.
E.s. Columbía,
frakkneska skemtiferðaskip-
ið, kom hingað í dag. Farþeg-
ar 340.
E.s. Selfoss
fór frá Leith í fyrradag.
E.s. Lagarfoss
fór frá Kaupmannahöfn i
gærmorgun.
Fákur
fer skemtiför að Selfjalls-
skála næstk. sunnudag. Lagt
verður af stað frá Fríkirkjunni
kl. 91/2 árd. — Heitur matur
verður á boðstólum i Selfjalls-
skála. Sjá augl.
Bifreiðaskoðunin.
Á morgun ber að koma með
til skoðunar bifi’eiðir og bifhjól
R. E. 751—800.
Skemtun
verður haldin i Reykliolti a
sunnudaginn. Ódýrar ferðir
fram og aftur. Sjá augl.
Kappleiknum
milli Fram og Vals, í gærkveldi,
lauk svo, að Valur bar sigur úr
býtum með 3:0.
Útvarpið í dag.
10,00 Veðurfregnir.
12,15 Hádegisútvarp.
16,00 Veðurfregnir.
19.30 Veðurfregnir.
19,40 Grammófónsöngur:
Lög úr „Rakaranum j
Sevilla“, eftir Rossini:
Lag Rosinu, sungið af
Ebbu Wilton. Amelita
Galli-curci syngur: Eg
heyrði veika rödd og
Glialiapine syngur: La
calunnia.
20,00 Klukkusláttur.
Grammófóntónleikar:
Symphoia nr. 8, eftir
Beetlioven.
20.30 Fréttir. Lesin dagskrá
næstu viku.
Músik.
Á skemtisamkomuna
í Reykholti á sunnudaginn kost-
ar farið (um Borgarnes á laug-
ardagskveld). fram og til haka,
að eins 15 krónur.
Bílar fara líka um Kaldadal
á laugardagskveld og til baka
um Hvalfjörð á sunnudags-
kveld.
Ferðaskrifstofa íslands
Sími 1991.
HJdlkurbfi Flóamanna
Týsgötu 1. — Sími 1287.
I. flokks mjólkurafurðir. Skjót
afgreiðsla. Alt sent heim.
Gullfoss.
Sunnudaginn 7. ágúst kl. 8
verður farið til Gullfoss — og
heim um Laugarvatn.
Farið kostar kr. 10.00 fyrir
fullorðna og kr. 6 fyrir böm.
Ferðaskrifstofa
íslands.
(gömlu simstöðinni).
(Simi 1991).
Borgarnes. Dans.
Eftir komu Suðurlands í
Borgarnes, á laugardög-
um, er dans á Hótel Borg-
arnes kl. 9. --- Þriggja
manna liljómsveit spilar.
Tilminnis.
Á sunnudaginn
kemur verður seldur heitur
matur í Selfjallsskála.
Efiujiá eignm við
eftir af ódýra, frosna kjötinu.
Ennfremur nýtt dilkakjöt úr
Borgarfirði.
Herðabreið,
Sími: 678.
Valur,
3. og 4. flokkur fara skemti-
fei-ð að Tröllafossi og Álafossi
á sunnudaginn. Drengir tilkynni
þátttökn i verslun Gunnars
Gunnarssonar eða Versl. Vað-
nes.
Happdrætti K. R.
Dráttur fer fram 15. ágúst.
Vinningarnir eru 5, bifreið, 200 kr.
í peníngum. reiðhjól, 100 kr„ 5
manna tjald. — Seðlarnir fást hjá
félögum K. R. og í ýmsum helstu
verslunum bæjaríns.