Vísir - 11.12.1932, Side 2
V 1 S I R
é
ATLABÚÐ,
LAUGAVEG 38.
H
HEILDSÖLUBIRGÐIR:
Dr. Oetker’s Búðingsduft, allar tegundir.
— — Gerduftið „Backin“.
Þessar vörur biðja allar húsmæður um.
Sími: Einn—tveir—þrír—fjórir.
Erleodar fréttir.
--O—
London, 14. nóvember.
United Press. - FB.
Mikilmenni í viðskiftalífinu.
Ýms blöð í Evrópu ræða nú
um, hve varhugavert það sé, að
bera of mikið traust til hinna
svo kölluðu mikilmenna í við-
skiftalífi þjóðanna og vitna til
þess, að miljónir manna hafi
orðið fyrir sárum vonbrigðum
og tapað stórfé, vegna þess, að
menn báru of mikið traust til
manna eins og Kylsant’s lávarð-
ar, ívars Kreugers hins sænska,
og nú siðast ameríska stórvið-
skiftamannsins Samúels In-
sull’s. Til allra þessara manna
og fleiri, þótt hér sé ekki nefnd-
ir, bar allur almenningur,
stjórnmálamenn og ríkisstjórn-
ir ótakmarkað traust. Þeir voru
álitnir ofurmenni. Lánstraust
þeirra var ótakmarkað. Þeim
stóðu allar dyr opnar. Og al-
menningur lagði óttalaust fé i
þau fyrirtæki, sem þeir höfðu
með höndum. En fyrir þessum
mönnum fór öUum svo, að þeir
mistu traust almennings. Eng-
inn þeirra var sá afburðamað-
ur, sem menn höfðu ætlað, á
sviði viðskiftanna og þeir mistu
álit sitt, vegna blekkinga eða
sviksemi og fjárglæfra. Við-
skiftasaga Insull’s, hrun fyrir-
tækja þeirra, sem hann var við
riðinn, flótti hans til Grikklands
o. s. frv, hefir einnig veikt til-
trú manna vestan hafs til við-
skifta-ofurmennanna. — Blöð
frjálslyndra og verkamanna í
Bretlandi ætla, að viðskifta-
kreppan hafi orðið til þess, að
almenningur hafi fyrir fult og
alt glatað trúnni á „afburða-
mennina“. Fjármála-sérfræð-
ingur dagblaðsins London Her-
ald segir m. a.: „Menn voru
komnir á þá skoðun, að iðnaða-
franifarirnar lægi í þá átt, að
koma á samsteypum iðnaðar-
fyrirtækja, undir stjórn af-
burðamanna, er nyti trausts al-
mennings, manna eins og In-
sull’s, en hrun viðskifta-fyrir-
tækja hans leiddi af sér, að þeir,
sem lagt höfðu fé í fyrirtæki
hans, mistu eigur sinar, iðnað-
ur á stóru svæði í Bandaríkj-
unum komst á ringulreið, en af
því leiddi aukið atvinnuleysi. —
Væntanlega hefir viðskiftahfs-
saga Insull’s og annara slíkra
manna, þau áhrif, að menn læri
af“. — Önnur blöð, t. d. frjáls-
lynda blaðið Week-End-Review,
aðvara menn við að treysta um
of mestu mönnum viðskiftalífs-
ins. — „Það þurfti aðra eins
kreppu og nú stendur yfir, til
þess að Ijósta upp um þá menn,
sem eftirlitslaust bralla með
samansparað fé mikils þorra al-
mennings í fjölda Ianda.“
Síldarmjðl
og útlendur áburður.
—o—
Magnús Lárusson hefir skýrt
frá merkilegri tilraun í „Vísi“ í
gær. — Hann hefir nota'Ö útlendan
áburð og síldarmjöl til garSáburð-
ar, sína tegundina á hvorn blett og
fengið meiri uppskeru þar sem
síldarmjölið var notað. Þetta virS-
ist gefa allgreinilega bendingu um
þaS, aS síldarmjöIiS sé fyrirtaks
áburSur og líklega þarf ekki aS
óttast, aS þaS „eitri“ jarSveginn,
en því hefir veriS haldiS fram í er-
lendum blöSum, aS þaS mundi hinn
erlendi áburSur gera, ?Sa aS
minsta kosti sumar tegundir áburS-
ar, sem unninn er úr loftinu.
Mér finst virSingarvert af M.
L. aS hann skuli hafa gert þessar
tilraunir. ViS íslendingar getum
framleitt ósköpin öll af síldar-
mjöli, en markaSurinn erlendis
stundum tregur. Þeir peningar,
sem bændur verSi til þess aö
kaupa síldarmjöliS, yrSi kyrrir í
landinu, og er þaS ekki lítils virSi.
— ídendingar hafa nú þegar var-
ið til kaupa á útlendum áburði
nokkurum miljónum króna og
mun ekki alveg áreiSanlegt, aS
þaS brask hafi borgaS sig. AuS-
vitaS sprettur vel undan þessum
áburSi, en ef þaS er satt, aS hann
eitri jarSveginn, þá er háski á
ferSum.
Eins og allir vita, hefir boriö
mikiÖ á allskonar óhreysti í sauS-
fé síSustu árin og virSist heldur
fara vaxandi. — Hverju er þessi
Batík.
Tek að mér að mála á göm-
ul og ný slifsi, lielst hvít, sófa-
púða, lampaskerma, puntu-
klúta og dúka.
Hatta-vlðgerðarstofan,
óhreysti aS kenna ?‘ Hennar verS-
ur ekki síSur vart í góSsveitum,
þar sein fé er gefin taSa að tals-
verSu lcyti, heldur en i harSinda-
sveitum. Eg held jafnvel, aS féS
sé einna óhraustast þar, sem því
er gefið hey af ræktaSri jörS og
útbeit er lítil aS vetrinum eSa
mestan hluta vetrar.. HvaS veld-
ur? — Húsakynni hafa þó batnaS
í flestum sveitum, fjárhús komin
undir járnþaki, loftræsting betri en
áSur tíSkaSist o. s. frv. — Fénu
ætti því aS geta liSið betur nú,
meSan þaS er í húsi, en áSur gerS-
ist, þegar fjárhúsin hripláku og
féS varS aS standa blautt í slíkri
for, aS þaS gat ekki lagst. — En
þaS ber ekki á því, aS þaS sé
hraustara nú en áSur gerSist, held-
ur þvert á móti. — Eg spyr aft-
ur: Hvað veldur?
EitthvaS skildist mér á einni
grein Magnúsar Lárussonar, aS
hann byggist ekki viS, aS stjórn
BúnaSarfélags íslands yrSi „hrif-
in“ af þeirri uppástungu hans, aS
hvetja bændur til þess aS nota
síldarmjölið til áburðar, í staS
hins tilbúna áburSar, sem keyptur
hefir veriS dýrum dómum frá út-
löndum og mörgum bændum langt
um megn. Mér þótti þetta skrítiö,
því aS vitanlega stendur engum
nær, en stjórn Búnaöarfélagsins,
aS vera trúlega á verði í þessu
efni. AburSarkaupin frá útlönd-
um eru vissulega dýrt spaug fyrir
fátæka bændur, og óverjandi aS
fleygja peningum í slíkt, ef eins
góður eSa betri áburöur er fáan-
legur innanlands.
Væntanlega verður þaS rann-
sakaS til hlítar sem allra fyrst,
hvert áburðargildi síldarmjöliö
hefir, því aö þaS er ákaflega mik-
ilsvert atriSi.
Eg sé enga ástæöu til, aS rengja
frásögn M. L., en vitanlega má
ekki gleypa viS umsögn hans aö
órannsökuðu máli. En tilraun sú,
sem hann geröi í sumar, viröist
alveg ótvírætt benda til þess, aö
síldarmjöliS sé hinn ákjósanleg-
asti áburöur. — Væri ánægjulegt
og æskilegt, aS nánari rannsóknir
benti til líkrar niSurstööu og til-
raunir Magnúsar Lárussonar.
23. nóv.
Fv. bóndi.
Um mðtnneyti
safnaðanna
—o—
Vegna fyrirspurnar hér i blaðinu
i gær frá „Þ.“, viljum við taka
fram eftirfarandi:
Það er rnikið og vandasamt verk
að sjá um að allir þeir mörgu, sem
nú eiga við þröngan kost að búa,
fái hjálp á einn eða annan hátt frá
Mötuneyti safnaðanna. Enda þótt
aðalle'ga væri ætlast til, að hjálp
væri að eins veitt'þeim, sem litla
matbjörg höfðu, hefir Mötuneytið
einnig reynt að hjálpa mönnurn um
kol i ofninn, og eitthvað af fatn-
aði handa þeim, sem klæðlitlir eru.
Er aðsókn að Mötuneytinu afar
mikil.. Þar eru látnar úti um 350
máltiðir á degi hverjum, þar með
talinn sá matur, sem sendur er út
í bæ til þeirra, sem veikir eru og
lasburða, og þar sem mörg börn
eru og mæðurnar geta ekki komið
með þau í Mötuneytið til að borða.
Hefir framkvæmdanefndin aflað
sér upplýsinga um alla þá, sem
styrkur er veittur, bæði eru þeir
spurðir ítarlega um hagi sína, er
þeir biðja um hjálp, mat eða ann-
að, og þar að auki er sendur mað-
ur inn á heimilin til þess að kynna
sér heimilisástæðurnar. Er nú þeg-
ar búið að afla skýrslna um all-
flesta, sem í Mötuneytinu borða, og
má fullyrða, að þar muni eklu
neinir vera, sem ekki er rétt og
sjálfsagt að rétta hjálparhönd.
Starfsemi Mötuneytis safnað-
anna er að sjálfsögðu upp yfir all-
ar stjórnmáladeilur hafin og ekk-
ert tillit tekið til hvaða stjórnmála-
flokks menn teljast. Kemur því
ekki til mála, að vísa mönnum frá
af þeim ástæðum, heldur er það
einungis gert þegar mn einhverja
þá er að ræða, sem geta fætt sig
sjálfir og þurfa enga hjálp að fá.
Er oss ekki kunnugt um að neinir
„hálaunaðir æsingamenn" borði í
Mötuneytinu, heldur munu þeir, eða
sá maður, sem „Þ.“ mun aðallega
eiga við í grein sinni, ekki hafa úr
miklu að spila, og þurfa því hjálp-
ar við, sem svo margir aðrir. —
Það skal og tekið fram, að sumir
þessara manna, sem „Þ.“ á við,
greiða við og við fyrir mat sinn,
þegar þeir eiga nokkra peninga.
Einnig er vert að geta þess, að einn
þessara manna fór að tilhlutun eins
af undirrituðum nokkra daga upp
í sveit til þess að taka upp kartöfl-
ur, og kom að afloknu verki með
það sem hann hafði fengið í kaup,
einn poka af kartöflum, og gaf til
Mötuneytisins.
Erum vér fullvissir að bæjarbú-
ar muni vera á voru máli um að
hættulegt og skaðlegt sé fyrir starf
það, sem nú hefir verið hafið til
þess að bæta hag þeirra, sem við
erfiðust kjör eiga að búa, að blanda
þvi á einn eða annan hátt i stjórn-
máladeilur, og munum vér þvi
starfa á sama hátt og hingað til að
þvi leyti.
„Þ.“ og aðrir, sem í Mötuneytið
hafa komið, munu hafa tekið eftir
því, að margir ungir og röskir
menn koma þangað til að borða, og
eru það atvinnulausir, einhleypir
menn, sem hvergi fá vinnu. Hefir
því oft verið fleygt manna á milli,
að ekki væri rétt að gefa þessum
mönnum að borða, — þeir gætu
unnið fyrir. sér. Mun það náttúr-
lega vera rétt, að þessir menn gætu
unnið fyrir sér, ef nokkur vinna
væri fyrir hendi, en því láni er nú
ekki að fagna. Hafa nokkurir þess-
ara manna farið i sveit, en allflestir
eru hér í bænum, vinnulausir og
allslausir. Er þetta tekið hér fram
sakir þess, að ýmsir eru stundum
að tala um flækinga, sem borði i
Mötuneytinu, en það eru þessir at-
vinnulausu menn alls ekki, heldur
menn sem skylt er að hjálpa.
Reykjavík 9. des. 1932.
í framkvæmdanefnd Mötuneytis
safnaðanna.
Sigurður Halldórsson.
Gísli Sigurbjörnsson.
Magnús V. Jóhannesson.
Utan af landi.
Gunnólfsvík, 22. nóv. — FB.
Að undanförnu hafa 2 menn
hér í sveitinni gefið sig að þvi
að búa til gúmmískó úr göml-
um bílaslöngum. Skó þessa
selja þeir á 5 krónur gegn
staðgreiðslu. Skórnir lita mjög
vel út og eru svo sterkir, að
menn telja þá mun endingar-
betri en útlenda gúmmískó.
Langan tíma # að undan-
förnu hefir verið ágætur fisk-
afli á Þórshöfn. Upp á síðkastið
hefir afhnn verið mestmegnis
ýsa. — Dönsku. dragnótabát-
arnir, sem stunduöu veiðar hér
um slóðir í sumar, eru nú allir
hættir veiðum og lagðir af stað
heimleiðis.
Að undanförnu hafa verið
hér stillur og blíðviðri. I út-
sveitum er jörð alauð og þíð,
en til fjalla svo mikil leysing,
að þar sjást nú að eins fanna-
drög. — Fénaður og hross hafa
í öllum nálægum sveitum geng-
ið sjálfala það sem af er vetrin-
um. Fremur lítið hefir borið á
bráðafári, enda allflestir búnir
að láta bólusetja.
KKKKKMKKMKaHKKKHKMMKK:
Skoðid i
i dag.
gluggana
n
n
K
Adeins fallegrar vörur. Alt afar ódýrt. g
HnsgagnaversL við Dómkirltjuna, Sfmi 2139. |
SXKKKKKKK KKKHKKKKKKKKKKKKKKKKKKKK KKKKKKKKKKKKKKÍ**