Vísir - 17.02.1933, Side 3

Vísir - 17.02.1933, Side 3
VISIR og títt er, þegar góðir og mein- lausir menn freistast til að ger- ast lögbrjótar, og gamli maður- inn fær ekkert nema mannorðs- missi og refsingu fyrir viðvikið. Eln nú er röðin komin að syni hans. í slíkum þrautum lífsins skal mennina reyná. Með frá- bærri atorku tekst piltinum að vinna fyrir fjölskyldu sinni og afla sér virðingar og trausts hvers manns. Frásögnin er raunsæ, en yfir henni svifur létt rómantík, þokki æfintýranna. Meistara- legust er lýsingin á örlögum gamla mannsins, sem verður fyrir hrammi laganna. Vegna þess kafla sögunnar eins er ávinningur að því að lesa þessa bók. Hið mikla átthagaskáld er enn megnugt að hrífa fjarlæga lesendur. S. Sk. 10 0 F 1. = 11421787, == II 0» 111 Yeðrið í morgtin. Frost um land alt. 1 Reykjavik — 4 stig, ísafirði — 8, Akureyri — 6, SeyðisfirÖi — 5, Vestmanna- eyjum — 4, Stykkishólmi — 7, Blönduósi — 9, Hólum í Homa- firði — 6, Grindavík — 7, Fær- ■eyjum — 2, Julianehaab — 2, Jan Mayen o, Angmagsalik — 14, Hjaltlandi o stig. (Skeyti vantar frá Grímsey, Raufarhöfn og Tyne- iwiouth). — Mestur hiti hér í gær O stig, minstur — 4 stig. Sólskin í gær 2,2 stundir. — Yfirlit: Lægð við Suður-Grænland, á hreyfingu siorðaustur eftir. — Horfur: Suð- vesturland, Faxaflói, Breiðafjörð- sir, Vestfirðir: Stilt og bjart veð- ur fram eftir deginum, en síðan vaxandi suðaustan átt, hvass með þíðviðri i nótt. Norðurland, norð- austurland, Austfirðir: Minkandi aorðan átt í dag, en gengur í suð- austan átt í nótt. Víðast úrkomu- laust. Suðausturland: Norðan gola <0g bjartviðri í dag, en gengur í suður og þyknar upp í nótt. Jón Halldórsson ríkisféhirðir hefir nú látið af störfum sínum í þjónustu ríkisins ®g gerst skrifstofustjóri í Lands- bankanum. Ungfrú Ásta Magnús- dóttir gegnir störfum ríkisféhirðis, uns öðruvísi verður ákveðið. Sigurbjörn Guðmundsson, Rauðará, er 52 ára í dag. fijónaefni. Nýlega hafa opinberað trúlofun «5na ungfrú Unnur Valdimarsdótt- ir og Jón Jónsson, bæði til heimil- ■is að Varmadal. Höfnin. Bragi kom frá Englandi í morg- '4tn. Olíuskipið British Pluch kom í gær. Tveir frakkneskir botnvörp- tmgar komu í gær. Suðurland kom írá Borgarnesi í dag með norðan- pg vestanpóst. Að gefnu tilefni hefir Visir verið beðinn að geta jþess, að það hafi verið borið und- kr dómsmálaráðuneytið, hvort leyfa *kyldi ,,automat“-kassann' á Hótel Borg, og hafi það eigi fundið ástæðu til þess að banna hann. CHeiðgosinn verður leikinn í Grindavík annað Irveld kl. 9. Er þetta bráðskemti- legur leikur, er var sýndur hér í Reykjavík og víðar við ágæta að- aókn. Bruggun. Lögreglan handtók i gær- kveldi Þorvald Ólafsson, Holts- götu 18. Var gerð húsrannsókn hjá honum og var hann að vinna að áfengisbruggun, er lögreglan kom. Dómur í máli hans fellur bráðlega. Aflasölur. Arinbjörn hersir seldi 1250 kit í Hull í gær fyrir 1100 stpd. Sur- prise seldi i Grimsby i gær, 2700 körfur, fyrir 1212 stpd. Alþýðubókasafnsnefnd. í hana hafa verið kosnir: Guðm. Ásbjörnsson, Jakob Möller og Ól- afur Friðriksson. Gengið í dag. Sterlingspund........kr. 22.15 Dollar ................— 6.46% 100 ríkismörk .........— 153.63 — frakkn. fr.....— 25.38 — belgur ..........— 90.20 — svissn. fr.....— 124.85 — lírur ........ — 33.12 — pesetar .........— 53.33 — gyllini .........— 259.70 — tékkósl. kr....— 19.27 — sænskar kr.....— 117.55 — norskar kr.....— 113.51 — danskar kr.....— 100.00 Gullverð ísl. krónu er nú 57.70. Hver ber ábyrgð? Höf. greinar með þessu nafni, sem Vísi var send i pósti ný- lega, er beðinn að gefa sig fram við ritstjóra blaðsins (sími 4600). Greinin er réttmæt að öllu, en blaðið birtir hana ekki, nema þvi að eins, að höf. segi til nafns síns. / Skip Eimskipafélagsins. Dettifoss fer héðan i kveld kl. 10 áleiðis til Hull og Ham- borgar. Gullfoss fór frá Kaup- mannahöfn i morgun. Goðafoss er væntanlegur hingað á sunnu- dagsmorgun. Lagarfoss kom til Kaupmannahafnar i gærmorg- un. Selfoss var væntanlegur til Anlwerpen í dag. Iþróttafélag Reykjavíkur heldur dansleik í Oddfellow- höllinni næstk. laugardag. Tala aðgöngumiða mun vera mjög takmörkuð og ættu menn því að tryggja sér þá í tíma. Erindi ætlar Jochum M. Eggertsson að flytja í Varðarhúsinu n.k. sunnu- dag kl. 2 e. h. Ermdið nefnir hann Útvarpsefni neitað! — Af hverju? — Sjá nánara í augl. Dr. Max Keil flytur fyrirlestur í háskólanum í kveld kl. 8 um „Flieger und Flug- zeuge“. Öllum heimill aðgangur. K. R. Þau börn í K. R., er stundað hafa æfingar í vetur, geta vitjað aðgöngumiða að leiksýningu á laugardaginn kl. 4—6 e. h. í K. R.- húsið. Otvarpið. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Hádegisútvarp. 16.00 Veðurfregnir. 18.30 Fyrirlestur Búnaðarfé- lags tslands. 19,05 Þingfréttir. 19.30 Veðurfregnir. 19,40 Tilkynningar. Tónleikar. Lesin dagskrá næstu viku. 20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20.30 Kvöldvaka. Barnaskemtun Á r m a n n s verður í Iðnó sunnu- daginn 19. febr. kl. 2 e. h. SKEMTISKRÁ: Drengjaglíman (Sigurjónsskjöldurinn). Upplestur;: (Halld. Grímss. 13 ára). Fimleikasýning telpna. Hljómleikar (samspil, Fiðla og Píanó). Friðfinnur Guðjónsson skemtir. Karlakór syngur. Fimleikasýning drengja. Dans. — Hljómsveit A. Lorange. Aðgöngumiðar fyrir börn kosta 75 aura, og fyrir fullorðna kr. 1,25, og fást þeir í Iðnó á laugardag frá kl. 4—7 e. h. og sunnudag frá kl. 10—12 árd. Stjóm Ármanns. SendisYeinadeiId Me'kírs heldur skemtikveld á Café Svanur við Barónsstíg, annað kveld kl. 9. Fjölbreytt skemti- skrá. — ökeypis fyrir dömur. Sendisveinar, fjölmennið. Skemtinef ndin. Appollo- dansklúbburinn tieiíiup dansleik í Iðnó á morgun (laugardaginn 18. þ. m.). Aðgöngumiðar í Iðnó í dag frá kl. 5—8. — Hin viðurkenda bæjarins besta hljómsveii spilar (Lorange). - Stjórnin. Það er nú orðið nokkuð langt siðan, er Þingvallasöfnuður sendi stjórninni beiðni um það, að prestakallið yrði auglýst laust til umsóknar og síðan veitt. En ekki hefir neitt heyrst frá stjóminni enn þá í þessu máli, svo að mér sé kunnugt. Stjórninni er alveg óhætt að trúa þvi, að Þingvallasöfnuður óskar þess eindrégið, að prest- ur verði settur á staðinn. Veit eg með vissu, að margir Þing- vellingar báru það traust til núverandi stjórnar, að hún mundi verða við óskum þeirra og leyfa þeim að hafa prest á Þingvallastað, eins og verið hef- ir frá ómunatíð og alt þar til, er Jónas Jónsson flæmdi prest- inn í burtu og setti leiðan kom- múnista i stað lians. Hefir J. J. liklega ætlast til, að kommún- istinn sæi um sálarheill fólks- ins og „kristnaði“ það á sinn hátt. En söfnuðinum hefir ekki getist að kommúnista Jónasar, fremur en öðrum, og ekki haft mikið saman við hann að sælda. Eg, sem þessar línur rita, er kunnugur Þingvellingum frá fornu fari, og veit, að það verð- ur geymt en ekki gleymt, ef stjórnin neitar þeim um, að fá prest á staðinn. Eg veit að sönnu lítið um ungdóminn í sveitinni, en roskna og ráðsetta fólkið óskar eindregið eftir presti. — Eg kyntist fyrrum nokkurum Þingvallaprestum og vissi, að þeir voru vinsælir og í metum liafðir af söfnuðinum. — Og enn mundi svo fara, ef þangað kæmi prestur. Nú eru tveir guðfræðingar i ríkisstjórninni og finst mér ó- hugsandi, að þeir geti verið á móti þvi, að Þingvellingar fái að hafa prest mitt á meðal sín, eins og verið hefir. Sérstaklega finst mér alveg fráleitt, að síra Þorsteinn Briem setji sig upp á móti slíku. Hann hefir verið þjónandi prestur í sveit, og veit vafalaust manna best, að sveila- fólkið vill ekki vera prestlaust. Það er altaf leiðinlegra að hafa aðkomupresta, jafnvel þó að þeir sé ágætir og það eru þeir báðir, Mosfellsprestarnir, sem nú þjóna Þingvallabrauði. — Mér er sagt, að kirkjumálin heyri undir Magnús Guðmunds- son dómsmálaráðherra. Mér þykir ólíklegt, að sá góði mað- ur vilji ekki unna Þingvelling- um þess, að fá prest á staðinn. Og þá ætti þetta að geta orðið með góðu samþykki allra ráð- herranna. Vænti eg þess, að stjórnin DELICIOUS EPLL JAFFA APPELSlNUR, CITRÓNUR bestar i Liverpool. Altaf nýtt grænmeti. TÁMALIT óbrothættu vörur: Bollar, Bikarar, Diskar, Staup, o. fL TÁMALIT er henlugt tilferða- laga, til heimilisnotkunar fyrir börn, fyrir skólabörn o. m. fl. auglýsi brauðið innan skamms, svo að hinir gömlu sveitungar i mínir geti fengið sinn eigin prest í vor, ekki siðar en í far- dögum. Gamall Þingvellingur. Sportvöruhús Reykjaríkur. Bankastr. 11. Nýkomið: Hveiti á kr. 14.50 pokinn. — Norskar kartöflur á kr. 8.00 pokinn. — Hjörtur Hjartarson, Bræðraborgarstíg 1. Sími 4256. UUarpsfréttir. Berlín i morgun. F.Ú. Samþyktir þær, sem Litla bandalagið nýlega hefir gert í Genf, hafa vakið allmikinn ó- hug á Póllandi. En Litla bandalagið er samband, sem Tékkóslóvakia, Júgóslavía og Rúmenía gerðu með sér 1920— 1921 að undirlagi Frakklands til höfuðs Ungverjalandi, og skuldbundu þau sig til þess að koma á Dónár-sambandi, sem í fyrstu ætti að vera fjárhags- legt og viðskiftalegt samband þeirra ríkja, sem risið höfðu upp á rústum keisaradæmisins austurrísk-ungverska, en síðan ættu þau að renna inn í Júgó- slavíu og Rúmeniu, alt með það fyrir augum, að hinir fornu austurrísk-ungversku ríkishlutar skriði ekki saman aftur. Stjórnarblaðið pólska illskast nokkuð út af hinum nýju samþyktum handalags- ins og kveður Júgóslaviu vera í sambandinu af hræðslu við Ítalíu, Rúmeníu af hræðslu við innanlandsvandræði, en Tékkóslóvakíu af því að henni sé umhugað um aö D' ár- sambandið komist á. Segir blaðið, að það sé að visu gert ráð fyrir því í ákvæðumbanda- lagsins, að önnur ríki geti kom- ist i það, en það muni ekki vera nema á pappírnum, enda sé þess ekki sérstaklega getið að Pólland eigi kost á þvi, en það eigi þó svipaðra hagsmuna að gæta, eins og hin þrjú rík- in. Loks kveðst blaðið vona, að ekki stafi nein ný vandræði af þessum nýju samþyktum. Vatnsglös, vínglös, asíettur, ávaxtaskálar, kökudiskar og boilapör, marg- ar tegundir. Borðhnífar, gaffl- ar og hverskonar búsáhöld hest og ódýrust í búsáhaldaverslun Voggur, Laugaveg 64. traustsyfirlýsingu til stjórnar- innar, vegna ráðstafana henn- ar í atvinnuleysismálunum. Tillaga þessi kom til atkvæða i gær, og féll hún, og var mik- ili meiri hluti atkvæða á móti henni. Á sovjetþingi, sem haldið hefir verið í Moskva, hefir ver- ið samþykt að bægja öllum þeim mönnum, sem andvígir eru sovjetskipulaginu, frá þátt- töku i landbúnaðinum rúss- neska. FjármálatiIIögur Daladiers voru samþyktar i öldungaráð- inu franska í gær. Frakkneski hermálaráðherrann hefir far- ið fram á fjárveitingu til bygg- ingar á tveim brynvörðum beitiskipum, er séu hvort um sig 26 þúsund smálestir að stærð. Er annað þeirra þegar komið á s' ikkana í flotahöfn- inni Brest, en báðum er ætlað að koma i staðinn fyrir 4 göm- ul beitiskip, er hvert eru 6 þúsund smálestir að stærð. Jafnast hin nýju skip á við 4 þýsk beitiskip af hinum svo- nefnda Deutschlandflokki. Verkamannaflokkurinn breski hafði á þingi borið fram van-

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.