Vísir - 28.05.1933, Blaðsíða 4
VISIR
Áheit á Strandarkirkju,
af hent Vísi:
konu, 2 kr. frá M. B., 2 kr. frá
N. N., xo kr. frá í. S.
5 kr. frá gamalli
Erlendar fréttir.
London í maí. FB.
Sir Henry Royce.
Nýlega er látinn Sir Hepry
Royce, i'rægur breskur verk-
fræðingur, stofnandi firmans
Royce Ltd. Mancliester. Upp-
haflega lagði Royce stund á
viðgerðir bifreiða, en setti sér
síðar það mark, að framleiða
betri bifreiðir en nokkurt
annað firma. Hraðakstursmað-
ur að nafni Rolls tók að sér
að selja framleiðslú Royce.
Síðar gerðu þeir með sér félag,
sem löngu er heimsfrægt fyrir
ágæta framleiðslu. — Royce
var fæddur 1863 og var af fá-
teekum kominn. Tók hann til
að selja fréttablöð 10 ára að
aldri til þess að hjálpa fjöl-
skyldu sinni. — (Úr blaðatilk.
Bretastj.).
Moskva i maí.
United Press. - FB.
Nauðsynjaskorturinn
í Rússlandi.
Á undanförnum mánuðum
hefir verið mikill skortur ým-
iskonar nauðsynjavarnings í
Rússlandi og verslanir liaft
mjög lítið eða ekkert á boð-
stólum af skófatnaði, skóhlíf-
um, tilbúnum fatnaði, líús-
gögnum ýmiskonar o. s. frv.,
en allar þessar vórutegundir
eru nú fáanlegar í Moskva og
fleiri borgum. Gæði varnings
eru yfirleitt lítil og verðlag
enn hátt, en í'er lækkandi.
Chicago í maí.
United Press. - FB.
Ný flugferð upp í háloftin.
Flugferð upp í liáloftin er
ráðgerð hér á meðah sýningin
mikla stendur yfir. Allan und-
irbúning annast Piccard pró-
fessor og er ráðgert, að liann
sjálfur eða hróðir hans Jean,
en þeir eru tvíburar, taki þátt
i ferðinni. Gerð verður tilraun
, til þess að komast liærra upp í
loftin en nokkur maður hefir
áður komist. Mörg vísindatæki
verða i flugkúlunni, smíðuð að
fyrirsögn Arthurs F. Compton,
kennara við háskólann í Chi-
cago.
Skðtnlóðarönglar
allar stærðir fyrirliggjandi, og alt er tilheyrir
þessum veiðiskap.
VeiðapfæpaveFsl. Geysir.
Alt verður spegilfagurt sem
fágað er með lægileginum „Fiallkon.an*‘.
Efnagerð Reykjavikm
hemlsh verhsmiðja.
Alt á sama stað.
Bílavörur nýkomnar, margar tegundir.
Drif í flesta bila. Dynamóspól- i Fjaðrir fram og aftur í Stude-
ur, Platínur, Coil, Rafkerti, j baker, Erskine, Essex, Dodge,
Kertaþræði. Perur, Luktir, Raf- j De Soto, Chrysler, Buick, Ford,
geyma. Rafflautur, Dunkrafta I
Chevrolet o. fl.
o. fl.
Verðið er ávalt það besta.
Cgill Vilhjálmsson,
Laugaveg 118.
Símar 1716, 1717, 1718.
íslensk fornrit.
Egils saga Skalla-Grímssonar.
Sigurður Nordal gaf út. (tslensk fornrit II bindi) 108+320 bls.
í stóru 8 bl. broti, með 6 myndum og 4 kortum. Verð heft. kr. 9.
Með þessu bindi hefst bókaútgáfa Fornritafélagsins. Sú bókaút-
gáfa mun auka gleði íslendinga yfir þeim auði sem þjóðin á i
lxókmentum gullaldarinnar. — Ivaupið bækur Fomritafélags-
ins jafnóðum frá byrjun. Egils saga verður til sölu í bandi inn-
an skamms.
Fæst lijá bóksölum. — Aðalsala i
Bðkaverslun Sigfdsar Eymnndssonar
og Bókabúð Austurbæjar, Laugaveg 34.
físis kaffid g©s»í.F alla glada,
Gúmmístimplar
eru búnir til í
Félagsprentsmiðjunni.
Vandaðir og ódýrir.
r
VINNA
1
j Stúlka óskast yfir sumarið..
H. Kr. Júlíusson, Borðeyri. —
Uppl. Hótel Borg, nr. 402. (1699
| KAU PSKAPUR 1
Athugið! Hattar, manchett-
skyrtur, sokkar o. m. fl. ný-
komið. Karlmannahattabúðin,
Hafnarstræti 18. Einnig gamlir
iiattar gerðir sem nýir á sama
stað. (1700
Vil kaupa notað þakjárn. Má
vera úr bruna. Get notað allar
lengdir. Hringið í síma 3807,
milli kl. 11—12 og 3-—4 rúm-
Iielg'a daga. -— G. Kristjánsson.
(1692
Hin margef tirspurðu pils,
blússur og sumarkjólar, koma
nú með Goðafossi. Ninon, Aust-
urstræti 12. Opið 2—7 . (1689
Hús, stór og smá og bygg-
ingarlóðir, selur Jónas H. Jóns-
son, Hafnarstræti 15. Simi 3327.
(76
Hangikjöt, hakkað kjöt, kjöt-
fars, Wienerpylsur, miðdags-
pylsur og íslensk egg á 12 au.
stk. Kjötbúð Reykjavíkur,Vest-
urgptu 16. Sími 4769. (1221
Dívanar, dýnur. Vandað efni,
vönduð vinna, lágt verð. Vatns-
stig 3. Húsgagnaverslun Reykja-
vikur. (814
Stjúpmóður-og Bellisplöntur ti!
útplöntunar, til sölu í Suður-
götu 18. Simi 3520. (894
Fótaaðgerðir. Pósthústr. 17.
Sími 3016. Sigurbjörg Magnús-
dóttir. (1695
Stúlka óskast. Uppl. Berg-
staðastræti 17. (1693
Telpa, 12—14 ára, óskast til
að gæta barns á Fjölnisveg 14.
(1690
Viðgerðir á barnavögnum
Ixestar á reiðhjólaverkstæði M.
Guðmundss, Kirkjustr. 2. (1598
Utsvarskærur og skattakærur
skrifar Pétur Jakobsson, Kára-
stíg 12. (1559
Skattakærur
skrifar Þorst. Bjarnason,
Freyjugötu 16. Sími 3513.
(1503
Stúlka óskast í vist. Ingunn
Þórðardóttir, Barónsstíg 65 —
miðhæð. (1645
Stúlka, vön liúsverkum, ósk-
ast nú þegar i vist að Esjubergi,
Þingholtsstræti. (1669
pl
fAPAÐ -FIJNDIÐ
I
Armbandsúr tapaðist í gær i
miðbænum, merkt: „J. S.“. —
Óskast skilað á Rakarastofu
Valdimars Loftssonar, Lauga-
veg 63, gegn fundarlaunum.
(1686
í
TILKYNNING
:
)ÍRN££'TIUCVNNI
Unglst. ÆSKAN nr. 1 heldur
síðasta fund sinn í dag kl. 3
stundvíslega. Kosning full-
trúa á stórstúku- og unglinga-
regluþing. (1701
Húsnæðisskrifstofa Reykja-
víkur, Aðalstræti 8. Húsnæði,
atvinnuráðningar karlmanna.
Fasteignasala. Opið 10—-12 og
1—4. Simi 2845. (1691
| HÚSNÆÐI
Ein stofa og eldhús til leigu-
Séríbúð. A. v. á. (1703
Herbergi til leigu. Óðinsgötu
14. " ' (1698
Forslofustofa til leigu, með
ræstingu. Vorliúsum, Skerja-
firði. Lág leiga. (1697
2 herbergi og gott eldunar-
pláss til leigu á Smiðjustíg 9.
(1696
Til leigu nálægt miðbænum
sólrík 3ja herbergja íbúð. Uppl.
á Njálsgötu 13B. (1694
Til leigu 1. júní 3 herbergi
og eldhús á Sellandsstig 20. —
(1688
2 sólrík herbergi til leigu og
hálft eldhús. Nóg geymsla. —
Skólavörðustíg 19. (1687
Upphituð herbergi fást fyrir
ferðamenn, ódýrast á Hverfis-
götu 32. (1153
Ódýr herbergi til Ieigu. —
Framnesveg 26 A, niðri. (1681
FEIAGSPRENTSMIÐJAN.
HEFNDIR.
sinn. — Og það mun verða hlutskifti móður yðar,
hinnar ágætu og glæsilegu konu.“
„Mannhundur — ófreskja — djöfull!“ grenjaði
Basil Gregory og röddin var eins og i dauðsærðu
viIBdýri. — Og samstundis sleit hann sig lausan og
bjóst til að ráðast á fjandmann sinn. Hann reiddi
hægri höndina til höggs, en Ah Sing hljóp undir
höggið og gat komið í veg fyrir, að hann næði til
hins grimmlynda Kinverja. Og í sömu andránni tóku
verðimir hann og héldu honum.
„Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn!“ hrópaði
Wu Li Chang og hirti nú ekki um, að dylja skap sitt.
— Það eru þeir lærdómar, sem þið — hinir kristnu
heiðursmenn — kennið okkur með framferði ykkar.
— Og nú skal eftir þeim farið,“ bætti hann við, af-
myndaður og þrútinn af bræði. — „Auga fyrir auga
-— tönn fyrir tönn — og konu fyrir konu! — Og
nú skuluð þér lifa nokkur augnablik, sem líkjast
þeim, sem yfir mig hafa komið af yðar völdum —“.
Basil Gregory huldi andlit sitt í þeirri hendinni,
sem laus var. — Höfuð hans seig niður á brjóstið
og allur likaminn skalf eins og strá fyrir vindi.
„Ah Sing“, sagði mandarininn um leið og hann
gekk að málmbumbunni. I>ví næst talaði liann nokk-
ur orð við þjóninn og virlist auðsætt, að honum
þætti miklu skifta, að þjónninn misskildi liann ekki
og tæki rétt eftir. Þá drap hann sprota á málmbumb
una og söng við hátt. — Og enn gaf hann Ah Sing
einhverjar fyrirskipanir og sló því næsl öðru sinni
á málmbumbuna og að þessu sinni tvö högg. —
Basil reyndi að rétta úr sér og langaði til að vita,
hvaða fyrirskipanir þetta væri. Hann hlustaði af al-
efli, ef vera mætti að hann næmi orð Kinverjans,
en hann var engu nær, er samtalinu var lokið, eða
fyrirskipanir gefnar öllu heldur. —
Þegar Wu hafði lokið máli sinu, hneigði Ah Sing
sig djúpt og auðmjúklega og gekk i hægðum sin-
um út úr herberginu. Hann hvarf út um aðrar dyr
en þær, sem Basil hafði að baki sér.
Wu sneri sér að Bretanum: — „Þér skiljið ekki
„skrælingjamálið" okkar, virðulegi ungi Englending-
ur, og þvi var ástæðulaust fyrir yður að vera að
hlusta. — Eg hefi mælt svo fyrir, að þegar hinir
hlýðnu og trúu þjónar mínir heyri málmbumbuna
óma næsta sinn, skuli þeir leysa yður úr böndum,
svo að þér getið komið liingað sem frjáls maður og
mun þá móðir yðar vera hér fyrir. Þeir endurfund-
ir munu verða voðalegir og minnisstæðir! — Ög
nú verður farið með yður út í musteri guðanna. —
Það verður jafnað við jörðu á morgun! — Þér haf-
ið unað yður vel i þessu musteri og nú farið þér-
þangað aftur! — Bíðið þar, ungi maður — liugsið
um dóttur mína og hlustið eftir ómum máhnbumb
unnar! Þegar þér heyrið óminn, eruð þér frjáls mað-
ur og getið farið hvert sem þér viljið — með lienni
_ 66
„Með henni —?“ — Basil Gregory botnaði ekki
neitt í neinu. — „Með henni —“ sagði hann öðru
sinni eins og úti á þekju.
„Já“, svaraði Wu Li Chang' og glotti djöfullega.
— „Því að — sjáið þér nú til — þegar eg læt málm-
bumbuna óma hið næsta sinn, verður búið að greiða
skuld yðar að fullu. Móðir yðar mun þá hafa greitt
hana----- “.
Basil Gregory braust um fast og reyndi að slíta
sig lausan. — En það tókst ekki, því að þjónarnir
héldu honum. — Hann grét af sársauka og reiði,
en fékk engu orði upp komið, nema þessu: „Óvætt-
ur! — Níðingur! — Djöfull úr logandi Yíti!“
„Þetta likar mér,“ svaraði Wu Li Cliang einkar-
rólega. — „Rökfræði ykkar Vesturlandabúa er eins
og botnlaust fen! — Þér svivirtuð döttur mina og
saurguðuð —“, sagði hann þvi næst með nokkurum
æsingi i röddinni, en áttaði sig þá og skifti um tón.
Hann ætlaði sér ekki að fara að skattyrðast við þenna
ómerkilega, hreska ásta-löddara. Hann var ekki þess