Vísir - 29.03.1934, Blaðsíða 3
VlSIB
Fiskilinup
ódýrar og góðar frá
Rendall & Coombs.
Bridport, England.
Aðalumboðsmenn á íslandi:
S. ÁRNASON & CO.
Sími 4452. — Lækjartorgi 1.
heiðarveginn sem vetrarveg
framvegis, þegar Sogsvegurinn
er fullger og sameinaður Þing-
vallavegi, en'fönn hleður á Hell-
isheiði, svo að þar verður ófært.
Þetta væri að visu all-mikill
krókur, en gæti þó ef til vill
borgað sig, ef Sogsvegurinn
versl þá eins vel fyrir fönn eins
og hinn nýi Mosfellsheiðarveg-
ur. Sveitamaður.
Nýja sundlaugin á Álafossi.
Hún hefir nú verið opin tii
afnota nokkura daga og liafa
margir Reykvíkingar farið upp-
eftir og fengið sér ánægjuleg-
an sundsprett. I gær fór um
hálft annað liundrað manns i
laligina og margir eru búnir að
biðja um sundleyfi i dag og
næstu daga. Eru liestu horfur
á því, að hin nýja sundlaug
verði mjög mikið notuð. — Það
er áreiðanlega heilsusamlegt
fyrir æskulýðinn, sem situr að
óþörfu í svælu og reyk á gilda-
skálum, dag eftir dag og kveld
eftir kveld, að bregða sér upp
að Álafossi við og við og fá sér
hressandi bað og góðan sund-
sprett í lauginni. Aðgangseyri
að lauginni er mjög í lióf stilt,
lcostar 50 aura fyrir fullorðna
og 25 aura fyrir börn innan
fermingar.
Næturlæknir
er i nótt Kristin Ólafsdóttir,
Tjarnarg. 10 B. Simi 2161. Næt-
urlæknir aðra nótt er Bergsv.
Ölafsson, Suðurgötu 4. Simi
3677. Næturvörður er þessa
viku í Reykjavikurapoteki og
lyfjabúðinni Iðunni.
Betanía.
Samkoma á sldrdagskveld kl.
3VÍ>- Bjarni Jónsson talar.
Föstudaginn langa ú sama tíma.
Tngvar Árnason talar. Allir vel-
komnir.
Heimatrúboð leikmanna.
Hátíðasamkomur. Á Vatns-
stig 3: Skírdag kl. 8 e. h. Föstu-
daginn langa kl. 8 e. h. Páska-
dag: Bænasamkoma kl. 10 f. li.
Barnasamkoma kl. 2 e. h. AI-
menn samkoma kl. 8 e. h. Ann-
an páskadag kl. 8 e. h. — I
Hafnarfirði, húsi K. F. U. M.,
laugardaginn 31. þ. m.: Almenn
samkoma kl. 8y2 e. h. Allir vel-
fcomnir.
Áheit
á Strandarkirkju, afhent Vísi:
Kr. 2,50 frá Ó. Þ.
Áheit
á hai'naheimilið Vorblómið
(Happakrossinn), afhent Vísi:
'2 kr. frá ónefndum.
Útvarpið í dag.
Kl. 20.40' Veðurfregnir., 14.00
Messa í fríkirkjunni (sira Árni Sig-
urðsson). 19.00 Tónleikar. 19.TO
Veðurfregnir. Lesin dagskrá næstu
viku. 19.25 Ávarp frá Sambandi
bindindisfélaga (Þórarinn Þórarins-
son, Helgi Scheving). 19.50 Tón-
leikar. 20.00 Klukkusláttur. Frétt-
ir. 20.30 Erindii Um Grundtvig
(Sig. Sívertsen vígslubisjkup). 21.00
Tónleikar: Orgél-sóló (Eggert Gil-
fer).
Útvarpið á morgun.
Kl. 10.40 Veðurfregnir. n.oo
Messa í dómkirkjunni (sira Bjarni
Jónsson). 17.00 Messa í dómkirkj-
unni (síra Friðrik Hallgrímsson).
K. F. U. K.
Fundur verður annað kveld
(föstudaginu langa) kl. 8y>.
Guðrún Lárusdóttir talar. Alt
kvenfólk velkomið.
Skeiðarð blanpia ?
Símasamband austur rofnaði
í gær.
FÚ. 28. mars.
Um nónbil i dag slitnaði
símasamband á Skeiðarár-
sandi, og telja menn vafalaust,
að það liafi stafað af vexti í
Skeiðará eða jökulhlaupi. Rétt
áður en samband slitnaði, var
talað frá Núpstað austur til
Skaftafells, og var þá sagt, að
áin væri i örum vexti. Sam-
kvæmt símtali við Núpstað kl.
17 í dag, — en þar var þá þoka
og lítið skygni — vissn menn
þá það ejlt um hlaupið, sem
hér er sagt.
Skantamanni srarað
Eg vil meö nokkrum orðum
svara skautamanni þeim, er skrif-
ar i Alþýöublaöiö 18. mars, meö
undirskrift G. K. og er þar með
nokkur ónot til Skautafélags
Keykjavíkur, sern hann þó, eftir
þvi sem.mér skilst á skrifum hans
efast um aö sé til, og dettur mér
ekki i hug aö reiðast manninum
út af því. Þó geri eg ráð fyrir þvi,
aö G. K. hafi séö auglýstan í blöð-
um bæjarins, nú í febrúar síðast-
liönum, aöalfund Skautafélágs
Reykjavikur. Af þeim fundi gat þó
ekki orðið þann dag, sem tiltekið
var i auglýsingunni. Seinna boöaði
svo þáveraj|di formaönr skauta-
félagsins, hr. Carl Olafsson ljós-
myndari, til annars fundar. Mætti
eg undirritaöur á þeim fundi ásam'c
tveim öðrum. Alls mun meðlimatala
félagsins aö nafninu til vera um
20 manns, engan sjóö mun félagið
eiga, og fáir munu hafa greitt árs-
tillag sitt fyrir síöasta ár.
A. þessum fundi leyföi eg þaö,
að mig mætti nefna formann þessa
íélags, og skildi eg hafa umsjón
n?.eð framkvæmdum og starfi fé-
lagsins á Tjörninni, þegar tiltæki-
.legt þætti aö búa þar til og við-
halda skautasvæði, eins og eg hefi
gért nokkra undanfarna vetur, fyr-
ir tilmæli nokkurra góðra drengja
úr íþróttafélögum bæjarins. Seinna
var svo stjórn Skautafélagsins
auglýst i öllum blöðum bæjarins,
og hefir G. K. sennilega lesið þau
nöfn sem þar voru nefnd. Af þess-
ari stuttu greinargerð minni frá
fundum og félagatölu Skautafélags
Reykjavikur, mun G. K. vissulega
siá, að nóg rúm er fyrir hann og
aðra áhugamenn skautaíþróttar-
innar i þessu félagi, og að þar er
rctti staðUrinn fyrir hann að vera,
sem áhugamann þessarar íþróttar,
til þess að hafa virk og drengileg
áhrif um það, að Skautafélagið
hafi forystu í skautaíþróttamálmn,
eins og G. K. telur sjálfsagt í grein
sinni.
Eg vil svara G. K. því, að úr
bæjarsjóði eru veittar kr. 500,00
til viöhalds skautasvæði fyrir al-
menning og hefur formaöur leyfi
til að ávisa á þá upphæð. Af því
fé munu nú eyddar rúmlega kr.
100.00, sem var að mestu notað i
febr.; þá gafst tækifæri, og þó lé-
legt, til að laga og viðhalda litlu
skautasvæöi ein fjögur kvöld. Það
cr veðráttan, sem mestu ræður i
þessum efnum sem mörgum öðr-
um. Eins og allur ahnenningur veit
hefur tíðarfar í vetur verið mjög
óstöðugt, og oftast þíðviðri, sem
er sist til þess fallið, að hægt sé
að viðhalda skautasvæði, meðan
við ekki hefjumst handa, og kom-
um upp, einhversstaðar á góðúm
stað, myndarlegri skautahöll.
ís hefur þó verið á Tjörninni nú
mikið af marsmánuði, en svo af-
leitur, aö hvergi nærri hefur ver-
ið nothæfur til skautaferðapeg hefi
haft mikla löngun til að bæta um
það á einhverjum bletti, en ekki
þótt það tiltækilegt, vegna þess aö
mjög lítið frost liefur verið flest-
ar nætur, en sterk sólbráö að deg-
inum svo ísinu hefur slaknaö, og
alt runniö út i vatni móti sól. Þó
gcrði eg litla tilraun, nú fyrir fá-
um dögum, og lét hella vatni úr
tunnu yfir dálítinn blett. Eg vil taka
það fram að eg hefi ekki aðgang
að neinum sþrautmn til þessara
liluta. Árangurinn af þessu verki
varð sá, að vatnið hvarf að mestu
niður um ísinn, en það sem eftir
varð fraus og várð að þunnum tví-
skinnung. Ef búa skal til skautais
á Tjörninni, nieð þvi að „sprauta"
eða hella vatni á hennar fastaís,
þarf að vera frost frá 6—10 stig;
þetta verk þarf að framkvæma að
nóttu til, svo það komi að notum,
og vatnið sé að morgninum orðið
samfrosta við gainla isinn, og þoli
vel skautajárnin. En þessi frost-
skilyrði hefur engin nótt í mars
uppfylt, og hefði því fé algjörlega
verið eytt til ónýtis, sem varið
heíði verið til þess, að koma vatni
á Tjörnina þennan mánuð; en
{>essar kr. 500.00 sem veittar eru
úr bæjarsjóði, og eru það eina,
sem á er að byggja til þessara
hluta, eru altof dýrmætar, og fljót-
ar að fara, ef tímabil kemur, að
störf þau sem unnin eru tilviðhalds
skautaís á Tjörninni koma að not-
utn til ánægju og hollustu fyrir
skautafólk borgarinnar.
Það er satt hjá G. K. að skauta-
feröir eru ódýrar, þegar skauta-
svæðið er lagað til fyrir almanna-
fé og skautafólkið þarf engu til
aö kosta. En ef hér héldust langir
frostkaflar með byljum öðru hvoru
þá myiidi það kosta stórfé, margar
500 kr., að viðhalda góðu skauta-
svæði á Tjörniuni. Og þó að bæj-
arstjórn sé ör á peninga til íþrótta-
félaga og iþróttamála bæjarins,
þætti mér líklegt og sanngjarnt
að skautafólkið yrði sjálft eitt-
hvað fram að leggja, og ef svo
G. K. stjórnaði framkvæmdmn
á Tjörninni, og auðvitað með s'm-
um góða ábuga liéldi þar altaf
opnu skautasvæði, þætti mér ekki
ólíklegt, að hans framlag þyrfti
að verða nokkuð hátt, þegar hann
yrði að fara a<5 rukka inn viðbótar-
framlagið lijá sjálfu skautafólkinu.
Það væri mér stóránægja, að geta
starfað eitthvað til gagns að þess-
umtt málum og haft samvinnu um
Ársfundnr
Dansk—íslenska félagsins
(í slandsdeildar )
verður haldinn miðvikudaginn 4. april 1934 kl. 8y2 e,- h. á
Ilótel ísland. Inngangur frá horninu á Austurstræti og Veltu-
sundi.
Fundaxefni:
1. Dagskrá samkvæmt félagslögum.
2. Dr. theol. Arne Möller flytur erindi.
3. Danskir og íslenskir söngvar sungnir aí nokkrum
mönnum, undir stjórri Jóns Halldórssonar.
4. Dans til kl. 2.
Heimilt er félagsmönnum að taka með sér gesti.
Stjórnin.
Kaupmenn I
Seljum „R. R. R.“ og „Matador“ hveiti i lérefts- og
strigapokum, mjög ódýrt frá skipshlið á Brúarfossi, í
aprílmánuði.
Notið tækifærið og kaupið slrax.
Allar nánari uppl. hjá sölumanni vorum.
þau, við hvern góðan og áí.iuga-
saman dreng sem er.
Eg vejt, að það er velgeruingur
við alla, sem ánægju hafa af skauta-
ferðum, en sérstaklega er það vel-
gerningur við börn og unglinga
þessa bæjar, sem engan leikvöll eiga
og helst mega hvergi vera, til að
njóta hollustunnar af því, að hreyfa
sig með skauta sína eða sleða. En
aldrei gæti eg orðið við ]>cirri á-
skorun G. K., — sem hann nú bein-
ir til háttvirts borgarstjóra, — að
sprauta vatni á tjörnina, þegar yfir
henni allri liggur djúpur krapaelg-
ur. og asahláka gengur yfir, með
regn og krapahryðjur.
Kjartan Ólafsson.
brunavörður.
tJtvarpsfréttii*.
London 28. mars. FU.
Tjón af eldsvoða.
Fullnaðarskýrslur eru nú komn-
ar fit um tjón þau, er hlotist hafa
af hinum mikla bruna, sem varð
í vikunni sem leið í Hakodate í
Japan. Borgin brann svo að segja
til kaldra kola, og um tvær þús-
undir manna létu lifið. Ennþá er
unnið að því að grafa í rústunum,
og bjarga iir þeim líkum þeirra,
sem fórust. Eignatjón er inetið á
9 miljónir sterlingspunda, eða sem
svarar um 200 miljónum króna.
Uauðadómur.
í dag var kveðinn upp i Belgrad
dómur yfir ]>eim þremur mönnum,
sem nýlega sýndu Alexander Júgó-
Slavíukonungi banatilræði í Sagreb.
Þeir voru allir dæmdir til dauða.
Þetta er áttundi dauðadómurinn,
sem kveðinn hefir verið upp i Jú-
gó-Slaviu siðastliðnar sex vikur, yf-
ir pólitiskum sakborninguin.
Umferðaslysum fjölgar.
Samkvæmt nýútkomnum skýrsl-
um hafa umferðaslys á enskum veg-
um verið 500 fleiri 1933 en árið
áður. Hertoginn af York ílytur '1
kvöld útvarpsávarp út af þessutn
málutn.
Kalundborg 28. mars. FÚ.
fsafirðingar kaupa vélskip.
Fulltrúar lilutafélagsins „Hug-
inn“ á ísafirði, Jón Edwald og
Björgvin Bjarnason, fóru fyrir
í. S. I. í. S. L
Fimleikakepnin
um Tarandbikar Osló Tuni-
forening fer fram í Austurlxejt-
arbarnaskólanum sunnudagiim
29. apríl.
Einmenningskepni
í fimleikum um bikar í. S. 1.
fer fram sunnudaginn 6. mai.í
Austurbæjarbarnaskólanum.
Keppendur gefi sig fram vi®
stjórn glimufél. Ármann %
mánuði áður en keppni fer
fram. %
Stjóm Ármanns.
skömmu til Noregs og Danmei'k-
ur, til þess að leita fyrir sér um
kaup á vélskipum handa félaginu.
Nú hafa þessir menn samið við
hlutafélagið Völund i Káupmanna-
| höfn, um smíði á 5 vélskipuin, sem
hvort um sig verður 60 smálestir.
í skipúnum verður tveggja cylindra
130 eða 150 ha. Völund-vélar, og
verða skipin smiðuð í Korsör og'
Nýborg. Tvö þeirra eiga að vera
tilbúin i sumar, en hin í haust.
Danir senda nefnd manna til Spánar.
Danir hafa ákveðið að gera út
sérstaka sendinefnd til Spánar, tii
þess að semja við spænsku stjóm-
ina um fiskinnflutninginn og verða
einnig í nefndinni fulltrúar frá
Færeyjum.
Norskar
loftskeytafregnir.
Oslo 28. mars. FB.
Mótmæli gegn útvarpi á land<B-
máli.
Útvarpsnotendafélagið í Hor-
ten og héraði hefir tilkyuí
stjóm titvarpsins, að þ. 1. júJí
komi til framkvæmda samtök
um að „loka f>T'ir“ útvarpstæk-
in, ef ekki verði hætt að útvarpa
ú landsmáli.