Vísir - 27.05.1934, Blaðsíða 2
VISIR
Símskeyti
Rómaborg, 26. maí. FB.
Mussolini ráðgerir mikla flota-
aukningu.
Mussolini hefir í dag haldið
mikla ræðu um flotamálin og til-
kynti hann, að hann hefði með
höndum áætlun um mikla aukn-
ingu herskipaflotans. Einnig kvað
hann í ráði að smíða nýjar flug-
vélar til notkunar i samvinnu við
herskipin. Mikla nauðsyn taldi
Mussolini á þvi, að smíðuð væri
herskip og flugvélar, eins ogsamn-
ingar frekast leyfði, svo og að
allur útbúnaður i her og flota væri
ávalt hafður í öllu í fylsta sam-
ræmi við nútíma kröfur.— í ræðu
sinni drap Mussolini á gjaldeyris-
málin og kvaðst þess fullvigs, að
allar þær þjóðir, sem hefði horf-
ið frá gullinnlausn myndi taka
upp gullinnlausn seðla á ný. —
(United Press.).
Brððabirgðalög
um sölu og útflutning
á saltfiski.
%
Bráðabirgðalög liafa verið
gefin út um heimild fyrir ríkis-
stjórnina til ílilutunar um sölu
og útflutning á saltfiski. — í
greinargerð er talið, að það sé
óhjákvæmilegt, að ríkisstjórnin
fái íhlutunarvald um útflutning
þessarar vöru. „Telur dóms- og
útvegsmálaráðherrann því
nauðsynlegt, að ríkisstjórnin
fái vald til þess að ráðstafa út-
flutningi þessarar vörutegund-
ar, svo að hann verði í sam-
ræmi við ákvarðanir innflutn-
ingslandanna“. — 1. gr. laganna
hljóðar svo: „Ríkisstjórninni er
heimilt að skipa svo fyrir, að
leyfi ráðherra þurfi til þess að
mega selja eða flytja til útlanda
verkaðan eða óverkaðan salt-
fisk“.
Lögin eru birt í Löbirtinga-
blaðinu, sem út kom í gær. Er
þar og birt auglýsing frá at-
vinnu- og samgöngumálaráðu-
neytinu þess efnis, að leyfi aí-
vinnu- og samgöngumálaráð-
herra þurfi til þess að mega
selja eða flytja til útlanda verlc-
aðan eða óverkaðan saltfisk.
Bruggun
1 I»yk;liyal>æ
og Holtum.
(Samkvæmt viðtali við Björn
Bl. Jónsson).
—o—
Húsrannsókn fór fram í fyrri-
nótt og í gærmorgun á fimm
stöðum í Þykkvabæ og einum
bæ í Holtum. — Áfengi fanst
á öllum stöðunum.
Frá því var sagt í Vísi i gær,
að Björn Bl. Jónsson, löggæslu-
maður, og stór flokkur lög-
reglumanna, hefði farið héðan
í fyrrakveld austur yfir fjall,
til þess að gera liúsrannsókn
á nokkrum bæjum i Þykkva-
bænum, vegna gruns um, að
þar færi fram bruggun áfeng-
is. Fregn þessi var rétt, að öðru
leyti en þvi, að lögreglumenn-
irnir voru 18 talsins, og fóru
þeir héðan seint í fyrrakveld,
en Björn Bl. Jónsson Var far-
inn af stað áður, austur að
Rannsóknii- Statens; Vitamin Labora-
torium á S.va«a vitamin-smjörlíki
sýna þetta:
17. okt. 1933!: A-vitamin: 8,3 Inter-
nationalar einingar.
24. £ebr.. 1934 ;• A-vitmin’10,0 Inter-
natiönalar einingar.
12.. maí. 1934’:' A-vitamim 8,3 Inter-
nationalár eiiiiirgar-
Þettai er eins og. ú aibesta suinar-
smjörii
Þad vita þeir sem reyna,
að Svana vítamin—smjörlíki
er altaf af bragös vara.
Aðal vitamin i smjöri er A-vitamin.
Hofi, til þess að fá húsrannn-
sóknarúrskurð hjá sýslumanni
Rangæinga, þar eð húsrann-
sókn hefir eigi áður farið fram
á þeim bæjum, sem hér er um
að ræða. Notaðar voru 3 bif-
reiðar í leiðangrinum. Leið-
angursmenn voru alls 20, þar
af 1 bifreiðarstjóri frá stöð hér
i bænum, en hinum bifreiðun-
um var ekið af lögreglumönn-
um.— Lögreglumennirnir hittu
Björn Bl. Jónsson við Rangá,
en í Þykkvabæinn var komið
kl. um 5 í gærmorgun. Hingað
lil bæjarins komu leiðangurs-
menn laust eftir kl. 2 í gær.
i
Áfengisbruggun mun hafa farið
fram í Þykkvabænum all-Iengi.
Orðrómur um hótanir á engum
rökum bygður.
Björn Bl. Jónsson kvað ýms- i
ar líkur benda til, að alllengi
hafi verið bruggað í Þykkva-
bænum. Förin vitanlega farin
vegna þessa gruns, en hitt kvað
hann ekki hafa við neitt að
styðjast, að ]ieir Þylckbæingar
liefði haft í hótunum um, að
koma í veg fyrir það með
valdi, að húsrannsókn færi þar
fram, ef löggæslumaður kæmi
\ austur þessara erinda. Ástæð-
an til þess, að farið var austur
við svo marga menn var sú,
að nauðsynlegt var, að liús-
rannsókn gæti farið fram á öll-
um þeim bæjum í Þykkvabæn-
um samtímis, þar sem líklegt
þótti, að bruggun færi fram, en
það var ókleif t, nema liafa nóg-
an mannafla.
Mótspyrna engin. Á öllum stöð-
unum fanst áfengi, sumstaðar í
gerjun og hreinsað, sumstaðar
að eins hreinsað.
Engin lilraun var gerð til
þess að hindra eða tefja hús-
rannsóknina á nokkrum bæj-
anna. Á öllum bæjunum, fimm
talsins, fanst ólöglegt áfengi,
sumstaðar í gerjun og hreins-
að, sumstaðar aðeins iireins-
að. Á þremur bæjum fundust
bruggunartæki.
Yegna þess, hve margir bæir
aðrir eru þarna í hvirfingu að
heita má, þykir ólijákvæmilegt
að skýra frá því, á hvaða bæjum
áfengið fanst, og hverjir játuðu
á sig eign þess. Fára bæjarnöfn-
in hér á eftir og nöfn eigenda
áfengisins, í svigum: Dísukot
(Sveinn Marteinsson, sonur
bóndans), Jaðar (Óskar Sig-
urðsson), Brekku (Runólfur
Þorsteinsson), Oddspartur (Sig-
fús Marteinsson) og Tobbukot
(Gunnar Eyjólfsson).
Sumir þessara manna hafa
játað á sig áfengissölu, en sum-
ir ekki enn sem komið er.
Bruggun í Holtunum.
Þá var gerð húsrannsókn í
Árbæjarhjáleigu í Holtum, og
fanst þar einnig ólöglegt á-
fengi. Eigandi þess rejmdist
Jón Gúðmundsson lausamað-
ur. Bóndinn í Árbæjarlijáleigu
er að heiman sem stendur, og
hefir liann stundað sjómensku
að undanförnu.
Framhaldsi'annsókn málsins.
Sýnishorn voru tekin af á-
fenginu á öllum bæjunum og
send til rannsóknar í Efna-
rannsóknarstofu ríkisins, en
ítiálið mun verða afhent sýslu-
manninum i Rangárvallasýslu
þegar að þeirri ranrisókn lok-
inni.
Útrýming bruggunar í sveit-
unum.
Það er alment talið, að
bruggun sé orðin mjög algeng
í ýmsum sveitum landsins. Að
undanförnu hefir verið unnið
ósleitilega að því, að koma upp
um þá,.sem liafa tekið sér fyr-
ir liendur að stunda þessa iðju.
Hefir áður verið sagt frá ýms-
um leiðöngrum, sem Björn Bl.
Jónsson löggæsiumaður, hefir
farið í þessu skyni, með þeim
YERZLUN BEN. S. ÞÓRARINSSONAR fékk með síðustu
skipum inndælan kvenundirfatnað úr silki. — Litum og verði
viðbrugðið.
Yfirlýsing.
Vegna tilkynninga Málarameistarafélags Reykjavikur i
auglýsingum í blöðunum um kaupsölu á vinnu málarasveina,
viljum við taka fram, að við málarasveinar höfum kr. 1.70
um klukkustund í dagvinnu. Hvað málarameistarar leggja á
vinnu okkar, þar fyrir utan, er okkur með öllu óviðkomandi.
Það, sem birst hefir í biöðunúm viðvíkjandi kaupmáli
þessu, er Málarasveinafélagi Reykjavikur einnig með öllu ó-
viðkomandi.
Stjórn Málarasvelnafélags Reykjaríknr.
VERZLUN BEN. S. ÞÓRARINSSONAR sendir vörur úl
um iand gegn póstkröfu.
árangri, að upp hefir komist um
ólöglega áfengisframleiðslu og
ólöglega áfengissölu víða, sum-
staðar í mjög stórum stíl. Hef-
ir hann gengið að þessu af
miklum dugnaði, og notið að-
stoðar lögreglunnar, eftir því i
sem þörf liefir verið talin á. j
Heimabruggunin, jafnt í
sveitum sem í kaupstöðum, er
mjög alvarlegt mál, og er þess
að vænta, að framvegis, sem
að undanförnu, verði gengið
röggsamlega fram í því, að
uppræta hana.
ÍJtan af landí(
Frá HafnarfirSi.
HafnarfirSi 25. maí. FU.
I nótt kom af vei'ðum togarinn
Maí me'ð 89 föt lifrar. — Kl. 3 í
dag kom upp eldur í húsi, sem
verið er að hyg'gja við Tjarnar-
braut hér. Eldurinu var slöktur
áður en brunaliðiö kom á vettvang.
MaBðradagarÍBn
Það tíðkast mjög í ýmsum
löndum, að á öðrum sunnudegi
í maí-mánuði minnist menn
sérstaklega móður sinnar.
Það hefir nú verið liorfið að
því ráði, að* taka upp þennan
fagra sið hér. „Mæðrastyrks-
nefndin“, sem er skipuð full-
trúum frá mörgum kvenfélög-
um, hefir fengið leyfi lil þess,
að selja „mæðrablóm“ á götun-
um í dag. Verða þau seld vægu
verði og rennur allur ágóðinn
til styrktar fátækum mæðrum.
Dagurinn í dag var valinn sem
„mæðradagur“ hér, vegna þess,
að úiargir eiga mjög annríkt
um miðik mánaðarins, vegna
flutninga.
Um 100 börn hafa sölu merkj-
anna með höndum, en aðalút-
sala merkjanna verður á afgr.
Morgunblaðsins.
Þess er að vænta, að ný-
breytni þessari verði vel tekið.
1