Vísir - 15.06.1934, Qupperneq 3
V 1 S I R
KAUPH0LLIM
fl M Hafnarstræti 10—12 (Edinborg). Sími: 3780. JL «1
Veðskuldabréf.
Höfum til sölu nokkur veðskuldabréf, trygð með 1. og
öðrum veðr. í góðum húsum.
E-listinn
er listi sjáifstæðismanna.
GengijS í dag. ^
Sterlingspund .......Kr. 22.15
Dollar .............. — 4.40
100 ríkismörk ..........— 167.21
— frakkn. frankar — 29.17
— belgur ............— 102.89
— svissn. frankar . — 143.04
— lírur......... — 38.35
— mörk finsk .... — 9.93
— pesetar ...........— 60.97
— gyllini ...........— 298.63
— tékkósl. kr.....— 18.63
— sænskar kr.....— 114.31
— norskar kr.....— 111.39
— danskar kr. ... — 100.00
Gullverð
ísl. krónu er nú 50,12 mi'SaS vi5
frakkneskan franka.
E-listinn
er listi sjálfstæðismanna.
Hjúskapur.
S.l. laugardag voru gefin saman
’í hjóixaband af síra Arna SigurSs-
syni, ungfrú Halldóra Guðmunds-
dóttir, Freyjugötu 4, og Sigurbjörn
Maríusson, Aðalstræti 11.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss fer frá Kaupmannahöfn
á morgun. Goðafoss er væntanleg-
ur til Vestmannaeyja í nótt kl. 2.
Brúarfoss fór frá Siglufirði i rnorg-
un, á leið til ísafjarðar. Dettifoss
■er á útleið. Lagarfoss var á
Hvammstanga í morgun. Selfos's er
:á leið til Vestmannaeyja frá Leith.
Heimatrúboð leikmanna
hefir samkomu í Hafnarfiröi í
húsi K. F. U. M. annað kveld kl.
8j4. Allir velkomnir.
Leit
var hafin í morgun að
danskri stúlku, sem kom á g.s.
íslandi seinast, en var farin til
kunningjafólks síns, sem hefir
sumarbústað milli Lækjarbotna
og Lögbergs. Hafði stúlkan far-
ið út kl. 5 í morgun og hefir
sennilega vilst. Hún lieitir Ellen
Sönderblom.
Sjálfstæðiskonur.
Munið eftir kaffikvöldinu annað
kvöld í K.R.-húsinu, uppi, kl. 9.
Hjálparstöð Líknar
fyrir berklaveika, Bárugötu 2
(gengið inn frá GarSastræti, 3. dyr
t. v.). Læknirínn viSstaddur
mánud. og miSvikud. kl. 3—4 og
íöstud. kl. 5—6.
Áheit á Strandarkirkju
afhent Vísi: 5 kr. frá S. T. S.
(gamalt áheit), 10 kr. frá ó-
rtefndum (gamalt áheit). 10 kr.
frá R. J., 5 kr. frá G. B., 2 kr.
frá S. F., 5 kr. frá ónefndum
(gamalt áheit).
Útvarpið í kveld:
19,00 Tónleikar. 19,10 VeSurfr.
19,25 Grammófónsöngur. 19,5°
Tónleikar. 20,00 Klukkusláttur.
Fréttir. 20,30 Upplestur (SigurSur
Skúlason). 21,00 Grammófóntón-
leikar.
Ferðafélas íslands
efnir til skemtiferðar austur að
Sogsfossum n.k. sunnudag, 17.
júní. Verður ekið um Þrastalund,
upp með Sogi, alt að Efri-Brú, og
gengið þaðan upp á Búrfell, sem
er að eins 536 metrar á hæð, en
útsýni er gott af fellinu vestur yf-
ir Þingvallavatn. Af Búrfelli verð-
ur gengið að Ljósafossi í Sogi,
þaðan niður með Soginu austan-
verðu, fram hjá írufossi og Axar-
hólma og niður að Kistufossi. Það-
an verður farið í 'bílum til Reykja-
víkur, en staðnæmst í Þrastalundi í
bakaleiS og skoðaður skógurinn þar.
Farmiðar fást á afgreiðslu Fálk-
ans frá kl. 12 i dag til kl. 7 ann-
að kveld.
E-listinn
er listi sjálfstæðismanna.
Bjarni Björnsson
efnir til skemtunar í Iðnó á
sunnudagskveld kl. 9, til ágóða fyr-
ir fólkið á landskjálftasvæðinu
nyrðra. Nánara auglýsí á rnorgun.
Næturlæknir
er í nótt Valtýr Albertsson, Tún-
götu 3. Sími 3251. — Næturvörð-
ur í Laugavegsapóteki og Ingólfs-
apóteki.
FypiPspuFB.
—o---
Er það satt, að Hermann Jónas-
son lögreglustjóri hafi neitað því
íyrir rétti, að hann hafi nokkurn
tíma átt sportbuxur, eða komið í
þvílika flík?
Þetta er altalað í hænum og þyk-
ir ýmsum máli skifta aö það verði
npplýst, þó að smávægilegt kunni
aS þykja.
Hins vegar munu menn telja sig
hafa séð lögreglustjórann í ofan-
nefndum brókum, hvort sem það
hefir nú veriö þegar hann stóð
„bíspertur" á „öskuhaugnum"
(samanber dóminum í Kollumál-
inu) eða í annaS skifti eSa önnur.
Eg vænti þess, aS þetta atriSi
verSi upplýst, þó aS þaS skifti
lcannske ekki miklu máli út af
fyrir sig. —-
Spurull.
Ath.
Fyrir^pyrjandanum er hér meS
vísaS til setulögreglustjórans, sem
hafSi rannsókn kollumálsins meS
liöndum, og mun hann geta sval-
aS forvitni hans. Vísi er ókunnugt
um þetta atriSi. Ritstj.
Vfflsla
Markarfljótslirúar.
Eins og menn hafa sjálfsagt lek-
io eftir í auglýsingum um veit-
ingatjöld og veitingastæSi viS
Litla-Dímon undir Eyjafjöllum
hinn 1. júlí naestkomandi, á þann
dag, sem er sunnudagur, aS vígja
hrúna á Markarfljóti. Þetta á aö
vera miklu meira en venjuleg hrú-
árvígsla, og mun tilgangurinn vera
sá, aS minnast lokaþáttarins i
hinni miklu brúakeSju yfir jökul-
árnar í Rangárvallasýslu: Þverá
— Affall — Ála — Markarfljót.
Þetta- verSur því sannkölluS hér-
aSshátíS Rangæinga og, i raun
og veru miklu fleiri héraSa, alla
leiðina frá SkerjafirSi til SkeiSar-
ársands, enda hafa hæSi Reykvík-
Þaö bregst
mér ekki,
ad þetta er
liid iiýja
ágæta
„ARÓMAW
RAFFI.
ingar og Vestur-Skaftfellingar
stu.tt aS hinum endanlegu fram-
kvæmdum ásamt þeim, sem búa
á hinu svokallaSa SuSurlandsund-
irlendi. Fyrsti þátturinn í allri
þessari keSju var bygging Ölfus-
ár- og Þjórsárbrúanna og fyrsta
vígslan í þessu kerfi var vígsla
Ölfusárbrúarinnar, svo aS; nú á
enn viS aS syngja Brúardrápuna
eftir Hannes Hafstein frá 8. sept.
1891. „Þunga sigursöngva“ o. s.
frv. Sá söngur getur lengi átt viS
hverja brúarvígslu á voru landi.
X.
Knattspynmmðt
íslands
Úrslitaleikur í kveld.
Þá er aSeins einn leikur eftir
af íslandsmótinu, úrslitaleikurinn
milli Vals og.Iv. R. Óhætt, mun aS
fullyrSa aS úrslitin liafa sjaldan
veriS eins óviss og nú. BæSi liS-
in eru vel æfS og munu .hvort um
sig liafa fullan hug á aS hreppa
meistaratignina núna. Valur skar-
ar fram úr i liprum samleik, en
K. R. hefir aftur á móti betri skot-
menn og hættulegri upp viS mark-
iS, jiegar þeim tekst aS lirjótast í
gegn um hina sterku vörn Vals.
Leikar standa nú þannig aö Val-
ur hefir 6 stig, hefir unniS Fram,
Iv. V. og Víking; K. R. hefir 5
stig, hefir unniS K. V. og Víking
en gert jafntefli viS Fram. Fram
hefir sömuleiSis 5 stig,. hefir
unniS Viking og K. V. en gert
jsfntefli við K ,R. K. V. hefir
íengiö 2 stig en Víkingur ekkert.
Eins og sjá rná af þessu þarf Yal-
ur ekki nema jafntefli viS K. R.
til. þess'aö vinna mótiS.
D.
-----—«Esain» ii —
N o r s k a r
loftskeytafregnir.
—o---
Vænlegri stjórnmálahorfur
í Noregi.
Oslo 12. júní. FB.
I Morgenhladet hirtist í dag
grein um stjórnmálaástandið, og
segir þar, að ]>ess verði greinilega
vart. að horfurnar hafi hatnað.
Strigaskór
á unglinga og fullorðna, með gúmmíbotnum,
ágætis tegund, nýkomin. — Mjög ódýrir.
Geysir.
Húseignin
nr. 46 við Hverfisgötu er til sölu. Menn semji við
£ggei*t Claessen,
hrm.
Drapótaspil
mjöfl lítií notað hðfmn
Tið rerið beðnir um að
seija.
Verðið mjöfl iágt.
líppiysinflar gefnr herra
Kristján Benediktsson,
sfmi 1054,
Kveldnifur.
Kmdabjúgu
og kjötfars
er best frá okkur.
Kjðt-4 Fiskmetisgerðin.
Reykhúsid,
Sími 4467 og 2667.
Gott saltkjöt
á kr. 0.55 pr. y2 kg.
00 hanyikjot
á kr. 0,80 pr. y2 kg.
fæst í
Vetpsl.
Laugaveg 28. . Sími 3228.
Meðal þingmanna og stjórnmála-
manna búist nú meiri hlutinn við,
að unt verði að koma í veg fyrir,
að til stjórnarskifta komi. Hinsveg-
ar sé enn við nokkura erfiðleika
að striða, liæði innan hændaflokks-
ins og vinstri flokksins, sem vinna
verði bug á, áður en samkonuilag
náist. Nygaardsvold Stórþingsfor-
seti hefir sagt í viStali viS Arheid-
erbladet, aS ekki muni til stjórn-
arskifta koma. Fyrirspurn Hund-
seid verður til umræðu í Stórþing-
inu á morgun síðdegis.
Umræðum um fyrirspurn
Hundseids frestaS.
UmræSunni um fyrirspurn
Hundseids var frestaS vegna veik-
G.s. Island
fer annað kvöld kl. 6 til ísa-
fjarðar, Sigluf jarðar, Akur-
eyrar. Þaðan sömu leið til
baka.
Farþegar sæki farseðla í
dag eða fyrir hádegi á
morgun.
Fylgibréf komi í dag.
G.s. Botnia
l’er annað kvöld kl. 8 til
Leith (um Vestmannaeyjar
og Thorshavn).
Tilkynningar um vörur
komi sem fyrst.
Farþegar sæki farseðla á
morgun.
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen.
Tryggvagötu. — Sími 3025.
Nýtitl
BLÓMKÁL,
SPIDSKÁL,
RABARBARI,
TÓMATAR,
lækkað verð.
PÚRRUR,
' GULRÆTUR,
AGÚRKUR,
PERSILLE.
WizlZMl
inda Mowinckels forsætisráSherra.
Læknir hans hefir tilkynt, aS hann
þjáist af nýrnasjúkdómi. Hann
getur fyrirsjáanlega ekki mætt á
þingfundum í yfirstandandi viku.
— Á fundi landbúnaðarnefndar
þingsins í gær lagöi fulltrúi hægri-
manna fram tillögur til samkomu-,
lags milli ríkisstjórnarinnar og
bændaflokksins. Allir þingflokk-
arnir þéldu fundi í gærkveldi. —
Samkvæmt Morgenbladet munu
hæði bændaflokkurinn og vinstri-