Vísir - 16.06.1934, Page 4
AUsherjarmöt ÍS.Í.
Á morgun.
--O--
Síðan á aldarafmæli Jóns Sig-
urÖssonar, 17. júní 1911, —- að
nokkrum striÖsárunum undanskild-
um, — hefir jiaÖ veriÖ siÖur íþrótta-
manna hér í Reykjavík — og raun-
ar víÖar um land, — að halda
þennan dag hátíðlegan með leik-
mótum og íþróttasýningum. Verð-
ur varla á betur viðeigandi hátt
minst þess manns, sem mest og best
vann að því, að vekja karlmensku-
hug og jafnréttiskend þjóðarinnar
til nýs lifs, eftir að hörmungar ó-
stjórnar og náttúruhamfara höfðu
mergsogið hana líkamlega og and-
lega svo öldum skifti. Hann vildi
kenna þjóð og einstaklingum, að
þeir væru að engu ver að sér gervir
eða ólifhæfari en aðrar þjóðir, þó
að helsi íátæktar og erlendrar kúg-
unar hefði næstum því tekist að
telja henni trú mn hið gagnstæða.
Hann vildi hleypa íslendingnum
„kapp i kinn" og, eins og samtíðar-
maður hans Grímur Thomsen,
kenna honum að „táp og fjör og
írískir menn finnast hér á landi
enn“. Það er því mjög í samræmi
við anda forsetans, að íslenskur
æskulýður kannar lið sitt og reyn-
ir krafta sína og karlmensku á þess-
um minningardegi hans.
Allsherjarmót í. S. í.„ það 8.
í röðinni, hefst á morgun kl. 3, á
íþröttavellinum. Mótið er háð um
farandbikar, sem það félag fær, er
flest stig vinnur á mótinu. Undan-
farin ár hefir verið kept um bikar-
inn annaðhvort ár, en ve'rður fram-
vegis árlega. Síðast og næst-síðast
vann Knattspyrnufélag Rvikur bik-
arinn, 1928 og '32, en handhafar
bikarsins hafa áður verið Glímu-
félagið Ármann og íþróttafélag
Rvíkur. Þátttakendur í mótinu nú
eru frá 5 félögum, samtals 38, auk
fimleikaflokks kvenna úr í. R., sem
sýnir fimleika, áður en kappleik-
arnir byrja. Stigin reiknast þannig,
að X. maður i hverri íþróttagrein
fær 7 stig, 2. maður 5., 3. 2 og 4.
1 st.
Leikskráin á moigun er þessi:
100 m. lilanp (úrslit), — riðlar
verða hlaupnir í kvöld. Hástökk.
5000 m. hlaup. (Þar fá Reykvíking-
ar tækifæri til að sjá borgfirsku
hlauparana, sem unnu víðavangs-
hlaupið í vor; verður gaman að sjá,
hvort þeir eru eins góðir á braut
eins og víðavangi)-.* Spjótkast. (Þar
keppir, meðal rnargra góðra kast-
ara, Norðmaður einn, sem kastað
hefir yfir íslenskt met á æfingum:
verður gaman að sjá. hvort hann
gerir það á morgun). 4 X 100 m.
boðhlaup. Þar keppa 5 sveitir, og
getur þar vel orðið nýtt mct. 800
m. hlaup. Ennfremur verður um
kvöldið kl. 8þ) : Rcipdráttur, milli
lögregluliðs Reykjavíkur og K. R.,
hncfleikasýning og karlakórssöng-
ur (Karlakór Reykjavikur), og
gilda sömu aðgöngumiðar og að
mótinu áður .um daginn. Að síðustu
verður dans á palli.
Verður áreiðanlega skemtilegt að
vera á Vellinum á morgun, eiiis og
oftar, ef veður harnlar ekki.
Messur á morgun.
1 dómkirkjunni kl. 11, sira Frið-
rik Hallgrimsson.
í fríkirkjunni kl. 5, sira Árni
Sigurðsson.
í fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 2,
síra Árni Sigurðsson.
Landakotskirkja: Lágmessa kl.
6ýú árd. Hámessa kl. 9 árd. Guðs-
þjónusta kl. 6 siðd.
Veðrið í morgun.
Hiti i Reykjavik 12 stfg, ísa-
firði 11, Akureyri 10, Skálanesi
8, Vestmannaeyjum 9, Sandi 9,
Kvígindisdal 11, Hesteyri 6,
Gjögri 6, Blönduósi 9, Siglunesi
6, Grímsey 5, Raufarliöfn 5,
Skálum 5, Fagradal 7, Hólum í
Hornafirði 9,- Fagurhólsmýri 9,
Færeyjum 14. Mestur hiti hér í
gær 17 slig, minstur 10. Úr-
koma 3.5 mm. Sólskin 1.8 st.
Yfirlit: Kyrstæð lægð suður af
Reykjanesi veldur suðaustan og
austanátt hér á landi. Horfur:
Suðvesturland, Faxaflói: Aust-
an og' suðaustan kaldi. Dálítil
rigning öðru liverju. Breiða-
fjörður, Vestfirðir, Norðurland:
Stinningskaldi á austan og norð-
austan. Viðast virkomulaust.
Norðausturland, Austfirðir,
suðausturland: Austan kaldi.
Þykt loft og dálítil rigning.
Landskjálftarnir.
Afgreiðsla Vísis, Austur-
stræti 12, tekur á móti sam-
skotum til þeirra, sem orðið
hafa fyrir tjóni af völdum
landskjálftanna nyrðra.
Gjafir
til fólksins á landskjálftasvæð-
inu. afhentar Vísi: 2 kr. frá H.
J., 3 kr. frá G. Á., 3 kr. frá Ó.
' L. E„ 5 kr. frá N. N.
Gullbrúðkaupsdag
eiga í dag frú Kristrún Eyjólfs-
dóttir og Björn Bjarnarson hre]ip-
stjóri, Grafarholtb
Kjartan Gunnlaugsson,
stórkaupmaður, er fimtugur í
dag.
Kappleikurinn
i gær milli Vals og K. R. fór
þannig, að K. R. vann með 3:2.
Sigurður Eggerz,
bæjarfógeti á ísafirði og sýslu-
rnaður í Norður-ísafjarðarsýslu,
var 11. j). m. skipaður bæjarfógeti
á Akureyri og sýslumaður í Eyja-
fjarðarsýslu frá 1. 11. m. að telja.
Halldór Iíristinsson,
héraðslæknir i Hólshéraði, var'
11. ji. m. skipaður héraðslæknir
í Siglufjarðarhéraði frá 1. n. m.
að telja.
E-listinn
er listi sjálfstæðismanna.
Danska stúlkan,
sem frá var sagt í Vísi í gær,
fanst i gærkveldi á 11. tíman-
um, eftir mikla leit, sem 22
lögregluþjónar og 12 skátar
tóku þátt i. Stúlkan hafði lagst
fyrir i grasi vaxinni laut í
hrauninu skamt frá sumar-
bústaðnum, sem hún var gestur
í. Stúlkan kom liingað á g.s. ís-
landi síðast, eins og fyr var sagt,
og var eftir sig eftir ferðina.
Var liún mjög máttfarin, er
hún fanst. ' i
Gistihúsið á Laugarvatni
er nú tekið til starfa.
„Yfirsýn“ 1
heitir bæklingur um lifsskoðanir
og lifsviðhorf, sem hefir fengið á-
gæt meðmæli, t. d. frá dr. Guðm.
Finnbogasyni, og eiga þær skoðan-
ir, sem þar koina frarn, erindi til
almennitigs. Höfundurinn hefir gef-
ið allmörg eintök af bæklingnum til
jiess að selja til ágóða fyrir fólkið á
landskjálftasvæðinu og verður hann
boðinn almenningi næstu daga. —
Bæklingurinn kostar 1 kr. og fæst
hann einnig á afgr. Vísis.
V ÍSIR
TENNIS-spaðar, kr. 18,00 til
50,00. TENNIS-boltar. kr. 1,00
og 1,50. TENNIS-boltanet,
TENNIS-leikreglur. Fótboltar,
allar stærðir, kr. 4,50 til 36,00,
fótboltapumpur og reimar.
Sportvöruhús Reykjavíkur.
Læstn benzínlokin
eru komin aftur.
Har. Sveinbjarnarson,
Laugaveg 84,
Nýja sjúkrabifreið
fékk Rauði Kross íslands með
Brúarfossi síðast. Er liún frá
Chrysler-verksmiðj unni og bú-
in allskonar nýtísku útbúnaði
til aukinna þæginda fyrir sjúk-
linga þá sem með henni verða
fluttir. Sjúkraklefinn er upp-
liitaður með lieitu lofti sem
dælt er inn frá vélinni og fvrir
ofan rúmið er bjalla sem sjúk-
lingurinn getur gefið merki með
til ökumannsins, ef eithvað
aniar að honum. Á miðvikudag-
inn var sótli bíllinn sjúkling
austui' undir Eyjaf jöll og reynd-
ist hann mjög vel, þó á mis-
jöfnum vegum væri.
E-listinn
er Iisti sjálfstæðismanna.
Mistök
urðu á birtingu hjúskaparfregn-
ar þeirrar, sem birt var í Vísi í
gær, og eru hlutaðeigendur beðnir
velvirðingar á. Rétt er hjúskapar-
fjægnin þannig: Síðastl. laugardag
voru gefin saman í hjónaband Hall-
dóra Guðmundsdóttir frá Hnifs-
dal og Guðm. Sigurgeirsson frá
Baugsstöðum hjá Stokkseyri. Heim-
ili þeirra er á Freyjugötu 4.
Ný bók.
Nýlega er komin á bókamark-
aðinn einliver vinsælasta saga
Jónasar Lie, „Den fremsynte“,
í íslenskri þýðingu. Sagan heit-
ir í þýðingunni „Davíð skygni“.
Þýðandi er Guðm. Kamban, en
útg'. Bókaversl. Sigfúsar Ey-
mundssonar.
Gullverð
islenskrar krónu er í dag 50,21,
miðað við frakkneskan franka.
E.s. Goðafoss
kom hingað í dag frá útlöndum.
Sundlaugin á Álafossi
er opin til afnota fyrir gesti kl.
4—10 daglega.
fslandsglíman
verður háð á íþróttavellinum
mánudagskveld 25. þ. m. Núver-
andi glimukonungur íslands er
Lárus Salómonsson úr glímufél.
Ármanni. Núverandi glímusnilling-
ur íslands er Sigurður Thoraren-
sen, einnig úr glimufél. Ármanni.
Búist er við góðri þátttöku glímu-
manna hér í bæ og nokkurri utan
af landi.
Hjúskapur.
Á morgun verða gefin saman i
hjónabánd ungfrú Bengta Ander-
son, dóttir Reinholt Anderson klæð-
skerameistara, og Kristján Grimsson
læknir. Utanáskrift þeirra verður:
Hotel Kong Frederik, Köbenhavn.
E-li^tinn
er Iisti sjálfstæðismanna.
Kosningaskrifstofa
Sjálfstæðismanna er í Varð-
arhúsinu. Opin kl. 10—12 og
1—7 daglega. Símar 2339 og
3760. Kjörskrá er þar til sýnis
og allar upplýsingar gefnar við-
víkjandi kosningunum.
Af hverjn
nota Jeir, sem
besta þekk-
ioga hafa
á vöruni tll
Mknnar
ávalt
Lilln-hðknnardropa?
Af (vl að íeir reynast
bestir og drýgstir.
Aldrei
hefir verið betra að versla
en nú í
Yersl. Brynja.
Drapótaspil
mjög lítið notað höfnm
við verið beðnir nm að
selja.
Verðið mjög lágt.
Bpplí singar gefnr herra
Kristján Benediktsson,
sfmi 1054,
Kveldúifor.
Blðm&Ávextir
Hafnarstræti 5. Simi 2717.
Daglega ný afsko.rin blóm:
Rósir, Glathólur, Túlipanai*,
Levkoj-, Ilmbaunir, Morgunfrú.
Blómvendir á 1 kr. og á 75 aura.
VOOÍXIOOÍXX 5COCÍXX ÍÍSCÍ iOtSOíXSOí
Nýjar
Yersl. Yisir.
XXXSCÍÍÍXSCCtÍCÍJCCCÍXÍCCCÍXXJCÍ
Eggert Claessen
hæstaréttarmálaflutningsmaður
Skrifstofa: Oddfellowhúsinu,
Vonarstræti 10, austurdyr.
Sími: 1171.
Viðtalstími: 10—12 árd.
P LEIGA |
Lítill trillubátur óskast til
leigu. Uppl. í síma 1410. (409
TILKYNNING
5 manna bill fer til Ólafsvik-
ur á þriðjudaginn. Sæti laus.
Sími 4051. 411
^ KAUPSKAPUR | Veiðimenn! Góður ánainaðk- ur til sölu á Asvallagötu 16. — Simi 1888. (415
Harmónium og píanó til sölu, tækifærisverð. ísólfur Pálsson, Frakkast. 25. (414
Nýlegt kvenreiðhjól til sölu á Laugaveg 48. (413
001) 6 IS-IOIUIOH ? iddQ 'gJÍ3A -suæjixiæ} paiu n[os jij ‘jaxunu }jojs ‘BduxpxBxxms Áu SaAjy
Bílskúrhurðir til sölu. Uppl. á Laugaveg 66. (418
Gott 2ja-mannáfar lil sölu. Uppl. Grettisgötu 54 B, uppi. — (427
VINNA Tek að mér að hóna bíla. —* Shellport, Lækjargötu. (408
Stúlka óskast til frammistöðu og ann- ara verka. Uppl. kl. 5—6 í: Trvggvagötu 6. (407
12—14 ára drengur óskast í sveit. Uppl. Bergstaðastíg 9 B, miðhæð. (425
Stúlku vantar í létta vist í grend við bæinn. Uppl. á Sölv- hólsgötu 10 (næsta hús við Sambandshúsið). (424
Stúlka óskast strax hálfan daginn. Uppl. rnilli 7 og 8 í kvöld. Ellen Sighvatssori, Amt- mannsstíg 2. (423;
Innistúlka óskast á gott sveitaheimili. Uppl. á Bjarnar- stíg 3. . (422"
Stúlka óskast í sveit. Uppl. Laugaveg 64 kl. 6—8. (419
Unglingsstúlka eða eldri kvenmaður óskast á Öldugötu 27. Blómkál og hvítkál til sölu á sama stað. (417
Duglegur unglingur 16—18 ára getur fengið atvinnu við franimistöðu nú þegar. Uppl. á afgiv Alafoss. (426
y HÚSNÆÐI | Sólrik stofa með húsgögnum óskast til leigu um tveggja mánaða tima. — Ábyggileg greiðsla. Upplýsingar í síma 2941 i dag til kl. 5 og í 2640 eftir kl. 6. (406>
Stofa til leigu á Skólavörðu- stíg 12, nieð eða án húsgagna, fvrir lengri eða skemri tíma_ (420:
Herbergi með sérinngangi til leigu Bankastræti 14 B. (416!
TAPAÐ -FUNDIÐ Brún taska liefir tapast. Skil- ist Holtsgötu 12. (412
Poki með sængurfötum, sokkum og handklæðum er í óskilum hjá lögreglunni. (410
Lítið kvenarmbandsúr tap- aðist neðst á Túngötunni. Skil- ist á Túngötu 2, gegn fundai*- launum. (421
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.