Vísir - 18.06.1934, Page 3
VISIR
KAUPH0LLIN
11 Iiafnarstræti 10—12 (Edinborg). Sími: 3780. 1. «
Opið kl. 4—6 (á laúgardögum kl. 1—3).
Mlutabréf.
Höfum kaupendur að hlutabréfum í ýmsum fyr-
irtækjum.
Þrátt fyrir það, að allir þessir
flokkar vinna gegn Sjálfstæðis-
flokknum, er hann i svo miklu
áliti með þjóðinni, að fullvíst
má telja að liann fái eins mikið
eða ef til vill meira atkvæða-
magn en allir liinir flokkarnir
til samans. Það skal engu spáð
um það að svo stöddu, livort
Sjálfstæðisflokkurinn fær meiri
hluta á þingi. Það er alt undir
því komið, livort allir þeir, sem
fylgja Sjálfstæðisflokknum að
málum, gegna þeirri sjálfsögðu
skyldu að neyta atkvæðisréttar
síns á kjördegi. Geri þeir það,
þarf engu um úrslitin að spá,
þvi að þá nær flokkurhm meiri-
hlutavaldi á þingi i sínar hend-
ur.
Það er því inikið undir þvi
komið, að allir sjálfstæðismenn
vinni nú ósleitilega að því, að
menn sæki kjörfund og neyti
alkvæðisréttar síns. Það er
undir þeim komið, sem hafa
tilhneigingu til þess að sitja
heima, af því þeir húast við, að
sigurinn vinnist, án þess að þeir
leggi franí krafta sína. En það
er mest undir þvi komið, að
þessir verði með. Þeir geta ráð-
ið úrslitum. Ef þeir sitja heima,
getur afleiðiiigin orðið sú, að
þrátt fyrir glæsilegan sigur
vinnist ekki það sem þarf, að
flokkurinn fái meiri hluta á
þingi.
Sjálfstæðiskjósendur verða
því að rifja upp fyrir sér þessa
dagana, livernig skilað var í
héndur framsóknarmönnum og
hvernig þeir skildu við, er lok's
var tekið i taumana, og þeir
liraktir frá völdum við lítinn
orðstír. Það var í stuttu máli
þannig, að árin áður en fram-
sóknarmenn mynduðu stjórn
var landinu vel stjórnað, fjár-
málunum komið i gott liorf,
grynkað á skuldunum og jafn-
franxt sótt fram.
Aldrei liefir nokkur flokkur
haft eins góð skilyrði til þess að
vinna ])jóðþrifaverk og fram-
sóknarflokkurinn, er hann tók
við völdunum. Fjárliagur ríkis-
ins var áð komast í gott hörf og
skuldahyrðarnar liöfðu lést að
miklum mun. Hvert góðærið
kom á fætur öðru. I stað þess
að fylgja sömu fjármálastefnu i
og fyrirennararnir, fóru fram- !
sóknármenn með Jónas Jóns-
son í broddi fylkingar út á aðr-
ar hrautir. Þeir lögðu út á hraut ,
cyðsluseminnar. Stórfé vár |
eytt í hina og aðra vitleysu,
stundum í algerðu heimildar-
leysi. Alt var sleikt í botn og þá
var lánað stórfé til þess að geta
haldið áfram að eyða og sóa.
Loks var tekið i taumana og
hinir gætnari framsóknarmenn,
sem sáu að alt myndi komast í
kalda kol, ef svo væri lengur á-
fram lialdið, tóku í taumana og
árangurinn varð sá, að sam-
steypustjórn var mynduð með
þátttöku sjálfstæðismanna, til
þess að bjarga öllu frá hráðum
voða. Sú stjórn liefir ástundað
að fara gætilega og margt má
gott um hana segja, þótt menn
séu að vonum, sjálfstæðismenn
jafnt og aðrir, óánægðir með
ýmsar gerðir hennar og að-
gerðaleysi í sumum málum.
Þannig hefir þjóðin ekki enn
verið losuð við verslunarhöft-
in, en þess er nú væntanlega
skamt að bíða, að þau verði af
afnumin, a. m. k. ef sjálf-
stæðismenn allir sem einn gera
skyldu sína þ. 24. þ. m.
Sjálfstæðisflokkurinn gengur
fram fyrir þjóðina með góða
samvisku. Hann veit, að liann
er þess megnugur, að bæta f jár-
liag lands og þjóðar, ef hann
fær meirihluta vald á þingi.
Leiðtogar ]>essa flokks eru
revndir, þjóðnýtir menn, sem
kjósendur vita af reyndinni, að
óhætt er að treysta. Þeir taka
upp þá stefnu í fjármálum, sem
fylgt var áður en þeir urðu ráð-
herrar Jónas Jónsson, Tryggvi
Þórliallsson og Einar Árnason,
sem studdir voru til valdanna
af Héðni Valdimarssyni, Jóni
Baldvinssyni og öðrum sócíal-
istaforsprökkum.
Hvort vilja menn nú lieldur,
að tekin verði sú stefna í fjár-
málum og landsmálum yfirleitl,
er leiðir til farsældar fyrir
þjóðarlieildina, þ. e. sjálfstæðis-
stefnan, eða að farið verði aft-
, ur út á braut eyðslusemi og lán-
j töku, eins og á stjórnarárum
framsóknarmanna, en sócíalist-
ar bera vissulega ábyrgð á öllu
því, sem miður fór á þeim ár-
um, með framsóknarmönnum.
I raun og veru er að eins um
tvent að velja, rauðu stefnuna
og sjálfstæðisstefnuna. Það má
telja víst, að Sjálfstæðisflokk-
urinn vinni glæsilegan sigur í
i kosningunum, en hann verður
1 að vinna svo glæsilega, að hann
! sigri alla hina flokkana. Og sá
sigur vinst, ef allir, sem sjálf-
stæðisstefnunni fylgja, gera
skyldu sína.
*
E S'M.* Lokafundar
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík io st., ísafirði
5, Akureyri 6, Skálanesi 5, Vest-
mannaeyjum 6, Sandi 7, Kvígindis-
dal 7, Hesteyri 5, Gjögri 4, Blöndu-
ósi 8, Siglunesi 4, Grímsey 5, Rauf-
arhöfn 5, Skálum 5, Hólunt í
Hornafirði 7, Fagurhólsmýri 6.
Reykjanesvita 9. Méstur hiti í Rvík
í gær 13 st., minstur 7 st. Úrkoma
1,0 mni. Yfirlit: Grunn lægð fyrir
sunnan Island á hægri hreyfingu
austur eftir. — Horfur: Suðvestur-
land: Suðaustan og austan kaldi.
Þykt loft og dálítil rigning, Faxa-
flói: Austan og norðaustan gola.
Skýjað, en úrkomulaust að mestu.
Breiðafjörður, Vestfirðir. Norður-
land: Austan og norðaustan kaldi.
Úrkomulaust og sumstaðar léttskýj-
að. Norðausturland, Austfirðir,
suðáusturland : Austan og norðaust-
an gola. Þykt loft og lítilsháttar
rigning.
60 ára
er i dag frú Karólína Bjarnason,
f. Söebeck.
Es. Esja
er væntanleg til Vestmannaeyja
í k\reld og hingað i fyrramálið.
Framboðsfundir
hafa staðið yfir í Vestur-ísa-
fjarðarsýslu að undanförnu. Þeir
Ásgeir forsætisráðherra Ásgeirsson
og Guðm. Benediktsson bæjargjald-
keri, frambjóðandi Sjálfstæðis-
flokksins í V.ísafjarðarsýslu, eru
væntanlegir hingað til bæjárins á
morgun eða miðvikudag.
Landskjáli'tasamskotin
\’ísir átti í morgun tal við Stefán
Þorvarðsson, fulltrúa í Stjórnar-
ráðinu, og spurðist fyrir um, hve
mikið væri innborgað til hans af
samskotafé til fólksins á land-
skjálftasvæðinu. Kvaðst hann hafa
tekið á móti liðlega 22 þús. kr. Þar
eru ekki taldar ]>ær 10 þús. kr.,
sem S.Í.S. hefir lofað að gefa. —
Nyrðra mun hafa verið innborgað
um 7 þús. kr.
Landskjálftarnir. •
Afgreiðsla Vísis, Austur-
stræti 12, tekur á móti sam-
skotum til þeirra, sem orðið
hafa fyrir tjóni af völdum
landskjálftanna nyrðra.
Útvarpsumraeður
um stjórnmál hefjast i kveld kl.
8. Ræðutími er 30 mínútur í einu
lagi fyrir hvern flokk. Röð flokk-
anna er sem hér segir: 1. Alþýðu-
flokkur. 2. Bændaflokkur, 3.
Framsóknarflokkur, 4. Kommún-
istaflokkur, 5. Sjálfstæðisflokkur,
6. Þjóðernissinnar. — í kveld tal-
ar fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins
Jón Þorláksson borgarstjóri.
E-listinn
er listi sjálfstæðismanna.
Höfnin.
Færeysk skúta kom inn í morg-
un, vegna vélbilunar. Hún er á leið
til Grænlands.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss er á leið til Vestmanna-
eyja frá Kaupmannahöfn. Goða-
•foss er hér. Fer vestur og norður
á miðviku.dagskveld. Brúarfoss fer
héðan annað kveld á leið til Leith
og Kaupmannahafnar. Dettifoss
kom til Hull í gærkveldi. Lagar-
foss var á Akureyri í morgun. Sel-
foss er hér. •
För Ferðafélagsins
í gær var hih skemtilegasta.
Vegna slæms veðurútlits var þátt-
takan þó ekki mikil. Var lagt af
stað kl. rúml. 8, og ekið austur í
Grímsnes, fram hjá Þrastalundi, og
beygt út á nýja Sogsveginn, og ek-
ið eins langt og hægt var. Síðan
var hafin ganga upp á Búrfell.
Voru göngugarparnir mjög á mis-
jöfnurn aldri, t. d. voru tveir þeir
yngstu 5 og 7 ára að aldri. Gekk
uppgangan vel og kl. rúml. 12 var
sest að snæðingi á tindinum, í 536
metra hæð. Skömmu síðar var lagt
af stað niður, en þegar niður var
kornið, skiftust leiðir með ferða-
Jöngunum og héldu sumir áfram
niður að Sogsfossunum, en hinn
hlutinn — og var sa fjölmennari
—hélt beint til Þrengslanna, en það-
an niður með ánni. Kl. 5)4 var lagt
af stað frá Kistufossi og haldið að
Þrastaluiidi. Þar var numið staðar
og fengu ferðalangarnir sér þar
hressingu. Var þar margt aðkomu-
fólk fyrir. Síðan var haldið áfram
til Reykjavíkur með ofurlítilli við-
komu á Selfossi. Til bæjarins var
komið kl. 9. Fararstjóri var Skúli
Skúlason ritstjóri.
Næturlæknir
er í nótt: Kristín Ólafsdóttir,
Tjarnargötu ioB.’ Sími 2161. —
Næturvörður i1 Reykjavíkur apó-
teki og Lyfjabúðinni Iðunni.
Ófagur leikur.
Mikið er nú af fuglum hér á
höfninni, ytri og innri, og meðfrám
landi, frá austari garðinum og inn
undir Rauðará er stundum mildð
af þeim. Að undanförnu hafa verið
talsverð brögð að því, að drengir
•— og jafnvel fullorðnir menn —
gérði sér það til gamans, að henda
steinum í fugla á sundi eða flugi
þarna inn frá, og stundum drepið
þá eða vængbrotið. Það er ófagur
leikur, sem ætti að leggjast niður
tafarlaust. Dýravinur.
E-listinn
er listi sjálfstæðismanna.
Gengið í dag.
Sterlingspund .....Kr. 22.15
Dollar .............— 4.40
100 rikismörk.......— 167.66
— frakkn. frankar — 29.12
— belgur ...........— 102.69
— svissn. frankar . — 142.89
— lírur.............— 38.45
— mörk finsk .... — 9.93
— pesetar ..........— 60.92
— gyllini ..........— 298.23
— tékkósl. kr.....— 18.63
— sænskar kr......— 114.31
— norskar kr......— 111.39
— danskar kr. ... — 100.00
Gullverð
ísl. krónu er nú 50.21, miðað
við f rakkn. • f ranka.
Útiskemtun
var haldin að Víðisstöðum í
Hafnarfirði í gær fyrir fórgöngu
landskjálfta f jársöfnunarnefndar-
innar. Ræður héldu Magnús Jóns-
son bæjarf. og Jóhannes Áskelsson
jarðfræðingur. Karlakór K.F.U.M.
og karlakórinn „Kátir Félagar"
skemtu með söng, en hornaflokk-
ur frá Reykjavík sá um hljóðfæra-
slátt. Veður var slærnt en aðsókn
furðu mikil.
Sjálfstæðiskjósendur,
sem fara úr bænum fyrir
kosningar, eru ámintir um að
kjósa áður en þeir fara. Kosið
er á kosningaskrifstofu lög-
manns í Pósthússstræti 3
(gömlu símastöðinni) og er
skrifstofan opin kl. 10—12 og
1—4. Sjálfstæðiskjósendur utan
af landi, sem staddir eru í bæn-
um, eru ámintir um að greiða
þar atkvæði sitt sem fyrst, ef
þeir sjá frani á, að þeir verði
ekki komnir heim til sín fyrir
kosningar. Allar nánari upplýs-
ingar í Varðarhúsinu.
Ivirkjublað,
12. tbl., 2. árg., er nýkomið út.
Efni: Síra Davíð Guðmundsson
á Hofi 1834—1934. (Hundrað ára
minning), eftir Sigurð Stefánsson
á Möðruvöllum,, Heimsmyndin,
eftir síra Björn Magnússon, og
Smyrsl álfkonunnar, ræða, eftir
Knút Arngrímsson.
Skemtun
Bjarna Björnssonar í gær var
vel sótt, og skemtu menn sér hið
besta. Ágóðinn af skemtuninni varð
305 kr., sem ganga til fólksins á
landskjálftasvæðinu.
Happdrætti K. lt.
í gærkveldi kl. 12 var dregið i
happdrætti því, sem var innifalið
í aðgöngumiðunum að íþróttavell-
inum i gær. Upp kom nr. 4002.
Vinningurinn er 50 ki\, og má vitja
hans til Guðmundar Ólafssonar,
Vesturgötu 24.
ísland í erlendum blöðum.
í London Times 22. maí birt-
ist ritfregn um bókina „Iceland
Adventure. The Double Traver-
se of Vatnajökull by tlie Cam-
bridge University Expedition.
By J. Angus Beclcet“. — í Glas-
gow Evening Citizcn birtist 10.
maí grein, sem nefnist „The
Land of Volcanoes Glaciers and
Geysers“, br. dr. E. Harrmami.
(FB).
K. F. U. K.
i HáfnarfirÖi heldur sinn árlega
basar 19. júní kl. 8)4 e. h. Ýmis-
legt til skemtunar.
Áheit á Strandarkirkju,
^hent Vísi: 5 kr. frá Á. B., 2
kr. frá Guðr. Einarsdóttur.
Gjafir
til fólksins á landskjálftasvæð-
inu, afhentar Vísi: 100 kr. frá Fé-
lagsprentsiniðjunni, 15 kr. frá Á.
H. H„ 5 kr. frá J. S. og J. M.
/
Útvarpið í kveld.
19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfr.
39,30 Fréttir. 20,00 Klukkusláttur.
St j órnmálaumræður.
CJtan af landí.
Landskjálftarnir.
Akureyri, 17. júní — FÚ.
í gærkveídi fundust enn 2 all-
snarpir landskjálftakippir á
land^kjálftasvæðinu, og 1 i nótt
og 2 i dag, sá siðari kl. 17þ^.
Einn þessara kippa var svo
snarpur, að fólk þusti út úr
húsum. Skemdir liafa enn á-
gerst.
Úr Borgarfjarðarhéraði.
.Fréttaritari útvarpsins að Stóra-
Kroppi í Borgarfirði símaði í dag,
að í gærdag hefðu frambjóðendur
í Borgarfjarðarsýslu haldið fund
í Ungmennafélagshúsi Reykdæla.
Kvenfélag Reykdæla hafði þar
kaffisölu til hjálpar þeim, sem beð-
ið hafa tjón af landskjálftunum við
Eyjafjörð, og söfnuðust þar 160
krónur.
í dag er 'fundur að Hesti, og
hefir frú Sigríður Björnsdóttir þar
veitingasölú í sama tilgangi.
Veðurblíða hefir verið að und-
anförnu i Borgarf jarðarhéraði,
miklir hitar og sólfar flesta daga
og bestu horfur með grasvöxt.
Laxgengd er talin mikil i Hvítá
og' þeim 'laxám, er i hana falla.
Ekki hafa þó allir bændur á.veiði-
jörðum haft full not að laxgengd-
inni, sökum vatnavaxta, er hafa
valdið talsverðum skemdum á net-
um og veiðilögnum.
(F.Ú. 15. júni).
Útvarpsfpéttip.
Ráðherramorðið í Póllandi.
Berlín, í morgun. FÚ.
Frétt, sem birtist í gær í öll-
um heimsblöðunum, að morð-
ingi pólska innanríkisráðherr-
ans, Piraki, hafi verið liandsam-
aður, er nú borin til baka. Lög-
reglan mun þó liafa nokkura
vitneskju um, livar lians sé að
leita, og liefir liattur hans og
frakki fundist i húsi einu skamt
frá morðstaðnum. Pólska
stjórnin hefir lieitið 100 þús-
undum zloti fvrir upplýsingar
sem leiði til þess, að morðing-
inn verði handsamaður.
Greftrun ráðherrans fer fram
á ríkiskostnað.
Ný tollalög í Bandaríkjunum.
London 13. júní. FÚ.
Roosevelt forseti skrifaði undir
nýju tollalögin í gærlcveldi. Með
lögum þessum er forsetanum veitt
vald til þess, að hækka eöa iækka
tolla um alt að150% eftir því, sem
hann telur haganlegast. Þegar
Roosevelt hafði staðfest lögin,
sagði hann, aS samþykt þeirra í
þinginu væri vottur um mikla