Vísir - 23.06.1934, Blaðsíða 3

Vísir - 23.06.1934, Blaðsíða 3
VtSIR Sundknatt- leikurinn millum skipver.ja af orustuskipinu „Nelson“‘ og sundfélagsins „Ægir“, fer fram i kveld kl. 9 á Ála- fossi. — Dans í stóra tjaldinu á eftir. — Hljóðfærasveit Bernburgs. — Best að skemta sér á Álafossi. — Alt til ágóða fyrir Iþróttaskólann. Kjörfundur til að velja 6 alþingismenn fyrir Reykjavík verður haldinn i Miðbæjarbarnaskólanum 24. þ. m. Kosningarathöfnin hefst kl. 10 árdegis. Undir- kjörstjórnir mæti á kjörstað kl. 9l/2 árdegis. Talning atkvæða fer fram þegar að aflokinni at- kvæðagreiðslu. Yfirkjörstjórnin i Revkjavik, 22. júní 1934. Björn Þórðarson, Bjarni Benediktsson. F. R. Valdimarsson. Kj ósendup í Reyk|avík: mun sýna það alveg ótvírætt á morgun — enn ótví- ræðara en í bæjarstjórnarkosn- ingunum í vetur, að Reykjavík er ekki „rauð“. Þeir munu flykkjast á kjörfund, kjósend- urnir hér í bænum, og mikill meiri liluti þeirra kýs lista Sjálfstæðisflokksins, E-listann, af því að þeir vita af reynd, að þeim flokki einum er að treysta til þess að leiða mikilvæg þjóð- mál til lykta, svo að þjóðinni verður til farsældar. Hvergi á landinu liafa menn betri skilning á því en bér, liver nauðsyn er á því, að ástundað sé að hafa fjármál ríkisins í góðu lagi, og því skilja menn hér einnig til hlitar livert megin- atriði það er, að studdur sé sá flokkur, sem reynslan segir, að með þessi mál kunni að fara, en forðast sé sem heitan eldinn að styðja þá flokka, sem eru revndir að hinu gagnstæða, þótt leiðtogar þeirra mæli fagurt og lofi öllu fögru, án þess að hugsa noklcurn skapaðan hlut um efndirnar. Þetta er ljóst meiri hluta kjósanda þcssa bæjar. Og þeir munu komast að raun um það, froðusnakkar rauðu flokk- anna, að mikill meiri hluti unga fólksins, konur jafnl sem karlar, skilja þetta eigi siður en þeir, sem eldri eru. Að visu má gera ráð fyrir, að einhver hluti unga fólksins liafi lent á villi- götum í stjórnmálunum, sá hluti þess, scin liefir látið glépjast af undirróðri kommúnistaforsprakkanna og slikra manna. Um það er ekki að fást og vafalaust áttar margt af þessu æskufóllci sig betur á híutunum siðar, er það þroskast betur. En það er ekkert sem bendir til annars en að mikill meiri hluti unga fólksins fjdgi sjálfstæðismönnum að málum. Og hvernig ætti annað að vera? Sjálfstæðisflokkurinn er frjáls- ' lyndur og þjóðlegur flokkur, sem starfar á lýðræðislegum grundvelli. Hann er ekki stétt- arflokkur. Hann cr flokkur allra stétta, sem befir hagsmuni þeirra alira og þjóðarlieildar- innar fyrir augum. Það er al- rangt að lialda því fram, að Sjálfstæðisflokkurinn sé ihalds- (konservativ) flokkur. Hann er frjálslyndur (liberal) flokkur, eins og liann hefir sýnt i öllu siðan er liann var stofnaður og mun sýna enn betur, er liann fær meirihluta vald í sínar hendur. Fólk af öllum stéttum, fólk á öllum aldri, treystir þess- um flokki og leggur honum lið silt, hver eftir sinni getu, svo að lxann vinni mikinn og glæsi- legan sigur á morgun. — Nái Sjálfstæðisflokkurinn meirihlutavaldi á Alþingi renna uj)p betri tíinar fyrir þjóð vora. Fjárhagur ríkisins verður bætt- ur og atvinnuvegirnir efldir. Þá verður unnið af kappi að fullu sjálfstæði lands og þjóðar, á grundvelli fjárhagslegs öryggis rikis og einstaklinga. Þá mun öllum Isléndingum smám sam- an lærast, að þeim bcr að setja allan metnað sinn í að verða góðir, nýtir, starfandi, þjóðlegir menn, sem elska og virða fána sins eigin lands, þá munu einsk- is metnir þeir, sem una því möglunarlaust, án þess að mæla orð eða lireyfa legg' eða lið, að þeir séu bundnir flokksviðjum, í öllu háðir vilja valdasjúkra, ofstækisfullra leiðtoga, sem raunverulega stefna að einræði, með múlbundinn, sannfæring- arlausan múg að baki sér. Menn eiga nú að velja á milli tveggja andstæðra slefna, rauðu stefnunnar og sjálfstæðisstefn- unnar. Þeir, sem trúa á mátt hóphugsananna, og sætta sig við félagsþrældóm og skoðanakúg- un, þeir sem meta aðeins bylt- ingarfánann rauða og sætta sig við að feta í fótspor þeirra, sem framkvæma hverja fyrirskipun erlendra yfirboðara — þeir kjósa lista kommúnista, sócia- lista og framsóknarmanna. Hinir, allir þeir, sem trúa á mátt einstaklingshugsunarinnar og samtakamátt frjálsramanna, er láta sitt eigið liyggjuvit ráða. gjörðum sínum, þegar um það er að ræða, að starfa fyrir vel- ferð lands og lýðs — þeir kjósa allir lista Sjálfstæðisflokksins E-listann. * Ávarp. Kæru konur! Ætti þaS ekki a‘ð vera okkur öll- um áhyggjuefni, að svo aumlega hefir tiltekist, að við höfum að- eins átt tvo fulltrúa úr okkar hópi á Alþingi og það aðeins ■ nokkur síðustu ár, þrátt fyrir það, að við höfum yfir fleiri' atkvæðum að ráða en karlmenn og höfum haft kosningarrétt og kjörgengi um Tp ára skeið. Sjálfstæðisflokkurinn er sá einasti Jiingflokkur, er hefir stigið Jjetta spor, en hinir flokk- arnir hafa afdrei sýnt minstu við- leitni í þá átt. Nei, svo fratnsækn- ir og frjálslyndir hafa þeir þó aldrei verið! Þegar eg hefi átt tal um jietta við karlmenn hafa þeir borið því við, að kvenfólk væri ekki nægilega pólitískt ])rosk- að til að eiga sæti á Alþingi, en hvað ]ieir hafa átt við með þessu orðalagi, hefir þeim yfirleitt geng- ið erfitt að skýra. Mér var ]tað þvi ekki lítið gleðiefni þegar hinn vitri og gætni stjórnmálamaður, Jón Þorláksson l)orgarstjóri, gaf ])á yíirlýsingu við útvarpsumræð- urnar, að frú Guðrún Lárusdóttir hefði reynst ágætur þingmaður, og beindi jieirri áskorun til kjós- enda í Reykjavík og um land alt að kjósa^hana. Jafnvel formaður Framsóknarflokksins, Jónas Jóns- son, hinn fundvísi maður á mis- fellur annara, hafði ekkert út á þingstarf herinar að setja, annaö en eitthvað gamalt stagl um þing- störf frk. I. H. B.!! Hefði kona kornið með slíka röksemd: sem þessa, myndu karl- mennirnir hafa hlegið dátt og tal- að um ,,kvennalogik“! Konur! Hristum af oss hlekki vanans og kúgunarinnar. Notuni rétt vorn með því að koma konum á þirig. Flej^gjum frá oss flokks- kúguninni, látumkarluienninaeina þar um. Sameinumst allar um þau niáliri, sem eru hugstæðust öllum þorra kvenna — siðgæðis-, trúar- og líknarmálin. Það mun engu minni þörf á að eiga fulltrúa þeirra mála á Alþingi heldur en annars- staðar, og frú Guðrún Lárusdótt- ir hefir sýnt það ávalt í orði og verki, að hún ann þeim málum. Reykjavíkur konur! Kjósum hana á þing. Að þessu sinni er hún eini kvenfulltrúinn, sem getur komiðj til mála. Væi'i það ekki réttmætt svar til hinna flokkanna, íyrir að hafa traðkað rétti vor- um öll þau ár, sem liðin eru síð- an við fengum kosningarrétt ög kjörgengi ? Látum Sjálfstæðisflokkinn njóta þess, að hann hefir reynst oss konum best í þessu efni. Kjósum allar E-listann! Alþýðukona. JafnaBarmenn í Noregi komast ekki til vaida. Oslo, FB. 22. júní. í Aftenposten stendur í dag, að talið sé nokkurnveginn víst að þingmenn bændaflokksins i land- búnaðarnefndinni hafi fallist a samkomulag hægri og vinstri manna, með nokkrum'breytingum. Er því talið mjög ólíklegt, að til stjórnarskifta komi. — Mowinckel forsætisráðherra er nú á góðum batavegi og mun geta tekið þátt í þingstörfum innan fárra daga. Fundur sjálfstæðismanna i gærkveldi var hinnfjörugasti. Ræðumenn margir og snjallir, áheyrendur fullir ábuga og hver maður ráðinn i því, að vinna ölullega að kosningunni á morgun og gera sigur flokksins sem mestan og glæsilegastan. Bílstjóri sviftur ökuleyfi. í nótt, er lögreglumenn fóru um Bergstaðastræti, komu þeir að bifreið, er þar stóð, og var bílstjórinn sofandi í sæti sínu. Ivom í ljós, að hann var ölvað- ur. Sannaðist, að hami liafði ekið bílnurii ölvaður og var dæmdur í 100 kr. sekt og sviftur ökulevfi i 6 mánuði. Píslargrátur Hermanns. Svar Bjarna próf. Benedikts- sonar við píslargráti Hermanns Jónassonar, í kosningableðlin- um í dag, verður birt liér í blaðinu á morgun. Rauðliðar héldu fundi i gærkveldi á tveim stöðum að minsta kosti. Óvenjuleg deyfð liafði verið yf- ir ræðumönnum og sumir með- al álieyranda átt örðugt með að verjast svefni. Gistihúsið á Ásólfsstöðum tekur á móti gestum frá og með deg'inum í dag að telja. Sjá augl. Konungsritari Jón Sveinbjörnsson, sendi for- seta í. S. í. eitt hundraÖ krónur, fyrir einn aögöngumiöa aö knatt- spyrnukappleiknum í kveld, setTi haldinn er til ágóða fyrir fólkið á landskjálftasvæðinu. Hjúskapur. í kveld verða gefin saman í hjónaband af síra Ólafi Ólafs- syni fríkirkjupresti ungfrú Camilla Guðmundsdóttir, dóttir Guðmundar Jóhannessonar framkvæmdarstjóra, og Jón Ragnars verslunarmaður, sonur Ragnars heit. Ólafssonar kons- úls á Akureyri. Heimili þeirra verður Ljósvallagata 8. Sjáfstæðismenn, sem gela lánað bila á sunnu- daginn, eru beðnir að tilkynna það kosningaskrifstofu Sjálf- stæðismanna nú þegar. Hringið í síma 4965. Bresku herskipin. Á sunnudag og mánudag kl. 4 --7 er almenningi boðið að skoða orustuskipið Nelson. en Crescent er mönnum boðið að skoða í dag kl. 4—7 og næstk. þriðjudag á sarna tíma. Skipsbátarnir verða ekki í förum, en margir bátar munu verða í förutn milli stein- bryggjunnar og skipanna. E-listinn er listi sjálfstæðismanna. Kappleikurinn í gærkveldi milli sjóliða af H. M. S. Nelson og úrvalsliðs is- lenskra knattspyrnumann'a fór þannig, að Islendingar unnu með 3:0. Sjómannakveðja. FB., 23, júni. Lagðir af stað áleiðis til Erig- lands. Góð líðan allra. Kærar kveðjur. Skipshöfnin á Venusi. Skólasýning Sambands íslenskra barnakennara verður opnuð í Austubæj arskól - anum kl. 4 i dag af forsætisráð- herra Ásgeiri Ásgeirssyni, en sýn- ingin verður því næst opin kl. 2— 7 og 8—10 daglega. Á sýningu þessari verður sýnishorn af handa- vinnu barna og unglinga úr um 30 skólum úr öllum fjórðungum lands. Þátt 1 sýningunni taka, auk barnaskólanna, Gagnfræðaskóli Reykjavikur, Kvennaskólinn í Reykjavík, Kennaraskólinn, Gagn- fræðaskóli ísafjarðar, Gagufræða- skóli Vestmannaeyja, Unglinga- skólinn að Núpi í Dýraíirði og Al- þýðuskólinn á Eiðum. Ennfremur er sýnd handavinna úr erlendum skólum, frá Norðurlöndum, Kína og Jápan, og ennfremur er sýnt mikið af kensluáhöldum, sem danska skólasafnib hefir lánað á sýninguna. Þá eru sýndar skóla- bækur o. fl. frá kunnum bóka- forlögum á Norðurlöndum. Sýningin er hin fjölbreyttasta Borðum á morgun: Tómat súpa, soðinn silungur, fleskasteik. 3 réttir. Kosta allir kr. 1,50. Pantið borð í tíma. Borðið vel áður en þér kjósið. Malur fæst keyptur út i bæ, ef ílát eru send. Café Royal. Austurstræti. Sími 4673. og vel fyrir komið. Það er blátt áfram undrávert, hve haglega eru gerðir ýmsir munir, sem þarna eru, eftir börn innan fermingar- aldurs. Verður nánara að því vik- ■ið síðar. Bæjarbúar og gestir x bænum ættu að fjölmenna á sýn- inguna. Hann ðskar veit Jaðij Eg liafði tal af einuín bráð- æstum þjóðernissinna í gær. Þessi félagsskapur drengjanna er tiltölulega nýr liér í bæn- um og lylgið sama sem ekki neitt, enda ekki við því að bú- ast. Þeir þykjast ætla að -gera mikið, drengirnir, ef þeir fái aðstöðu til þess, og dettur mér ekki í liug að lasta slíkt. Hér þarf margt að gera, sem eðli- legt er, én ekki verður því öllu komið í framkvæmd á einu og sama árinu, þó að þessi fá- mennasta lijálparkokkasveit Jónasar imyndi sér það. Eg sagði við drenginn, að mér þætti sorgleg þessi þjón- usta þeirra við rauðu flokkana við hverjar kosningar. Þeir hlyti að sjá það sjálfir, að ekki kæmi þeir að neinum manni. Hann var ekki frá því, að þetta væri rétt, og sagðist mundu haga sér þar eftir við kjör- borðið, því að ekki vildi liann verða til þess að styrkja Jón- as eða aðra kommúnista. Þið ætlið að gera mikið, segi eg, þegar þið eruð orðnir stór- ir. — Já, það ætlum við sannar- lega, segir pilturinn. Og hvernig liafið þið nú hugsað ykkur að koma í verk öllu þessu, sem þið liafið tal- að um í blaðinu, spyr eg. Það veit eg svei mér ekki, sagði drengurinn. Hann óskar veit það! Ungur maður.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.