Vísir - 18.07.1934, Page 3
VlSIR
Best að anglísa i VIsI.
að hlustöndum. Kemur þetta
fram í því, að það vill alloft til
nú í seinni tíð, að það notar
gamla tímann í frásögnum um
viðburði, og cins er það fastur
siður hjá útvarpinu, þá er það
sendir út tilkynningar eða aug-
lýsingar fyrir sjálft sig, að nota
þá ekki 24 stunda klukkuna
nema að íitlu eða engu leyti. —
Hvers vegna? Auðvitað af því,
að útvarpið veit, að sá tíma-
reikningur er óljósari fyrir
fólki en sá gamli. Þetta má
kalla að hafa ótrú á eigin mál-
stað.
Engu að síður er ekki annað
vitanlegt, en að útvarpið ætli að
lialda uppteknum hætti í þessu
sefni. I vetur var tilkynt i út-
varpsfréttum, að nú hefðu Eng-
lendingar tekið upp 24 stunda
klukkuna í útvarpsdagskránni.
Var iielst að lieyra sem einliver
sigurhreimur væri í röddinni.
En ekki var hægt að skýra rétt
frá þessu. Hið sanna var, að
■enska úlvarpið tók upp þetta
tíamtal til reynslu o'g að eins
samhliða hinu fyrra. Reynslu-
tíminn mun elcki liðinn, en hver
sem endalokin verða, er þó svo
komið, að hlöð (sum ef ekki
öll) sem tóku breytingunni ekki
illa, liafa nú horfið frá henni.
Það er alveg óhætt að full-
yrða það, að hlustöndum er
ekki minsta þægð i þessu dansk-
þýska tímatali útvarpsins, held-
ur bein skapraun að þvi og telja
það til hins lakara.
Nú stendur svo vel ó, að nýtt
útvarpsráð liefir verið skipað.
Að visu er meiri hluti þess liinn
rsami sem áður var, en engu að
síður er nú ágælt tækifæri til
þess að fá þessu fyrirkomulagi
breytt. Eru það vinsamleg til-
mæli, að svo verði gerl nii þeg-
ar.
H. Ólafsson.
Þörðar Gnðjohnsen
læknis*.
—o—-
Húsávik, 17. júli. — Ft .
Þórður Þórðarson Guðjohn-
sen, albróðir Stefáns Guðjohn-
sen, sem nýlega lést liér á Húsa-
vík, liefir verið í kynnisferð hjíi
frændfólki sínu hér á Húsavík. -
Þórður er elstur sinna systkina,
fæddur 1867, en er vel ern.
Hann liefir verið læknir i Borg-
undarhólmi síðaslliðin 35 ár,
og eru nú 39 ár síðan hann lief-
ir komið til fslands.
Á þessum tíma hefir hann þó
ferðast mikið, farið víða um
lieim, og klifið hæstu fjöll í Ev-
rópu. Oft hefir hann farið til
Eapplands, gert uppdrætti af
stórum landflæmum þar, sem
áður voru lítt kunn, og kynt sér
lifnaðarháttu Lappa, skrifað um
Lappland mikið rit, með 2—3
þúsund teikningum og er verkið
alt um 7—8 þúsund blaðsíður,
handritaðar í arkarbroti. Hann
liefir unnið það mikla verk sem
aukastarf í síðastliðin 15 ár.
Handritið hefir hann nú gef-
ið ferðamannafélaginu í Sví-
þjóð.
Þ. G. hefir verið ákaflega vin-
sæll maður, glaður og reifur
jafnan og skemtilegur í við-
ræðum. Hann tók sér fari heim-
leiðis á Brúarfossi í gærkveldi.
St. Andr. Lvg. „Helgafell" 59347197.
IV./V.
Veðrið í morgnn.
Hiti í Reykjavík io st., ísafirði"
9, Akureyri 9, Skálanesi 12, Vest-
mannaeyjum 11, Sandi 11, Kvíg-
indisdal 8, Hesteyri 7, Gjögri 6,
Blönduósi 7, Siglunesi 7, Grímsey
6, Raufarhöfn 7, Skálum 9, Fagra-
dal 10, Hólum í Hornafirði 16,
Fagurhólsmýri 13. Reykjanesvita
10, Færeyjum 15. Mestur hiti hér
í gær 16 st., minstur 9. Sólskin 11,5
*st. — Yfirlit: Grunn lægÖ fyrir
austan og norðaustan Island. —
Horfnr: Suðvesturland, Faxaflói,
Breiðafjörður: Norðan kaldi. Úr-
komulaust. Vestfirðir: Norðaustan
gola. Dálítil rigning norðan til.
Norðurland. norðausturland: Norð-
an gola. Þykt loft og víða rigning.
Austfirðir, suðausturland: Hæg
norðanátt. Úrkomulaust. Víða
bjartviðri.
Úthlutun uppbótarþingsætanna.
Vísir átti i morgun tal viÖ Jón
Ásbjörnsson hrm., oddvita land-
kjörstjórnar og spurði hann, hve
nær búast mætti við, að úthlutun
u])|)bótarsætanna gæti farið fram.
Ivvað hann ekki lokið við að vinna
úr þeim plöggum, sem landkjör-
stjórn hefði Ijorist, og enn vantaði
viðbótarupplýsingar úr nokkurum
kjördæmum. Hins vegar bjóst bann
viÖ, að hægt yrði að fá þessar upp-
lýsingar símleiðis, og væri verið að
þvi. AÖ öllum líkindum, sagði Jón
Ásbjörnsson. getur úthlutun upp-
bótarsætanna farið fram fyrir helgi.
en j)ó yrði eigi sagt um j)að með
fullri vissu, að svo stöddu. Sam-
kvæmt bráðabirgðaútréikningi, sem
gerður var, til j)ess að flýta fyrir,
er liklegt. að Gunnar Thoroddsen
hljðti 4. uppl)ótarj)ingsæti Sjálf-
stæðisflokksins.
Bálstofumálið.
Á bæjarráðsfundi 9. J). m. var
lögð fram umsögn bæjarverkfræð-
ings um u])pdrætti af bálstofu. Var
bæjarverkfræðingi falin frekari at-
hugun málsins, í 'samvinnu við
stjórn Bálfarafélags íslands.
Sorphreinsunin.
Út af erindi heilbrigðisfulltrúa
17. maí s.l. og umsögn bæjarverk-
fræðings 4. júlí s.l., um kaup á 2
bílum til sorphreinsunar, var á bæj-
arráðsfundi. 9, þ. m. samþykt til-
laga frá 1)orgarstjóra um að leigja
bila til sorphreinsunar fyrst um
sinn.
Laugarness-barnaskóli.
Á bæjarráðsfundi 9. þ. m. voru
lagðir fram írumdrættir að bygg-
ingu væntanl. barnaskóla f-yrir aust-
urúthverfi bæjarins (Laugarnes),
ásamt lauslegri kostnaðaráætlun yf-
ir bygginguna, sení nemur ca. 50
j)ús. kr. og gert er ráð fyrir, að
auk þess þurfi um 5 þús. kr. fyrir
húsbúnað og kensluáhöld. Sam])ykt
)'ar að lialda áfrám undirbúningi
málsins, bjóða út bygginguna og
reyna að koma upp hluta af hús-
inu næsta liaust, svo að hægt verði
að halda J)ar uppi.kenslu í vetur.
Farþegar á Brúarfossi
til útlanda: Sig. Björnsson, B.ryn-
leifur Tobiasson, Sigfús Halldórs-
■son, Soffia Bjarnason, Þorbergur
Þórðarson, Þórður Guðjohnsen
læknir, Margrét Jónsdóttir, Anna
Guðjónsdóttir, Áslaug Símonar-
dóttir, Logi Einarsson, Gunnl. Ing-
vársson, Sigríður Tómasdóttir,
Hanna Eiríksson, 3 menn frá ísa-
firði, og fjöldi útlendinga.
Landskjálftahræringar
ofurlitillar, varð vart hér í bæn-
urn í morgun laust fyrir kl. II.
Skemtiför til Þingvalla
fer Félag matvörukaupmanna n.k.
sunnudag. — Sjá augl.
Skemtiferðaskipin.
Breska ferðamannaskipið Atlan-
tis kom hingað í morgun frá Eng-
landi með 350 farjæga. — Aifnað
breskt ferðamannaskip, Arandorra
Star, kom kl. 2 í dag, einnig frá
Bretlandseyjum. Móttöku ferða-
mannanna annast G. H. Zoega.
Hjúskapur.
2, ]). m. voru gefin saman í
hjónaband af síra Bjarna Jónssyni
dómkirkjupresti, ungfrú Jónína
Herdis Jónsdóttir, Njálsgötu 12, og
-Maron Bergmann Oddsson s. st.
Heimili J)eirra verður á Njálsgötu
12. —
Skip Eimskipafélagsins.
Brúarfoss fór héðan í gærkveldi
áleiðis til útlanda. Gullfoss er vænt-
anlegur hingað seint í kveld frá út-
löndum. Qoðafoss fer héðan í
kveld kl. 8 áleiðis vestur og norð-
ur. Dettifoss kom til Hamborgar i
morgun. Lagarfoss fór frá Leith í
gær, áleiðis til Reykjavikur. Sel-
foss var á Þórshöfn i morgun.
Bæjarstjórnarfundur
verður haldinn i Kaupþingssaln-
um á morgun kl. 5.
Úlfljótsvatn.
Reykjavikurbær er nú orðinn eig-
andi jarðarinnar Úlfljótsvatn í
Grafningi. Varð hæstbjóðandi á
u])p1)oði ,sem J)ar fór fram nýlega.
Kaupverð, með vatnsréttindum, 85
J)úsund krónur.
Dómur
féll i morgun i undirrétti út af
bifreiðarslysinu, sem varð á Hverf-
isgötu þ. 9. júní s.l. Varð telpa
fyrir bifreið þar, og meiddist mik-
ið og var flutt á Landsspítalann.
Er ])ó talið, að hún muni verða
jafngóð, nema að ekki er fullvíst,
að hún fái jafngóða heyrn og áð-
ur á öðru eyra. Bifreiðarstjórinn
var dæmdur i 500 kr. sekt og svift-
ur ökuleyfi í 6 mánuði.
Brú og Brúarendi.
Sigurður Ólafsson, rakari, hefir
boðið bænum eign sina, Brú og
Brúarenda á Þormóðsstaðabletti, til
kaups fyrir skóla handa börnum á
Grímsstaðaholti og við Skerjaf jörð.
Erindinu var vísað til skólanefnd-
ar til athugunar.
Knattspyrnukappleikur
fer fram á íþróttavellinum í'
kveld kl. 9, milli K. R. og knatt-
spyrnuflokks af Atlantis. Hefir K.
R. oft kept áður við Jrennan flokk
og hafa J)eir kappleikar j)ótt skemti-
legir. Leika Bretarnir mjög prúð-
mannlega, og eru slyngir knatt-
spyrnUmenn. K. R.-inga Jiekkja all-
ir. Kl. 8)4 leikur Lúðrasveit
Reykjavikur á Austurvelli og verð-
ur lagt af stað suður á völl kl. 8)4-
Þar færir form. K. R. keppendum
af Atlantis að gjöf útskorinn is-
lénskan ask, fagran grip, til endur-
gjalds yirðulegri gjöf flokks At-
lantis i fyrra.
Afengissmyglunin.
Dómur féll i gær út af áfengis-
smygluninni á Goðafossi. Var
þjónninn á 1. farrými dæmdur í
2350 kr. sekt og 15 daga skilorðs-
bundið fangelsi. — Hásetinn," sem
frá var sagt i gær, var dæmdur
í 200 kr. sekt.
Kennarar.
Skólanefnd hefir sam])ykt að
mæla með J)vi við kenslumálaráðu-
neytið, að skipaðir verði kennarar
við barnaskólana frá 1. okt. næstk.:
Anna Hallgrimsdóttir, Árni Þórð-
arson, Gísli Sigurðsson, Haraldur
Björnsson, Steinþór Guðmundsson,
og Júlíus Magnússon. Ennfremur
leggur skólanefndin til, að húsnæði
í Skildinganesi til skólahalds verði
leigt hið sama fyrir næsta vetur,
en leggur áherslu á, að gerðar verði
ráðstafanir til að byrjað verði á
skólabyggingu fyrir þann bæjar-
hluta svo tímanlega, að taka megi
hið nýja skólahús til notkunar vet-
urinn 1935—!936-
Brottför Esju
er írestað vegna vélbilunar.
Næturlæknir
er í nótt Guðm. Karl. Péturs-
son. Sími 1774. — Næturvörður i
Reykjavíkur apóteki og Lyfjabúð-
inni Iðunni.
Gengið í dag:
Sterlingspund ......... kr. 22.15
Dollar................. — 4.40 )4
100 ríkismörk.......... — 168.65
— franskir fj'ankar — 29.17
— belgur.............. — 102.89
— svissn. frankar .. — 143-78
— lírur ............. — 38-29
— finsk mörk ......... — 9.93
— pesetar ............ — 61.07
—- gyllini ............. — 298.63
— tékkósl. krónur . . — 18.631
— sænskar krónur . . — H4-3I
— norskar krónur .. — 111.44
— danskar krónur .. — 100.00
Gullverð
ísl. krónu er nú 50.12, miðað við
frakkneskan franka.
ÚtvarpiS í kveld.
19,10 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. — 19,25 Tónleikar. — 19,50
Tónleikar. — 20,00 Klukkusláttur.
Tónleikar (Útvarpstríóið). — 20,30
Ferðasaga, I (Guðbr. Jónsson). —
21,00 Fréttir. — 21,30 Grammó-
fóntónleikar: Schubert: Symphonia
No. 5. —
Athugasemd.
I einu af blöðum framsóknar-
manna er birt, 18. J). m., frásögn
um bankastjórann Joseph Wright
Harrimann í New York, er dæmd-
ur var í 72 ára betrunarhúsvinnu,
fyrir ranga bókfærslu og að hafa
farið óráðvandléga með annara fé.
— Hvað er Jietta hjá afglöpum
Framsóknarstjórnarinnar, Jiegar
hún réði lofum og lögum á landi
hér? Er það ekki augljós sönnun,
með birtingu Jiessarar fréttar, að
Framsóki'iarflokkurinn kunni ekki
að skammast sin. H. B.
Kappleiknrínn í gær.
H. I. K. vinnur Fram með 2 : 1.
Kappleikurinn liófst kl. SJA
slundvíslega.
Fyrri hálfleikur.
Allhvast var á norðan og liáði
það leiknum allmikið, og þó
sérstaklega leik Dananna. Þeir
áttu undan veðri að sækja, enda
lá knötturinn allajafna á vallar-
helming „Fram’s“, envörnínbil-
aði hvergi, og sérstaklega varð-
ist markvörður prýðilega.
„Fram“ gerði nokkur skæð
upphlaup, sem þó mistókust. Er
35 min voru af liálfleik, fekk
hægri útframli. Dana, E. Thiel--
sen, knöttinn vinstra megin frá,
tæ])lega i hnéhæð. Sparkaði
hann viðstöðulaust á lofti og
sendi knöttinn af afli miklu
undir forslá marksins. Skoraði
liann með þvi liesta mark, sem
liefir verið gert í þessum kapp-
leikum. Það sem eftir var af
liálfleiknum, varðist „Fram“
af prýði og lauk þvi hálfleik í
hag H. I. K, með 1 : 0.
Síðari hálfleikur.
Nú átti Fram undan vindi
að sækja, og^bjuggust menn
við sókn mikilli frá þeim, enda
lá knötturinn megnið af liálf-
leiknum á vallarhelmingi II.
I. K., en vörn þeirra var með
afhrigðum góð og bilaði hvergi.
Eins og' Fram í fyrri hálfleik,
gerði H. I. K. hættuleg upp-
hlaup, og úr einu þeirra, er 25
mín. voru af hálfl., skoraði
Thielsen mark úr þvögu. En
Fram gafst ekki upp, og er 32
mín. voru af leik, skoraði Jón
Magnússon mark í upplilaupí.
Urðu menn nú vongóðir og
bjuggust við meiru, og litlu
seinna kom líka stórhættulegt
skot á mark H. I. K., í tæpri
linéhæð, úti í vinstra liornið.
En niarkvö'ijðurinn, Rupert
Jensen, fleygði sér i hornið og
grei]) knöttinn á lofti. Er það
eitt af glæsilegustu afrekum,
sem liér hafa sést lijá mark-
verði. Eftir þetta varðist H. I.
K. örugglega, og lauk hálfleikn-
um því með 1:1.
H. I. K. sigraði því með 2: 1.
Dómarinn, Guðjón Einars-
son, var ágætur að vanda, og
voru hnífilyrði sumra áhorf-
enda í hans garð og leikenda
óréttmæt. Leikurinn var all-
harður á köflum, og var það á
báða bóga.
V.
Útvarpsfréttir.
London í gær. FÚ.
Frá San Francisco.
Hvert einasta vínsöluhús og
knæpa í San Francisco er nú
lokað, og' ekki liægt að fá nokk-
urt löglegt áfengi í allri borg-
inni. En vegna þess live aðsókn
að þeim fáu matsöluhúsmn sem
opin voru, var mikil, var leyft
áð öll matsöluhús borgarinnar
yrðu opnuð.
Verkfallsleiðtogarnir hafa
leyft að slökkviliðsstöðvarnar
starfi, og að kjöt, mjólk, brauð
og is sé flutt heim til manna.
Deila milli Tyrkja og Breta.
Sendiherra Tyrklands í Lon-
don heimsótti siðdegis í dag ut-
anríkisráðuneytið breska, og
lagði fram afsökunarbeiðni
tyrknesku stjórnarinnar vegna
atburðar þess er gerðist á laug-
ardaginn við Samos-eyju, er
einn breskur liðsforingi var
skotinn til dauðs og annar særð-
ur.
Slrandverðirnir tyrknesku
segja, að þeir hafi séð mennina
nakta á ströndinni, og' álitið að
þeir væru smyglarar. Strand-
verðirnir skutu þá út í loftið, til
að aðvara mennina, en þeir
sintu því engu, og er þeir sintu
því ekki heldur í annað sinn
er skotið var, skutu þeir á þá.
Berlín í morgun. FÚ.
Ensk blöð rita mikið um at-
burðinn við Samos-eyju, og
kennir í sumum þeim skrifum
allmikillar gremju í garð
Tyrkja. Mörg blöð eru sammála
um, að hér sé annað livort um
óhæfilegt gáleysi að ræða, eða
stórkostlega móðgun í garð
Breta. Kröfunni um fullkomna
rannsókn í málinu er mjög
haldið á loft af blöðunum. —
Mjög bráðlega er þess vænst,
að birt verði hin fyrstu svör
tyrknesku stjórnarinnar við-
víkjandi þessu máli, og er
þeirra beðið með eftirvænting
í Englandi.