Vísir - 31.07.1934, Page 3
VlSIR
HappdLrætti íþróttaskólans á Álafossi.
fer fram n. k. sunnudag 5. ágúst undir stjórn sýslum. Magnúsar Jónssonar í Hafnarfirði. 1 sambandi við það
fer fram stór skemtun á Álafossi, sem hefst kl. 2% síðd. Þar verður hljóðfærasláttur. Ræður fyrir minni
verslunarstéttarinnar og minni Islands. — Upplestur — Sjónleikur — Aflraunir — Sund. — Dýfingar.
DANS o. fl. — Nánar auglýst síðar.
AV. Verslunarmenn og aðrir er vilja tjalda yfir helgina á Álafossi, geta fengið gott tjaldstæði.
Síðasti dagur útsölunnar
er á laugardaginn. Aðeins 4 dagar
eftip. Notið þetta einstaka tækifæri
og kaupið tilbúinn fatnað, álnavöru
og fleira.
Karlmenn I
Sokkar, 12 pöp frá kr. 4,50.
Marteinn Einarsson & Co.
Stanley Saldwin
heldur ræðu, sem vekur
fádæma athygli. —
Hernaðarbandalag með
Bretum og Frökkum?
London, 31. júlí.
Morgunblöðunum í London
verður tíðræit um ræðu sem
Stanlejr Baldwin, núverandi for-
sætisráðherra liélt í gær,
en í henni lét hann svo um mælt,
að „Rín væri landamæri Bret-
lands“. — Er því lalið, að Bret-
ar muni standa hlið við lilið
Frökkum eins og 1914—-1918 ef
til ófriðar kæmi. Ummæli Stan-
ley Baldwins eru af stjórnmála-
mönnum talin einhver hin mik-
ilvægustu, sem nokkur stjórn-
málamaður hefir látið sér um
munn fara siðan 1918. Ýmsir
þeirra, sem um stjórnmál slcrifa
eru þeirrar skoðunar, að Bald-
win telji liér um bil víst, að
styrjöld muni skella á. (United
Press).
Fepðafélagið.
í Þórisdal
í Langjökli fór FerSafélag- Is-
lands skemtiför á sunnudaginn var.
Hafði tilætlunin verið.sú, aS ganga
á Ok, en þegar kom norSur í ó-
bygöir var Okiö alt í þoku og var
því snúið vi‘S blaöinu og haldiö á
Þórisjökul og í dalinn. Þótti þátt-
takendum sú för eins fróöleg og
hin mundi hafa veriö, ])vi aö fæst-
ir höföu gengiö á jökul átSur. Var
ágætt útsýni yfir dalinn og jökull-
inn greiöur yfírferöar, þó nokkuö
væri hanu sprangiun. Tveir ])átt-
takendur urðu eftir í Þórisdal og'
ætla aö dvelja ]>ar til fimtudags
við skíöagöngur.
Að Hvítárvatni
ráðgerir Feröafélagið skemtiför
Timi næstu helgi. Verður haldiö héö-
an á laugardag M. 4 síðd. og ekið
á Bláfellsháls og haldið áfram inn
S sæluhúsið í Hvítárnesi um nótt-
5na. Daginn eftir verður íarið í
Karlsdrátt og Hrefnubúðir og víð-
;ar, ef tími vinst til og haldið aftur
5 sæluhúsið um kveldið. Á mánu-
<dag veröur svo haldið heimleiöis.
Earséðlar fást á afg-reiðslu Fálk-
ans til kl. 5 á fimtudag og kosta
1Ó.50 fyrir aðra. Þeir, sem vilja
fara ríðandi af Bláfellshálsi og í
Karlsdrátt, geta pantað hesta á af-
greiðslu Fálkans. Teppi er nauð-
•synlegt að hafa með sér, vegna
wiðlegunnar við Hvitárvatn.
Á Snæfellsjökul
verður farin skemtiferð næst-
komandi laugardagskveld í skemti-
flokki Verslunarmannafélagsins.
Komið að Stapa árla sunnudags-
imorguns og farið þar í land og
.gengiö á Jökulháls. Þaðan upp á
Jökulþúfur, ef skygni er gott, en
annars áfram norður yfir Jökul-
háls til Ólafsvíkur. Þar tekur skip
V erslunarmannaf élagsins fójlkið
aftur árdegis á mánudag. Komið
verður hingað á mánudagskvöld.
Farseðlar fást á afgreiðslu Fálk-
ans til föstudagskvölds og kosta
kr. 16 fyrir félagsmenn og 17.50
fyrir aðra.
Dánarfregn.
Hans M. Kragh, símaverkstjóri
ándaðist í nótt.
Veðrið í morgun.
Hiti í Reykjavík 10 stig, ísafirði
.6, Akureyri 9, Skálanesi 10, Vest-
mannaeyjum n, Sandi 3. Kvíg-
iudisdal 8, Hesteyri 4, Gjögri 4,
Blönduósi 6, Siglunesi 8, Gríms-
ey 9, Raufarhöfn 9, Skálum 10,
Fagradal 8, Papey 10, Hólum í
Hornafiröi 12, Fagurhólsmýri 13,
Reykjanesvita 11, Færeyjum 13.
Mestur hiti hér i gær 14 st., minst-
ur 9. Úrkoma 2.5 mm. Sólskin í
gær 3.3 st. Yfirlit: Lægð milli ís-
lands og Bretlandseyja á hægri
hreyfingu norður eftir. Horfur:
Suðvesturland, Faxaflói, Breiða-
fiörður: Norðan og norðaustan
goia. Víðast úrkomulaust. Vest-
firðir, Noröurland, norðausturland,
Austfirðir : Norðaustan gola. Þykt
lcft og rigning. Suðausturland:
Hægviðri. Lítilsháttar rigning.
Einar Kristjánsson
óperusöngvari, syngur í Gamla
Bió í kvelcl kl. 7%.
Gústav Jónasson
fulltrúi hefir verið settur lög-
reglustjóri í Reykjavík.
Ásgeir Ásgeirsson
hefir tekið við emhætti fræðslu-
málastjóra, en því gegndi hann,
eins og kunnugt er, áður en hann
varð ráðherra.
Trúlofun.
Um síðustu helgi opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Oddfríður
Sveinsdóttir, Njálsgötu 35, og
Ingibergur Stefánsson blikk-
smiður Framnesveg 44.
ítölsku Grænlandsfararnir.
Þeir fóru héðah i morgun á-
leiðis til Isafjarðar. Þaðan flytur
vélbáturinn Njáll þá til Angmag-
salik og bíöur'þar eftir þeim. Sex
rnanna áhöfn er á hátnum.
Karlsefni j
hefir selt hátafisk frá ísafiröi,
um 80 smálestir, f)rrir 1612 stpd.
Gullfoss hefir selt ísfiskafla sinn
fyrir 689 stpd. Báðir seldu í Grims-
by-
Júpiter
kom hingað í morgun til istöku.
Fer héöan í dag áleiöis til Bret-
lsnds.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss fer héðan í kveld áleiðis
til Kaupniannahafnar. Goðafoss
fór frá Hull í dag áleiðis til Ham-
borgar. Brúarfoss kom til Leith í
gærlcveldi. L^garfoss fer til út-
landa í kveld kl. 10. Selfoss er á
Akureyri. Dettifoss er í Reykjavík.
60 ára
er i dag Elísabet Guðmundsdótt-
.ir, Ránargötu 31.
Skemtiför Verslunarmannafélags
Reykjavíkur
verður farin til Breiðafjarðar að
þessu sinni. Farið verður á varð-
skipinu Ægi á laugardag og kom-
ið aftur á mánudagskvcld. — Á
Breiðafirði er einkar sumarfagurt
og eru þar margir staðir, sem mjög
hafa komið við sögu. Veröa þeir,
sem þátt taka i ferðinni, fræddir
um þá af kunnugum og fróðum
mönnum. Farseðlar fást til föstu-
dagskvelds hjá Agli Guttormssyni
á skrifstofu Verslunarmannáfélags
Reykjavíkur í Ingólfshvoli. Verð
þeirra er 12 kr. báðar leiðir. Tala
farmiða er takmörkuð og er viss-
ara fyrir menn aö tryggja sér far-
miða í tíma.
Kvikmyndahúsin.
Garnla Bíó sýnir ameríska kvik-
mynd, sem nefnist „I undirdjúpun-
um“. Aðalhlutverk leika Rohert
Montgomery, Mag'de Evans o. fl.
— Nýja Bíó sýnir enn kvikmyncl-
ina „Einkadóttir hankastjórans".
Næturlæknir
• er í nótt Guðm. Karl Péturs-
sou. Sími 1774. — Næturvörð-
ur í Reykjavíkur apóteki og
Lyfjabúðinni Iðunni.
Áheit á Strandarkirkju
afhent Visi: 2 kr. frá N. N.
Gengið í dag.
Sterlingspund .................. — 22.15
Dollar......................... —• 4.40^3
100 rikismörk ................ — 170.28
— franskir frankar —• 29.12
— belgur................... — 103,19
— svissn. frankar .. — 143.68
— lírur ................... — 38.24
— finsk mörk .............. — 9.93
— pesetar ................. — 61.02
— gyllini.................. — 297.79
— tékkósl. krónur .. — 18.62
— sænskar krónur .. —• 114.36
— norskar krónur .. — 111.44
— danskar krónur .. — 100.00
Gullverð j
ísl. krónu er nú 50.21, miöað við
frakkneskan franka.
tJtvarpið í kveld:
19,10 Veðurfregnir. — Til-
kynningar. 19,25 Grammófón-
tónleikar. 19,50 Tónleikar.
20,00 Klukkusláttur. Beethoven-
tónlist, með skýringum (Jón
Leifs). 21,00 Fréttir. 21,30
Grammófónn: — a) Gerslrwin:
Ameríkumaður í París; Job.
Svendsen: Carneval í París. —
b) Danslög.
Filipseyjar og Bandaríkin.
Innflutningur frá Bandaríkj-
unum til Filipseyja árið sem
leið nam 43.540.407 dollurum,
en Filipseyjabúar seldu Banda-
ríkjamönnum afurðir fyrir
91.313.027 dollara á sama tíma.
Utan af landi.
Stofnfundur Samlags ísl. matje-
síldarframleiðenda.
Siglufirði 30. júlí. FÚ.
Ilinn 26. og' 27. þ. m. var
lialdinn liér á Siglufirði stofn-
fundur Samlags islenskra mat-
jessíldarframleiðenda. Þessir
voru mættir á fundinum: Ás-
geir Pétursson, Finnur Jónsson,
Ingvar Guðjónsson, Steindór
Hjaltalín, Sveinn Benediktsson
og Hafsteinn Bergþórsson. Ás-
geir og Finnur lögðu fram um-
boð til stofnunar Samlagsins,
á líkum grundvelli og Fisk-
sölusamlagið, með aðstoð lög-
gjafarvaldsins, frá Guðmundi
Péturssyni, Stefáni Jónassyni,
Ingvari Guðjónssyni, Antoni
Jónssyni, Bjarna Einarssyni og
Jóni Kristjánssyni, öllum bú-
settum á Akureyri. Ásgeir
Pétursson og Steindór Hjalta-
lín lögðu fram umboð vinnu-
veitendafélags Siglufjarðar.
Sveinn Benediktsson og Haf-
steinn Bergþórsson lögðu fram
umboð sunnlenskra útgerðar-
manna.
Síðastliðið sumar höfðu Ak-
ureyringarnir fyrnefndu flutt
út alls 64261 tn., Sildarsam-
vinnufélag ísfirðinga 16000 tn.
og Vinnuveitendafélagið og
fleiri útflytjendur á Siglufirði
92000 tunnur.
Bráðabirgðareglur voru sam-
þyktar um starfsemi félagsins,
mjög líkar lagafrumvarpi, sem
úvarpið hefir áður getið.
Stjórn Samlagsins var kosin.
Hana skipa: Ásgeir Pétursson,
Finnur Jónsson, Hafsteinn
Bergþórsson, Ingvar Guðjóns-
son og Steindór Hjaltalín. Sam-
þykt var að fela Steindóri og
Finni að senda Stjórnarráðinu
fundargerðina ásamt greinar-
gerð.
t F
Síldveiði treg.
Söltun er mjög lítil enn, á
Siglufirði. — Veiði afartreg
vegna ógæfta.
Heyskapur.
Frá Sauðárkróki simarfrétta-
ritari útvarpsins, að lieyskap-
ur sé þar erfiður vegna óþurka,
en spretta ágæt.
Síldveiðin.
Búið er að salta á Sauðár-
króki 1900 síldartunnur og
frysta 700. Síldin gengur dreift
og er seintekin. Fiskafli er
enginn.
Mindenbnrg veiknr.
Berlín í morgun. FÚ.
Hindenburg, forseti Þýskalands.
sem undanfarið hefir dvalið í höll
ísinni, Neudeck, veiktist svo alvar-
lega nú um helgina, að talið hefir
verið. tvísýnt um Iíf hans. Sein-
asta freg'n um heilsu hans, (sem
útvaqiað var í Þýskalandi klukk-
an 11.55 ísl- tíma), var á þá leið,
að hann lægi meðvitundarlítill,
starfsemi hjartans væri all-þrótt-
mikil, en augsýnilega mikil hætta
á ferðum.
Námnsprenging.
Námusprenging' varð í morg-un
í nágrenni við Metz i Frakklandi,
og- óttast menn um, að hún hafi
orðið allmörgum mönnum að bana.
I allan morgun hefir verið unnið
að hjörgun þeirra, sem luktir era
inni í námunni, o,g björgimarstarf-
intt enn ekki lokið.
Ánsturrískn stjðrninni
vel teklð.
Berlin í morgun. FÚ.
Erlend hlöð skrifa mjög um nýju
stjórnina i Austurríki, og her ensk-
um og frönskum hlöðurn yfirleitt
saman um það, að skipun hinnar
nýju stjórnar gefi vonir um, að
henni verði auðið að starfa lengi.
Einkum er á það bent í frönsk-
um blöðum, að með núverandi
samnsetningu ráðuneytisins, sé
valdinu skift svo jafnt milli Kristi-
legra Jafnaðarmanna og Heim-
wehrmanna, að trygging- sé fyrir
því, að ekki verði átök milli þess-
ara tveggja aðila, er einir hafi bol-
magn til þess að mynda stjóm,
eins og nú standa sakir.
Gúmmístimplar
eru búnir til í
Félagsprentsmiðjunni.
Yandaðir og ódýrir.