Vísir - 06.09.1934, Blaðsíða 3

Vísir - 06.09.1934, Blaðsíða 3
V I S I R kvnsjúkdómasjúklingiiiri í Re)-kja- vík, sem þess þarfnast. Maggi Júl. Magnús veitir ekki framvegis slíka hjálp ókeypis, enda er hann nú orðinn yfirlæknir sjúkrahússins í Laugarnesi. — Hannes Guðmunds- son veitir áSurnefndum sjúkling- um viðtöku til ókeypis lækningar i lækningastofu sinni, Hverfisgötu 12, sími 3105, alla virka daga kl. 11—12 árdegis, en ekki á öSruin tímum dags. Vilmundur Jónsson landlæknir hefir sagt sig úr skólanefnd Reykjavíkur. Starfiö er ólaunaö. Dr. Light lenti í Færeyjum kl. 4 e. h. í gær. Hann fékk frekar óhagstætt veður á leiðinni. Hjúskapur. Nýlega hafa veriö gefin saman í hjónaband af síra FriSrik Hall- grímssyni, Asta GuSmundsdóttir, verslunarmær og Ólafur P. Jóns- son, stud. med. Heimili þeirra er á Bergstaöastræti 71. Skip Eimskipafélagsins. Dettifoss kom aö vestan og norð- an í morgun. Fer héðan á hádegi á morgun. Lagarfoss kom til Leith í gær. Brúarfoss var á Sauðár- króki í morgun. Fáfnir kom af síldveiðum i morgun. E.s. Sú'ðin er væntanleg hingað kl. 9-r-io i kveld. íþróttanámskeiðið á Álafossi, sem nú stendur y'fir, hættir laugardag n. k. kl. 5 e. h. Fer þá fram íþróttasýning og' er foreldrum þeirra barna, sem verið hafa á námskeiðinu, boðið að vera viðstaddir. Áheit á Hallgrímskirkju í Saurbæ. af- hent Visi: 4 kr. frá ónefndum. Áheit á Strandarkirkju, afhent Vísi: 10 kr. frá S. I\, 2 "kr. frá þakklátri móður, 5 kr. frá áttræðri konu, 3 kr. frá S. S. Unga ísland. Barna- og unglingablaðið „Unga ísland“ er nú gefið út af Rauða Krossi íslands. Er 8. hefti 29. tbl. ‘blaðsins nýlega komið út með margbreytilegu efni og prýtt r.myndum. Áskorun 'til Útvarpsins. 1 lok þessarar viku (föstudag— .sunnudag) fer fram í Turiu á ítaliu Evrópu-meistaramót i frjáls- um íþróttum, og biða hérlendir i- 'þróttamenn með óþreyju frétta af INDRIÐI EINARSSON: ffir tll æskustfiðva. Frh. með mér út að Grófargili. Þar Lýr ekkja Jóns lieitins Bene- úiktssonar, systursonar míns. Elsta dóttirin, Birna, sem býr út á Reykjum á Reykjaströnd, var stödd á Grófargili, og yngsta dótlirin er þar gift kona. Mæðg- urnar tóku okkur hið hesta. Við fórum þaöan fram að Víðimýri, eg vildi sjá kirkj- una. Þar á lilaðinu voru þá lir. Södring og frú Iians, sem höfðu ■verið að skemtiveiðum í liinni hiátæru Svartá. Frúin stóð með anikinn blómvönd í hendinni, sem Herdís sagði mér að hún lilyti að liafa fengið i Varma- hlíð. Utan með blómvendinum voru Baldursbrár. Hún gaf mér eina í linesluna. „Del kalder vi for Margaruitcr“ sagði maður- MILDAR OG ILMAND TEOFANI Ciaarettur nvarvebna T—C autlítw ÍÍcmkU fátaiireíöSTttit 00 Citutt ÍLcojartg 34 ^inut 1500 Býður ekki viðskiftavinum sínum annað en fullkomna kemiska hreinsun, litun og pressun. (Notar eingöngu bestu efni og vélar). Komið því þangað með fatnað yðar og annað tau, er þarf þessarar meðhöndlunar við, sem skilyrðin eru best og reynsl- an mest. Sækjum og sendum. því. Væri nú ekki hægt fyrir út- varpiö að ná fregnum af því gegn- um erlendar útvarpsstöðvar og lesa })ær síöan upp með erlendu fréttunum. Fregnir af mótinu hljóta að nást gegnum Königs- wústerhausen, Motala. Kaup- mannahöfn og Osló — síður gegn- urn ensku stöðvarnar, því Bretar taka ekki þátt í mótinu. íslenskir íþróttamenn mundu mjög ])akklát- ir fyrir fréttir af þessu móti. sem gengur næst Olympíuleikunum. íþ. Útvarpið í kveld. 19.10 Veöurfregnir. Tilkynning- ar. 19.25 Lesin dagskrá næstu viku. Grammófóntónleikar. 19.50 Tón- leikar. 20.00 Klukkusláttur. Tón- leikar (Útvarpshljómsveitin). — 20.30 Fréttir. 21.00 Erindi: Um hljóðfæri og hljóðfærasamleik, III (Jón Leifs). Grammófónn: — a) íslensk lög-. — b) Danslög. Gullverð ísl. krónu er nú 49,21, íhiöaö viö frakkneskan franka. Heimatrúboð leikmanna, Vatnsstíg 3. Samkoma i kveld kl. 8. Allir velkomnir. Bókarfregn. „Grand Hotel", kunn skáldsaga eítir Vicki Baum, er nýlega komin út á kostnaö ísafoldafprentsmiðju. Þýöinguna hefir gert Páll Skúla- son, ritstjóri. Gengið í dag: Sterlingspund .......... kr. 22.15 Dollar................. — 4.42 100 ríkismörk.......... — i/5-91 — franskir frankar . — 29.71 — belgur............ — 105.26' — svissn. frankar .. — 146.40 — lírur ................ — 39-00 — finsk mörk .......... — 9.93 — pesetar ............. — 61.97 — gyllini .............. — 303.82 — tékkósl. krónur .. — 18.98 — sænskar krónur .. — H4-3Ó — norskar krónur .. — 111.44 — danskar krónur . -— 100.00 Sjómannakveðja. FB. 5. sept. Erum á leiö til Þýskalands. Vel- líöan. Kveöjur til vina og vanda- r.ianna. Skipverjar á Gylli. KjOtrerðið. Sem svar viö grein í dagbl. Vísi í dag, meö yfirskriftinni „Kjöt- veröiö. Athugasemd ogfyrirspurn“, vildi eg leyfa mér aö taka fram eítirfarandi: Síöan Kjötverölagsnefnd ákvaö verö á nýju dilkakjöti frá og meö 1. þ. m., hefir Sláturfélag Suöur- lands aöeins selt kjöt í heildsölu frá sláturhúsi sínu hér í bænum, fyrir hiö ákveðna verö, kr. 1,40 hvert kgr. Frá sama tíma ákvað Kjötverö- lagsnefnd aö smásöluálagning mætti ekki fara fram úr 20% af beildsöluveröi kjötsins og hafa smásölubúðir félagsins síöan —- í samráöi viö nefndina — selt súpu- kjöt fyrir kr. 1,65 og læri fyrir kr. 1,75 hvert kgr. Heföi „Heimilisfaðir“ keypt kjöt hjá félaginu eða fengið áreiðan- legar heimildir fyrir því, aö það seldi kjöt fyrir annað verö en hér er greint, var ástæða fyrir hann aö gera það aö umtalsefni, en upp- lýsingar seni han'n telur sig hafa fengiö hjá einhverri ónafngreindri persónu í síma •— einhverjum af þrem línum, sem til skiftis geta staðiö í sambandi við 9 talfæri i hinum ýmsu starfsdeildum fé- lagsins — sýnist varla umtalsvert. Reykjavík, 5. sept. 1934. H. Bergs. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. S.S. „HEKLfl“ verður í Barcelona kringum 25. ]i. m. og tekur flutning beint til Reykjavíkur. Ef nægur flutuingur fæst kemur skipið einnig við i Valencia, Almeria og Malaga. S.s. „KATLA“ tekur vörur i Genoa kringum 25. þ. m. og í Livorno þ. 27. Þeir, seni vildu senda vörur með skipunum, eru vinsamleg- ast beðnir að tilkynna flutning sem fyrst til Faaberg & Jakobsson. Húsgapameistarar þeir, sem liafa nemendur, er gera eiga prófsmíði i haust, til- kynni það til undirritaðs fyrir mánudagskveld næstkomandi. Friörik Þorsteinsson. Hitt og þetta, —0— Henry T. Rainey, forseti fulltrúadeildar þjóöþings Bandaríkjanna, lést í St. Louis þ. 19. f. m., tæplega 74 ára að aldri. Hann var einn af helstu mönnum demokratiska flokksins og meöal kunnustu stjórnmálamanna Banda- rikjanna. Atvinnuleysingjar í Vínarborg. eru taldir vera um 250.000 talsins um þessar mundir. Mælt er, aö mikill meiri hluti þeirra sé nas- istar. I JÚTSALA á vecjcjíóðri. 50 afsláttnr gefinn af öllu veggfóðri. Notið þetla fágæla tækifæri. Signrður Kjartansson. Laugaveg 41. inn hennar; liér er Baldursbráin fagurt óræktargras. Eg fékk lykla að kirkjunni, og fann að Víðimýrarkirkja var sú sama, sem Stefán G. Stefánsson hafði verið fermdur i. Kirkjugarður- inn var stækkaður og háu grasi vaxinn, en eg fann samt leiðin sem eg vildi sjá. Glaumbæjarkirkja, scm eg sá við annað tækifæri, er steinhús með liáum lurni, og hin snolr- asta. Eg saknaði Þeirra Péturs postula, og Lúkasar guðspjalla- manns, sem voru á gamla pré- dikunars tólnum; myndirnar urðu ekki skýrðar upp; altaris- taflan fanst mér ekki kirkju- hæf. Gamla ljósakrónan sýndist mér vera þar enn. Hún kastaði prismalitunum niður á kirkju- gólfið þégar sólin skein á ghigg- ann yfir prédikunarstólnum og geislaði helgiblæ um kirkjuna. I Skagafirði þjóta nú bílar á öllum vegum. Gráni minn var orðinn vanur þvi, þegar lion- ur var vikið út af veginum vegna bílanna, að eg snéri hon- um alveg að bílnum sem fram hjá þaut, og lieilsaði með svipu- skaftinu upp að liattbarðinu. Niður á ásnum þaut einn bíllinn fram hjá, og þegar eg lieilsaði glumdi við inni i vagninum: „Sæll, sæll, sælir sælir, húrra!“ — Þetta voru Reykvíkingar, sagði ungfrú Herdis Ólafsdóttir, sem með mér var. Eg lifði tvo daga i leti og ómensku í Álftagerði, þangað til Jónas læknir sótti mig í bíl út að Reynistað. Eg sá mjög eftir því að skilja við alt þetta ást- úðlega fólk, sem eg hafði dvalið hjá og heimsótt í 16—-17 daga. Felix og Eufemía i Húsey, með elsla drengnum sinum, voru með okkur i bílnum út að Seylu og Halldórsstöðum. Hjá Varma- hlið vorum við boðin í skírnar- veislu á Grófargili, en mér var ekki unt að leggja það á þá, sem fluttu mig, að bíða eftir því. Reynistaður. „Fallegf Staðar engið er“. Kirkjan bygð, en bærinn ekki. Reynitrén á leið- um Tristans og ísoldar. Frá því Brandur Iíolbeinsson bjó á Reynistað og Gissur jarl eftir hann, og aftur frá því siðabótin lagði klaustrið niður og fram til þessa dags, hafa oft- ast búið menn á staðnum, sem jöfnuðust við landaðalsmennina i öðrum löndum. Reynistaður er kostajörð. Engjarnar voru áð- ur hinar fegurstu og grasgefn- ustu, 2000 hesta mátti heyja ]iar. „Fallegt Staðar engið er“ sagði eitt skáldið í Skagafirði. Jón á Reynistað hefir bætt það engi svo, að nú mun mega heyja þar 4000 liesta. Eg giska á að hann hafi ferfaldað túnið að ummáli, og bætt það að öðru leyti. Einar umboðsmaður Stef- ánsson keypti fyrst Reynistað úr opinberri eign, og í einstakra manna eign hefir liann verið síðan: Afa Jóns, Sigurðar föður hans og nú Jóns alþingismanns. Á Reynistað er unnið mjög með vélum. Sláttuvélar hafa verið þar þrjár, rakstrarvél ein, og jarðabótaverkfæri af mörg- um tegundum. Hjúum sinum er J. S. sagður hinn besti. Eigandi Reynistaðar er lika kirkjubóndi, og kirkja er þar nýhygð. Með öllu þvi, sem gert liefir verið á Reynistað, hefir verið dregið lengst að byggja upp staðinn sjálfan. „Nú er eg byrjaður á því, en eg ætla að fara mér hægt.“ Eg skildi það svo að hann ætlaði ekki að byggja meira í einu, en svaraði árs ágóða af búinu. Hann sýndi mér leiði þeirra Einars Stefánssonar og Ragn- heiðar Benediklsdóttur. Reyni- staðarbræður, sem úti urðu á

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.