Vísir - 30.10.1934, Síða 3
VISIB
Hinir fyrstn píslar-
vottar skipniagsins.
Hin týndu ljód.
í allan dag hefir lögreglan
veriö á þönuni, við að elta uppi
smábændur úr nágrenni Rvík-
ur, seni flytja mjólk til sölu
bcint til neytenda í bænum.
Hafa þessir inenn óneitanlega
verið leiknir grátt, ineð þvi að
banna þeim þannig að stunda
atvinnu sína, sem bæði þeir
-og aðrir liafa álitið hingað til
alt annað en skaðlega fyrir
þjóðfélagið. Slíkar aðfarir
gagnvart sjálfsbjargarviðleitni
■einstakra manna hafa ekki
þekst áður liér á landi, og er
það vist ný aðferð til að hæta
hag bændastéttarinnar.
Þessi lierferð gegn fátækum
smábændum, sem eru að
bjarga sér á heiðarlegan hátt,
hlýtur að kalla á samúð allra
réttsýnna manna og vekja við-
bjóð og amlstygð á þessu
framferði, sem er eftirlíking
af því vítaverðasta, sem haft
hefir verið i franvmi við smæl-
ingja i sumum einræðislönd-
um. Sennilega mun þetta líka
opna augun á mörgum fvrir
þeim fláttskap, sem kemur
fram í liinu sifelda raupi af
þeirri umhyggju, sem upphafs-
mennirnir þykjast hera fvrir
hinum vinnandi stéttuin og
smælingjum þjóðfélagsins. —
' Auðséð er, að hér er ráðisl á
garðinn ]>ar sem liann er lægst-
ur, þar sem litla mótspyrnu
'iþarf að óttast og ekki verður
mörgum né sterkum að mæta
til eftirmælis, ög er það hvað
íeftir öðru, að i útvarpsfréttum
i kvöld var liælst um, að þess-
Ir naúðulega stöddu menn
hafi orðið að beygja sig fyrir
lögregluvaldinu, og ekki bafi
-nema einn maður þorað að
rísa á móti.
Þessir menn búa á nytjarýr-
um jörðum, sem að mestu leyti
«eru melar og' grjótholt. Jarð-
irnar bera ekki nema litil bú,
<og er fuHhart á, að hægt sé
að framfleyta á þeim heimili.
Það verður því að fara vel með
aflann og ekki sleppa neinu
áækifæri, sem gefst, til að fá
\svo mikið sem hægt er fyrir
hinar litln afurðir, og fyrir það
hefir haldist bygð á þessum
kotum, að góður markaður
hefir verið nærtækur.
Til þess nú að drýgja tekj-
urnar, svo að þeir geti staðið
» straum af útgjöldum heimilis-
ilns, leggja þessir menn það á
sig, að fara á hverjum degi
með afurðir sínar til bæjarins,
nokkuð langan veg, jafnvel
gangandi, til að spara krafta
liestsins og draga úr fóðurþörf
hans. Svona þarf að nýta alt
til hins ýtrasta, þar af leiðandi
»er það ekki furða, þó þá muni
um, að geta selt mjólkina sína
beint til neytenda, og fá þá
liklega upp undir þriðjungi
meira fyrir liana, en þeir geta
fengið, með því að láta hana
i Mjólkurfélagið. Mjólkin, sem
þeir liafa liver um sig, er lík-
lega um 30—40 litrar á dag,
•og er vandi að sjá, að þjóðar-
■ógæfa hljótist af, að þeir fái
að selja þetta sjálfir, og hver
-*vill nú byrja sönginn:
„Svo frjáls vertu móðir
senv vindur á vog“
29. okt. 1934.
Indriði Guðmundnson.
„Sjá, alt er tál“ — svo kvaS hin kalda speki,
,,og kærleikur og' viska er aöeins nöfn,
og lif hvers manns er líkt og skip á reki
uin lagardjúp og finnur aldrei höfn.“
Hin vitra slanga varði grýlur síuar;
eg vissi ei fyr en seinna að hún laug!
Hún spýtti sínu eitri í æöar mínar
og eitriö læsti sig lim hverja taug.
Og myrkur hvíldi yfir alheimsgeimi,
og óðar dó hvert ljós, sem mér var sýnt.
Eu samt var þögnin verst í hjartans heimi:
Eg haföi öllum söngvum mínum týnt!
En loksins kom lnxu kærleiksgy'öjan bjarta,
og kvaddi sér A draumaþingi hljóös.
Þá tók aö vora í táradal míns hjarta
og tendrast heilög glóö hins. fyrsta ljóðs.
Nú var meö gleöi kvödd hin kalda speki
og kærleikstrúnni gengið fljótt á hönd.
í hennar skjóli eg óx aö afli og þreki
og af mér sprengdi hin fornu klakabönd.
Og glaöur henti fanginn fjötrum sínum i
eg' fann og skildi að tilveran er góð.
Þá birti yfir hugarheimi mínum
og hjartað fann á ný sín týndu ljóö.
Grétar Fells.
s*c
| Bæjaríréttir |
9000 00«
Vísir
er sex síður í dag. Sagan,
fréttir af tjóninu vegna ofviðr-
isins nvrðra o. fl. er i aukabíað-
inu.
Veðrið í morgun:
Frost um land alt. í Reykjavík
2 stig, Bolungarvík 4, Akureyri 7.
Skálanesi 4, Vestmannaeyjum 5,
Sandi 2. Kvígindisdal 3, Hesteyri
4, Gjögri 4, Blönduósi 4, Siglu-
nesi o, Fagradal 4, Hólum í Horna-
firði 4, Fagurhólsmvri 5, Reykja-
nesi 3, Færeyjum -j- 1 stig. Mest
frost hér í gær 4 stig, minst -7- o.
Sólskin 6,6 st. — Yfirlit: Há-
þrýstisvæöi yfir Grænlandi. Djúþ
lægö austan viö Jan Mayen á
hreýfingu suður eftir. Horfur:
Suövesturland, Faxaflói: Norðan-
kaldi. Bjartviðri. Breiðafjöröur,
Vestfirðir: Norðan gola. Skýjaö
og litilsháttar snjókoma i nótt,
Norðurland: Vaxandi norðan
kaldi. Dálítil snjókoma. Norðaust-
urlarid, Austfiröir: Allhvass norö-
an. Éljagangur. Suöausturland:
Noröan gola. Bjartviöri.
Tekið, til sín.
Um það var spurt hér í blað-
inu nýlega hver hann ntundi
vera maðurinn sá, sem kallar
sig „dr. Jónas Jónsson frá Ox-
ford“, ]>egar hann er á flakki
erlendis. Maður þessi liefir uú
gefið sig fram. Jónas frá Hriflu
skýrir frá því í „KoIIutiðindum“
í dag, að við sig muni átt og ber
sig aumlega yfir því, að þetta
skuli hafa komist upp liér
heima. — Hann hefir bersýni-
lega fengið „eitt slæma kastið“,
er þetta vitnaðist. Hitt er ekki
ljóst að svo komnu, livort „líf-
læknirinn“ muni liafa þurft að
fara með hann i „köldu laugina“
að þessu sinni.
Bensínskatturinn.
137 vörubifreiöastjórar. úr
Reykjavík og nágrenni, hafa sent
Alþingi mótmæli gegn hækkun
bcnsinskattsins og skora á það,
að fella hana, þar sein af slíkri
hækkun myndi leiða „hækkaö
vöruverð fyrir alla alþýðu, mink-
ar.di flutninga með bílum og þar
tslensk ástaljód
í skínandi gvltu skinnbandi, eru tilvalin
tækifærisgjöf, og góð bók til eignar.-
Nýkomin í bökaverzlanir.
011
bestu lögin
eru komin
á plötum:
Little man, you’ve had a
busy day.
Isle of Capri! Love! Happy!
Love thy neighbour!
Kiss ine dear!
The prize waltz!
Moonlight is silver! Say it!
With mv eyes wide open
I am Dreaming.
Garioca og fl.
S. R. F. I.
Sálarrannsóknafélag ís-
lands heldur fund, miðviku-
daginn 31. þ. m. kl. S* 1/^
síðd.
Einar H. Kvaran flytur
erindi um kirk julíf, trúarlíf
og sálarrannsóknir.
Umræður á eftir um
framtíðarstörf félagsins.
Óskað að félagsmenn
f jölnienni.
Skírteini handa nýjum
félagsmönnum afgreidd við
innganginn.
Stjórnin.
með meiri atvinnuskort fyrir bíl-
stjóra.“
Níundi fundur
sóknarnefnda og presta hófst
bér í gær og verður lokið á fimtu-
dag. Dagskrá morgundagsins er
sem hér segir: Kl. 10 árd., Morg-
unbænir. Kl. ioyí árd. flytur Jón
Jónsson læknir erindi um kirlcju-
siing i kaþólskum sið hér á landi
Kl. 4 e. h. hefjast umræður um
iivert stefni í trúmálum og siðgæð-
ismálum þjóðarinnar. Frummæl-
andi Sigurbjörn Á. Gislason. Kl.
Syi flytur síra Sigurjón Árnason
erindi um Barth-stefnuna.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss er á útleið. Goöafoss er
í Hamborg. Dettifoss var á leið til
Biönduóss í morgun frá Hvamms-
tanga. Brúarfoss fer frá Leith í
dag. Lagarfoss er i Kaupmanna-
höfn. Selfoss er á leið til Vest-
rnannaeyja frá útlöndum.
Ljóðmæli
eftir dr. Björgu C. Þorláksson
eru nýlega út komin. Fáum mun
hafa verið kunnugt, að þessi mæta
og gáfaða kona hefði fengist við
ljóðagerð. Hún hafði lokið við að
ganga frá þessu ljóðasafni
skömnui áður en hún lést.
Ný skáldsaga
er komin á bókamarkaðinn eftir
Halldór K. Laxness. Útgefandi er
L. P. Briem. Sagan heitir: „Sjálf-
stætt fólk“.
Gengið í dag.
Sterlingspund ........
Dollar................
roo ríkismork ......
• — franskir frankar
— belgur .........
— svissn. frankar .
— lírur ............
— finsk mörk ....
— pesetar ........
— gyllini.........
— tékkósl. krónur .
— sænskar krónur .
— norskar krónur .
— danskar krónur
kr. 22.15
— 448/4
— 179.82
— 29.62
— 104.52
— 146.25
— 38-90
— 9-93
— 62.02
— 303-57
— 19.08
— 114.36
— 111.44
— 100.00
Gullverð
ísl. krónu er nú 49,37, miöað við
frakkneskan franka.
E.s. Lyra
kom hingað i nótt.
Fyá Þórshöfn
á Langanesi er útvarpinu skrif-
að, að fiskafli hafi verið góður í
Best. Ódýrast.
Fegurst — fjölbreyttust,
ódýrust.
Hárspennur. — Húfunælur
o. m. fl. við lægsta verði.
Tersl. Valencia
Laugaveg 65.
Lækningastofa
mín í Pósthússtræti 7 (Reykja-
vikur Apótek), er opin virka
daga kl. 10y2—12 og 1—3. —
Simi 4838, heima 4959.
Páll Sigupdsson.
júli og ágúst í suinar, en vorafli
litill. Haustafli hefir brugðist sak-
ir ógæfta. Aflahæsti trillubáturinn
hafði 200 skpd. eftir sumarið. Afla-
brögð hafa verið öllu lakari á Skál-
um en á Þórshöfn, og sama er að
segja um Gunnólfsvík og Bakka-
fjörð. Fjártaka var með mesta
móti á Þórshöfn. Þar var slátráð
um 7000 fjár. Dilkar voru með rýr-
asta móti.
Hilmir
kom fráTinglandi í nótt.
Háskólafyrirlestur
flytur Mr. Selby í Háskólanum
i kveld kl. 8, um Shakespeare.
Ollum heimill aögangur.
Ársritið Hlín
18. árg. er komið út fyrir árið
í ár, auðugt og f jölbreytt að vanda.
Hlín er eitt af þeirn ritum sem
eg ávalt hlakka til að lesa, því að
samhliða því sem hún er fjölbreytt
og fræðandi, þá er hún alþýðlegt
rit, skemtileg aflestrar og blærinn
þannig að efnið hefir betrandi á-
hrif á lesendurna. Annars finst
mér furðu gegna hvað rit þetta
er selt ódýrt, eða aðeins 1 kr. ár-
gangurinn með vefnaðarbók. Is-
Naglalakk
gerir neglur yðar gljáandi
og útlitsfagrar. AMANTI
naglalakk endist lengi og
er því ódýrt í notkun.
AMANTI REMOVER er ó-
viðjafnanlegur til þess að
hreinsa neglurnar undir
lakkið.
Heildsölubirgðir
H. Úlaf88on & Bernbðft.
Spaðsaltaða
diIkakjOtið
í heilum og hálfum tunn-
um frá Amarstapa, Flatey
og Hvammstanga hefi eg
enn fyrirliggjandi.
Er þetta alt fyrirtaks
gott og vandað kjöt.
Kr. Ó. Skagfjörð.
Sími 3647.
lenskar konur og kvenþjóð í heild!
Gerist áskrifendur að Hlin! Kaup-
ið Hlín! Margir karlmenn eru á-
skrifendur að Hljn og kaupa hana
en þurfa að verða fleiri.
B. F. M.
S. R. F. í.
Sálarrannsóknafélag íslands
heldur fund miðvikudag 31. þ. m.
kl. 8)4 e. h. E. H. Kvaran skáld
flytur erindi tun kirkjulíf, trúar-
líf og sálarrannsóknir.
Lækningastofa
Páls Sigurðssonar í Pósthús-
stræti 7 (Reykjavíkur apótekij er
opin virka daga kl. 10)4—12 og
1—3. Sjá augl.
E.s. Esja
fer héðan um næstu helgi til
Kaupmannahafnar.