Vísir - 13.01.1935, Síða 2
/
V1 S I R
Atvinnubæturnar
og umhyggja soGialista fyrir alþýðnnni.
Undanfarna daga hefir Al-
þýöuhla?5iS flutl margar grein-
ar um það, hve mikinn áhuga
socialistar liefði fyrir því, að
hæta úr atvinnuleýsisbölinu og
hve tómlátir eða jafnvel fjand-
samlegir sjálfstæðismenn væri
alþýðunni í þvi máli. Blaðið hef-
ir látið svo um mælt, að alþýð-
ílokkurinn mundi heita öllu
sinu áhrifavaldi til þess að bæta
úr þessu böli og látið það í
veðri vaka, að ekki mundi
verða hikað við að beita ofbeldi
til þess að knýja fram kröfur
þeirra. ,
Socialistar gerðu nAþá kröfu,
að lagðar yrði fram af hálfu
bæjarins á þessu ári 500 þús-
undir króna lil atvinnuhóta
gegn 250 þús. kröna úr rikis-
sjóði. Á Alþingi fylgdu social-
istar þvi frám, að bænum yrðí
gert sem allra örðugast fyrrr
um það, að afla fjár i þessu
skyni. Þeir gerðu það með því
að samþykkja það, að tekju-
skatturinn til ríkissjóðs yrði
tvöfaldaður. Sjálfstæðismenn á
þingi fluttu tillögu um það, að
helmingur tekjuskattsins yrði
látinn renna í bæjar- og sveitar-
sjóði, með þeim rökum, að
sveilar- og bæjarfélögum yrði
að öðrum kosti ókleift að
standa straum af atvinnubót-
um. Socialistar á Alþingi
greiddu allir sem einn atkvæði
á móti þessari tillögu. — Jakob
Möller bar fram á Alþingi til-
lögu um það, að ríkissjóði yrði
gert að leggja fram fé til at-
vinnubóta að tveim þriðju hlut-
um á móti bæjar- og sveitar-
sjóðum. Socialistar vissu nú
það, að þeir áttu undir högg að
sækja að koma fram kröfum
sínum um atvinnubælur í
Reykjavík, vegna þess að þeir
eru í minni liluta í bæjarstjórn
inni. Þcir hefðu því, ef ‘þeim
var alvara um að koma fram
aukningunni á atvinnubólun-
um, ált að neyta andstöðu sinn-
ar á Alþingi lil þess að tryggja
þá aukningu með því að sam-
þykkja tillögu Jakobs Möller.
En þeir greiddu allir sem einn
atkvæði á móti þeirri tillögu.
Þeir höfðu aðstöðu til þess i
þinginu, að knýja fram kröfur |
sínar, sem stuðningsflokkur
stjómarinnar. Þeir kærðu sig
ekkert um það. I þess stað
kusu þeir að láta „skeika að
sköpuðu“ um það, hvaða kröf-
um þeir gæfi komið fram í
bæjarstjórfi Reykjavíkur þar
sem þeir eru í minni hluta!
Þegar nú hér við bætist, að
socialistar á þingi hafa beinlín-
is stuðlað að því, að gera bæjar-
félögunum það erfiðara en áð-
ur, að standa straum af atvinnu-
bótunum, trúir því þá nokkur
maður, að nokkur raunveruleg
alvara fylgi þessum kröfum
þeirra um auknar atvinnubæt-
ur? — En socialistar hafa með
tvennu móti gert bæjar- og
sveitarfélögum erfiðara fyrir i
þessum efnum, því að ofan á
hina gífurlegu hækkun tekju-
skattsins liefir þvi verið bætt,
að létt hefir verið af rikisstjórn-
inni þeirri skyldu, að útvega
bæjar- og sveitarfélögum lán til
alvinnubóta. í stað þess að
neyta aðstöðu sinnar í þinginu
til að trjrggja aukningu atvinnu-
bótanna, hafa þeir þannig bein-
línis unnið að því gagnstæða.
Á fjárlagaþinginu 1933 krafð-
ist Jón Baldvinsson þess, að ef
tekjuskatturinn yrði hækkaður,
„tvöfaldaður“, þá skyldi 75% af
þeim skalti varið lil atvinnu-
bóta. Þegar Stefán Jóh. Stef-
ánsson var mintur á þelta ú
síðasta hæjarstjórnarfundi i
sambandi við tillögu Jakobs
Möller á síðasta þingi, þá sagði
hann að það væri all öðru máli
að gegna um afstöðu socialista
á síðasta þingi heldur en á þing-
inu 1933. Jón Baldvinsson hefði
verið i andstöðu við stjórnina
á þinginu 1933 og þess vegna
hefði hann getað heimtað 75%
af tekjuskattinum til atvinnu-
bóta. Með öðrum orðum: Af
þvi að Jón Baldvinsson liafði
ekki aðstöðu til að komá' kröfu
sinni fram á þinginu 1933, bar
hann fram jjessa kröfu sína, en
af þvi að socialistar höfðu að-
stöðu til þess að koma fram
kröfum sínum á síðasta þingi,
þá gerðu þeir engar kröfur!
Þetta cr alvaran, sem fylgir
kröfum socialista um auknar
atvinnubætur! Slík er um-
hyggja þeirra fyrir alþýðunni.
Æsingar
íSaar.
London 12. jan. FÚ.
Miklar æsingar eru í Saar í dag,
flokkadrættir miklir og fjölmenni
hvarvetna útiviö. En þaö þykir
eftirtektarvert, hve lítiö hefir orð-
iö af slysum. Þó aö ýmsar smá-
skærur og ryskingar hafi orðið
hingað og þangað, er a'ðeins getið
um einn mann, sem orðið hefir
fyrir alvarlegum meiðslum.
Flokkarnir, sem eigast við í
Saar hafa í dag gefið út síðustu
ávörp sín og hvatningar til kjós-
enda. Ávarp það sem þýska sam-
bandið birti í gær, þar sem öllum
kjósendum, er barist hafa gegn
Hitler var heitið fullkominni fyr-
irgefningu, ef þeir létu af and-
stöðu sinni, hefir haft að minsta
kosti eina eftirtektarverða afleið-
ingu. Maður sem þangað til í gær-
dag hefir verið leiðtogi kommún-
ista í Saar, talaði í gærkveldi í
útvarp frá þýskri stöð, og hvatti
alla áheyrendur sína til að greiða
atkvæði með sameiningu við
Þýskaland. Þetta cru einu póli-
tísku trúarskiftin sem frést hefir
um að vakið hafi eftirtekt.
Konungs-
moröiö enn.
Genf 12. jan. FB.
Ungverska rikisstjórnin hefir
sent ráði jbandalagsins skýrslu um
ráðstafanir þær, sem hún hefir
gera látið, til þess að rannsaka
framkomu þeirra embættismanna
og opinberra starfsmanna, sem á-
sakaðir hafa verið fyrir þátttöku
í undirbúningi morðsins á Alex-
ander konungi í jugoslavíu. —
(United Press).
Ráðstefna
um endurvígbún-
að þjóöverja fyrir-
liuguð.
London 12. jan. FB.
Komið hefir til orða, að (breska
ríkisstjórnin beitti sér fyrir því,
að haldin verði ráðstefna í Lon-
don eða Rómaborg, til þess aö
ræða kröfur Þjóðverja um viður-
kenningu réttinda til endurvigbún-
aðar. Yrði Þjóðverjum, ef af á-
formi þessu verður, boðið að senda
fulltrúa á ráðstefnuna. (United
Press).
AfvopnnoarmáHn.
Þegar búið er aS ganga frá
Saarmálunum, verður
gerð tilraun til þess að
endurvekja afvopnunarráð-
stefnuna.
J’arís 12. jan. FB.
Fullyrt er, samkvæmt áreiðan-
legum heimildum, að Laval sé því
algerlega sainþykkur, að ráð
l)andalágsins taki fullnaðarákvarð-
anir um framtíð- Saar-héraðsins, á
Iþeim fundi, er nú stendur yfir.
Enn fremur er hann sagður hlynt-
ur j)ví, að um leið og Bretar og
Frakkar halda fund sinn i Lon-
don verði unnið að j)vi að koma
því til leiðar, að afvopnunarráð-
stefnan komi saman á ný. (United
Press).
Er Hanptmann
sekor?
Að undanförnu hafa tvö mál
dregið að sér óskerta athygli
manna um allan heim. Annað er
þjóðaratkvæðið í Saar, hitt er
ákæran á hendur Hauptmann
liinum þýska, fyrir að liafa
rænt barni Charles Lindhergh
flugkappa og konu hans og
drepið það. Um barnsránið
sjálft hefir verið skrifað svo
mikið, að ástæðulitið er að rif ja
það alt upp. Það vakti athygli
marina um allan lieim á sínum
tíma, og það hefir Verið mikið
skrifað um það frá því það var
framið og alt til þessa dags og
verður vafalaust mikið rætt enn
um langt skeið. Efni þessarar
greinar er ekki að endursegja
þá sögu alla, heldur að segja
nokkuð frá manni þeim, sem
liggur undir hinni voðalegu
ákæru, að liafa rænt smábami
til fjár og myrt það.
Hver er Hauptmann? Hann
er Þjóðverji, fæddur í Kamenz,
og þegar heimsstyrjöldin braust
út, var hann of ungur til þess
að fara til vígvallanna. Hann
var þá að eins fjórtán ára. En
tveimur árum síðar komst hann
með. Hann var settur í vél-
byssudeild og var í hernum út
Þj'óðaratkvædid í Saap.
fer fram i dag. Um öll lönd
jarðar er úrslitanna beðið með
efllrvænlingu. Niðurstöður
þjóðaratkvæðisins verða senni-
lega ekki kunnar fyr en annað
kveld, en þegar á morgun munu
berast fregnir, sem gefa bend-
ingar um úrslitin. Á úrslitunnm
veltur, að margra hyggju, hvort
unt verður að varðveila friðinn
í álfunni. Uppdrátturinn liér að
ofan sýriir helstu borgir S»ar-
héraðs.
styrjöldina án þcss að særast
svo, að hann lilyti varanlegt
mein af. Að styrjöldinni lok-
inni fór hann aftur til Kamenz.
Þegar heim kom var liann elcki
samur og áður. Hann byrjaði
nú afbrotaferil og hann og
annar piltur, Fritz Petzold,
komust oft í hann krappan, og
voru stundum undir manna
höndum. Gekk svo lil ársins
1923, er Hauptmann komst
íil Ameriku. — Meðal
afbrota þeirra félaga er talið, áð
þeir veittust eitt sinn að tveim-
ur konum, sem voru á förnum
vegi með smábörn í vögnum.
Þeir miðuðu á þær skammbyss-
um sínum og tóku matvæli, sem
])ær höfðu meðferðis, og alla
brauðmiða þeirra, sem tíðkuð-
ust í það mund í Þýskalandi.
Hauptmann var dæmdur í
Þýskalandi i samtals 5 ára og
einnar viku fangelsi, en var
náðaður, hélt svo áfram á sönm
braut og áður og var enn tekinn
höndum, en slapp undan á
flótta, er hann hafði verið að
leikfimi í fangelsisgarði. —
Komst hann til Hamhorgar og
faldi sig í lestum eins Ameríku-
farsins. Hann fanst á leiðinni og
var fluttur heim á nýjan leik.
Önnur tilraunin mishepnaðist.
ToHverðir fundu hann, rétt áð-
ur en skipið, sem liann ætlaði
með, lagði af stað. Hauptmann
stökk útbyrðis og synti í land.
Þriðja tilraunin hepnaðist.
Hauptmann komst til Ney/
Jersey og vann þar um tíma í
litunarverksmiðju. Eigi þarf að
geta þess, að hann komst inn i
Bandaríkin með ólöglegum
hætti. í Néw Jersey og New
York er margt Þjóðverja.
Hauptmann^ eignaðist marga
vini. Hann kyntist stúlku af
þýskum ættum, Önnu Schöff-
ler, afgreiðslustúlku í brauð-
sölubúð i Bronx-hverfi, New
York. — Þau voru gefin saman
og hann vann stöðugt, nú að
trésmíðum, uns kréppan skall á.
Frá því í mars 1932 og þar til
hann var handtekinn hafði hann
að eins haft vinnu dag og dag.
En hann komst vel af. Hann
sagði vinum sínum, að liann
græddi á „spekulationum",
sölu verðbréfa og slíku. En
hann mælti fátt um þetta. Hins-
vegar var hann ræðinn, er
Framtlð Saarbéraðs.
Ráð bandalagsins lekur aö lík—
indum fullnaöapákvöpðun viö-
víkjandi framtíð liéraösins,.
þegap es» úrsíit þjóðaratkivæö-’
isins eru kunn.
* Genf, 12. janúar. — FB.
Ráð þjóðabandalagsins hefir sent öllum íbúum Saarhéraðs-
ins ávarp, og eru þeir hvaítir til þess í ávarpinu, að forðast allar
æsingar og stuðla að því, liver einstakur eftir sinni getu, að alt
geti farið fram með kyrð og spekt á morgun, er þjóðaratkvæðið
fer fram, og eins næstu daga, uns úrslitin eru kunn og ráðið
hefir tekið fullnaðarákvörðun sína viðvíkjandi framtíð héraðs-
rns.
Flogið hefir fyrir, að ráð bandalagsins muni taka fullnaðar-
ákvörðun viðvíkjandi framtíð héraðsins þegar, er fullnaðarúr-
slitin hafa verið kunngerð.
uði. Síðar sendi hann konu sína
lil Þýskalands. Mælt cr, að til-
gangurinn með þvi hafi verið
sá, að fá landvistarleyfi fyrir
hann i Þýskalandi, þannig, að
hann fengi uppgjöf gamlla
saka. Konu hans mishepnaðist
þetta, en móður Hauptmanns,
konu allmjög við aldur, tókst
að koma þessu í framkvæmd.
Alt var undirbúið og Haupt-
mann ætlaði til Þýskalands tií
þess að setjast þar að fyrir fult
og alt.. En áður en hann gat
framkvæmt þetta áfonn var
liann handtekinn og sakaður
um að liafa rænt bami Línd-
berglis og drepið. það. — Nú
fara réttarhöld fram í Fleming-
ton, New Jersey, út af þessari
ákæru. Engu skal um það spáð,
hvernig þcim lyktar, þótt bönd-
in virðist óneitanlega berast að
Hauptmann, eins og ljóst er af
útvarpsfregnunum undanfarna
daga.
ANNA LINDBERGH
me'S John, litla drenginn sinn.
Hánn kvaS likjast mjög Qiarles
litla sem var myrtur.
heimsstyrjöldin bar á góma, að
því er vinir hans segja. Mánuð-
ina eftir að barn Lindberghs
livarf, tók hann mjög mikinn
þált í skemtanalifi, hann fór í
veiðiferð til Maine, síðar í
skemtiför til Florida með konu
sinni. Yoru þau þar þrjá mán-
Landbúnaðarráðherra Belgíu
beiðist lausnar.
Briissel n. jan. — FB.
Cauwelaert, landbúnaSar- og at-
vinnumálaráSherra, hefir beSist
lausnar, vegna árása, sem hann
hefir orSiS fyrir í blöSunum. —
(United ÍPress).