Vísir - 10.04.1935, Page 2
VISIR
Meiri ræktun. - Mein mjúik. -
Meiri atrinna.
Síf Jofrn
Simon
vonlítill um úrslitasam-
komulag í Stresa.
London, 9. apríl. FB.
í ræöu, sem Sir John Simon
flutti í neðri málstofunni í dag',
komst hann svo að orði, að
SIR JOHN SIMON
hann gerði sér eklci vonir mn,
að úrslitasamkomulag næðist á
ráðstefnunni í Stresa. Hann
neitaði að skýra frá því að svo
stöddu livaða ákvarðanir hefði
verið teknar um stefnu þá, sem
fulltrúar Breta ætluðu að fylgja
á ráðstefnunni. (United Press).
Sir John Simon skýrir frá víg-
búnaðarkröfum Þjóðverja.
London io. apríl. FB.
Simon utanríkismálará'Sherra
hefir nú sagt frá einstökum at-
riðum úr viðtali sínu við Hitler í
Berlín á dögunum. M. a. haf'Si
Hitler fari'ð fram á, að viður-
kendur yröi réttur Þjóðverja til
þess að hafa 36 herfylki eða alt
að því 550,000 manna friöartíma-
her, að smálestatala þýska her-
skipaflotans yrði ákveðin 35% af
smálestatölu breska flotans og
loks, að Þjóverjar fengi viöurkent
jafnrétti á við Breta og Frakka
atS því er hernaðarflugvélar snert-
ir. (United Press).
Þýska
píkisstj ópnin
samþykkir að lána Rússum
200 miljónir ríkismarka.
Berlín, 9. apríl. FB.
Þýska ríkisstjórnin hefir und-
irskrifað samning við Rússa
viðvikjandi láni að upphæð
200 milj. rikismarka, til kaupa
á vélum í Þýskalandi. Lánið
verður endurgreitt að nokkuru
í peningum, að nokkuru með
málmgrjóti, aðallega „manga-
nese“. (United Press).
Samkomnlagsnmleitanir
Rnssa og Frakka.
París 10. apríl. FB.
Tilkynt hefir verið, að milli La-
vals utanríkisráðherra og Potem-
kins sendiherra sóvétstjórnarinnar
í París hafi náðst samkomulag,
sem miíSar að því, að Rússar og
Frakkar taki til sérstakrar athug-
unar hvemig gera megi ráöstafan-
ir til þess aö koma í veg fyrir, aö
þjóðirnar viröi ekki 10., 16. og 17.
grein sáttmála þjóðabandalagsins.
Veröur þetta tekiö til nákvæmr-
ar athugunar, þegar Laval innan
skamms fer til Moskwa. (United
Press).
CJtan af landL
Skíðafólk lendir í hrakningum.
Siglufiröi 9. apríl. FÚ.
í fyrradag kl. 14 fóru úr Haga-
nesvík áleiöis hingaö til Siglu-
fjarðar á skíöum Sigríöur Stefáns-
dóttir og Aöalsteinn Gunnlaugs-
son. — Á Siglufjarðarskarði var
ofsaveður og kafaldshríö og
treystu þau sér eigi til Siglufjarö-
ar og ekki heldur til baka vestur
í Fljót. Dimmdi óðum af hríö og
nóttu, og grófu þau sig í fönn
vestan skarðsins og hýrðust þar
til kl. 4 næsta morgun. Veður var
þá betra og lögöu þau af staö til
Siglufjarðar og komu aö Skarö-
dal kl. 7)4 um morguninn en þetta
er tæplega klukkustundar leið. —
Voru þau þrekuð af kulda og
þreytu og dvöldu þar fram til mið-
aftans, og voru síðan flutt á sleða
til bæjarins. Nú hafa þau að mestu
leyti náð sér. Hvorugt hefir kalið
en Aðalsteinn er meiddur í and-
liti eftir skara.
Bæjargjaldkeraembætti.
Á fundi bæjarstjómar Siglu-
fjarðar í gærkveldi var samþykt
aö stofna sérstakt bæjargjaldkera-
embætti frá 1. júní næstkomandi.
Skal gjaldkeri hafa á hendi reikn-
ingshald alt og innheimtu að und-
anskildum hafnargjöldum, sem
verða áfram í höndum bæjar-
fógeta.
Bæjarvinna á Siglufirði.
Kröfu sameiginlegs fundar
Verkamannafélags Siglufjaröar og
Verkakvennafélagsins Óskar, um
að bæjarstjórn hefji nú þegar at-
vinnubótavinnu, var vísað frá með
skírskotun tij fyrri sanfþyktar
bæjarstjórnar, um, að skora á for-
menn fastanefnda að hefja skuli
þá bæjarvinnu, sem nefndirnar
hafa yfir að ráða, undir eins og
tíðarfar leyfir.
Eg Iiefi reynt að fylgjast með
því, sein fram héfir komið oji-
inherlega i mjólkurmálunum.
Og mér liefir ekki getað skilist,
að þar mundi neinnar leiðrétt-
ingar að vænta. Stjórnarliðið
drap allar tillögur í þá átt í
þinginu. Svokallaður forsætis-
ráðherra jióttist mundu geta
lagað ýmsa galla á framkvæmd
mjólkurlaganna, án nýrrar
lagaheimildar. Og svo er að sjá,
sem stöku maður liafi lagt hálf-
gerðan trúnað á það, að hann
liefði einhverjar umbætur 1
huga. En það er valt að treysta
slíku. Hill mun heldur, að liann
ætli sér engu að breyta, því er
máli skiftir cða nokkurt gagn
er að. Hugsanlegt er þó, að hann
hniki einhverju til, en það
verða • þá líklega einhver smá-
vægileg atriði, sem engu máli
skifta frá sjónarmiði bæjarbúa,
frá sjónarmiði neytanda.
Menn geta reitt sig á það, að
mjólkursölunefndin verður eft-
ir sem áður þannig skipuð, að
þar ræður pólitískur (rauður)
meiri hluti. Sveinbjörn klerkur
verður eftir sem áður látinn
dingla í formannssætinu og
Egill að austan látinn sitja kyr
við lilið hans. — Það er ofmikil
trúgirni og ofmikill harnaskap-
ur, að láta sér detta i hug, að
nokkuð verði gert með hag
Reykvíkinga, hag neytandanna
fyrir augum.
Eg vildi nú leyfa mér að beina
þeirri spurningu til bæjarstjórn-
ar, hvað hún hafi hugsað sér að
gera í mjólkurmálinu. Borgar-
arnir virðast eiga fulla heimt-
ingu á því, að stjórnarvöld bæj-
arins láti þetta mál að einhverju
til sín taka. Mér finst það vera
skylda bæjarstjórnarinnar, að
gera alt, sem i hennar valdi
stendur, til þess að bæjarbúar
geti fengið leiðréttingar á þeim
mikla órétti, sem þeir hafa
verið heittir í mjólkurmálun-
um.
Mjólkurframleiðendur liér á
bæjarlandinu hafa orðið fyrir
þungum búsifjum af hálfu
stjórnarvaldanna. Það hefir
verið ráðist á atvinnuveg þeirra
með það takmark fyrir augum,
að leggja liann í rústir. — Þetta
er bein og alveg ótvíræð árás á
hag bæjarfélagsins í heild sinni,
þó að hún beinist að ákveðnum
mönnmn, því að liagur bæjar-
ins er undir því kominn, að at-
vinnuvegirnir blessist og geti
borið sig. Komi rauðliðar því
ætlunarverki sínu í fram-
kvæmd, að eyðileggja mjólkur-
framleiðsluna hér, þá munu
þeir óðara færa sig upp á skaft-
ið, og taka aðrar atvinnugrein-
ir svipuðum tökum. Bæjarbú-
ar og stjórnarvöld bæjarins
verða að gæta þess, að það eru
fjandmenn bæjarins, sem hér
eru að verki, — rauðir
menn, sem ætla sér að kvista
niður alt fjálst atvinnulíf í þess-
um bæ smám saman, eftir þvi
sem þeir hafa aðstöðu til og
bolmagn. —
-—o—
Eins og allir vita, er nú hið
mesta atvinnuleysi liér í bæn-
um. Atvinnuleysið er að verða
hreinasta bæjarböl, og það eru,
því miður, litlar horfur á þvi,
að úr slíku böli verði bætt
nema með því, að auka til muna
þann atvinnurekstur sem fyrir
er eða taka upp nýjar atvinnu-
greinir. —
Væri nú ekki rétt að hefjast
handa um stórum aukna rækt-
un á bæjarlandinu, með það
fyrir augum, að auka atvinnuna
og auka mjólkurframleiðsluna?
— Reykvíkingar eiga að stefna
að því, að framleiða svo mikla
mjólk, að þeir þurfi ekki að
seilast til mjólkurkaupa austur
i sveitir eða upp i Borgarfjörð.
Nærsveitirnar ætti að gela lagt
til þá mjólk, sem Reykvikingar
þurfa á að.halda umfram eigin
framleiðslu. í Mosfellssveit,
Kjalarnesi og Kjós liagar vel til
um ræktun, svo að þaðan ætti
að geta komið gnægð mjólkur.
Það er talið, að bæjarbúa
vanti mjólk úr 1300 kúm, til
þess að vera sjálfum sér nógir.
— Bærinn gæti sluðlað að því
með ýmsu móti, að borgurun-
um yrði kleift að framleiða svo
sem helming þeirrar mjólkur,
áður en mjög langt um liði. —
Eða meira eða .minna, ef tir því
sem til hagaði lijá hændum hér
i nærsveitunum. — Þeirra er
markaðurinn hér í Reykjavík,
að svo miklu leyti, sem fram-
leiðsla bæjarbúa sjálffa hrekk-
ur ekki til.
Það er fullkomin raun hverj-
um manni, að hugsa til þess og
horfa upp á það í aðgerðaleysi,
að rauða liðið ráðist á atvinnu-
greinir höfuðstaðarins og leggi
þær í rústir liverja á fælur ann-
ari. Og það er skylda stjórnar-
valdanna hér — þ. e. bæjar-
stjórnarinnar — að vera þar
dyggilega á verði og hefjast
handa, þegar voði stendur fyrir
dyrum. —
Það er sjálfsagt gott að fara
varlega, rasa ekki fyrir ráð
fram og hugsa sig vel um. —
En líklega væri þó ekki úr vegi,
að bæjarstjórnin rumskaði, áð-
ur en búið er að klæða borgar-
ana úr skyrtunni.
Leikhúsid.
René Fauchois: Varið yður á
málningunni. Gamanleikur í
3 þáttum. Leikstjóri: Gunn-
ar Hansen. Þýðandi: Páll
Skúlason.
Loksins náöi Leikfélagiö sér
niöri á þessu leikári. Nú sýnir það
ágætan gamanleik, sem hefir far-
ið sigurför um álfuna og mun
vafalaust fá hinar bestu viötökur
hér líka. Þó að áhorfendur að vísu
muni sitja skellihlæjandi svo til
sleitulaust gegnum þættina, þá er
leikritið þrátt fyrir allan gáskann
fjarri því að vera alvörulaust.
Þar er sýnt, hvernig skikkanlegir
meðalmenn, sem róla andlaust
gegum tilveruna með seinagangi
brauðstritsins, alt í einu umhverf-
ast og verða að hálfgerðum villi-
dýrum, ef þeir finna þefinn af
peningum og vilja þá komast yfir
þá bæði meö réttu og röngu. Þetta
er ádeila fransks höfundar á gall-
verskt lundarfar; þaö er gert mik-
iö orö á hinni miklu ytri fágun og
kurteisi Frakka, en þeir, sem
kynnast þeim nánar, virðast þeir
í þeim efnum vera rétt eins og
fólk gerist og gengur, en á hitt
minnast fáir, að þeir eru nirflar
meö afbrigðum og einstaklega
peningagjarnir. Það er fyrir þetta,
sem höf. er að draga landa sína
sundur í háðinu í þessu leikriti.
Þaö munu vera færri leikrit,
sem hafa fengið betri meðferð hjá
leikfélaginu en þetta. Frágangur-
inn var í heild sinni ágætur, —
allur mjög jafn og bláþráðalítill.
Þaö eru þau Brynjólfur Jóhann-
esson og Arndís Björnsdóttir, sem
eru aöalpersónurnar, en ekki
Gunnþórunn Halldórsdóttir, eins
og Iofaðj er á götuauglýsingunum.
Brynjólfur hefir hér enn eina ferð-
ina skapað mikið hlutverk, vafa-
laust eitt með bestu hlutverkum
sínum, og eru þau þó orðin mörg
góð hjá honum. Hann er fjörugur
og snarborulegur, og hendist eöli-
lega milli allra geðbrigöa hlut-
verksins. Ungfrú Arndís sýndi
giftingarsjúkt, peningagráðugt,
eigingjarnt, hjartalaust og móöur-
sjúkt stelputrippi, sem gat brugö-
iö sér í alla hami, ei? þó svo, aö
altaf skein í úlfinn undir gærunni.
í þessu hlutverki var það sérstak-
lega leikni hennar og lipurð, sem
kom í ljós. Ungfrú Gunnþórunn
lék gamla, geðprúða og hjartagóða
vinnustúlku mikið vel, en hinir
eölilegu leikhæfileikar Gunnþór-
unnar eru reyndar á öðru sviði,
svo hún gat nú ekki komið bestu
leikkostum sínum við, enda sam-
svaraði hún tæplega þeirri hug-
mynd, sem maður hafði gert sér
um persónuna. Alfred Andrésson,
lék brellinn og léttúðugan málara,
sem er af þeirri gerö, að hann
segir ekki satt nema hann þurfi
þess, og aö hann mundi koma inn
bakdyrameginn, ef honum væri
fleygt út um forstofudyrnar; öllu
þessu náði Alfreð og lék snar-
kvikt og hjólliðugt. Frú Marta
Indriðadóttir lék konu, sem var
upp á sitt besta um aldamótin síð-
ustu, innantóma og tækifærissinn-
aða, og náði ágætlega þeim flótta-
og fláttskaparbrag, sem yfir hlut-
verkinu er. Þóra Borg, Gestur
Pálsson og Valur Gíslason gerðu
litlum hlutverkum góð skil; voru
þau Þóra og Gestur sérstaklega
skemtileg, þegar þau stóðu sam-
;SÍða og lásu upphátt bréf, sem
þau höfðu fengið hvort frá öðru,
en gerfið á Val var prýðilegt.
Leikur Þorsteins O. Stephensen
bar vott um ágætan skilning á
hlutverkinu, en það var farið með
það fullþungt og hátíðlega, og það
vantaði alveg í það þá gallversku
ákefð, sem er í öllum Frökkum,
jafnvel þótt alvörumenn séu; Leik-
ur hans stakk því eilítið í stúf, en
alls ekki svo að sakaði.
Leikstjórnin virðist hafa farið
Gunnari Hansen prýðilega úr
hendi, og þýðingin hjá Páli Skúla-
syni var sæmilega liðug, enda þótt
skorti nokkuð á það í fyrsta þætti,
ef má marka eyrað.
Um leikskrána verður að geta
þess, að prófarkalesturinn á henni
er hneykslanlegur. Um grein
Bjarna Guðmundssonar um leik-
hátíðina í Moskva, er það að segja,
að hún er mjög ósamboðin því,
sem hún er að lýsa; hugsanir þær,
sem fram eru settar standa oft
skakt af sér hverjar við aðra og
höf. er svo nálægt að vera
óskrifandi, eða kastar svo til
verksins höndunum, að það á ekk-
ert að sjást eftir hann á prenti,
nema hann geri betur. Það morar
af dæmum þess i greininni, enda
þótt slept sé að tilgreina dæmi hér.
Mín vegna má hver maður hafa
hvaða pólitíska skoðun sem hann
vill og þá líka vera kommúnisti,
enda vil eg fá að hafa mína skoð-
un í friði, en það er alveg tilefnis-
laust og einstaklega smekklaust af
höf. að þurfa að viðra það í þess-
ari grein, að hann sé kommúnisti,
með því að kalla forstjóra barna-
leikhússins í Moskva „fél.“ Nata-
lía Sats; alt verður að vera á rétt-
um stað og réttri stundu, og slíkt
líka. Það skortir ekki tækifærin
sem við eiga, til að koma slíku
á loft.
Það er ekki efamál, að leikfélag-
ið hefir að þessu sinni hitt smekk
almennings, og að þar muni verða
fult hús kveld eftir kveld, ef inn-
flúensan skreppur þar ekki fyrir.
G. J.
Grets Llnck Scheving og
Öskar G. Scheving.
—o—
Sýning þeirra hjóna á Hverfis-
göu 4, sem verður opin um nokk-
urn tíma, hefir vakið eftirtekt
þeirra, sem þangað hafa komið.
Við, sem þekkjmn Scheving og
höfum fylgst með honuin á skól-
um erlendis undrumst j)aö ekki, að
frá honum komi góð verk til gleði
þeim, er listum unna.
Snenuna bar á persónulegum
skilningi hjá houm á viðfangsefn-
unum og löngun eftir að færa sér
í nyt reynslu annara og jiekkingu.
Hann er j>ví mentaður rnálari og
hæfileikum gæddur.
Það sem þau hjónin sýna Reyk-
víkingum í þetta sinn, er næsta ó-
vanalegt hér á landi og getur ver-
ið að sumir eigi í fljótu bragði
erfitt með að átta sig á svo ein-
kennilega máluðum myndum. En
j)ví fjölbreyttari sem málverka-
sýningar listamanna eru, því meiri
ánægja og hressing er að því að
koma og sjá þær. Og þessa sýn-
ingu ættu sem flestir að skoða,
því hún örfar til áhuga og dáða,
eins og öll góð list gerir.
Sv. Þ.
Föstuguðsþjónustur í kveld:
í dómkirkjunni: Kl. 8)4, síra
Bjarni Jónsson.
í fríkirkjunni: Kl. 8)4, síra
Árni Sigurðsson.
í fríkirkjunni í Hafnarfirði: Kl..
8)4, sira Jón Auðuns.
Veðrið í morgun:
í Reykjavík — 1 stig, Bolungar-
vík — 5, Akureyri — 1, Skála-
nesi o, Vestmannaeyjum 1, Sandi
— 2, Kvígindisdal — 4, Hesteyri
— 6, Gjögri — 5, Blönduósi — 3,
Siglunesi -j- 5, Grímsey — 3, Rauf-
arhöfn — 1, Skálum —• 1, Fagra-
dal — 1, Hólum í Hornafirði 3,
Fagurhólsmýri 5, Reykjanesi — 2,
Færeyjum 3 stig. Mestur hiti hér
i gær 4 stig, mest frost 2 stig.
Sólskin 13,5 st. Yfirlit: Alldjúp
lægð við vesturströnd Skotlands á
liægri hreyfingu norðausur eftir.
Horfur: Suðvesturland, Faxaflóí,
Breiðafjörður: Hvass norðaustan.
Víðast bjartviðri. Vestfirðir, fforð-
urland, norðausturland, Austfirð-
ir: All hvass norðaustan; Hríðar-
veður. Suðausturland: Allhvass
norðaustan. Víðast úrkomulaust.
Siglfirskir rafvirkjar
hafa samþykt áskorun til ríkis-
stjórnarinnar um að breyta tilhog-
un á ríkiseinkasölu á raftækjum og;
rafefni í samræmi við kröfur raf-
virkja í Reykjavík og Hafnarfirðii
og „viljum vér sérstaklega mót-
mæla, að Sigurður Jónasson verði
forstjóri Einkasölunnar, þar sem
fyrsta skilyrði til að hún verði
starfshæf er að faglærður maður
skipi forstjórastöðuna."
Primula
heitir skip það, sem vei-ður í
iförum milli Reykjavíkur og Leith
í sumar, í stað Botníu, sem Sam-
einaða hefir selt til Englands tih
niðurrifs. — Primula er ekki nýtt
skip, en það hefir verið gert við
það, málað o. s. frv., til notkunar
í þessar ferðir. Ferðum Samein-
aða á yfirstandandi ári er að öðru
leyti líkt hagað og undanfarin ár.
Áætlun yfir skipaferðirnar frá 13.
apríl til ársloka er nú komin út.
Næturlæknir
er í nótt Kristín Ólafsdóttir,
Ingólfsstræti 14. Sími 2161. Næt-
urvörður í Reykjavíkur apótekx og
Lyfjabúðinni Iðunni.