Vísir - 10.04.1935, Síða 3
VÍSIR
Fyrsta sðngskemtun karlakórs iðnaðarmanna
íím undanfarin ár hafa
Reykvíkingar að eins liafi
tveimur karlakórum á að skipa,
sem nú eru báðir þegar lands-
kuhnir orðnir fyrir fágaðan og
fagran söng. ,
En á morgun ber sú nýlimda
við, að nýr kór, Karlakór iðnað-
armanna, kemur fram á sjónar-
sviðið og heldur söngskemtun í
Gamla bíó, undir stjórn Páls
Halldórssonar söngkennara.
Að vísu fengu Reykvíkingar
nokkur kynni af kórnum á
landsmóti íslenskra lcarlakóra
er Iialdið var hér í bænum á
síðastliðnu vori. Frammistaða
hans þar þótti mjög sæmileg, að
glöggra manna dómi.
Enn er kórinn ungur að ár-
um, og þetta er hans fyrsti
sjálfstæði „konsert“ hér í bæn-
um.
Sá sem þetta ritar, sá söng-
skemtunina auglýsta í dagblöð-
unum í dag, og brá sér því til
eins af leiðandi mönnum kórs- '
ins og spurði tiðinda.
— Hvaða fólki hafið þið á að
skipa ?
— Þar ægir saman bygginga-
mönnum og bökurum, múrur-
um og málurum, prenturum og
pjátrurum, en þó er þeim það
eitt sameiginlegt, að alt eru
þetta faglærðir iðnaðarmenn.
— Það má þá ætla, að það
verði ekki alt á sömu bókina
lært, sem þið syngið?
— Ó, nei, ekki öldungis, það
verða meðal annars norsk,
| sænsk og finsk vorljóð, kvöld-
ljóð og ástaljóð, kerlingakvæði
austan úr Slóvakiu, flakkara-
vísur sunnan úr Bæheimi og
rússneskar ræningjadrápur, að
ógleymdum mörgum islenskum
lögum eftir þekta og nýja höf-
unda.
— Búist þið ekki við, að fólk-
ið verði forvitið að hlýða á ykk-
ur á morgun ?
— Um það skal engu spáð, en
vissulega mundi góð aðsókn
verða okkur beggja skauta byr,
og veita okkur aukinn þrótt til
að sigrast á þeim erfiðleikum.
„að hefja sig til flugs“.
Eg beld það væri rétt að
beyra hvað iðnaðarmennirnir
geta í Gamla bió á morgun!
Músikus.
Gengið í dag.
Sterlingspund ........ kr. 22.15
Dollar................ — 4.59^2
100 ríkismörk .......... — 182.94
— franskir frankar . — 30.36
— belgur............. — 77.92
— svissn. frankar .. — 148.72
— lírur .............. — 38.75
— finsk mörk .... , — 9.93
— pesetar ............ — 63.57
— gyllini............. — 309-85
—. tékkósl. krónur .. — 19-53
— sænskar krónur .. — x 14-36
— norskar krónur .. — 111.44
— danskar krónur .. — 100.00
Gullverð
íslenskrar krónu er nú 48,16,
miBaö viö, frakkneskan franka.
Skip Eimskipafélagsins.
Gullfoss er á útleiö. Goöafoss
er væntanlegur kl. 9 í kveld a‘ð
vestan og norðan. Dettifoss er á
leitS til Vestmannaeyja frá Hull.
Brúarfoss fer vestur og noröur
annaö kveld. Selfoss er væntanleg-
ur til Reykjavíkur í kveld frá út-
löndum,
Nýja Bíó
sýnir þessi kveldin þýska tal-
og tónmynd, sem er sögulegs efn-
is. Fjallar hún um æviatriöi Elisa-
betar Austurríkisdrotningar, sem
var fríöleikskona rnikil og naut
mikilla vinsælda, einkum meöal
Ungverja. Elisabet átti viö mikl-
ar raunir aö stríöa og dró sig
í hlé frá Wienarlífinu og var tiö-
ast í Ungverjalandi, í veikindum
sínum og mótlæti. Elisabet var
drepin afpólitískum ofstækis-
manni. — Aöalhlutverkin i
kvikmyndinni eru leikin af
Lil Dagover, sem er einhver hin
fegursta kvikmyndaleikkona, sem
nú er uppi, Paul Otto o. fl.
Gamla Bíó
sýnir aö þessu sinni rnjög eftir-
tektarveröa kvikmynd. Efnið er
tekið beint úr nútíöarlífinu, þegar
kreppan eetlar alt að lama, og
menn eru að bugast. Boðskapur-
inn, sem myndin flytur er, aö menn
eigi aö horfa fram, því að betri
tímar sé í vændum. — Tveir fram-
úrskarandi leikarar hafa aðal-
hlutverkin með höndum, Lionel
Barrymore og Lewis Stone, en
með önnur hlutverk er mjög lag-
lega farið. — Aukamynd: Fróð-
leiksmynd frá írlandi. Æt'ti að
sýna sem mest af slíkum myndum.
Laugavegs automat.
Sá siður hefir verið tekinn upp
víða á Norðurlöndum, að selja til-
búinn mat í skömtum frekar ódýrt
og ganga þær matsölur margar
undir nafninu „Automaf‘, en þeir
sem kaupa bera sjálfir á borð fyr-
ir sig, og er það mjög vinsælt.
Slík matstofa hefir nú verið opn-
uð á Laugaveg 28.
Þvottakvennafél. Freyja
heldur fund í K. R. húsinu ann-
að kveld kl. 9. Félagskonur beön-
ar aö fjöhnenna,
Útvarpsumræður þingmanna.
Eysteins flatrím illa hreif
a-lla skýra granna,
Óli Thors þá yfir sveif
ósjó stjómmálanna.
Stjórnar duggan dýfur tók,
drandu hræöslusköllin —
Vitfirringur skutinn skók,
skullu boöa föllin.
Þjóöar auði fleygöi í fórn;
flutti snauða í böndum,
þessi rauöa strákastjóm,
studd af dauöans höndurn.
Jósep S. Húnfjörð.
Af veiðum
hafa komið Max Pemberton meö
102 tn. lifrar, Kári Sölmundarson
með 93, Þórólfur með 141, Hihnir
með 70 og Tryggvi gamli með 68|
tn.
Hjálpræðisherinn.
Arinað kveld kl. 8J4 verður
haldinn basar. Þar veröur m. a.
númeraborö, fiskipollur, upplestur
og ókeypis kaffi. Söngur og hljóð-
færasláttur. Verið velkomin!
Glímufélagið Ármann
biður 2. fl. karla aö mæta á æf-
ingu í kveld kl. 8. ©
E.s. Esja
var á Húsavík í gærkveldi.
Verslunarmannafél. Reykjavíkur
heldur fund í Kaupþingssalnum
kl. 8ýá í kveld.
Iðnaðarmannafélagið
í Reykjavík. Framhalds aðal-
fundur verður haldinn i baðstof-
unni annaö kveld kl. 8)4. Sjá augl.
Karlakór iðnaðarmanna
efnir til söngskemtunar í Gamla
Bíó annaö kveld kl. 7,15, ekki 4,15,
eins og misprentaðist hér í blaö-
inu í gær.
Á fundi
Kvennadeildar Slysavarnafélags-
ins í kveld sýnir ungfrú Ása Hans-
son listdans, hr. Einar Sigurösson
syngur einsöng. Auk þess eru fé-
lagsmál á dagskránni,
Útvarpið í kveld:
19,00 Tónleikar. 19,10 Veöurfr.
19,20 Þingfréttir. 20,00 Klukku-
sláttur. Fréttir. 20,30 Erindi: Frá
Kartagó (Einar Magnússon menta-
skólakennari). 21,00 Tónleikar:
a) Meistarahljómleikar: Þríleikur
í B-dúr eftir Beethoven; b) End-
urtekin lög í mismunandi meö-
ferð (plötur). 21,55 Föstulestur (í
útvarpssalnum).
Patreksfirði 9. apríl. FÚ.
Togarinn Gylfi
kom af veiðum til Patreksfjarðar í
morgun eftir 6 daga útivist með
105 tunnur lifrar. — Vélbátarnir
Þröstur og Njáll á Patreksfirði
leggja af staö í dag á handfæra-
veiðar og búast við að stunda þær
frá Patreksfirði í sumar.
- 9. apríl. FÚ.
Frá Rafnseyri
sirnar fréttaritari útvarpsins, að
línuveiðarinn Geysir hafi komið til
Bíldudals í gær með 220 skippund
fiskjar, en línuveiðarinn Ármann
kom inn síðastliðinn föstudag með
250 skippund.
Ný kaffi" og matsala.
Laugavegs Automat,
Laugavegi 28.
í gær
var opnuð kaffi- og matsala á Laugavegi 28, þar sem áður var Verslunin Vaðnes.
Til sölu verður: Heitur og kaldur matur í skömtum.
Kaldir búðingar, súpur.
Soðin og spæld egg.
Heit og köld mjólk, kaffi, kökur.
Sigarettur, sælgæti, ávextir.
Öl, gosdrykkir o. fl.
Sú nýung verður höfð á framreiðslunni að gestir fá
sig afgreidda við buffetið og greiða við pöntun og fá
vörurnar þar af leiðandi ódýrari en áður hefir þekst.
Músik allan daginn.
Bordid ódýrtl
Borðið á LADGAVEQ8 AUTOMAT.
ALTAF ÓDÝRASTIRI
Legubekkir .......... 35 krónur.
Útvarpsborð ......... 20 —
Sóffaborð ........... 20 —
Beddar .............. 22 —
Barnarúm ............ 33 —
Barnarúm .......... 22 —
Blómagrindur ......... 4 —
Hnotuborð............ 65 —
og allar aðrar tegundir af húsgögnum í f jölbreyttu, ódýru úrvali.
V'fy^DJrnkirhj-una.
ER ÖDYRUST. -------
Utan af landi.
9. apríl. FÚ.
Úr Rangárvallasýslú.
skrifar fréttaritari útvarpíins (á
Brúnum) s. 1. sunnudag:
Hér með söndum hefir verið
sjóveður undanfarna viku og góð-
ur afli tvo daga; hæstur hhitur á
þriðjudag, 30 fiskar, og á mið-
vikudag 40, en tregur afli síðan.
Til skýringar aflafréttum frá
Rangársöndum lætur hann þess
getið, að þar gangi eingöngú opn-
ir bátar til fiskjar, nieð 8 til 14
manna skipshöfn, og er afla skift
í 11 til 18 staði: Hæfileg hleðsla
er 20 til 25 fiskar í hlut af góð-
um fiski, og þykir það góðnr aíli
þar. En sé fiskur fyrir, og veður
leyfi, er tví- og þrí-róið á dag.
Eyfellingar hafa stofnað, deild í
Mjólkurbúi Flóamanna, og era
þegar gengnir í hana 28 bændur.
Mjólkurflutningur er byrjaður
undan Eyjafjöllum og frá nokkr-
um bændum í Landeyjum; annast
Kaupfélag Hallgeirseyjar á Stór-
ólfshvoli flutningana, og er mjólk
flutt annanhvem dag.
Síldveiðatilraunir Árna Friðriks-
sonar.
Vestmannaeyjum 9. apríl. FÚ.
Árni Friðriksson meistari hefir
látið fréttaritara útvarpsins í Vest-
mannaeyjum í té skýrslu þá er hér
fer á eftir, mn árangur af tilraun-
um þeim, sem fyr er getið, til síld-
veiða við Vestmannaeyjar: Undan-
farna daga hefir varðskipið Þór
fengist við tilraunir til síldveiða í
kring um Vestmannaeyjar með
síldarbotnvörpu. Hefir hann reynt
á svæðinu frá Dyrhólaey alla leið
vestur á Selvogsgrunn, þó einkum
kring um Vestmannaeyjar, á djúpu
og grunnu. Eigi var hægt að
beita vörpunni á sléttum og góð-
um botni, vegna þess að hún var
völtulaus. Engin síld veiddist aust-
an eyja, en síldar varð vart vest-
an Einidrangs, og eins vestur á
Selvogsgrunni, en alt var það
millisíld.
Samkvæmt vísindalegum rann-
sóknum, sem gerðar hafa verið
hér við land á undanfömum ár-
um, bæði af íslendingum sjálfum
og útlendingum, hrygnir síldin í
hlýja sjónum á hörðum botni, og
eftir erlendri reynslu að dæma á
grunnsævi innan við sextugt dýpi.
Gotstöðvar síldarinnar hér við
land eru ekki nákvæmlega kunn-
ar, enda þótt vitað sé með vissu
að þær eru fyrir sunnan og vest-
an landið. Eigi er heldur vitað
hvenær síldin er við botninn, á
meðan á hrygningu stendur, þótt
hklegt megi telja, að það sé helst
á nóttunni.
Árni Friðriksson segir ennfrem-
ur: Þótt þessar byrjunartilraunir,
hafi ekki borið þann árangur, sem
æskilegt hefði verið, er þó langt
frá því, að síldarbotnvarpan sé
að fullu reynd til síktveiða hér við
iand. í fyrsta lagi tekur það tíma
að finna miðin. í öðru lagi verða
tilraunir að skera úr því, hvenær
á sólarhringnum veiðarfærinu eigi
að beita, og loks þarf að vita á
hvaða tirna síldin hrygnir hér við
land.
Samkvæmt reynslu þeirri, sem
fengin er í Norðursjónum, og við-
ar við önnur lönd, má telja líklegft
að síldarbotnvarpan reynist vel hér
við land, enda héfir þegar komið
í ljós við þessar tilraunir, að hún
| er ágæt til þess að veiða þorsk, og
hvaða tegund botnfiska, sem vera
Nýkomid:
YATNSLITAKASSAR, ágætar tegundir, óheyrilega
ódýrir, t. d.: með 7 litum 40 aura, 12 litum 0,75 og
1,00, með 50 litum 2,75.
KRÍTARLITIR og BLÝANTSLITIR, mikið og gott úr-
val. Frá 25 aurum ask.jan.
MÓTUNARLEIR, margar tegundir, frá 1 kr. kassinn.
SKRÚFBLÝANTAR og BLÝANTSYDDARAR, margar
góðar, fallegar og ódýrar tegundir.
IN6ÓLFSHVOU= SÍMI 2]f4»