Vísir - 08.05.1935, Blaðsíða 2
VlSIR
-))Mm™íN]&©[LSí[H1((
^fciðjið kaupmann yðar um
COCO4
BEM5D0RP
Bussum-Holuho
fójUlMÍ&Fp
~€'&C4X%'
BUSSUM - HOLLAND
Það er drýgst og best og því ódýrast.
Fæst í pökkum með 1/8 og 1/4 kg.
og pokum með 5 kg. Heildsolubirgðir.
Sícmi 1234.
Afvopnnnarmálin komin
á dagskrá aftur.
Umræðunum um utanríkismálin á lávarða-
deildinni er nú lokið. Bretar vilja fá Þjóðverja
til þess að taka þátt í samkomulagsumleitun-
um um afvopnun.
London'8. maí. FB.
Umræðunum um utanríkismálin
er nú lokið í lávarðadeildinni. í
lok umræðanna komst jarlinn af
Stanhope, er talaði fyrir hönd rík-
isstjórnarinnar, svo að orði, að
hann vonaðist eftir því, að Hitler
féllist á tillögu, sem Bretastjórn
hefði látið hera upp við þýsku
stjómina í s. 1. viku, en tillagan
var þess efnis, að taka þátt í sam-
komulagsumleitunum um afvopn-
un. Ennfremur sagði jarlinn, að
það væri heppilegt, ef Hitler sæi
sér fært að nefna einhverjar töl-
ur í sambandi við væntanleg víg-
búnaðartakmörk, ef til vill skýra
frá því á hvaða grundvelli og með
hvaða takmörkunum væri hægt að
ganga frá sáttmála um takmörkun
vígbúnaðar í lofti. í ræðulok sagði
jarlinn, að Þjóðverjar hefði gagn-
rýnt ^amningagerðir annara þjóða
til þess að tryggja friðinn. —
„Komi Þýskaland nú með sínar til-
lögur í þeim efnum“, sagði jarl-
inn. (United Press).
Aukinn liö—
safnaður
á Ítalíu.
Italir hafa nú j 2.840.000
menn undir vopnum.
Rómaborg, 7. maí. FB.
Mussolini liefir fyrirskipað
að kveðja nýjar lierdeildir til
vopna. Þegar þær hafa verið
kvaddar saman hafa ítalir
2.840.000 manna lið reiðubúið,
ef til ófriðar kynni að koma.
Rikisstjórnin hefir lilkynt, að
nauðsyn krefji að hafa nægi-
legt lið til taks, nýlendunum í
Afríku til verndar, ef þörf
krefur. — Lessona undir-ný-
lendumálaráðherrann, hefir og
haldið ræðu í fulltrúadeildinni
og ásakað stjórnina í Abessiníu
fyrir að hafa brotið ákvæði
vináttusamnings Italíu og
Abessiniu. (United Press).
Utanríkisráðlierrar
Litla bandalagsins
halda sérstakan fund með
Mússólíni áður en Dónár-
ríkjaráðstefnan fer fram.
Rómaborg, 7. maí. FB.
Frá Feneyjum er símað, að
utanrikismálaráðherrar Litla
Bandalagsins, þ. e. Tékkósló-
vakiu, Júgóslaviu og Rúmeníu
komi til Rómahorgar þ. 25. maí,
til þess að ræða við Mussolini
ýms atriði þeirra mála, sem
tekin verða fjrrir á Dónárríkja-
ráðstefnunni, sem ákveðið hefir
verið að halda í Rómaborg i
,vyrjun júnímánaðar. (United
Þress).
iocíiaísootsíioooíiooíxiísoeíiooot
VISIS KAFFIÐ
gerir alla glaða.
OtiQOOOOOOOtÍOOOOOOOOOOOOOOC
3 miljónir
manna
horfðu á skrúðaksturinn í
London.
, London, 7. maí. FB.
Hátiðahöldin í sambandi við
25 ára rikisstjórnarafmæli
Georgs V. Bretakonungs fóru
fram með meiri viðhöfn og al-
mennari þátttöku og hrifni en
dæmi eru til á Bretlandi. Talið
er, að 3 miljónir manna hafi
horft á skrúðaksturinn til St.
Pauls dómkirkju. — Konungur
hefir i útvarpsræðu þakkað öll-
um, fyrir hönd sína og drotn-
ingarinnar, hollustu þá og ást-
úð, sem hafi kömið svo skýrt
fram þennan dag sem og alt af
endranær. (United Press).
London 7. maí. FÚ.
í kveld heldur Prinsinn af Wales
hátíóaveislu í St. James höllinni,
og eru þar saraan komnir 1200
gestir, þar á meóal konungshjónin
og meðlimir konunglegu fjölskyld-
unnar, gestir frá erlendum ríkjum,
sendiherrar, forsætisráöherrar
samveldislandanna, ráðherrar
bresku stjórnarinnar og þingmenn
og margt annað tigina gesta.
ArnaSaróskir hafa haldið áfram
aS berast konungi í dag, og meö-
al ]>eirra voru ávörp frá flota,
landher og flugher.
Frá sýslufundi Snæfellinga og
Hnappdæla.
Sýslufundi Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu lauk s. 1. laug-
ardagskvöld. Hagur sýslufélags-
ins hefir tekið litlum breyting-
um á árinu. Til sundkenslu voru
veittar 520 kr. sem skiftist'
þannig: lil kenslu við Kolviðar-
neslaug, 120 kr.; en til tveggja
flokka skólabarna, til sund-
námsferðar að Reykliolti,200 kr.
hvorum flokk. Sé annar floklc-
urinn úr Stj'kkishólmi og nær-
sveitum, en hinn úr Ólafsvík og
nærsveitum.
„Umbætur" Hermanns.
Nú er vika liðin af maímánuSi og umbótanna
á mjólkur-samsölunni verður hvergi vart. —
Hvað dvelur?
Ávísanamálið dæmt
í Hæstarétti.
í morgun var kveðinn upp dómur í Hæsta-
rétti í hinu svokallaða ávísanamáli, er höfðað
var gegn Guðmundi Guðmundssyni, aðal-
gjaldkera Landsbankans, aðstoðarmönnum
hans og Eyjólfi Jóhannssyni, framkvæmdar-
stjóra.-
Forsendur dómsins eru svo langt mál, að
ekki eru tiltök að birta þær í dag í heilu lagi.
— Verður því látið nægja að birta dómsorðið
sjálft og fer það hér á eftir:
Eins og menn muna, var frá
því skýrt i blöðunum, um það
leyti’ er þingi . var frestað á
dögunum, að Hermann Jónas-
son, forsætisráðherra, hefði
lofað þvi, að greiða úr mjólkur-
deilunni nú um mánaðamótin.
Hafði ráðherra þessi látið svo
um mælt, að ekki væri þörf
neinna breytinga á mjólkurlög-
unum, þvi að hann hefði það i
liendi sér, að Iaga misfellur þær
allar, sem óneitanlega væri á
fyrirkomulagi samsölunnar.
Nú — þegar þetta er ritað ■,—
er vika liðin af maímánuði og
enn hefir engra breytinga eða
umbóta orðið vart. Alt situr enn
í sama farinu og fæstir munu
búast við því, að nokkuru verði
breytt til batnaðar. —- Fram
vfir mánaðamótin síðustu gerðu
ýmsir ráð fyrir því, að stjórnin
lmgsaði um einhverjar umbæt-
ur, samkvæmt eindregnum ósk-
um og kröfum neytanda og
framleiðanda mjólkurinnar, en
nú þykir flestum borin von, að
úr þeim umbótum verði.
Stjórnin muni sitja við sinn
keip og skella skolleyrunúm við
öllum kröfum, hversu sann-
gjarnar og sjálfsagðar sem þær
eru. —
Sumir þóttust vita með noklc-
urri vissu, að Hermann Jónas-
son mundi í rauninni langa til
þess, að koma mjólkursölumál-
unum í þolanlegt liorf. Hitt væri
auðvitað, að staðið yrði gegn
umbóla-viðleitni lians og mundi
þá koma í Ijós, hvort hann væri
gæddur nægilegum manndómi
til þess að rísa gegn þeim liáska-
legu spillingaröflum, sem hann
ætti við að stríða í herbúðum
sjálfs sín. Kváðust þeir, er
Leikhúsid.
Arnold Ridley: Alt er þá
þrent er. Gamanleikur í 3
þáttum. — Eufemia Waage
þýddi. — Leikstjóri Gunnar
Hansen.
Leikrit ]>etta er bráöspennandi
eins og besta leynilögreglusaga eöa
Bíó-mynd. Þar eru glæpamenn af
ýmsuni gerðurn aö flækjast hver
fyrir öðrum og aö gera hver öörum
skráveifur, og inn í alt saman er
fléttaö lítilli hversdagslegri og
ekki altof viöamikilli ástarsögu.
Leikritið er mjög skemtilegt, enda
þótt 1. þátturinn sé heldur niöur-
þungur, en það er jafn stígandi i
leikritinu, svo að ]iaö man, énginn
eftir því aö leikslokum, hvernig 1.
þáttur var. Annars er það svo um
leikrit, eins og þetta, aö það má
ekki rekja ganginn fyrir mönnum
fyrirfram, því aö alt gamanið er
búiö, ef menn þekkja hann. Þetta
leikrit veröur naumast taliö bók-
mentir, heldur er það nánast iön-
aður, og ágætur iðnaður, en þaö
þarf ekki aö lýsa því, hvaö góður
iðnaður er lélegri list langtum
fremri. Þaö er og ekki laust viö
aö aðalpersóna leikritsins, síra
Arthur Fear, sé gerð af nokkurri
list, hún er aö minsta kosti frá-
bærlega vel gerö og svipar aö
nokkru til síra Brown, sem er aö-
alpersónan i hinum heimsfrægu
sögum Chestertons.
Meðferð leikendanna var meö
einni undantekningu ágæt. Yfir-
höfuö virðist svo, sem allur léttari
leikur fari leikendum vorum betur
úr hendi en sá alvarlegi, hvernig
sem á stendur. Alfred Andrésson
lék prestinn síraFear, er þaö fyrsta
aðalhlutverk, sem hann fer með,
og það er nú enginn vafi á því, að
á þcSsa leið hugsuðu, vita nieð
vissu, að Jónas Jónsson, Svein-
björn klerkur og Egill pð aust-
an mundu skipa Hermanni for-
sætisráðlierra og hliðra hvcrgi
til, og væri fróðlegt að vita,
hvort liann mæti meira ofsa
þéssara manna og löngun til
þess, að halda öllu í sama far-
inu — sama ófremdar-ástand-
inu og verið hefir, eða náléga
einróma óskir og kröfur neyt-
anda mjólkurinnar jafnt sem
framleiðanda. — '
Aðrir voru þeirrar skoðunar
að alt tal H. J. um það, að taka
til greina kröfur þær um um-
bætur, er fram hafa komið,
hefði verið meiningarlausl
þvaður og fals eitt. Fyrir hans
lilstilli sé því engra umbóta að
vænta. Hann finni ekki til
neinnar ábyrgðar og sé ekki
annað en viljalaust og máttlaust
verkfæri í höndum meiri liluta
fyrv. mjólkursölunefndar og
Jónas frá IJriflu. En ömurlegt
væri og raunalegt hlutskifti þess
ráðherra, er flatur lægi undir
slíkri þrenningu.
Það hlýtur að koma í Ijós
mjög bráðlega, liversu forsæt-
isráðhérrann metur orð sín, þau
er hann mælir úr ráðherrastóli,
og skal ekki frekara um það
rætt að sinni. — Má og vera, að
enn sé umbóta að vænta, þó að
frestast hafi um sinn. —
En komi það á daginn, enn
sem fyrr, að sjálfsagðar kröfur
um sæmilega lausn mjólkur-
málsins, sé að engu hafðar, þá
er augljóst, að striðs er óskað
en ekki friðar og samvinnu. —
Og þá er einungis einn sæmileg-
ur kostur fyrir höndum — sá,
að láta hart mæta hörðu.
Alfred muni veröa einn af fremstu
leikurum vorum, og er þegar í
fremstu röð. Brynjólfur Jóhannes-
son brá sér i þetta skifti í spánýj-
an ham gerólíkan þeim, sem hann
hefir verið í áður; hann lék nú
innbrotsþjóf, heldur óþjálan, og
var ágætur. Hann er sem kallað er
„karakter“-leikari og hefir óvenju-
lega vitt sviö. Þaö tekur því ekki
að nefna aöra leikara, því aö um
þá yfði ekki aniiað sagt, en að þeir
gerðii alt vel. Þó verðúr aö geta
þess, að ungfrú Gunnþórunn verö-
ur að koma „nefkittinu“ betur á
sig en hún gerði, því að þaö hatt-
aði mjög, greinilega fyrir þar sem
„nefkíttið“ tók við. Undantaka
verður einn leikandann, ungfrú
Níni Stefánsson, hún lenti alveg
utan viö alt saman og truflaði í
raun réttri allan leikinn með getu-
leysi sínu og ekki síst skapleysi,
eÖa öllu heldur skaplirigöaleysi. í
framsögninni voru alls engin til-
. brigði, þegar hún átti aö verða
hrædd, eða átti að koma á hana
fát, þá var alls ekki hægt aö verða
þess var nema af efni orðanna,
sem runnu þá jafnblælaust og
sviplaust af vörum hennar eins og
endranær. Framburöur ungfrúar-
innar á íslenskunni var og mjög
gallaður, en i því efni á einmitt
leikhúsið að vera til fyrirmyndar.
Ungfrúin hefir nú nokkrum sinn-
um haft hiutverk hjá leikfélaginu
og altaf leyst þau af hendi með
sama hætti. Það ætti þvi nú að
vera fullreynt, að hún er ekki leik-
konuefni, 0g er það ekki last um
neinn. Það ætti þvi heldur ekki
að vera nema tvent til, annað
hvort að hún hætti að leika eða
taki sig á. Hitt verður að vera
ljóst, að snoturt andlit og leikhæfi-
leikar eru sitt hvað.
Leikstjórnin hefir fariö ágæt-
Því dæmist rétt vera:
Ákærði, Sigurður Sigurðsson,
á að vera sýkn af kærum rétt-
vísinnar i máli þessu.
Ákærði, Guðmundur Guð-
mundsson, sæti 3 mánaða ein-
földu fangelsi og ákærði Stein-
grímur Björnsson eins mánað-
ar samskonar fangelsi, en
fresta skal fullnustu refsingar
beggja, og niður skal bún falla
að 5 árum liðnum, ef skilorð
laga nr. 39/1907 verða haldin.
Ákærði, Eyjólfur Jóhanns-
son, greiði 400 króna sekt í rík-
issjóð, og komi í stað sektar-
innar 25 claga einfalt fangelsi,
ef liún gi’eiðist ekki innan 4
vikna frá lögbirtingu dóms
þessa.
Ákvæði hins áfrýjaða dóms
um greiðslu sakarkostnaðar í
héraði eiga að vera óröskuð.
Ákærði, Guðmundur Guð-
mundsson, greiði málsvamar-
laun skipaðs verjanda síns í
hæstarétti, hæstaréttarmála-
flulningsmanns Péturs Magnús-
sonar, 200 krónur.
Ákærði, Steingrímur Björns-
son, greiði málsvarnarlaun
skipaðs vérjanda sins i liæsta-
rétti, liæstaréttarmálflutnings-
marins Lárusar Jóhannessonar,
100 krónur.
Ákærði, Eyjólfur Jóhanns-
sön, greiði málsvarnarlaun
skipaðs verjanda sins fyrir
hæstarétti, hæstaréttarmál-
flutningsmanns Sveinbjarnar
Jónssonar, 200 krónur.
Málsvarnarlaun skipáðs verj-
anda ákærða, Sigurðar Sig-
urðssonar, liæstaréttarmál-
flutningsmanns Stefáns Jó-
hanns Stefánssonar, 100 krón-
ur, greiðist úr ríkissjóði.
Allur anriar áfrýjunarkostn-
aður sakarinnar, þar með tal-
lega úr hendi, og þýöingin á leik-
ritinu var einnig góö. Þó voru þar
nokkur atriði, sem ekki féllu vel.
Á íslensku er ekki hægt að ávarpa
niann „herra prestur" ; prestar eru
hér, sem allir vita, nefndir „sira
N. N.“ í viðtali. Þaö hefði þvi
átt aö segja „sira Arthur“ i hvert
skifti, sem sagt var „herra prest-
ur“. í mæltu máli kemur ])aö og
afkáralega fyrir, ef setningar eru
látnar byrja á sögn, enda þótt
ekkert þyki að því í ritmáli. í töl-
uöu máli byrjar setning nær altaf
á gjöranda setningar. Þaö er aö-
eins bent á þetta, þó aö þaö sé
ekki mikill ljóöur.
Sá sem þetta ritar hefir mestu
ánægju af forngripum, en þó ekki
svo, aö honum þyki gaman að því
aö kaupa sömu leikendaskrána á
þrem leiksýningum í röð. Er það
ekki að reyna fullmikið á þolin-
mæöi og kaupgetu áhorfenda, aö
bjóða þeim sömu leikendaskrána
til kaups hvað eftir annað, ekki
síst þegar sumt, sem í henni stend-
ur, er ekki til frálags?
í þetta sinn er varla að efa, að
leikfélagið hafi hitt á smekk Reyk-
vikinga, og að þeir muni þyrpast
að sjá þessa leiksýningu.
G. J.
in málssóknarlaun skipaðs
sækjanda málsins fyrir hæsta-
rétti, hæstaréttarmálflutnings-
manns Theodórs B. Líndal, 400
krónur, greiðist að % in soli-
dum af ákærðu Guðmundi
Guðmundssyni og Steingrími
Björnssyni, en að % in sólidum
af ákærðu Guðmundi Guð-
mundssyni og Eyjólfi Jólianns-
syni.
Dóminum her að fullnægja
með aðför að lögum.
Sitt á hvad I
-O--
í dagblaði „Tíma“-manna var
nýlega birt viðtal við danska
leikarann Poul Reumert, um
„framtíð íslenskrar leiklistar“.
Hefir fréttaritari blaðsins í
Kliöfn, sem kveðst hafa átt
þelta viðtal við P. R., það eftir
honum, að meðan Islendingar
Iiafi „jafn ágætum manni á að
skipa og Haraldi Björnssyni“,
sé það áþarfi fyrir þá að sækja
útlenda leikkrafta til að stjórna
Þjóðleikhúsinu, því að hann (H.
B.) sé „gæddur ágætum liíéfi-
leikum, bæði sem leikstjóri og
leikari“.
Fyrir nokkurum árum (1929)
kom Poul Reumert hingað og
dvalcli hér um hrið. í viðtölum
við ýmsa menn lét hann þá i
ljós alt aðra skoðun á hajfileik-
um Haralds Björnssonar. M. a.
sagði hann, að H. B. skorti al-
gerlega eðlisgáfu (,,Talent“). —
Hin nýja skoðun P. R. á hæfi-
lcikum Haralds, kemur nokkuð
á óvart þeim mönnum sem
heyrt hafa af hans eigin vörum
hverja skoðun hann hafðí á
hæfileikum hans fyrir fáum
árum, ekki sist vegna þess, að
ekki er kunnugt að P. R. liafi
haft nokkur kyrini af H. B. á
'síðari árum, eða síðan 1929, en
áður liafði hann kynst honum
sem nemanda á leikskóla kgl.
leikhússins i Ivhöfn.
Leikhúsgestur.
| Bæjaríréttir
ixi „HelöafeU“ 5935597-
IV-V. - 2.
Veðrið í morgun:
Hiti í Reykjavík 10 stig, Bol-
ungarvík 9, Akureyri 13, Skála-
nesi 10, Vestmannaeyjum 8, Sandi
9, Kvigindisdal 8, Gjögri 9,
Blönduósi 9, Siglunesi 10, Gríms-
ey 10, Raufarhöfn 13, Fagradal 12,
Hólúm í Hornafiröi 11, Fagur-
hólsmýri 9, Reykjanesi 9, Færeyj-
um 9 stig. Mestur hiti hér í gær
14 stig, minstur 8 stig. Úrkoma
1,5 mm. Sólskin 2,4 st. Yfirlit:
Lægö yfir Grænlandi, en háþrýsti-
svæöi um Bretlandseyjar. Horfur:
Suðvesturland, Faxaflói, Breiða-
fjörður, Vestfiröir: Sunnan og