Vísir


Vísir - 25.05.1935, Qupperneq 2

Vísir - 25.05.1935, Qupperneq 2
VlSIR EF I þér viljið hafa fagran blett við húsið yðar, þá sláið hann með I handsláttuvél. Rád bandalagsins xsáði samkomlagi í morgnn, sem kemnr í veg fyrir milli Itala og Abessiníumanna í nánustu framtíð. — Samkomulag var talið vonlaust í gærkveldi. Genf 25. maí. FB. Ráð Þjóðabandalagsins náði samkomulagi um deilumál ítala og Abessiniumanna snemma í morg- un (laugardag), en svo horfði í gærkveldi, er stjórnmálamennirn- ir loks lögðust til hvíldar eftir langar og erfiðar samkomulags- umleitanir, að vonlaust væri meö öllu, að samkomulagi yrði náð og virtist öllum svo sem ó- friðarblikan út af þessum mál- um mundi enn færast nær. Svo hefir þó ekki farið og virðist þeirri hættu nú afstýrt í allra nán- ustu framtíð. Ráð bandalagsins hefir samþykt tvær ályktanir og samkvæmt þeim fallast báðir að- ilar, þ. e. ítalir og Abessiniumenn á, að gera út um deilumál sín með því að leggja þau í gerð, eins -g ítalsk-abessinski sáttmálinn frá 1928 gerir ráð fyrir, svo og, að hvorug þjóðanna grípi til þeirra ráða að segja hinni stríð á hendur til þess að jafna deilumál. ítalir afturkalla mótmæli gegn því, að tveir fulltrúar frá ríkjum, sem ekki eru aðilar í deilunni, sitji í sáttanefndinni. Ríkisstjórnimar, sem hlut eiga að máli, þ. e. Ítalíu- stjórn og Abessiniustjóm, fallast á, að ef sáttanefndin nær ekki til- gangi sínum, að jafna deiluna að fullu fyrir 25. júlí verði bætt við þriðja hlutlausa fullrúanum í nefndina, til þess að athuga deilu- málin einn mánuð enn, en því næst kemur Þjóðabandalagið sam- an til þess að ræða málin frekara, ef starf nefndarinnar hefir ekki borið þann árangur, að það verði óþarft. (United Press). Genf, 24. xnaí; FB. Samkomulagsumleitanirnar út af deilumálum Abessiniu og Ítalíu halda enn áfram og liorfir mjög illa um lausn deilunnar. Kl. 4,30 stóð enn alt fast og ekki sýnilegt, að neitt mundi gerast, sem leiða mundi til samkomu- lags. (United Press). Mussolini flytur harðorða ræðu. — London í gærkveldi. FÚ. Nokkru eftir klukkan 5 í dag kom svar Mussolini frá Róm, (við tillögum Edens, Lavals og Aloisi). Hann er andvigur öll- um þessum ráðagerðum. Hann gefur í skyn að liann vilji ekki sættast upp á nein afskifti MUSSOLINI. þjóðabandalagsins af málinu. Meðal annars vegna þess, að ekki verði sagt, að samningar milli Italíu og Abessiníu bafi farið út um þúfur, þar sem sáttanefndin Iiafi ekki einu sinni byrjað á starfi sínu. Hins vegar heldur stjórn Abessiníu þvi fram, að samn- ingaumleitanir allar hafi strand- að. Nokkru síðar komu gagn- uppáslungur frá Mússólíni, þar sem algerlega er gengið á snið við þjóðabandalagið. Á meðan þessu fór fram í Genf, flutti Mússólini ræðu yfir fyrverandi hermönnum í Róma- borg, í tilefni af hátíðahöldum til minningar um það, að 20 ár eru liðin síðan Italía gekk í ófriðinn mikla. Mússólíni var hinn harðorðasti í ræðu sinni. Meðal annars komst hann svo að orði: Enginn maður, hvorki á Ítalíu eða i öðrum löndum skal láta sér til hugar koma, að vér verðum elcki varir um oss í öllum ákvörðunum, en þegar ákvörðun er tekin þá munum vér brenna brýrnar að baki oss, og um undanliald verður aldrei að ræða. Orðtak okkar er: „Betri eru 5 dagar eins og Ijón, en 30 dagar eins og sauður“. FisksölusambandiO endurreist. / Stofnfundup liófst í dag. Fundi saltfiskframleiiSenda var haldiíS áfram í gær. Þegar fundur baföi veriö settur tók Thor Thors til máls og1 geröi grein, f. h. kjör- bréfanefndar, fyrir störfum henn- ar, en hún haföi meö höndum það hlutverk, aö rannsaka umboö fisk- framleiöenda og fiskmagn þaö, sem þeir hafi. Atkvæði fundar- rnanna eftir fiskmagni voru 303%. Þegar Thor Thors haföi lokið máli sínu tók atvinnumálaráö- herra til máls, til þess að skýra afstöðu ríkisstjórnarinnar, áður en endanleg ákvöröun væri tekin um stofnun fisksölusambandsins. Lýsti hann yfir því, aö ef stofnaö yröi íélag, sem heföi umráð yfir minst 65% af aflamagni. mundi það \veröa löggilt sem aðalútflytjandi og því veittur réttur til þess aö fara meö 88% af fiskmagninu. Magnús Sigurðsson bankastjóri, forseti fundarins, las því næst upp nöfn allra þeirra, sem fóru meö umboð á fundinum og skippunda- tölu þá er þeir hafa, og bað þá segja já, er væri með stofnun sam- bandsins, en hina nei. Niöurstaðan varð sú, aö þeir er Utan af landi, —°— 24. maí. FÚ. Innbrot í bókaverslun Þ. M. Jónssonar á Akureyri. Aðfaranótt síðastliðins mið- vikudags var brotist inn í bóka- búð Þorsteins M. Jónssonar, og stolið þaðan nokkrum dýrum bókum, og um 30 sjáfblekung- um, og lítilsháttar af peningum. Þegar að morgni handsamaði lögreglan ungan mann frá Ak- urcyri, í skipinu Island, sem þá var á förum frá Akureyri til Siglufjarðar. Meðgekk Iiann innbrotið, og ennfremur nokk- ur önnur innbrot, sem áður höfðu verið framin þar i kaup- staðnum, þar á meðal hjá Þor- steini M. Jónssyni og annað hjá Axel Schiötli kaupmanni, frá sumrinu 1933; þar hafði hann þá tekið 50 krónur í peningum. sögöu já ráða yfir 329.577 skpd. eöa 84% af fiskmagninu, en þeir, sem sögðu nei, ráöa yfir 39.231 skpd. eöa 10%. Þeir, sem 'eigi sóttu fundinn ráöa yfir 23.119 skpd., eða 6%. Lýsti fundarforseti nú yfir því, samkvæmt framangreindu, aö sölusambandiö yrði stofnaö, og bað þá, sem ekki ætluðu aö taka þátt í stofnun þess, aö víkja af fundi. Aö þessu loknu var fundar- niönnum afhent uppkast aö frum- varpi til laga fyrir fisksölusam- bandið, en þriggja manna nefnd haföi samiö það. Kaus fundurinn sjö manna laganefnd að tillögu at- vinnumálaráöherra, til þess aö fjalla um frumvarpið. Kosnir voru Magnús Sigurðsson, bankastjóri, Ólafur Proppé ,framkvæmdarstj., Kristján Einarsson, framkvæmd- arstj., Thor Thors alþm., Helgi Guðmundsson, bankástjóri, Vil- hjálmur Þór, framkvæmdastjóri, og Emil Jónsson, bæjarstjóri. Stofnfundur sambandsins hófst í rnorgun kl. 10 f. h. viðskiftiri á árinu námu 67.9 milj. kr., þar af í Osló 51 milj. kr. — Af þessari upphæð fær ríkið i skatt yfir 26 milj. króna. Alþjóðasam- tök gegn samnings- rofum. Genf, 24. maí. FB. Frakkneska ríkisstjórnin hef- ir lagt fyrir ráð þjóðabandalags- ins tillögur um mjög víðtækar ráðstafanir gegn hverri þeirri þjóð, sem rýfur gerða samn- inga. Meðal annars leggja Frakkar til, að bannaður verði flutningur á vopnum, skotfær- um, hráefnum o. fl., sem til hernaðar þarf, til þeirrar þjóð- ar, sem gerist samningsrofi. — (Uniied Press). Ritfregn. Búfrœdingnrinn, II. ár. Út- gefendur Guðin. Jónsson frá Torfalæk og Þórir Guðimmdsson. Hvanneyri MCXXXV. I fyrra hófu þeir Guðmundur Jónsson frá Torfalæk og Þórir Guðmundsson, kennarar á Hvann- eyri, útgáfu nýs tímarits um bún- a'Öarmál og var því vel tekiÖ. Tíma- rit þetta er ársrit í stóru broti (fjöl- ritað), 92 bls. að stærð að þessu sinni. Um ritið segja útgefendur: „Búfræðingurinn hefur nú göngu sina í annað sinn. Hann er fjöl- breyttari, stærri og vandaðri að frá- gangi en síðastliðið ár, en verðið ])ó hið sama. Framfarirnar má þakka hinum góðu viðtökum, sem ritið átti að fagna síðastl. ár. I. árg. var upphaflega 500 eintök, en var endurprentaður og II. árg. er gefinn út í 1000 eintökum.“ Efni er sem hér segir: Guð- ,mundur Jónsson: Hvernig á að efla íslenskan landbúnað. Ásgeir L. Jónsson: Flóð- og stíflugarðar. N. Dungal: Ormaveiki í sauðfé. Ólaf- ur Sigurðsson: Fiskirækt i ám og vötnum. Guðm. Jónsson: Búreikn- ingar. Halldór Vilhjálmsson: Vot- heysgerð. Guðm. Jónsson í Ljár- skógum: Refarækt I. Klemenz Kristjánsson: Um gildi sáðskiftis í íslenskri jarðrækt. Guðm. Jóns- son: Kornuppskera. Sami: Verk- lega námið við bændaskólana. Sami: Nautgriparæktarfélög. Ný tillaga. Sami: Sigurður Sigurðsson, Jósef Björnsson. Þórir Guðmundsson : A. I.V.-fóðrið. Sami: Um fóðurrann- sóknir. Guðm. Jónsson: Súrstig jarðvegsins. Sami: Tilraunabálkur (A. Innlendar tilraunir: 1. Jarð- yrkjutilraunir, 2. Garðyrkjutilraun- ir. B. Erlendar tilraunir: 1. Gúm- mihjól. 2. Kynsákvörðun kjúk- linga). Sami: Til minnis. Búnaðar- athuganir. Frá Bændaskólanum á Hvanneyri. Nokkrar tölur úr Hag- skýrsium. „Að elska, byggja og treysta á landiði" Halldór Vil- hjálmsson : Ávarp. Guðm. Jónsson: Ný jötugerð í f jósum. Sami: Verð á tilbúnum áburði. Sami: Verð á landbúnaðarverkfærum. Eins og sjá má af yfirlitinu, er ritið hið fjölbreyttasta að efni og höfundarnir eru allir kunnir menn á sviði landljúnaðarmálanna, reynd- ir menn og hollráðir. Þeir, sem láta sig varða framfarir í búnaði, og bændur allir og búaliðar, ætti að kaupa rit þetta og lesa. Verð þess mun vera aðeins 3 krónur. . a. Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllll n Hir r llísis. I = Þeir, sem gerast áskrif- E = endur þessa dagana, fá S E blaðið ókeypis til mánaða- 5 E móta. E niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiMi Karlakðr Reykjavíkor kominn Keim, Karlakór Reykjavíkur kom heim á Gullfossi í morgun, úr frægöarför sinni til Noröurlanda. Hélt kórinn samsöng í Færeyjum á útleið við ágætar undirtektir. í Noregi, Danmörku og Svíþjóð var kórnum tekið hið besta og blaða- ummæli hin lofsamlegustu. Söngur Stefáns Guðmundssonar einsöngfv- ara kórsins var mjög rómaður. — Kórinn hélt samsöng í Vestmanna- eyjum í gær viö húsfylli og al- menna aðdáun. Fjöldi manna var viðstaddur komu kórsins á Gull- fossi í morgun og var honum vel fagnaö. Kórinn efnir til söngskemtunar í Gamla Bíó á morgun kl. 2y2 og verður þar vafalaust húsfyllir. Hæstiréttnr hefir kveðið upp dóm í skaða- bótamáli, sem Steindór Gunn- laugsson lögfr., fyrrverandi full- trúi í stjórnarráöinu höföaði gegn ríkisstjórninni. Hafði honum verið vikiö úr embætti í ráðherratið Jónasar Jónssonar frá Hriflu. — Dómsniðurstaða hæstaréttar fer hér á eftir: Því dæmist rétt vera: Gagnáfrýjandi, fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs, greiöi aöaláfrýj- anda, Steindóri uunnlaugssyni, 10.000 — tíu þúsund — krónur meö 5% ársvöxtum frá 29. júlí 1933 til greiðsludags. Ennfremur endurgreiði gagnáfrýjandi f h. lífeyrissjóðs embættismanna aðal- áfrýjanda samnnlögð iðgjöld þau, er hann hefir greitt í sjóö þennan meö 5% ársvöxtum frá 29. júlí J933 til greiðsludags. Svo greiði gagnáfrýjandi aðaláfrýjanda sam- tals 500 krónur í málskostnað í héraði og fyrir hæstarétti. — Dcminum ber að fullnægja aö viðlagöri aðför aö lögum. 24. maí. FÚ. Bjargsig í Drangey. Frá Siglufirði fór bátur í fyrradag til Drangeyjar, að undirlagi veiðimanna þar, til að sækja fugl og egg. Sextán veiði- menn hafa verið við eggjasig í fjóra sólarhringa; hafa þeir sig- ið í tvennu lagi, en liaft sama sem enga veiði, eða 50 egg i hlut, og mjög fált af fugli. Eru menn hræddir um að Drang- eyjarveiði bregðist, og kenna margir það æluleysi í sjónum. Eimskipið Bjarki. kom í nótt til Siglufjarðar, af vertíðarveiðum frá Suðurlandi. Afli þess var alls 1050 skipjiund. Víneinkasalan norska. Viðskiftin námu 67.9 milj. króna. SANDSTORMARNIR í AMERÍKU. Osló, 24. maí. FB. Reikningar víneinkasölunnar fyrir árið 1934 hafa verið birtir og sýna niðurstöður þeirra, að í grein, sem birlist hér i blað- inu í vetur, var sagt frá hinu göfurlega tjóni, sem sand- eða ryksotrmarnir hafa valdið vest- an hafs. — Á myndinni sjást inenn að verki við að moka sandhrúgum af járnbraut. Töfðust járnbrautarlestir á sumum stöðum vegna þess, að brautarteinarnir liuldust þvkku sandlagi.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.