Vísir - 25.05.1935, Page 4
VlSIR
J2~; • ' í SKÓGI, ER VORAR.
Myndin er tekin í Frederriksberg Have í Danmörku.
Lesid þessa
greixi I
Hún er ekki löng og reynir ekki
mikiS á þolrifin. Hún er skrifuð
til þess aö vekja þá, sem eru sofn-
aðir og ryfja upp fyrir þeim, sem
hafa gleymt. Reyndar ætla eg ekki
;aö minna alla á alt, heldur aöeins
■etit — mintia þá, sem ætla sér aS
fara eitthvaö í sumarfrí í sumar,
á Vatnaskóg. Þess vegna eru þaö
aöallega drengir og aöstandendur
þeirra, sem geta fundið eitthvaö í
þessari grein. sem þeir hafa ekki
athugaö nógu vel áöur:
Nú um nokkur ár hefir K. F. U.
M. haft sumarbúðir í Vatnaskógi
fyrir dretigi, nokkrar vikur á
sumri. Sýnir aðsóknin vinsældir
þess starfs. Fyrst var þaö aðeins
iein vika, en nú eru þaö 4—5 vikur
;á sumri hverju, sem þar eru sam-
:ankomnir 30—50 drengir, aðallega
á. aldrinum 10—16 ára. Öllum
þeim, sem á einhvern hátt er kunn-
ugt starf K. F. U. M., mun líka
vera það Ijóst, að á meðan dreng-
irnir dvelja þar uppfrá, eru þeir,
auk þess sem þdir s’kemta sér,
leika sér og hvíla sig, undir þann-
ig löguðum áhrifum, að jteir geta
ekki annað en komið göfugri og
betri aftur heim til sin. Það er aö
minsta kosti ekki að kenna um-
hverfinu og starfsmönnunum, ef
svo er ekki.
Vatnaskógarstarfið hefir fætt af
sér starfsgrein, sem heitir „Skóg-
.armenn“. Sú grein ber þess vott,
að þeir, sent dvalið hafa upp frá,
bera hlýjan hug til þess staöar.
Einnig ber hún það meö sér, aö
þeir eru margir, sem telja sig hafa
þar lifað sínar bestu stundir, og
vilja, að sem flestir verði slíkrar
gleöi aönjótandi, því aö það er
ekki augnabliks gleði, sem dvölin
þar gefur, heldur er það sú gleöi,
setn varir eilíflega, aðeins ef henni
er haldið við á réttan hátt.
Nú í sumar hafa verið ákveðnir
eftirfarandi flokkar : 5.—11. júlí
vikufl. kostar kr. 20,00 fyrir yngri
en 14 ára, en kr. 25,00 fyrir eldri.
11.—17. júlí vikufl., sama gjald.
17.—26. júlí, 10 daga fl. kostar kr.
25,00 fyrir yngri en 14 ára en kr.
30,00 fyrir eldri.
iFfeiri flokkar verða ekki á-
kveðnir strax, fýrr en vitað verður
um þátttöku. Annars er gert ráð
’fyrir, að bætt verði við flokki i
ágúst. í gjaldinu eru innifaldar
ferðir og fæði — og yfirleitt allur
r.auðsynlegur kostnaður, frá því er
lagt verður af stað héðan og
þangað til kornið verður aftur.
Að svo stöddu, sé eg ekki á-
stæðu til þess að vera að orðlengja
þetta meir, heldur biðja yður að
athuga þetta mál. Ef einhverjir
vilja fá nánari upplýsingar, eða
gefa sig fram til dvalar uppfrá,
verður altaf einhver viðstaddur í
húst K. F. U. M. á hverju þriðju-
dagskveldi kl. 8—9. Annars geta
menn gefið sig fram við Ara
Gíslason, Óðinsgötu 32, Gunnar
Sigurjónsson, Þórsgötu 4, eða Sig-
urð iGuðjónsson, Frakkastíg 12.
Gefið ykkur fram sem fyrst.
M. G.
ANKER ENGELUND
prófessor, sem veitti forstöðu
smíði Litlabeltisbrúarinnar.
Best að angiysa í Vísi.
Skiftafoodar
í þrotabúi Fatagerfiin H/f verð-
ur haldinn á Bæjarþingstofunni
mánudaginn 27. ]>. m. kl. 11 f.
h. Verður lögð fram skrá um
lýstar kröfur í búið og tekin
sérstaklega ályktun um húsa-
leigukröfu á hendur búinu. —
Lögmaðurinn í Reykjavik,
24. maí 1935.
Bjðrn Þðrðarson.
Fossberg áðan inni var
ckki virtist hörgull þar.
Stígnar smiðjur, stálhamrar,
steðjar, meitlar, skrúflyklar.
■tlDSNÆDll
Eitt herbergi og eldhús til
leigu á Njálsgötu 22. (1051
Ódýr sólrik stofa til leigu. —
Uppl. í síma 2054. (1650
Lílið herbergi til leigu á
Lokastíg 11. (1644
2ja til 3ja herbergja íbúð með
nýlísku þægindum til leigu á
Vesturgötu 17. (1643
2 herhergi og aðgangur að
eldhúsi til leigu. Uppl. Frakka-
stíg 26 B. ’ (1640
Forstofustofa með þægind-
um, til leigu. Einnig trésmiða-
verkstæði á móti öðrum á Þórs-
götu 3. Sími 2052, eflir kl. 5.
■ , (1638
Fjögur herbergi og eldliús til
leigu. Þingholtsstræti 5. (1636
Loftlierbergi með eldunar-
plássi, til leigu. — Uppl. i síma
1808. . (1633
Til leigu sólrík stofa með hús-
gögnum, á Öldugötu 27. (1631
Herbergi til leigu, Þórsgötu
17, annari liæð. Dúkkuvagn og
ferðakofforl til sölu á sama
stað. (1630
Sólrík stofa, með laugavatns-
hitun og baði, til leigu. Sími
2509. (1603
Tveggja til þriggja herbergja
íbúð óskast í Skerjafirði nú þeg-
ar eða 1. október. Tilboð, merkt:
„999“ leggist inn á afgr. blaðs-
ins fyrir mánaðamót. (1657
H^ínna
Get bætt við mig mönnumi i
þjónustu, Freyjugötu 15. (1653
Unglingsstúlka óskast
óákveðið. Sérherbergi. Uppl.
Sólvallagötu 45. (1652
Telpa óskast' til að gæta
barns. Uppl. á Ránargötu 13,
uppi. (1647
Ung stúlka óskast í Vonar-
slræli 8, öll þægindi í lmsinu.
Sólríkt sérherbergi. Simi 3968
og 3852 i Ondúla. (1646
Þvæ loft og fleira. Sími: 3154.
(1610
Röskur piltur 15 ára, kunn-
ugur í bænum, óskar eftir starfi
i sumar sem sendisveinn eða við
innheimtu. Uppl. i sima 3726.
(1659
Hraust telpa óskast i létta
vist, gött kaup. Vesturgötu 12.
(1655
rnrnmm
Barnastúlkan ÆSKAN, held-
ur síðasta fund sinn næsta
sunnudag, 16. maí, kl. 1 c. li. —
Áríðandi að félagar mæti. —-
Kosning fulllrúa til Stórstúku-
þings. Margt til skemtunar, til
dæmis: Freymóður Jóhannes-
son með skuggamyndir, upp-
leslur og dans. Gæslunefndin.
(Munið kl. 1). — (1656
Sá, sem vill lána 150 kr. fær
í pant 6 lampa útvarpsgrammó-
fón og nýtt borðstofuborð. —-
Skólavörðustíg 42. (1654
■ .vajatiráwgrifcraa
IKENSIAI
Tónlistaskóla-píanónemandi
getur fengið kenslu í tónfræði
gegn tilsögn í píanóleik. — Til-
boð, merkt: „Gagnkvæm
kensla“ sendist Vísi fyrir 27.
þ. m. (1579
■ LEICAri
Bílskúr til leigu nú þegar á
Klapparstíg 27. (1648
5 manna drossia til sölu. —
Verð 1250 kfónitr! Uþpl. Lauf- ,
ásvgg 19. Ingólfur Guðnason.
Siini 1999. (1645
Af sérstökum ástæðum selst
sem nýr sófi rnjög ódýrt, á
Grettisgötu 2, niðri. (1642
, 2 stoppaðir stólar óskast til
kaups. Uppl. í síma 2896, kl.
12—1 og eftir kl. 8 á kvöldin.
(1639
Belgiskar mublur til sölu
með tækifærisverði. Bárugötu
13. (1637
Til sölu: Stór, steyptur skúr,
á Grjótagötu 14 A. Ágætt smíða-
eða skóverkstæði eða fyrir vöru-
geymslu. Uppl. gefur Gissin-
Gottskálksson, Grjótagötu 14 A.
Heima eftir kl. 6 síðdegis. (1635
Svefnherbergisliúsgögn til
sölu. Uppl. Grettisgötu 40.(1634
Litill bíll, Austin 7, nýmálað-
ur og standsettur, til sölu ef
samið er strax. Til sýnis á Lind-
argötu 30, eftir kl. 7. (1632
Sveinsstykki til sölu, vandað-
m’sbókaskápur með skrifborðs-
klappa. Tækifærisverð. Smíða-
stofan Kiddi & Bensi, Hverfis-
götu 30. 1 (1604
Gott orgel til sölu. — Uppl. í
síma 4682. (1658
iTAPAf) FlNCItl
Gullarmband, tapaðist frá
Tjarnargötu 41 að Sellandsstíg
11, gengin Öldugata. Finnandi
vinsamlega beðinn að skila gegn
fundarlaunum i Tjamargötu
41. (1641
Tapast hefir brún skjala-
taska á Skólavörðustíg. Skilist
á Lokastíg 26. (1629
Mánaðarfæði 60 kr. lausar mál-
tiðir 2 heitir réttir með kaffi
fæst allan daginn. Verð 1 kr.
Buff með lauk og eggjum er
altaf til. — Matstofan, Tryggva-
götu 6. Sími 4274.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN
ÁSTIR OG LAUSUNG. 125
Hún liugsaði ineð sér, að nú væri um að gera
að gæta sín. — Þarna stæði hann — ræning-
inn — og ætlaði að taka barnið liennar. -----
En það skyldi ekki takast. — Iiún hélt stöðugt
á barnslíkinu og þrýsti því að hjarta sér. —
„Nú ræðst hann víst á mig, fanturinn,“ sagði
hún við sjálfa sig. — — „En eg skal verða fyrri
til.“ — Hún leit til dyranna, því að hún var
hrædd um, að þar mundi Caryl taka sér stöðu.
En hann gerði það ckki. — Hún mældi vega-
lengdina með augunum. Það var hægt að kom-
ast út í dyrnar í þrem skrefum. — Og áður en
varði liafði hún tekið undir sig stökk. Hún slapj)
út úr dyrunum, áður en Caryl gæti snúið sér
við. Og' hún skelti hurðinni á eftir sér. Hún
þekti ganginn fyrir utan og rataði liið hesta, þó
að dimt væri. Augnabliki síðar var hún komin
út á götu. Og hún liljóp eins og fætur toguðu —
hljóp með barnslíkið i fanginu og livarf út í
þokuna.
Caryl stóð eftir ráðalaus. Hann var bráð-
ókunnugur á þessum slóðum og kunni engar
leiðir. Hann hafði þvi enga hugmynd um það,
hvert Gemma mundi liafa hlaupið. En þegar
hann kom út á götuna, hitti liann gamla konu,
sem sagði honum, að hún hefði séð unga
stúlku — með barn i fanginu — líklega geð-
veikan aumingja, hlaupa i ákveðna átt, sem
hún tilgreindi. -----Og nú byrjaði eltinga-
leikurinn. Caryl var ekki á þvi að gefast upp.
Iiann slrengdi þess heit, að finna Gemmu,
hvað sem tautaði og þó að liann yrði að elta
hana dag allan til kveldis. —
Hann leitaði og leitaði, og varð einskis vís-
ari. Þegar á daginn leið, rakst hann á ungan
mann og grannvaxinn — fölan og veikluleg-
an. Þessi maður hafði séð til ferða Gemmu
þá skömmu áður. Hann liafði rekist á unga
stúlku — æðisgengna, að því er hann hugði.
— Hún hafði hlaupið við fót og borið ein-
hvern böggul í fanginu. Hann hafði furðað
sig á þessu og séð það síðast til stúlkunnar,
að hún hvarf undir járnbrautarbrú þar skámt
frá, er þeir voru þá staddir. — „Eg gæti sleg-
ist í lið með þér,“ sagði pilturinn, „og leitað
að stúlkunni“.
Caryl gegndi því engu og liinn ungi mað-
ur lagði af stað með honum.
„Eg hefi ekkert þarfara að gera, en að leita
með þér,“ sagði maðurinn livað eftir annað.
„Eg er ljósmyndari og hefi ekkert fyrir stafni
nú sem stendur.“ ,
Caryl geðjaðist ekki að piltinum. Hann var
livergi nærri viss um, að honum gengi greið-
vikni til. Hitt mundi lieldur, að hann væri
hnýsinn og forvitinn og byggist við, að hér
væri eittlivað merkilegt á seiði. — En lion-
um fanst þó ekki rétt, að amast við mannin-
um eða reka liann frá sér. Þessi riáungi var
auðsjáanlega allvel kunnugur i borginni, svo
að ekki var óhugsandi, að hann gæti orðið
að einhverju liði. —< Þokan var líka svo svört,
að eklci sáust liandaskil, auk lieldur meira.
Og þeir rákust hvergi á bifreið, sem hægt
væri að fá leigða. — Þeir spurðu alla, sem
á vegi þeirra urðu, hvort þeir hefði ekki séð
stúlku á hlaupum, en enginn vissi neitt og
sumir önsuðu alls ekki, þó að þeir væri spurð-
ir. — Þeir komu á lögreglustöðina oftar en
einu sinni, ef vera kynni, að þangað liefði
verið gert aðvart um truflaða stúlku, sem
færi um borgina með harnslík i fanginu. En
þar var ekkert að frétta. Enginn vissi neitt.
-----Þeir komust að síma einhversstaðar og
spurðust fyrir á allmörgum sjúkrahúsum. En
enginn kannaðist við neina stúlku, sem hlypi
um strætin með böggul í fanginu.
„Hún fékk „tilfelli“, sem maður segir,“ sagði
myndasmiðurinn við hvern og einn, er þeir
spurðu. — „Slæmt „tileíli“ — þér slciljið það.“
-----Svo gat dottið i hann að lialda dálítinn
ræðustúf um það, hvað þessi „tilfelli“ gæti
verið bölvuð — jafnvel stórhættuleg.---„Eg
skal segja ykkur, að eg sá stúlkukindina í
dag — sá hana eins og eg sé ykkur núna.
Hún hljóp og hljóp og eg sagði við sjálfan
mig: — „Þessi vesalings kona hefir áreiðan-
lega fengið slæmt tilfelli!“
Og áfram var lialdið. — Myndasmiðurinn
sagði við Caryl:
„Eg skal segja þér, kunningi, að eg hefi
það til, að líta svona dálitið heimspekilega
á veraldar-greyið og alt sem þar gerist.“
„Eg er ekki heimspekingur,“ svaraði Caryl,
„En öll höfum við væntanlega okkar sérstöku
skoðanir á tilverunni.“
„Vafalaust,“ sagði myndasmiðurinn. „Þú
hefir áreiðanlega þínar skoðanir, ekki síður
en eg minar. — Og nú skal eg segja þér hvað
mér datt í liug, undireins og eg sá þig. —- Það
var þetta: „Eg þori að veðja um það, að þessi
ungi maður hefir reynt sittlivað í lifinu.“ —-
Svona hugsaði eg og þetta sagði eg í mínu
hjarta. — En eg er nú lika töluvert glöggari
en alment gerist — þó að eg segi sjálfur frá.
— Hvaða skoðun hefir þú nú, til dæmis að
taka, á sjúkrahúsinu í Middlessex?“
„Fari það hölvað!“ sagði Caryl út í loftið.
Honum leiddist þetta mas.
„Já, — fari það bölvað, segi eg líka! Það
er rétta orðið. — Og alveg talað út úr minu
hjarta. Þú svarar eins og þú værir líka brot
úr heimspekingi."
Caryl var orðinn vonlítill. Leitin hafði ekki
borið neinn árangur og altaf var þokan jafn
svört. Það var nú komið fast að hádegi og
hann var engu nær. Hann liafði símað til
Krauts og tilkynt, að liann væri forfallaður
og gæti ekki komið á skrifstofuna. — Hann
var orðinn sárleiður og þreyttur á þessu öllu
saman. Honum fanst liann ganga um heims-
borgina og tilkynna hverju mannsharni, sem
á vegi hans yrði, að kona bróður sins væri