Vísir - 21.06.1935, Side 3
tíma' VcriSa þessir kirkjufundir
taldi* ítí. merkisatburöa í kirkju-
legu tiUiti. I>eir eru hornsteinar,
sem saniTÍniia presta og leik-
maflna ati kristindóms- og menn-
ingarmálum þjóöarinnar á að
livíla á í framtíSinni. Almenning-
ur aetti að láta sig fundahöldin
mikltt skifta og fjölmenna þang-
at). Til hægöarauka er hér birt
heildardagskrá fundarins:
Summdaginn 23. júní. Kl. 11 f.
h.: Gnðsþjónusta í dómkirkjunni.
Séra Eiríkur Brynjólfsson pré-
dikar og séra Garðar Þorsteins-
son þjónar fyrir altari.. Kl. 2 e.
h.: Fundur settur í húsi K. F.
U. M. Framsöguerindi um skipun
prestakalla (Gísli Sveinsson,
sýslum.). Umræður um málið. —
Ki. 4—5 e.h.: Hlé til kaffidrykkju.
Kl. 5—7 e. h. Framhaldsumræður
um s&ipun prestakalla. Nefndar-
kosning. Kl. 8,30 e. h.: Erindi í
dóinkirkjunni um skipun presta-
kalla (síra Friðrik Rafnar).
Mánudaginn 24. júní. Kl. 9,30
f. h.: Morgunbænir. Kl. io—12 f.
h.: Framsöguerindi um samtök og
samvinnu aS kristindómsmálum
(Ásnrandur Guðmundsson há-
skólakennari og Ölafur B. Björns-
son kirkjuráSsma'ður). Umræður
um málið.’Nefndarkosning. Kl. 3
e. h.: Sameiginleg kaffidrykkja.
Kl. 4—7 «. h. Framhaldsumræður
um samtökj og samvinnu a'ð, krist-
indómsmálum. Kl. 8,30 e. h.: Er-
indi í dómkirkjunni um safna'ðar-
fræöslu (Valdimar Snævarr skóla-
stjóri).
Þriðjudaginn 25. júní. Kl. 9,30 f.
h.: Morgunbænir. Kl. 10—12 f. h.:
Nefndir skila tillögum, umræður
um þær og atkvæðagreiðslur. Kl.
1—4 e. h.: Önnur mál, sem fulltrú-
ar vilja, að borin verði upp og
rædd á fundinum. Fundarslit. Sam-
eiginleg kaffidrykkja.
Hæstaréttardðmnr
í máli Ingvars bónda Guð-
mundssonar í Arnarnesi,
sem ákærður hafði verið
fyrir brot á mjólkurlögun-
um (bráðabirgðalög.) og
dæmdur til sekta í undir-
réíti — Hæstiiéttur sýkn-
aði Ingvar.
Meðal þeirra utanbæjarmanna,
sem gerðu tilraunir til þess að
selja hér í bænum ógerilsneydda
mjólk eftir að bannað var að selja
hana hér samkv. mjólkurlögunum,
var Ingvar bóndi Guðmundsson í
Arnarnesi. Tók lögreglan hann
þrívegis, er hann var á leið til
bæjarins með mjólk, sem hann
sagðist ætla að selja þar. Var þá
höfðað mál gegn Ingvari fyrir
brot á mjólkurlögunum (bráðab.l.)
og var hann í undirrétti dæmdur
til þess að greiða 30 kr. i sekt.
Hæstiréttur komst að svofeldri
niðurstöðu:
Athafnir þær, sem kærða er gef-
in sök á í hinum áfrýjaða. dómi,
fela í sér flutning mjólkur hingað
til bæjarins í sölu skyni eða af-
hendingar dagana 29.—30. október
fyrra ár. Með þessu hefir kærði að
vísu gert tilraun til sölu eða af-
hendingar mjólkur hér í bænuni,
en eftir ákvæðinu um stundarsak-
ir í bráöabirgðalögum nr.' 49, 10.
september verður refsing ekki
dæmd fyr en sala hefir farið fram,
og því ekki heimilt að refsa fyrir
tilraun eina saman. Verður þvi að
sýkna kærða af kærum valdstjórn-
arinnar í máli þessu og dæma rík-
issjóð til að greiða allan sakar-
kostnað, bæði í héraði og fyrir
Hæstarétti, þar með talin mál-
flutningslaun skipaðs sækjanda og
verjandá fyrir Hæstarétti, 80 kr.
til hvors.
Kærði hefir krafist þess, að hon-
um verði dæmdar bætur fyrir
mjólk þá, er lÖgregla Reykjavík-
ur tók af honum, og að svo verði
VlSIR
flUIIIHIIfKIIIIIIIIIKIIIIKIIIIIIIiflIIUfillKflHIIKIIIIIIIIIIIIIIIEIIIIIIIIIflllllIllB
Tyról-kvartettinn.
Alþýöusöngvar, jódl, músik
og þjóðdansar.
í Iðnó á simnudagskvöldið kl. 9.
Aðgöngumiðar seldir hjá Eymundsen og við inn-
ganginn.
miiiiniiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiBiiiiiiiiiiiiini
I tveimnr
höfuðhorgum.
— Brot úr ferðasögu —
Eftir Önnu Bjarnardóttur
frá Sauðafelli.
II. í Stokkhólmi.
Hraðlestin bar okkur óðfluga á-
leiðis til Stokkhólms.
Þetta hefir verið viðburðaríkur
dagur. í morgun vorum við í smá-
bæ einum, sem Móra nefnist, og
er sögustaður mikill frá tímum
Gústafs konungs Vasa. Stendur
hann við norðurenda Siljunnar, en
hún er, sem kunnugt er, stórt
stöðuvatn norðarlega í Mið-Svi-
þjóð. Um miðjan daginn vorum
við í Uppsölum, skoðuðum við þar
dómkirkjuna, háskólann og bók-
hlöðuna og fórum til „Gömlu Upp-
sala“. Reyndar höfðu allir dagarn-
ir verið viðburðaríkir og skemti-
legir. Við höfðum ekið í bifreiðum
um Vermaland, sem er eitt af fall-
egustu héruðum Svíþjóðar, og
heimsótt skáldkonuna Selmu Lag-
erlöf. Við höfðum farið með gufu-
báti eftir Siljunni, og ekið í bif-
reiðum um Dalina. Alstaðar hafði
okkur verið vel tekið, nema hvað
mýflugurnar í DÖlunum höfðu
gerst æði nærgöngular; voru þrjár
okkar, þar á meðal sú, sem þessar
línur ritar, teknar að bólgna mjög
á fótum undan mýbiti. En nú, þeg-
ar við erum að nálgast Stokkhólm,
höfuðborg Svíþjóðar, einn hinn
stærsta og fegursta bæ Norður-
landa, þá er ekki verið að hugsa
m mýflugur og' óþægindi af þeim.
Okkur hefir, eins og svo oft áður,
verið fenginn sérstakur vagn, þar
sem við getum verið út af fyrir
okkur og talað saman í næði, og
nú streyma spurningarnar og at-
hugasemdirnar eins og fossafall
af vörum íslensku unglinganna.
Hvernig skyldi okkur verða tekið
í Stokkhólmi ? Hvernig skyldi
hann vera þessi stóri og fallegi
bær? „Ja, að hugsa sér, að bráð-
um erúm við öll komin til Stokk-
hólms“ ! „Ekki. dreymdi mig um
þaö í fyrra um þetta leyti“. Það
er eins og eftirvæntingin magnr
ist við hverja mínútu sem líður,
börnin geta naumast setið kyr eitt
augnablik. Þá allt í einu berst það
eins og eldur í sinu, að á jám-
brautarstöðinni bíði okkar blaða-
menn og ljósmyndarar. Nú er ekki
að tala um að sitja kyr. lengur,
alt er eins og á iði, öll þreyta blás-
in burt, og eftirvæntingin er kom-
in á hæðsta stig. Og þegar lestin
fer að hægja á sér, þá er eins og
loftið sjálft sé þrungið eftirvænt-
ingu. Um leið og lestin nemur
staðar, sjáum við heilan hóp af
fólki á brautarstéttinni, og þar á
meðal ljósmyndarana með vélar
sínar. „Þarna eru þeir þá“ kallar
einhver. En það er eins og öllum
hinum sé varnað máls, og í hátíð-
látið um mælt, að henni hafi verið
óheimilt að taka mjólkina af hon-
um. Á hvoruga þessa kröfu verð-
ur lagður dómur í máli þessu, þeg-
ar af þeirri ástæðu, að þeim, er
þær beinast að, hefir ekki verið
gefið færi á að gæta hagsmuna
sinna, að því leyti.
Því dæmist rétt vera:
Kærði, Ingvar Guðmundsson, á
að vera sýkn af kærum valdstjóm-
arinnar í máli þessu. Allur sakar-
kostnaður, bæði í héraði og fyrir
Hæstarétti, greiðist af ríkissjóði,
þar með talin málflutningslaun
skipaðs sækjanda og verjanda fyr-
ir Hæstarétti, hæstaréttarmála-
flutningsmanna, Sveinbj. Jónsson-
ar og Eggerts Claessen, 80 krón-
ur til hvors.
legri þögn stígum við út á stétt-
iiia með farangur okkar ýmist á
bakinu eða í hendinni. Við erum
ekki fyr komin út en sendimaður
frá hinni sænsku deild Noræna-
félagsins vindur sér að okkur, og
býður okkur velkomin, og biður
okkur að fylgja sér á matsölustað
þar nærlendis, þar sem okkur sé
búinn kvöldverður. En nú eru
blaðamennirnir og ljósmyndararn-
ir komnir, og ekki er auðvelt að
ganga úr greipum þeirra, enda
kærir sig víst enginn um það í
okkar hóp, nema ef vera skyldi
'fararstjórinn, sem verður að svara
mörgum spurningum í senn. Is-
lensku börnin hafa þjappað sér
saman, og ljósmyndaramir ætla að
taka myndimar. Eg renni augun-
um yfir þennan fríða hóp, og
hugsa með mér, að myndin af
þessum íslendingum mundi sóma
sér vel í hvaða blaði heimsins, sem
vera skyldi. Þau þurfa ekki að
hafa fyrir því, börnin, að setja
upp hátíða- eða sparisvip, gleðin
ljómar af hverri ásjónu, og eftir-
væntingin skín út úr hverjum and-
litsdrætti. Ekki er það þeim að
kenna, að myndirnar, sem koma i
blöðunum daginn eftir, eru hart-
nær óþekkjanlegar. En ánægjan
yfir að vera komin til þessarar
frægu borgar er svo mikil, að at-
hugasemdir eins og þessar: „Þetta
á víst að vera ég, og þetta held
ég að sé þú“, geta ekkert skarð
sett í gleði barnanna. Þau vita
hvort sem er, að það eru þau og
engin önnur, og að það verður
ekki af þeim tekið, að þau em
komin í víðlesnustu blöð Svíþjóð-
ar. Nú höldum við af stað í mat-
inn, og fylgir okkur Norrænafé-
lagsmaðurinn að snotm veitinga-
húsi. Þar bíður okkar dúkað borð
og góður matur. Við þvoum okk-
ur, setjumst svo til borðs og tök-
um hressilega til matar okkar. Á
meðan er talað um viðburði dags-
ins og ferðalagið yfirleitt. Er til
dæmis minnst á komu okkar til
Oslóar, og hún borin saman við
komu okkar til Stokhólms i kvöld.
Og þá er það,að börnin láta sér enn
um munn fara þessi orð: „En sá
munur, en sá mikli munur“. Þeg-
ar við höfum matast, koma til
okkar fleiri blaðamenn. Einn
þeirra,. ung og lagleg stúlka, víkur
sér helst að mér. Eg segi herini
meðal annars frá mýbitinu, og
hversu bólgnar við eram á fótum.
Hún pantar þá óðara bíl, og ek-
ur með okkur þrjár, sem verstar
erum, til næturlæknis, en aðalhóp-
\irinn fer með sendimanni Nor-
ræna félagsins þangað, sem við
eigum að gista meðan við dveljum
í Stokkhólmi. Það er ekki skóli,
heldur slökkvistöð. Þar fáum við
tvö stór og þokkaleg herbergi til
afnota. Dyravarðarhjónin eru ljúf-
menskan sjálf. Ekki einungis leyfa
bau okkur að hafa ljós eftir þörf-
um, heldur fáum við heitt vatn og
sápu, hvenær sem við þurfum að
þvo af okkur sokka, kjóltreyjur
eða annað smávegis, sem óhreink-
ast hefir á ferðalaginu. Strokjárn
stendur okkur einnig til boða,
hvenær, sem við þurfum að nota
það.
Dvölin í Stokkhólmi var okkur
til mikillar ánægju. Það var þó eitt
atriði, sem vakti gremju hjá sum-
um okkar, en sársauka hjá öllum,
og það var, að víða í borginni á
ýmsum stórhýsum vora fánar
Norðurlanda dregnir að hún, en
aðeins á einum stað fékk íslenski
fáninn að blakta með.
Okkur var alstaðar vel tekið,
og ætla ég aðeins að minnast á
eitt dæmi upp á það. Kvöld eitt
fórum við kennararnir með bömin
í Tívolí. Þegar þangað kom, fór
fararstjórinn þess á leit við inn-
gönguverðina, að þeir veittu svona
stórum hóp afslátt á inngangseyr-
inum. Þeir ráðguðust um. það við
forstjóra Tívolís, sem þar var nær-
staddur. Hann veitti okkur þegar
í stað helmings afslátt; og þegar
við vorum rétt komin inn í garð-
inn, þá kom hann til okkar, bauð
okkur velkomin, kallar svo á leið-
sögumann og segir honum að
fylgja okkur úm garðinn og sjá
um, að við fengjum að komast
ókeypis að á öllum skemtistöðun-
um, nema hinum tveim dýmstu,
þar vorum við aðeins látin borga
þriðjung aðgangseyris. Eins og
nærri má geta var þetta boð þegið
með þökkum. Og mörg voru þau
blessunarorð, sem féllu í garð for-
stöðumannsins þá um kvöldið. Nú
var farið í „Fjallabrautina“,
„Draugalestina“, ,;Hringekjuna“.
,Stóra hjólið', ,Rafmagnsvagnana‘
o. fl. Fór hrollur um sum börnin,
þegar þau fóru með „Draugalest-
inni“,en engu að síður vom þau
fíkin í að fara með henni í annað
sinn.
Við vorum fáeina daga i Stokk-
hólmi, og skruppum bæði til
Drotningarhólms og til Saltsjö-
baden. Ekki var tekinn hálfur eyr-
ir fyrir okkur í slökkvistöðinni.
Svo kvöddum vð höfuðborg Svía
með söknuði, og óskuðum þess,
að okkur mætti einhverntíma
auðnast að koma þangað áftur.
Hæstaréttardómur
út af kommúnista-óeirðun-
um 7. júlí og 9. nóv. 1932
var kveðinn upp í morgun.
í morgun var í hæstarétti kveð-
inn upp dómur yfir um 20 mönn-
um, som þátt tóku i kommúnista-
óeirðunum, sem urðu hér í bæ þ.
7. júlí og 9. nóvember 1932, en
þó nokkuð sé umliðið eru þeir at-
burðir mönnum enn í fersku minni,
ekki síst hinar hroðalegu aðfarir,
er æstur skríll réðist að fámennri
lögreglu bæjarins, þá er hún að
skipan lögreglustjórans braut sér
veg út úr Góðtemplarahúsinu, sem
hún hafði varið fyrir kommúnist-
um, sem ætluðu að brjótast þang-
að inn til þess að kúga bæjarfull-
trúana til hlýðni með hótunum óg
ofbeldi. Undirréttardómi í máli
þeirra, sem ákærðir voru út af
þessum málum, var áfrýjað til
hæstaréttar og voru þeir dæmdir
frá 30 daga og upp í 6 mánaða
fangelsi við venjulegt fangaviður-
væri. — Meðal hinna dómfeldu eru
ýmsir af helstu forsprökkum
kommúnista, t. d. Einar Olgeirs-
son, Brynj. Bjarnason, Stefán
Pétursson o. fl. Ennfremur ein
kona, Indíaria Garibaldadóttir. —
Þrír hinna ákærðu fengu skilorðs-
bundinn dóm.
Vegna þess hve dómsniðurstað-
an er orðmörg var f jölritun dóms-
ins ekki lokið, er blaðið fór í press-
una. Er eigi hægt að segja ítarlega
frá dóminum að svo komnu.
IO.O.F. 1^U7621872= 9.
l.XX
Veðrið í morgun.
í Reykjavík 12, Bolungarvík 12,
Akureyri 16, Skálanesi 7, Vest-
mannaeyjum 10, Sandi 12, Kvig-
indisdal 13, Hesteyri 12, Gjögri
10, Blönduósi 17, Siglunési 9,
Grímsey 7, Raufarhöfn 7, Skálum
6, Fagradal 12, Papey 7, Hólum í
Hornafiröi 10, Fagurhólsmýri 10,
Reykjanesvita 11. — Méstur hití
hér í gær 1.5 stig, minnstur ii. Úr-
koma 1,0 m. m. Yfirlit: Djúp
lægðarmiðja um 400 km. suðvestur
af Reykjanesi á hreyfingu norð-
vestureftir. Horfur: Suðvestúrland
Faxaflói, Breiðafjörður, Vesffifð-
ir: Suðaustan kaldi. Lítilgháttar
rigning. Norðurland, norðaustur-'
land : Suðáustan gola, Viðast 'úr-
komulaust. Austfirðir, suðaustur-
land : Suðaustan kaldi, þokuloft og
dálítil rigning.
Karlakór K. F. U. M.
syngur i Gamla Bíó í dag kl.
7,15 síðdegis. Kórinn hefir ekki
látið til sín heyra nú um all-langt
skeið, en altaf átt miklum vin-
sældum að fagna og svo mun vafa-
laust enn. Kórinn fer söngför til
Vestur- og Norðurlands 25. þ. m.
— með Gullfossi — og heldur
samsöngva á ísafirði, Siglufirði,
Akureyri, Blönduósi og Sauðár-
króki. ,
Bjami Björnsson
skemtir í Iðnó í kveld kl. 9. —
B. B. hefir haldið margar skemt-
anir að nndanfömu og hafa þær
allar verið vel sóttar, enda hefir
B. B. sérstaklega góða eftirhermu-
hæfileika. Á síðustu skemtun sinni
hermdi hann eftir ýmsum kunnum
þingmönnum og tókust eftirhenn-
urnar yfirleitt ágætlega. Einnig
söng hann gamanvísur o. s. frv.
Húsið var fullskipað. x.
E.s. Esja
fór héðan í strandferð í gær,
suður og austur um land.
B.v. Surprise
var tekinn upp í Slippinn í gær
til eftirlits og viðgerðar.
Móakotsmálið.
í liæstarétti var í morgun
kveðinn upp dómur í liinu svo
nefnda Móakotsmáli. Var Árni
Theódór Pétursson, fyrrverandi
heimiliskennari í Móakoti,
dæmdur í undirrétti til fangels-
isvistar. Hæstiréttur staðfesti
undirréltardóminn. Verjandi
fyrir hæstarétti var Pélur Magn-
ússon, en sækjandi Eggert
Claessen.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Áheit, afhent af Bjarna Helga-
syni, frá Kristínu kr. 3,00. Bestu
þakkir. Ásm. Gestsson.
eru tíðari en í flestum löndum öðr-
um. Nýlega urðu þar stjómar-
dkifti, eins og hermt var í skeyt-
um, Flandin varð að fara frá, en
Bouisson myndaði stjórn, sem
varð mjögjjskammlíf, og gekk því
Jarðarför
Bjöms Rosenkrariz kaupmanns
fer fram á morgun.
Frá ferðanefnd K. R.
Farið verður í Raufarhólshelli á
sunnudag. Lagt af stað frá K. R.-
húsinu kl. 8jý. Hafið með ykkur
vasaljós, ef þið eigið þau.
Nefndin.
Gengið í dag.
Sterlingspund ........ kr. 22.15
Dollar................. —4.50)4
100 rikismörk ......... — 180.96
— franskir frankar . — 29.81
— belgur........ — 76.09'
—• svissn. frankar .. — 147.24
— lírur ......... — 2>7-70
— finsk mörk ..... — 9.93
— pesetar ......... — 62.47
— gyllini......... — 306.10
— tékkósl. krónur .. — 19.18
— sænskar krónur .. — H4.36
— norskar krónur .. — 111,44
— danskar krónur .. — 100.00
G-ullverð
ísl. krónu er nú 49.05.
Nýja Bíó
sýndi í fyrsta sinni í gærkveldi
kvikmynd, sem vakið hefir mikla
eftirtekt erlendis. Heitir hún „La
Bataille" og byggist á skáldsögu
eftir Claude Farrére. Aöalhlut-
verkin hafa á hendi tveir fremstu
kvikmyndaleikarar Frakklands,
Annabella og Charles Boyer og er
leikur þeirra beggja með afbrigð-
uin góður. Sagan í kvikmjmdinni
er mjög áhrifamikil og gefur á-
gætar hugmyndir um þær skoðanir
sem ríkjandi em í ástamálum í
Japan, þjóðrækni Japana o. s. frv.
Efnið er mjög átakanlegt. í kvik-
riiyndinni er sýnd sjóorusta og eft-
ir að hafa séð þann kafla myndar-
innar og raunar fleiri þarf eriginn
að efast um, að Frakkar eru nú
búnir að ná öörum þjóðum á sviði
kvikmyndalistarinnar og geta
framleitt kvikmyndir, sem sam-
liærilegar eru hinum' bestu mynd-
um, sem Þjóðverjar og Banda-
ríkjamenn hafa látiö gera. Kvik-
næst mjög erfiðlega að mynda
stjórn, en loks tókst Laval það. —
Efri hluti myndarinnar er af þing-
húsinu í Paris, en neðri af Flandin
og stjórn hans.
Stjómarskifti í Frakklandi.