Vísir - 19.08.1935, Síða 2
VlSIR
Neyðarrátstafanir.
Síldveiðarnar
glæðast á ný.
Vonir síldarfólksins nyrðra hafa glæðst aftur
og hætti mikill meiri hluti þess við að fara
heim á Dettifossi, eins og til stóð.
SvlpÍF.
—O—
t \
Sögunnar hérna ég svipi finn
við sólarlag liljóðlega reika ....
Minningar Ijúfar mér klappa á kinn,
kringum sólbrendan vanga minn
eins og laufvindar leika. ,
Eyðimörk döpur, þin yglibrún
örfar minn liug til ljóða.
Töfrar mig hverfleikans ramma rún;
reikulli sálu opnar hún
draumanna heiminn hljóða.
Sandur, hve dýrðlega sögu þú átt,
og sorg þín mér unun vekur,
því fortíðar heyri ég lijartaslátt
og horfinna kynslóða andardrátt,
er andblær þinn andvörp lekur!
Hér seiði ég fram, það, sem saga þin á:
svipi liðinna ára.
Leyf mér, drottinn, að dreyma og þrá.
Drottinn, taktu mér aldrei frá
söknuðinn ljúfa og sára.
Grétar Fells.
Þríveldaráðstefnan
er farin út um þúfur.
Mussoltni liafnap samkomulags-
tillögum Breta og Frakka.
Heyrst hefir, að Frakkar ætli að gera tilraun
til þess að finna samkomulagsgrundvöll, en
menn hafa enga trú á, að það takist. Fulltrú-
ar Breta farnir heimleiðis. — Abessinia mun
fara fram á, að fjárhags- og viðskiftalegum
þvingunarráðstöfunum verði beitt til þess að
___ ítalir neyðist til þess að hætta við að herja á
Abessiniu.
París, 19. ágúst. FB.
Mussolini hefir neitað að fall-
ast á samkomulagstillögur
Breta og Frakka. Vegna svars
þessa hefir þríveldaráðstefnan
raunverulega farið út um þúf-
ur og það er ekki búist við, að
þríveldin geri frekari tilraunir
á sameiginlegum fundi til þess
að koma á samkomulagi. Að
afstöðnum þríveldafundi síð-
degis í gær var gefin út opinber
yfirlýsing þess efnis að þríveld-
unum hefði ekki tekist að finna
grundvöll til lausnar deilum
Ítalíu og Abessiniu og hafi nýir
erfiðleikar í því sambandi kom-
ið til sögunnar og verði því
ekki hægt að hverfa að öðrU
ráði en því, að fresta ráðstefn-
unni um óákveðinn tíma. Frek-
ari athuganir eiga þó fram að
fara af ríkisstjórnum hlutaðeig-
andi ríkja, til þess í lengstu lög
að halda áfram athugunum og
umræðum, sem kannske gæti
leitt til sátta. Hins vegar er al-
ment talið, að öll von sé úti um
sættir. Og það er opinbert
leyndarmál, að Bretar telja
vonlaust um aðfrekari sáttaum-
leitanir beri árangur áður en
ráð bandalagsins kemur saman.
Heyrst hefir, að frakkneska
stjórnin ætli að gera tilraun til
MUSSOLINI.
þess að finna samkomulags-
grundvöll í deilunni, en ekki
eru menn trúaðir á, að þa5 beri
árangur. Bresku fulltrúarnir
fara heimleiðis í dag. Árangur-
inn af þríveldaráðstefnunni
hefir því enginn orðið. Það er
nú búist við, að Abessinia muni
enn á ný leita til Þjóðabanda-
lagsins um að það taki tfl at-
hugunar að beita þvingunarráð-
stöfunum f járhags og viðskifta-
legs eðlis til þess að knýja ítali
til þess að hætta við að fara með
her á hendur Abessiniumönn-
um. (United Press).
Ef svo fer, að síldveiðarnar
bregðast að mestu, eins og líkur
eru til, þá má gera ráð
fyrir þvi, að til nokkurra vand-
ræða horfi um afkomu ýmsra
þeirra, sem leituðu sér sumar-
atvinnu í sambandi við þær, en
koma nú heim, að lokinni ver-
tíð, jafnvel fátækari en þeir
fóru. Og að sjálfsögðu verður
með einhverjum hætti að sjá
því fólki farborða, sem bjargar-
þrota verður af þessum sökum.
Ráðstafanir hafa þegar verið
gerðar til þess að koma þessu
fólki heim til sín. En talið var
að eitthvað á níunda hundrað
aðkomumanna á Siglufirði
væri þurfandi slíkrar hjálpar.
Þegar heim kemur, verða þeir,
sem ekki eru sjálfhjarga, að
leita hjálpar þess opinbera. Og
að sjálfsögðu verða þá rann-
sakaðar ástæður þeirra og þeim
veitt sú aðstoð sem þeir þurfa
og best hentar eftir ástæðum.
Að svo stöddu verður ekkert
um það sagt, livort þörf verður
á því, að gripa til nokkurra
óvenjulegra ráðstafana til
bjargar þessu fólki hér í
Reykjavík. Talið er að á Siglu-
firði hafi verið um 340 manns
héðan iir bænum, sem hjálpar
þyrftu til heimferðarinnar. En
um ástæður þess lieima fyrir er
ókunnugt. Hér er allt af hörg-
utl á stúlkum til lieimilisstarfa,
og þarf varla að gera ráð fyrir
þvi, að ekki megi takast að út-
vega kvenfólkinu flestu vinnu.
En líklegt er að talsverður
meiri hluti þessa fólks sé ein-
mitt stiilkur. Margir einhleyp-
ingar munu eiga að heimilum
að hverfa, þar sem þeir geta
fengið framfæri, og á ýmsa
vegu geta ástæður verið þannig,
að vandræðjai verði minni en í
fljótu bragði mætti virðast lik-
legt. ,
Það hef'ir verið minst á það,
í sambandi við þetta mál, að
rétt væri óg jafnvel alveg sjálf-
sagt, að bæjarstjórnin kæmi á
fót „almenningseldhúsi“, þar
sem þetta fólk, og jafnvel
þurfamenn bæjarins yfirleitt,
gæti fengið mat, ókeypis eða
við lágu verði. Er því jafnvel
haldið fram, að rétt væri að
hærinn liefði þannig með hönd-
um matseldir fyrir almenning,
og ekki að eins fyrir þurfamenn
sína, einnig undir venjulegum
kringumstæðum, af því að með
þeim hætti yrði best trygt, að
almenningur fengi hollan og
góðan mat.
Það má nú vel vera, að ýmis-
leg rök megi finna þessu til
stuðnings. En svo er einnig um
ýmsar aðrar kenningar social-
ista og kommúnista, þó að þær
falli ekki i geð þeiin mönnum,
sem yfirleitt telja hag almenn-
ings best borgið með því að
leggja ábyrgðina á velferð ein-
staklingsins, að sem mestu leyti
á lierðar einstaklingsins sjálfs.
— Og mundi ekki sama máli að
gegna uin aðrar daglegar Jiarfir
manna, eins og matseldirnar, að
finna mætti rök fyrir því, að
með opinberri íhlutun mætti
tryggja almenningi betri og
hollari aðbúnað einnig að ýmsu
öðru leyti — uns einstaklingn-
um væri jafnvel ekkert eftirsltil-
ið til að annast um sjálfur!
Öðru máli er auðvitað að
gegna um það, til livaða neyðar-
ráðstafana kann að þurfa að
taka, ef almennur skortur er
yfirvofandi og ókleift er að
ráða bót á nema brýnustu þörf-
um.
Innbrot
í skrifstofu kirkjugarðsvarðar.
—o—
t fyrrinótt var brotist inn í
skrifstofu kirkjugarðsvarðar, en
liún er í horni kirkjugarðsins og
ingangur í liana frá Ljósvalla-
götu. Höfðu þjófarnir mölvað
niðu í ytri liurð og seilst niður
að smekklás og gátu' þannig
opnað hurðina. Þegar inn í for-
stofuna kom liafa þjófarnir
brotið upp innri hurðina. Er
þeir voru komnir inn veltu þeir
um tréskáp, en á honum var
eldtraustur járnskápur, ætlaður
til þess að geyma í bækúr. Pen-
ingar eru aldrei geymdir á
þessum stað. Eldlrausta skápn-
um liafa þeir því næst komið út
í garðinn og tekist að komast í
hann. Höfðu þeir fundið lykil-
inn að skápnum, en hann var
geymdur á skrifstofunni. Valn
komst í skápinn og blotnuðu og
óiireinkuðust bækurnar, sem í
honum voru. Mun verða að
endurskrifa a. m. k. eina þeirra.
I viðtali, sem Vísir átti við
Felix Guðmundsson kirkju-
Siglufiröi 18. ágúst. FÚ.
Nokkur síldveiöiskip hafa enn
íengiö góöan afla við Selsker. —
Auk Ólafs (Bjarnasonar sem kom í
morgun til Siglufjaröar meö 550
tunnur síldar, kom línuveiöaskipiö
Ármann meö 400 tunnur er voru
saltaöar hjá Tynes. Sæhrímnir var
og væntanlegur meö 400—500
tunnur til söltunar hjá Ingvari
Guöjónssyni. Von var og á fleiri
skipum er talaö var til Siglufjarö-
ar um miðaftan í dag, en óglögt
haföi frést um afla þeirra. Afli í
reknet hefir verið lítill. Haft er
eftir bóndanum í Málmey aö mikið
sé af fugli þar úti fyrir og mikil
áta.
Gott veður var á Siglufirði og
þar í grend í dag —• sléttur sjór
en þoka. Lítil von er um bræöslu-
síld, því alt sem kann að veiöast
og teljast söltunarhæft verður salt-
aö.
Snæfell hefir tekið 2000 föt síld-
arlýsis á Raufarhöfn til útflutn-
ings. Vonir síldarfólks hafa nú
glæöst og hafa flestar síldarstúlk-
ur í bili horfiö frá heimferð. —•
Skv. símtali við Þormóð Eyjólfs-
son.
Ólafsfiröi 17. ágúst. FÚ.
Undanfarna daga hefir veriö
ailgóö sildveiöi í reknet á Ólafs-
firði, og hafa alls verið saltaðar
þar um 1200 tunnur. Tíu bátar
stunda reknetaveiöar frá Ólafs.
íiröi.
Ingólfsfiröi 17. ágúst. FÚ.
Frá Ingólfsfirði símar Guöjón
Guömundsson útvarpinu, að síð-
astliðna þrjá daga hafi engin síld
korist þangað.
í. sumar var fyrirhugaö aö sálta
á Ingólfsfirði 15—18 þúsund tunn-
ur, en veiðin hefir brugöist til
þessa, og er nú búiö að salta 1430
tn. Sjö skip áttu aö leggja síld á
land í Ingólfsfiröi, en aðeins tvö
þeirra hafa komið meö síld, og er
annað þeirra mótorkútterinn
Síldin, sem Guðmundur Sigurös-
son í Hafnarfiröi er skipstjóri á
og eigandi aö. Hefir hann fiskaö
iooo unnur í salt.
Útgerðina á Ingólfsfirði rekur
Ólafur A. Guðmundsson, á síld-
\ eiöistöð sem Geir Thorsteinsson
i Reykjavík er eigandi að og hefir
hann látið bæta þá stöð stórmikið.
Starfsfólk við síldarstöðina á
Ingólfsfirði vonar að úr rætist með
veiði, segir fréttaritari, enda kvart-
ar það ekki um líðan til þessa.
Síldarsöltun hefir verið stunduð
á Ingólfsfirði undnafarin sumur
og hefir veiöi verið góð og bænd-
ur hreppsins hafa fengið næga síld
til skepnufóðurs, og bjargaði það
bústofni hænda síðastliðinn vetur.
Þá segir Guðjón að veðurfar,
það sem af er sumrinu, hafi verið
fremur kalt og átt norðaustlæg oft-
ast síðan sláttur byrjaði, með' vot-
viðri. Töður eru ])ó ahnent hirtar.
Fréttaritari útvarpsins segir í
símskeyti í dag:
Árni Friðriksson kom i dag úr
garðsvörð í morgun, sagði hann,
að liér liefði bersýnilega verið
um mjög bíræfna þjófa að
ræða, þeir hefði hlotið að gera
þarna rnikinn hávaða, er þeir
voru að brjótast inn og koma
út skápnum, og vafalaust verið
jiarna góða stund.
rannsóknarför til Siglufjarðar. —
Mældi hann sjávarhita við Langa-
nes frá landi og 25 sjómílur út til
hafs. Yfirborðshiti var rúmlega 8
stig, en botnhiti á 50 metra dýpi
7,52 stig, á 150 metra dýpi 4,69
stig, á 260 metra dýpi 2,89 stig.
Ata ýmsar tegundir, var eins og
mest gerist, alla leið frá Eyjafirði
til Sléttu. — Síldin er mjög falleg
og jafnstór.
Norskt reknetaveiðiskip, Fulrn-
ar, sá mikla síld á Skagagrunni.
Sild hefir einnig sést út af Siglu-
firði.
Síldarafli Sandgerðisháta.
Útflutningur síldar frá Sandgerði.
Sandgerði 18. ágúst-. FÚ.
Síldveiði var með minsta móti í
Sandgerði í dag. — Eggert fékk
47 tunnur, Gylfi 32 tunnur og Óð-
inn 41 tunnu. Öll síldin var söltuð.
ísland tekur í Sandgerði í kveld
430 tunnur saltsildar. Áður eru
farnar 100 tunnur saltsíldar. Dá-
lítið hefir einnig verið kryddsalt-
að og matjessaltað. — Skv. sím-
skeyti frá fréttaritara útvarpsins í
Sandgerði.
i
}
Afli Djúpvíkurtogaranna.
Djúpuvík 18. ágúst (FÚ)
í nótt lögðu á land í Djúpuvík
við Reykjarfjörð : Línuveiðaskipið
Freyja 560 tunnur til grófsöltunar,
vélbáturinn Þorsteinn 360 tunnur
og togarinn Hávarður ísfirðingur
140 tunnur í krydd.
í dag hafa lagt á land, Hannes
ráðherra, Hávarður ísfirðingur og
Surprise 300—400 tunnur hver. —
Síldin veiddist við Selsker. (Skv.
simsk. frá fréttaritara útvarpsins
t,m veiðiskipin).
Seinnstu fréttir
að norðan.
Vísir átti tal við Siglufjörð laust
laust fyrir hádegi og fékk þær
fregnir, að Örn, m. s. Ámi Árná-
son og 2—3 skip önnur hefðu feng-
ið dágóð köst við Selsker í nótt.
I gærkveldi kom Sæhrímnir með
600—700 tn. og Huginn með 500
tn. Fleiri skip hafa ekki komið síð-
an í gærkveldi. Heimildarmaður
blaðsins sagði, að ekki væri hægt
að segja með neinni vissu, hvort
síldin væri komin aftur svo um
munaði, en menn væri að gera sér
vonir um það. Veður er frekar
hlýtt í dag nyrðra, en hálfgerð
bræla útifyrir. — Afli í reknet er
lítill.
írekstnr á sjð.
Liverpool 19. ágúst. FB.
Cunardlínuskipið Laurentic og
Napier Star, eign Blástjörnulín-
unnar, rákust á í gærmorgun á Ir-
landssjó. Við áreksturinn meidd-
ust fimm menn, en sex fórust, allir
af skipsmönnum. Skipin löskuðust
svo, að það varð að draga þau
hæði inn til Liverpool. Árekstur-
inn varð í svarta þoku. (United
Press). *
Tilraunastöðin í Yalta á Krím.
Yalta, Krím í ágúst. FB.
Garðræktar- og gróðrartilrauna-
stöðin skamt frá Yalta er nú orðin
heimsfræg. Hún er skamt frá
Svartahafi og flykkjast þangað nú
ferðamenn frá ýmsum löndum
heims, meðal þeirra grasafræðing-
ar og ýmsir sérfróðir menn aðrir.
Þarna eru ræktaðar þúsundir
grasa og blómtegunda frá nærri
öllum hlutum heims. Með kyn-
blendingarækt hafa verið fram-
leiddar þarna um 400 tegundir
drúfna og 300 eplategundir, nýj-
ar peru-, aprikósu- og ferskjuteg-
undir. I rósagarðinum eru 1500
tegundir rósa og hefir tekist að
framleiða þar, með kynblendings-
rækt, bláar og grænar rósir, en
það hefir ekki tekist fyr, svo að
vitað sé. (United Press).
London, 17. ágúst. FÚ.
Óeirðir á Indlandi.
Óeirðir liafa brotist út á ný á
norðvesturlandamærum Ind-
lands, og er það Efri-Moman
kynflokkurinn, sem að þeim
stendur. Hefir hann liafið skipu-
lagðar árásir á lestir, seta fara
um Gundabveginn, og liefir her-
sveit verið kölluð á vettvaug til
að veita hinu fasta lögregluliði
aðstoð, en erfiðlega liefir gengið
að veita árásarmönnum við-
nám, vegna þess að ákyggni
hefír verið slæmt ])ar í f jalllefid-
inu.