Vísir - 23.08.1935, Blaðsíða 4
VISIR
Hundadögum
er lokið í dag. Æltla nú sumir,
að skifta niuni mn tíð, svo að
hún verði hagstæðari en verið
hefir um skeið.
Gullverð
ísl. krónu er nú 49.36.
Athygli
skal vakin á auglýsingu hér í
blaöinu í dag, frá Iönsatnbandi
bygginganiap.ua.
Spegillinn
. kemur út á morgun.
M.s. Dronning Alexandrine
kom frá útlöndum í gærkveldi.
Meöal farþega voru: Einar Arn-
órsson, hæstaréttardómari og frú
hans, Sig. B. Sigurösson, ræðis-
maður og frú, Broberg kapt., itm-
boðsmaður, og' frú,Þorvaldur Páls-
son, læknir, Björn Skúlason,
Svane lyfjafræðingur, Viggo Sig-
urösson, Árni Kristjánsson, Guðm.
Sigmundsson, frú G. Bergmann o.
fl. Farþegar voru margir.
Wæturlæknir
er í nótt Bjarni Bjarnason,
Leifsgötu 7. Sími 2829. — Nætur-
vörður í Laugavegs apóteki og
Ingólfs apóteki.
Útvarpið í kveld.
19,10 Veðurfregnir. 19,20 Tón-
leikar (plötur) : Danslög seinustu
kynslóðar. 20,00 Klukkusláttur.
20,00 Upplestur: Úr íslenskri sjó-
mannsæfi, II (Guðm. G. Hagalín
rithöf.). 20,30 Fréttir. 21,00 Tón-
leikar (plötur) : a) Frægir fiðlu-
deikarar; b) Erlend skógarlög.
Utan af landi
%. r-i' .11^1.1 —
Tíðarfar og aflabrögð.
Stöðvarfirði 22. ágúst. FÚ.
Fréttaritari útvarpsins í Stöðv-
arfirði segir góða heyskapartíð
þar um slóðir og töðufeng eins og
i meðalári, víðast hvar. — Ógæftir
hafa verið þar og aflatregða. Afli
trillubáta er orðinn samtals 20—■
40 skp. á bát. Fiskurinn er smár.
Sildveiði er engin.
Á Fáskrúðsfirði liafa aflast frá
130—250 skp. á bát frá vertíðar-
byrjutn til síðustu helgar.
(
Djúpavogi 22. ágúst. FÚ.
Almenn tíðindi.
Fiskveiðar hafa brugðist til-
finnanlega i Djúpavogi í sumar,
mest vegna ógæfta. Heyskapur
Jhefir gengið sæmilega, en gras-
•spretta í tæij>u mleðallagi. Upp-
skeruhorfur í görðum eru ekki á-
litlegar, og hefir borið á skemdum
i kartöflugrasi, og álitið að um
sjúkdóm sé að ræða.
Kíghósti hefir gengið á nokkr-
um bæjum í Djúpavogi, en er í
rénun, enda náði hann eklci mik-
illi útbreiðslu. (Skv. bréfi frá fr.r.
í Djúpavogi).
tJtvarpsfréttiv.
—o—
Hótanir ítala.
London, 22. ágúst. — FÚ.
í „Popolo d’Italia“ í dag' er
Itrugðið upp hræðilegri mynd
af þeim afleiðingum sem það
myndi hafa í för með sér, að
þjóðabandalagið beiti refsi-
ákvæðum sáttmálans gegn Ital-
íu. Þá myndi Ítalía, segir í
greininni, ekki hlifast við því,
að liefja eyðileggjandi strið á
landi, sjó, og í lofti, slíkt sem
að eins hraust þjóð getur háð,
þegar hún er reitt til reiði.
Innan skamms eiga að liefjast
stórfeldar hersýningar í Norð-
ur-Italíu, við landamæri Aust-
urríkis, og ætlar Mússólíni að
stjórna þeim sjálfur. Er álitið,
að megin tilgangurinn sé sá, að
sýna, að Ítalía hefir nægan her-
afla heima fyrir þótt hún liafi
sent mikið lið til Afríku.
Berlín 22. ág'úst. FÚ.
Viðræður.
Frá París er símað, að Laval
forsætisráðherra hafi átt langt
viðtal við sendiherra ítala þar. Er
álitið, að viðtalið hafi snúist um
Abessiniumálið.
Iv.höfn, 22. ágúst. — FÚ.
Fundur sálsýkislækna
Iióst í dag í Stockhóhni. Meðal
þeirra, sem þar halda fyrir-
leslra er dr. Helgi Tómasson á
IÍIeppi.
(Einkaskeyti til FÚ).
London 22. ágúst. FÚ.
Verkfall.
Hafnarverkamenn í Plvmouth
gerðu skyndiverkfall í dag, sem
nær til 200 manna. Fara þeir fram
á, að mönnum í hverjum vinnu-
flokki sé fjölgað, en vinnuveitend-
ur halda því fram, að tala verka-
manna í hverjum flokki só ákveð-
in með samningum. Þrjú skip hafa
orðið fyrir töfum af þessum or-
sökum, og er búist við, að franska
skipið „Champlain“, sem væntan-
legt er frá New York á morgun,
tefjist enn i Plymouth, en för þess
hefir þegar seinkað vegna verk-
fallsins á dögunum í Le Havre.
Fjalla-Eyvindur verður leikinn
í Osló í haust.
K.liöfn, 22. ágúst. — FÚ.
Leikrit Jólianns Sigurjóns-
sonar, Fjalla-Eyvindur, verður
leikið í liaust í Norske Teatret í
Osló. Frumsýningin verður ein-
hverntíma í september.
(Einkaskeyti lil FÚ).
Miklir hitar á Englandi.
London, 22. ágúst. —;,FÚ.
I dag er heitasti dagurinn,
sem hefir lcomið á.þessu ári í
Engíandi. Var 32.7 stiga hiti í
skugganum í Greenwich í dag
milli klukkan 2 og 2.30.
Synt yfir Ermarsund.
London, 22. ágúst. —- FÚ.
Englendingur, að nafni Tay-
lor, svnti í dag yfir Ermarsund
á 14 klukkutímum og 50 mín-
útum, frá Frakklandi til Eng-
lands, og er að hraða til sjötti í
röð þeirra, sem liafa synt yfir
Ermarsund. >
Osló, 22. ágúst. — FB.
Fregnin um Dimitrovmorðið
reyndist uppspuni.
Því er opinberlega neitað í
Moskva, að ráðist liafi verið á
búlgarska kommúnistann Dim-
itrov. I hinni opinberu tilkynn-
ingu um þetta er fregnin kölluð
hreinn uppspuni.
Einn af stærstu bönkum Eng-
lands neitar að framlengja ít-
alskt lán.
Osló, 22. ágúst. — FB.
Samkvæmt fregn í News
Clironicle liefir einn af stærstu
bönkum Englands neitað að
framleng.ja lán þau, sem Italía
hefir fengið í bankanum. .
Spegillinn kemur út á morg-
un. Sölubörn komi í bókaversl.
Þór. B. Þorlákssonar, Banka-
stræti. (502
Vörur, innbú og annað, vá-
tryggir fyrir lengri og skemri
tíma „Eagle Star“. Sími 1500.
(644
fTAPAf) fUNDIf)]
Kafarabúningur lapaðist á
sunnudaginn frá Kömbum að
Grettisgötu. Skilist á Grettis-
götu 53. (404
Víravirkisbrjóstnæla týndist
við Kaplaskjólsveg. Skilist gegn
fundarlaunum í Aðalstræti 11.
(483
íiUSNÆflJ
Stúlku í góðri slöðu vantar
sólríka stofu með eldunarplássi.
Tilboð merkt: „G“ sendist Vísi.
(414
Sólrik stofa, eða tvö minni
herbergi óskast 1. sept. eða 1.
okt., helst nálægt miðbænum.
Uppl. í síma 2833 frá kl. 4—SÚj
e. h. (450
2—3 herbergi og eldhús, með.
nýtísku þægindum, vantar mig
1. okt. Haraldur Halldórsson,
Vöruhúsinu. (470
ÍBÚÐ.
Tveggja til þriggja herbergja
íbúð óskast 1. okt. Sími 4196.
(397
Góð íbúð óskast í austur-
bænum. Skilvís húsaleiga. Að-
eins tvent í lieimili. Uppl. í síma
4378. (495
3 herbergi og eldhús, með ný-
tísku þægindum, óskast 1. okt.
Fyrirframgreiðsla ef óskað er.
Tilboð merkt: „A. E.“ sendist
Vísi fyrir 31. þ. m., (494
4 herbergi og eldbús með öll-
um þægindum til leigu 1. okt.
Uppl. síma 4072. (493
Boskin lijón barnlaus óska
eftir 1-2 herbergjum og eldhúsi
1. okt. Ábyggileg greiðsla. Uppl.
í síma 3931. (491
Vandaður, reglusamur maður
óskar eftir lítilli íbúð. Þrent í
heimili. Æskilegt að gæti fylgt
atvinna nú strax. Tilboð leggist
inn á afgr. Vísis, merkt: „At-
vinna“. (488
1—2 herbergi og eldhúsi ósk-
ast, með aðgangi að síma. Sími
2714, (497j
1 herbergi og eldhús eða tvö
lítil eldunarpláss óskast 1.
okt. Fyrirframgreiðsla. Uppl.
Holtsg. 10. (504
1 stofa og eldhús, eða tvö
minni herbergi óskast 1. okt. —
Uppl. í síma 3050. (503
Góð stofa til leigu með Ijósi
og liita. Getur komið til greina
lítill eldhúsaðgangur. — Uppl. í
síma 4410. (506
2 herbergi og eldhús óskast 1.
okt. Ábyggileg borgun. 3 full-
orðnir í beimili. Tilboð óskast
til afgr. Vísis fyrir 27. ágúst,
merkt: „13“. (487
Herbergi óskast við Grettis-
götu innan Barónsstígs, handa
fullorðinni konu. Viss greiðsla.
Tilboð merkt: „Laugahiti“ ósk-
ast. ( (480
3ja herbergja íbúð óskast í
austurbænum 1. okt. Þrent full-
orðið í heimili. Tilboð scndist í
póstliólf 484. (501
Sá sem vill innrétta 1—2 her-
bergi og eldhús getur fengið
ódýra leigu. — Tilboð merkt:
„Skerjafjörður“ leggist inn á
afgr. \rísis. , (498
2 herbergi og eldliús óskast.
Uppl. i síma 2998. (476
2 stofur (önnur má vera lítil)
með eldhúsi og þægindum í
góðu húsi óskast 1. okt. 2 full-
orðið í heimili. — Fyrirfram-
greiðsla til 14. maí. — Tilboð,
merkt: „Fyrirframgreiðsla“
sendist Vísi. (496
Stúlka óskasl, laghent og
hraðhent. Uppl. á Pjónast. Hlin.
, (505
Regnlilífar teknar til viðgerð-
ar, Laufásveg 4. (687
Reglusamur, ábyggilegur
maður óskar eftir fastri at-
vin.nu við pakkússtörf eða al-
genga vinnu nú þegar. A. v. á.
(189
Stúlka sem kann sveitavinnu
óskast í mánuð. A. v. á. (481
Danskur maður vanur alls-
konar vinnu óskar eftir vinnu,
helst nálægt Reykjavík. Tilboð
merkt: „Iv. A. K.“ sendist Vísi.
(478
KKAlPSKAPUDl
Fornsalan, Hafnarstræti 18,
selur nú með tækifærisverði
dívana, borðstofuborð og önnur
borð, stóla, svefnherbergissett
og margt fleíra. Sími 3927.(290
HÚSGAGNAVERSL.
VIÐ DÓMKIRKJUNA
selur yöur
Tiúsgögnin.
Sérlega fallegir „georgette"
og silkihálsklútar, falleg belti
og snúrur á baðsloppa. Yersl.
Lilju Hjalta.; (475
Armliringir og krossar, nijög
fallegir. Versl. Lilju Hjalta. (474
Múseign,
Vegna burtferðar er sólrík
húseign á eignarlóð vestan við
bæinn til sölu nú þegar. Laust
til íbúðar 1. okt. Húsið gefur af
sér um 2000 kr. á ári í leigu. —
Uppl. í sínta 2276 eða 4592 (fyr-
ir hádegi).
Nokkrir tvísettir klæðaskáp-
ar til sölu, ódýrt. — Viðgerðar-
vinnustofan, Bergstaðastr. 33.
(492
Gamalt timbur lil sölu á Vita-
slíg 13, uppi. Til \4ðtals milli
6 og 8. Sveinn Jónasson. (490
Til sölu: Nýtt steinliús, 2
jafnar hæðir, þrjár stofur, eld-
hús og bað. Alt laust 1. okt. ef
samið er strax. — Jónas H.
Jónsson, Ilafnarstræti 15. —
Sími 3327. (486
Til sölu nýlt, lítið einbýlishús
við Laugarnesveg. Skifti á góðu
isteinhúsi í bænum geta komið
til greina. Semjið fyrir 28. þ.
m. — Jónas H. Jónsson, Hafn-
arstræti 15. — Sími 3327. (485
Hús til sölu við miðbæinn,
tvær íbúðir lausar 1. okt. ef
samið er fyrir 1. sept. — Jónas
14. Jónsson, Hafnarstræti 15. —
Sími 3327. , (484
Lítil eldavél, frístandandi
óskast. Uppl. i síma 3966. (482
Plusssófi og stólar til sölu. —
Þinglioltsstr. 5. (479
Kýr til sölu: 2 kvígur að 2.
kálfi, önnur nýborin, hin janú-
arbær, eru til sölu strax. Báðar
af ágætu kyni. A. v. á. (477
66k) 'U04 I uignqiprH
■SkÞk Ilu!S 'æcI uepc um juac;
•bji3|j í§jbui §0 jnjojpig jcfýu
‘TJBqjBqBJ jáu ‘)of>[Bq[;p pÆjsj
— •§}[ % -j(I bjiib 09 «1111 Bup
b jofqBssojq gB)]BSjCj\j ‘jjnq 1
jofqBssojq §0 qiajs t jpfqBssojq
gBJjBjsý^ :uuijBuis§Bpnuuns j
Kasimirsjal, sent nýtt, til
sölu. Njálsgötu 36. (500
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.
y A NI) R Æ Ð A M E N N. 29
— Það er alveg rétt hjá yður, svaraði Roger.
— Já — er ekki svo? Eiginmaður, vistlegt
heimili, bifreið og barn! — Ef til vill vinur
líka — hélt hun áfrant og fitlaði við vínglasið
sitt. i
— Mjög skynsantlegl, tautaði Roger. — Þér
eruð víst reglulega skynsöm stúlka.
Hún leit fljótt á hann, og daufur roði færð-
ist í hinar fölu kinnar ltennar.
— Haldið þér það? Þér skiljið mig. Hún
drakk ofurlítið af víniiiu og hélt áfrant:
— Fyrir nokkuru bað mín roskinn, en ann-
ars góður rnaður. Hann var yfirgjaldkeri i
spilaliöllinni. — Sæmiieg staða, en launin þó
fremur lág. Eg svaraði lionunt, að eg gæti
ómögulega gifsl ntanni, sent — í fyrsta lagi —
væri ekki leogur á besta skeiði, og í öðru lagi
græddist ekki meira fé en honunt. Og þá gekk
hann alveg af göflunum, aumingja maðurinn.
Hann féll á kné og grátbændi mig, en eg var
ófáanleg. Þá fór hann að hugsa unt hvernig
hann ætti að fara að því að ná í nteiri peninga.
Og fyrir ntatut í hans stöðu var að eins einn
kostur — sá, að stela frá spilavítinu.
Roger kiptist við og hún leit undrandi á hann.
Hann ltorfði svo skrítilega út í loftið, að hún
hafði aldrei séð anngð eins. Henni datt í hug
að ltann væri kannske orðinn reiður.
— Þér megið ekki láta yður þykja, sagði ltúri
'ibrosandi. — Spilavítið slelur frá öllunt. Hvers-
vegna skyldi ntenn ekki lika stela frá því? Það
getur ekki kallast glæpur. Jæja, en vesalings
Henri var ekki nógu slægvitur, og þorði ekki
að leggja í fyrirtækið einn sins liðs. En dag
nokkurn fvrir skömntu kom hann til ntin mjög
æstur í slcapi. Hann kvaðst hafa kynst mjög
gáfuðum og fínum mönnunt — ekki neinunt
venjulegum bófum — og þeir ætluðu að ltjálpa
ltonunt. '— Og eg yrði að gera það líka. Við
gerðunt tilraunina í dag og það gekk eiits og í
sögu. Henri átti að fara með peningasendingu
frá aðalfjárhirslunni til eins undirgjaldkeranna.
Iiann kont við í fatageymslunni ltjá mér augna-
blik, og liélt þvínæst áfrant. En þá var hann
með annan peningakassa, fullan af göntlum
blöðunt, sent hann síðan afhenti. Eg fór inn i
snyrliherbergið og tæmdi peningakassann.
— Einmitt það, .... tautaði Roger. — En
eru peningakassarnir ekki athugaðir undireins?
— Nei, ekki fyrr en klukkustund síðar. Eg
gelck út um einar dyr á spilavítinu, Henri unt
aðrar, og' vinir ltans. — Eg veit ekki hverjir það
eru. — En þeir óku okkur nteð eldingarhraða
til gistihússins. Okkur var fylgt inn í mjög
skrautlegt herbcrgi og horið var fyrir okkur
kampavín og annað góðgæti. Sköntmu síðar
kom þangað ntaður, sent eg hefi aldrei augum
litið áður, og ltann og Henri fóru að ræða unt
það, hvernig peningunum skyldi skift. Þeir fóru
brátt að hnakkrífast, og eg varð stöðugt ltrædd-
ari og hræddari. Og þegar rifrildið stóð sent
hæst, sá eg færi á að læðast út, og hlaupast á
brott og —• svo liitti eg yður. Nú hefi eg sagt
yður alt.
— Þér Itafið þá gefist upp á því öllu saman,
mælti Roger. — Það er víst líka það skynsant-
legasta, sent þér gátuð gert. En hvað hafi þér
ltugsað yður, að taka nú til bragðs?
Hin litla, lieita hönd liennar snieygði sér afl-
ur inn í Itönd hans. Hin unga stúlka brosti fag-
urlega.,
— Til ltvers ráðið þér ntér, Roger?
— Það skiftir engu máli, hvað ntér virðist.
sagði hann, stuttur í spuna. — Þér eruð sjálf-
sagt búnar að ráða ráðunt yðar eða taka
ákvörðun.
— Hver veit nema mér geðjaðist betur að
yðar ráðum — ef þér ltafið einhver í huga?
hvíslaði hún. t
— Því er nú ekki þannig varið, fullvissaði
liann hana. — En eg gæti auðvitað gert skyldu
ntína og kært yður fyrir lögreglunni. — Hvern-
ig líst yður á það?
Hún ldappaði santan lófunum í hrifningu.
— Það væri ágætt. Það væri best af öllu. Þá
birtist mynd af mér í öllum bloðunum og eg
myndi fá besta málaflutningsmanninn til að
verja mig. Þar eð eg hefi ekki kontist i tæri við
lögregluna fyr, ntyndi eg fá vægan dónt, og
þegar eg kænti aftur úr fangelsinu, myndu
karlmennirnir slást um að fá mig fyrir konu.
En-------auðvitað yrði eg enn frægari, ef þetta
væri sorgarleikur með afbrýðisemi og því líku,
en ekléi þjófnaður------bælti hún við hikandi.
— En þar eð eg hefi ekki í ltyggju að afhenda
yður lögreglunni, getið þér óhræddar sagt mér
frá áformum yðar, ntælti Roger og brosti.
Hún leit á hann. (
— Þér verðið að hjálpa mér einu sinni enn,
niælti hún alvarlega. — Þér verðið að lána ntér
peninga, svo að eg geti leigt bifreið og eltið til
Marseille. Þar á eg vini, sent eg treysti og munu
gæta min.
— Það geri eg fúslega. En hversvegna fari
þér ekki nteð járnbrautarleslinni?
— Hún fer ekki fvr en i fyrrantálið og nienn
munu áreiðanlega þekkja ntig. t
— Já, það er auðvitað hverju orði sannara.
— Auðvitað ntynduð þér þekkjast á brautar-
stöðinni og það er of liættulegt. — Sjáið þér
bifreiðina þarna?
— Já, er hún ekki falleg? andvarpaði hún. —
Það er Packard. Er ekki svo? Svona bifreið vil
eg eiga. ,
— Eg ætla ekki að gefa yður bifreiðina, en
þér ntegið fá hana að láni, mælti hann. — Ef
þér viljið, getur bifreiðarstjórinn minn ekið
yður til Marseille.
— En ltvað þér eruð góðir lirópaði hún frá
sér nuntin og klappaði saman lófununt. — En
ltvers vegna akið þér ntér ekki sjálfir?
— Það get eg ekki. — Eg fer með leigubif-
reið aftur til Monte Carlo. Roger lók upp
pyngju sína og fékk henni tvær þúsundir
franka. |
Kærar þakkir! Þetta er meira en nóg, ntælti