Vísir - 10.11.1935, Side 3
PMT’jftiÍMií' tnmmti
VlSIR
VINCI GREIFI
sendiherra ítala í Abessiniu, sem
neitaöi aö fara frá Addis Abeba,
þegar ófri'öurinn byrjaöi, fyrr en
íillir ítalskir ræöismenn í landinu
væri lagöir af staö þaöan.
„Kö n gullóm44
kabarettinn, sem Ólafur P. Ól-
afsson og frú Anna Friðriksson
hafa stofnað til, hafði frum-
sýningu í Oddfellowliúsinu á
föstudagskveldið kl. 9. Áður en
sýning hófst, var blaðamönn-
um hoðið að koma og sjá út-
húnað allan og fræðast um
þessa nýbreytni.
Tilganginn með stofnun ka-
barettsins kváðu stofnendurnir
vera þann, að auka fjölbreytn-
ina í skemtanalífi hæjarins. —
En eins og kunnugt er, er liér
vart uni aðrar skemti-stofnan-
ir að ræða en leikhúsið kvik-
myndahúsin og kaffihúsin.
Mun það sjálfsagt skoðun
flestra, að það muni liafa holl
áhrif á bæjarlífið yfirleitt, að
gefa fólki kost á meiri til-
hreytni í skemtunum.
— Hafið þcr hugsað yður, að
hafa tíðar sýningar?
— Það verður auðvitað að
fara nokkuð eftir því, live góð-
ar viðtökur kábarettinn fær
hjá almenningi. En við búumst
við þvi, að geta haft sýningar
a. m. k. tvisvar í viku, fyrst um
sinn.
— Verður sama efnisskráin
höfð oft, eða hrevtt til í hvert
skifti?
— Við höfum hugsað okkur
að liaga því þannig, að hafa
þau atriðin, sem fólki likar
hest, nokkrum sinnum á
skránni, en sleppa hinum, sem
miður líka og fá ný i staðinn.
Við getum t. d. húst við því, að
9 ára liarmonikusnillingurinn,
sem þér fáið að heyra á eftir,
verði nokkuð lengi á pró-
gramminu.
— Ilvernig liafið þér liugs-
að yður efnisvalið, svona í liöf-
uðatriðum?
— Aðal-uppistaðan i efnis-
skránni verður sjálfsagt söng-
ur, hljóðfærasláttur, dans, upp-
lestur, smá-leikþættir o. þvíí.,
en við munum kappkosta, að
hafa skemtanirnar sem fjöl-
hreyttastar, og tökum með
þökkum á móti góðum uppá-
stungum i þvi efni. Við von-
um, að skemtanir okkar verði
léttar og Iiressandi, bæði fvrir
augað og eyrað, en liafi um leið
noldcurt menningargildi.
Slcemtunin i fyrrakvöld var
góð byrjun. — I suðurenda á
veitingasalnum hafði verið sett
upp leiksvið, eða sýningarpall-
ur. Var á baktjaldið málaður
köngullóarvefur og risavaxin
köngulló, með grænum, lýs'andi
augum. — Skemtiatriðunum
var yfirleitt mjög vel tekið. Sér
staklega vakti litli harmoniku-
snillingurinn fögnuð áheyr-
enda. Friðfinnnr Guðjónsson
og Alfred Andrésson lásu upp
og veittu mönnuní báðir ágæta
skemtun, eins og þeirra var
von og vísa, Pétur Jónsson söng
tvær óperu-aríur, með sínum
alkunna krafti og kyngi, Krist-
mann Guðmundsson las upp
draugalega sögu. Voru Ijósin í
salnum slölct á meðan, en ljós-
kastarar vörpuðu blágrænum,
draugalegum ljlæ á liina svip-
miklu aiullitsdrætti skáldsins.
Eigild Carlsen og Ilelene Jóns-
son dönsuðu listdansa o. s. frv.
Ágæt skemtun.
Næsta sýning kabarettsins er
i dag kl. 4, eins og auglýst
hefir verið.
Kafbátaeip
stdrvsldanna.
Cherbourg í okt.
Frakkar eru staöráönir í aö
halda áfram aö efla kafbátaflota
sinn. Nýlega var hleypt af stokk-
unum stórum kafbát, „Bevezieres"
og er hann 2000 smál. aö stærö.
Sé hann með talinn og lítill kaf-
bátur, „Junon“, sem ekki er ætlað-
ur til langferöa, heldur með
ströndum fram, eiga Frakkar nú
75 kafbáta. Vegna þessarar stefnu
Frakka munu þeir vinna á móti
hverskonar tilraunum annara
ílotavelda til þess að koma því til
leiðar, að samkomulag verði gert
um að banna notkun kafbáta i sjó-
hernaði eða takmarka smíði kaf-
báta. Má jafnvel fullvíst telja, að
Frakkar muni halda áfram að auka
kafbátaflota sinn, og fullyrða má,
að Frakkar muni halda áfram með
fullum krafti á næstu 12 mánuð-
um að efla kafbátaflota sinn, svo
að þegar Washington flotamála-
samningurinn gengur úr gildi í
árslok 1936 muni þeir hafa kaf-
bátaflota, sem verður samtals
77.07Ó smálestir. Verða þá Frakk-
ar næstir i rööinni á eftir Japönum,
aö því er kafbátaeign snertir mið-
að viö smálestatölu, en hafa þó
fleiri kafbáta en þeir. Að því er
United Press hefir fregnað mun
kafbátaeign stórveldanna verða í
árslok 1936 miðað við smálesta-
tölu:
Japan ...'........ 79-777
Frakkland ........ 77.076
Bandaríkin .... 58.800
Bretland......... 59.194
Ítalía............ 46.437
f
Frakkar vilja ekki hætta við
kafbátasmíði af sömu ástæðum og
Japanar, þ. e. að kafbátar sé varn-
ar-hernaðartæki, en ekki árásar.
Bretar hafa, viljað takmarka smíði
kafl)áta eða afnema þá, og Þjóð-
verjar og Bandaríkjamenn munu
standa nær skoðunum Breta í þess-
um efnum, heldur en Frakka og
Japana. Rússar munu og styðja
skoðun iFrakka og vinna á móti
því, að kafbátanotkun verði bönn-
uð í hernaði, og þeir áforma að
efla kafbátaflota sinn að miklum
mun. Horfir því illa um samkomu-
lag um að banna kafbátanotkun.
Frakkar eiga stærsta kafbát í
heimi „Surcouf" og er hann 3.500
smálestir að stærð. —- Nýi kafbát-
urinn, „Bevezieres", hefir 11 torpe-
do-„túbur“ og vélar hans framleiða
8.000 hestöfl. „Bevezieres" er syst-
urskip „Agosta“, „Quesant“,
„Sidi-Ferruch“, „Efach“ og„Casa-
blance“, sem allir eru smíðaðir
samkvæmt flotasmíðaáætluninni,
er gerð var 1930. Ekki er kunnugt
hvort þessir kafbátar verði notað-
ir á Miðjarðarhafi eða Atlantshafi.
Fullyrt er, að Frakkar hafi 50 kaf-
báta af 75 á Miðjarðarhafi og mun
það vera til þess að hafa þar svip-
an kafbátaf jölda og Italir, sem eiga
59 kafbáta. Bretar hafa 13 kafbáta
á Miðjarðarhafi, en senda þangað
vafalaust fleiri kafbáta, ef horfur
versna enn út af Austur-Afríkuó-
friðinum. (United Press—FB).
0 Bæjarfréttir í)
I 0 0 F. 3 = 11711118 = Fl.
Veðurhorfur í gærkveldi.
Suðvesturland, Faxaflói, Breiða-
fjörður og Vestfirðir: Hægviðri og
bjartviðri, en þyknar upp með
vaxandi suðaustan átt, er liður á
morgundaginn. Norðurland, norð-
austurland, Austfir'ðir, súðaustur-
land: Hægviðri. Úrkomulaust og
víðast léttskýjað.
Leikfélag Reykjavíkur.
Skugga-Sveinn verður sýndur
tvisvar í dag, kl. -3 og kl. 8.
Hjúskapur.
í gær voru gefin saman í hjóna-
band af séra Bjarna Jónssyni ung-
frú Anna Guðmundsdóttir og Hein-
rich Rasmus. Heimili þeirra verð-
ur í Ingólfsstræti 9.
í gær voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Guðrún Davíðsdóttir
frá Arnbjargarlæk og PéturBjarna-
son hreppstjóri á Grund.
Háskólafyrirlestrar á ensku.
Vcgna hátiðarinnar verður eng-
inn fyrirlestur annað kveld.
Samtíðin.
9. hefti, II. árgangs „Samtíðar-
innar“ er nýkomið út. í því birtast
að þessu sinni eftirtaldar ritgerðir
og sögur: Verðbréfaverslun, eftir
Aron Guðbrandsson, Grace Moore,
grein um söngkonuna amerisku,
Sýsluhókasafn Suður-Þingeyinga,
Kynjamaðurinn á Hjálmsstöðum,
Hér gerist aldrei neitt, smásaga
eftir Oddnýju Guðmundsdóttur,
Máttur góðmálmanna, Hefndin,
framhaldssaga eftir Tom Kristen-
sen, Nokkrar nýjar bækur, skrár
yfir nýjar, erlendar og innlendar
bækur, skrítlur og fleira. H.
Jósef Húþfjörð
kveður nýjan vísnaflokk, er
hann nefnir „stjórnmálalífið", í
Varðarhúsinu kl. Sj4. Ennfremur
kveður Jónína Jónsdóttir, Katrín
Húnfjörö, Jón Jónsson og Jón
Lárusson. Aðgöngumiðar við inn-
ganginn.
Nýja Bíó
sx'mir nú kvikmyndina „Brúðkaup
keisarans", ágætlega gerða og leikna
mynd. Er hún sögulegs efnis og
greinir írá atburðum úr lífi Napó-
leons mikla. Aðalhlutverk leika
Willy Forst og Paula Wesseley, ný
leikkona, sem mikið orð fer af, og
aðeins hefir sést hér í einni kvik-
mynd áður, er varð öllum minnis-
stæð er á horfðu.
Gamla Bíó
sýnir nú stórfenglega niynd,
„Syndaflóðið“, og er hún gerð af
ameríska félaginu Radio Pictures.
Kvikmynd þessi hefir vakið mikla
Qftirtelct erlendis, fýrir það, hve
vel hún er gerð. Aðalhlutverkin eru
vel leikin af Louis Wilson, Sidney
Blackmer og Peggy Shannon. Kvik-
myndin verður sýnd kl. 9, en „Con-
tinental" kl. 7.
Hjálpræðisherinn.
Samkomur í dag: Kl. 11 f. h.,
helgunarsamkoma, kl. 2 e. h„
sunnudagaskóli, kl. 4 e. h„ útisafn-
koma á Lækjartorgi, kl. 6 e. h.
talar Zikka Wong á barnasam-
konm, kl. 8 e. h„ fórnarsamkoma.
Sjálfsafneitunarvikunni lokið.' ..
Zil-cka Wong og kapt. Dikka Hen-
riksen taka þátt í samkomunum.
Allir velkomnir.
Næturlæknir
er í nótt Kristín Ólafsdóttir,
Ingólfsstræti 14. Simi 2161. Næt-
urvörður í Laugavegs apóteki og
Ingólfs apóteki.
Heimatrúboð leikmanna
Hverfisgötu 50. Samkomur í
dag. Bænasamkoma kl. 10 f. h.
Barnasamkoma kl. 2 e. h. Almenn
samkoma kl. 8 e. h. — í Hafnar-
firði, Linnetsstíg 2. Samkoma kl.
4 e. h. Allir velkomnir.
Bókasafn „Anglia“
í lireska konsúlatinu er nú opið
á sunnúdögum kl. 6—7, og á mið-
vikudögum kl. 9—10 e. h.
ísland í erlendum blöðum.
í tilefni af því, að þjóðþing
Bandaríkjanna hafði með sérstakri
samþykt gert 9. okt. síðastliðinn
að minningardegi um Leif Eiríks-
son skrifaöi Richard Beck prófes-
sor viö háskólann i Norður-Da-
kota, Bandaríkjunum, allítarlega
grein um Leif Eiriksson og Ame-
ríkufund hans í „Grand Forks
Herald“ og styttri greinar um
sama efni á ensku í vikublaðið
„Normanden“, Fargo N. D. og á
norsku í Decorah-Posten, Decorah,
Iowa-riki, sem er útbreiddasta blað
,Norðmanna vestan hafs. — í „Du-
luth Skandinav", sem er eitt af höf-
uðblöðum Norðmanna i Vestur-
heimi er grein um Norðurlanda-
máladeildina við háskója North
Dakota og starf Richards Beck við
hana. Einnig hefir „Normanden“,
blað það, er fyrr var nefnt, birt
grein eftir R. Beck um „lífsspeki
norrænna manna". Segir í blaðinu,
að hún hafi verið birt fyrir sér-
stök tilmæli áheyrenda. (FB).
Áheit á Strandarkirkju,
aíhent Vísi: 5 kr. frá ónefndum,
2.kr. frá N. N.
Til héilsulausa mannsins,
afhent Vísi: 5 kr. frá J. Þ„ 5 kr.
frá I. J.
Áheit
á Barnaheimilið Vorblómið, af-
herit Visi: 2 kr. frá Þ. G„ 2 kr.
frá G. J.
Betanía
Laufásveg 13. Vakningarsam-
koma í kveld ld. 8Páll Sigurðs-
son talar. Allir velkomnir.
Sólargeislinn
heldur fund í dag kl. 4 í Betaníu.
Félagsstúlkur mæti stundvíslega.
Útvarpið í dag:
10.40 Veöurfregnir. 12,00 Há-
degisútvarp. 14.00 Messa í Frí-
kirkjunni (síra Árni Sigurðsson).
15.10 Tónleikar frá Hótel ísland.
18,30 Barnatími: a) Um Matthías
Jochumsson (Helgi Hjörvar) ; b)
Söngur (frú Elísabet Einarsdótt-
ir). 19.10 Veðurfregnir. 19,20
Hljómplötur: Sígild skemtilög.
19,45 Fréttir. 20,15 Erindi: Matt-
hías Jochumsson, trúarskáldið
(Magnús Jónsson prófessor). 20,40
Einsöngur: Sálmar og ljóð eftir
Matthías (Sigurður Skagfield, með
orgeluðdirleik Páls ísólfssonar).
21.05 Upplestur: Úx ræðum 0g
ritum Matthíasar (síra Árni Sig-
urðsson). 21.30 Hljómplötur :ÍBeet-
hoven: Symíónía nr. 3 (Eroica).
22.10 Danslög til kl. 24.
Pund af
skyri.
Það er öllum kunnugt, hvert ó-
lag hefir verið á skyrsölunni i
Keykjavík síðan er „skipulagning“
mjólkursölunnar komst í fram-
kvæmd, öllum til bölvunar. Hafa
margar kvartanir komið fram um
það, að ekki sé hægt að fá gott
skyr, en eftirspurn eftir þeirri vöru
hefir verið mikill undanfarin ár.
Hvanneyrarskyr þótti ágæt vara
og var það líka. En Hvanneyrar-
búinu var fyrirboðið að viðlögðum
stórsektum og öðrum vítum, að
selja þessa ágætis framleiðslu
á reykvískum markaði. —
Undanfarin ár hefir verið selt
úl Reykjavíkur allmikið af skyri
■ frá-ýmsum heimilum í Borgarfirði,
öðrum cn Hvanneyri. Má yfirleitt
um það skyr segja, aö þaö hafi
verið sæmileg vara og sumt á-
gæt. Úr Árness- og Rangár-
vallasýslum kom og töluvert a£
skyri á reykviskan markað. Mikið
af því var góð vara. Höfðu bænd-
ur þeir, sem skyr seldu til höfuð-
staðarins — og aðrar mjólkurvörur
— góðan hagnað af skiftunum við
bæjarbúa og munu ekki hafa
viljað glata þeim markaði.
En svo komu mjólkurlögin og öll
sú vitleysa, sem þeim hefir verið
og verður samfara, meðan annaö
eins fólk stjórnar þar í sveit og lát-
ið hefir verið viðgangast að færi
þar með völdin fram að þessu.
Sveitakonur hafa verið eltar uppi
af lögregluvaldi og rifnir af þeim
rjómapelar, sem þær hafa haft
meðferðis. Bóndi hefir verið kærð-
ur og dæmdur (í undirrétti) i sekt-
ir fyrir þá ofdirfsku að leggja af
stað heiman að frá sér með mjólk-
urdropa í þeim vændum að koma
þessum fáu pottum eða lítrum í
verð í Reykjavík. Og ráðist hefir
verið á hæstaréttardómara fyrir
það, að hafa ekki dæmt manninn
til refsingar fyrir það „ægilega af-
bro“ að hafa lagt af stað til
Reykjavíkur með mjólk sína í
sölu-erindum. En hann seldi ekki
nokkurn dropa, sem kunnugt er,
og fullkomnaði því ekki þann á-
setning sinn, að fara á bak við
þvingunarlögin, hina heimskulegu
k úgu nar 1 ögg j ö f.
Eg er eirin þeirra manna, sem
saknað hafa hins ágæta skyrs frá
Hvanneyri og öðrum góðum heim-
iidum. Mér hafði verið sagt, að
stundum fengist ágætt skyr í
mjólkurbúi Ölfusinga. Nú bar svo
Hlutavelta
kvennadeildar Slysavarnar-
félags íslands er í K.R.-liúsinu
í dag, og verður húsið opnað
kl. 5. Þar verður márgt ágætra
drátta. Munu menn fjölmenna
á þessa hlutaveltu og styðja hið
góða málefni, sem kvenna-
deildin berst fyrir.
við i sumar eitthveit sinn, að ég
var á ferðalagi austan fjalls. Mig
langaði í gott skyr og helst af
öllu vildi ég geta fengið með mér
dálítinn slatta til Reykjavíkur. Eg
liaföi dvalist um tírna i Rangár-
vallasýslu og vanist j)ar góðu skyri
(þar í sveitum þykir graöhestaskyr
ekki mannamatur). Nú ókum viö
út Flóaníi og sem leiö liggur að
Ölfusbúinu hjá Reykjum. Biðjum
við nú um skyr til neyslu þar á
staðnum og var það til reiðu. —
Spyr ég nú, hvort ekki muni hægt
að fá skyrspón „i nestið“. — Jú,
það ætti að vera hægt,. ef þið eruð
á austurleið. — Jæja, segi ég. Er
það þá svo að skilja, aö þér megið
ekki láta af hendj eitt einasta
skyrpund, ef ekiö er upp Kamba
og suður sem leið liggur? —■ Já,
þér gætið haft skyrpundið með.
yður alla leið til Reykjavíkur og
það er ekki leyfilegt! — Eg malda
í móinn og segi eitthvað á þá leið,
að líklega geti nú ekki stáfað nein
hætta af einu pundi. En svarið var
það, aö þetta væri ekki leyfilegt.
Hipsvegar væri vist ekkert því til
fyrirstöðu, að selja okkur skyr, ef
við værum á austurleið. — Jæja
segi ég, það fer þá eftir áttum,
livort ég get fengið þétta skyr-
pund! Stefni eg austur get eg
fengið það, en stefni ég suður fæst
það ekki! (Hér er farið eftir mál-
venju, þó að ekki sé þetta allskost-
ar rétt áttavísan). Yið fórum að
tala um það, að aka t: d. austur að
Kögunarhól og snúa þar við. Þá
væri seljandinn úr allri hættu. Við
hefðum þá stefnt austur veg með
skyrpundið, en seljandi gæti ekki
varað sig á því, að viö snerum
aftur, áður en við ætum skyrið.
En „skiftavinur“ okkar var þá
horfinn frá og farinn aö sinna
öðru, og féll svo þetta niður.
Af þessu er Ijóst, hversu ná-
kvæm hún er hin rauða stjórn —
„stjórn hinna vinnandi stétta“.
Ekkert fer fram hjá herinar „gáf-
aða“ höfði — ekkh eitt skyrpund,
auk heldur meira! — Það er ekki
lítið varið í annað eins og það, að
láta leita í vösum kvenna og
barna eftir hálfpela af rjóma og
hafa gát á því, í hvaða átt skyr-
pundin fara, þau er syndugir menn
kaupa austan fjalls. Það er leyfi-
legt aö haía skyr í maganum, þeg-
ar ekið er uþp Kamba, en þaö er
refsivert að hafa meðferöis á þeirri
leið fáein lóð af skyri — utan
magans og meltingarfæranna!
Ferðalangur.
Silfurrefarækt Norðmanna.
Oslo 9. nóvember.
Silfurrefasýning var t)pnuð í
Oslo í dag. í setningarræðu sagði
Lindström, formaður nefndarinn-
ar, að refaræktarmenn í Noregi
væri nú 10.000 talsins, en refa-
ræktin gæfi af sér 25 miljónir kr.
á ári. (NRP—FB).