Vísir - 17.11.1935, Síða 2
V í S IR
Fðr Thor Thors alþm.
til Suðor-Ameríkn.
Markaðshorfur eru þar dágóðar og hefir náðst sam-
komulag um útflutning á 14.000 kössum af fiski til
Brazilíu á yfirstandandi ári og 3000 kössum til Arg-
entínti.
Hvað er í húfi ?
Af hverju stafar heiftaræðið, sem gripið hefir rauð-
liða út af tilboðum bakarameistaranna og Mjólkur-
félags Reykjavíkur um að annast dreifingu mjólk-
urinnar?
Nordur-Kína óliád
Nankingstjórninni ?
Fylkisstjórinn í þeim hluta landsins, sem Japanar
hafa afvopnað, gefur út yfirlýsingu um, að Norður-
Kína lýsi sig óháð Nankingstjórninni. Fylkisstjórinn
rekur vafalaust erindi Japana með þessu, og hafa
þeir sent honum herstyrk.
Oslo 16. nóv.
Thor Tliors alþingismaður
var meðal farþega á Gullfossi
frá útlöndum í fyrradag. Fór
hann, sem kunnugt er, til Suð-
ur-Ameriku í markaðsleitarer-
indum, að tilhlutan Sölusam-
bands íslenskra fiskframleið-
anda.
Vísir átti í gær viðtal við
Thor Tliors og spurði hann tíð-
inda af ferðalagi hans og
árangrinum af tilraunum hans
til þess að afla nýrra markaða
fyrir fiskframleiðslu íslendinga
í Argentínu og Braziliu.
Thor Thors fór héðan þ. 27.
ágúst s. I. og var kominn til Rio
dc Janeiro þ. 20. september og
lagði af stað heimleiðis þ. 24.
október. Vegalengdin er um
17.000 mílur fram og aftur og
var Thor Thors á sjóferðalag-
inu 42 daga. Meðan hann var í
Suður-Ameríku dvaldist hann
ýmist í Argentinu eða Brazilíu
og átti tal við helstu fiskinn-
flytjendur i báðum þessum
löndum.
I Argentínu var hann
um hálfan tnánuð, aðallega í
Buenos Ayres. — Argentínu-
menn flyíja inn um 4000 smá-
lestir af fiski á ári. í Argentínu
er erfiðleikúm bundið að fá
gjaideyri tii kaupa á vörum frá
þeim þjóðuni er ekki hafa skift
við Argentínumenn. Nú kaupa
Islendingar að vísu afurðir frá
Argentínu, t. d. hveiti, en fyrir
milligöngu annara þjóða, svo að
íslands er ekki getið í verslun-
arskýrslum Argentínu. Þessu
þarf vitanlega að kippa í lag.
Nokkurs efa varð Thor Thors
var hjá fiskinnflytjendum, að
Islendingar hefði 1. flokks vöru
að bjóða, og væri því inikið
undir því komið, að vel tækist
með fisksendingar þangað, svo
að varan fengi [iegar gott orð á
sig. Samkontulag náðist um sölu
á þrjú þúsund kössum af fiski
héðan til Argeritínu á yfirstand-
andi ári, og er þá miðað við
að í livern kassa fari 41 kg.
Þó að eigi sé von um stórkost-
Iega markaðsaukningu í Argen-
tínu, eru góðar vonir um tals-
verða sölu þangað, ef varan
reynist vel og úr gjaldeyriserf-
iðlcikum rætist.
Meðan Thor Tliors var i Braz-
ilíu, álti hann tal við helstu fisk-
innflytjendur í Rio de Janeiro
og fór til annara borga, m. a.
Sao Paolo. Brazilíumenn flytja
inn um 19.000 smálestir af fiski
á ári, en fiskinnflutningur
þangað hefir komist upp í
41.000 smálestir. í Brazilíu er
lággengi og fiskurinn þvi dýr.
Gjaldeyririnn er þar frjáls.
Samkomulag náðist um inn-
flutning héðan á fiski til Braz-
ilíu, 14,000 kassa á yfirstand-
andi ári og er þá aðallega miðað
við heilkassa (58 kg). Vonir
eru um aukinn markað þar á
næsta ári, einkum ef fiskurinn,
sem nú verður sendur, líkar vel.
Thor Thors kvað sendiherra
og ræðismenn íslands og Dan-
merkur í báðum löndunum
liafa greitt götu sína liið besta
og hefði sér verið mikill styrk-
ur að aðstoð þeirra.
Landsmenn munu alment
fagna yfir því, að för Thor
Thors hefir gengið þannig, að
von er um allgóðan árangur.
Hér hefir verið stigið stórt
spor í rétta átt, sem væntanlega
leiðir til þess, að mikill mark-
aður fáist fyrir fiskframleiðslu
íslendinga 1 Suður-Ameríku og
verður þá markaðsrýrnunin í
Miðjarðarhafslöndunum eigi
nándar nærri eins tilfinnanleg-
ur og menn hafa óttast.
María Markan.
Khöfn í gærkveldi.
Einkaskeyti (FÚ).
íslenska söngkonan, María
Markan, hefir nú sungi'ö í fyrsta
sinn hlutverk prinsessunnar í söng-
leiknum „Konungur daglangt“, á
söngleikahúsinu í Hamborg.
„Hamburger Fremdenblatt" ritar
á þessa leiö um söng ungfrú Maríu
Markan: „Frammistaöa ungfrú
Maríu Markan bar vott um veru-
lega hæfiieika, og hún lauk með
sæmd við hlutverk sitt, þrátt fyr.ir
það, þó að það sé ekki sem ákjós-
anlegast fyrir rödd hennar“.
Skipasmíðar á Bretlandi.
í lok septembermánaðar var
verið að ' smíða á Stóra-Bret-
landi og írlandi 110 skip og var
samanlögð smálestatala þeirra
534.554. En alls voru þá i smíð-
um um heim allan skip, sem
voru samtals að smálestatölu
1.197.969. — Fyrir tveimur ár-
um var smálestatala þeirra
breskra skipa, sem lágu ónotuð
í höfnum, vegna kreppunnar,
um 1.500.000, en er nú um
500.000 að eins, bæði vegna
þess að flutningar bafa aukist
og að mikið hefir verið gert að
því að rífa gömul skip.
Meiri liluti Mjólkursölu-
nefndar ákvað á dögunum að
fresta þvi, að talca ákvörðun
um tilboð bakarameistarafé-
lagsins og Mjólkurfélags Reyk-
javíkur, um að taka að sér
dreifingu mjólkurinnar. Var
því borið við, að enn væri ekki
sýnt, hve mikill dreifingar-
kostnaðurinn yrði, með því
fyrirkomulagi, sem upp liefði
verið tekið af nefndinni, og
þvi óvíst, að nokkuð ynnist við
það að breyta til.
1 fljótu bragði kann þetta að
virðast eðlileg afstaða af hálfu
Mjólkursölunefndar. En við
nánari athugun sknnfærast
menn um, að hér er að eins
um fyrirslátt að ræða.
Mjólkursölunefndin lilýtur
að hafa næg gögn í höndum,
til að geta gengið úr slcugga
um það, livort nokkuð muni
að græða á tilboðum bakara-
meistaranna og M. R. Eftir 10
mánaða starfrækslu mjólkur-
samsölunnar, hlýtur rekstur-
inn að vera kominn í svo fast-
ar skorður, að það liggi alveg
ljóst fyrir, live mikill dreifing-
arkostnaður mjólkurinnar
muni verða í framtíðinni i
lienanr böndum. Það eru eng-
ar likur til þess, að tveggja
mánaða framhaldsrekstur leiði
neitt nýtt i Ijós um það. Að
minnsta kosti liefði það átt að
vera óhætt, að taka upp samn-
inga við Bmfél. og M. R., ef
nokkur vilji hefði verið til þess
að lækka kostnaðinn.
Og af umræðum um þetta
mál í blöðum rauðliða, er líka
auðráðið, að málinu liefir ekki
verið frestað vegna þess, að
nokkur vafi væri talinn á því,
að dreifingarkostnaðurinn
mundi minka, ef lekið yrði
þessum tilboðmn bakaranna og
M. R. Það er augljóst, 'að blöð-
in telja það alls engu máli
skifta, hvort hægt sé að minka
dreifingarkostnaðmn.. Jafnvel
þó að tilboðin hefði verið um
að annast dreifingu mjólkur-
innar endurgjaldslaust, þá
hefði andstaðan gegn því að
taka þeim verið sú sama. Og
líklega liefði lieiftaræði rauð-
liða út af tilboðunum þá orð-
ið’ ennþá meira! Það er nú vit-
að, að til samsökmnar var
stofnað fyrst og fremst í þeim
tilgangi, að reyna að minka
dreifingarkostnaðinn. Þessi
kostnaður liefir vafalaust ver-
ið óliæfilega bár, og það hefir
sjálfsagt tekist að lækka liann
nokkuð. En markmiðið er auð-
vitað að lækka kostnaðinn eins
mikið og unt er, svo að fram-
leiðendur geti fengið sem mest
verð fyrir mjólkina og hún
verði þó neytendum sem ódýr-
ust. En þessu markmiði virð-
ast rauðliðar bafa gleymt. Við-
kvæðið er hjá þeim, að mjólk-
ursalan megi umfram alt e ;ki
komast afiur í hendur M. R.,
Eyjólfs Jóhannssonar eða bak-
aranna! En engin tilraun er
gerð til að sýna fram á það,
livaða voði sé þá fyrir dyrum,
ef svo skyldi takast til. Allur
almenningur spyr, hvað sé þá
í húfi, en þeim spurningum er
engu svarað.
I Alþýðubíaðinu i gær birt-
ist grein á fyrstu síðu með hin-
um glannalegustu fyrirsögnum
um það, að ekkert annað en
„nýir glæpir“ geti nú bjargað
Mjólkurfélaginu frá gjaldþroti!
Og það virðist svo, sem það
vaki fyrir blaðinu, að það sé
fyrir aðgerðir Mjólkursölu-
nefndarinnar, að svo sé komið
fyrir félaginu. En var það þá
höfuðtilgangurinn með mjólk-
ursamsölunni, að koma þessu
fyrirtæki á kné? Og þá ef til
vill bakarameisturunum líka!
Ef svo er, þá fara menn að
skilja það betur, af hverju
þetta heiftaræði liefir gripið
rauðliða, þegar farið var að
ræða um þessar breytingar á
fyrirkomulaginu á mjólkur-
sölunni. .
Tilefni blaðsins til þess að
tala um „nýja glæpi“ í sam-
bandi við M. R., virðist vera.
það, að Eyjólfur Jóhannsson
liafi tekið gerðabók mjólkur-
samsölunnar á skrifstofu
samsölunnar og liaft liana með
sér á fund Mjólkurbandalags
Suðurlands! En af því að E. .1.
er meðlimur mjólkursölunefnd-
ar og í stjórn samsölunnar,
virðist hann nú liafa nokkurn
rétt á því, að hafa þau not af
bókinni, að afla fundi mjólk-
urframleiðenda rétlra upplýs-
inga um samþyktir mjólk-
ursölunefndar. Enginn maður
með fullu viti mundi telja slíkt
glæp, en það er auðráðið af
síkum gífuryrðum, að þeir,
sem þau viðhafa, muni þykjast
eiga alhnikið 1 liúfi, ef öðru-
vísi lækist til en þeir vildu.
Það virðist nú liafa verið
leitt í ljós í umræðunum á Al-
þingi, að það sé fyrirætlun
rauðliða, að nota kjötsölulögin
til þess að koma Sláturfélagi
Suðurlands og Kaupfélagi
Borgfirðinga á kné. Alveg á
sama liátt munu þeir ætla að
nota mjólkurlögin, til þess að
koma Mjólkurfélagi Reykja-
víkur á kné, og nota síðan að-
stöðuna til þess að féfletta
framleiðendur og neytendur
til ágóða fyrir flokksstarfsemi
sina. — En í svipinn eru þeir
óttaslegnir og æðisgengnir út
af því, hve augljós hagur fram-
leiðendum væri að því, að telc-
ið vrði tilboðum bakarameist-
aranna og M. R., um dreifíngu
mjólkurinnar, og/á nálurn um,
að framleiðendur uni ekki öðru
en að þeim tilboðum verði
tekið. —
Frá Alþingl
Efri deild.
Þar stóS fyrst á dagskrá í gær
frv. um breytingu á lögum um.
aukaútsvör ríkisstofnana, sem
Magnús Jónsson flytur. Segir flm.
svo í greinargerö aS hingaö til
hafi verslanir rikisins elcki greitt
til bæjarsjóöa nema 5% af hrein-
um ágóSa verslunarrekstrarins. Sú
hugsun, sem hér liggur til grund-
vallar er ekki óeSlileg, því aS meS
stighækkandi gjaldi, eins og vænta
má aö aukaútsvar sé, getur auka-
útsvariö orSiS óeSlilega hátt, þeg-
ar verslunarrekstur meS stórar
vörutegundir er dreginn sarnan i
eitt. En gjaldiS er þó ákveöiö of
lágt, segir flm., og kemur þetta
betur og betur í ljós viS þaS; aS
ríkiS dregur til sín fleiri og fleiri
greinar verslunarinnar, og sviptir
meS því bæina verulegum hluta
útsvarstekna, en á hinn bóginn
fara þarfir bæjanna til tekna vax-
andi og útsvörin því um leiS
hækkandi. Hér er lagt til aS gjald-
iS veröi fært upp í io% og segir
flm. aS þrátt fyrir þaS megi full-
iFylkisstjórinn í þeim hluta
NorSur-Kína, sem hefir veriS af-
vopnaSur af Japönum, gaf út til-
skipun um þaö í nótt er leiS aö
Noröur-Ivína lýsti sig óháö Nan-
kingstjórninni. Menn ætla, aS Jap-
yrSa, aS eins og nú sé komiS út-
svarsálagningu bæti þetta engan
veginn upp þaö skarS, sem ríkis-
verslanirnar höggva í þennan
skattstofn. Frv. þetta kom ekki til
tmiræSu í þetta skifti, því þaö var
tekiö út af dagskrá. Þá var á dag-
skrá breyting á sigiingalögum viS-
víkjandi sjóveðrétti. S. Á. Ól. flyt-
ur þaS. AöalatriSi þess er aö sjó-
veSréttur fyrir kaupkröfum skip-
stjóra og skipshafnar skuli fram-
vegis einnig ná til vátryggingar-
'fjár skips og farmgjalds, meöan
þaö er ógreitt. Þá voru einnig á
dagskrá til 2. umr. frv. um sölu
á skotvopnum og frv. um breyt.
á 1. um bæjargjöld í Vestmanna-
eyjum og héldu þau áfram. Frv.
um skylduvinnu skóla var til i.
umr.
Neðri deild.
Þar var frv. um bæjargjöld á Isa-
firði komiS frá efri deild til einiiar
umræSu og var frv. samþ. meS
þeim breytingum, sem hin deildin
hafSi gert á því. Þá voru nokkur
mál til 2. umr., svo sem breyt. á 1.
um skipulag á fólksflutningum
meS bifreiöum og eftir því eiga
bifreiSastjórar, sem aka 6 sæta-
vögnum og þaSan af minni að vera
;sérleyfisskyldir eins og þeir, sem
stærri vagna hafa. Segir í greinar-
gerð aS ökumenn í þessum minni
vögnum hafi tekiS upp samkepni
viS hina stærri á sumum sérleyfis-
(eiSum, og á nú aS taka fyrir það.
Ennfremur er ákvæði um undan-
þágu frá sérleyfi fyrir bifreiöir,
serri flytja bæSi fólk og um íeiö
framleiSsluvörur bænda, o. fl.
Til 2. umræSu var einnig frv.
um gjald af innlendum tollvöru-
tegundum, og segir þar aS þær inn-
lendar tollvörutegundir, sem flutt-
ar séu til útlanda til sölu þar, skuli
undanþegnar tolli. Frv. er flutt af
iSnaöarnefnd skv. tillögu, sem kom
fram á síSasta iðnþingi. Ennfrem-
ur voru á dagskrá breyt. á kjöt-
sölulögunum og var þaS aðeins
atkvæSagreiösla til 2. umr. og
nefndar, og breyt. á I. um vörutoll,
breyt á 1. um barnavernd og breyt.
á 1. um bráSabirgöaverötoll.
Lokaráðstafanir
Norðmanna
vegna refsiaðgerðanna, sem
koma til framkvæmda á
mánudag.
Oslo 16. nóv.
Á ríkisráðsfundi í gær var geng-
iö frá viSbótartilskipun vegna
refsia'ðgeröanna gagnvart Ítalíu.
Er NorSmönnum banriað aö veita
lán til Ítalíu, og nær bannið til
bankalána og hverskonar lána ann-
ara. Brot gegn fyrirmælum tilskip-
unarinnar varSa sektum, sem nemi
alt að so.ooo kr. eða 2. ára fangelsi.
(Birtur hefir veriö listi yfir vörur
þær og hráefni, sem bannað er að
flytja til Ítalíu. Ákvarðanirnar
gilda frá 18. nóv. (NRP—FB).
Fjölmennið á síðustu hlutaveltu
ársins.
anir standi hér á bak viS. Jaganar
hafa sent 2.500 manna herli# tneð
20 skriödreka til staSar nokkurs
fyrir noröan Peking. Á herlif þetta
aS vera til taks, ef Kínverjar rísa
upp gegn þessari ráðstöfun fylkis-
stjórans. (United Press—FB|.
Forna, fagra speki.
Tileinkað Guðspekifélagiau
á 60 ára afmæli þes».
-—Q—-
í hreysi eða höllum
hvergi er griðastaður.
f efnislieimum öllum
er eg förumaður. , !
Forna, fagra speki,
förumannsins styrkur,
hönd þín burtu lireki
heimsku, kulda og myrkur.
Láttu ljós þitt skína
á leyndardóma alla.
Ljá oss leiðsögn þína
til lifsins helgu fjalla.
Leys hin leyndu gæði,
er liggja undir fönnum.
Flyt þín mildu fræði
ferðalúnum mönnum, —
l
fræðin um hinn Eina,
æðsta takmark manna.
Gerðu brautu heipa
hróðurhugans sanna.
Láltu ótal undur
andans sjónum ljóma.
Kom og sviftu í sundur
sjálfselskunnar dróma.
. I
Vertu kærleikskraftur
Krists á'vegi förnum.
Láttu elda aftur
öllum húmsins börnum.
Forna, fagra speki,
förumannsins styrkur,
hönd þín burtu hreki
heimsku, kulda og myrkur.
Grétar Fells.
Mussolini
boðaði stórráð facista-
flokksins á fund í Róma-
borg í gær.
Osló 16. nóv.
Stórráð facistaflokksins keinur
saman á fund í Rómaborg í dag og
veröur Mussolini sjálfur í forsæti.
Búist er við að að ráðið muni taka
mjög víðtækar ráðstafanir vegna
refsiaðgerðanna, sem nú koma til
framkvæmda á mánudag. — Engin
stórtíðindi hafa borist frá víg-
stöövunum í Abessiniu. (NRP—
FB).
Flokksfundip
1 Oslo.
Osló 16. nóv.
Landsráð Vinstriflokksins er á
fundum í Osló þessa dagana.
Landsráðið hefir með 31:6 atkv.
lýst fylgi sínu viö stefnu Mowinc-
kels fyrv. forsætisráðh. og stjórnar
hans. (NRP—FB).
Osló 16. nóv.
Landsstjórn AlþýSflokksins
kemur saman á fund í Oslo í dag.
(NRP—FB).