Vísir - 11.12.1935, Blaðsíða 2
VÍSIR
f , .... -, ..
Á ad neyda Abessiniu-
menn til þess ad ganga
aö fridartillögrum
Hoare’s og Lavals?
Friðartillögurnar eru mikið ræddar um heim allan,
Eftir Lundúnafregn einni í gærkveldi að dæma, ætla
Bretar að krefjast þess af Abessiniumönnum, að
þeir gangi að tillögunum. Fyrirspurnir í neðri mál-
stofunni og svör Stanley Baldwin við þeim bera
hinsvegar með sér, að ávalt hefir verið tilskilið, að
Þjóðabandalagið fengi þær til athugunar áður en
þær verða teknar til grundvallar samningagerð. —
t áttina iii einræðis.
Takmörkun málfrelsis á Alþingi. — Brot á ákvæð-
um stjórnarskrárinnar. —
Oslo ro. des.
Um allan heitn er nú rætt; mjög
í blöSum um friðartillögur þær,
sem Hoare og Laval hafa komið
sér saman um, og lagðar verSa
fyrir Mussolini, abessinsku stjórn-
ina og ráö ÞjóSabandalagins. Op-
inberar tilkynningar hafa enn ekki
veriö birtar um þessar tillögur, en
aðalefni þeirra er taliö vera, Satn-
kvæmt því, sem frakknesku blöö-
in segja, aö ítalir fái alt Tigre-
héraöi'ö aö undantekinni borginni
Aksum og ýfrráö yfir Ogaden og
Danakilfylkjum, en Abessiniu-
menn fái borgina Assab í Eritreu
og landsvæði þar. Koht utanrikis-
málaráðherra hefir sagt í viötali
við norsk blötS, aö menn ætti aS
fara varlega í að leggja trúnað á
þessar fréttir að svo stöddu.
(NRP—FB).
London io. des.
Ríkisstjórnin kom saman á fund
í dag til þess að ræða friðartil-
lögur Frakka og Breta frá öllum
hliðum. Kom það mönnum mjög á
óvart að fundur þessi var haldinn.
Að afloknum umræðum var fallist
á ýmsar viðaukatillögur, sem voru
sendar frakknesku stjórninni þeg-
ar í stað að fundinum loknum.
Þegar frakkneska stjórnin hefir
fallist á tillögurnar verður Musso-
lini send opinber tilkynning um
þær. Að því er United Press hef-
ir fregnað mun breska stjórnin
krefjast þess, að Abessiniustjórn
fallist á tillögurnar, án þess þó að
fylgja kröfum þar um fram með
hörku. (United Press—FB).
Forseti n. d. hefir borið fram
frv. um breytingu á gildandi þing-
sköpúm' Alþingis' ög eru þær-
breytingar sern gera á all-margar.
en flestar smávaégilegar, henia
ákvæði, sem opinbera svo ljóslega
■ þann einræðisanda, sem ríkir með-
(al stjórnarliðsins, að vcrt er áð'ál-'
. menningur gefi þeirii gaum.
..Takmörkun málfrélsis. ,
, Önnur breytingin er þess efnis,
' að „ef umræður dragast úr hofi
; fram getur forsefi stun^ið "upp á^.
að þeim sé hætt. Svo 'getur og íor^
seti lagt til, hvort hejdur e.r.í byrjr
: un umræðu eða slðár, að umræðu
um mál skuli lokið að liðnum á-
kveðnum tíma. Eigi má þó, meðan
nokkur þingmaður kveður sér
hljóðs, takmarka ’ ræðutíma viö
rieina úmfæðu meira en svó, að
hún standi skemur en 2 klst. alls.
Ræðutími ráðherra telst ekki hér
með og framlengist umræðan sem
svarar ræðutíma þeirra. Þingdeild
sú, sem hlut á að máli, sker úr
þvi umræðulaust hvort tillögur
forseta skuli teknar til greina.“ —
Til viðbótar þessu er ákveðið að
forseti skuli skifta ræðutímanum
riiður milli fylgismanna og and-
stæðinga máls.
Hneykslanleg meðferð meiri
hluta allsherjarnefndar á
málinu.
Thor Thors skýrði frá þvi í um-
ræðum í n. d. í gær, að þegar þetta
frv. kom fyrir allshn. þá neituðu
stjórnarliðar að ræða það og ekki
var við það komandi, að frv., yrði
borið saman við gildandi lög. Svo
mikið lá á að hraða þessu og svo
var það fast ákveðið fyrirfram, að
þessar breytingar skyldu ganga
fram, að stjórnarandstæðingar í
nefndinni voru ekki virtir viðtals
um málið.
Það er alkunnugt hve framkoma
núverandi valdhafa á þingi gagn-
vart minnihlutanum er í einu og
öllu ósamrýmanleg því, sem gilda
ætti í lýðræðislandi. Alþingi getur
naumast lengur talist Alþingi ís-
lendinga, heldur einungis sam-
koma þess flokks manna, sem
meirihlutavaldið hefir og öllu ræð-
ur, en litlu skeytir um tillögur og
vilja þeirra manna, sem skipa
minni hlutann. Mál, sem valdhaf-
arnir hafa ákveðið að skuli ganga
fram eru barin áfram beint af aug-
um — andstæðingar naumast virt-
ir viðtals við undirbúning málsins
og tillögur þeirra síðan strádrepn-
ar við atkvæðagreiðslur, þegar bú-
ið er að handjárna flokksmennina.
Það þýðingarmesta, sem
minni hlutinn á eftir, er
málfrelsið!
Hingað til hefir málfrelsi minni
hlutans verið það vopnið, sem
hann átti skæðast. Undir umræð-
um gat hann óhindraður mótmælt
viðhöfðu gerræði og gagnrýnt
stefnu stjórnarinnar. En nú á að
takmarka þann rétt og það fer ein-
mitt mjög vel saman, að við af-
greiðslu þessara tillagna um
skerðingu málfrelsis minnihlutans,
skuli valdhafarnir hafa sýnt sig
í því að virða þá ekki viðtals í
nefnd og neita jafnvel að frv. væri
athugað hvað þá rætt! Með þess-
um ákvæöum, sem hér á að lög-
festa, getur meiri hlutinn hvenær
sem honum þóknast bundið fyrir
munn andmælendanna. Forsetinn,
sem er úr hópi meiri hlutans, dæm-
ir um hvenær umræður séu orðnar
svo langar að hætta skuli. Og áð-
ur en umræða hefst getur hann
skamtað andstæðingunum stuttan
tíma til gagnrýni sinnar og þar
með raunverulega þurkað út þýð-
ingarmesta réttinn, sem minni
hlutinn á eftir, eins .ög þingstörf-
um nú er hagað.
í
Flóttinn frá gagnrýni and-
stæðinganna.
Minni hlutíriri héfir neytt þessa
réttar sins ósp.art og ósleitilega,
’cins og h'onuiri ber skylda til, og
hefir oft undan sviðið. Nýlega
vildi Eysteinn fjánnálaráðherra
sléþþa umræðu i n. d. um hinar
riýjú skátta-'og tollaálögur sinár
oc láta frv. fara orð,alaust til
..nefndar. Hann var orðinn þreyttur
'á að standa fratnmi: f-yrir ádeil-
um andátæðinga siriná eiris og rati,
vsem. í engu botriar, \og ' hefði
konrið sér vel að 'gétá skötið 'sér
undir eitthvert ákvæði, sem losaði
liarin við þá'gagprýni. Hér er á-
kvæðið komið fram i þessu frv.,
sem stjórnarlíöar leggja svo mikið
kapp á að koma fram, undir því
yfirskini, að það eigí að „bæta
starfsaðferðir þingsins“ — og
tryggja þingræðið, eins og Stef.
Jóh. Stef. konist að orði í gær!!!
Stjórnarskráin brotin — og
falsaðar atkvæöagreiðslur.
Hin aðalbreyting stjórnarliða á
þingsköpunum er fólgin í allein-
kennilegri skýringu á ákvæðum
stjórnarskrárinnar. — Stjórnar-
skráiri mælir svo fyrir, að „þá er
Alþingi skipar eina málstofu
(sameinað Alþingi) þurfi, til þess
að gerð verði fullnaðarályktun um
mál, nieira en helmingur þing-
manna beggja deilda að vera á
fundi og taka þátt í atkvæða-
greiðslu, og að í hvorri deild þurfi
meiri hluti þingm. að vera á fundi
og greiða þar atkvæði. Þessi á-
kvæði á nú að skýra svo í þing-
sköpum, að þingmaður, sem er á
fundi, en greiðir ekki atkvæði, án
lögmætra ástæðna, skuli teljast að
taka þátt í atkvæðagreiðslunni og
greiða atkvæði, og skal svo afl at-
kvæða ráða úrslitum um málin. Er
þessi lagaskýring tekin eftir
danskri fyrirmynd, og gilti hér
einnig áður, en er nú afnumin fyr-
ir löngu. Hér er um leið að ræða
til þess að frv., sem stjórnarfylk-
ingin hefir ekki getað komið sér
saman um, geti náð fram að ganga
með því að hinir óánægðu mæti
ekki eða sitji hjá við atkvæða-
greiðslu. Það stríðir auðvitað á
móti heilbrigðri skynsemi, að þm.,
sem neitar að greiða atkvæði, geti
talist að taka þátt í atkvæða-
greiðslu eða greiða atkvæSi. En
með þessu er opnuð leið til þess
að löggjöf, sem ekki hefir fylgi
meiri hluta þings, geti náð fram aö
ganga og öðlast „löglegt" sam-
þykki með minni hluta atkvæða.
Er með þessu verið að löghelga
fölsun á atkvæðagreiðslum.
Sjálfst.mennimir Thor Thors
og Jakob Möller deildu harðlega
á frv. og bar Th. Th. frarn rökst.
dagskrá þess efnis, að málið yrði
nú látið niður falla, þar til álit
kæmi frá nefnd, sem skipuð var
1934, til að íhuga endurbætur á
þingsköpunum. Th. Th. lagði á-
herslu á, að nauðsynlegt væri að
sem best samkomulag væri um
þær reglur, sem allir þingm. ættu
að lúta — þingsköpin, og því yrði
þessi leið reynd. — Umr. var frest-
að áður en dagskráin kæmi til at-
kvæða.
Frá Alþingi
í gær.
í efri deild voru tvö mál til 2.
umr., frv. um breyt. á 1. um Bruna-
bótafél og frv. til 1. um heimild
fyrir hreppsnefnd Sauðárkróks-
hrepps til álagningar vörugjalds.
Samtal miiii íslaods
og Soðnr'Amsríkn.
Reykjavík (FÚ)
í gær fór fram fyrsta samtal
milli íslands og Suður-Ameríku.
Átti Guðmundur Hlíðdal, póst- og
símamálastjóri, reynslusamtal við
félag , þaö, International Tcle-
graph and Teleþhoné Gov,‘ í Bue-
nos Aires, sem rekur þráðlaus tal-
sambönd ‘þaðari. -Heyrðist allvel
héðan, en lakar frá Buenos Aires.
Annað reynslusamtal fór fram í
morgun og heyrðjgt þá betur, enda
truflanir þá iriinni. Vegálerigdin
muri vera um 10—12000 km. eða
nálægt því. jafnmikjl þg þvermál
jarðar, en rúmum þriðjungi lengri.
hefdur en til Japan.
í Argentínu er nú hásumar og
var þar sagður 32 stigay.hiti, ep
snjór eöa ís sést' aldpei í BuériOS
Aires,
Þá tjáði landsímastjóri frétta-
ritara útvarpsíns að saníningar
stæðu nú yfir rnilli íslands og
ýmsra landa um að á tímabilinu
frá 21. des. til þrettánda dags jóla
þ. e. 6. janúar yrðu leyfð jóla og
nýárssamtöl fyrir hálft gjald. Hef-
ir Danmörk, Noregur, Svíþjóð og
Þýskaland þegar tjáð sig þessu
samþykk og er vænst að Bretland
geri hið sama. Samtöl þessi rnega
þó ekki vera um verslunarmál:
Loks gaf landsímastjóri þess að
í ráði væri að lækka frá næsta ný-
ári gjöld fyrir hraðskeyti innan-
lands úr þreföldu gjaldi niður í
tvöfalt gjald í samræmi við það,
að nú þégar er búið að lækka hrað-
skeytagjöld til útlanda.
Barnaveiki á
Hellissandi.
Hellissandi 10. des.: (FÚ)
Barnaveiki hefir stungið sér
niður á nokkrum heimilum á Hell-
issandi. — Áttunda hvert sóknar-
barn hefir tekið veikina, og barna-
skólanum því verið lokað um óá-
kveðinn tíma. — Auk þessa hafa
nokkur börn innan skólaskyldu-
aldurs og 2 fullorðnir menn sýkst
og eitt barn dáið.
Héraðslæknir, sem er heimildar-
maður fréttaritara, telur að búast
megi við að samgöngur milli Ól-
afsvíkur og Hellissands verði
bannaðar.
Tafari Makkonen
sjúkrahús í Dessie
var greinilega auðkent
með Rauða Kross merki
á þakinu.
Oslo 10. des.
Blöðin í Bergen skýra frá því,
að Petra Hövik yfirhjúkrunar-
kona, sem særðist alvarlega, þegar
ítalir gerðu loftárás sína á Tafari
Makkonen sjúkrahúsið við Dessié,
sé 38 ára að aidri. Foreldrar henn-
ar fengu nýlega bréf frá henni og
myndir af sjúkrahúsinu og sést
Rauða Kross merkið á þaki húss-
ins mjög greinilega. (NRP—FB).
Var fyrra vísað áfram en hitt felt.
1 neðri deild var auk breytingar-
innar á þingsköpum, einnig rætt
um frv. til framfærslulaga, til 2.
umr. Allar breytingartill. voru
teknar aftur til 3. umr. og frv. af-
greitt áfram. í sameinuðu þingi
var all-langur fundur þar sem
fjárlögin voru til frh. 2. umr. og
var rætt um breytingartillögur,
bæði einstakra þingmanna 0 g
nefndar við þau, en síðan var um-
ræðu frestað.
í Reybjavík.
Við skráselningu þá uin át-
vinnuleysingja, sem fram fór
hér í bænum í byrjun nóvem-
bermánaðar s. 1., voru skrásettir
605 menn, samkvæmL því er
Hagtíðindi greina. — Þegar
skráning fór íram höfðu þó 195,-
þessara manna vinnii, en „böfðii
verið vinnuláusir lengri é'ðá -
skemri tíma á undanförnum 3
þrem mámiSum“. Hins veg- V
ar voru . 510 mcnn ■ með v
öllu álvinnulaúsir þegar ý
skráning fór fram, og. er það
rúmlega fjórðungi lægri tála Ú
heídur en úm sámá' leyti í fýri;a. *
— Síðan skýrslur hófust um jj
þetta efni, liefir jula skráðra %
mamia, er vorti atvimiulausir
um mána'ðamótin október og
riövember (1. növ.) ár livert :
verið sem hér segir;
1929 .;.. 48
1930 .... 90
1931 ..... .... 623
1932 ... 731
1933 .... .... 569
1934 ,... 719
1935 .... 510
Samkvæmt þessu er atvinnu-
leysi bér í Reykjaýík talsvert
minna nú (eða var 1. nóv.) en
á sama líma í fyrra, og má víst
að miklu leyti þakka það Sogs-
virkjuninni. Þar liafa verið og
eru enn márgir menn í vinnu.
Framsóknarliðið reyndi t í
lengstu lög að bregða fæti fyrir
virkjunina, en varð þó að gef-
ast upp við það illvirki að lok-
um. — Um eitt skeið vildi það
selja útlendingum virkjunar-
réttinn í hendur og þar með of-
urselja þetta mikla nauðsynja-
mál og menningarmál í hendur
erlendum félögum, sem vitan-
lega Jhefði ekki liugsað um ann-
að en að græða sem allra mest.
— En lieilbrigð skynseini
Reykvíkinga tók slíku all-fjarri
og á því skeri strönduðu þau
„fjárafla-plönin“, sem kunnugt
er.
Snappap
opnstup á suð^
upvígstödv-
unum.
Oslo 10. des.
Frá Addis Abeba hafa borist
fregnir um það, að snarpar orust-
ur hafi verið háðar allan daginn
í gær á suðurvígstöðvunum. Mest
var barist fyrir norðan Dolo og er
talið, að 1600 menn, þar af 700 ít-
alir hafi særst í bardögunum.
(NRP—FB)
Frá vígstöðvunum.
London 10. des. (FÚ)
Fréttir frá vígstöðvunum í A-
bessiniu herma, að undanfarna
daga hafi orðið smáskærur milli
Ítalíu og Abessiniumanna, eink-
um á norðurvígstöðvunum. í opin-
berri tilkynningu frá Badoglio
hershöfðingja er sagt frá einni
slíkri viðureign, og að ítalir hafi
borið sigur úr býtum.. Hafi þeir
barst í návígi með byssustingjum,
og Abessiniumenn skilið eftir 15
fallna menn á vígvellinum, en úr
liði ítala hafi farist 7 innfæddir.
Fréttir um skærur, sem eiga að
hafa átt sér stað síðastliðna viku
eru nú að berast frá Addis Abeba,
og er Abessiniumönnum talinn
sigurinn i þeim fréttum. Þá er þess
getið að 50 menn úr einkaher Ras
Guksa hafi yfirgefið hann, og
berjist nú á hlið keisarans.
Kólera í ítalska hemum í
Somalilandi.
Sagt er, að kólera hafi brotist
út meðal ítalskra hennanna í ít-
alska Somalilandi.
Anthony Eden lýsti yfir því, undir umraöðum
í neðri málstofunni í gær, að friðartillögurn-
ar yrði fyrst og fremst að vera þannig úr garði
gerðar, að Þjóðabandalagið geti fallist á þær.
Baldwin sagði, að ekki væri um neina tilraun
að ræða til þess að knýja Þjóðabandalagið til
þess að samþyltkja frið á grundvelli tillag-
anna. y ^
London, 11. desember.
Fregnir þær, sem birtar hafa verið um efni friðartillaga
Hoare og Lavals hafa vakið mikla óánægju og andúð í Bret-
landi. Gætti þessa mjög í ræðum, sem fluttar voru í neðri mál-
etofunni í gær. Af stjórnarinnar hálfu töluðu þeir Stanley Bald-
win forsaetisráðherra og Anthoný Eden, þjóðabandalagsráð-
berra bresku stjórnarinnar, en hann er sagður mjög mótfall-
inn friðartillögunum, að minsta kosti í þeirri mynd, sem þær
komu í frá Hoare og Laval, og beitti hann sér fyrir breytingum
á þeim á stjórtiarfundinum í gær. Baldwin lýsti yfir því undir
umræðunum í neðri málstofunni í gær, að það væri alls ekki
um neina tilraun að ræða hér, til þess að knýja Þjóðabandalag-
ið til þess að fallast á friðarskálmála á þeim grundvelli sem
hér væri lagt til, en Anthony Eden kvað svo að orði, að friðar-
tillögurnar yrði fyrst og fremst að vera þannig úr garði gerðar,
^að Þjóðabandalagið gæti fallist á þær. (United Press — FB.).
Friðartillögurnar sendar til Rómaborgar og
Addis Abeba. — Laval og Eden leggja af stað
til Genf í dag. — Fimm manna nefndin fær
að líkindum tillögurnar til meðferðar í stað
18 manna nefndarinnar, eins og til hefir
staðið.
París, 11. desember.
Laval hefir lýst yfir því, að endurskoðaðar friðartillögur,
sem frakkneska og breska stjórnin séu einhuga um, hafi verið
sendar ríkisstjórninni á Ítalíu og ríkisstjórninni í Abessiniu.
Laval lýsti því jafnframt yfir, að hann mundi leggja af stað til
Genf á miðvikudag og ferðast í sömu lest og Anthony Eden, til
þess að ræða við hann frekara um friðartillögurnar, áður en
fimm manna nefndin kemur saman á fund í Genf, en það eru
nú taldar Líkur til, að henni verði falið að athuga friðartillög-
urnar fyrst, en ekki 18 manna nefndinni, eins og ráð hefir ver-
ið fyrir gert. (United Press — FB.).