Vísir - 13.12.1935, Síða 3
VÍSIR
sögí5u fram, a?5 nauösynlegt sé, a'ð
endurskoða friðarsamningana, og
Þjóðabandalagið verði að viður-
kenna, að opna verði leið að því
marki. Þjóðverjar eru, að því er
Hitler hefir fullyrt í ræðu, ávalt
‘fúsir til samvinnu við aðrar þjóðír
til öryggis friðinum í álfunni. Láta
Þjóðverjar svo á, að ef bandalagið
breytti um stefnu, að því er frið-
arsamningana snertir, mundi það
eigi aðeins geta hindrað að styrj-
cld eins og sú, sem nú er háð milli
ítala og Abessiniumanna, breidd-
ist út, heldur gæti það, með því að
taka málin réttum tökum á réttum
tírna kæft styrjaldir í fæðingunni.
Þjóðverjum ætti að veitast auð-
veldara að hverfa aftur til Genf,
þar sem þeir hafa haft fram kröf-
ur sínar í vígbúnaðarmálum, „jafn-
rétti“ það í þeim málum, sem þeir
hefði eigi getað fengið með því
að vera í bandalaginu og vígbú-
ast á laun. Þriðja ríkið vígbýst
eins hratt og fjárhagsástæður þess
leyfa og ákvað fyrir löngu, að
hvika ekki frá þeirri stefnu, hvaö
sem Þjóðabandalagið eða undir-
skrifendur Versalasamninganna
segði þar um.
Þjóðverjar hafa veitt því nána
athygli, að stefna Breta gagnvart
afvopnunarmálunum er breytt. —
Þeir benda á það, að samkvæmt
stefnuskrá Þj óðstjórnarflokkanna
í kosningunum vilja þeir styðja
Þjóðabandalagið, en jafnframt var
lögð áhersla á þörfina á auknum
vígbúnaði. Og Þjóðverjar álykta
sem svo, að ef iBretar geti haldið
áfram að auka vígbúnað sinn og
fylgja þeirri stefnu, að styðja
bandalagið í hvívetna, geti hið
sama gilt fyrir Þjóðverja, gangi
þeir í það á ný.
Þegar Abessiniudeilan er til
lykta leidd munu Þjóðverjar án
efa leggja meiri áherslu á að
stofna til nánari samvinnu við
önnur stórveldi. Og án efa munu
þeir gerá einhverjar kröfur, gangi
þeir á ný í Þjóðabandalagið, ef
til vill um nýlendur, Þjóðabanda-
laginu mundi án efa verða styrkur
að því sem heimsveldi, ef Þjóð-
verjar gengi í það aftur. —
Þjóðverjar hafa ekki hikað við að
taka fram hvaða réttindi þeirkrefj-
ast að bandalagið viðurkenni. Og
þeir, sem eru einíægastir og bestu
vinir Þjóðverja vona einnig, að
þeir muni taka á sínar herðar! alla
þær skyldur, sem því eru sámfara,
að taka þátt í samstarfi þjóðanna
í Genf.
Ef Þýskaland gengur í banda-
lagið í náinni framtíð má þakka
það því, að um aukinn skilning
er að ræða milli Breta og Þjóð-
verja. En þegar að því kemur, að
þessi mikla þjóð sendir aftur full-
trúa til Genf til þátttöku í alþjóða-
viðræðum og alþjóðasamvinnu um
vandamál þjóðanna, er um stórvið-
burð að ræ|5a, sem allir ættu að
fagna yfir.
a.
Stjðrnarskrá
Egiptalands
var lögleidd á ný í gær, að
fengnu samþykki Breta. —
London 12. desember.
Egipska stjórnin tók á fundi sín-
um í gær til athugunar hvort
stjórnarskráin frá 1923 skyldi aft-
ur lögleidd og var samþ. að leggja
það til, að svo væri gert. Hefir
Fuad konungur í dag gefið út til-
skipun um það, að stjórnarskráin
skuli lögleidd á ný en fulltrúi Breta
hafði áður tilkynt, að stjórn Bret-
lands væri því ekki mótfallin, að
stjórnarskráin væri endurreist.
Stjórnarskráin var feld úr gildi
1930 og löggjafarvaldið fengið
konungi í hendur. Það var Nessim
Pasha, sem kom þvi til leiðar, að
Bretar veittu samþykki sitt til end-
urreisnar stjórnarskrárinnar nú.
(United Press—FB).
Fuad skrifafti nodir
með fjrirvara.
London 13. des.
Nýjar fregnir frá Kairo herma,
að Fuad konungur hafi ekki fall-
ist skilyrðislaust á endurlögleið-
ingu stjórnarskrárinnar og hann
hefir ekki enn sett undir tilskipun
hér að lútandi fullnaðarundirskrift
heldur skrifað undir með fyrir-
vara. Áskilur Fuad sér rétt til þess
að fresta fullnaðarundirskrift, þar
til lokið er samkomulagsumleitun-
um, sein byrja í dag, og standa
yfir nokkurn tima. Talið er, að
rætt verði m. a. um herafla Breta
í Egiptalandi, en hann er þar nú
mikill og vilja þjóðernissinnar, að
Bretar fari á brott með hann til
Suezskurðar-svæðisins, en annars
er talið líklegt að samkomulag ná-
ist um herafla Breta meðan núver-
andi ástand helst, að því er Egipta-
land snertir. Ennfremur er talið
líklegt að yfirráðin yfir Sudan
beri á góma, en þau hafa Bretar,
og hafa þjóðernissinnaðir Egiptar
viljað fá þau Egiptum í hendur.
Líkur eru þó ekki til neinna breyt-
inga i þeim efnum. (United Press
—FB).
I*ér Irafldk J>ad í yöa**
höndum, ad atvinnan
aukiet í landinu.
VÆRÐARVOÐIR eru notaleg
JÓLAGJÖF — ef þær eru frá
Álafossi
Þingholtsstræti 2,
MÚSIKKLÚBBURINN heldur dansleik
annað kvöld kl. ÍO á Hótel Island.
Aðgöngumiðar á 2,00 í Hljóðfærahúsinu og K. Viðar.
Einhver skemtilegasta barnabókin
sem kemur út nú fyrir jólin, er áreiðanlega
KARL LITLI
— saga frá Draumamörk. — Þetta er yndislegt
æfintýri, eftir góðskáldið vestur-íslenzka, Jóli.
Magnús Bjarnason, sem áður hefir skrifað „Ei-
rík fjansson", „Brasilíufarana“ og margar fleiri
skemtilegar sögur. Bæði ungir og gamlir hafa
áreiðanlega ánægju af að lesa þessa bók, og það
ofiar en einu sinni. Að sumu leyti minnir Karl
litli á hið heimsfræga æfintýri „Alice in Wond-
erland", að því er snertir frásagnarlist og æfin-
týrablæ.
Einar H. Iívaran rithöíundur segir um þessa bók:
„Karl litlj, járnbrautarferðasaga litla drengs-
ins yfir á Draumamörk, er samboðin hverju
heimsfrægu æfintgraskáldi". (Vestan um liaf,
bls. XLVÍII). Margar fallegar myndir eftir Jóh.
Briem listmálara prýða bókina.
Verð 5 kr. í fallegu bandi. Aðalútsala hjá:
Bákiiverslnn - Sfmi ‘Á72ii
Hjóna-
vígslur.
Árið sem leið var tala hjóna-
vígslna á öllu landinu 731. —
„Meðal-mannfjöldi ársins, sam-
kvæmt prestamanntölunum í
byrjun og lok ársins, hefir verið
114.055 (sem reyndar mun vera
heldur lægra en hinn raunveru-
legi mannfjöldi). Hafa þá kom-
ið 6.4 hjónavígslur á hvert þús-
und landsmanna og er það
hærra hlutfall heldur en næstu
undanfarin ár svo sem sjá má
á eftirfarandi yfirliti.
Ár. Hjónavígslur.
1916—’20 .... 594 .. 6.5 %
1920—’25 .... 571 .. 5.9 —
1926—’30 .... 691 .. 6.6 —
1931 ........ 680 .. 6.2 —
1932 ........ 678 .. 6.1 —
1933 ........ 696 .. 6.2 —
1934 ........ 731 .. 6.4 —
Af hjónavígslum 1934 voru
122 borgaralegar hjónavígslur
eða 16.7% af öllum hjónavígsl-
unum. Fer borgaralegum hjóna-
vigslum fjölgandi svo sem eftir-
farandi yfirlit sýnir:
Ár. ,
1916—’20 (meðaltal) 4.1%
• 1921—’25 — 7.7 —
1926—’30 — 7.9 —
1931 ............... 8.7 —
1932 .............. 11.9 —
1933 .............. 13.6 —
1934 ............... 16.7 —
(Hagtíðindi).
Frá dr. Alexander
Jdhannessyni.
Viðtal við hann í hollensku-
blaði.---
12. des. (FÚ).
Þann 14. f. m. flytur Utrechtsch
dagblað langt viðtal við prófessor
Alexander Jóhannesson, sem dvel-
ur í Hollandi í vetur. Ræðir hann
fyrst um það, hversu vel honum
og frú hans geðjist að dvölinni í
Hollandi, en brátt berst talið að
íslenskum efnum, og spyr blaða-
maðurinn prófessor Alexander
fyrst að því, hvernig háttað sé um
flugfefðir á íslandi, með því að á-
hugi fyrir þeim máluip sé mjög
mikill í Hollandi. Skýrir prófessor
Alexander síðan frá þeiin tilraun-
um, sem gerðar hafa verið til flugs
á íslandi. Þá skýrir hann frá ýms-
um verklegum framkvæmdum síð-
ari ára, ræðir um útbreiðslu og
viðgang blaða, timarita og útvarps,
skýrir ítarlega frá starfsemi Há-
skólans í Reykjavik, og ræðir að
lokum nokkuð um íslenskar bók-
mentir.
Daginn eftir flytur sama blað
ítarleg grein um fyrirlestúr, sem
prófessor Alexander hafði þá hald-
ið um ísland, við ágæta aðsókn. í
þeim fyirlestri ræddi dr. phil.
Alexander um íslenska sögu og
bókmentir að fornu og nýju, rekur
allítarlega sögu Alþingis og þeirra
stofnana og menningarfyrirtækja,
er mest hefir kveðið að á íslandi.
Sama dag flytur einnig De Nieu-
we Visscherij Courant grein um
fyrirlestur prófessors Alexanders,
og langt viðtal við hann, um ís-
land og íslensk málefni.
Fríklrkjusafnuðurinn
i Reykjavík tilkynnir.*
Að undangenginni umsókn, hefir
háttvirt bæjarstjórn Reykjavíkur
góðfúslega látið Fríkirkjusöfnuð-
inum í té lóðina nr. 36 við Garða-
stræti, til fullrar eignar og um-
ráða, með því skilyröi, að innan á-
kveðins tíma reisi söfnuðurinn þar
hús handa þjónandi prestum sínum
til íbúðar á hverjum tíma. Húsið
verður því prestssetur og eign
safnaðarins í framtíðinni.
Fyrir þessa örlátu gjöf og góðan
og eindreginn skilning á málinu,
vill stjórnin hérmeð, fyrir safnað-
arins hönd, votta bæjarstjórninni
alúðarfylstu þakkir.
Þar sem þessu máli er nú þannig
komið, fyrir sérlega góðar und-
irtektir einstakra manna og félaga
innan safnaðarins, bæði urn pen-
ingaframlög og gefna vinnu, þá
heíir stjórn Frikirkjusafnaðarins
ákveðið að hefjast handa og láta
nú þegar byrja á byggingu húss-
ins.
Frá fundi 18 manna
nefndarinnar í gær.
Eden og Laval fluttu ræður á fundinum. Nefndar-
menn hafa fengið tillögur Lavals og Hoare til at-
hugunar, en ráð Þjóðabandalagsins kemur saman
til fundar 18. þ. m. til þess að taka ákvarðanir í mál-
inu.-
Genf 12. desember.
Átján manna nefndin kom sam-
an á fund síðdegis í dag. Því hef-
ir verið frestað um stundarsakir,
að ákveðá hvort leggja skuli bann
við útflutningi olíu, kola, járns, og
stáls til Italíu og verður nú rætt
um tillögur þær, sem þeir Laval og
Hoare komu sér saman um að
leggja fram, til lausnar deilu ítala
og Abessiniumanna. Fær 18 manna
nefndin nú tillögurnar til athug-
unar, en ákveðið hefir verið, að ráð
Þjóðabandalagsins komi saman á
fund 18. þ. m. til þess að ræða til-
lögurnar. Allir fulltrúarnir, sem
sæti eiga í 18 manna nefndinni,
hafa fengið tillögurnar til athug-
unar. Á fundinum í dag fluttu þeir
ræður Anthony Eden, Þjóðabanda-
lagsráðherra Breta, og Laval. (Un-
ited Press—FlB).
Ræða Edens.
London 12 des. (FÚ)
Þegír fundur hafði verið settur
í dag í 18 manna nefnd Þjóða-
bandalagsins, hélt Anthony Eden
ræðu. Sagði hann fundinum írá
því, að samkvæmt ósk refsiað-
gerðanefndarinnar hefðu Englend-
ingar og iFrakkar gert uppkast að
helstu samningsatriðum, sem þeir
legðu til að tekin væru til grund-
vallar friðarsamningi milli Ítalíu
og Abessiniu. Mr. Eden lagði á-
herslu á það, að tilgangurinn hefði
æfinlega verið sá, að leggja málið
undir dóm Þjóðabandalagsins, og
bað fundarmenn að minnast þess,
að þessar tillögur væru hvorki
endanlegar né að nokkru leyti ó-
raskanlegar. Ef aðrir meðlimir
Þjóðabandalagsins gætu ekki felt
sig við þær. hefðu Bretar og
Frakkar ekkert við því að segja,_
annað en það, að þær væru lagðar
fram í því skyni, að gerðar væru
við þær athugasemdir og þær
breytingar, sem samkomulag kynni
að verða um. Tilgangur Breta,
sagði hann, væri enn sá sami og
hann hefði verið : í fyrsta lagi, að
reyna að fá bundinn enda á deil-
unni eins fljótt og unt væri, á þann
hátt, sem allir aðilar mættu við
una, og aö efla viðgang ÞjóSa-
bandalagsins.
Mr. Eden sagði, að sér sýndist
ráðlegast, að Þjóðabandalagsráðið
væri beðið að koma saman, og
taka tillögurnar til athugunar og
að það skyldi ákveða, á hvem hátt
skyldi með þær farið.
Laval talaði
þar næst, mjög í sama anda og Mr.
Eden.
Endurreisn fimm manna nefndar-
innar mishepnaðist.
ÁSur en fundur hófst í 18-manna
nefndinni í dag, hafði Laval átt
langar viðræður við fulltrúa Spán-
ar, Póllands og Tyrklands. Er álit-
ið að hann hafi ætlaö að endur-
reisa fimm manna nefndina, og
ætlað henni það hlutverk, að taka
sáttatillögurnar til greina, en i
þessari nefnd voru áður fulltrúar
þessara áminstu ríkja, auk Eng-
lands og Frakklands. En mælt er,
að enginn þeirra muni hafa viljað
taka á sig ábyrgðina, og hafi æskt
þess, að tillögurnar yröu lagðar
fyrir Þjóðabandalagsráðið, og að
það skyldi ákveða m. a. hvort það
vildi að 5-manna nefndin starfaði
áfram.
Viðtal við Haile Selassie.
London 12. des. (FÚ)
í viðtali, sem Abessiniukeisari
átti í gær við blaðamenn í Dessie,
lét hann svo um mælt: í sambandi
við tillögur þær, sem gerðar hafa
verið til grundvallar sáttaumleit-
ana milli Abessiniu og ítalíu, vill
abessinska stjórnin leiða athygli
manna að yfirlýsingu þehri, er hún
gaf út 10. október. Abessiniumenn
hafa aldrei óskað styrjaldar, né
gert neitt til þess að koma henni
af stað, en nú ber þeim skylda til
að verja land sitt. Stjórn Abessi-
niu gekk eins langt og unt var í
ívilnunum til Ítalíu, i tilboði því er
hún geröi í sumar, í von um að
geta afstýrt ófriði. En það tilboð
var ekki þegið. Ófriðurinn var haf-
inn. Og vér höfum ekki í hyggju
að beygja oss fyrir erlendu her-
valdi.
ítölsk verðhréf hækkandi.
Á Ítalíu hafa sáttatillögurnar
ar haft þau áhrif á kauphöllinni, að
öll ítölsk verðbréf hafa stigið í
verði í dag.
Átján manna nefndin
kemur aftur saman á morgun. — Skýrsla sérfræð-
inga í refsiaðgerðamálunum verður rædd.
Genf 13. des.
Átján manna nefndin frestaði
fundum sínum í gær til þess: m. a.
að sérfræðingarnir sem hafa haft
með höndum athuganir í sambandi
við refsiaðgerðirnar geti lokið við
skýrslu, sem er væntanleg frá
þeim, m. a. hvort tiltækilegt sé að
Vill stjórnin láta þess getið hér,
þeim meðlimum safnaðarins til
frekari upplýsingar, sem eru mál-
inu ekki nægilega kunnugir, að
leitast verður við að koma húsinu
upp að mestu og helst öllu leyti
með frjálsum samskotum, en alls
ekki með því að íþyngja söfnuðin-
um. Þeir, sem styrkja vilja þetta
fyrirtæki, með peningum eða
vinnu, í smærri eða stæAi stíl, eru
vinsamlega, beðnir að snúa sér til:
Frú Ingibj. Isaksd. Vesturv.g. 6,
— Lilju Kristjánsd., Laugav. 37,
— Jóh. Egilsd., Ingólfsstræti xo,
Jóns Arasonar, Hverfisgötu I04a,
Sig. Halldórssonar, Þingholtsstr.
7, og formanns safnaðarins.
Saf naðarst j ómin.
leggja á olíubann o. s. frv. Skýrsla
sérfræðinganna verður búin á
morgun, að því er fastlega er bú-
ist við, enda héfir 18 rnanna nefnd-
in verið boðuð á fund þá, til þess
að ræða skýrslun^. (United Press
—FB).
Frá norska Raúða Kross
leiðangrinum.
Oslo 12. des.
Frá Hamborg er símaö til Norsk
Telegrambyraa, að norski Rauða-
Kross leiðangurinn til Abessiniu
leggi af stað frá Brernen í dag. Er
búist við, að hann verði kominn til
Djibouti i Franska Somalilandi 3.
janúar. (NRP—FB).
„Times“ ávítar frakjinesk blöð.
Berlín 11. des. (FÚ)
„Times“ ávítar frönsk blöð fyr-
ir þann skort á þagmælsku, sem
þau hafi sýnt í umræðunum imx
tillögurnar. Blöð stjórnarandstæð-
inga ráðast ákaft á tillögumar.