Vísir - 13.12.1935, Qupperneq 4
VÍSIR
Tö| T T Kaupid þessa ágæta unglingasögu í dag og gefid hana vin*
MaM A Æi A # um ydai* fypir jólin.
E. T.2
VeðritS í morgun.
í Reykjavík 3 stig, -Bolungar-
vík 3 stig, Akureyri 1, Skálanesi
o, Vestmannaeyjum 5, Sandi 2,
Kvígindisdal 3, Hesteyjd 3, Gjögri
3, Blönduósi 2, Siglunesi 2, Gríms-
ey 4, Raufarhöfn o, Skálum 2,
Fagradal 2, Papey 1, Hólum í
Hornafiröi o, Fagurhólsmýri 3,
Reykjanesi 4 stig. Mestur hiti hér
í gær 5 stig, minstur 2. Úrkoma
1.6 mm. — Yfirlit: Háþrýstisvæði
fyrir suöaustan ísland, en grunn
iægS fyrir noröan ísland og vest-
an. — Horfur: SuSvesturland:
SuSaustan og sunnan kaldi. Rign-
ing öSru hverju. Faxaflói, BreiSa-
fjörSur, VestfirSir: SuSvestan
gola. Smáskúrir. NorSurland,
norSaustuidand, AustfirSir: Hæg-
viSri. Úrkomulaust. SuSaustur-
land: HægviSri í dag, en sunnan
gola og rigning í nótt.
Síldarútflutningurinn
nam 1. des 133.951 tn., verð
5.212.500 kr., en á sama tíma í
fyrra 190.433 tn., verð 4.313.130
kr. Miá þakka það hinum ágæta
síldarafla við Faxaflóa, að and-
virði útfluttrar síldar er orðið
meira á þessu ári en i fyrra.
Skipafregnir.
Gullfoss er á leiS til Vestmanna-
eyja. GoSafoss er í Hamborg. Brú-
arfoss fer héSan i kveld1 áleiSis til
útlanda. Dettifoss fer í kveld áleiS-
is vestur og norSur. Selfoss er i
Reykjavík. Lagarfoss er á leiS til
Kristianssand frá Noregi. Esja
var á FáskrúSsfirSi síSdegis í gær.
G.s. Island er á Akureyri. B.v.
Gullfoss kom .af veiSum í gær meS
800 körfur og lagSi af staS í gær-
kveldi áleiSis til Englands. Lax-
foss kom frá Borgarnesi í dag.
Barnabækur.
Ný barnabók, „Sagan af honum
Lubba“ kom í bókaverslanir í dag.
Útgef. er BarnablaSiS Æskan, sem
nýlega gaf út aSra barnabók, iBíbí,
sem getiS hefir veriS hér í blaSinu.
Munið Mæðrastyrksnefndina.
Hann, sem jólahátíS á,
hlúSi aS börnum smáum,
látum bræSur og systur sjá
aS sama öll viS þráum.
H.
— Skrifstofa mæSrastyrksnefndar
Þingholtsstr . 18, tekur á móti
gjöfum til fátækra mæSra, hverju
sem aS gagni niá koma. OpiS 3—6
e. h. SímiS 4349,
Gjafir til Mæðrastyrksnefndar.
Frá Þorst- Jóhannssyni 10 kr.,
I. G. 50 kr., N. N. 5 kr., Ingi-
björg Zakaríasd. 5 kr. S. 10 kr.
Ennfremur 1 fataböggull. Kærar
þakkir. Nefndin.
Peningagjafir
til Vetrarhjálparinnar: Frá B. J.
10 kr., E. J. 25 kr., Þorsteinn Jó-
hannsson, Bergþórugötu 29, 10 kr.,
Sig. Jónasson, símritari, 5 kr., Þor-
leifur Þorleifsson, BræSraborgar-
stíg 32, 10 kr., Bjarni Magnússon,
Lvg. 66, 20 kr., N. N. 50 kr., frú
Svafa Þórhallsd. 10 kr., Helgi
Magnússon & Co. 100 kr., C.
pjörnæs 10 kr., Þorgr. Jónsson úr-
smiSur 2 kr., S. 10 kr., S. I. H.
50 kr., SigríSur Gísladóttir, Berg-
staSastr. 28, 10 kr., S. S. Þingh,-
str. 13 kr., og SigríSur ÞórSardótt-
ir, StaSastaS, 20 kr. Kærar þakkir.
F. h. Vetrarhjálparinnar. Stefán A.
Pálsson.
Sameinaða.
Fyrstu ferSir SameinaSa á næsta
ári eru auglýstar í blaSinu í dag.
Köngullóin
hefir seinustu kabaretsýningu á
þessu 'ári í Oddfellowhúsinu í
kveld kl. 10. Að lokinni sýning-
unni verSur dansaS. Á kabaretsýn-
ingunni skemta allir bestu kraftar
kabarettsins. ASgöngumiSárxfást: í
HljóSfærahúsinu og viö inngang-
inn.
Útflutningur ísl. afurða
nam i nóvembermánuSi kr.
4.561.660, en frá áramótum til 1.
des. kr. 40.035.620 (í fyrra á sama
tíma 41.251.700). Innflutningur-
inn frá áramótum til 1. des. nam
39.549.300 kr.
Músikklúbburinn
heldur dansleilc, meS stuttum
hljómleikum á undan, annaS kveld
kl. 10 á Þlótel Island. SpilaborS
verSa fyrir þá, sem ekki dansa.
Menn þurfa aS taka meS sér spil.
Þetta er seinasta tækifæriS á þessu
ári.
Munið Lucia-hátíðina
sem HjálpræSisherinn heldur í
kveld kl. 8. ÁgóSanum verSur var-
iS til aS gleðja fátæka um jólin.
Fjölbreytt efnisskrá. —1 Jólapottar
verSa settir upp á morgun, til fjár-
söfnunar fyrir jólin handa fátæk-
um.
Betanía.
Afmælisfundur kristniboSsfé-
lagsins í Reykjavík verSur haldimi
annaS kveld kl. 8)4. KristniboSs-
félagi kvenna er boSiS á fundinn.
Næturlæknir
er í nótt Halldór Stefánsson,
Lækjargötu 4. Sími 2234. Nætur-
vörSur í Laugavegs apóteki og
Ingólfs apóteki.
Ábeit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 2 kr. frá H. P., 1
' kr. frá Þ. G., 5 kr. frá S. J,
Farsóttir og manndauði
í Reykjavík vikuna 24.—30. des.
(í svigum tölur næstu viku á und-
an) : hálsbólga 62 (54). Kvefsótt
130 (102). Gigtsótt o (2). I*Sra-
kvef 21 (20). Kveflungnabólga 5
(4). Taksótt 1 (1). Munnangur 8
(6). Ristill 3 (1). Þrimlasótt o
(1). Hlaupabóla 3 (o). — Manns-
lát 1 (6). — Landlæknisskrifstoí-
an. (FB).
Útvarpið í kveld,
19,45 Fréttir. 20,15 Bækur og
menn (Vilhj. Þ. Gíslason). 20,30
Kvöldvaka: a) Jón SigurSsson
skrifstofustjóri: Úr sögu Borgar-
fjaröár; b) GuSm. FriSjónsson
skáld: KvæSi; c) Sig. Sigurðsson
-skáld, frá Arnarholti: Frá jarð-
skjálftftnum 1896; d) Herdís And-
résdóttir skáldkona: Þjóðsögur. ■—-
Ennfreniur harmóníkulög og söng-
lög.
Útvarpið árdegis á morgun:
8.00: Enskukensla, 8.25:
Dönskukensla, 10.00 ^ VeSurfregn-
ir, 12.00: Hádegisútvarp.
Abessiniumenn krefjast þess, að
sjálfstæði lands þeirra verði ekki
skert.
Oslo 12. des.
Samkvæmt símskeyti frá París
hefir sendiherra Abessiniu tilkynt
Laval, aS Abessinia geti ekki fall-
ist á neina skilmála, sem af leiði,
aö sjálfstæSi landsins verði skert.
(NRP—FB).
Hafnarverkfall í Marseille.
Norska ræöismannsskrifstofan í
Marseille hefir símaS til utanríkis-
málaráSuneytisins, að hafnar-
verkamenn í Marseille hafi byrjaS
verkfall, vegna launadeilu. (NRP
—FB).
Rðsúl hárþvottadaft
. íer sérstaklega tilvalið þeim, sem báfa
feitt liár.
Rósól-hárþvottaduft
er annálað fyrir livað það gerir hárið lif-
andi og glansandi.
GEORG iGRIKKLANDSKONUNGUR OG KONDYLIS.
Kondylis átti mestan þátt í því,
að Georg er aftur sestur aS völd-
um í Grikklandi, en Georg var
eigi fyr tekinn við, en hann losaSi
sig við Kondylis og lét mynda ut-
anflokkastjórn, Nýjar kosningar
eru ráSgeröar áSur langt um líöur.
Athngasemd.
Útaf grein í heiSruöu blaSi yð-
ar, bið ég yöur fyrir eftirfarandi
athugasemd.
Sunnudaginn 8. þ. m. var skýrt
frá því, aö nokkrar konur hér í
bæ, mundu beita sér fyrir sjóS-
.stofnun, til miriningar um Þórunni
Á. Björnsdóttur Ijósm. Er þaö
mjög góS hugmynd og sjálfsögð
að •framkvæmd veröi, en ekki á
þann hátt aS komi í bága viö henn-
ar eigin störf. Eins og áður nefnd ,
grein ber meS sér, er meiningin
aS sjóðurinn beri nafn Þórunnar
og styrki fátækar sængurkonur hér
í bæ —• en sá sjóSur var myndaS-
ur fyrir 5 árum, stofnaöur af Þór-
unni sjálfri meS allrausnarlegri
gjöf, þar sem hún á 70 ára afmæli
sínu gaf út bókina „Nokkrar
sjúkrasögur“, upplag kostaSi rúm-
lega 3000 krónur,. til sstofnunar
þessum sjóSi. Alt, sem innkemur
fyrir þessa bók rennur í þerinan
sjóS. Allir, sem vilja styrkja þenn-
an sjóS og um leið minnast Þór-
unnar sáluSu, kaupi bókina, hún er
líka vel þess verS bæSi að efni og
frágangi. —- Seinna mun hún hafa
séS svo um, aS sjóðurinn geti ver-
iö algjörlega sjálfstæS stofnun.
Þórunn rétti hjálpar- og líknar-
hönd öllum, er þess þurftu og til
herinar leituSu. Og allar fátækar
sængurkonur eiga jafnan aðgang
aS sjóSi hennar.
En heiSur fyrir þá hugsjón aS
stofna sjóð til minningar um Þór-
unni ljósmóSur, því engin dóttir
íslands, á frekar skiliö aS minning
hennar sé í heiöri höfS, og nóg eru
verkefnin, til aS beita sér fyrir, t.
d. smælingjarnir, sem hún svo
mjög bar umhyggju fyrir. En um
þaS væri eigi úr vegi aö ráöfæra
sig við bústýru hennar, Guölaugu
GuSmundsdóttur, sem var meö
henni síðari helming æfinnar, og
öllum fremur veit um óskir henn-
ar og skoðanir. Hún mun fúslega
leiöbeina og stySja að öllu því, er
verða má hennar kæru vinkonu og
húsmóSur til heiðurs og sórna.
Eg enda svo þessar línur með
ósk um að þessu verSi kipt i lag
og sjóSurinn stofnaSur með meiri
þátttöku en áður hefir átt sér staS,
eins og Þ. Á. B. líka veröskuldar
fyrir sitt frábæra starf. Hún tók á
móti hátt á fimta þúsund börnum
— alt á heimilum — fyrir utan ó-
íullburSa fæöingar,er hún eigimun
hafa taliö, og best er hægt aS sjá
þau störf hennar meS því aö lesa
„Nokkrar sjúkrasögur".
12. des. 1935.
G. G.
De Valera
er í þann veginn að koma
fram áformi sínum um
afnám efri deildar frírík-
isþingsins.
Dublin 13. des.
NeSri deild þingsins hefir með
76: 57 atkvæöum samþykt aS end-
ursenda efr i deild frumvarp til
laga um afnám hennar. Frumvarp-
iS var fyrst samþykt fyrir átján
mánuöum í fulltrúadeild þingsins
(Dail), en efri deild (senate)
hafnaöi frumvarpinu. Þótt efri
deild hafni frumvarpinu nú á ný
verður þaS eigi að síöur aS lögum
aS liðnum sextíu dögum. (United
Press—FB).
Oslo 12. des.
Kunnur Norðmaður látinn.
Látinn er í Oslo eftir langvar-
andi sjúkrahúslegu Christian Dox-
rud flotakapteinn, en hann var
þátttakandi í þriðju Fram-ferSinni.
(NRP—FB).
Til iólanna.
m
*a
a
2-
s?
&
c
W
p
>-i
C
P
cr
cn
o
Hts
p
W
^i
<ts
>-t5
cc
<D
t-ta
s
p
PT
P
cn
P
>-i
c-i
es
p-
c
3
o*
c.
&!
P
CTQ
o.
cT
s
3
er
c>
®r
P
■a
p
•ö
■o
p“
■ö
o
PT
P
>a
p
•ö
•ö
>-i
o>
ST
a>
c
>~i
Bókaverslun
Þfir. B. Þorlákssonar.
Bankastræti 11. Sími: 3359.
VINNA
Léreftasaum og allskonar við-
gerð á fatnaði er tekin á Hverfis-
götu 94 A, uppi. (293
Stúlka óskast í vist í Suðurpól
6. (303
Góð unglingsstúlka óskast í létta
vist. Uppl. í síma 4782. (304
Stúlka tekur þvotta og hrein-
gemingar. Uppl. í síma 3692. (307
Vanur bifreiðarsljóri óskar
eftir atvinnu nú strax. — Uppl.
Laugavegi 79, eftir ld. 6. (312
Stúlku vantar á Ásvallagötu
52, til Guðbrandar Magnússon-
ar. (313
Geng 1 hús og krulla. Einnig
heima. Guðfinna Guðjónsdóttir,
Tryggvagötu 6, uppi. Uppl. í
síma 2018. - (262
_____«.______
Stúlka óskast í vist strax eða
um áramót, má vera um 15 ára.
Uppl. Fálkagötu 13 (efstu hæð).
(281
Látið gera við fónana ykkar fyr-
ir jólin. Allir varahlutir til. Hljóð-
færahúsið, Bankastræti 7. (252
llillSNÆtl]
Af sérstökum ástæðum óskast
2—3 herbergi og eldhús frá ára-
mótum. Tilboð merkt: „Góð um-
gengnr*.
(299
Góð 3 herbergja íbúð er.til leigu.
nú þegar, með öllum þægindum,
fyrir fámenna fjölskyldu. Uppl. í
Hatta- og skermabúðinni, Austur-
stræti 8. Sími 4540 eða síma 2940.
(305
Góð forstofustofa til leigu á
Barónsstig 59. Sími 2120. (310
’ Stofa með forstofuinngangi
til leigu. A. v. ú. (316
Oslo 12. des.
Mislingafaraldur í Noregi'.
Mislingafaraldur er í Grimstad
og nemur tilfellafjöldinn 700 aö
undanförnu. í Arendal og Tvede-
strand hafa ekki bæst viS ný til-
felli. — HeilbrigSisstjórnin í
Langesund hefir fyrirskipaS aS
loka skólunum vegna mislingafar-
aldurs. (NRP—FB).
Rauða myllan.
Seljum kaldan mat allan dag-
inn. Heitan mat lil ld. 8 e. li.
Verð við allra liæfi.
Brytinn.
KEAUPSEAPDKl
Svörtu hanskaskinnin margeftir-
spurðu eru komin. Hanskagerðin,
Austurstræti 12, hús Stefáns Gunn-
arssonar. (301
Borð-billiard til sölu með tæki-
færisverði. Eftir kl. 1 Amtmanns-
stíg 2, sími 2371. Nielsen. (291
Ágæt, tvíhleypt haglabyssa til
sölu. Uppl. síma 3188, 5—6. (292
Til sölu, ódýrt: Ðívan, gardín-
ur og kniplubi”tti meo stokkum.
Hávallagötu 5, niöri. Sími 3411. —
(296,
f AUGLÝSINGAR FYRIR
[fiAFNARTJm
Nýr fiskur daglega, ódýrastur
Reykjavíkurvegi 5. Sími 9125.
(915
Gæsamamma er besta jólagjöf-
in. Ný barnabók með ljóðum,
myndum og lögum. Fæst í bóka-
búðum og í hljóðíæraverslunum.
(297
Barnavagn með tækfærisverðí til
sölu á Laugaveg 53B. Emilia Sam-
úelsdóttir. (298
90?) -uoa nrais
1 giSuuii 3o ioa oas guof{) 'uæA
jBuinspii So smo ‘Braipiisruunno
bjj BSðiSnp nraoii 33a mdjoXjM
____________i 003
Ódýrt cheviot í drengjaföt. —
Versl. Ámunda Árnasonar. (308
Svefnherbergisliúsgögn til
isölu. Uppl. í sima 2506. (309
Trékassar og tréull til sölu í
Glervörubúðinni, Laugavegi 12.
(311
íslenskir körfustólar endast
hest. Höfum einnig smáborð frá
13 kr. — Körfugerðin. (315
EDINA snyrtivörur bestar.
Kaupum næstu daga allskon-
ar sultuglös frá 15—25 aura
glasið. SANITAS, Lindargötu 1.
(270
Buffetborð og 4 stólar til sölu
með tækifærisverði. Hverfis-
götu 65. (286
Aðalskiltastofan, Kára-
stíg 9. — ÖII skilti og glugga-
auglýsingar verða bestar þaðan.
Aðeins vönduð vinna. Verðið
við allra hæfi. (340
Nýorpin egg fást daglega í
Bernhöflsbakaríi, Bergstaðastr.
14. (66
iTAPÁf) FDNDItl
Gull-armband tapaðist á þriðju-
dagskveldið. Finnandinn vinsam-
samlegast beðinn að skila því á
Hverfisgötu 28. (294
Tapast hefir armbandsúr, karl-
manns. Finnandi er beðinn að skila
því gegn fundarlaunum til Ægis
Ólafssonar, Freyjugötu 4. (295
Sjálfblekungur hefir tapast,
sennilega milli Kennaraskólans og
Túngötu. — Finnandi vinsamlega
beðinn að skila honum á afgr. Vís-
is. 300
Krakki tapaði skólatsöku á
Grundarstígnum í gær. Finnandi
vinsamlegast geri aðvart í síma
4397- . (302
Lyklar töpuðust síðastliðinn
sunundag. Skilist á afgr. Visis.
- 314
Budda tapaðist í gær í Aust-
urstræti. Skilist á afgreiðslu
Vísis. (317
FELAGSPRENTSMIÐJAN