Vísir - 20.02.1936, Blaðsíða 3
VlSIR
Júllus Sohou
áttræður.
Áttræ'Sur veröur á morgun
Schou steinsmiSur, er hér dvald-
ist um 40 ára skci'S og var kunn-
astur undir þessu nafni. ÁriS 1873
niun Schou hafa komiS fyrst til
landsins, þá matsveinn á seglskip-
inu „Valdemar“, sem um langt
skdS var eitt af bestu flutninga-
skipum, sem sigldu hingaS ineS
vörur frá Danmörku á vorin og
tóku svo, siSari hluta sumars, fisk
og fluttu til Spánar. Þætti þaS nú
vesall skipakostur.
Schou settist hér að 1880, þá
ráSinn sem steinsmiSur viS bygg-
ingu Alþingishuésins. Var hann
Upp frá því starfandi hér í bænum
þar til 1920, er hann fluttist til
œskustöðva sinna, Bornhólms í
Danmörku. Þeir sem muna útlit
Reykjavikurbæjar 1880, kotin i
Skuggahverfinu, Þingholtunum,
Grjótaþorpi og Vesturbæ, geta
^est skiliS hvílíkur fengur bænunt
Var aS fá menn meS þekkingu á
steinsmíSi, og hvílíka von þaS
vakti í hugum Ijæjarbúa, aS sjá
rnenn sníSa grástein okkar svo
sem væru þaS svarSarhnausar. Má
meS sannihegja, aS þeir sem fluttu
inn þek?cinguna á hagnýtingu grá-
steinsins til húagerSar, svo sem
Schou og félagar hans, vektu um
leiö vonir landsmanna um varan-
legri húsakynni úr innlendu efni,
og má því segja aS nýtt tímabil
í sögu bygginga hefjist viö kornu
Schous til Reykjavíkur.
Kaup þaö sem Schou var ráöinn
fyrir, við þinghúsbygginguna, var
10 mörk á dag og alt frítt. En
þrátt fyrir þetta lága lcaup safnaöi
hann fé af kaupi sínu, í ákvæðis-
rsvinnu cr hann tók' og eftirvinnu,
því ekki var 8 stunda vinnudagur
hans aöaláhugamál — og gat hann
því hugsaö til sjálfstæSrar atvinnu
viÖ aö útvega högginn stein til
húsageröar. Var og það hans
fyrsta sjálfstætt verk aö taka að
sér fyrir ákveðiö verS, aö útvega
stein í prentsmiöju Sigmundar
Duðmundssonar prentara í Banka-
stræti 3, síðar eign Siguröar Krist-
Jánssonar bóksala. Var tíöarfar
ttm veturinn svo ólríagstætt um
dragfæri aö megniö af steininum
v3-r8 aö bera aö byggingunni á 4
manna börum. TapaSi Schou þá
°hu sinu fé og komst í skuldir og
miklar þrengingar, og kom þá i
þós þaS sem oft síöar þótti ein-
henna hann, sem sé óbilandi vilja-
hraftur og þrautseigja.
Dyrjaði hann nokkru síöar aö
Vggja hús fyrir eigin reikning og
fekk þá allvel og var Merkisteinn
1 Úesturgötu 12 hans fyrsta hús.
'hest keypti hann Laugaveg 10,
eú þaö hús niður og bygöi upp
útur úr steini. Þá bygöi hann hús
fóns í Melshúsum og Landakots-
’kólann. Bak viö Vesturgötu 14
^ygði hann niSur við flóömál hiö
Svokallaða Schoushús, sem nú er
1 yggvagata 6, og þar vestur af
ýygSi hann hús, er hann nefndi
-xeter og er þaö nú skrifstofuhús
,,Álliance,,i
. ^amhliða því starfi, sem nú hef-
jr veriS taliö, bygöi Schou marga
ll]sgrunna og lagði hönd á margt
a»naS, sem oflangt yröi upp að
telja. Þar á meSal teiknaSi hann
mannamyndir, hjó legsteina og
verslaöi meS útlenda legsteina, á-
samt eldfærum og alls, sem til
þeirra þurfti, og þótti alt, er hann
verslaöi meS, vandað og traust.
Hann teiknaöi og smíöaði báta,
er hann svo seldi og þóttu þeir
gefast vel. Lítilsháttar fékst hann
viö útgerö, en ekki varö þaö til
hagnaöar. Állmikið fékst Schou
viö aö losa skip af grunni og hepn-
aöist þaS furðu vel, þó björgunar-
tækin væru nokkuð meö ööru lagi
en nú gerist. Hagsýni og þraut-
seigja lyftu stundum undir í þessu
sem svo mörgu öðru „Grettistaki“.
Á hinum mörgu athafnaárum
sínum hér efnaöist Schou allvel og
var því framtíð hans er kraftarnir
tóku að þverra, trygð hér á landi.
En rönnn er sú taug, sem rekka
dregur o. s. frv. Trygöin til æsku-
stöövanna knúði á dyr svo að hann
mátti eigi móti standa, en tók sig
upp, þó meö söknuSi væri, og
flutti til æskustöðvanna, Born-
hólms í Danmörku, en býr nú i
Kaupmannahöfn, Egholmsvej 34,
Vanlöse.
Shou er tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Kristín Magnúsdóttir frá
Melkoti og eignuöust þau einn
son. Hjónaband þeirra varö ekki
langt, því hún lést 1891 og nokkr-
um árum síöar lést sonur þeirra
þá 14 ára aö aldri.
1S92 kvæntist Schou öðru sinni
og gekk aö eiga Sigríöi Jónsdótt-
ur, uppeldisdóttur Einars Jónsson-
ar snikkara í Skólastræti 5, hina
mestu myndar- og ágætiskonu og
eiga þau einn son, sem þau hafa
sett til menta og er nú þeiin hjón-
um til styrktar og ánægju.
Margir munu þeir hinir eldri
borgarar þessa bæjar, sem minnast
Schous steinhöggvara viö þessi
tímamót í ævi hans. — Hann var
manna áreiSanlegastur í öllum
viöskiftum, hreinn og beinn og
loforö hans öll stóöu eins og staf-
ur á bók“.
Hann kyntist miklum fjölda
manna þau 40 ár, sem hann var
búsettur hér og eignaöist marga
alúöarvini. -—■ Og viö gamlir kunn-
ingjar hans og vinir söknum hins
glaöa og skemtilega félaga okkar.
En jafnframt óskum viö honum
allra heilla og fagurs ævikvelds.
S. H.
Sonja Henie,
skautamærin fræga, hafnar
500.000 kr. þóknun, af því
að hún vill ekki gera
skautaíþrótt að atvinnu-
grein.
Oslo, 19. febr.
Samkvæmt símskeyti frá
London til Dagbladet hefir
Sonja Henie fengið tilboð um
að sýna listir sínar á skautum í
Bandaríkjunum og fá í þóknun
500.000 kr. Er svo ráð fyrir
gert, að hún ferðist milli lielstu
borga landsins i þvi skyni.
Sonja Henie mun liafa liafnað
tilboðinu, þar eð bún er fast-
álcveðin i að liafa ekki skauta-
íþróttina að atvinnugrein —
(NRP. — FB.).
Aftaka
Hauptmanns
ákveðin.
London 19. febr. FÚ.
Horfur fara nú að vera litlar
á því, að Bruno Hauptmann
komist hjá þvi, að láta líf sitt í
rafmagnsstólnum, því að liann
befir nú aftur verið dæmdur til
dauða, og ákveðið að aftakan
fari fram í vikunni sem liefst
29. mars.
Frtl
María Kristjánsdúttir,
kona Halldórs Þórðarsonar fyr-
verandi prentsmiðjustjóra, and-
aðist í gær.
Þessarar merku konu verður
síðar getið liér i blaðinu.
Otan af landi
--o—
Frá Vestmannayjum.
Vestmannaeyjum (FÚ)
Aðalfundur
Útvegsbændafélags Vestmanna-
eyja var nýlega lialdinn. I stjórn
félagsins voru kosnir: Sigurð-
ur A. Gunnarsson kaupmaður,
formaður, Jónas Jónsson kaup-
félagsstjóri, Ársæll Sveinsson
útvegsbóndi, Eirikur Ásbjörns-
son útvegsbóndi og Guðlaugur
Brynjólfsson útvegsbóndi.
í félaginu eru nú 100 félags-
menn.
Aflabrögð.
Nokkrir smábátar hafa ráið ;
undanfarið og aflað dável. Afl-
inn hefir verið seldur til matar
í bænum.
Vatnsskortur
er nú að byrja í Vestmannaeyj-
um að nýju.
Akureyri (FÚ)
Norðanhríð
var á Akureyri i dag og talsverð
snjókoma. Horfur eru ískyggi-
legar. Aflalaust er i firðinum.
Róðrar byrjaðir.
Keflavík 19. febr. (FÚ)
I dag réri úr Keflavik fyrsta
róður, vélbáturinn Sæfari II. ÚT
Keflavík var alment^róið í gær-
kveldi. Flestir bátar vöru komn-
ir að um miðaftan í dag, en afli
tregur, 5—11 skippund á bát.
Nýir bátar.
Nýr bátur, var smiðaður i
Iveflavík í sumar, er hann 27
smál. að stærð, með 90 lia.
June Munktel vél og vel vand-
aður. Eigendur eru Ólafur og
Albert Bjarnasynir og Elías
Þorsteinsson. Bátinn smíðaði
Pétur Viglund. — Báturinn
kostaði 40 þúsund krónur.
Magnús Ólafsson í Höskuldar-
koti hefir látið smíða i Dan-
mörku bát, sem er nýlega kom-
inn liingað til lands. —- Bátur-
inn heitir Gylfi, 23 smálestir að
stærð með 76 hestafla Tuxham-
vél.
Dánarfregn.
í gær andaðist í Keflavik,
Bjarni Þorsteinsson, 73 ára að
aldri, formaður um 30 ára
skeið.
Ljárskógum 19. febr.
Mænusótt
hefir gosið upp á þrem bæjum
í Saurbæjarhreppi. I Ólafsdal
veilctist tveggja ára barn, en
vægt. — í Stórliolti eru 3 sjúlc-
lingar, 2 drengir 11—11 ára litt
sjúkir og karlmaður 26 ára
gamall, Þórarinn Alexanders-
son, töluvert lamaður.
Á Hvoli er 12 ára drengur
mjög sjúkur.
Sýktu heimilin eru öll í sótt-
kví og einnig sveitin og slcóla-
hald bannað, um einn mánuð til
að byrja með.
Súgandafirði 18ó febr. FÚ.
Mælingar sjávarhita
í Súgandafirði sýna nú minni
sjávarhita, en nokkru sinn síð-
an froslaveturinn 1918.
•■wu—r 1-1 II —
Rúður, sem kostuðu á
annað þúsund krónur,
brotnar og skemdar í
nótt. .
Óvanalegt skemdarverk var
unnið hér i nótt. Voru stór-
skemdar margar rúður í versl-
unarhúsi Fatabúðarinnar við
Ivlapparstíg og sömuleiðis ein
rúða i sama húsi, í verslun Guð-
mundar Guðjónssonar, sem veit
að Skólav.stíg. Hefir alls verið
skotið 26 skotum (af teygju-
byssum) á rúðurnar, sem eru
8—9 mm. þykkar. Göt liafa ekki
komið undan öllum skotun-
um, en í mörgum tilfellum hafa
myndast göt og sprungið út frá
þeim að innanverðu. Eru rúð-
urnar allar stórskemdar og ein
þeirra liefir brostið um þvert.
Tvær af rúðunum kostuðu 500
kr. hvor, en ein 200 kr. og tvær
100 kr. hvor.
Það eru ill tíðindi, er menn,
sennilega unglingar, verða vald-
ir að slikum skemdarverkum,
og er þess að vænta ,að hafist
upp á þeim, sem hér liafa verið
að verki.
--------------------■- —
Sifíupvegup-
nm fagrsad.
Norsku þátttakendunum í
olympisku vetrarleikunum
í Garmisch-Partenkirchen
fagnað af miklum mann-
fjölda við heimkomuna í
Oslo.
Oslo, 19. febr.
Þátttakendur Norðmanna í
olympisku vetrarleikunum
komu heim frá Garmisch-Part-
enkirchen árdegis í dag og voru
þeir hvltir af miklum mann-
fjölda. Ræður flutti Fougner of-
ursti, varaformaður skauta-
klúbbsins í Oslo, Johansen, og
þýski sendisveitarfulltrúinn
Neuliaus. Ballangrud svaraði og
þakkaði og afhenti skauta-
klúbbnum norska fánann, sem
norsku keppendurnir liöfðu
hafl með sér lil Parterikirchen.
Mannfjöldinn fylgdi íþrótta-
mönnunum að Hotel Bristol og
urðu þeir að koma fram á sval-
irnar margsinnis, vegna áskor-
ana og fagnaðarláta mannfjöld-
ans fyrir utan. (NRP. -— FB.).
Áfengis-
eitrun.
Hroðalegar afleiðingar af
að drekka svokallaðan
„tréspiritus“.
Oslo, 19. febr.
Samkvæmt símskeyti frá
Narvik veiktust þrír menn á
eimskipi, er lá þar í höfninni,
af völdum áfengiseitrunar.
Skipið er sænskt, e.s. Nyland,
frá Gautaborg. Þeir drukku tré-
spiritus og urðu svo veikir, að
það varð að flytja þá í sjúkra-
bús. Lést þar einn þeirra, en um
annan hinna er það að segja, að
hann hefir mist sjónina. (NRP.
— FB.).
„i iftl".
Sýning Karlakórs Reykjavik-
ur á hinum viðkunna og vin-
sæla sjónleik „Alt Heidelberg'1
hefir tekist mæta vel, enda hef-
ir aðsókn verið í besta lagi, liús-
fyllir i hvert skifti, sem hann
hefir verið sýndur. Vafalaust
má þakka þetta að sumu leyti
gömlum vinsældum, en einnig
liinum ágætu söngkröftum
kórsins, og yfirleitt er sýningin
á leikritinu góð, þegar tekið er
Dr. Jiittner.
(Árni Benediktsson).
tillit til þess, að fæstir þeirra,
sem þarna koma fram eru vanir
leikarar. Um meðferð einstakra
leikenda þykir eigi ástæða til að
ræða frekara en gert hefir ver-
ið hér í blaðinu, en leikhúsgest-
Liitz og prinsinn.
(Haraldur Björnsson og Bjarni
Bjarnason).
ir liafa sýnt það á hverri leik-
sýningu, að þeir eru ánægðir
með frammistöðuna og liafa
skemt sér vel. Ilafa leikendur
verið kallaðir fram með lófa-
taki að loknum leik tví- og þrí-
vegis á hverju leikkveldi. Á kór-
inn vafalaust eftir að sýna „Alt
I4eidelberg“ mörg kveld enn víð
góða aðsókn. a.
Veðrið í morgun:
Frost um land alt. I Reykja-
vík 3 stig, Bolungarvík 6, Akur-
eyri 4, Skálanesi 4, Vestmanna-
eyjum 3, Sandi 5, Ivvígindisdal
9, Hesteyri 9, Gjögri 7, Blöndu-
ósi 5, Siglunesi 6, Grímsey 6,
Raufarhöfn 5, Skálurn 4, Hól-
um i Hornafirði 1, Fagurhóls-
mýri 3, Reykjanesi 5 stig. Mest
frost liér í gær 4 stig, minst —0.
Sólskin 7,8 stig. Yfirlit: Alldjúp
en nærri kyrstæð lægð yfir haf-
inu milli íslands og Skotlands.
Horfur: Suðvesturland: All-
livass norðaustan. Bjartviðri.
Samkonmiag
í Vestmannaeyjum. Sjó-
mannaverkfallinu aflétt.
Samkomulag náðist í Vest-
mannaevjum í gærkveldi um
lausn deilunnar milli sjómanna
og útvegsbænda, fyrir milli-
göngu sáttasemjara. Féllu sjó-
menn frá kröfum sínum um, að
úlvegsbændur skuldbindi sig til
að kaupa hluti jieirra.
Faxaflói: Minkandi norðanátt.
Bjartviðri. Breiðafjörður, Vest-
firðir: Norðaustan kaldi. Úr-
komulaust. Norðurland, norð-
austurland: Norðankaldi. Sum-
staður éljagangur. Austfirðir:
Minkandi norðaustan átt. Dá-
lítil snjókoma. Suðausturland:
Minkandi norðaustan átt. Úr-
komulaust.
Skipafréttir.
Gullfoss kom til Kaupmanna-
hafnar i dag. Goðafoss fór héð-
an í gær áleiðis til útlanda. Lag-
arfoss er í Khöfn. Selfoss fór
héðari í dag áleiðis til Keflavik-
ur og fer þaðan til útlanda.
Brúarfoss er í London. G. s. ís-
land fer í kveld kl. 8 áleiðis til
Leith og Kaupmannaliafnar. M.
s. Dronning Alexandrine fór kl.
10J4 i morgun áleiðis til Rvílc-
ur. Frá Englandi hafa komið
Baldur, Tryggvi garnli, Karls-
efni og Geir. Laxfoss fór til
Borgarness i dag. Væntanlegur
á ínorgun kl. 11. f. h.
Farþegar á Goðafossi
til Hull og Hamborgar: Jón
Ásbjörnsson hrmflm., E. P.
Briem og frú, Haraldur Árna-
son, Magnús Ivjaran, Hlýi Eir-
íks, Marteinn Einarsson og frú,
Sigríður Helgadóttir, Hallgrímur
Helgason. Til Vestmannaeyja:
Eggert Claessen, Guðm. Ás-
björnsson, Guðbjörg Árnadótt-
ir, Sæm. Þórðarson, Sigur-
þór Úlfarsson, Þorbjörn Jóns-
son, Jón Pálsson, Óskar Ólafs-
son, Engilbert Ólafsson, Har.
Guðnason, Sigurbjartur Lofts-
son, Magnús Þorkelsson, Ingi-
mundur Þorkelsson, Jón Magn-
ússon, Júlíus Guðjónsson,
Iljörtur Jónsson og Ingólfur
Ingvarsson.
Leikhúsið.
í kveld verður frumsýning á
gamanleik, er nefnist „Eru þér
frimúrari“. Höfundar Arnold
og Bacli. Leikurinn er sagður
mjög skemtilegur.
Nýja Bíó
sýnir kvikmyndina „Pabbi
okkar er piparsveinn“ í nsest-
síðasta sinn í kveld. Eru því að
verða seinustu forvöð að sjá
þessa ágætu mynd.
Til stúlkunnar,
sem þarf að fá gervifótinn,
afhent Vísi: 5 kr. frá G. S., 5
kr. frá Þ. X., 10 kr. frá G. D.,
2 kr. frá M. Ó., 2 kr. frá N. 5,
Háskólafyrirlestur á frönsku.
Franski sendikennarinn, lic
Fanny Petibon, flytur fyrirlest-
ur með skuggamyndum kl. 8,15
í kvöld i liáskólanum. Efni:
„Les peintres de l’epoque rom-
antique“.
Heimatrúboð leikmanna,
Reykjavík. Munið Vakninga-
samkomurnar sem nú standa
yfir á hverju kvöldi á Linnets-
stíg 2, í Hafnarfirði. — Einnig
samkomuna í kvöld kl. 8 að
Hverfisgötu 50, hér. — Allir
velkomnir. (
Grímudansleik
heldur hljómsveitin „Blue
Boys“, í K. R.-húsinu, laugar-