Vísir - 24.03.1936, Síða 2
VlSIR
Nýtt þríveldasamkomalag
-Ítalía, Anstarrtki, og
Ungverjaland. -
Þríveldasamkomulag var undirskrifaðíRóma-
borg í gær milli ítalíu, Austurríkis og Ung-
verjalands. — ítalir undirgangast að verja
Austurríki hver sem árásarþjóðin er. Ung-
verjar eru hinsvegar ekki skuldbundnir til
þess, að koma Austurríki til hjálpar. ftalir
ætla að styðja friðsamlegar kröfur Ungverja
um ný lönd, en þær kröfur sæta mikilli mót-
spyrnu Litla bandalagsins og Frakklands. —
London, 24. mars.
Nýtt þríveldasamkomutag hefir veriS gert og er það árangur-
inn af fundahöldum Mússólíni við fulltrúa Austurríkis og Ung-
verjalands. Samkomulagið var undirskrifað í gær í Rómaborg,
að því er símfregnir þaðan herma, en hefir ekki verið birt enn.
Talið er, að samkomulagið sé um gagnkvæma aðstoð, sem þó
er takmörkuð því að Ungverjar munu hafa neitað því með
öllu, að koma Austurríki til hjálpar, ef á það verður ráðist, eða
taka á sig nokkurar skuldbindingar í þá átt. Haldið mun verða
sömu stefnu, að því er samvinnu milli þessara þriggja ríkja
snertir í f járhags- og viðskiftamálum. Einkanlega eru eftirtekt-
arverð þau ákvæði samkomulagsins, er snerta pólitíska og f jár*
hagslega samvinnu Austurríkis og Ítalíu, því að með samkomu-
laginu undirgengst Ítalía að ábyrgjast sjálfstæði Austurríkis og
verja Austurríki fyrir árásum hvað sem fyrir kann að koma
og án tillits til þess hver eða hverjar árásarþjóðirnar eru. Að
því er fullyrt er hefir Ítalía einnig, með samkomulagi þessu,
undirgengist að styðja friðsamlegar kröfur Ungverja um end-
urskoðun friðarsamninganna, með það fyrir augum, að Ung-
verjar fengi aukin lönd, en þeir hafa alla tíð talið sig hafa orðið
hart úti við gerð friðarsamninganna, en allar kröfur í þá átt
hafa sætt mikilli mótspyrnu, einkanlega frá Litla bandalaginu,
sem vill halda öllum þeirn löndum, er ríkin í því fengu upp úr
heimsstyrjöldinni — (Unítéd Press. — FB.).
Bretap lögðu f ast
að þýsku
stjópninni
að samþykkja tillögur Locarnoríkjanna fjögurra.
miiir soclitt
il krðfinar á lendor ölrifi.
Hvers vegna stof na þeir ekki til atvinnurekstr-
ar og hætta f é sínu ?
Oslo, 23. mars.
Samkvæmt Reutei'fréttastof-
unni hefir breski sendiherrann
í Berlín í dag lagt mjög að
þýska utanríkismálaráðherran-
um, fvrir hönd bresku stjórn-
arinnar, að hann beitti scr fyr-
ir því, að þýska stjórnin féllist á
tillögur Locarnoveldanna. Svar
Þýskalands er væntanlegt í dag.
í heimsblöðunum er talið lík-
legt, að Þýskaland hafni ekki
með öllu tillögunum, en komi
með ýmsar gagntillögur. (NRP.
— FB.). —
Berlín, 24. mars. FÚ.
Sendimaður þýsku stjórnar-
innar, von Ribbentrop, mun
fara til London í dag, og leggja
fram svar þýsku stjórnarinnar
við tillögum Vestur-Locarno-
ríkjanna.
í neðri málstofu breska
þingsins lýsti Anthony Eden
því yfir í gær, að minnisskjal
Locarnorikjanna bæri ekki að
Djidjiga ger-
eyðilögd 1
loftárás?
London 23. mars FÚ.
Frá Abessiniu berast þær
fréttir, að Djidjiga hafi verið
gjöreyðilögð af ítölum. En á
hana var gerð loftárás i gær, og
endurtekin í dag. Meirihluti ibú-
anna leitaði sér hælis uppi í
f jöllunum í nágrenni við borg-
ina í dag, og er ekki kunnugt
um, hve margir hafi farist. En
í gærdag var 17 smálestum af
sprengjum kastað yfir borgina,
og voru þá 19 manns drepnir,
en 83 særðust.
skoða sem úrslitakosli á hend-
ur Þýskalandi, lieldur sem til-
lögur. Svipaða yfirlýsingu gaf
innsiglisvörður konungs, Ilali-
fax lávarður, í ræðu sem hann
hefir haldið.
Yfirlýsingar þessar vekja í
Paris mikla athygli. Minna
frönsk blöð á yfirlýsingu Flan-
dins i síðustu þingræðu hans,
þar sem hann sagði, að skil-
yrði fyrir samningum við
Þýskaland hlyti að verða það,
að þýska stjórnin gengi að
þeim skilmálum, sem settir
yrðu.
Berlín, 24. mars. FÚ.
Taka Bretar afstöðu með
Þjóðverjum?
Lundúnafréttaritari Parísar-
blaðsins „Paris Midi“ skýrir
frá því, að í Englandi sé nú
háð víðtæk barálta fyrir þvi,
að England taki afstöðu með
Þýskalandi i deilu þessari.
Loftárás var einnig gerð á
sjúkrahús, sem stóð skamt fyr-
ir ulan borgina, og' kastað
sprengjum á það.
Staðfesting hefir ekki ennþá
fengist á þvi, að sprengjum hafi
enn i gær verið kastað á bresku
Rauða Kross stöðina á norður-
vígstöðvunum, en orðrómur
gekk um það i gær, að á hana
hefði verið ráðist. ítalir bera á
móti því, og segja, að orsökin
lil þess, að slík flugufregn liefir
komist á loft, sé fundur 13
manna nefndarinnar i dag.
I opinberri skýrslu tilkynnir
Badoglio marskálkur að ráðist
hafi verið úr lofti á Djidjiga, og
liergögn Abessiniumanna eyði-
Það verður víst ekki með
sanni sagt, að kreppuvandræðin
hafi komið þunglega niður á
hagsmunum socialista-brodd-
anna íslensku, Þeir safna auði
eftir sem áður, auka við sig
„beinum“ og bitlingum af al-
mannafé og eru að verða efn-
uðustu borgarar þjóðfélagsins.
Slíkir pillar þurfa ekki að
spara. Og það verður heldur
ekki á þeim séð, að þá vanhagi
um neilt, sem í magann verður
látið.
En samtímis er því haldið
fram og sjálfsagt ekki að
ástæðulausu, að margar verka-
manna-fjölskyldur liafi litið
fyrir sig að leggja. —
Og svo er ráðist á atvinnu-
rekendur og ausið yfir þá
skömmum og svívirðingum fyr-
ir það, að þeir láti ekki fólkinu
í té nægilega vinnu.
Það er vitað og viðurkent, að
atvinnuvegirnir eru reknir með
tapi og hafa veriðundanfarinár.
Eignir atvinnurekanda hafa því
gengið til þurðar og' margir
þeirra munu nú mjög að þrot-
um komnir. —
l
Samt er þess enn krafist, að
þeir sjái fólki fyrir nægri at-
vinnu, ekki siður en i velti-ári.
Fiskileysi liefir verið svo
magnað það sem af er þessu
ári, að aflinn mun nú fast að
því helmingi minni en á sama
tíma i l’yrra. —
Þrátt fyrir það er þess kraf-
ist, að útgerðarmenn ýti hverri
fleytu sinni úr vör og sendi á
veiðar — út í ófær veður og
fiskileysi.
Foringjar socialista leggja sig
víst ekki niður við að íhuga
annað eins og það, hvort nokkur
likindi muni til þess, að litgerðin
— í slíkum veðraham og afla-
leysi — geti komist nokkuð í
námunda við það að bera sig.
Nei. Útgerðarmenn eiga bara
að senda skipin á veiðar, þó að
öllum megi Ijóst vera, að tapið
hljóti að verða gífurlegt.
Hvað varðar foringja socia-
lista um það, þó að útgerðar-
menn tapi öllu sínu? ,
Ekki hætis hól!
En togarar bæjarútgerðar-
innar í Hafnarfirði hafa verið
látnir liggja i höfn!
—o—
Svona eru kröfurnar, sem
foringjar socialista gera til
annara. — Svona og þaðan af
verri og vitlausari. —
Þessir náungar þykjast vera
ástvinir allra smælingja. Þeir
láta í veðri vaka, að þeir hugsi
eiginlega ekki um annað en
það, nótt og nýtan dag, hvernig
þeir geti orðið alþýðunni til
sem allra — allra mestrar
blessunar — Þeir sé ekki að
sækjast eftir því, að „búa í höll-
um“ eða klæðast „pelli og purp-
ura“. Nei — það sé nú eitthvað
annað! — Þeir „deili“ öllu sínu
með þeim allra aumustu.
En alþýðan sér að mennirnir
„búa í höllum“. Og hún sér líka,
að þeir muni hafa nóg að borða.
Og klæðaburðurinn virðisl bera
lögð, og vígstaða þeirra i borg-
inni að engu gerð. Þá tilkynnir
hann einnig, að ítalir séu að
sniíða brú yfir Takasséfljót, og
verkinu sé í þann veginn að
verða lokið.
því vitni, að þessir menn sé ekki
í neinum vandræðum með að
kaupa sér þokkaleg lol. t
Þetla sér alþýðan og hugsar
sitt í leyni.
—o—
Fyrir tveim dögum sagði
verkamaður einn, góður og
gegn, við þann sem þella ritar:
— Eg er nú kominn á þá
skoðun að „foringjarnir“ elski
sjálfa sig öllu heitara en okkur
smælingjana.
Og svo vék hann talinu að því,
að lionum þætti grunsamlegar
þessar miklu og ósanngjörnu
kröfur, sem alt af væri verið að
gera til annara. —^.Foringjarn-
ir“ væri alt af að rífast um það,
að aðrir ætti öllu að fórna.
Ilann hefði nú vanist því í ung-
dæmi sinu, að hver og einn
gerði fyrst og fremst kröfur til
sjálfs sín.
Það er engum vafa bundið,
að margir í liópi verkamanna
og sjómanna kunna illa hinum
nýja siðalærdómi, sem kominn
er hingað í landið með socialist-
uin og kommúnistum. — Hann
er á þessa leið: ,
— Heimtaðu alt af öðrum,
en ekkert af sjálfum þér.
—o—
íslenskir socialis la-broddar
— „foringjar“ öðru nafni —
eru margir orðnir sterkríkir
menn. Og alt af eru þeir á
harða-hlaupum eftir nýjum og
nýjum bitlingum. Þeir eru svo
gráðugir, að jafnvel framsókn-
armönnum hefir blöskrað. Þeir
piltar kalla þó ekki alt „ömmu
sina“. — Hafa miklar og kátleg-
ar sögur gengið um baráttu
þessara tveggja manntegunda á
beina-fjöru stjórnarinnar hin
siðustu misseri. Og kunnugir
menn fullyrða að alla jafna
muni socialistar hafa orðið
drýgri að lokum í þeim orust-
um. —
En engin veit til þess, að
hinir hálaunuðu og sterkríku
socialista-broddar hafi hætt fé
sínu í áhættusaman atvinnu-
rekstur, er orðið gæti atvinnu-
lausum mönnum að gagni. —
Þeim finst alveg sjálfsagt, að
úlgerðarmenn hætti fé sinu og
noti lánslraust sitt til þrautar,
en sjálfir „safna þeir í korn-
hlöður“ jafnt og þétt og hælta
ekki einum eyri af eigin fé í út-
gerð eða önnur slík fyrirtæki,
er misjafnlega gefast. —
Svona eru foringjar socialista.
Þeir krefjast þess að aðrir vinni
áhættusömu verkin i þarfir
alþjóðar. Þeir krefjast þess, að
aðrir fórni öllu og gangi siðan
alls á mis, ef svo vill verkast.
— En sjálfir vilja þeir hafa
hlut sinn á þurru landi. — Þeir
eru ekki í heiminn komnir til
þess að fórna neinu. Þeir eru
komnir til þess að heimta alt af
öðrum.
Frá Alþingi
í gær.
1. Frv. til 1. um framleng-
ingu á gildi la,ga um skatt-
greiðslu h. f. Eimskipafél. ísl.
3. um.r. Frv. var samþ. sem
lög frá Alþingi.
2. Frv. til 1. um ríkisútgáfu
námsbóka.
Mentamálanefnd hefir klofn-
að í þessu máli. Meirihl. Páll
Herm. og Jónas vilja láta af-
greiða það með lítilsliáttar
breytingu, en minnihl., G. Lár-
usdóttir, er mótfallin vissum
atriðum frumvarpsins og gjörði
sérstaka breytingatillögur.
Tillaga G. L. var feld, en hún
var sú, að þriðji niaður i rit-
stjórn námsbóka skuli vera
til nefndur af Synodus, i stað
þess að frumv. gerir ráð fyrir,
að félag kennara við héraðs-
slcóla tilnefni hann.
Breytingatill. nefndarinnar
voru samþyktar og málinu
þannig breyttu vísað til 3. um-
ræðu.
3. Frv. til I. um ríkisfram-
færslu sjúkra manna og ör-
kumla.
Flm. Sigurj. A. Ólafsson,
Jón Baldvinsson. Fulltrúar Al-
þýðuflokksins fluttu þetta frv.
í neðri deild á síðasta þingi, en
var þá ekki afgreilt. Nú er það
flutt með breytingum, sem
allsherjarnefnd N. d. gerði á
því þá. — Afbrigði voru veilt
um að taka málið til umræðu
sökum þess, að það var of seint
f'ram komið og var því vísað
lil 2. umr. og allsherjarnefnd-
ar.
4. Frv. til 1. um fóðurtrygg-
ingarsjóði.
Mál þetta er komið frá neðri
deild og var þvi vísað til 2. um-
ræðu og landbúnaðamefíndar,
Neðri deild.
Á dagskrá voru 10 mál en
aðeins 5 afgr..
1. Frv. til I. um afnám 1. um
samþ. um herpinótaveiði:
Frumv. var umræðulaust
samþ. og afgr. til Ed.
2. Frv. til 1. um eftirlit með
útlendingum. 2. umr.
Allsherjarnefnd lagði til að
frumv. yrði samþykt með smá-
vægis breytingu, Var sú breyt.
samþ. og málinu vísað til 3.
umræðu.
3. Frv. til I. um meðferð
einkamála í héraði.
Allsherjarnefnd mælir með
því, að frumv. verði samþykt
með nokkurum breytingum.
Brevtingartill. voru allar samþ.
og málinu vísað til 3. umr.
4. Frv. til 1. um sveitarstjórn-
arkosningar. 2. umr.
Um frumv. urðu mjög mikl-
ar umræður og skiptar skoð-
anir.
Skoðanamunurinn var mest-
ur um það, livort lögleiða
skyldi í öllum hreppum hlut-
lallskosningar eftir stefnu
jafnaðarmanna. — Breytingar-
till. kom fram frá Thor Thors,
Jörundi Brynjólfss. og Garðari
Þorsteinssyni, sem var einskon-
ar milli leið til samkomulags
um að heimila hlutfallskosn-
ingar í hreppum, ef einn tíundi
hluti kjósenda krefst þess 6 vik-
um fyrir kjördag, ásamt fleiri
breytingum. —■ En við þessa
breytingartill. komu tvær
Lreytingartill. Önnur frá Stef.
Jóh. Stefánssyni og Héðni, en
hin frá Páli Zóhoníassyni.
Eftir að 8 ræður höfðu verið
fluttar var umr. frestað og mál-
ið tekið út af dagskrá.
5. Till. til þál. um friðun
Faxaflóa. Hvernig ræða skuli.
Samþ. að hafa eina umræðu.
Ný þingmál.
TiII. til þingsályktunar um
framkvæmd landhelgisgæslu og
björgunarstarfsemi.
Frá sjávarútvegsnefnd.
Frv. til 1. um breytingu á
vegalögum.
Flm. Jónas Jónsson, Jón
Baldvinsson.
Tillaga til þingsályktunar um
breytingu á ákvæðum um eft-
irlit með skipum og bátum og'
öryggi þeirra.
Frá samgöngumálanefnd.
l»jódnýtinff
á Italíu.
London 23. mars. (FÚ)
Mussolini hélt ræðu í dag í
Róm. Hann tilkynti, að i vænd-
um væri stórkostlegar breyting-
ar á pólitískri og viðskiftalegri
yfirstjórn á Ítalíu.
1 fyrsta lagi tilkynti hann, að
fyrirhugað væri, að afnema full-
trúadeild ítalska þingsins, en í
staðinn skyldi koma samkunda
hinna fascistisku ,corporationa‘.
Samkunda þessi yrði hreins
stjórnmálalegs eðlis, og stæði
undir beinu eftirliti stórráðs.
fascistaflokksins.
Mussolini skýrði frá því, að
tilgangurinn með þessum breyt-
ingum á yfirstjórn þjóðmála á
Italiu væri sá, að gera landið al-
gerlega óliáð viðskiftum við
önnur riki, og hefðu refsiað-
gerðirnar fært Itölum heiní
sanninn um það, að slíkt væri ó-
hjákvæmilegt.Hannlýsti því yf-
ir, að allur iðjurekstur myndi
verða tekinn undir eftirlit hins
opinbera, og að í vændum væri
alger þjóðnýting iðnaðarfyrir-
tækjanna. Jafnharðan sem
þessu skipulagi yrði komið á,
lýsti Mussolini því, hvernig
reynt yrði að skapa á Ítalíu
framleiðslu gerfiefna, sem gerði
landið óháð viðskiftum við út-
lönd. Ilann sagði, að gerfi-ull
væri meðal þeirra efna, sem
stefnt væri að, að framleiða á
þennan liátt. Hann kvaðst játa
það, að það væri ómögulegt fyr-
ir nokkurt riki, að verða sjálfu
sér algerlega nóg, í öllum hlut-
um, en allt mundi verða gerl
til þess að komast eins nálægt
því marki, eins og koslur væri.
Þá fór Mussolini nokkrum
viðurkenningarorðum um full-
trúa Austurrikis, Ungverjalands
og Albaníu, fyrir þá afstöðu,
sem þeir hefðu tekið til mála
Ítalíu á Þjóðabandalagsfundum
í Genf, og' loks lét hann þess
getið, að herir ítala í Abessiniu
væri að vinna þar stórfelda
sigra.
Það liefir vakið athygli í sam-
bandi við þessa ræðu, að Musso-
lini mintist ekki einu orði á ráð-
stafanir þýsku stjórnarinnar,
hervæðingu Rínarsvæðisins,
Lundúnasamþykt Locarnoveld-
anna, né neitt af þeim málum,
er efst hafa verið á baugi und-
anfarna daga.
Gassprengj u-
árás á Erga
Alem,
Margt kvenna og barna
lést af völdum gaseitrunar.
— Mótmæli í vændum frá
Norska Rauða kross leið-
angrinum, en hann. er á
þessum slóðum.
Oslo, 23. mars.
Samkvæmt símskeyti frá
Addis Abeba bafa ítalskar flug-
vélar flogið yfir Erga Alem á
laugardag og varpað niður
fjölda gasprengikúlna. Margt
lcvenna og barna hefir farist af
vöklum gaseilrunar, en 27 af
borgarbúum liafa særst. Norski
Rauða Kross hjúkrunarleiðang-
urinn er á þessum slóðum og
hjúkrar hinum sjúku. Sam-
kvæmt fregn frá Reuter hefir
stjórn leiðangursins ákveðið að
mótmæla til Þjóðabandalags-
ins eiturgasnotkun ítala. — Ut-
anríkismálaráðuneytið norska
hefir ekki enn fengið neina til-
kynningu um þetta. (NRP. —
FB.). —