Vísir - 16.11.1936, Page 3
■aríiíiri^i^ii^rt ryáhfrv i-'-'-rvriin •
;«i.y4>svaaw,wi wr • •——«•'i^yyagif
*»»#»* *>»«íiKf^iriTr««Mfinnir,a»it«>.<fi*«i^tir.an-^-'iiiiirtfir»«»IT:nS
Sigurjón Pétursson
heflr ekki svikid samn-
inga vid „Idju‘% félagr
vepksmidjufólks.
Fiskimálaneínd heflr vanrækt
AmeríkomarkaðiBD.
Biður Landsbankann um lán. Er fé nefndarinnar
sóað?
maðnr andaðist áður en hann
tæfcr við embættinu: — Imð áttf'
ekkj fyrir honum að liggja, að
flytjast af æskustöðvunum og
yfirgefa „Húnvetninga sína“.
— Hitt vildi „sá sem ræður“, að
hann hæri beinin nálega þar
sem vagga hans hafði staðið.
Lárus Blöndal var merkileg-
ur maður og vel að sér ger,
jafnt andlega sem líkamlega.
Hann var mikill vexti og þó
einkum þrekinn, afrendur að
afli og vissi engi maður til þess,
að honum hefði nokkuru sinni
orðið aflfátt. Hann var aðsóps-
mikill og auðkendur livar sem
hann fór. Yfirbragðið virðulegt,
rómurinn mikill og styrkur.
Söngmaður afburðasnjall, glað-
ur og skemlinn í vinahópi, en
fálátur ella og þögull heima
fyrir. Barngóður var hann,
hýr og lilýr, og ástúðlegur við
feimna og niðurlúta krakka. —
Um það get eg vitni borið af
eigin reynd.
Gáfumaður mun liann hafa
verið i besta iagi og lagamaður
ágætur. Var og dómum hans
lítt Iiaggað fyrir æðra rétti. —
Lárus Þ. Blöndal var manna-
sættir og friðarins iiöfðingi.
Sögðu svo ýmsir þeir, sem vel
máttu um það vita og þektu
hann gerla, að löngum hefði
hann fremur kosið, að menn
sættist á mál sín, en að þeir
legði í kostnaðarsamar þrætur
og mála-vastur. En ekki
þoldi hann mönnum yfirgang
og gat verið liarður í horn að
taka, er menn fóru með ójafn-
að og rangindi. — Fengu sumir
á þvi að kenna, og þó einkum
bragðarefur einn í Dölum vest-
ur, er marga hafði grátt leikið,
án þess að lögum yrði yfir hann
komið. — En svo brá við, er
Lárus sýslumaður kom í Dali,
að hinum gáfaða ójafnaðar-
manni þótti vænlegast að verða
á braut úr héraði, er sýsíumað-
ur liafði við liann rætt í ein-
rúmi. — Vita menn nú ekki
gerla, hvað þeim liefir á milli
farið. — Hitt er víst, að maður-
inn kom ekki í Dali sinn síðan,
og var þar með lokið að mestu
sögu hans hér á landi. —
Lárus Blöndal lét ekki að
miklum mun til sín taka liin
eiginlegu þjóðmál. — Hann sat
þó á þingi sem fulitrúi Húnvetn
inga árin 1881—1885. En talið
er, að ekki hafi mjög að lionum
kveðið þar. — ,
Það mun verið hafa nálega
einróma álit Húnvetninga, að
Lárus Blöndal væri mikill
mannkostamaður, tilfinninga-
rikur og góðhjartaður, en dulur
var hann í skapi og bar ekki
hug sinn á torgin. — Þótti Hún-
vetningum sárt að verða af hon-
um að sjá úr héraði, en töldu
hann hins vegar maklegan
þess, að hljóta hið virðuíega
amtmanns-einbætti. — En þá
kom dauðinn og feldi þann úr-
skurð, sem ekki varð áfrýjað.
P. S.
Norskir bankamenn vilja af-
nema skatta af sparifjárinn-
stæðum.
Oslo í gær.
„Centralforeningen for Nor-
ges sparebanker“ og „Den
norske bánkforening“ liafa sent
fjármálaráðuneytinu till. um
hreytingar á lagaákvæðum um
skattaálagningu á sparifjárinn-
stæður. Bankafélögin benda á,
hversu sparifjárinnstæður hafi
minkað að undanförnu og
leggja til, að litlar sparifjár-
innstæður verði skattfrjálsar og
að „4 pro mille“-ákvörðunin
Verði fekl úr gildi. (NRP —FB.)
I Alþýðublaðinu þ. 13. þ. m.
birtist frásögn um fund í félag-
inu „Iðju“ og er í því sambandi
skýrt frá því, að Sigurjón Pét-
ursson hafi svikið samninga
við fyrrnefnt félag -— og það
sé orsök verkfalls þess, sem yfir
stendur á Álafossi.
í greinargerð, sem Eggert
Claessen hefir sent Vísi, um
Álafossdeiluna, eru leidd rök að
því, að þessi staðhæfing Alþýðu-
blaðsins sé algerlega ósönn.
Keppinautar Álafoss-
verksmiðjunnar fyrir
norðan greiða miklu
lægra kaup en hún.
Þ. 9. okt. í fyrra var gerður
samningur við félagið Iðju og
Fél. ísl. iðnrelcenda og gilti
samningur þessi m. a. um verk-
smiðjuna á Álafossi, sem er í
Félagi ísl. iðnrekenda. Ákvæði
eru í samningi þessum um, að
kaup fullorðinna karla skuli,
vera 300 kr. á mánuði, en
lcvenna 150. Til samanburðar er
]>að tekið fram í greinargerð
Eggerts Claessen, að Gefjun á
Akureyri greiðir körlum aðeins
175—200 kr. á mánuði, en kven-
fólki 110 kr. „Þegar nú Álafoss-
verksmiðjan gekk inn á fyr-
greindan samning við félagið
Iðju, var það á þeim grundvelli,
að ekki yrði talið ósanngjarnt,
að hún reiknaði karlmönnum
kr. 150,00 á mánuði fyrir fæði,
húsnæði, ljós, hita, böð og önn-
ur slík hlunnindi, en kvenfólkí
kr. 100,00 á mánuði fyrir þetta
sama, en samt sem áður varð
kaup fóiksins raunverulega
miklu hærra en kaúp. það, sem
greitt er í verksmiðjunni Gefj-
un“.
Málinu skotið fyrir gerð-
ardóm.
Iðja taldi þetta reiknað fólk-
inu of hátt. Þar sem ákvæði eru
í fyrnefndum samningi milli fé-
laganna, að ágreiningur skuli
lagður í gerðardóm, fór félagið
þá leið og skaut málinu fyrir
gerðardóm. Gerðardómur 12.
júní í sumar dæmdi, að ekki
mætti taka meira af fólkinu
fyrir fæði, húsnæði o. s. frv. en
110 kr. á mánuði fyrir karla og
95 fjrrir konur. Þetta var raun-
verulega tilsvarandi hækkun
kaupútgjaldafyrirverksmiðjuna
írá því sem hún hafði reiknað
með. Sigurjón Pétursson sá nú
fram á, að gersamlega ógerlegt
var að reka Álafossverksmiðj-
una á þessum grundvelli, þar
sem verksmiðjan stóð svo höll-
um fæti í samkepni við Gefjun
á Akureyri.
Nauðsynlegt að gera
rekstur verksmiðjunnar
ódýrari.
Nauðsyn krafði, að rekstur
verksmiðjunnar yrði gerður ó-
dýrari, svo að hann stöðvaðist
ekki. Voru eigi önnur ráð fyr-
ir hendi en að ráða kvenfólk til
þess að vinna störf karla. Voru
ráðnar 5 stúllcur um mánaða-
mótin sept.—okt. s. 1., og með
hréfi 1. okt. sagði verksmiðjan
upp 5 karlmönnum frá 1. nóv
að telja. (í fyrn. samn. er á-
kvæði um fjögurra vikna upp-
sagnarfrest af beggja hálfu).
Meðan uppsagnarfresturinn var
að líða, vorn ofannefndar stúlk-
ur látnar vinna í verksmiðj-
unni, til þess að æfast vinn-
unni.
Af framanskráðu er augljóst,
að það er uppspuni stjórnar
Iðju, að karlmönnunum fimm
hafi verið sagt upp í hefndar-
skyni.
Nú gerðist það, sem áður hef-
ir verið frá skýrt, að Iðja krefst
þess, að fyrr greindir fimm
menn vinni áfram við verk-
smiðjuna. Var þessa krafist
hréflega 1. þ. m. — og hótað
verkfalli frá og með næsta degi,
ef þessar kröfur yrði ekki tekn-
ar til greina. Jafnframt var
kært yfir því í bréfinu, að
verksmiðjan hefði ófélagsbund-
ið fólk í þjónustu sinni og verk-
stjóra, sem þar mætti ekki
vera, samkvæmt samningi fé-
lagsins, en þetta reyndist hrort-
tveggja rangt, en hefir ekki þýð-
ingu í deilumálinu.
Niðurlag greinargerðar E.
Claessen er svohljóðandi:
„Aðalatriðið er þetta, að fé-
lagið Iðja krefst þess,að Álafoss-
verksmiðjan láti nefnda 5 menn
starfa áfram í verksmiðjunni,
þó þeim hafi verið löglega sagt
upp með þeim fyrirvara, sem
ákveðinn er í fyrgreindum
samningi milli félaganna, eins
og áður er tekið fram.
Sigurjón Pétursson neitaði
fyrir hönd Álafossverksmiðj-
unnar að halda áfram í verk-
smiðjunni fyrgreindum fimm
mönnum, og fyrirskipaði þá fé-
lagið Iðja verkfall hjá verk-
smiðjunni frá og með mánu-
degi 2. þ. m„ og stendur það
verkfall enn.
Eins og sést á framanskráðu,
þá er félagið Iðja í þessu máli
að ráðast á tvennskonar rétt
vinnuveitandá, sem sé rétt
vinnuveitanda til þess að ákveða
sjálfur hvaða menn hann hafi
í þjónustu sinni og í öðru lagi
rétt vinnuveitanda til þess að
haga atvinnurekstri sínum
þannig, sem hann telur fjár-
hagslega skynsamlegast fyrir
sig.
Mál þetta var strax i uppliafi
af hendi vinnuveitanda lagt i
hendur sáttasemjara ríkisins,
sem árangurslaust hefir reynt
sættir í þvi. Félag íslenskra iðn-
rekenda kaus nefnd í málið, til
þess að reyna samninga við fé-
lagið Iðju. Fór nefndin fram á
það, að málið væri lagt í gerð,
eins og bein skylda er til samkv.
17. gr. ofangreinds samnings
milli félagnna, en þeir Runólfur
Pétursson og Ólafur Einarsson
neituðu að fullnægja þeirri
slcyldu samkv. samningnum. Þá
gekk nefnd Félags islenskra
iðnrekanda það langt í sam-
komulagslilraunum sínum, að
hún bauðst til þess, að Álafoss-
verksmiðjan skyldi taka til
starfa á sama grundvelli, eins
og ]>egar verkfallið hófst, sem
sé þannig, að umræddir 5 menn
skyldu teknir til vinnu í verk-
smiðjunni, síðan skyldi málið
iagt í gerð, verksmiðjan starfa
á fyrgreindan hátt, þangað til
úrskurður gerðardómsins lægi
fyrir, en háðir aðilar skyldu svo
að sjálfsögðu beygja sig fyrir
úrslitum gerðardómsins. En
jafnvel þessi samkomulagstil-
raun mistókst, því á fundi 7.
þ. m. neituðu þeir Runólfur
Pétursson og Ólafur Einarsson
skriflega að ganga að tillög-
únni.
'Yterkfallið á Álafossi lieldur
því enn áfram, vegna liinna ó-
Ivíræðu samningsrofa félagsins
Iðju“.
í Nýja Dagblaðinu í gær er
feiknamikil „auglýsing“ frá
Fiskimálanefnd um undirbún-
ing undir 200 tn. sendingu af
hraðfrystum fiski til Banda-
ríkjanna.
Með þessari auglýsingu fylg-
ir, að nefndin hafi farið þess ú
leit við Landsbankann, að hann
veitti henni skyndilán til að
standast straum af þeim kostn-
að.i, er af þessu myndi leiða!!
Það kemur dálítið undarlega
fyrir, að nefndm sem fékk til
umráða á árinu 1935 um 1 milj.
kr. sjóð og að auk %% af út-
flutningsgjaldi af fiski, skuli
þurfa að sækja um lán til að
standast kostnað af einni 200
tonna fisksendingu til U. S. A.
Þetta virðist þýða það, að sjóðir
nefndarinnar séu algerlega
tæmdir og liljóta menn þá að
spyrja hvar gróðinn sé af hin-
um maglofuðu „spekulation-
um“ nefndarinnar, sem þóttu
svo miklar og vandasamar, að
sjálfir fiskeigendur máttu ekki
um þær fjalla!
Nefndin hefir sóað, það er
auðvitað, en hún hefir líka gert
annað. ,
Hún hefir vanrækt þann
markað á hraðfrystum fiski,
sem S. 1. F. hafði opnað í Am-
eriku i vor.
Það er ijóst, að nefndin ætlar
ekkert að gera i þessu efni ann-
áð en að senda 1—200 tn., sem
auðvitað er til lítils gagns. Éf
S. í. F. liefði fengið að liafa
forgöngu þessara mála, þá ætl-
aði það að nota sem hest og
hægt e.r markaðinn yfir alt ár-
ið, og senda þá í liaust farm
i sept.—okt.Þessi sending Fiski-
málanefndar kemur seint eða
Heiðnrsiamsæti
var Þórði lækni Thoroddsen
lialdið laugardaginn þ. 14. þ.
m. i Oddfellow-liöllinni, i til-
efni af áttatíu ára afmæli lians.
Veisluna sátu hátt á annað
hundrað manns.
Pétur Halldórsson, horgar-
stjóri, bauð gestina velkomna.
Síra Friðrik Hallgrímsson
mælti fyrir minni heiðursgests-
ins. Ennfremur töluðu þeir
læknarnir Magnús Pétursson
liéraðslæknir, prófessor Guð-
mundur Hannesson og prófess-
or Guðmundur Thoroddsen, og
margir fleiri. Síra Bjarni Jóns-
son mælti fyrir minni frú Önnu
Tlioroddsen í mjög skemtilegri
ræðu. Heiðursgesturinn stóð að
síðustu upp og þakkaði þann
heiður, sem sér hefði verið
sýndur. Var liann liinn kátasii
og enga elli á honum að sjá.
Eftir borðlialdið var sesl að
kaffidrykkju og skemtu menn
sér síðan við samræður og dans
til kl. \y2 um nóttina. Vildi þá
heiðursgesturinn ganga til
náða, því liann er mikill morg-,
unmaður.
Fylgdi síðan fjöldi gestanna
þeim hjónum heim að liúsi
þeirra.
Samsætið fór hið besta fram
og skemlu menn sér prýðilega.
á svipuðum tíma, sem byrjað
var í fyrra.
Hingað hafa borist bréf í
baust frá kaupendum í Amer-
íku, þar sem þeir spyrjast fyrir
um hvort íslendingar ætli sér að
ckki að nota Ameríkumarkað-
inn. Þeir segjast hafa undrast
að fisksendingar séu ekki þegar
komnar. Fyrstu sendingin,
sögðu þeir, að yrði að koma í
nóvember ef nota ætti vetrar-
markaðinn.
En nú kemur Fiskimála-
nefndin til sögunnar með þenn-
an 200 tonna flutninga og lán-
beiðni sína í sambandi við það.
Er þetta ekki aðeins gert til að
fróa fiskeigendur fyrir liinn
væntanlega fund Sölusam-
bandsin,s svo hægt sé þó að
segja, að eitthvað hafi verið
,gert? Þeir sjá það auðvitað þeir
góðu herrar í Fiskimálanefnd-
inni, að það muni verða fundið
a# því að þeir hafa ekki gert
neitt að sölum til Bandaríkj-
anna, eftir alt það sem á undan
er gengið í sambandi við för
Ivristjáns Einarssonar í fyrra.
Nefndin sér það sjálf, að henni
muni verða bent á, að eftir að
hún er búin, að lirifsa þessi mál
til sín þá beri henni skylda til
að gera þeim sómasamleg skil.
Og svo er eitt atriði. Erum
við ekki í þann veginn að tapa
af þessari markaðsvon vestra?
Er ekki svo komið, að ná-
grannar, sem betur vaka yfir
þessum málum, hafi nú komið
auga á hagnað af slíkum sölum,
og muni leggja kapp á, að ryðja
okkur af þessum markaði?
Það væri eftir öðru í þessu
máli, þó svo tækist fyrir Fiski-
málanefnd.
I.0.0.F.=01l.IP,=11811i781/4-
T E. IX
Veðrið í morgun. ,
I Reykjavík 3 stig, Bolungar-
vík 3, Akureyri 1, Skálanesi —
1, Vestmannaeyjum 5, Sandi 4,
Kvígindisdal 3, Hesteyri 1,
Gjögri 2, Blönduósi 1, Siglunesi
0, Grímsey 2, Raufarliöfn — 3,
Fagradal — 3, Papey 1, Hólum
í Hornafirði — 1, Fagurhóls-
mýri 1, Reykjanesi 5. Meslur
liiti hér í gær 4 stig. Minstur
1. Úrkoma 1,3 mm. Yfirlit:
Grunn lægð og nærri kyrstæð
yfir Grænlandshafi og önnur
lægð um 1200 km. suður af
Reykjanesi á hreyfingu austur
eftir. Horfur: Suðvesturland,
Faxaflói, Rreiðafjörður, Vest-
firðir: Sunnan og suðvestan
gola. Skúrir. Norðurland, norð-
austurland, Austfirðir, suð-
austurland: Hægviðri. Víðast
léttskýj að.
Lausn frá embætti
hefir Magnús sýslumaður
Torfason fengið frá 1. n. m.,
samkvæmt eigin ósk.
•u
))UUUdiUði i
fer í kvöld kl. 8 vestur og
norður.
Aukahafnir:
Reykjarfjörður og
Önundarfjörður á
suðurleið.
Skíðaskáli Ármanns
var vígður í gær að viðstödd-
um rúmlega 100 manns. Nánari
frásögn bíður næsta blaðs
vegna þrengsla.
Heimdallur
heldur fund annað kvöld.
Aflasala.
Hilmir seldi 68 smálestir af
isfiski í Wesermúnde á laugar-
dag, fyrir 15.400 ríkismörk.
Iðnaðarmannafélagið
lieldur fund i Baðstofu iðn-
aðarmanna í kveld.
Skipafregnir.
Gulifoss kom til Hesteyrar í
morgun. Goðafoss fer vestur og
norður í kveld. Brúarfoss kom
til Grimsby í gærkveldi. Detti-
foss var á Djúpavogi í morgun.
Lagarfoss er væntanlegur til
Norðfjarðar í dag. Selfoss er á
útleið. Skaftfellingur kom i
gærkveldi. Esja kom í morgun.
G.s. ísland fór frá Kaupmanna-
höfn í gærmorgun. Kemur við
í Leith.
Nýja Bíó
sýnir nú hráðskemtiíega
mynd, sem heitir Raddir náttúr-
unnar og er tekin eftir sögu
Jack London’s, Tlie Call ©f the
Wild. Aðalleikendur eru Clark
Gable, Jack Oakie og Loretta
Young. — Jack London er vin-
sæll rithöfundur hér á landi og
mun marga fýsa að sjá mynd-
ina. Ameríkumenn kunna eðli-
lega hest að taka Jack London
myndir, enda er þeiin það
skyldast, því hækur -hans eru
einskonar saga hinna miklu
uppgangsára í Ameriku, saga
landnemanna og gulleitanna,
með öllu þvi kapplilaupi og
„spenningi“, sem sliku fylgdi.
Hjónaband.
í>ann 14. þ. m. voru gefin
saman í hjónaband af lögmanni
ungfrú Elísabet Skaftason,
Halldórs Skaftasonar og Jón Á.
Bjarnason, rafmagnsverkfræð-
ingur. Heimili ungu lijónanna
verður á Bergstaðastræti 81,.
30 ára starfsæfmæli
á i dag, 16. nóv., Agúst Fr.
Guðmundsson skósmiður, Ing-
ólfsstræti 2. Hann lærði skó-
smíði hjá L. G. L. og vann þar
í 10 ár, en liefir haft sína eigin
skósmiðastofu siðan.
V. K. F. Framsókn
heldur fund anað kveld kl.
8% í Alþýðuhúsinu (gengið inn
frá Hverfisgötu). Jón Sigurðs-
son erindreki flyfcur erindi á
fundinum.
Innið ADLER
V.K.F. Framsókn
heldur fund þriðjud. 17. þ. m. kl. Sþo i Alþýðuhúsinu. (Gengið
inn frá Hverfisgölu). — Jón Sigurðsson erindreki talar um
samræmingu sildartaxia og fleiri mál. Konur, fjölmennuð. —
STJÓRNIN.