Vísir - 10.12.1936, Blaðsíða 2

Vísir - 10.12.1936, Blaðsíða 2
VÍSIR Vitringarnir og sfldin Dagblað þeirra Tímamanna liefur upp hástemdan Iofsöng í gær til gjaldeyrisnefndárinn- ar og fjármálaráðherrans. ^Vilringarnir, sem stjórna innflutningnum, þeir Skúli og Eysteinn, hafa með „föstum og karlmannlegum tökum forð- að þjóðinni frá yfirvofandi fjárliagslegu tjóni, og þá jafn- framt stjórnfarslegu hruni“, segir hlaðið. Raunar er fjármálaráðherr- ann ungur, en þó ekki svo, að ekki megi kenna hann við karlmensku, einkum þegar slíkur beljaki sem Skúli Guð- mundsson er honum til annar- ar handar. Viðskiftin liafa beinst inn á rétta braut, fyrir aðgerðir þess- ara manna, segir blaðið, og bendir á, að viðskiftajöfnuður- inn sé nú hagstæðari en und- anfarið. Raunar er það svo, að of snemt er að segja, hver inn- flutningurinn muni verða á árinu. I desember má gera ráð fyrir, að flutt verði inn fyrir um 6 milj. króna. Ofan á inn- flutningstölurnar, sem gefnar eru upii um áramót, bætist án efa um 10%, líkt og var 1934, og er það sennilegt, að raun- verulega muni innflutningur- inn að lokum nema um 46 milj. króna. En það er dálítill vandi að koma auga á hin föstu tök vitr- inganna tveggja. Sennilega er átt við það, að þessir tveir áttu frumkvæðið að því, að gerð var áætlun um innflutninginn til landsins fyrir alt árið, og skyldi hann nema 37 milj. króna. Það var skrifað niður, hvað átti að flytja inn, og fyrir hve mikið. Og jafnframt var svo fyrirskipað að samvinnu og neytendafélög skyldu eiga for- gangsrétt til þess sem leyft var. Hér virtist ótvírætt vera um sterk tök að ræða! Það er bæði ákveðið, hvað eigi að flytja inn, fyrir hve mikið fé og hverjir skuli versla með það. Við- skiftabúskapurinn út á við átti •að ganga eftir þessari 1 árs á- ætlun kaupfélagsstjórans og ráðherrans. En nú var aðeins eftir karlmenskan í því að framfylgja áætluninni. Ein- um lið hennar var best fylgt eftir. Hlutdrægnin í leyfisveit- ingunum hefir verið áberandi og versluninni stefnt þangað, sem ákveðið var í „planinu". En hin atriðin hafa gengið á misvixl. Flokkunin á inn- flutningsvörunum liefir riðlast svo, að þar stendur víða ekki steinn yfir steini. Og þó er það þriðja hörmu- legast. Áætlunin tiltók 37 mil- jónir, en i nóvemberlok höfðu verið veitt leyfi fyrir yfir 50 milj. og 300 þús. kr. Nokkuð af þessum leyfum verður ekki notað, eða færist yfir á næsta ár. Þó fer innflutningur feikn- arlega fram úr áætlun, — þess- ari áætlun mannanna með „föstu tökin og karlmenskuna“. Vitringarnir tveir hafa séð verk sitt renna út í sandinn í öllu nema einu, — enda hefir vilj- inn sennilega ekki verið óein- beittastur á því sviði. Það hef- ir tekist, að níðast hraklega á fyrri innflytjendum og láta fremur drjúpa þangað, sem þessir tveir stjórnmálamenn eiga sina dýrmætu hagsmuni. muni. En úr því að svona fór með „föstu tökin og karlmenskuna“, hvað var það þá, sem bjarg- aði? Ástæðan til þess, að versl- unarjöfnuðurinn er ekki hörmulegri nú en hann hefir lengi verið, er einungis hið mikla veltuiár, sem var í síldar- framleiðslunni i sumar. Síld- inni var mokað upp af sjó- mönnum vorum, og liún unnin í verksmiðjum og á söltunar- stöðvum. „Föstu tökin og karl- menskan“ sem bjargaði, var öll lijá þeim, sem héklu um báts- stýrið og drógu inn rietin, en ekki hjá kaupfélagsstjóranum eða ráðherranum. Þessir tveir vitringar hefðu farið flatar, en þeir þó gera, hefði þessi skyn- lausa skepna — síldin — ekki lagt leið sína hingað í sumar, eins og hún gerði. Mennirnir með „föstu tökin“ og „karlmenskuna“ og brjóst- vitið, gátu ekki annað gerl og höfðu ekki annað að gera, en að horfa á. Það er sagt, að einn fugl í hendi sé betri en tveir í skógi. Það sýnist líka vera meira leggjandi upp úr þvi fyr- ir okkur, að eiga eitthvað af sild til að bjarga með viðskift- um landsins, en að liafa þessa tvo vitringa vora í stjórn inn- flutningsmálanna. Engels- skákmótið. Kappskákirnar hófust í Odd- fellowhúsinu uppi kl. 8 í gær- kveldi. Fjöldi áhorfenda var viðstaddur til að horfa á kapp- skákirnar. Kl. rúmlega 1 í nótt var fyrstu urnferð lokið og fóru leikar þannig: Eggert Gilfer vann Kristján Kristjánsson. Sturla Pétursson vann Baldur Möller. L. Engels vann Ásgrím Ágústsson. Einar Þorvaldsson vann Benedikt Jó- liannsson. Þráinn Sigurðsson vann Gústaf Ágústsson. Ás- rnundur Ásgeirsson vann Jó- hann Jóhannsson. Jafntefli varð milli Steingríms Guð- mundssonar og Magnúsar G. Jónssonar. Næsta kappskák fer fram á sama stað á föstudagskveldið. Þj óðabanda-* lagspáðið kemur á fund í dag. London í morgun. Þjóðabandalagsráðið kemur saman á fund kl. 5 í dag í Genf. Spánska stjórnin hefir orðið fyrir vonbrígðum út af því, að utanrikismálaráðherrar Breta, Frakklands og Sovét-Rússlands munu ekkj sækja fundinn og gera sér þvi minni vonir um árangur hans. Italía mun ekki senda fulltrúa, og ekki heldur Ecuador. Þá er álitið, að Boli- via muni ekki heldur senda fulltrúa á fuiídinn. Nýjum lið hefir verið bætt á dagskrá fundarins á siðustu stundu. Tyrkir ætla að leggja fyrir fundinn deilumál sín við Frakka út af hagsmunum Tyrkja í Alexandretta og An- tioich í Sýrlandi, en í báðum þessum borgum eru Tyrkir í meiri hluta. Frakkar fara með umboðsstjórn í Sýrlandi enn í þrjú ár. Mánaðarritið Rökkur. Afgr. flutti 14. maí s. 1. í Al- þýðuhúsiS. Sjá augl. Aflasölur. Skallagrímur seldi 1970 vættir af ísfiski í gær fyrir 1439 stpd. Baldwin tilkynnir að kon- hafi sa&t af sér. ungur Játvarður fes* 'úi* landi. Heptoginn afYork - Albei^t I* Fregnast hefir, að á ráðuneytisfundinum, sem hald- mn var í gærkveldi, hafi Stanley Baldwin, forsætisráð- herra, skýrt frá því, að Játvarður VIII. hafi tekið fulln- aðarákvörðun um að afsala sér konungdómi. Talið er, að Baldwin muni tilkynna neðri málstof- unni ákvörðun konungs í dag. Konungsfjölskyldan, að undanteknum hertoganum af Gloucester, hitti Játvarð konung í Royal Lodge, Windsor Great Park, í gær síðdegis. Að því er United Press fregnaði, kom fjölskyldan saman til þess að kveðja Játvarð, sem mun vera á för- um frá Bretlandi. Voru skyldmenni konungs hjá honum í eina klukku- stund. Talið er líklegt, að hertoginn af York setjist á valdastól og taki sér nafnið Albert I. Lögregluvörður við bústað konungs. United Press hefir loks fregnað, að lögreglan hafi gert mjög tíðtækar ráðstafanir til þess að halda uppi reglu í dag, bæði við þinghúsið, alla bústaði konungs- f jölskyldunnar o. s. frv. Hefir alt það lið, sem lögregl- an hefir á að skipa, og varalið hennar, verið kallað saman- Er einkanlega búist við miklum mannfjölda í nánd við þinghúsið. (United Press—FB.) Konuiiqup og ríkiserfingi? I BALDWIN á leið til. þinghúsisns. Dr. Schacht krefst Dýlendoa hanða Þjúöverjum. London, í gær. Dr. Schacht, sem hingað til hefir verið álitinn með gætnari stjórnmálamönnum Þjóðverja, hefir haldið ræðu þar sem hann hefir krafist þess, að þörf Þýskalands fyrir nýlendur sé þegar tekin til íhugunar. Hann hafir farið bitrum orðum í garð annara þjóða vegna afstöðu þeirra til hins nýja Þýskalands. London í morgun. Stóra Bretland og Frakkland hafa snúið sér til ítalíu, Þýska- lands, Portúgals og Rússlands með tilmæli um það, að þessi ríki tæki höndum saman við Breta og Frakka, um að bjóð- ast til þess að miðla málum í Spánarstyrjöldinni. Ennfrem- ur hafa þau mælst til þess, að stjórnir Ítalíu, Þýskalands, Portúgals og Sovét-Rússlands gerðu sér far urp að koma í veg fyrir að sjálfboðaliðar færu frá þessum löndum til Spánar. - I Paris er sagt, að Þýskaland og Portúgal hafi beðið um um- hugsunarfrest, en að Rússland liafi tjáð sig fúst til málamiðl- unar, með þeim skilyrðum, að gerð yrði alvarleg gangskör að því að koma í vég fyrir sjálf- boðaliðsflutning til Spánar. Það er álitið, að nú sé hent- ugur tími til þess að bjóða Spánverjum málamiðlun, þar sem báðri aðilar virðast vera að þreytast. Fiskmarkaðurinn í Grimsby miövikudag 9. desember: RauS- spetta 85 sh. pr. box, stór ýsa 42 sh. pr. box, miðlungs ýsa 36 sh. pr. box, frálagöur þorskur 35 sh. pr. 20 stk., stór þorskur 12 sh. pr. box og smáþorskur 10 sh. pr. box. (Tilk frá Fiskimálanefnd. — FB). HERTOGINN AF YORK, liinn væntanlegi Albert I. ELISABEI'H PRINSESSA, elsta dóttir bertogans af York, er verður ríkiserfingi í Breta- veldi, ef faðir hennar tekur við konungdómi. sem búist er við að setjist á konungsstól í Bretlandi sem Albert konungur I., heitir fullu nafni Albert Frederick Arthur George og er annar sonur George Y. Bretakonungs og Mary ekkjudrotningar. Hann er fæddur í York Cottage, Sandringham, 14. desember 1895. Þann 26. apríl 1923 gekk hann að eiga lafði Elizabeth Bowes-Lyon, dóttur jarlsins af Strathmore. — Hertoginn hefir, eins og Játvarður bróðir hans, altaf látið sig miklu varða velferð og líðan alþýðu manna. Hann er og áhugamaður um íþróttir eins og bróðir hans og á vinsældum að fagna um gervalt Bretaveldi. 49 bátafitgerðarmenn biðja om 30°/o gengislækknn. Vér undirritaðir útgerðarmenn á Suðurlandi viljum ekki láta hjá líða að tilkynna ríkisstjórninni, að eins og horfur eru nú með sjávar- útveg á næstkomandi vetrarvertíð, sjáum við ekki fram á, að hægt sé að gera skipin út alment að á- stæðum óbreyttum. Eins og hæstvirtri ríkisstjórn mun kunnugt, hefir útgerðin síðan 1930, er saltfiskur féll úr ca. kr. 140 pr. skipd. í kr. 60—70, verið rekinn með tapi. Þrátt fyrir á- kveðnar tilraunir til að lækka út- gerðarkostnaðinn, hefir þetta tap enn aukist hin síðustu ár, sem hafa verið léleg aflaár. Er nú svo komið, að mikill hluti útgerðar- manna er orðinn eignalaus. Undanfarin ár hefir mikið af rekstrarfé skipanna fengist á þann hátt, að olíu- og veiðarfæraversl- anir hafa lánað mölnnum toauð- synjar til útgerðar, en nú er að rnestu loku fyrir það skotið. Hins- vegar eru lánsstofnanir tregar að lána til alls reksturs, þegar trygg- ingar eru lélegar eða engar, en af- komu útgerðarmanna hrakar ár- lega. Oss finst það rétt og skylt, að skýra hæstvirtri ríkisstjórn í tíma frá ástandinu, eins og það raun- verulega er, til þess að hægt sé að hefjast handa til bjargar þess- um aðalatvinnuvegi okkar íslend- inga, sem lagt hefir til langmegt- an hlutann af útflutningsafurðum vorum. Vér snúum oss til ríkisstjórnar- innar af þeirri ástæðu, aS hið lága verð á afurðum okkar stafar a<5 miklu leyti af gengi á íslenzkri krónu, gengi, sem reynt er að halda uppi me‘ð sérstökum ráðstöfunum af hálfu stjórnarvaldanna og sem vera mundi lægra, ef þeim ráðstöf- unum væri slept.. Er því þarna raunverulega tekinn af útgerðinni drjúgur hluti af andvirði afurð- anna og það gert að tilhlutun stj órnarvaldanna. Með því að ölluni má vera þaÖ ljóst, að ástandið, eins og það er nú, er eklci til frambúðar, viljum vér leyfa oss, að beina því til hæst- virtrar rikisstjórnar, að hún hlut- ist til um, að gengi íslenzku krón- unnar sé ekki lengur haldið hærra en eðlilegt vær-i og hægt væri að gera án þvingunarráðstafana. Mun það ekki fjarri lagi, að gengi henn- ar væri lækkað um 30%. Vilji hæstvirt ríkisstjórn ekki sinria þessu, en sjái hins vegar ein- hver önnur ráð fram úr örðugleik- unura, eru fulltrúar okkar útgerð- armanna fúsir að ræða hvaða mögu- leika sem eru útveginuin til bjargar. Virðingarfylst, 9 .nóvember 1936. Garður og Sandgerði: Guðmundur Þórðarson. Þórður Guðmundsson. Guðni Jónsson. Halldór Þorsteinsson. Sveinbjörn Árnason. Kristinn Árnason. Guðmundur Jónsson. Guðlaugur Eiríksson. Finnbogi Guðmundsson. Huxley Ólafsson. p. pr. Haraldur Böðvarsson & Co. Ólafur Jónsson. Akranes: Haraldur Böðvarsson. Oddur Hallbjarnarson. Þórður Ásmundsson. Jón Árnason. Sigurður Hallbjarnarson. Brynjólfur Nikulásson. Árni Sigurðsson. Jón Halldórsson. Halldór Jónsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.