Vísir - 19.03.1937, Side 2

Vísir - 19.03.1937, Side 2
VÍSIR VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstj.: Páll Steingrímsson. Skrifstofa I Austurstræti 12. og afgr. | S í m a r : Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Prentsmiðjan 4578 Verð 2 kr. á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan. A krossgötum. Margt bendir nú til þess, að ýmsar breytingar sé i aðsigi i stjórnmálunum. Ef þeir tveir flokkar, sem undanfarin ár liafa unnið saman, eiga ekki lengur samleið, hlýtur árangurinn að verða sá, að nýjar kosningar slandi fyrir dyrum. Það sem gerst hefir siðustu daga hnígur alt í þá áttina, að staðfesta þann grun, að flokkarnir standi nú á krossgötum og getur valdið miklu um framtið íslenskra þjóðmála liver leið verður nú valin. Hver ný breyting gefur von um að eittlivað kunni að batna vandræðaástand það sem nú ríkir. Þjóðin er orðin þreytt á skipulagningunni, á höftunum, á athafnaófrelsinu, sem átti að leiða hana út úr erfiðleikunum en hefir aðeins þrengt lcosti hennar og dregið hana lengra niður í öngþveitið. Þjóðin er orðin þreytt á lofsöng um nýju fötin keisarans sem enginn sér, nema þeir sem þurfa á lofinu að halda. Þjóðin er orðin þreytt á öllu fimbulfambinu um fram- farir og bata, sem enginn getur komið auga á, þvi altaf eru erf- iðleikarnir að aukast. Hún hefir fengið nóg af ráðsmensku sósi- alista síðan þeir koinust til valda enda er nú sýnilegt, að J>eir hafa engan manndóm tii aö fara með stjórn né hafa jiokkur ínannaforráð. Þjóðin vííí nú komast út úr völundarhúsi skipulagningar - innar, út úr skugga kreppunn- ar, út úr áhyggjum reksturs- hallabúskaparins. Hún þráir að fá frjálsræði til starfa, til að lirinda af sér svefnþorni skipu- lagningarinnar. Hún þarfnast ríkisstjórnar sem örvar fram- kvæmd hvers einstaklings og gefur mönnum bjartsýni og traust á framtíðina. Þess vegna fagnar hún því að flokkamir standa nú á krossgötum. Sú leið sem verður tekin getur orðið upphaf nýrra tíma. Óhikað má fullyrða, að á- stand það í stjórnmálunum, sem myndast hefir síðustu dag- ana, er verk jafnaðarmanna. Mörgum finst sem ekki séu sjálfráðar ráðstafanir þeirra og láti þeir nú mjög skeika að sköpuðu. Frumvarp það, sem þeir hafa borið fram á þingi um gjaldþrot Kveldúlfs og líklegt er að valdi friðslitum flokk- anna, er ekki sprottið af um- liyggju fyrir hag þjóðbankans. Frumvarpið á sér aðra sögu. Sá maður, sem sagt er að einna mest hafi barist fyrir framgangi frumvarpsins í Alþýðuflokkn- um, var Vilmundur Jónsson. Á flokksfundi sem haldinn var fyrir nokkrum dögum hélt hann Iivassa og berorða ræðu. Ilanii sagði, að þeir vissu það allir, að fjögra ára áætlun flokksins væri farin í liundana. I>ví væri tkki lengur bægt að lejma. Þetta vissi líka öll alþýða. Aætl- unin gæti aldrei komið til framkvæmda, hún væri „strönduð“. Þess vegna væri flokknum nauðugur einn kost- u r, að kasta einhverri þeirri ,.bombu“ inn á svið stjórnmál- anna, er dregið gæti að sér at- bygli lýðsins. Krafan um gjald- þ-rot Kveldúlfs væri handliæg og hana væri nú sjálfsagt að nota til þess að leiða athyglina frá binni algerðu uppgjöf Al- þýðuflokksins við fjögra ára á- ætlunina. Þetta var svo afráðið og stærsta atvinnufvrirtæki landsins átti að verða fórnar- lamb Alþýðuflokksins til þess að friðþægja fyrir ráðþrot hans og loforðasv-ik. Nú stendur flokkurinn á krossgötum. Nú lítur út fyrir að litið verði úr högginu sem hátt var reitt og mun ráð hans snú- ast gegn honum sjálfum. Mann- dómur Framsóknarmanna var meiri en Vilmundur og Héðinn liöfðu gert ráð fyrir. Bændurnir eru seinþreyttir til ófriðar en þeir eru engir veifiskatar þegar á hólminn er komið. Næstu dagar munu skera úr því livort framhald verður á samviunu stjórnarflokkanna eða hvort friðslit verða og þing- rof. ERLEND VÍÐSJÁ. Viðskifta- áformjapana. J apanska samgöngumálaráðu- ncytið hefir lagt fyrir þingi'S viö- tækar tillögur um aukningu við- skifta við aðrar þjóðir og hvað gera skuli til stirönings japönsku skipaútgerðinni. Merk stofnun, Institute of Pasific Relations, hefir nýlega gert tillögur þessar að umtalsefni. Samkvæmt skýrslum stofnunar- innar leggur samgöngu- og sigl- ingamálaráðuneytið japanska til, að á næstu fimm árum verði varið 150 miljónum yen tíl endurnýjunar kaupskipastól Japana. Lögð er á- hersla á, að knýjandi nauðsyn sé, að Japanir komi sér upp stærri og hraðskreíðari flutningaskipum, en þeir nú eiga, ekki aðeins til þess að geta staðið betur að vígi i sam- kepninni víð aðrar siglingaþjóðir, heldur og vegna þess, að ef til styrjaldar kemur sé Japönum nauðsyn að hafa sem stærstan kaupskipastól. Miðað við smálestatölu standa Japanir nú best allra þjóða að vígi á þremur mikilvægum siglinga- leiðum. Á siglingaleiðinni Japan— New York um Panamaskurðinn hafa Japanir 18 ný, hraðskreið flutningaskip í förum, hvert um 10.000 smálestir. Öll þessi skip eru þannig gerð, að á fáum dögum er hægt að beita þeim í vopnuð hjálpar-beitiskipl, til sjálfstæðrajr notkunar i sjóhernaði eða sem her- flutningaskip. Hinar siglingaleið- irnar, sem Japanir standa best að vígi á, eru siglingaleiðirnar frá Japan til Indlands ogÁstralíu. Jap- anir hafa komið á föstum kaup- skipaferðum til Kyrrahafsstrandar Bandaríkjanna, til Suður-Amer- íku og Irak og til Siam. Hin svo kallaða N. Y. K. lína hefir nú fimm, ný 9.000 smálesta skip í för- um til Evrópu um Suez-skurðinn. Meðalhraði þeirra er 20 sjómílur á vöku, Aðeins Bretar eiga nú fleiri 2000 smálesta kaupför en Japanir, og ef miðað er við kaup- för yfir 2000 smálestir eru Banda- Um 500 unglingar bíða bana við sprengingu. ——o- Skólahiís í Texas sprakk í loft upp. Ægilegar hörmungar á slysstadnum. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London í morgun. * T Overton í Texas hefir gerst óvanalegur og ógurlegur atburður. Varð þar gassprenging í skólahúsi og sprakk það í loft upp, en 470 manns biðu bana, en alt að því hundrað manns liggur enn grafið undir rústun- um, og er nú unnið að björgun af hinu mesta kappi, og má fullvíst telja, að margir þeirra, sem verið er að reyna að bjarga, hafi meiðst hroðalega, og vafalaust hafa fleiri farist en enn er kunnugt um. Með fullri vissu verður ekki sagt um orsök spreng- ingarinnar, en tilgátur manna eru, að gas hafi safnast saman og orðið af sprenging. Sjónarvottar segja, að húsið hafi tvístrast á svipstundu, eins og varpað hefði verið á það gríðarstórri sprengikúlu. Um 100 lík fund- ust eftir sprenginguna í nokkurri fjaríægð frá skólan- um sjálfum. — Voru þetta alt lík nemenda í skólan- um, sem voru inni í húsinu, er sprengingin varð. Virðist hún hafa verið svo stórkostleg, að húsið hafi þegar í stað hrunið til grunna, en fólkið, sem í húsinu var, þeyttist langar leiðir og lenti sumt á stálgirðing- um fyrir utan skólahúsið og beið bana samstundis. 1 skólanum-voru 1300 nemendur, á aldrinum 14—18 ára og eru það því aðallega ungmenni, sem farisl hafa. Lögreglan greip þegar tií víðtækra hjálparráðstaf- ana og sendi mikið lið á veftvang til hjálpar og til þess að halda uppi reglu. Ennfremur voru sendir allir lækn- ar, sem náð varð í og hjúkrunarkonur, en sjúkrabif- reiðir fluttu þá, sem fundust Jifandi, í sjúkrahús. — Foreldrar margra nemendanna, sem heima eiga í grend- inni, komu og á vettvang, til Jiess að komast að raun um örlög barna sinna. En fáum varð sú gleði veitt, að finna börn sín ómeidd eða á lífi. Flest ungmennanna, sem bjargað hefir verið, hafa meiðst meira eða minna. í nánd við staðinn, þar sem skólinn stóð, eru olíulindir og voru þar allmargir menn að verki, sem aðstoðuðu við björgun- ina. Fréttaritari United Press talaði við nokkura þessara verka- manna og segja þeir, að húsið hafi bókstaflega hrokkið í sund- ur á svipstundu, en sum ungmennanna hafi þeytst á stálgrind- ur í skólagirðingunni, meiðst hroðalega, og sum beðið bana. í tveimur eða þremur tilfellum festust hroðalega meidd ung- menni í girðingnnni, svo að það var hið erfiðasta verk að losa þau og koma þeim í sjúkrabílana. Verkamennirnir, sem um ræður, brugðu við og gerðu alt, sem unt var, til bjargar. .. Urðu þeir að nota acetylene-tæki, til þess að logsjóða sundur grindurnar í nokkrum tilfellum. Upp úr rústunum leggur blá- hvítan reyk eins og gas hafi myndast. Sprengingin var svo ógur- leg, að menn hallast helst að því, að gas hafi safnast saman í jörð undir húsinu og orsakað sprenginguna. ~ ‘ - Uiiited Press. ríkjamenn sjötta þjóðin í röðinni. En auk þess, sem Japanir eiga mörg, stór nýtísku kaupför hafa þeir á leigu fjölda mörg erlend skip, samtals um 450.000 smálestir. í lok ágústmánaðar s.l. árs áttu Japanir 108 ný kaupför í smíSum og var samanlögS smálestatala þeirra 212.384. í skýrslu The Institute of Pasi- fic Relations er komist að þeirri niSurstöSu, aS um óheilbrigSa samkepni sé aS ræSa, aS því er smíSi kaupskipa snertir — skipa- smíSar fari nú langt fram úr því, sem þörf er fyrir. Togarinn Jupiter kom í gær til HafnarfjarS- ar af veiSum eftir 12 daga útivist meS 120 tunnur lifrar. LínuveiS- arinn Venus frá DýrafirSi konr einnig af veiSum eftir viku útivist meS 81 skippund. Skipverjar liggja allir í influensu. (FÚ). Flutningamálin í Noregi. Osló, 18. mars. Koht utanríkismálanáðuneyti tilkynti á þingfundí i dag, að ríkisstjórnin mundi ber fram tillögur um stofnun sérstaks flutningamálaráðuneytis er liefði með höndum öll mál sem flutninga og samgöngur varðar. (NRP. - FB.). Fridtiof Nansen. Osló, 18. mars. Eftirlitsskipið Fridtjof Nan- sen lá í dag 4 sjómílur frá Or- loffhöfða og kemst ekki áfram vegna ísa. (NRP. - FB.). Vinnuuppsögn 45.000 manna. Osló, 18. mars. Sáttasemjari ríkisins fékk í dag tilkynningu um vinnuupp- sögn um 45.000 manna, miðað við 1. apríl, er núverandi samn- ingar ganga úr gildi. (NRP. - FB.). fnskir toonri sMii i nótt i fngey. EINKASKEYTI TIL VlSÍS. London í morgun. SlMFREGNIR frá Madrid í morgun herma, að stjórn- arberinn hafi lekið Brihuega í stórkostlegu áhlaupi. Níutíu flugvélar veittu stjórnarher- sveitunum stuðning og vörp- uðu sprengikúlum á varnar- stöðvar upreistarinanna. — Stjórnarherinn var liðmargur í sókn þessari og notaði í henni 80 skriðdreka og fjölda bryn- varðra bifreiða. * Uppreistar- menn urðu fyrir ógurlegu tjóni, mistu mikið af hergögn- um og birgðum, og mannfall var mikið i liði þeirra. (United Press). London í gærkv. Franco hefir heimsótt víg- stöðvarnar við Guadalajara. Að lokinni herskoðun á þess- um stöðvum, hefir hann til- kynt, að frekari aðgerðum á þessurn stöðvum verði frestað fyrst um sinn, vegna þeirra örðugleika, sem illviðri siðast- liðinna daga hafi orsakað. I háskólahverfinu og við Gasa del Campo hafa slaðið yfir harðvítugar orustur, að því er stjórnin hermir. I há- skólahverfinu segir hún, að enn hafi verið sprengdar upp Enskur togari, Sargon, frá Grimsby, strandaði um kl. 12Vk í nótt á Engey. Var skipið að fara héðan, og sigldi liafnsögu- maður skipinu út úr höfninni, eins og venja er til, og fór svo í land. Magni er að reyna að ná skipinu út. Dálítill leki mun kominn að þvi. nokkrar byggingar, og upp- reistarmenn á þann liátt hrakt- ir þar á bak aftur. Við Casa del Campo hafi liersveitir stjórnarinnar sótt ögn fram. Del Vayo, utanríkisráðherra Spánverja, hefir enn á ný lýs.i því yfir, að ítalskar hersveitir hafi verið sendar inn á spánska grund. Tólur liann þetta hið alvarlegasta brot, sem ennþá hafi verið framið gegn Þjóða- bandalagssáttmálanum, auk þess sem það sé brot á lilut- leysissamningi þeim, er Ítalía standi að ásamt öðrum ríkjum. Segir del Vayo, að þannig liafi skapast mjög alvarlegt ástand, bæði fyrir Þjóðabandalagið og hlutleysisnefndina, og geti hvorug þessi samtölc setið að- gerðarlaus, án þess að það liafi alvarlegar afleiðingar í för með sér. — F.Ú. Sveim Fonlsen ritstjóri Berling-ske Tidende er látinn. Einkaskeyti frá Khöfn. 8. mars. FÚ. Svenn Poulsen, aðalritstjóri Berlingske Tidende, er dáinn. Berlingske Tidende flytur grein um hann í dag, þar sem með- al annars segir, að hann hafi ávalt haft hinar mestu mætur á Islandi. Auk þess að blaðið rekur alveg sérstaklega störf hans og blaðamensku, segir það, að hann hafi, frá því að hann kom sem ungur blaða- maður til íslands, stöðugt bar- ist fyrir aukinni andlegri sam- vinnu Islands og Danmerkur. Blaðið getur þess og, að hann hafi um langt skeið verið jarð- eigandi á Islandi, og kunnað þar betur við sig en alment er um Dani. í kvöldblað Berlingske Ti- dende ritar Jón Sveinbjörnsson konungsritari um Svenn Poul- sen ritstjóra, mjög hlýlega grein, og segir, að Island muni lengi muna þenna hollvin sinn meðal Dana, og sakna hans. Svenn Poulsen var hér á ís- landi í síðasta sinn síðastl. sum- ar. Hann átti um margra ára skeið jörðina Bræðratungu í Biskupstungum, ásamt hjáleig- um, en íslenska ríkið hafði nú nýlega keypt hana af honum. Hann var fréttaritari fyrir Berlingske Tidende og fleiri blöð í Evrópu, þá er Friðrik konungur 8. kom hingað til lands árið 1907. Hann tók þá því ástfóstri við landið, sem aldrei kójnaði síðar, og sem sýndi sig meðal annars í því, að hann kom hingað hvað eft- ir annað, ritaði margt um ís landsmál og jafnan af vinsemi. Hann gaf, ásamt öðrum manni, út bók um konungsförina 1907, og ísland, eins og það kom honum þá fyrir sjónir, og er hún hin vinsamlegasta í garð Islendinga. Eftir heimkomu sína til Dan- merkur eftir íslandsferðina síðastl. sumar, reit hann i blað sitt ítarlegar greinar mn sild- ariðnað íslendinga og aðrar framfarir, og gat þess sérstak- lega, að miklu munaði í verk- legum framkvæmdum á ís- landi frá því, er hann kom hér fyrst. Næturlæknir er í nótt ólafur Þorsteinsson, D-götu 4, sími 2255. Næturvörður er í Laugavegs apóteki og Ingólfs apóteki.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.