Vísir - 11.08.1937, Blaðsíða 4
VI&IJR
Gamla Bíó
Þrjú líf fyrir eitt-.
Afar spennandi og áhrifamikil amerisk talmynd
gerð eftir skáldsögu Peter B. Kyne.
Aðallilutverkin leilca hinir ágætu leikarar:
Lewis Stone og Chester Morris.
Börn fá ekki aðgang.
Síðasta sinn.
nána kynningu, tel verið liafa
hinn einstakasta að trygð og
mannkostum af þeim sem eg
hefi þekt um dagana. Ef hann
batt trygð sína við einhvern, þá
var hann þar heill og óskiftur á
liverju sem gekk. Með vináttu
hans var aldrei tjaldað til einn-
ar nætur.
Framkvæmdir hans, dugnað-
ur og drenglyndi standa nú
sem óbrotgjarn minnisvarði
eftir hans dag. Alla þá mörgu,
sem fyrir hann unnu á sjó og
landi bar bann jafnan fyrir
brjósti og oft mun það hafa ráð-
ið mestu, þegar erfiðlega áraði,
að halda framleiðslutækjunum
gangandi svo að starfsfólk lians
hefði vinnu. Eg minnist að þeg-
ar síldarverksmiðja rikisins var
vígð á Siglufirði, helt liann
ræðu við það tækifæri og' sagði,
að það sem sérstaldega gleddi
sig við þetta tækifæri, væri von-
in um það að þetta fyrirtæki
yrði til þess að tryggja afkomu
sjómanna. Nokkrum lárum síð-
ar varð hann sjálfur til þess að
tryggja enn betur afkomu ís-
lensku sjómannanna með þvi
öfluga átaki, að reisa liina
miklu síldarverksmiðju í
Djúpavík. Má það kallast eitt
mesta þrekvirki i atvinnufram-
kvæmdum, sem bér hefir verið
gert á síðari árum.
Jón var maður óvenju greið-
vikinn og hann varð jafnan
við bón manna án þess að bafa
um það mörg orð. Hann gerði
það ætíð með þeirri hægð og því
æinstaka yfirlætisleysi, sem hon-
um einum var eiginlegt. Hann
var ánægðastur þegar hann
vissi að aðrir nutu beint eða ó-
beint góðs af athöfnum bans.
Það er eftirsjón að slíkum
mönnum sem Jóni Ólafssyni,
því að fáum mun gefið að feta
á-sporin lians um atorku, fram-
kvæmd og drengskap.
Ó. H.
Veðrið í morgun:
í '1 Reykjavík 9 stig, Bolungarvík
io, Akureyri 10, Skálanesi io,
Vestmannaeyjum 9, Sandi 10,
Kvigindisdal 10,, Hesteyri -o,Kjör-
vogi 10, Blönduósi 12, Siglunesi
'■8, Grímsey 8, Raufarhöfn 10, Pap-
>ey 9, Hólum í Hornafirði 10, Fag-
urhölsmýri 10, Reykjanesi 9. —
Mestur hiti hér í gær 13 stig,
ípinstur 9. Úrkoma 3.0 mm. Sól-
skín ó.i st. — Yfirlit: LægS fyrir
morSvestanveröu Islandi, á hreyf-
Ingu austur eftir. Önnur lægö yfir
SuÖur-Græhlandi. Horfur: Suö-
vesturland, Faxaflói, Breiðafjörö-
ur: Suövestan og vestan gola.
Skúrir. Vestfiröir : Breytileg átt og
hægviöri. Rigning ööru hverju.
INorðurland: Suöaustán og sunnan
.•gola. Sumstaðár rigning. Norð-
■•austurland, Austfiröir: Sunnan og
suðvestan gola. Víöast úrkomu-
laust. Suöausturland: Suðvestan
;goIa. Skúrir.
Skipafregnir.
Gullfoss fór í gærkveldi áleiðis
til útlanda. Goðafoss fer vestur
og noröur annaö kveld. Brúarfoss
fór frá Leith í gær áleiðis til Vest-
an'annaeyja. Dettifoss fer frá
Crimsby í kveld. Lagarfoss er í
Kaupmannahöfn. Selfoss fór frá
Seyöisfirði ígær áleiðis til útlanda.
Nova er væntanleg í dag að vest-
an og norðan um land frá Noregi.
M.s. Dronning Alexandrine fór frá
Kaupmannahöfn í morgun kl. 10.
Landssíminn
hefir fengið talvél frá firmanu
L. M. Eriksson í Stokkhólmi, til
þess að svara fyrirspurnum manna
um hvað klukkan sé. Þegar vélin
verður tekin í notkun, geta rnenn
hringt í ákveðið símanúmer, sem
er í sambandi við talvélina, hve-
nær sem er sólarhringsins, og án
þess að spyrja gefur talvélin ná-
kvæmlega til kynna hvað tímanum
líður. — Til þess að „tala inn á“
plötur vélarinnar var fengin ung
íslensk stúlka, sem þar stundar
nám (við tekniska háskólann),
ungfrú Halldóra Briem, en hún er
sögð raddfögur með afbrigðum. —
Það verður að þrautprófa talvél-
ina, áður en hún verður tekin í
notkun.
Farþegar
með Goðafossi frá útlöndum:
Sveinn Björnsson sendiherra, Ein-
ar Kristjánsson og frú Jakob
Kvaran, ungfrú S. Benjamínsson,
S. Thorlacius og frú, Davíð Ólafs-
son og frú, frú Hanna Zoéga,
Jakobína Magnúsdóttir og fjöldi
útlendinga. Alls 59 farþegar.
Farþegar
á Gullfossi til útlanda: Frú
Langvad með þrjú börn, Guðrún
iHelgadóttir, Eva Siguríiardóttir,
Ingibjörg Bjarnadóttir, Bernhard
Stefánsson og frú, Stefán Jóh.
Stefánsson, Barði Guðmundsson,
Jón Axel Péturssosn, Birgir Ein-
arsson, Garðar Karlssson, Gunn-
ar Skaftason, Vilhjálmur Guð-
mundsson, Kjartan Guðmundsson,
Ólöf Símonardóttir, Unnur ís-
leifsdóttir, ‘Ingrid Þórðarson,
ITelga Árdal, Jón Guðmundsson,
Þórunn Jónsdóttir, Anna Jóns-
dóttir, Ragnhildur Steindórsdóttir,
Hrefna Berg, frú Ellingson, Klara
Berg, Sigr. Þorsteinsdóttir, Hauk-
ur Jacobson, Óttar Proppé, Aðal-
steinn Sigurðsson, Ólafur Kristj-
ánsson, Jóhs. Jósefesson, Þói'ður
Jónsson og fjöldi útlendinga. Alls
97 farþegar.
Næturlæknir
er í nótt Kristín Ólafsdóttir, Ing.
14. Sími 2161. Næturv. í Reykja-
víkur apóteki og Lyfjabúðinni Ið-
unni.
Fiskmarkaðurinn í Grimsby
þriðjud. 10. ágúst: Besti sólkoli
54 sh. pr. box, rauðspetta 65 sh.
pr. box, stór ýsa 38 sh. pr. box,
miðlungs ýsa 37 sh. pr. box, frá-
lagður þorskur 32 sh. pr. 20 stk.,
stór þorskur 19 sh. pr. box, smá-
þorskur 18 sh. pr. box. (Tilk. frá
Fiskimálanefnd. — FB.)
Útvarpið í kveld.
19.10 Veðurfr. 19.20 Hljómplöt-
ur: Sungin danslög. 20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Skaðvaldur lífsins
og verndarengill þess (Pétur Sig-
urðsson erindreki). 20.55 Einleik-
ur á „blokk“-flautu (Eugen Kus-
ch). 21.25 Hljómplötur: Tónverk
eftir Haydn og Mozart (til kl. 22).
■ • - - r»* L’ 'A* Á
FÚ.
Hertoginn af Windsor á bú-
garö einn í Canada og keypti
hann fyrir mörgum árum, á
meðan liann var prins af Wales.
Þar urðu menn þess varir í vor,
að olía myndi vera í jörðu og nú
hafa boranir leitt í ljós, að hér
er um mjög auðugar oliulindir
að ræða, svo að talið er að her-
toginn muni geta baft svo milj-
ónum króna skiftir upp úr
olíulindunpm.
t matinn:
Nauta-
hakk
2,40
pr. kg.
Gulash
2.50
pr. kg.
elnnig
nauta-
buff
og steik.
MILNERS MJÖTW&Ð
LaHaeötu 32. Bími 341«.
ísgam og Bómull 1,95.
Silkisokkar,
Svartir, Drapp, Gráir. —
Stoppigarn.
Grettísgötu 57. — Njálsgötu 14.
inuttrists.
Framköllan — Kopíerlng.
E. A. Thiels.
Austurstræti 20.
Sfcaftfellinpr
lileður til Víkur og Skaftáróss
n. k. fimtudag.
Verður þetta síðasta ferð báts-
ins til Skaftáróss á þessu sumri.
1 lerketii,
eldhús og bað, á góðum
stað í austurbænum, ósk-
ast frá 1. okt. næstkom-
andi. Fyrirframgreiðsla
ef óskað er. Uppl. í síma
2455, eftir kl. 6 í dag. —
ISEaMmnESHEIHianEHHBHHra
[ Ibúð. [
® 5 herbergja, afar sólrík jj[
H íbúð með öllum þægindum ■
H á ágætum stað, er til leigu B
® 1. okt. Tilboð leggist inn á ■
H afgr. Vísis fyrir föstudags- h
[ kveld, merkt: „Sólrík“. — B
ueebehbhheiejeheebshhí
B-Iiðs keppnin.
Vtkingni’-Valnr jafnteflt.
Annar kappleikur B-liðsmóts-
ins fór fram í gær milli Víkings
og Vals og urðu úrslitin þau,
að félögin urðu jöfn: 2:2. —
Þetta getur ef til vill' gefið rang •
ar hugmyndir um styrkleik fé-
laganna, en þess er að gæta, að
Vikingur tók ekki þátt í Islands-
mótinu og tefdli því fram sínu
raunverulega A-liði. Þetta er
ekki sagt til að niðra Víking í
áliti, heldur til þess að forðast
misskilning. Aftur á móti er það
gleðiefni, að Víkingur skuli aft-
ur koma fram á völlinn og von-
andi verður áframhald á því.
. <
Fyrri hálfleikur 2:1,
var yfirleitt fjörugur og gekk
knötturinn á milli markanna,
en var þó meir á vallarhelmingi
Vals, enda áttu þeir á móti vindi
að sækja. Er nokkuð var liðið
af leiknum, gerðu Valsmenn
upphlaup og miðframherja Vals
tókst að skora niarlc. Varð nú
leikurinn allfjörugur og hallaði
mjög á Val, en þrátt fyrir dugn-
að Víkingsmanna tókst þeim
ekki að skora mark. Þegar 32
mín. eru af leiknum, gerðu
Yalsmenn upphlaup og mið-
framherji Vals skorar mark,
2 : 0. En er 8 mín. voru eftir af
fyrri hálfleik, tókst Víking að
skora mark, og endaði sá hálf-
leikur með sigri Valsmanna,
2:1.
Síðari hálfleikur
var miklu daufari, en enn sem
fyrr lá knötturinn meira á vall-
arhelmingi Vals. Gekk leikurinn
leikurinn Iengi svo, að hvorugt
félaganna skorar marlc, þrátt
fyrir góð upphlaup á báða bóga.
Er eftir voru 12 mínútur af síð-
ari hálfleik, skoruðu Vikings-
menn mark, en markið var ó-
gilt; einn af leikmönnum Vík-
ings var rangstæður. Líður nu
svo til leiksloka, að svo virðist,
isem Valur ætli að fara með
sigri úr þessum kappleik, en er
1 mín. var eftir, skorar útfram-
herji Víkings mark. Endaði leik-
urinn því með jafntefli, 2 :2.
Dómari var Þorsteinn Einars-
son. (
í kveld keppa Fram og Hauk-
ar frá Hafnarfirði.
Ö $
8 Amatðffoto. |
Kopiering — Framköllun. 8
Öll vinna framkvæmd af p
úllærðum ljósmyndara á g
sérstöku verkstæði. 2
| Afgreiðsla í
j LAUGAVEGS APÖTEKL ð
Dðmasokkar.
ísgara og Bómull, 1.95.
Silki og Isgarn, 2,25.
Stlkisokkar frá 2,50.
Svartir, drapp-gráir.
Vesturg. 42. Sími 2414 og 2814.
Munid
fisksöluna í Vonarporti.
Mjög sanngjarat vérð. —
Vinsælasta fisksala bæjarins.
Sími 2266. —
KSASQB
St. FRÓN nr. 227. — Fundur
annað kvöld kl. 8]á. — Dag-
skrá: 1. Skýrslur fná embættis-
mönnum og nefndum. ■— 2.
Vígsla embættismanna. — 3.
Skipaðar fastanefndir. — 4.
Þingvallafundurinn, dagskrá
lians og tilhögun. — 5. Önnur
mál. — Félagar, fjölmennið og
mætið kl. 8V2 stundvislega. (177
■VlNNAfl
STULIíA, eða eldri lcona, ósk-
ast í eldliús á veitingasíað i
sveit. Uppl. í síma 9138. (160
STÚLKA óskast á lítið heim-
ili óákveðinn tíma. Ásvallagötu
21, niðri. (171
DUGLEG og ábyggileg stúlka,
vön afgreiðslu, óskast strax. —
Tilboð, merkt: „1330“, sendist
Vísi. (175
^Ih4ota>
aðeins Loftur,
Nýja Bíó
t SÓKáSKIMI
Unaðslega fögur og skemtileg austurrísk söngvamynd.
Aðallilutverkið leikur og syngur eftirlætissöngvari allra
kvikmyndabúsgesta:
JAM KIEPURA.
Hjá okkur fáið þér hinar
LÉTTU-
HLJÓÐLITLU-
ENDINGARGÓÐU-
SAUMAVÉLAR
„NECCHI“
Off „VEGA“
Stígnar og handsmúnar.
Skilmálar og verð við allra hæfi.
FÁLEINN
t —________: o A
LEICAl
KJALLARAPLÁSS við mið-
bæinn, hentugt til iðnaðar, til
leigu 1. okt. — Tilboð, merkt:
„Áreiðanlegur“ sendist Vísi fyr-
ir sunnndag. . (180
4 STOFUR og eldliús
með öllum þæginduin, al-
veg við miðbæinn, til leigu
1. okt. Uppl. gefur Sveinn
Sæmundsson. Sími 4953
og 4821.
GÓÐ ÍBtÐ, 2—3 herbergi og
eldliús, með öllum þægindum,
óskast 1. okt. Fyrirframgreiðsla,
ef óskað er. — Tilboð, merkt:
„1. október“, leggist á afgr.
fyrir sunnudag. (179
~4 HERBERGJA IbUÐ til
leigu í miðbænum 1. okt. Til-
boð: „Miðbær“ sendist Vísi. —
(167
. 2 SAMLIGGJANDI herbergi
óskast. Tilboð, merkt: „S. S.“,
sendist Vísi. (168
ÓSKA EFTIR 2 herbergjum
og eldhúsi. Uppl. í síma 2891.
______________________ (172
2 TIL 3 herbergi og eldhús
óskast til leigu 1. október sem
næst mjólkurstöðinni. 4 full-
orðnir í heimili. Uppl. frá 4—8
í síma 2778. Sveinn Tryggvason,
mjólkuriðnfræðingur. (173
EITT berbergi og eldhús ósk-
ast 1. október í austur bænum.
Tilboð, merkt: „Sólrík“. Skilist
á afgr. Visis. (159
2 HERBERGI og eldhús ósk-
ast 1. okt„ með öllum nýtísku
þægindum. 2 í heimili. Ábyggi-
leg greiðsla. Uppl. í síma 2834
og 3236. (161
GÓÐ 3 HERBERGI og eld-
hús, með þægindum, til Ieigu 1.
okt. (helst barnlaust fólk). —
Ránargöíu 5 A. Sími 4593. (163
LÍTIL IBUÐ óskast 1. okt. í
vesturbænum. Þrír fullorðnir.
Tilboð, merkt: „Sól“ sendist
Vísi fyrir 16. þ. m. (164
2 HERBERGI og eldhús með
þægindum, má vera á neðstu
hæð, í austurbænum, óskast 1.
okt. Fyrirfram greiðsla. Uppl. í
síma 3895. (166
VlSIS KAFFIÐ
gerir alla glaða.
TVÖ HERBERGI og eldhús
óskast 1. sept. fyrirframgreiðsla
gæti komið til greina, ef um
semur. Tilboð leggist inn á
afgr. Vísis, merkt: „Ibúð“. (187
TVEGGJA til þriggja her-
bergja íbúð, í nýtísku húsi,
vantar mig 1. okt. Helgi Stein-
grímsson, gjaldkeri. Sími 2904.
(182
EITT HERBERGI og eldliús
óskast 1. sept. Uppl. í síma 2647,
frá 4—8. (185
HERBERGI með laugavatns-
hita til leigu frá 15. þ. m. fyrir
einbleypan karlmann. Afgr. v. á.
(186
2 HERBERGI og eldliús, alt
út af fyrir sig, til leigu nú þeg-
ar. Uppl. í sírna 4454. (181
tKAIIPSKAPliltl
VERKAMANNABUXUR, aU-
ar stærðir, mjög ódýrar. —
Afgr. Álafoss. (641
GÓÐUR MATUR! Fiskfars,
pönnufiskur, fiskapylsur, dag-
lega nýtt. Fiskpylsugerðin. —
Sími 3827. (218
STÍGIN saumavél til sölu. —
Verð 85 kr. Kápubúðin, Lauga-
veg 35. (162
POTTAPLÖNTUR eru til
sölu á Bárugötu 10. Sími 2986.
(165
NÝLEGT eikar-buffet er til
sölu vegna flutnings. — Uppl. í
síma 4547. (170
LÍTIL en góð trilla óskast til
kaups, með góðum kjörum. —
Sími 4378. (184
BARNAVAGN, í ágætu standi,
til sölu. Tækifærisverð. Uppl.
Njálsgötu 96, kjallaranum. (188
KTAPÁD'fUNDIl)]
SVARTIR kvenhanskar tap-
aðir í miðbænum sunnudagiim.
Skilist Landsímastöðina, niðri,
gegn fundarlaunum. (169
SVART SKINNBELTI tapað-
ist í gær. Vinsamlegast skilist á
Bergstaðastræti 11. (174
GULLARMBANDSÚR, inéð
áföstum gyltum hnappi, tapað-
ist frá Bæjarfógetaskrifstofunni
í Hafnarfirði niður á Strand-
götu. Skilist gegn fundarlaun-
um á skrifstofuna. (176
LÍTIL kventaska hefir tapast.
Uppl. í síma 1620. (183