Vísir - 28.10.1937, Side 3
Ví S IR
Frumvarp sjálfstæðismaima nm
rikisstyrk til bjfgugs nidursndn-
verksmidja-
Hvassar umræður í neðrl delld i gær.
Neðri deild.
Ásgeir Ásgeirsson mælti
nokkur orð um fyrsta málið,
frv. til laga um bráðabirgða-
breyting nokkurra laga (2.
umr.), og var frv. síðan vísað
til 3. umr.
Framliald 1. umr. um frv.
umríkisstyrktil bygginga niðui-
suðuverksmiðja. Eysteinn Jóns-
son talaði fyrstur og lagðist á
móti frv., eins og í fyrri ræðum
sínum um þetta mál. Hann tal-
aði einnig um ýms önnur mál,
er sjálfstæðismenn bera fram á
þessu þingi, og miða að því að
reisa við atvinnuvegina, og var
þeim öllum andvígur.
Þá tók til máls Finnur Jóns-
son. Kom liann varla nærri efni
frv. Sá forseti, Jörundur Brynj-
ólfsson, sér eigi annað fært, en
að áminna hann.
Ólafur Thors talaði næstur.
Kvað liann það ekki venju, að
það væri látið fylgja frv. leið-
beiningar? hvernig afla eigi
þeirra tekna, er nota á til
greiðslu á kostnaði við frv., og
nefndi t. d. frv. sósíalista um
sumarskóla alþýðu. Það væri
hlutverk f jiármálaráðherrans að
leggja á ráðin, livernig eigi að
afla nauðsynlegra tekna. En sé
þessu máli komið i framkvæmd,
mun af þvi leiða auknar tekj-
ur fyrir ríkissjóð. Ólafur sneri
sér þá að Finni Jónssyni og
kýmdu menn, er þeir sáu vand-
ræðasvipinn á andliti Finns
undir þeirri ræðu.
Eysteinn talaði þá aftur, en
síðan Finnur. Hafði vaðall hans
um afrek síldarútvegsnefndar,
þau álirif, að forseti takmark-
aði ræðutíma við 5 minútur.
Næstur talaði Sigurður Ivrist-
jánsson. Spurði hann fjármála-
ráðlierra livað hefði verið gert
til léttis útgerðinni. Það væri
ekkert, en hún væri þó látin
hera sinn skerf af öllurn byrð-
um þjóðarhúsins. Tillögur sjálf-
stæðismanna stefna allar í rétta
átt, að auka atvinnuna í land-
inu, en ekki til hitlinga.
Er Eysteinn hafði talað nokk-
ur orð, sleit forseti umr. og var
málinu vísað til 2. umr. og
sjávarútvn.
ÖNNUR MÁL.
Þriðja málið var frv. til 1. um
bókhald. Skúli Guðmundsson
fylgdi frv. úr lilaði með stuttri
ræðu. Skv. frv. eru fleiri en áð-
ur bókhaldsskyldir. Frv. var
vísað lil 2. umr. og nefndar.
Frv. til I. um tímabundna
heimild handa Rafmagnsveitu
Reykjavíkur til innfl. og sölu á
rafmagntækjum. Pétur Ilall-
dórsson,horgarstjóri,tók fyrstur
til máls og lagði til að frv. yrði
samþykt, vegna nauðsynjar
þeirrar er þetta mál er fyrir
bæjarbúa.
Eysteinn hóf þá sama söng-
inn, að ekki væri „viturlegt“ að
taka söluna af einkasölunni.
Emil Jónsson talaði næstur.
Þótti lionum ekki víst, að
heppilegra væri að fá Rafveit-
unni söluna í hendur, og bar
fyrir brjósti liina nýju raftækja-
verksmiðju í Hafnarfirði.
Pétur Halldórsson mælti þvi-
næst nokkur orð aftur og var
frv. vísað til 2. umr. og f járveit-
inganefndar.
Odýr rafmagistxki
handa bsjarbðua.
Frumvarp sjálfstæðismanna á
Alþirijgi.
Þingmennirnir Pétur Hall-
dórsson, Sigurður Kristjánsson
og Jakob Möller flytja frv. í
neðri deild Alþingis um tíma-
bundna heimild til handa Raf-
magnsveitu Reykjavíkur til
innflutnings og sölu á raf-
magnstækjum .
Frv. hljóðar þannig:
1. gr.
Rafmagnsveitu Reykjavikur
er heimilt að flytja til lands-
ins öll rafmagnstæki til heim-
ilisnotkunar, önnur en útvarps-
tæki, á tímabilinu frá 1. nóv.
1937 til 31. des. 1938.
2. gr.
Rafmagnsveita Reykjavíkur
skal selja eða láta selja raf-
magnstælci þessi við svo vægu
verði, sem kostur er á, og slcal
verðið miðað við það, að raf-
magnsveitan taki ekki hagnað
af sölunni.
3. gr.
Tollar og önnur innflutnings-
gjökl til ríkissjóðs af rafmagns-
tækjum samkv. 1. gr. falla nið-
ur.
4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Með frv. fylgir greinarge(rð
og segir þar svo m. a.:
„Bæjarstjórn Reykjavíkur
hefir þrásinnis látið, þá ósk í
ljós, að hún fái heimild þá,
sem farið er fram á í frv. og
má tvímælalaust ætla, að
heimildin nái tilgangi, þ. e.
að rafmagnsnotkun á heimil-
um bæjarmanna aukist fljótt
og hröðum skrefum, ef aðal-
áhöldin til rafmagnsnotkun-
ar 3o*ðu seld við svo hag-
kvæmum kjörum fyrir kaup-
endur, sem auðið er, í stað
þess, að nú eru þessi tæki seld
af einkasölu ríkissjóðs í f jár-
öflunarskyni fyrir hann“.
Það er vitað að framsóknar-
menn eru þvi gersamlega and-
vígir, að þetla frv. nái fram að
ganga, en socialistar hafa hins-
vegar látið mjög hátt um, að
þeir vilji alt gera til að hæjar-
húum verði sem auðveldast að
nota sér hið nýja rafmagn.
Reynir nú á það til fulls hvort
þeir meta meira, að vernda
einkasöluokrið eða gæta liags-
muna bæjarhúa og þá einkum
hins fátækari hluta þeirra.
Fyrir forgöngu sjálfstæðis-
manna eiga bæjarbúar nú völ
á eins miklu rafmagni og þeir
þurfa til lieimilisnotkunar og
atvinnureksturs, og sjálfstæðis-
menn beita sér nú fyrir því, að
hæjarhúar geti fengið þau tæki,
sem þarf til að liagnýta orkuna
sem ódýrast.
Reykvíkingar! Takið eftir
hver afdrif þessa máls verða.
Á þeim undirtektum sem það
fær, getið þér séð hverjir eru
vinir bæjarins og hverjir hin-
ir, sem láta sig litlu skifta
nauðsynjamál Reykvíkinga.
ísfisksölur.
Rán seldi í gær í Grimsby 1107
vættir fyrir 688 stpd. Hannes
rá'öherra í Wesermúnde 120 smál.
á 29300 ríkism. og Bragi í fyrra-
dag í Cuxhaven 105 smál. fyrir
26667 rikismörk.
ir
I.0.0.F.5=1191028«1/2=
Veðrið í morgun.
í Reykjavík — 3 st., minst í gær
o, mest í nótt — 5 st. Sólskin í
0,6 st. Yfirlit: Háþrýstisvæði yfir
íslandi. Lægð norðan við Jan
Mayen og önnur vestan vi'S (Bret-
landseyjar, báðar á hreyfingu
austur eftir. Horfur: Faxaflói:
Austan kaldi. Léttskýjað.
Skipafregnir.
Gullfoss var á Sandi í morgun.
Goðafoss kom til Hull í dag. Brú-
arfoss er í Reykjavík. Dettifoss
fer vestur og norður um land til
útlanda í kveld. Lagarfoss er á
leiS til Kaupmannahafnar frá
Hamborg. Selfoss var á Siglu-
firði í gær. Esja var á Siglufirði
í gær. Væntanleg hingað um helg-
ina.
Sundnámskeið
hefjast að nýju í Sundhöllinni
þ. I. nóv. n. k. og er rétt að benda
á það, að sundið er nú sú eina
íþrótt, er fengiö hefir þau skil-
yrði, að jafngott er aö iðka hana
vetur og sumar. Allir geta lært að
synda og veitt sér þá hollu, á-
nægjulegu og ódýru skemtun, sem
sundið er. Athugið, hvort ekki er
rétt að taka þátt í þessu næsta
námskeiði Sundhallarinnar.
Háskólafyrirlestrar á ensku.
Ungfrú Grace Thornton flytur
í kveld kl. 8 fyrirlestur í Háskól-
anutn um Bernard Shaw. Öllum
heimill aðgangur.
Útvarpið í kvöld.
18,45 Þýskukensla. 19,10 Veð-
urfregnir. 19,20 Lesin dagskrá
næstu viku. 19,30 Þingfréttir. 19,50
Fréttir. 20,15 Erindi: íslensk
verslun eftir einokunina, III
(Skúli Þórðarson magister). 20,40
Einleikur á celló (Hans Stöcks).
21,00 Frá útlöndum. 21,15 Bt-
varpshljómsveitin leikur. 21,45
Hljómplötur : Danslög. 22,00 Dag-
skrárlok.
Næturlæknir:
Sveinn Pétursson, Eiriksgötu
19, sími 3066. Næturvörður í
Laugavegs og Ingólfs aþótekum.
Kirkjuritið.
Sú breyting hefir nú orðið á
ritstjórn Kirkjuritsins, að próf. S.
P. Sívertsen hefir látið af störf-
um, sakir heilsubrests, og verður
Ásm. próf. Guðmundsson einn rit-
stjóri framvegis. — Október-hefti
þ. á. er nú komið út og flytur með-
al annars frásagnir af „Biskups-
vígslu að Hólum“. Ennfremur
vígsluræðu biskups (dr. J. H.) og
æviágrip vígsluþega (sr. Fr. J.
Rafnars). Þorsteinn skáld Gísla-
son skrifar minningarorð um sira
Guttorm í Stöð, er andaðist í sum-
ar sem leið, 92 ára gamall. Á. G.
ritar um sira Jakob Óskar Lárus-
son, er látinn er fyrir skömmu. Þá
er skýrsla um aðalfund Prestafé-
lags Islands (Á. G.), Dwight L.
Moody, eftir sira Fr. Fr., fréttir
o. fl. — Ritið ber því vitni, að
klerkdómurinn er mjög áhuga-
samur um málefni kirkjunnar og
vill mikið á sig leggja til eflingar
kristilegu starfi og safnaðarlífi.
Undir suðrænni sól.
Þorsteinn Jósepsson frá Signýj-
arstöðum í Borgarfirði hefir dval-
ist langdvölum erlendis og farið
víða um meginland álfunnar. M.
a. hefir hann dvalist í Sviss og
farið um landið þvert og endi-
langt. Hann hefir nú skrifað bók
um kynni sín af Sviss og Sviss-
lendingum og er hún nýlega út
komin á kostnað Ólafs Erlings-
sonar. — Nefnir höf. bók sína
„Undir suðrænni sól“ og er hún
prýdd fjölmörgum glæsilegum
myndum. Verður nánara getið síð-
ar. —
Farsóttatilfelli í september
voru samtals á öllu landinu
2532, þar af í Reykjavik 1603, á
Suðurlandi 276, á Vesturlandi 114,
á Norðurlandi 393 og Austurlandi
146. Farsóttatilfellin voru 'sem hér
segir (tölur í svigurn frá Reykja-
vík, nema annars sé getið) :
Kvérkabólga 748 (515). Kvefsótt
1494 (1023). Gigtsótt 9 (o). Iðra-
kvef 206 (35). Kveflungnabólga
16 (6). Taksótt 10 (1). Rauðir
hundar 1 (Vesturlandi). Skarlats-
• sótt 17 (14 Rvk, 1 Vesturl., 2
Norðurl.). Heimakoma 3 (3). Um-
ferðargula 2 (o). Kossageit 1 (o).
Stingsótt 2 (o). Munnangur 14
(6). Hlaupabóla 4 (o). Ristill 5
(o). — Landlæknisskrifstofan. —
FB.
Fiskmarkaðurinn í Grimsby
miðvikudag 27. okt. t Rauð-
spetta 68 sh. pr. box, stór ýsa 28
sh. pr. box, miðlungs ýsa 14 sh.
pr. box, frálagður þorskur 17 sh.
pr. box, stór þorskur 8 og smá-
óorskur 7 sh. pr. box. (Tilk. frá
Fiskimálanefnd. — FB).
Gengið í dag.
Sterlingspund' ....... Kr. 22.15
Dollar ............... — 4-48)4
IOO ríkismörk ......... — 179.82
— franskir frankar . — 15.08
— belgur ............. — 75.55
— svissn. frankar .. — 103.38
— finsk mirk ......... — 9.95
— gylhni ............. — 247.85
— tékkósl. krónur .. — 15-98
— sænskar krónur .. — 114.36
— norskar krónur .. — 111.44
— danskar krónur .. — 100.00
Hollenska olíuskipið, Megara,
liefir sent frá sér neyðarmerki
i Biskayaflóa. Þetta er 8000
smálesta skip og heyrðust neyð-
armerki frá þvi gærkveldi.
Fiskimenn segja, að kviknað
liafi i skipinu. Björgunarhátar
liafa enn ekki getað fundið
skipið. — NRP.-FB.
Wiesener, yfirréttarlögmað-
ur, einn af starfandi mörinum
Nasjonal samling, var i Osló i
gær læmdur í 45 daga fangelsi
fyrir meiðyrði um „Arbeids-
retten“. Ummælin voru dæmd
dauð og ómerk. Dómur Wies-
eners var skilorðshundinn. —
NRP.-FB.
Jarðarför okkar hjartkæru foreldra, tengdaforeldra,
önunu og afa,
Ástríðar Jónsdóttur
og
Kristófers Bárdarsonar
fer fram föstudaginn 29. októher kl. 1.30 frá dómkirkj-
unni. --- Jarðað verður i nýja kirkjugarðinum.
Aðstandendur.
Sundnámskeið
hef jast að nýju 1. nóvember í
Sundhöllinni.
Þátttakendur gefi sig fram á morgun (föstu-
tiag) og laugardag kl. 9—11 f. h. og 2—4 e. h.
Uppl. á sömu tímum í síma 4059.
500 blómlaukar
hér um hil ókeypisl
Vér höfum ákveðið, til þess að
fjölga viðskiftavinum vorum, að
bljóða blómavinum á íslandi safn af
blómlaukúm, hérumbil ókeypis.
Þeir, se*i elska blómin, láta ekki
hjá liða, að nota þetta tækifæri, og
þegar garður yðar stendur í fullu
blómskri’iði, mælið þá með okkur
við vini yðar og kunningja.
1 Blómlaukasafninu er: Hyacint-
ur, Túiípanar, Crocus, Narzizzur,
Iris, Schilla, Anemonur, Ranunklur
o. fl., o. fl.
Alt blómlaukasafnið kostar aðeins
8 krónur, hvert sem sent er.
Til að forðast háan eftirkröfu-
kóstnað, má senda greiðslu fyrir-
fram, með póstávísun, eða í bréfi.
Pantanir þurfa að sendast innan
14 daga frá birtingu auglýsingar-
innar. Ræktunarleiðbeiningar fylgja
ókeypis.
L. M. van KEULEN
Export Ziichtereien, Haarlem (Holl.)
W
i KOUifíUI
.Þorlákor k eytti*
Skopleikur í 3 þáttum.
Haraldur Á. Sigurðsson
leikur aðalhlutverkið.
Sýning í kvöld kl. 8.
Aðgöngum. seldir eftir
kl. 1 í dag.
VÍSIS KAFFIÐ
gerir alla glaða.
GANGSETNINGAR, EÐA FLEIRI
YFIR DAGINN REYNIR MIKIÐ A
VÉLINA, EF OF ÞYKK OLÍA ER
NOTUÐ.
YFIR YETDRINR ER