Vísir - 31.03.1938, Síða 2
V I S I R
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN
VÍSIR H.F.
Sitstjóri: Páll Steingrímsson.
Bkrifstofa |
} Austurstræti 12.
•g afgreiðsla )
Simar :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn . 4578
Auglýsingastjóri 2834
Prentsmiðjan 4578
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan.
M eð þessu tölublaði læt eg af
^ ritstjórn Vísis, eftir nálega
14 ára starf, en við tekur Krist-
ján Guðlaugsson, lögfræðingur.
— Heilsufar mitt hefir verið
þannig síðari árin, og þó eink-
um hin síðustu misseri, að
eg hefi ekki getað sint störfum
eins og mér hefir líkað og nauð-
syn krefur. Eg hefi því orðið að
sjá sitt hvað með annara aug-
um, sem kallað er, og ekki get-
að haft nægilegt eftirlit með
sumu því lesmáli, sem blaðið
hefir flutt. —
Eg óska þess, að Vísi megi
vel farnast. Eg óska þess, að
hann vandi málfar sitt svo sem
föng eru til. Eg óska þess, að
hann haldi áfram að vera ör-
uggur fulltrúi heilbrigðrar skyn-
semi og höfuð-stoð hinna bestu
málefna.
.... „Enn er nóg að vinna,
einum er starf meinað.“
Páll Steingrímsson.
Togara-
útgerðin.
Samþylct þeirri, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn í bæjarstjórn
Reykjavíkur hefir gert, um
ívilnanir til handa togaraút-
gerðinni af bæjarins hálfu, er
yfirleitt vel tekið af bæjarbú-
um.
Togararnir eru stórtækustu
framleiðslutækin, sem við ís-
lendingar höfum umráð yfir.
En einnig þau dýrustu í rekstri.
Afkorna Reykjavíkurbæjar
veltur mjög á þvi, hvernig tog-
araútgerðinni vegnar. Enginn
atvinnurekstur í bænum veit-
ir jafnmikla atvinnu og hún,
beint og óbeint. Ef hún legðist
niður, kæmist Reykjavík á von-
arvöl.
Hag þessa atvinnureksturs
er nú svo komið, að gjaldþol
hans er gersamlega þrotið.
Hann hefir verið rekinn með
stórtapi undanfarin ár. Það er
því í rauninni fullkomin fá-
sinna, að ætla honum að bera
nokkurar álögur til opinberra
þarfa. Og á það jafnt við um
útsvarsgreiðslur til bæjarsjóðs
og beina sem óbeina skatta til
ríkissjóðs. Útflutningsgjöld af
afurðum hans og tollar af inn-
fluttum nauðsynjum hans
ættu því með öllu að falla nið-
ur, ekki siður en útsvarsgreiðsl-
ur hans til bæjarsjóðs. Og hið
sama er að segja um tekju- og
eignarskattinn til ríkissjóðs,
jafnvel þó að ekki sé um það
að ræða, eins og nú er kom-
ið, að þeir skattar hvíli þungt
á honum, sakir langvarandi
tapreksturs. Og þó að eittlivað
rættist úr fyrir útgerðinni á
næstu árum, svo að slíkir skatt-
ar yrðu kræfir af henni, þá
mundi lienni elcki af veita, að
njóta skattfrelsis um nokkurt
skeið, svo að hún gæti rétt aft-
ur við hag sinn.
Tilmælunum um ívilnanir af
hálfu ríkisins, togaraútgerð-
inni til lianda hefir nú verið
frekar fálega tekið fram að
þessu. Að vísu hefir henni ver-
ið gefið fyrirheit um endur-
greiðslu kola- og salttollsins að
nokkuru leyti, eða á saltfisks-
vertið, ef bæjar- og sveitar-
félög veittu henni tilsvarandi
ívilnanir, en það fyrirlieit mun
ekki liafa komið til fram-
kvæmda enn. En niðurfelling
þeirra tolla ættu engum slikum
skilyrðum að vera bundin. Það
hefir þótt rétt, að ívilna iðn-
rekendum í tollgreiðslum af
efnivörum til iðnaðar, án slíkra
skilyrða, en um kol og salt til
útgerðarmanna ætti í rauninni
að gilda alveg það saxna. Og
á það að sjálfsögðu ekki aðeins
við um kol og salt, til notkun-
ar á saltfisksvertíð, heldur til
hvaða veiðiskapar sem er.
Með þessu er nú ekki á nokk-
urn liátt verið að mæla bæjar-
og sveitarfélög undan því, að
létta undir með útgerðinni.
Hinsvegar virðast stjórnarvöld
landsins gera kröfur í þeim
efnum til bæjar- og áveitarfé-
laga, sem á engan hátt eru
sambærilegar við það, að feld-
ir séu niður tollar til ríkissjóðs
af framleiðsluvörum útgerðar-
innar. T. d. er alt öðru máli
að gegna um hafnargjöld, og
aðrar greiðslur útgerðarinnar
fyrir afnot af mannvirkjum og
livers konar þægindum, sem
atvinnurekstrinum eru nauð-
synleg og fé er kostað til af
bæjar- eða sveitarfélögum
hans vegná. Ög þó að bæjar-
stjórn Reykjavílcur hafi þegar
veitt útgerðinni verulegar
ívilnanir í þeim greiðslum, og
í ráði sé að auka þær íviln-
anir að miklum mun, þá er það
ekki af því, að svo sé litið á,
að sama máli sé að gegna um
þær eins og skatta og aðrar á-
lögur til almennra opinberra
þarfa, heldur eingöngu af því,
að þörf útgerðarinnar sé svo
brýn, að alt verði að gera sem
kleift þykir, til þess að draga
úr tilkostnaði hennar á öllum
sviðum. Og er þá einnig von-
andi, að stjórnarvöld landsins
taki sér það til fyrirmyndar og
eftirbreytni.
Kröfur
Sudeten-Þjóðverja.
London, 30. mars. FÚ.
í frétt frá Prag segir, að
stjórnin í Tékkóslóvaldu muni
innan skamms hefja viðræður
við fulltrúa Sudeten- Þjóðverja,
um þær kröfur, sem flokkurinn
liefir lagt fram um sjálfsljórn
í héraðsmálum. Stjórnin hefir
í hyggju að sameina öll lagaá-
kvæði viðvíkjandi þjóðernis-
minnihlutum í landinu í einn
lagabálk. Þessi tilkynning var
birt í Prag í gær. Sudeten Þjóð-
verjar krefjast nú þess, að al-
mennar kosningar og kosningar
í sveitastjórnir séu látnar fara
fram tafarlaust.
Frá írlandi.
London, 30. mars. FÚ.
í Eire liafa farið fram kosn-
ingar til efri málstofu þingsins.
Af 49 kjörnum fulltrúum styðja
26 De Valera og stjórn hans. De
Valera á eftir að útnefna 11
menn í efri deild.
Hersveitixr uppreistar-
mauna þrjá kilometra
firá. Lerida.
Gagssóknir lýðveldishersins.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Fregnir frá Barcelona herma, að lýðveldisherinn
hafi gert velhepnaða gagnárás skamt frá Ler-
ida, svo og fyrir vestan Teruel. Segir í tilkynn-
ingu lýðveldisstjórnarinnar, að hersveitir hennar hafi
náð mörgum þorpum og mikilvægum varnarstöðvum á
sitt vald. íbúar Barcelona eru furðu rólegir, þótt sú
hætta sé enn yfirvofandi, að borgin falli uppreistar-
mönnum í hendur. Blöðin birta áskoranir til allrar al-
þýðu manna um að sameinast í vörninni gegn uppreist-
armönnum.
Stórar auglýsingar eru festar upp hvarvetna í borg-
inni í hvatningarskyni. IJtvarpið er og óspart notað til
þess að hvetja menn til öflugrar mótspyrnu.
Símfregnir frá Saragossa
herma hinvegar, að her-
sveitir þjóðernissinna sé að
eins 3 kílómetra frá Lerida.
Búast uppreistarmenn við,
að borgin falli þeim í hend-
ur í dag, þrátt fyrir gagn-
árásir lýðveldishersins.
Þjóðernissinnar hafa
tekið Alcarraz og eru
komnir að járnbrautinni
fyrir vestan Lerida.
United Press.
Rflssar vilja fá >ðra
til þess afl hjáipa
SpáDTerjtm.
Frakkar vísa öllnm ráða^
gerðom þeirra á bug.
Paul-Boncour utanríkismála-
ráðherra Frakka, átti í gær tal
við sendiherra spænsku stjórn-
arinnar í París. Franska blaðið
Le Matin segir frá því, að Rúss-
ar geri nú ákveðnar tilraunir til
að fá stórveldin í Vestur-Evrópu
til að koma spönsku stjórninni
til hjálpar. Sendiherra Rússa í
París liafi gert alt sem í lians
valdi stóð til að fá frönslcu
stjórnina til þess að senda
spönsku stjórninni sprengju-
flugvélar, en stjórn Frakklands
hafi vísað algerlega á bug öllum
slíkum ráðagerðum.
Hertoginn af Alba, fulltrúi
Francos í London, hefir þó sent
bresku stjórninni skjal, þar sem
hann lieldur því fram, að Frakk-
ar hafi undanfarna mánuði
sent mikið af liergögnum og
yfir 3000 hermenn til spönsku
stjórnarinnar.
Verklýðsfélög jafnaðarmanna
og kommúnista á Frakklandi
heimta nú af stjórn Leon Blum
að hún opni þegar í stað landa-
mærin milli Frakklands og
Spánar og veiti spánska lýðveld-
inu aðstoð sína.
London 31. mars. FÚ.
Fellibylur mikill hefir
ge>sað um Illinois og Oliio
ríkin í Bandaríkjunum. í
borginni Columbus í Ohio
er sagt að 200 liús liafi eyði-
lagst. Kunnugt er um 27
menn, sem farist liafa, en
margir hafa meiðst og særst.
Flugvélaskemdirnar
í Bretlandi.
London 31. mars. FÚ.
Fulltrúi flugmálaráðherrans
breska, Winterton lávarður,
skýrði frá því í gær, við um-
ræður í lávarðadeild breska
þingsins, að skemdir hefðu ver
ið gerðar á nýjum flugvélum
til liersins í Southampton,
Stockport og Coventry. Hann
sagði, að verið væri að rann-
saka þetta mál, en það væri
ekkert sem benti til þess, að
hér væri um verk útlendra
manna að ræða.
„EC ÆTLA EKKI AÐ
VERÐA EINRÆÐIS-
HERRA“,
SEGIR ROOSEVELT.
Frá Warm
Springs í
Georgiafylki
er símað, að
Roosevelt
hafi látið
birta þar
Roosevelt. bréf, til
ónefnds
gagnrýnanda á frumvarpi
því, sem nú liggur fyrir öld-
ungadeildinni og veitir Roos-
evelt meira vald yfir stjórn-
ardeildunum í Washington.
Roosevelt segir m. a. í þessu
bréfi sínu: „Eg hefi enga til-
hneigingu til að gerast ein-
ræðisherra. Eg hefi engin
skilyrði til að verða einræð-
isherra. Eg er of kunnur ein-
veldum sögunnar og nútím-
ans, til að vilja gera Banda-
ríkjamenn að þegnum ein-
ræðisherra.“
United Press.
5000 manna jap-
anskur lier inni-
króaðup
London, 30. mars. FÚ.
Á austur Lung-hai vígstöðv-
unum eru Japanir á flótta, en
kínverski herinn veitir þeim
liraða eftirför. Á einum stað er
4000 til 5000 manna japanskur
her króaður inni, og eru lijálp-
arsveitir að reyna að ná til hans.
London 31. mars. FÚ.
Frá Japönum sjálfum berast
ennþá engar fréttir um ástand-
ið á Lung-hai vígstöðvunum.
Símfregn frá kínverska hers-
höfðingjanum við Su-chow,
segir, að Kínverjum hafi tek-
ist að króa inni 5000 manna
japanskan her, og lirinda til
baka hjálparsveitum, sem voru
á leið til þeirra. Ennfremur
eyðileggja Kínverjar alveg á
skipulagðan hátt öll samgöngu-
tæki að baki Japönum og gera
þeim þannig mjög erfitt að
draga að sér varaliðssveitir og
nauðsynjar.
Frh. erl. frétta á bls. 3.
Bráðabirgðastjórn Japana í N.-Kína situr í Peiping. Myndin sýnir tvo lcvenlögregluþjóna í
Peiping yfirheyra og leita á kínverskri konu.
Kveðja Alþingis, Intt
við jarðarför Jóns
Baldvinssonar af
Jakoh Möller.
Mörg skörð og stór hafa ver-
ið höggvin í lið íslenskra þjóð-
málaskörunga liin siðari árin.
Og skamt látið höggvanna í
milli.
Þess er ekki langt að minnast,
að tveir þeir menn, er verið
höfðu aðalforystumenn tveggja
stærstu stjórnmálaflokka lands-
ins, og forsætisráðlierrar livor
eftir annan, féllu i valinn á besta
skeiði ævinnar. Síðan hafa fallið
í valinn, hver af öðrum með
fárra mánaða millibili, þrír af
mestu ágætismönnum þjóðar-
innar, er allir áttu setu á Alþingi
og allir voru afreksmenn á sviði
þjóðmálanna.
Einn þeirra og hinn síðasti er
sá, sem til grafar er borinn í dag
og verið liefir aðalforystumaður
þriðja stærsta stjórnmálaflokks-
ins í landinu, frá því er sá flokk-
ur var stofnaður, forseti sam-
einaðs Alþingis, Jón Baldvins-
son.
Alþingi átti þess ekki kost að
þessu sinni að heilsa forsetan-
um í forsetastóli. Hann var kos-
inn i þá trúnaðar- og virðingar-
stöðu, æðstu virðingarstöðu
þingsins, eftir að hann var Iagst-
ur banaleguna. Og nú er Alþingi
saman lcomið til að kveðja hann
látinn.
Alþingi hannar fráfall Jóns
Baldvinssonar og telur vandfylt
það skarð, sem með því hefir
verið höggvið í lið þess.. Enda
ber starfsferill hans því órækt
vitni, að þar var enginn miðl-
ungsmaður á ferð, sem hann
fór.
Hann var ekki „til menta
settur“ í æsku. IJann sagði það
oft sjálfur, að hann væri nú oi'ð-
inn einn af þeim fáu mönnum i
landinu, sem aldrei hefðu geng-
ið í nokkurn skóla. En liann
aflaði sér sjálfur staðgóði'ar
þekkingar á mörgum sviðum,
bæði í tungumálum, sögu og
öðrum fræðum. Hann var sér-
staklega næmur á íslenskt mál
og unni mjög Islendingasögum,
og svo var hann vel að sér í þeim
fræðum, að ekki munu margir
skólagengnir menn hafa þurft
að þreyta kapp við hann í þeim
efnum.
Undirstöðunnar að þessari
sjálfsmentun sinni aflaði hann
sér jöfnum höndum og hann
nam prentiðn, sem hann hugðist
að gera að lífsstarfi sinu. En
mentun og aðrir yfirburðir hans
gerðu hann að sjálfkjörnum for-
ystumanni stéttar sinnar. Hann
varð fulltrúi Prentarafélagsins
á stofnfundi Alþýðusambands-
ins, og þegar á fyrsta ári AI-
þýðusambandsins var hann
kjörinn forseti þess. En upp frá
því og til dauðadags, var liann
taíinn sjálfkjörinn í hverja
vanda- og virðíngarstöðu innan
alþýðusamtakanna, sem hann
vildi gefa kost á sér til að gegna
og hann gat komist yfir að
gegna Og upp frá því urðu þjóð-
málin megináhugamál hans og
aðallífsstarf hans varð á þeim
vettvangi.
Það sem aflaði honum álils og
ruddi honum braut voru með-
fæddir hæfileikar hans, vits-
munir og margvíslegir mann-
kostir. „Öll störf sín vann hann
svo, að liann aflaði sér trausts
og virðingar allra samslarfs-
manna sinna, hvar í flokki sem
þeir stóðu“, segir gamall starfs-
bróðir hans i minningargrein
um hann. Þau orð vil eg gera að
mínum orðum, því að þannig
reyndist Jón Baldvinsson í
störfum sínum á Alþingi. Hann