Vísir - 06.04.1938, Síða 2
V I S I R
VfSIR
DAGBLA0
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.'
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Austurstræti 12.
S í m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Vel byrjað!
¥Tiníæðunum um vantraustiö
^ lauk í gærkveldi en .at-
kvæöagreiöslan fer fram i dag.
Um úrslitin var það vitað fyrir-
fram, að vantrauststillagan
mundi verða feld með atkvæð-
um stjórnarflokkanna, 26 að
tölu, gegn 17 atkvæðum Sjálf-
stæðisflokksins.
Undir umræðunum lýsti
Bændaflokkurinn sig andvígan
vantraustinu, og bar hann fram
dagskrártillögu um að víkja því
frá, um leið og skorað yrði á
Framsóknarflokkinn og ríkis-
stjórnina að athuga livort ekki
mundi tímabært orðið, að
mynda „þjóðstjórn“, eða stjórn
skipaða af öllum(?) flokkum.
í annan stað har Héðinn Valdi-
marsson fram dagskrártillögu
þess efnis, að ekki mætti fella
vantrauststillöguna, af því að
Framsóknarflokkurinn hefði
samþykt gerðardóm í vinnudeil-
um, og verðskuldaði því í raun-
inni vantraust, en ekki mætti
heldur samþykkja hana, af því
að ekki væri enn vonlaust um
að flokkurinn bætti ráð sitt!
Kommúnistarnir kváðust
mundu sitja lijá við atkvæða-
greiðsluna um vantraustið. Lét
Biynjólfur Bjarnason þó svo
um mælt í gær, að þeir mundu
hafa ákveðið að greiða atkvæði
á móti því, ef þeir hefðu fengið
vitneskju um það í tæka tið,
hvernig Ólafur Tliors mundi
rökstyðja það! En þá vitneskju
höfðu þeir að vísu fengið, áður
en þeir lýstu afstöðu sinni.
Gera má ráð fyrir því, að dag-
skrártillögur Bændaflokksins og
Héðins verði feldar, og að þeir
þrír þingmenn, sem að þeim til-
lögum standa, sitji þá hjá við at-
kvæðagreiðsluna um vantrausts-
tillöguna sjálfa, ásamt komm-
únistum. En við það bætast 6
þingmenn við hlutleysingja-
sveitina, sem stjórnin hefir að
styðjast við, og eru það þá 13
þingmenn, sem þá sveit fylla.
En alt er það lið ótrygt og flest
ógæfulegt á svip, og ólíklegt til
giftusamlegs samstarfs.
Af hálfu Alþýðuflokksins var
undir umræðunum um van-
traustið deilt all harðlega á
Framsólcnarflokkinn, fyrir
trygðarof hans við samstarfs-
flokk sinn, bæði fyrr og síðar,
enda heitið mjög takmörkuðum
trygðum í móti. Kommúnistarn-
ir og Héðinn töldu Framsóknar-
flokkinn í rauninni bæði óal-
andi og óferjandi, þó að við það
yrði nú að hlíta, að fela honum
alla forsjá lands og þjóðar um
sinn, af því að ekki væri á
skárra völ. En sín á milíi
skömmuðust þeir og svívirtu
hvorir aðra, alþýðuflokksmenn-
irnir annarsvegar og Héðinn og
kommúnistar hinsvegar eins og
þeir höfðu orku og vitsmuni til.
Framsóknarmenn gerðu ýmist,
að smjaðra fyrir Alþýðuflokkn-
um og slá honum gullhamra,
eða átelja hann fyrir óvitaskap
og fyrirliyggjuleysi í baráttunni
fyrir hagsmunum alþýðunpar.
En kommúnistunum og Héðni
völdu þeir hin verstu orð og
kunnu þeim engar þakkir fyrir
liðsinni þeirra.
Og livers mundi að vænta af
samvinnu sliks liðs? — Um það
fer nú sem verða má. En „ekki
er fríður flokkurinn“ — og
honum er þeim mun ver farið
en lireppsnefndinni, sem þetta
var kveðið um, að það er ekkert
sem „prýðir“ hann!
ERLEND VfiPSJA:
LANDVARNIR OG FÓLKS-
FLUTNIN G AMÁL.
í grein, sem birt var hér í bla'S-
inu, var rætt um samvinnutilraun-
ir þær, sem fram fara, milli Suð-
ur-Ameríkulýövelclanna og Ev-
rópuþjóöa um aukna fólksflutn-
inga til SuSur-Ameríku. í fram-
haldi af þeirri grein þykir rétt a'ö
skýra frá því, aö samkvæmt sím-
skeytum frá Rio de Janeiro í
Brasilíu, er verið að undirbúa ný
innflytjendalög, meö þaö fyrir
augum aö auka fólksflutninga til
landsins, og eiga sæti í nefnd, sem
vinnur að frumvarpinu, ráöhcrrar
þeir, sem fara meö verklýösmál,
dómsmál, landbúnaðar- og utan-
ríkismál landsins. Stjórnmálamenn
Brasilíu eru þeirrar skoðunar,
segir í símskeytinu, sem hér er
stuðst viö, aö með því aö setja
nýja og rýmri löggjöf um þetta
efni, séu Brasilíumenn ekki aö-
eins aö taka mikilvægt skref til
þess aö bæta úr brýnni þörf hjá
sér, heldur og sé þeir aö greiöa
úr vandræðum með ýmsum þjóð-
um, sem stafa af því að meðal
þeirra er fjöldi manna, sem þarf
að koma fyrir annarstaðar.
Brasilíumönnum virðist koma
saman um það, að nauðsynlegt sé
að gera ráðstafanir til þess, að
velja innflytjendurna þannig, að
þeir þegar í upphafi undirgangist
að gerast borgarar í Brasilíu — og
vinna að heill og gengi síns nýja
lands, og þá einnig að taka á sig
landvarnarskyldur til jafns við
aðra borgara landsins, eftir því
sem lög mæla fyrir um.
Birtar hafa verið fróðlegar
greinar um fólksaukninguna í
|Brazilíu og eru Bandaríkin tekin
með til samanburðar. Samkvæmt
þeim hefir fólkinu fjölgað í þess-
um ríkjum frá 1808—1930 sem hér
segir:
Ár: Brazilía: Bandar.:
1808 4.000.000 5.000.000
1872 10.112.062 43.000.000
1930 41.000.000 130.000.000
Landbúnaðarskilyrði eru góð í
Brazilíu og er talið, að um langt
árabil geti Brazilía tekið við inn-
flytjendum, sem vilja stunda Iand-
búnað, í tugþúsundatali. Lögð
verður áhersla á, að fá innflytj-
endur frá Evrópu og frekar frá
lýðræðisríkjunum en einræðisríkj-
um.
BISKUPARNIR 1 AUSTURRlKI
OG NASISTAR.
London 6. apríl. FÚ.
Initzer kardínáli frá Wien
kom í gærkveldi til Rómaborg-
ar og fór þegar á fund Pacelli
kardinála. Initzer bar á móti
því, að hann hefði verið kvadd-
ur til Róm vegna yfirlýsingar
kaþólskra biskupa í Austurríki,
um stuðnig við nasista.
Fruklíndj,
afiil mim fjár,
seolr Matli, el soclalistar belili ekki broel
farti íyrir ftann.
EINKASKEYTI TIL YlSIS.
London, í morgun.
Alt er enn í óvissu um framtíð Blumstjórnarinn-
ar, en margir spá því enn, að fjáröflunar-
áform hennar muni verða henni að falli.
Eftirtektarverð ummæli um þetta mál birtust í blað-
inu Matin 1 morgun. Ræðir blaðið veigamestu atriðin,
sem fram hafa komið við umræðurnar í fulltrúadeild-
inni um frumvarp Blums, og segir, að rök þau, sem
Blum hafi fært fyrir lántöku til langs tíma fái ekki
staðist, vegna þess hversu ástatt sé í álfunni. Ef sósíal-
istar hefði ekki neitað Chautemps um það vald, sem
hann f ór fram á, hefði brautin verið rudd að því marki,
að taka innanlandslán til landvarna, og það mætti telja
víst, að sú lántaka gengi vel, af því að mikill uggur
væri í frakkesku þjóðinni vegna þeirra atburða, sem eru
að gerast í álfunni — og nýlega hafa gerst (þ. e. Austur-
ríki).
Slíkum árangri væri enn hægt að ná með því að
mynda stjórn, sem hefði öryggis- og Iandvarnarmálin
efst á dagskrá. Er þetta skilið svo, sem Matin sé að vinna
að því, að þjóðstjórn verði mynduð, ef Blum-stjórnin
fellur, eins og búist er við.
United Press.
‘’tfWKöl. '■ -»-
yfirrAðaréttur ÍTALA
Á ABESSINIU.
EINKASKEYTI TIL YÍSIS.
London, í morgun.
Utanríkismálsérfræðingur
ienska blaðsins „News Chro-
nicle“, Yernon Bartlett, skrif-
ar í morgun um yfirráðarétt
ítala á Abessiniu og sam-
komulagsumleitanir Breta og
ítala. Segir hann m. a., að
Italir vilji óðir og uppvægir
að Bretar viðurkenni yfir-
ráð þeirra í landinu, því að
það geti orðið til þess, að inn-
lendir menn, sem berjast
gegn Itölum, missi móðinn og
hætti mótþróa sínum. Hafa
þessir uppreistarmenn gert
Itölum marga skráveifu og
unnið á í vesturhluta lands-
ins upp á síðkastið.
United Press.
Nftt kapakstnrsmet í
vænflnm?
London 6. apríl. FÚ.
Hraðaksturskappinn John
Cobb hefur látið smíða sér nýja
hraðaks tursbifreið, sem er að
mörgu leyti frábrugðin ölium
þeim, sem hingað til hafa þekst,
og ætlar hann að fara með hana
til Utah í ágúst í sumar, og
reyna að hnekkja þar meti Eyst-
one í kappakstri.
Uppreistarmmn ern
að taka Tortosa.
London 6. april. FÚ.
Uppreistarmenn eru ekki enn
komnir að Miðjarðarhafi, en
miðar þó þangað óðum. Þeir
sækja til Tortosa frá þremur
bliðum. I gærkveldi átti ein af
þessum þremur álmum upp-
reistarhersins í orustu við stór-
skotalið stjórnarinnar.
I grend við Lerida segjast
uppreistarmenn hafa fimdið
fallbyssuforðabúr stjórnarinnar
og hafi þar einnig verið nokkr-
ir skriðdrekar af rússneski gerð.
Kína.
Japanlr segjastf
vinna á.
Berlín, 6. apríl. FÚ.
Japanir telja sér mikilsverða
sigra i Suður-Sliangtung og segj-
ast hafa náð þar á vald sitt borg
einni eftir 12 daga bardaga.
Muni þeir nú stefna liði sínu að
austur enda Lung-hai-járnbarut-
arinnar.
RÁÐHERRA
OG SMYGLARI.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
O nemma í morgun voru 9
^ menn handteknir í
Búkarest í Rúmeníu. Meðal
íinna handteknu er fyrrver-
andi forsætisráðherra Rúm-
ena, Konstantin Xeni. Þessi
hópur manna er ákærður fyr-
ir að hafa smyglað miklu
gulli úr landi í langan tíma.
Yerðmæti gullsins er talið
600 þús. sterlingspund (ca.
13 Vz milj. kr.).
United Press.
London, 6. apríl. FÚ.
Japanskir Iiermenn í Shang-
hai réðust i dag út á götu á
skotskan mann, og hefir ræðis-
maður Breta í Shanghai lagt
fram mótmæli út af þessum at-
burði.
Á Lung-hai vigstöðvunum
segjast Japanir hafa tekið bæ
einn norðan við stórskipaskurð-
inn.
r
adeins Loftur.
tl Bteiitnji Ifllir
Olympluleikarnir veröa
haldnir i Japan.
Mikill undirbúningur frá hendi
Japana. — Viðtal við prófessor
Kinoshita.
Fréttaritari U. P. i París hefir
átt tal víð japanska íþróttafröm-
uðinn prófessor Kinoshita, sem
margir íþróttamenn kann-
ast við, með þvi að hann hefir
um langt skeið verið einn af
forystumönnum Japana i í-
þróttamálum, og verið sjálfur
sigurvegari i ýmsum íþrótta-
greinum, og hefir síðustu 10 ár-
in helgað starf sitt eingöngu
íþróttamálum, þótt liann sé nú
61 árs að aldri.
Prófessor Kinoshita kvaðst
sannfærður um það, að styrj-
öldinni við Kína myndi verða
lokið á þessu ári, þar eð stjórn
Kínaveldis myndi eltki geta
haldið styrjöldinni áfram vegna
erfiðra aðstæðna á öllum svið-
um. Taldi hann því engin Mk-
indi til að leikarnir yrðu ekki
haldnir í Japana árið 1940, enda
hefðu Japanir þegar hafið mik-
inn undirbúning að leikunum,
og bygt meðal annars 10 íþrótta-
svæði, sem íþróttamenn æfðu
sig þegar á daglega. Væri lögð
sérstök áhersla á það frá hendi
Japana, að leikarnir tækjust
sem best og japanskir íþrótta-
menn næðu sem glæsilegustum
árangri. Þá hefði sundlaug ver-
ið bygð, sem væri langtum bet-
ur úr garði ger en í BerMn hafði
verið, og áhorfendasvæðið rúm-
aði 40.000 áhorfendur. Þá yrði
mjög bráðlega hafist handa um
að hyggja nýtt íþróttasvæði,
sem rúmaði 80.000 áhorfendur.
Japanskir sérfræðingar eru nú
að vinna að tilbúningi tækja, í
sambandi við leikina, sem eru
miklu nákvæmari en þekst hef-
ir áður. Meðal annars verður
búin til myndavél, sem getur
tekið 500 myndir á sekúndu, og
byggist það á sérstökum næm-
leika filmanna.
1 sambandi við hlaupin verða
einnig notuð miklu nákvæniarí
tæki en áður, og verður raf-
magnistæki og Ijósmyndavélar
notaðar, sem standa í sambandi
við rafstraum, er verkar á þessi
tæki strax og íþróttamennirnir
koma að markinu. Eru tæki
l>essi svo nákvæm, að ávalt er,
unt að skera úr hver fyrstur
verður að marki, þótt úr því
yrði tæplega skorið með tækj-
um þeim, sem áður þektust.
Hinsvegar kvaðst prófessor
Kinoshita ekki eingöngu vilja
Ijyggja á tækjum þessum, held-
ur einnig auganu, og þegar
þetta tvent starfaði saman, yrði
fylsta öryggi náð.
Þá sagði prófessor Kinoshita
ennfremur, að hann hefði orðið
þess var, að einstaka þjóðir
myndu af pólitískum ástæðum
reyna að koma í veg fyrir að
leikirnir yrðu haldnir i Tokio,
en pólitík og íþróttir væru ó-
skyld mál og stæðu í engu inn-
byrðis sambandi, enda kvaðst
hann ekki trúa þvi að opinber-
ar ráðstafanir yrðu gerðar til að
lcoma í veg fyrir að leikirnir
yrðu haldnir í Japan að þessu
sinni.
Miettinen, fulltrúi Finna, var
staddur á fundi í París um sama
leyti, en orðrómur hefir gengið
um það, að Finnar myndu vilja
koma í veg fyrir að leikirnir
yrðu haldnir í Tokyo. Hann
kvað það hinsvegar ákveðið, að
leikirnir yrðu haldnir í Tokyo,
og engin ástæða væri til að fara
að breyta þeirri ákvörðun af
pólitiskum ástæðum.
Farmannadeilan.
nkomulag á
árdegisfundinum í dag
Samkomulagsumleitunum haldið áfram.
E'INS og getið var um i Vísi
^ á laugardag, voru nokkurir
fundir haldnir á laugardaginn
var og á mánudag, til þess að
ræða þann þátt farmannadeil-
unnar, er varðar stýrimennina.
Sátu fundina, auk sáttasemjara,
Björns Þórðarsonar lögmanns,
fulltrúar beggja deiluaðila.
Samkomulag náðist ekki.
1 fyrrakvöld tilkynti stjóm
Sjómannafélags Reykjavíkur
Eimskipafélagi Islands og
Skipaútgerð ríkisins, að skipin
yrði stöðvuð, svo fremi að sam-
komulag næðist ekki um kaup
háseta og kyndara áður en skip-
in færu.
Gullfoss átti að fara héðan í
gærkveldi, en Esja á að fara
annað kveld. Til stöðvunar á
Gullfossi hefir ekki komið, þar
sem eigi var lokið útskipun i
það í gærkveldi. Var því brott-
för skipsins frestað þar til í
kvöld.
Er það undir því, sem ger-
ist á fundum sáttasemjara
og deiluaðila í dag, komið,
hvort til stöðvunar kemur
eða ekki.
Fulltrúar annara sjómanna-
félaga, en Sjómannafélags
Reykjavikur, hafa lýst yfir því,
að félagar í þeim væri fúsir til
þess að halda áfram störfum á
skipunum, a. m. k. fyrst um
sinn, upp á þau kjör, sem um
yrði samið síðar.
Sáttasemjari var á fundum
með deiluaðilum mestan hluta
dags i gær. Tilraunum sínum
til þess að leiða deiluna til lykta
heldur hann áfram í dag og hóf-
ust fundir kl. 10.
SAMKOMULAGSUMLEIT-
UNUM HALDIÐ ÁFRAM.
Laust eftir hádegi í dag átti
Vísir tal, við sáttasemjara,
Björn Þórðarson lögmann, en
hann var þá nýkominn af ár-
degisfundinum. Kvað hann
samkomulag ekki hafa náðst
enn sem komið væri, en frek-
ari tilraunum til þess að ná
samkomulagi yrði haldið á-
fram.
Hófst fundur þegar á ný að
afstöðnu matarhléi.