Vísir - 04.05.1938, Blaðsíða 3
VISIR
Breska fjármálaráðuneytið lýsir
eftir kröfum á hendur Islendingum
Hiðurrifsstefna stjórnarflokkanna
verður að víkja og alMida upp-
tyggingarstarfsemi ad kefjast.
Sljórnardeild breska fjármálaráðuneytisins hefir nýlega sent
út innköllun krafna, sem breskir kaupsýslumenn eiga á hend-
ur íslendingum í riti því er birtir stjórnarvaldaauglýsingar þar
í landi, og samltvæmt innkölluninni áttu kröfulýsingar þcssar
að vera komnar í hendur stjórnardeildarinnar fyrir 2. maí þ. á.
I þessari innköllun hlýtur það eitt að felast að vanskil þjóðarinn-
ar sé orðin svo áberandi, að breskir valdhafar líti svo á að við-
skifti við íslendinga sé það ótrygg, að nauðsyn beri til að hið
opinbera taki þau til sérstakrar athugunar og skerist í leikinn
ef með þarf. Slíkar innkallanir sem þessi, á hendur annars ríkis
borgurum, mun vera einsdæmi og er einhver ömurlegasti van-
skilastimpill, sem settur hefir verið opinberlega á þjóð vora.
Frá liendi íslenskra valdliafa
er það hinsvegar ábyrgðarleysi
að reyna enn þá að blekkja
þjóðina og telja henni trú um að
„alt sé í lagi“, þegar svo er
komið málum, enda til þess
eins gert að sitja meðan sætt
er, livað sem öllu öðru líður.
Togstreitan
innan Framsóknarflokksins.
Það er athyglisvert í þessu
sambandi, að forsrh. Hermann
Jónasson lýsti yfir þvi, er hin
hreina framsóknarstjórn settist
að völdum, að stjórnin myndi
i engu hvika frá fyrri stefnu
bræðingsstjórnar sósíalista og
framsóknar, eða m. ö. o. að hert
yrði á innflutningshöftum,
sköttum og tollum, horft yrði
aðgerðalaust á hrun atvinnu-
veganna, haldið yrði áfram
eyðslustefnunni og ekkert gert
til hjargráða frá því sem áður
hefði gert verið.
í fullu samræmi við þetta
hafði fjmrh. Eysteinn Jónsson
borið fram í byrjun þings liæsta
fjárlagafrv. og hæstu tekju-
aukafrumvörp sem þekst liöfðu,
og engu gleymt af þeim tolla-
og skattafrumvörpum, sem áð-
ur höfðu náð samþykki þings-
ins og gilda átlu til bnáðabirgða.
Þessari eyðslustefnu til frekari
áréttingar har sami ráðlierra
þvi næst fram frumvarp til
heimildarlaga til lianda ríkis-
stjórninni, til þess að tekið yrði
eitthvert htesta erlent lán, sem
ríkið hefir fengið til þessa, þó
með þvi loforði að láninu skyldi
að mestu varið til greiðslu af-
horgana' og vaxta af eldri lán-
um.
Stefnan er augljós. Hún er
ekki sú að spara á hinum erf-
iðu tímum, sem nú standa yfir,
heldur ekki sú að rétta við
hrynjandi atvinnuvegi, en hún
er hin" að lialda áfram eyðsl-
unni og spillingunni sem sósial-
istarnir innleiddu hér í landi er
þeir veittu Framsókn stuðning
sinn og hlutleysi í fyrsíu valda-
tið hennar. Hér er því um
gálgafrest að ræða, en ekki
bjargráð.
Það var atliyglisvert að í út-
varpsumræðunum í gærkveldi
talaði Jónas Jónsson formaður
framsóknarflokksins, sem nú
virðist kominn til vits og ára,
algerlega í gegn þessari eyðslu-
stefnu ríkisstjórnarinnar. Hann
lagði réttilega megináherslu á
það, að stjórnarflokkarnir yrðu
að rétta við atvinnuvegina og
allir landsmenn yrðu að vinna
að framleiðslunni, með það fyr-
ir augum að rétta við hag lands-
ins, og það væri engan veginn
vonlaust.
Þetta tvent: að framleiðslan
verði að bera sig og að allir
verði að vinna eru tvö hin æðstu
boðorð, sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hefir alla tíð barist fyrir,
eftir frekasta mætti — en fyrir
daufum eyrum hinna ráðandi
flokka.
Eymdarástand
Framsóknarflokksins.
Slík stefnubreyting sem þessi
innan Framsóknarflokksins
væri að sjálfsögðu mjög á-
nægjuleg, ef þess mætti vænta,
að hún yrði þar alls ráðandi, en
hverjar líkur eru fyrir því?
Á því hefir oft verið vakin
athygli í hlöðum Sjálfstæðis-
flokksins að Framsókn saman-
stæði af hinum ólíkustu mann-
tegundum og andlegum lífver-
um, og lítil líkindi væru til að
ábyrgir menn yrðu þar ekki of-
urliði bornir af hinum, sem
hafa farið á mis við þá tilfinn-
ingu. Bændurnir, sem áður
voru uppistaða Framsóknar,
eru flestir horfnir, orðnir ívaf
eða einskonar leyndir þræðir í
hlóðrauðum dúk hinna „bæjar-
radikölu“.
Kommúnistarnir, sem keypt-
ir hafa verið með feitum em-
hættum, ráða nú orðið stefnu
flokksins í hinum þýðingar-
mestu málum, og þegar for-
maður flokksins vaknar loks-
ins af sínum Mjallhvítarblundi,
eru allir dvergarnir orðnir að
stórum uppvakningum, sem
hann er ekki fær um að kveða
niður.
Á þessum alvörutímum eru
það svo eyðingaröflin í þjóðfé-
laginu, kommúnistarnir utan
og innan Framsóknarflokksins,
sem njóta sín best, en önnur
öfl þjóðfélagsins eru veik vegna
sundrungar og samtakaleysis.
Leiðin út úr ógöngunum
er að eins ein og hún er sú, sem
Jónas Jónsson henti réttilega á,
að þjóðin hætti að lifa um cfni
fram, en læri að húa að sínu og
gæta fylsta sparnaðar.
Fálskur kaupmáttur skapar
falskt þjóðlíf og hlýtur að leiða
til hruns. Hrynjandi atvinnu-
vegir skapa hrynjandi þjóðar-
búskap, og engin utanaðkom-
andi öfl í lánsformi geta bjarg-
að þeirri þjóð, sem vill ekki
bjárga sér sjálf.
Víðreisn atvinnuveganna er
það takmark, sem þjóðin verður
að keppa að og sameinast um.
Það kostar máske fórnir, sem
þó verða ekki tilfinnanlegar ef
það ráð er í tíma tekið, cn þær
fórnir geta einar fært -landinu
fjárhagslegt sjálfstæði, varan-
legar framfarir og gullna fram-
tíð. Slíka framtíð getur Sjiálf-
stæðisflolckurinn allra flokka
frekast trygt þjóðinni, með því
að hann hefir sýnt það að hans
eru hugsjónirnar, trúin á land-
ið og sigur hins góða málstað-
ar, en slikur sigur liefst aldrei
án nokkurrar óeigingjarnrar
baráttu.
Ef islenska þjóðin innkallar
kröfur sínar á liendur valdhöf-
unum, með fullri alvöru og full-
um þrótti, mætti svo fara þrátt
fyrir allar innkallanir erlendra
þjóða, að voru landi hiðu hetri
tímar og hjartari framtíðar-
horfur.
Frá umferdarráði
Eigendur (umráðamenn)
bifreiða.
Lánið engum bifreiðar yðar til
aksturs, nema þér séuð þess full-
vissir, að hlutaðeigandi hafi næga
þekkingu og æfingu í bifreiða-
akstri.
Athugið að ökuskírteinið eitt
tryggir ekki hæfni ökumanns, t. d.
sé langt síðan að hann hefir ekið.
BifreiSalán sem þessi hafa vald-
ið dauðaslysum og eíga aS hverfa
meS öllu. HafiS þaS hugfast, aS
bifreiðar eru nauðsynleg sam-
göngutæki, en ekki leikföng —
síst þeirra, sem ekki kunna meS
aS fara.
Bifreiðastjórar, hjólreiðamenn
og aðrir vegfarendur.
Gætið sérstakrar varúðar á
gatnamótum og vegamótum og í
námunda við þau. Reynslan hefir
sýnt þaS hér, aS nærfelt helming-
ur ökuslysa og óhappa í akstri
hafa gerst á slíkum stöSum og
langoftast fyrir skort á varfærni
eSa brot á umferöareglunum.
ÞaS má ekki eiga sér staS, aS
fótgangendur leggi leiS sína yfir
krossgötur eða gatnamót heldur
til hliSar viS þá staði, samkvæmt
gangbrautarmerkjum.
Foreldrar og forráðamenn
barna.
Gætið þess að lítil böm noti ekki
svo stór reiðhjól, að þau geti eigi
setið þau eðlilega.
ÞaS hefir valdiS slysum, aS
börn hafa hjólað á þann hátt, aS
standa á stigsveifunum meS ann-
an fótinn inn undir slánni og ver-
iS þannig utan á annari hliö reiS-
hjólsins. Þau hafa þá hvergi nærri
fult vald á hjólinu.
Foreldrar, kennarar og aðrir
forráðamenn barna.
Þreytist aldrei á því aS útskýra
fyrir börnunum, hversu mikil hætta
er fólgin í því athæfi, aS hanga
aftan í eSa utan á farartækjum.
Dauðaslys og hverskonar meið-
ingar hljótast öðra hvora af slík-
um yfirsjónum.
Þeir fullorSnir, sem hanga í bif-
reiSum, hvort heldur þeir eru fót-
gangandi eða hjólandi, eiga allir
að sæta refsingu.
Gan^gandi vegfarendur.
Farið gangstéttirnar þar sem
þær eru til, aS svo miklu leyti sem
frekast er unt. ÞaS léttir fyrir um-
ferS á akbrautinni og veitir meira
öryggi ykkur sjálfum og þeim
sem stýra farartækjum. Ef gang-
stéttír eru ekki viS götuna þá
gangið götujaöarinn til vinstri
handar.
Vélbátui*
sekkur.
Mannbjörg.
Vélbáturinn Svanur 152 í
Vestmannaeyjum sökk í gær. —
Fjórir menn voru á bátnum og
björguðust allir. — Skipstjóri
var Magnús Jónsson. Leki kom
skyndilega a‘ð bátnum svo mik-
ill að ekki var unt að lialda hon-
um á floti. -— Vélbáturinn
Maggi, skipstjóri Guðni Gríms-
son, bjargaði mönnunum. (FÚ.)
Veðrið í morgun.
í Reykjavík 7 st., mestur hiti í
gær 10, minstur í nótt 4. Úrkoma
0.2 m.m. Sólskin í gær 3.0 st.
Heitast á landinu í morgun 10 st.,
á Akureyri, Dalatanga, Fagurhóls-
mýri, minstur hiti 5 st., Kjörvogi,
Grímsey og Vestmannaeyjum. -—-
Yfirlit: HæS fyrir sunnan land og
yfir íslandi. Horfur: Faxaflói:
Vestan gola. Úrkomulaust.
Skipafregnir.
Dettifoss fór frá Hull í gær-
kveldi áleiSis hingaS. Selfoss er í
Antwerpen. Gullfoss, GoSafoss,
iBrúarfoss og Lagarfoss liggja hér.
Höfnin.
Kolaskip, „Karen Taft“, fór í
gær. Saltskip kom í gær frá Hafn-
arfirði.
Af veiðum
kom í morgun Ólafur meS 92
föt lifrar.
Stýrimannaskólanum
var slitiS 30. apríl og höfðu þá
17 neinendur lokið hinu meira
fiskimannaprófi, Þessir þrír fengu
hæstar einkattír: SigurÖUf Þðf-
leifsson, 154 st., Kristján Gunn-
arsson, 151% st. og Herbert Þórð-
arson 138 stig.
Utanför íþróttamanna.
íþróttasamband íslands sótti ný-
lega um 4000.00 kr. styrk til að
senda þrjá fimleikaflokka á fim-
leikamót í Oslo í næsta mánuði. Á
fundi sínum 29. apríl sajnþykti
bæjarráðið aS mæla ekki með
styrktarbeiöninni. Auk þess var í.
S. í. neitað um gjaldeyrisleyfi, svo
aS förin verður ekki farin.
Osram h.f.,
lampafirmaS í Kaupmannahöfn,
bauð rafmagnsstjóra, er hann var
þar í febrúar, að senda hingað
verkfræSing, er héldi hér fyrir-
lestra um hverskonar ljósnotkun.
Þetta yrði Rafveitunni aS kostn-
aðarlausu, að öðru leyti en því,
að hún sæi um fyrirlestrana og
gæfi út bækling um raflýsingu.
Hjúskapur.
Nýlega voru gefin saman í hjna-
band af sýslumanninum í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu, ungfrú Sig-
riður Skúladóttir úr Keflavik og
Halldór J. Fjalldal frá Melgras-
eyri við ísafjarðardjúp. Brúðhjón-
in tóku sér far vestur meÖ „Dron-
ning Alexandrine".
Háskólafyrirlestur.
Sr. Sigurður Einarsosn, docent,
heldur síðasta fyrirlestur sinn í
kveld kl. 6. Efni: Nokkur sérein-
kenni kristindómsins.
A. S. B.,
(félag afgreiðlustúlkna í
brauSabúðum) heldur fund annaS
kveld;, vegna deilu þeirrar, er fé-
lagið stendur í við bakara.
íþróttafélag kvenna
heldur fund annað kveld að
Hótel Skjaldbreið kl. 9 e. h. Er
áríSandi aS félagskonur mæti. —
Leikfimi fellur niður.
Mæðrastyrksnefndin. .
Af sérstökum ástæðum verður
skrifstofa nefndarinnar ekki opin
annað kveld (fimtudag).
Bernhöftshakarí.
Að gefnu tilefni skal það tekiö
fram, að Bernhöftsbakarí flutti úr
hinuni gömlu húsum viS Banka-
stræti strax er ríkið yfirtók eign-
ina og aS Bergstaðastræti 14. —
Bakarí það, sem nú er rekiö i
húsunum við Bankastræti mun
vera á vegum Kaupfélags Reykja-
víkur, en er Daníel Bernhöft bak-
ara með' öllu óviðkomandi.
L andsb ókasaf nið
er nú að innkalla bækur þær,
er það hefir lánaS í vetur og enn
hefir ekki verið skilað. Eiga menn ,
að gera þaS í síðasta lagi 14. maí.
Er opið daglega kl. 1—3 og á að
skila' bókunum á þeim tíma.
Bláa kápan.
I kveld verSur Bláa kápan sýnd
á viðhafnarsýningu og jafnframt
til ágóSa fyrir Pétur Á. Jónsson,
óperusöngvara. Próf. GuSbrand,- '
ur Jónsson heldur ræSu áður en ;
sýning hefst.
Næturlæknir:
Eyþór Gunnarsson, Laugav. 98, ‘
sími 2111. Næturvörður í Reykja-
víkur apóteki og LyfjabúSinni IS- j
unni.
Útvarpið í kvöld.
19,50 Fréttir. 20,15 Söngleikur- j
inn „Bláa kápan", útvarpað frá
leiksviðinu í ISnó (Hljómsveit
Reykjavíkur). Dagskráríok um
kl. 23,30.
IM m
Éiv RÚ?
Þessi spurning hefir legið i
loftinu alllengi — við ýms
tækifæri. Norðmenn efna nú til
gjafa á Snorramerki handa
okkur, á sama tíma og Jóns
Sigurðssonar stefnan heldur
áfram hjá okkur innrukkunun-
um við Dani. Auðséð er að Norð-
menn kæra sig ekki um að við-
urkenna frændskaparskylduna
við okkur — með þvi að líkjast
okkur um of í aðferð utanríkis-
málanna, annars myndu þeir
heimta að flytja Reykholt til
Nörégs, líkt og Islendingar
Árna Magnússonarsafn til
Reykjavíkur. Norðmenn vilja
vera lausir allra mála við okkur
í þvi ytra formsins vegna, og er
það vel, þar sem heldur engir
pappírssamningar eru milli
okkar og þeirra nema meiri séu
en við Dani þrátt fyrir alt.
Minnir togstreitan við Dani
meira á hjúskaparmál frá ís-
landinga hálfu, þó mest á hjú-
skapardægurþras þar sem
þröngt er i húi, eru hærri
sjónarmið gengin fyrir bý. Má
það undarlegt lieita, að íslend-
ingum skuli ekki hafa dottið i
hug að reisa sér minnismerki
— þar sem það þó á við, sem sé
i Kaupmannahöfn. — Eina
hvíta byggingu, Árna Magnús-
sonar safn, til minningar um
islenskt stúdentalíf þar. Væri
það og ætti að geta verið utaa-
rikismál sem vegsemd væri
að — ekki einungjs ýmsum öðr-
um löndum en íslandi „eiimíg'*
okkur. Eina þjóðin sem gæti
neitað okkur um að gera þetta
eru Danir, og i sjálfu sér er
neitunin þegar fengin, ef svo er
að Danir séu samtaka í að
humma það fram af sér aö veræ
skynsamari J þessu máli en við
sjálfir, og er það von; því ættia
þeir að vera betri en til dæmis
Norðmenn. En það er nú bara
svo, að hér er ekki um neitt
betra eða verra að ræða i sjálfu
sér. Einungis takt. Árna Magn-
ússonar safn gæti um iisesiu
liundrað ár minsta kosti veriS
viðunandi utanrikismál fyrir
okkur — með þessu móti, prent-
smiðju yrði að stofnsetja við
safnið þar sem ynnu við' margir
menn daglega, á vinnu þeirra
mætti húa til gjaldgenga mynt
jafnóðum sem yrði umferða-
hæf hér og þar. Safnið mætti
prenta upp á hundrað árum og
sendast hingað til lands í ódýr-
um útgáfum, móderniseruð
handrit. Áskrifendur að safninis
myndu einnig verða mjög marg-
ir í öllum löndum út um allan-
heim, vegna þess ef safnið er é
islensku. Það var í fyrra að eg
skrifaði Sigurði Nordal bréf, á-
væning um álit mitt á þessu, og
við það situr! En spurningira
fyrir heiminum verður {>essi
hvort íslendingar verði nú
heimarikir liundar — eða gauga
þeir með út um heiminn eitt-
hvað nokkuð á leið, hvorf snúa
á nú við frá Evrópesku sam-
kvæmislífi í því ytra, til kot-
ungsbúskapar innra og ytra —
vitandi það að sjálfforræðí kosf-
ar risnu, — vitandi það að
grafir margra ágætra Islend-
inga eru í Danmörku, og Iivar
ætla landar þeirra skáldannæ
broadkastningunni að emdo-
serast ef framkoma á að vera.
Jóhannes S. K,. .
TIL LEIGUr
TIL LEIGU sólrik forstofu-
stofa Miðstræti 13. Eldiiúsað-
gangur ef vill. (215
ÓDÝR forstofustofa til Ieigii
á Njarðarg. 29, fyrir einlileypa
stúlku. (216
B—n——■imii ib—■■imni ■■ nm mi— ■iiiim ■nr m iMi• hiiiwiiiitt—
TVÖ lierhergi og eldhús. tiS
leigu, í góðum kjallara í vest-
urbænum. Tilboð merkt „65“
Sendist Vísi fyrir föstudags-
kvöld. (21^
TEOfANI
C icjarebbur
REYKTAR
HVARVETNA
TIL LEIGU 2 herbergí og:
eldhúsaðgangur fyrir fámeimá:
fjölskyldu. Uppl. á Lokastfg 4J
frá kl, 5—7. (218
2 SÉRSKILIN lierbergi til
leigu fyrir einhleypa. Annað
hentugt fyrir tvær eða tvo. —
Bragagötu 29 A.________(22Ö>
GÓÐ íhúð, 3 lierbergi og eld-
hús, lil Ieigu Þórsgötu 17. UppE-
í síma 4764, milli 6—7. (226
3 HERBERGJA ihúð tíl Ieígu^
rafmagnseldavél. Hverfisg, 4flll
Á sama stað sérherbergí fyrir
stúlku. (227
2 HERBERGI og aðgangur
að eldhúsi til leigu i SkerjafirðiL
2 herbergi og aðgangur að eldf-
húsi til leigu í Reykjavík. UppU
gefur Dagbjartur Sigurðssoir„
Vesturgötu 42._________ (228
HEIL hæð með öllurn nýtískiK
þægindum til leigu. Tilhoð^
merkt: „Hæð“ sendist Vísi. —
(17f
3 HERBERGI og eldhús í sól-
ríkum kjallara til leigu frá 14'.
maí. Uppl. í síma 2550. \22F>