Vísir - 24.06.1938, Síða 2
VlSIR
Bretar reiðnbúnir til að gripa inn i deilnmil
Eínverja og Japana.
Bresk hagsmunasvæði
í Bína em í yftrvofandi
liættu.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Samkvæmt opinberum heimildum er talið líklegt
að Bretar muni bráðlega bera fram miðlun-
artillögu eða eiga frumkvæði að friðarumleit-
unum milli Kínverja og Japana. Er það talið upplýst að
Halifax lávarður hafi rætt um þetta við utanríkismála-
nefnd breska þingsins, þannig að undirbúningur sé
þegar hafinn í þessu efni. í umræðunum um ófriðinn
milli Kína og Japan, sem fram fóru í neðri deild breska
þingsins í gærkveldi lýsti Halifax lávarður yfir því, að
tíminn til að hefjast handa nálgaðist hröðum skrefum
og skilyrðin fyrir afskiftum Breta af deilumálum þess-
ara þjóða, ykjust með degi hverjum.
Hagsmunir Breta í Kína eru miklir, — miklu meiri
en flesta grunar, — og mun breska stjórnin leggja meg-
ináherslu á að vernda þá, þótt hún hafi ekki séð sér
fært enn sem komið er að blanda sér beinlínis í ófrið
þann sem geysað hefir milli Kína og Japana. Þótt ófrið-
urinn hafi þegar valdið Bretum miklu tjóni er viðbúið
að enn meira og tilfinnanlegra tjón sé yfirvofandi þar
eð bresk hagsmunasvæði eru í yfirvofandi hættu vegna
árása Japana.
Síðustu fregnir af ófriðinum eru þær, samkvæmt
símskeyti frá Hongkong, að Japanir hafi reynt að setja
lið á land í Hainan-eyju, en verið varnað það af vél-
byssuskothríð Kínverja. Talið er að tíu frönsk herskip
haldi sig nálægt eyjunni reiðubúin til að gæta franskra
hagsmuna ef með þarf og grípa inn í.
Tokiofregnir herma, að utanríkismálaráðherra Jap-
ana, Otani, hafi sagt af sér ráðherrastöðu sinni en ver-
ið skipaður í þess stað til að hafa með höndum og veita
forstöðu framkvæmdum Japana í Norður-Kína. Ugaki
mun gegna embætti Otani til bráðabirgða þar til stöð-
unni verður endanlega ráðstafað.
United Press.
Hafnarborg Salomos og- höfud-
borgf drotnmgfarinnar af Saba
eru fundnar.
Amerískir jarðfræðingar, sem voru að rannsóknum nálægt
strönd Rauðahafsins hafa fundið hafnarborg Salomos kon-
ungs, sem stóð í mestum blóma á árunum 1000 f. Kr. til 800 f.
K. Hafa þeir jafnvel fundið landfestar skipanna grafnar í
sandinn.
Breska stjórnin tapar fylgi
innan þingsins.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Neðri deild breska þingsins samþykti í gærkveldí
traustsyfirlýsingu brésku stjórninni til handa
með 275 atkv. gegn 141 atkv., en stjórnarand-
stæðingar höfðu borið fram vantraust á stjórnina
vegna afskiftaleysis hennar af Spánarmálunum. Töldu
þeir að stjórnin, og þá sérstaklega Mr. Chamberlain,
vanrækti svo óviðunandi væri, að gæta breskra hags-
muna í sambandi við öryggisleysi breskra skipa í Mið-
jarðarhafi, þar eð Franco-stjórninni væri látið haldast
uppi að gera ítrekaðar árásir á bresk skip án þess að
stjórn Bretlands beitti refsiaðgerðum þeirra hluta
vegna gegn þjóðernissinnum á Spáni. Á köflum urðu
deilurnar mjög harðar.
Fylgi stjórnarinnar hefir hrakað allverulega frá því
er áður var með því að meiri hluti hennar í neðri deild
þingsins hefir venjulega verið 240 atkvæði en reyndist
nú aðeins 134 atkvæði.
United Press.
Bresku konungshj ón-
in fara til Frakklands
19. jiilí n. k.
EENKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Opinber tilkynning hefir verið gefin út um það,
að för bresku konungshjónanna verði frestað
þangað til 19. júlí og lýsa öll frönsk blöð í dag
gleði sinni yfir því að af förinni verður þrátt fyrir
dauða Strathmore greifafrúar. Meðal almennings er
mikill fögnuður ríkjandi vegna heimsóknarinnar og
hátíðahöldin hafa þegar verið ákveðin í öllum atriðum,
og mikil viðbúnaður verið hafður í Frakklandi og þá
einkanlega í París til þess að móttaka bresku konungs-
hjónanna verði sem hátíðlegust og viðhafnarmest.
Hefir verið unnið að því látlaust í París undanfarna
mánuði að skreyta, fegra og endurbæta ýmsar opin-
berar byggingar, og mikill kostnaður verið í það
lagður.
Menn bjuggust ef til vill við að konungshjónin
myndu hætta með öllu við för sína til Frakklands
vegna dauða Strathmore greifafrúar og biðu með
óþreyju ákvarðana í því efni, en nú hefir öllum orðið
að óskum sínum, þar eð þessi ákvörðun var tekin.
United Press.
-^i — ■flHTI-T-|TT - iii | i rn —rrnriiiiMf — 11
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁPAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(GengiS inn frá Ingólfsstræti).
Símar:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Leiðir skilja.
PUNDUR var haldinn í „Full-
*■ trúaráði verkalýðsfélag-
anna“ hér í bænum, s. 1. þriðju-
dag, og er það fyrsti fundur
ráðsins, síðan þeir Héðimi
Valdimarsson og félagar hans
hleyptu upp fundi þess í vor,
sem fræ;gt er orðið. Að þessu
sinni tókst að því leyti betur til
um fundarhaldið, að nú tókst
þó með hörkubrögðum að
heyja fundinn til enda og ljúka
fundarstörfum, þó að illa liorfði
í fyrstu og tvívegis yrði að gera
fundarhlé, sakir æsinga og illra
láta fundarmanna. En það
„gerði gæfumuninn“, að sundr-
ung varð í liði Héðins, sem
ekki var viðstaddur sjálfur,
og vildu sumir ganga af fundi
en aðrir hleypa honum upp, og
að lokum varð það úr, að liðið
flýði alt af Iiólminum, eftir að
haft liafði verið við orð að
kveðja lögregluna til hjálpar,
til þess að halda uppi reglu á
fundinum.
Eftir ósigurinn í atkvæða-
greiðslunni í Dagsbrún, virðast
Héðinsliðar þannig hafa „mist
móðinn“ að nokkuru og ekki
treystast til þess að hindra
lengur félagsstarfsemi andstæð-
inganna, með oflieldi, eins og
þeir gerðu áður, nema þá þeir
„allra vitlausustu“ í þeirra hópi,
eins og Alþýðublaðið kemst að
orði. En að sögn þess blaðs,
vildu þeir „allra vitlausustu“ af
fylgismönnum Héðins ekkert
annað en hleypa upp fundinum,
og láta þá heldur hendur skifta,
en nokkur fundur yrði haldinn.
Hinir, sem vitrari voru, eða ó-
vitlausari, en fyrir þeim var
Guðmundur Ó., fyrverandi for-
maður Dagsbrúnar, vildu láta
sér nægja að „mótmæla“ fund-
arlialdinu, sem ólögmætu, og
ganga síðan af fundinum. En
þó að það sé engann veginn al-
gild regla, að farið sé að ráðum
hinna vitrustu manna, og síst
þegai- æsingar eru miklar á
ferðum, svo sem hér var, þá
fékk G. Ó. þessu þó ráðið, þrátt
fyrir ofsa hinna „allra vitlaus-
ustu“, sem Aþlbl. segir að Sig-
fús Sigurlijartarson hafi haft
orð fyrir.
Með því að „ganga af“
þessum fundi Fulltrúaráðsins,
liafa Héðinsliðar í rauninni
hröklast úr sterkasta víginu,
sem þeir áttu yfir að ráða í
byrjun þessarar valdabaráttu
sinnar innan verkalýðssamtak-
anna. Er það ótvírætt merki
þess, að baráttuþrek liðssveit-
anna sé að hila, og senn muni
endir hundinn á þessa styrjöld,
sem nú hefir staðið yfir í nálega
heilt ár. Má að visu gera ráð
fyrir því, að henni verði haldið
áfram, að nafninu til þar til Al-
þýðusambandsþing kemur sam-
an, en hinsvegar, er undirbún-
ingur þegar hafinn að þvi, að
koma þeim „leyfum“ liðsins
undan, sem þá kynnu enn að
vera undir vopnum, og fá þeim
griðastað í herbúðum komm-
únista. En í því skyni hefir Héð-
inn nú látið semja og „á þrykk
út ganga“ frumvarp af „stefnu-
skrá, lögum og starfsskrá fyrir
hinn sameinaða flokk íslenskrar
alþýðu“, sem hann svo kallar,
og ekki þarf annað en að fá
„staðfestingu“ á af hálfu
kommúnista til þess að lið lians
og kommúnista geti runnið
saman í eina lijörð, undir um-
sjá og yfirstjórn eins hirðis —
austur í Moskva.
Aöalfundur f. S. I.
Aðalfundur I. S. í. hófst í
gærkveldi kl. 8V2 í Oddfellow-
húsinu, eins og frá var skýrt
í Vísi í gær.
Forseti, Ben. G. Waage, setti
fundinn og mintist Axels V.
Tulinius, er var 1. forseti I. S. í.
og heiðruðu fundarmenn minn-
ingu hins látna íþróttafrömuðs,
með því að rísa úr sætum sín-
um.
Síðan var kosinn fundastjóri
og var það Erlendur Ó. Péturs-
son, forstjóri, en ritari var kos-
inn Konráð Gislason, ritstjóri
íþróttablaðsins.
Þá gaf forseti skýrslu um
starfsémi 1. S. 1. á árinu, en á
meðan athugaði kjörbréfanefnd
kjörbréf manna.
Skýrsla forseta tók eina
klukkustund og var hin ítarleg-
asta. Lýsti hann starfsemi sam-
bandsstjórnar, læknisskoðun
íþróttamanna, íþróttaráðum,
sem eru 13 á öllu landinu,
stjórn íþróttavallarins, bind-
indisstarfsemi f. S. í., bókaút-
gáfunni, vinnu við íþróttahverf-
ið, heimsóknum og utanferð-
um á árinu, staðfestingu
íþróttabúninga, íþróttanám-
skeiðum o. fl. o. fl.
Alls voru 63 met staðfest á
árinu, þar af 40 sundmet.
Þegar forseti hafði lokið
skýrslugerð sinni var gengið til
stjórnarkosninga og lilutu þess-
ir kosingu:
Forseti: Ben. G. Waage (end-
urkosinn).
Meðstjórnendur: Sigurjón
Pétursson, gjaldkeri (endurkos-
inn) og Frímann Helgason (í
stað Guðm. Halldórssonar, sem
gaf ekki kost á sér aftur).
í varastjórn voru kosnir Er-
lendur Pétursson, Konráð Gísla-
son og Jón Kaldal. Endurskoð-
endur: Sigurgisli Guðnason og
Erlendur Pétursson.
Fundurinn heldur áfram í
kveld.
Vestnrheimsmaðn r
^ leitar að fjársjöði
í Noregi.
Oslo 23. júní.
Ameríkumaður nokkur er
nýlega kominn til Kongsberg
til þess að leita eftir fjársjóði,
sem þar á að vera grafinn í
jörð. Ameríkumaðurinn snéri
sér til lögreglunnar við kom-
una til Kongsberg og kvaðst
liafa meðferðis uppdrátt, sem
sýndi hvar fjársjóðurinn væri
falinn, og spurðist fyrir um það
hve mikinn liluta hans hann
gæti fengið, ef hann fyndist.
Ameríkumaðurinn lét kafa í
Laagen í nótt, en hann telur að
hann hafi verið falinn þar sem
áður var gamall ferjustaður.
Grjót var svo mikið þar sem
kafað var, að ógerlegt var að
rannsaka staðinn. Kongsberg
Daghlad skýrir frá því, að 1849
hafi verið stolið silfurmunum
sem voru 200.000 kr. virði.
Ilyggur blaðið að þjófurinn
Hafnarborg þessi er nefnd i
fyrstu Konungabókinni í 26.,
27. og 28. versi, sem eru svo-
hljóðandi:
„Salomo konungur lét og
smíða skip á Ezjon-Geber, sem
liggur hjá Elot á strönd Rauða-
hafs, í Edomlandi. Og Hiram
sendi á skipin menn sína, far-
menn vana sjómensku, ásamt
mönnum Salomos. Og þeir fóru
til Ofir og sóttu þangað gull —
fjögur hundruð og tuttúgu tal-
entur, — og færðu það Salomo
lconungi“.
Borgin Ezjon-Geber, sem Ar-
abar kalla nú Telel Klieleifah
er við noðurströnd Akaba-fló-
ans en er nú liálfa mílu inn í
landi vegna sandburðar að
ströndinni.
í húsum þeirn, sem þegar í
liafa verið grafin upp hafa |
fundist ýmsir munir úr kopar,
t. d. önglar, naglar og mörg
verkfæri.
Þá þykist amerískur forn-
minjafræðingur hafa fundið
höfuðborg drotningarinnar af
hafi farið til Ameríku með
uppdráttinn. NRP—FB.
Saba inn í eyðimörkum Arabíu.
Mun birtast um það grein í
sunnudagsblaði Vísis mjög
bráðlega.
Oslo 23. júní.
Þ. 15. júní voru atvinnuleys-
ingjar í Noregi 22.038, en
22.028 á sama tíma í fyrra. —•
NRP—FB.
VIÐ STRENDUR KÍNA
sveima herskip stórveldánna, reiðubúin til að vernda.hagsmuni lands síns og grípa inn í ófrið-
inn, ef ástæða gefst til.