Vísir - 25.06.1938, Síða 2
V ÍSIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
Simar:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
„Umbóta“-
tillögurnar.
TÍMADAGBLAÐip er við og
* við að minna á „umbóta-
tillögur“ þær sem bæjarfulltrúi
Fi'amsóknarflokksins hafi bor-
ið fram í bæjarstjórninni, og
krefjast þess, að þeim verði
sýndur sá sórni, sem þær verð-
skuldi. Nokkurar þessara til-
lagna hafa nú verið ræddar
nokkuð í blöðunum, og fengið
misjafnan byr. A aðrar hefir
lítt verið minst, af þvi að þær
liafa ekki þótt þess verðar, þó
að skilja megi á flokksbiaði
bæjai’fulltrúans, að það telji
allar tillögurnar hverja annari
merkilegri. En hér skal nxx í
stuttu máli vikið að nokkurum
þeiri’a.
Bæjarfulltrúinn hefir flut). til-
lögu um það, að ókeypis að-
gangiur að Sundhöllinni, til
sundiðkana, yrði veittur öllum
þeim bæjarmönnum, sem
stundað hefðu sjómensku, sem
svaraði heilu ári, einhverntíma
æfinnar. Fjöldi þeirra manna,
sem þetta tæki til, skiftir vafa-
laust mörgum þúsundum, en
ekki er ólíklegt, að meirihluti
þeirra yrðu menn, sem nú
stunda aðra atvinnu, alveg hafa
lagt sjómenskuna „á liilluna“ og
fyrir engra hluta sakir væri
ástæða lil að veita slík fríðindi
öðrum bæjarmönnum fremur.
Hinsvegar hefir bæjarstjórnin
stofnað til ókeypis námskeiða í
sundi fyrir sjómenn, sem sjó-
mensku stunda að jafnaði, og
var tillaga bæjai’fulltrúans þvi
óþörf að þvi leyti sem nokkurt
vit gat verið í henni. En að
sjálfsögðu væri loku fyrir það
skotið, að rekstur Sundhallar-
innar gæti „borið sig“, ef mikill
þorri bæjarmanna ætti að hafa
ókeypis aðgang að henni, og
samrýmdist það illa því kjör-
orði bæjarfulltrúans, að „alt
verði að bera sig!“
Þá lagði bæjarfulltrúinn það
til, að bærinn lækkaði verð á
rafmagni og vatni lil ísfram-
leiðslu. ís er nú seldur til skipa
á 15—25 krónur smálestin, og
taldi bæjarfulltrúinn brýna
nauðsyn bei’a til þess, að dregið
yi’ði úr framleiðslukoslnaðin-
um svo að útgerðin ætti þess
kost að fá ísinn við skaplegra
verði. En til þess að framleiða
eina smálest af is, mun nú
þui’fa vatn og í’afmagn fyrir 2
krónur, og mundi það því ekki
„hossa hátt“ fyi’ir útgerðina, þó
að verkið á ísnum yrði lækkað
sem því svai’aði, og valn og raf-
magn til ísframleiðslu látið ó-
keypis í té — kippir þessari til-
Iögu bæjarfulltrúans því mjög
í kyn til annara tillagna Fram-
sóknarmanna, sj ávarú tveginum
til hagsbóta, og virðist hafa
þann liöfuðtilgang, „að sýnast“.
Loks er að geta þeirrar til-
lögunnar sem bæjarfulltrúinn
kendi við „götuuppeldi barna“,
og fór í þá átt, að bann yrði lagt
við útivist bai’na, innan ákveð-
ins aldur, og gjötudrabbi langt
fram á nætur. Bæjarfulltx’úan-
um vii’ðist liafa verið alveg ó-
kunnugt um það, að því væri
nokkur takmörk sett, hve lengi
börn mættu hafast við ú götum
úti á kvöldin, og er því í raun-
inni engin furða, þó að lionum
þætti tími til kominn, að úr því
yrði bætt. En um þetta liefir
um langt árabil verið ákveðið i
lögx-eglusamþykt bæjarins, en
lögreglunni, jafnvel undir hinni
mjög rómuðu og röggsömu lög-
reglustjórn framsóknarlög-
reglustjói’anna, hvers frarn af
öðrum, gersamlega láðst að
framfylgja þeim ákvæðum! Um
það má að sjálfsögðu deila, hve
lengi eigi að leyfa bömum að
vera úti á kvöklin, livort heldur
til kl. 8 eins og bæjarfulltrúinn
lagði til, eða þá til kl. 10, eins
og nú er mælt fyrir í lögreglu-
samþyktinni. En ef lögreglan
hefir ekki treyst sér lil að
framfylgja þeim fyrirmælum
lögreglusamþyktarinnar sem
nú eru í gildi um þetta, og reka
börnin af götum kl. 10, til hvers
er þá að leggja fyrir hana að
gera það kl. 8.
Þess má nú geta, að nokkuru
áður en bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins bar fram þessa
tillögu sína, uin „götuuppeldi
barna“, liafði sérstök nefnd
verið skipuð til að endurskoða
lögreglusamþykt bæjarins, og
var því tillagan, þegar af þeirri
ástæðu, tilgangslaus að svo
stöddu. En slíkt hið sama má í
rauninni segja um flestar þess-
ara „umbóta“-tillagna bæjar-
fulltrúans.
Goðafoss kom til Eyja fyrir
kl. 9 í morgun, eða öllu fyrr
en ætlað var, og er það góð-
viðrið, sem orsakar þessa hröðu
för hans. Skipið er væntanlegt
hingað í kveld kl. 9 og eru með
þvi þýsku knattspyrnumenn-
irnir.
Fararstjóri er dr. Erbach og
eru kona hans og dóttir einnig
með i förinni. Varamaður dr.
Erbachs er Riemann yfirkenn-
ari, en þjálfarinn heitir Hoh-
mann og er hann kunnur knatt-
spyrnumaður.
Nöfn keppendanna eru þessi:
Altlioff, fyrirliði á knatt-
spyrnuvelli, Gappa, Woss, allir
frá Miinster. Rolir frá Karls-
ruhe, Bertram frá Göppingen,
Ivraft frá Stuttgart. Lurz frá
Wurzburg. Michl frá Munchen.
Prysok frá Beutlien. Koppa frá
Gleiwitz. Jeutzscli frá Berlín.
Liidecke frá Hamborg. Peschel
frá Dessau og Linken frá Kiel.
Goðafoss fór. frá Eyjum kl.
11 og þar eð skipið lcemur held-
ur tímanlega Iiingað er jafnvel
í ráði að þeim verði lialdið sam-
sæti í Stúdentagarðinum strax
í kveld.
Farsóttir og’ manndauði
i Reykjavík vikuna 29. maí—
4. júní (í svigum tölur næstu
viku á undan): Ilálsbólga 66
(59). Kvefsótt 107 (126*. Gigt-
sótt 2 (0). Iðrakvef 8 (0). Kvef-
lungnabólga 6 (0). Taksótt 5
(4*. Skarlatssótt 4 (5). Heima-
koma 1 (0). Mannslát 10 (8).
Landlæknisskrifstofan. (FB).
Bretar hdta að grípa til gagnráðstafaDa,
ef loftárásir á bresk skip halda áfrarn.
Raudliðai9 á Spáni telja
sér ósigop vísan.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Stjórnmálafréttaritari Daily Express fullyrSir í
blaðinu í morgun, að Chamberlain muni
krefjast þess af Mussolini að hann knýi
Franco til þess að hætta öllum árásum á bresk skip í
Miðjarðarhafi og í höfnum Spánar, með því að frekari
árásir hljóti óhjákvæmilega að hafa þær afleiðingar að
alþjóðaeftirlitið við Spán verði aukið til mikilla muna,
sem og að framkvæmd bresk-ítalska sáttmálans verði
slegið á frest. Þá er það haft eftir öruggum heimildum,
að þegar erindreki Spánverja, Azcarate, sendiherra
kom til London hafi hann gengið á fund Halifax lá-
varðar og átt við hann viðræður um Spánarmálin, og
hafi Halifax lávarður varað hann mjög eindregið við
að ef þjóðernissinnar á Spáni héldu áfram loftárásum
sínum, hlyti það að leiða til róttækra refsiaðgerða gegn
stjórn þeirra, sem gætu haft hinar alvarlegustu afleið-
ingar, og frá hendi rauðliða á Spáni myndu verða gerð-
ar gagnráðstafanir, sem ekki væri unt að vita hvaða af-
leiðingar gætu haft.
Dagblöðin í París skýra svo frá, að Azcarate sendi-
herra hafi látið þar í Ijós, að hann óttaðist að rauðliðar
á Spáni myndu taka upp loftárásir á þýsk og ítölsk
skip, og jafnvel væri sá möguleiki fyrir hendi að árásir
yrðu gerðar á ítalskar borgir.
„Petit Parisien“ fullyrðir að Frakkar muni í Iengstu
lög forðast öll vandræði, sem Ieiða kynni af gagnráð-
stöfunum og refsiaðgerðum vegna hinna tíðu árása,
sem frönsk skip hafa orðið fyrir, þótt svo kunni að
fara að óhjákvæmilegt verði að grípa til slíkra ráð-
stafana.
Svo virðist sem ýmsir foringjar rauðliða í Barcelona
hafi nú sannfærst um, að barátta þeirra sé dauðadæmd
og alt miði í áttina til uppgjafar, og hafa þeir því gripið
til ýmsra ítrustu örþrifaráða til þess að bjarga því sem
bjargað verður, og tryggja öryggi sjálfra sín.
Uiiited Press.
Deilup Haugwitz Reventlow
bjónanna eru adaiumræðu*
efni í Englandt.
EINKASKEYTI TIL YÍSIS.
London, í morgun.
undúnablaðið Daily Herald fullyrðir að líkur
séu til að greifahjónin Haugwitz-Reventlow
jafni deilur þær, sem þeirra er í millum á
friðsamlegan hátt og án þess að Scotland Yard þurfi að
grípa inn í til öryggisráðstafana frekar en orðið er, en
eins og getið hefir verið um í skeytum hefir greifa-
frúin leitað til Scotland Yard til þess að tryggja öryggi
sitt. Haugwitz-Reventlow greifi dvelur nú í Frakklandi,
en ef svo skyldi fara að hann leitaði til Englands hefir
verið gefin út handtökuheimild fyrirfram til öryggis.
Allir lögfræðilegir ráðunautar hjónanna hvetja þau
til þess að jafna deilumál sín á friðsamlegan hátt, en
þessu deilumáli þeirra í millum hafa aðallega risið út
af syni þeirra hjóna og uppeldi hans, eða svo er það
látið heita.
Þrátt fyrir það, að lögfræðilegir ráðunautar hjón-
anna reyni að koma á sáttum þeirra í milli, er alment
talið að deilur þeirra muni koma fyrir dómstólana og
að skilnaður sé óumflýjanlegur. Einkanlega er rætt um
það meðal almennings hvernig muni fara um framtíð
barnsins og hvort þeirra hjóna fái rétt til að annast
uppeldi þess.
Hitt er fyllilega upplýst að aldrei hefir nein ráðagerð
verið uppi um það að ræna drengnum, eins og fyrstu
fregnir um mál þetta hermdu, þótt greifafrúin leitaði
til Scotland Yard til öryggis handa sér og barninu.
Þrátt fyrir það að faðirinn eigi lögum samkvæmt
forráðarétt barnsins vill greifafrúin ekki sleppa af því
hendinni, en um einstök atriði önnur í sambandi við
deilumál þessi er ekkert upplýst.
United Press.
Ikviknun f mann-
lausn húsi.
KI, 6 í gærkveldi var slökkvi-
liðið kvatt vestur að Nýlendu-
götu 14, en það hús á Einar Ein-
arsson skipasmiður.
Hafði gleymst að slökkva á
olíuvél er heimilisfólk fór upp
i sumarbústað sinn. Var olíu-
vélin í búrinu og er að var kom-
ið, logaði þar upp um veggi og
loft og út um glugga, en
slökkviliðinu tókst að kæfa eld-
inn á um stundarfjórðungi. —
Vörður var Iiafður í húsinu
fram eftir kveldi.
Bílsllfs i Svinaiirmi.
Um 11-leytið í gær var vöru-
bíllinn R—395 á leið til Reykja-
vikur frá Stokkseyri með 2
smál. af saltfiski.
Rétt lijá Kolviðarhóli brotn-
aði stýrisarmur bilsins og rann
hann út af veginum, út á
hraunhellu, sem þar er og rann
alla leið á vörðu, sem stendur
um 9 m. fná veginum og sópaði
henni á brott.
Bíllinn valt síðan og vissu
hjólin upp. Tveir menn, feðgar,
voru í bílnum, Jón Ingvarsson
bilstjóri, Ingólfsstræti 21 og
faðir hans, Ingvar Hannesson.
Jón viðbeinsbrotnaði, en Ingvar
slapp ómeiddur.
Aðalfundur í. S. I.
Aðalfundi í. S. í. Iauk í nótt.
Voru þar samþyktar margar til-
lögur viðvíkjandi eflingu í-
þróttalífs og íþróttamentun
þjóðarinnar.
Að lokum ákvað fundurinn
að senda þetta skeyti til Goða-
foss, er hann kæmi til Vest-
mannaeyja (nú í morgun):
Aðalfundur í. S. í., lialdinn
24. júní, fagnar komu úrvalsliðs
þýslcra knattspyrnumanna og
sendir þeim og foringja þeirra,
dr. Erbach, bestu vinarkveðjur.
Eggert Stefánsson
hefir verið kosinn heiðursfélagi
í Karlakór Akureyrar og hefir
söngvaranum bqrist skirautritað
§kjal þar, sem honum er tilkynt
þessi ákvörðun. Skjalið hefir skrif-
að Jón NorðfjörÖ á Akureyri og
er það harla fagurt, með íslensku
litunum í umgerðinni, en stafirnir
gullnir, rauðir og grænir.
Skemtun að Eiði.
Á morgun verður fyrsta úti-
skemtunin að Eiði og verða til
skemtunar ræðuhöld, söngur,
leikfimissýning og dans. Skemt-
unin liefst kl. 3
Bílar ganga frá öllum bíl-
stöðvum og er vegurinn nú á-
gætur alla leið.
Húsbyggingin nýja hefst
strax eftir helgina og fást happ-
drættismiðar að Eiði á morgun.
Allir að Eiði!
Franco og nokkrir liðsforingjar hans á vígstöðvunum við Castellon.