Vísir - 18.08.1938, Page 2
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
Blmr:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Siðgæði.
Blað forsætisráðherrans telur
það „furðulegt“ mjög, „hversu
lengi“ er „tönnlast“ á útvarps-
málinu í blöðunum. Og svo
langþreytt er blaðið orðið á
þessum umræðum, að það fær
ekki lengur staðist þá freistingu,
að lýsa skoðun sinni á miálinu
alveg afdráttarlaust og falslaust
með öllu. Það segir hreinskiln-
islega, að málið sé nú þegar
nægilega „upplýst“ til þess að
allir megi sjá það og skilja,
hversu „léttvægt“ það sé og í
alla staði ómerkilegt. Og fyrst
og fremst liggi það alveg í aug-
um uppi, ftð niálið sé ekkert
„siðgæðismál“.
Blað forsætisráðherrans lítur
svo á, að það komi ekki á nokk-
urn hátt „siðgæði“ við, þó að
forstjóri ríkisstofnunar setji
ungum stúlkum, sem eru að
„komast af barnsárunum“, það
skilyrði fyrir atvinnu við stofn-
unina, að þær gangi til „fylgi-
lags“ við hann.
Þetta er efni „kærunnar“,
sem komin er fram á hendur
útvarpsstjóranum. En hlað for-
sætisráðherrans segir að það
þurfi ekki annað en að rekja
efni þeirrar kæru, til að gera sér
ljóst, að hér er ekki um siðgæð-
ismál að ræða!
Þannig lítur blað forsætisráð-
herrans á málið, og þannig lít-
ur ráðherrann þá væntanlega
einnig á það. En þá er það held-
ur ekkert „furðulegt“, þó að
ráðherrann hafi ekki fundið á-
stæðu til þess að láta rannsaka
það, hvort kæran á hendur út-
varpsstjóranum mundi á nokkr-
um rökum bygð. Hann hefir tal-
ið málið nægilega „upplýst“
með kærunni, af því að þó að
það væri alt rétt og á rökum
bygt, sem í kærunni felst, þá
sé það „léttvægt fundið“ og gefi
ekkert tilefni til nokkurra að-
gerða gagnvart útvarpsstjóran-
um.
Þannig er háttað um „sið-
gæði“ forsætisráðheirans og
blaðs hans.
En til hvers er þá ráðherrann
að afsaka afskiftaleysi sitt af
málinu með því, að rannsókn
verði látin fara fram á því, í
sambandi við rekstur meiðyrða-
mjála útvarpsstjórans? Og til
hvers var blað ráðherrans að
gefa það í skyn á dögunum, að
hann hefði ekki enn „sagt sitt
síðasta orð“? Er það ekki „síð-
asta orð“ ráðherrans í málinu,
þetta, sem blað hans segir um
það í gær, að það sé þegar nægi-
Iega „upplýst“ og „Iéttvægt
fundið“? Og væri þá nokkur
skaði skeður, fyrir þeirra hluta
sakir, þó að einkamálarekstur
útvarpsstjórans yrði látinn nið-
ur falla ?
Þvi má að vísu ekki gleyma,
að blað forsætisráðherrans lét
svo um mælt s.l. sunnudag, að
útvarpsstjórinn hefði verið
kærður fyrir „hinn glæpsamleg-
asta ásetning“ gagnvart stúlku
þeirri, sem kæruna sendi. En að
sjálfsögðu hefir það komið í
ljós, við nánari athugun, þegar
farið var að „rekja efni kærunn-
ar“, að það væri „létlvæg“ sak-
argift og ekkert „siðgæðismál“
og engin refsing við því lögð.
En af hverju er þá verið reka
útvarpsstjórann til þess að
liöfða þessi meiðyrðamál, ef
ekkert af því, sem á hann hefir
verið borið, er á nokkurn hátt
saknæmt, hvorki lagalega né
siðferðilega?
Er það af því, að forsætisnáð-
herrann sé í einhverjum vafa
um það, að siðgæðis-hugmyndir
hans séu í fullu samræmi við
það, sem allur almenningur skil-
ur við það hugtak, svo að hann
þykist þurfa að láta dóm ganga
um það, hvort réttara sé? En
sé svo, verður ekki betur séð,
en að hann hljóti að tapa mál-
inu, hvernig sem það fer! Því
að vinni útvarpsstjórinn mál
sín, þá er það fyrir þá sök, að
dómarinn kemst að þeirri nið-
urstöðu, að á hann liafi verið
bornar ærumeiðandi sakir, og
þá stenst ekki sá úrskurður ráð-
herrans, að þær sakir liafi ver-
ið „léttvægar fundnar“ og um
ekkert „siðgæðismál“ sé að
ræða. En tapi útvarpsstjórinn
málunum — verður þá litið svo
á, að „siðgæði“ hans sé þar með
borgið ?
Reykjavik 6040 st.
kestmanoaeyjar 5452 st.
lÓhagstætt veður var í gær, en
árangur þó sæmilegur í bæja-
kepninni. Var kept í sex grein-
um í gærlcveldi og fengu Reyk-
vikingar samtals 6040 stig, en
Vestmannaeyingar 5452 stig.
Mótið heldur áfram'á laugar-
dag, hefst þá kl- 3 um daginn.
Hér fara á eftir úrslit liinna
ýmsu greina:
1500 m. híaup (R. 1026 st. —
V. 872 st.): 1. Guðbj. Árnason
(R) 4:43,3. 2. Konráð Kristins-
son (R) 4:45,4. 3. St. Jónsson
(V) 4:48,4 og 4. Gunnar Bjarna-
son (V) 5:05,0.
Hástökk (R. 945 —V. 828 st-)
1. Anton Bjömsson (R) 1.54,5
m. 2. Guðm. Sigurjónsson (R)
l. 475 m- 3.—4. Gísli Engilberts-
son (V) og Gunnar Stefánsson
(V) báðir með 1.45 m.
Kringlukast (R. 1223 — V.
1011 st.): 1. Sig. Finnsson (R)
38-38 m. 2. Gunnar Huseby (R)
34.63 m. 3. Jóh. Vilmundarson
(V) 32.63 og 4. Ingólfur Áma-
son (V) 32.60 m.
80 m- hlaup (R. 910 — V. 910
st.): 1. Jón Kárason (V) 10,1
selc. 2.—3. Guðm. Gíslason (R)
og Þórh. Einarsson (R) 10,2
sek. 4- Oddur Ólafsson (V) 10,3
sek.
Langstökk (R. 988 — V. 919
st.): 1. Sig. Finnsson (R) 5.87
m-, 2. Oddur Ólafsson (V) 5.59
m. 3. Þór. Einarsson (R) 5.57
og 4. Þorst. Magn. (V) 5.54 m.
1000 m. boðhlaup (R. 948 —
V. 912 st.): 1. Reykjavík 2:18,2
2. Vestmannaeyjar 2:20,0.
Franco nndirbýr allsherjar sdkn.
Fnndor vísiÐda-
fflanna í Gambridge.
London 18- ágúst. FÚ.
Um 3000 vísindamenn eru
samankomnir á fundi í vís-
indafélaginu breska, en fundur-
inn hófst í Cambridge í gær-
Svar hans viðvíkjandi brottflntningi
erlendra sjðlfboðaiiða verðnr birt í dag.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Franco er nú, að því er menn ætla, í þann veginn að
hefja stórkostlega sókn á öllum vígstöðvum.
Fregnir um þetta eru aðallegfa frá Frakklandi
komnar og ætla menn þar, að hann muni freista að bæta
aðstöðu hersveita sinna sem mest á öllum vígsíöðvum
án frekari tafa, þar sem yfir vofir að spænsku-frönsku
landamærin verði opnuð aftur, náist ekki samkomulag
um brottflutning erlendu sjálfboðaliðanna, en svar
Francos við tillögunum viðvíkjandi brottflutningnum
mun verða birt í dag.
Samkvæmt fregnum frá Bayonne lokuðu uppreistar-
menn landamærunum við Irun á Norður-Spáni í gær.
Er talið, að herliðsflutningar í stórum stíl standi fyrir
dyrum, og sókn á öllum vígstöðvum, en einkanlega
muni Franco fyrst í stað leggja áherslu á að herða sókn-
ina á norðurvígstöðvunum. Frakkar ætla, að Franco
muni hefja sókn innan fárra daga.
United Press.
London 18. ágúst. FÚ.
Ekkert er ennþá kunnugt um
innihaldið í svari Francos við
áællun bresku stjórnarinnar um
brottflutning útlendra sjálf-
boðaliða frá Spáni. Útdráttur
úr svarinu kemur til London í
dag, en allur texti þess liggur
ekki fyrir í London fyr en á
laugardag.
jÓstaðfest frétt frá Burgos
segir, að svarað sé í lieild sinni
á þá leið, að Franco geri sér
von um að samkomulag geti
orðið og að Franco hafi gert
fjölda af tillögum um það,
hvernig sjálfum brottflutningn-
um skuli liagað.
Breska tveggja manna nefnd-
in, sem nýlega var sett á stofn
til þess að rannsaka loftárásir á
spanskar horgir, hvort sem þær
væru gerðar af hálfu Francos
eða stjórnarinnar, hefir nú
fengið fyrsta verkefni sitt.
Spanslca stjórnin hefir beðið
nefndina að rannsaka loftárásir
þær, sem gerðar hafa verið á
Alicante nýlega svo að nefndar-
mennirnir fljúga í dag frá Tou-
lose í Frakklandi til Alicante.
Ibúar Hankow fluttir
úr borffiimi vegna tídra
loftárása.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Samkvæmt opinberri tilkynningu, sem gefin var út í
Hankow í gær, biðu 200 menn bana, en 500 særð-
ust, er 18 japanskar flugvélar gerðu loftárás á
Changsa.
Ennfremur hafa verið birtar skýrslur um manntjón
í loftárásum Japana á Hankow undanfarnar vikur.
Hafa alls beðið bana í loftárásunum um 2200 manns.
Þar með eru ekki taldir kínverskir hermenn, sem
drepnir hafa verið í loftárásum á Hankow, en flugmenn
Japana hafa lagt sig mikið eftir því að undanförnu, að
gera loftárásir á flugskýli og hermannaskála kínverska
hersins við Hankow, og hefir einnig þar orðið mikið
manntjón. Hinar tíðu loftárásir á Hankow hafa leitt til
þess, að Chiang-Kai-shek hefir fyrirskipað að flytja á
brott alla íbúa borgarinnar. Er brottflutningnum vel á
veg komið.
United Press.
Rayleigh lávarður, forseti fé-
lagsins, flutti ræðu í fundar-
byrjun og bauð gestina vel-
komna. Því næst tók hann upp
vörn fyrir vísindamenn nútím-
ans, sem hann sagði að væru
sakaðir um að bera ábyrgð á
því hve nútíma styrjaldir eru
ægilegar. „Engin getur séð það
fyrirfram til hvers nýjar vís-
indalegar uppgötvanir kunna
að verða notaðar, sagði hann.
Og eins og það er ómögulegt að
hafa stjórn á hvað vísindamenn-
irnir uppgötva, jafn ómögulegt
er að stjórna þvi til hvers upp-
gölvanirnar verða notaðar.
Heifflsmeistari í 3ja smn.
Henry Armstrong vann í gær þriöja.
lieimsmeistapatitilinn.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Frá New York er símað, að svertinginn Henry Arm-
strong, sem er heimsmeistari bæði í weltervigt og
fjaðurvigt, hafi í nótt sigrað Lou Ambers á stig-
um, eftir 15 lota bardaga. Ambers var heimsmeistari í
léttvigt og er~ Armstrong því orðinn heimsmeistari í
þeim þyngdarflokki einnig. Er hann fyrsti maðurinn í
heiminum, sem er heimsmeistari í þrem þyngdarflokk-
um.
Bardaginn átti að fara fram fyrir viku síðan, þ. e. 10.
ágúst, en þar eð hann átti að fara fram undir berum
himni, varð að fresta honum um viku tíma vegna úr-
komu.
United Press.
Þetta er í 17. sinn sem blökku-
maður verður heimsmeistari í
hnefaleikum og hafa þeir verið
heimsmeistarar í öllum þyngd-
arflokkum nema fluguvigt.
I bantamvigt: George Dixon
1890—92, þá fluttist hann upp í
fjaðurvigt og varð þar einnig
heimsmeistari. A1 Brown 1929
—35.
í fjaðurvigt: George Dixon
1893—1900. Kid Chocolate 1932
—33. Henry Armstrong 1937.
í léttvigt: Joe Gans 1902—08.
Henry Armstrong 1938.
1 weltervigt: Joe Walcott 1901
—04. Dixie Kid (varð heims-
meistari 1904). Young Jack
Thompson (1930). Henry Arm-
strong 1938.
í millivigt: „Tiger“ Flowers
1926—28. „GorilIa“ Jones 1932.
í léttþungavigt: „Battling“
Siki 1922. John Henry Lewis
1935.
I þungavigt: Jack Johnson
1908—1915. Joe Louis 1937.
Um þessar mundir eru því 5
heimsmeistara-titlar í höndum
blökkumanna og á Henry Arm-
strong þ r j á þeirra. Það er því
engin furða á því, að Ameríku-
menn skuli kalla hann „the
boxing wonder“, eða undra-
boxarann.
Frá Hjðlteyri.
Á Hjalteyri lönduðu í gær og
í nótt: Huginn með 917 mál,
Gulltoppur 1589, Þórólfur 748,
Brimir 1608 og Garðar 692- Kl.
9 í morgun voru að landa Helga
og Gloria, en Jökull, Huginn II.,
Fjölnir og Skallagrímur biðu.
Til Hjalteyrar eru nú komin.
um 170.000 mál, en þangað bár-
ust í alt fyrrasumar tæp 190.000
mál.
Japaoir og Hússar
jafna deilDmál sín
friðsamlega.
Stjómir Sovét-Rússlands og
Japan hafa ákveðið að ef þess
gerist þörf i framtíðinni, að
jafna ágreining milli þessara
ríkja, þá skuli ekki gripið til
vopna, heldur farið venjulega
stjórnmálaleið. Var þetta ákveð-
ið i gærdag er japanski sendi-
herrann í Moskva heimsótti ut-
anríkismálaráðuneytið rúss-
neska tjáði rússneslcu stjórn-
inni að Japanir hefðu nú að öllu
leyti fullnægt vopnahlésskilmál-
unum. —■ FÚ.
EFTIR LOFTÁRÁS Á HANKOW,