Vísir - 05.09.1938, Page 3
VISIR
250 fátækum börn-
um og mæðrum
boðið í berjaför.
VISIR gengst fyrir ókeypis skemti-
ferð fyrir þa, sem eiga lítils úrkostar að
komast út úr bcenum.
Nú er kominn sá tími árs, er
berin verða fullþroskuð og
fjöldi manna leitar út úr bæn-
um í berjaleit, sér til liressingar
og ánægju. En þó munu þau
vera mörg börnin, sem ekki
verða þessarar ánægju aðnjót-
andi, vegna þess, að efnalegar
ástæður heimilanna leyfa ekki
að varið sé peningum í langar
bifreiðaferðir. En öll börn lang-
ar til að fara í berjamó. Slíkar
ferðir eru þeirra skemtiferðir,
auk þess sem þær geta orðið
heimilunum til nytja í ávaxta-
og grænmetisleysinu hér.
Vísir ákvað því að beita sér
fyrir því, að 250 fátæk börn og
og mæður þeirra gæti fengið ó-
keypis skemtiferð í berjaleit í
þessai-i viku, og gæti verið heil-
an dag úti í ilmandi fjallanátt-
úrunni, sem nú er að byrja að
taka á sig haustlitina.
Blaðið snéri sér til bif-
reiðastöðvar Steindórs um
lán á hinum stóru fólks-
flutningabifreiðum (stöðv-
arinnar og bauð eigandinn
þegar í stað að lána bif-
reiðarnar ókeypis í þessu
skyni. Er blaðið mjög
þakldátt eigandanum fyrir
þessa rausn, sem gerir
kleift að koma skenitiferð-
inni í framkvæmd.
Farið verður næstkomandi
fimtudag k. 9 árdegis, ef veður
leyfir og verður lagt upp frá
Bifreiðastöð Steindórs. Farið
verður i 10—15 stórum bílum
upp á Mosfellsheiði, inn í Bola-
bás (við Þingvelli) og ef til vill
viðar. Hópnum verður slcift í
smærri liópa, svo að ekki verði
allir á sama staðnum, og verður
því breytt eftir því sem hagan-
legast þykir, með tilliti til berja-
leitarinnar.
Um kvöldið kl. 5 eiga svo
allir bílarnir að hittast í
Valhöll á Þingvöllum og
verður þátttakendum veitt
þar mjólk, kaffi og kökur,
eftir því sem hver óskar.
Að þvx loknu verður haldið
heimleiðis.
Bílarnir fylgja hópunum all-
an daginn, svo að þátttakendur
geta leitað hælis í þeim, ef veð-
ur skyldi breytast og regn kem-
ur. Allir verða að hafa með sér
ilát fyrir sig og nesti sem svar-
ar einni máltíð.
Kl. 6 síðd. á laugardag lagði
Gullfoss liéðan úr höfn áleiðis
Lil Bíldudals. Fóru með honum
liéðan um 250 fai-þegar og
var svo á skipað, að alt far-
þegarúm var upptekið og
hafði lestin verið tekin til af-
nota fyrir þá, en auk þess fengu
farþegar rúm hjá öllum yfir-
mönnum skipsins og hásetum.
Ferðin vestur gekk að óskum og
bar ekkert sérstakt til tiðinda.
Skemtunin að Bíldudal hófst
í gær kl. 1 e. h. og hélt Gísli
Jónsson fyrslu ræðuna og rakti
þar i meginatriðum þær fram-
kvæmdir, sem hann hefir beitt
sér fyrir þar á staðnum. Þá tók
til máls Jón Bjamason, oddviti
hreppsins, og þakkaði Gisla
framkvæmdir hans fyrir hönd
hi-eppsins, en síra Jón Jakobs-
son talaði fyrir hönd vei-kalýðs-
Öllum fátækum börnum og
mæðrum þeirra er hér með boð-
ið, meðan rúm leyfir, að taka
þátt í berjaför þessari. Engin í-
hlutun verður um það af blaðs-
ins hálfu hverjir taka þátt í för-
inni, en blaðið væntir þess hins-
vegar, að hún geti orðið til þess
að veita þeim hressingu og á-
nægju, sem þörf hafa fyrir það
og ekki eiga jafnan heiman-
gengt af efnalegum ástæðum.
Hinsvegar væntir blaðið að boð
þetta verði þegið með sömu á-
nægju og það er veitt af þeim
aðilum, sem að þvi standa.
Farmiðar verða afhentir á af-
greiðslu Vísis í dag og á morg-
un, gegn því, að upp séu gefin
nöfn þeirra, sem óska að taka
þátt í förinni.
700 manns
sóttu liana*
félagsins og flutti þakkir frá
þvi fyrir framkvæmdirnar og
atvinnuaukninguna, sem sigldi
i kjölfar þeirra. Milli ræðanna
lék lúðrasveitin. Að lokum flutti
Sigfús Elíasson tvö kvæði, sem
liann liafði orkt í tilefni dags-
ins. Ræðuhöldum var lokið kl.
3 síðd. og lýsti þá Gísli Jónsson
yfir þvi, að menn mættu skoða
öll þau mannvirki, sem liann
liefði reist á staðnum og voru
mönnum sýndar verksmiðjurn-
ar og skýrt fyrir þeim hvernig
allri tilhögun væri hagað. Leist
öllum nijög vel á þessar fram-
kvæmdir og létu hið besta af.
Kl. 4 síðd. hófst síðan liér-
aðsmót sjálfstæðismanna. Flutti
Gunnar Thoroddsen fyrstu ræð-
una, en þvi næst töluðu þeir:
Gísli Jónsson, Árni Jónsson frá
Múla, Elís Jónsson frá Hvestu
og Jóhann G. Möller. Pétm'
Jónsson söngvari söng nokkur
lög og Lúðrasveit Reykjavíkur
Iék á milli ræðanna. Er ræðu-
liöldunum var lokið var dans
stiginn til ld. 9, en þá lagði Gull-
foss af stað suður. Héraðsmenn
héldu liinsvegar áfram skemt-
uninni og var dansað til mið-
nættis, og höfðu allir skemt sér
liið besta er lialdið var lieim-
leiðis.
Fjölmenni var mikið á
skemtuninni. Yar talið að um
300 manns hefðu komið úr
Reykjavík, hátt á annað hundr-
að frá Patreksfirði og fjöldi
fólks frá Bíldudal og öllum
nærsveitum.
Gullfoss kom hingað til bæj-
arins kl. YT/z í dag.
Elinr í heyl að Bjarma-
landl.
Kl. 6.45 í morgun var slökkvi-
liðið kvatt að Bjarmalandi, en
þar hafði kviknað í heyi í hlöðu.
Eldur var ekki orðinn magnað-
ur, en þó liafði kviknað í hurð
og 'kössum út frá heyinu. Var
þegar hafið að rífa heyið út úr
lilöðunni og var því lialdið á-
fram, eftir að slökkviliðið snéri
lieim aftur um kl. l/z-
í gærlcvöldi var slökkviliðið
kvatt út tvisvar sinnum. Var
það í fyrra skiftið kallað að
Bergþórugötu 20, en þar reynd-
ist enginn eldur. í síðara skiftið
var kallað að Garðastræti 43.
Hafði þar kviknað smávegis út
frá miðstöð.
Fyrirlestrar Halldórs
Hermannssonar nm
Tínlandsferðir.
Prófessor Halldór Hermanns-
son flytur á vegum liáskólans
3 íyrirlestra um Vínlandsferð-
irnar og samband þeirra við
fund Ameríku á 15. öld. Fyrir
lestrarnir ræða í fyrsta lagi um
ferðir norrænna manna vestur
um haf og landafundi þeirra
þar, heimildirnar fyrir þessum
ferðum og áreiðanleik 'þeirra,
og hvar vænta megi, að lönd
þau, er fundin voru, hafi legið.
Þair næst um það, hvort frá-
Breskur togari siglir á bát
í róðri og brýtur hann.
Hásetarnip björguðust nauöulega.
Norðfirði í morgun.
M.b. Þór NK. 32 fór í gær-
kvöldi í fiskiróður. Lagði hann
línur sínar 26 sjómílur frá
Norðfjarðarhorni og var því
lokið kl. 2. Þá var lagst við ljós-
bauju og vaktir settar. Kl. 2.30
sigldi óltunnur grænn togari á
bátinn og braut framstefni hans
svo, að hann klofnaði frá byrð-
ing niður að sjólínu. Togarinn
sigldi strax frá bátnum og gaf
þá fyrst hljóðmerki en sinti ekki
köllun né merkjum skipverja.
Númer togarans náðist ekki
sökum náttmyrkurs og þoku, en
vegna þess, að sléttur var sjór,
björ|guðust skipverjar á bátnum
í land með hægri ferð. Báts-
höfnin álítur togarann enskan,
enda eru enskir togarar kunnir
hér eystra fyrir ógætilega sigl-
ingu á bátamiðum.
Kosningarnar í
Neskaepshð.
Mikið, er nú talað um hinar
væntanlegu bæjarstjórnarkosn-
ingar. Héðinn Valdimarsson
liefir dvalið hér til eflingar sam-
fylkingarinnar og er sagt að
hann verði hér fram yfir kosn-
ingar. — Jónas Guðmundssois
er einnig væntanlegur hingað
til gagnbaráttu. — Hér eru gefim
út 3 f jölrituð blöð fyrir kosning-
arnar. Heitir blað Sjálfstæðis-
manna: Norðfirðingur, jafnað-
aimanna: Hamar og sameíning-
armanna: Árblik.
Togarinn Brimir kom hér í
gær með 700 mál síldar. Hanm.
er nú hættur veiðum.
Fréttaritari-
sagnir um þessar ferðir hafi
borist lil útlanda og hvort þær
liafi haft nokkur áhrif á seinni
tima menn, einkum Christófer
Columbus og John Cabot. Sýnd-
ar verða skuggamyndir af
gömlum kortum til skýringar.
Fyrirlestrarnir verða fluttir i
Oddfellowhúsinu 5., 7. og 9.
sept. kl. 8, og er öllum heimill
aðgangur.
HáskólafyrÍF-
lestur á Þýska.
Vísir hefir fyrir nokkuru birt
viðtal við prófessor W. H. Vogt
frá Kielarháskóla, sem hér hefir
dvalið undanfarið, fyrst austur
við Lagarfljót og síðan hér í bæ
og í nærsveitum. Hann fer ut-
an næstkomandi fimtudag, en
flytur á rnorgun (þriðjudag) kl.
8 í Oddfellowhúsinu einn fyrir-
lestur sem gestur háskólans, og
nefnir liann „Heilig Schicksal
und Óðinn. Betrachtungen zur
Geschichte der nordgermanisch-
en Reiigiositat“.. Verður fyrlr-
lestur þessi um örlagatrú og ÓS-
instrú í norrænum bókmenfum,
eins og Eddukvæði og aðrar
heimildir skýra frá, en prófil
Vogt hefir um langt skeið og
þó einkum á síðustu 12 árurn
rannsakað þessi efni itarlega og
samið mörg merkileg rit og rit-
gerðir um átrúnað Germana.
Má þar einkum nefna rit hans:
Stilgeschichte der eddischen
Wissenscliichtung. I. Der Kult-
redner, er kom út í Breslau 1927
og síðustu ritgerð lians, er ný-
lega kom út i Archiv fiir Reli-
gionswissenschaft og nefnísír
Religöse Bindungen irn Spatger-
manentum. í ritum þessum rek-
ur liann ekki að eins eðli átrún-
aðarins, heldur reynir að sýna
fram á, hver varanleg gildi á-
trúnaður fomgermana liafi.
Próf. Vogt er vel að sér í ís-
lensku og hefir eins og kunnugt
er þýtt npkkrar Islendingasög-
ur á þýsku, auk annara ritstarfa
í íslenskum fræðum, og má þvi
vænta mjög fróðlegs fyrirlest-
urs um þessi efni. ,
Er kantonu fyrirfcomnlaDlO, sem ráðsert er að
koaa á f Tékkoslóvakii, lyrirloði less, að
um Baadariki Evropi ratisl?
Grein sú, sem hér fer á eftir, er útdráttur úr grein eftir
amerískan blaðamann, sem telur víða í Evi'ópu skilyrði til þess
að koma á stað þjóðernislegum deilum, en ófriðarhættuna telur
hann ekki líða hjá fyrr en hinar þjóðernislegu ýfingar hætti og
þjóðirnar komist á það menningarstig, að búa í sátt og sam-
lyndi, og hver þjóð eða þjóðernislegur minnihluti sé frjáls að
viðhalda sínum einkennum og halda trygð við sitt. Drepur
hann á til samanburðar hversu ástatt er í Ameríku. En eitt hið
merkasta, sem á döfinni er, telur hann tillöguna um að leysa
vandamál Tékkóslóvaltíu með því að koma þar á kantónu-
fyrirkomulagi að svissneskri fyrirmynd.
Fyrir skömniu — eða þar til
Austurríki var sameinað Þýska-
landi — voru 28 sjálfstæð riki i
Evrópu. Þettavar kent í skólun-
um — en ef til vill ekki gerð
nákvæmleg grein fyrir því, að
í Þýskalandi til dæmis eru
fjölda margir borgarar, sem
ekki eru Þjóðverjar. Já, auðvit-
að, segjum við hér vestra, það
er svo sem vitað mál. Eru ekki
Italir, írar, Þjóðverjar, Tékkar,
Svíar, Litháar, Grikkir, Pól-
verjar og Gyðingar i New York
— og fjölda mörgum öðrum
borgum og sveitum Bandaríkj-
anna? Og er elcki i rauninni
svipaða sögu að segja í Lond-
on? Þar eru fjölda margir ann-
ara þjóða menn — i tugþús-
unda tali. Vitanlega. Og hverju
máli skiftir það í rauninni?
En gerum ráð fyrir, að er-
lendra þjóða menn hefði búið
öldum, saman i Bandarikjunum
og mann fram af manni gert
alt, sem í þeirra valdi stóð, til
þess að halda þjóðareinkennum
sínum. Geium ráð fyrir, að þeir
hefði forðast annara þjóða
menn sem mest, haldið fast við
sínar venjur og siði og sitt
tungumál. Mundi það hafa skift
miklu máli?
En hvað sem um það má
segja er víst, að það er einmitt
þetta, sem liefir skift miklu
máli í Evrópu og gerir enn í dag
víðast hvar, og það er undirrót
mestu erfiðleikanna, sem við er
að stríða, þeim erfiðleikunum,
sem framar öðrum leiða til
styrjalda.
Við skulum nú líta í kring-
um okkur i Evi-ópu — á þessu
sviði. Athugum fjrrst hvar menn
af þjóðverskum ættum eru fjöl-
mennir utan Stór-Þýskalands. I
iSudetenhéruðunum í Tékkósló-
vakiu, i Suður-Tyrol i Italíu og
í öllum Dónár-og Balkanríkjun-
um, nema Búlgaríu, Grikklandi,
Tyrklandi og Albaníu eru fjöl-
mennar þýskar „nýlendur". I
kringum Budapest eru fjölda
mörg þorp og smábæir, þer sem
eingöngu þýskir menn búa, og
slík þorp eru mörg í norðvestur-
liluta Júgóslavíu og alla leið til
Svartahafs,en strjálli og strjálli.
Þjóðverjar eru líka margir í
Póllandi (Efri Sclilesíu). Þar til
fyrir fáum árum var þýsk „ný-
lenda“ við Volgu, en flúttust
flestir aftur til Þýskalands. í
Lettlandi, Lithauen, Eistlandi og
viðar eru þýsldr þjóðernis-
minnihlutar. Þessir eru í raun-
inni Þjóðverjar enn i dag, af þvi
að þeir hafa haldið siðum sínum
og tungu og aldrei blandast
þeim þjóðum, sem fyrir voru,
erþeirlitu niður á. Margt fleira
er atliugunarvert er um þetta er
rætt, svo sem að Prússar eru
upphaflega af Slövum komnir,
en Búlgarar ekki, heldur voru
þeir mjög skyldir Magyörum,
sem bygðu Ungvei-jaland. Mik-
ill liluti Gyðinga svo kallaðra
i Póllandi, Rússlandi, Rúmeníu
og Ungverjalandi eru komnir af
Tataraþjóðflokki, sem snerist til
Júðatrúar fyrir þúsund árum.
Annað mikilvægt atriði er, að
þjóðum álfunnar eru Þjóðverj-
ar yngstir sem stórþjóð. Fyrir
þrem öldum, eftir þrjátíu ára
stríðið, var Þýskaland ótal smá-
ríki, um 300 talsins. Á dögum
Napoleons 39. Bismark fækkaði
þeimniður i 26, en flest þeirra
liéldust sem smáríki innan
þýska ríldsins, þar til Hitler
kom til valda og afmáði öll
mörk milli þýskra rikja og
klykti út með því, að sameina
Austurriki Þýskalandi.
Það er mikilvægasta spurn-
ingin, sem nú verður að svara,
hvort Þjóðverjum verður látið
haldast uppi að þenja út ríkið,
uns það nær yfir öll þau svæði
álfunnar, sem Þjóðverjar utan
Þýskalands eru fjölmennastir.
Þjóðverjar róa að þvi öllum ár-
um, að Þjóðverjar utan Þýska-
lands líti á það sem ættjörð
sína —og þaðan að eins geti
þeir vænst verndar.
En það eru ekki Þjóðverjar
einir, sem eiga fjölmenna hópa
af sinni þjóð i öðrum löndum.
Þjóðflutningar liafa iðulega átt
sér stað í álfunni og ein afleið-
mg þeirra er sú, að í mörgum
löndum er að finna bæi og sveit-
ir, sem bygðar eru annara þjóða
mönnum — sem hafa haldið
trygð við sína siði og sitt mál,
öld fram af öld í sumum til-
fellum. Magyarar eru ekki að
eins í Ungverjalandi, en líka í
Transylvaniu, þar sem þeir
kallast Székely. Þeir halda því
fram, að þeir hafi lagt undir
sig Transylvaniu á undan Rú-
menum. Székely Magyarar, img-
verskir Magjrarar, Rúmenar og
Þjóðverjar, upphaflega frá Sax-
landi, búa í sama landínu, ers
blandast ekki saraan. Þeir
bvggja ekki hús sin á sama hátfc,
tala ólík tungumál, og trúar-
lirögð þeirra eru ekki hin sömtt..
Milli þeirra rikir tortrygni og
rígur. Ungverskir Magyarar era
einnig bæði í Tékkóslóvakíu og;
Júgóslaviu. Og i Ungverjalandi,
Italíu og Austurriki eru Iands-
hlutar, þar sem Slovenar erm
mjög fjölmennir. Það eru Slo-
vakar i Mið-Ungverjalandi og
Suður-Þýskalandi. Það era
fjölda margir Rúmenar í Jugo-
slavíu og Albaniu (kallaðir
Vlaclis). Og loks mætti npfnm
Makedoníumenn, sem. Júgóslav'-
ar kalla Serba, Grikkir Grikkja
og Búlgarar Biilgara. Klyklcjuna
svo út með þvi að geta þess, að>
utan Tékkóslóvakíu eru 300.000
Tékkar og Slóvakar, en i Sax-
landi og alla leið til Berlín era
þorp liér og þar, bygð aðallegat
af Lusatian Serbum, sem Iialdá;
siðum og miáli sínu og hafa gert
í tugi alda, þrált fyrir það, aS
alt í kringum }>á er og hefir
verið töluð þýsk tunga.
Nið'urL