Vísir - 21.09.1938, Síða 2
VISIR
VÍSIR
DAGBLAS
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Kraftaverk.
CVO virðist nú, sem deilan
U um Tékkóslóvakíu muni
senn til lykta leidd. Það er ekki
aðeins komið á fult samkomu-
lag milli ríkisstjórna Breta og
Frakka um lausn deilunnar.
Samkvæmt síðustu fregnum
eru líkur til, að stjórnin í Tékk-
óslóvakíu fallist á tillögur
þeirra. Og svo brátt ber þetta
að, að helst virðist svo sem
lausnin hafi verið fyrirfram á-
kveðin, en að „samkomulags-
umleitanirnar“ undanfarna
daga hafi verið mestmegnis að
nafninu til, og í rauninni aðeins
lokaþáttur leynilegra samninga,
sem á undan hafi verið gengnir.
Það er ekkert leyndarmál, að
mjög náið samband er á milli
ýmsra áhrifamanna Þjóðverja
og nokkurs hluta breska íhalds-
flokksins, þess hlutans, sem ná-
komnastur er aðalmönnum
bresku stjórnarinnar, og m. a.
hefir umráð yfir „Times“, auk
annara áhrifarikra blaða * í
Bretlandi. Fyrir áhrif þessa
flokksbrots liafa orðið ýmsar
breytingar á ensku stjórninni
undanfarna mánuði, m. a. sú,
að skift var um utanríkismála-
ráðherra. Hefir þessi hluti
flokksins unnið eindregið að
aukinni samvinnu milli Breta
og Þjóðverja og ítala, en Ant-
hony Eden var þrándur í götu
þeirrar samvinnu og varð hann
fyrir þá sök, að víkja úr stjórn-
inni. En síðan hann fór frá,
liafa völd hinna þýsksinnuðu í
flokknum og ríkisstjórninni
farið mjög vaxandi. Og það er
ekkert vafamál, að fyrir milli-
göngu þeirra hefir síðan verið
unnið að því af kappi, að „undir-
búa jarðveginn“ fyrir bresk-
þýsku samvinnuna. En til þess
að sú samvinna gæti tekist, varð
fyrst og frémst að ná samkomu-
lagi um mál Tékkóslóvakíu og
það virðist nú hafa tekist. Hefir
það vafalaust orðið fyrir milli-
göngu þessara bresku Þjóð-
verjavina sem á bak við tjöldin
hafa undirbúið samkomulags-
grundvöllinn í samráði við
þýska áhrifamenn og trygt sam-
komulagið um liann.
Þannig hefir samkomulagið
þá að öllum líkindum verið
trygt, áður en breski forsætis-
ráðherrann fór flugferð sína á
fund Hitlers! En ef svo hefir
verið, þá var heldur ekkert átt
á hættu, þó að „Times“ birti
„kröfu“ sína um það, að Súd-
etahéruðin yrðu sameinuð
Þýskalandi, áður en lokið var
hinum opinberu „samkomu-
lagsumleitunum“ og viðræðum
þeirra Chamberlains og Hitlers,
sem að öðrum kosti hefði verið
óverjandi frumhlaup af hlaðsins
Iiálfu. En eins og komið var, eða
gera má ráð fyrir að komið hafi
verið, ef samkomulag hefir þeg-
ar verið orðið um þessa „kröfu“
blaðsins, þá var það í rauninni
ekki nema að vonum, að það, 1
sem blað hinna „þýsksinnuðu“,
vildi með þessum liætti eiga
opinbert frumkvæði að því, að
málið yrði leyst á þann hátt,
sem aðstandendur þess höfðu
leynilega unnið að og fullvist
mátti telja að ofan á yrði að
lokum.
En þó að „gangur málsins“
liafi ef til vill verið þannig, á
bak við tjöldin, þá þarf það ekki
á nokkurn liátt að draga úr
áhrifum hins tilkomumikla-
lokaþáttar samkomulagsumleit-
ananna, sem fram fór fyrir
opnum tjöldum, er breski for-
sætisráðherrann flaug á fund
Hitlers, til þess að finna þau
ráð, er duga mættu, til að koma
í veg fyrir það, að ófriður bryt-
ist út. Eftir því sem þá horfðsit
á, að minsta kosti að ytra útliti,
virtist sem til þess mundi þurfa
alt að því „kraftaverk1, að því
yrði bjargað við. En þó að af-
rek það, sem breski forsætis-
ráðherrann vann í því skyni,
hafi ef til vill aðallega verið
táknrænt, þá hefir „kraftaverk“
eigi að síður verið unnið, og til-
ganginum er náð, ef tekist hef-
ir að koma í veg fyrir ófriðinn,
sem yfirvofandi hefir verið.
Sjálfstæðismenn
stofna með sér
félag á Bíldudal.
Sunnudaginn 18. sept. s.l. var
stofnað sjálfstæðisfélag á Bildu-
dal, sameiginlegt fyrir Suður-
fjarðahrepp og Dalahrepp. —
Stofnendur voru alls 101. For-
maður félagsins var kosinn
Elías Jónsson frá Ilvestu. Með-
stjórnendur voru kosnir, úr
Dalahreppi Kristófer Kristófers-
son bóndi í Hvestu, úr Suður-
fjarðahreppi Hálfdán Guð-
mundsson, Kristin Hannesdótt-
ir og Þorkell Jónsson.
Félagið hlaut nafnið Sjálf-
stæðisfélagið Örn. — Á fundin-
um var samþykt einróma áskor-
un til Gísla Jónssonar umsjón-
armanns, um að verða i kjöri í
sýslunni af hálfu Sjálfstæðis-
flokksins, við næstu kosningar
til Alþingis. Þakkaði fundurinn
honum, í fundarlok, fyrir ötular
og óeigingjarnar framkvæmdir
í atvinnulifi Bíldælinga á þessu
ári.
Hin nýja rækjuverksmiðja, er
nú að ráða til sín starfsfólk og
mun hefja starfsemi sina í þess-
ari viku. Hefir þegar verið soðið
niður i noklcur hundruð dósir
og hafa þær reynst prýðilega.
Fiskimjölsverksmiðjan hefir
þegar verið tekin í notkun og
kaupir hún allan úrgang sem til
fellur frá bátum og fryslihús-
inu. Hefir þetta orðið til þess,
að verð á nýjum fiski á Bíldu-
dal hefir hækkað um 1 eyri kg.
lil sjómanna.
Gísli Jónsson hefir nýlega
keypt mótorskipið „Geysi“ frá
Bíldudal, sem strandaði við
Auðkúlu fyrir tveim árum. —
Hefir hann þegar gert ráðstaf-
arnir til þess að taka skipið út
og hyggst hann að láta gera við
það og nota síðan til fiskveiða.
Myndi það bæta allmjög skipa-
kost Bílddælinga, sem svo mjög
hefir gengið úr sér hin síðari
ár. —
SÍLDVEIÐARNAR.
Saltsíldaraflinn nam þ. 17.
sept. 325.337 tn., þar af matjes-
verkað 109.306 tn. I fyrra nam
saltsíldaraflinn 206.147 tn. ,—
Af Faxaflóasíld er nú búið að
salta 2.411 tn. — Bræðslusíldar-
aflinn er 1.523.704, í fyrra um
sama leyti 2.165.640.
Mikill viöMnaðar Þjöö-
verja við landamæri
TékkoslóvakíQ.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Fregnin um það, að ríkisstjórn Tékkóslóvakíu
hefði fallist á tillögur Breta og Frakka sem
samkomulagsgrundvöll, voru bornar til baka
í tilkynningu frá Prag, en jafnframt var tilkynt að
tékkneska stjórnin mundihefjastjórnmálalegarviðræð-
ur með það fyrir augum, að fá nánari skilgreiningu á
tillögunum. Kom glögt fram í tilkynningu þessari, að
stjórnin vill í lengstu lög reyna að bjarga núverandi
landamærum Tékkóslóvakíu.
En þrátt fyrir vaxandi mótspyrnu í Bret-
Iandi og Frakklandi, gegn tillögum Breta og
Frakka, voru sendiherrar þessara þjóða í gær
kl. 2.15 látnir fara á fund dr. Benes, ríkisfor-
seta Tékkóslóvakíu, til þess að hvetja hann til
þess að beita sér fyrir því, að stjórnin fallist
á tillögur Breta og Frakka skilmálalaust, þar
sem málið þoli enga bið.
Helstu ráðherrar í tékknesku stjórninni komu saman á fund,
þegar sendiherrarnir höfðu borið fram þessi tilmæli. Hafa stað-
ið yfir sífeldir stjórnarfundir síðan er þetta var og lauk þeim
ekki fyrr en í dögun.
Ríkisstjórnin mun öll koma saman á fund í dag til
þess að taka fullnaðarákvörðun um afstöðuna til
tillaga Breta og Frakka.
Lundúnablöðin birta fregnir um það, að Þjóðverjar hafi
feikna mikinn hernaðarlegan viðbúnað og hafi 22 þýsk her-
fylki verið send til landamæra Tékkóslóvakíu.
Menn óttast, að þessi herfylki fái skipun um að fara inn yfir
landamæri Tékkóslóvakíu, nema stjórnin í Prag fallist skil-
málalaust á tillögur Bretabg Frakka. Þjóðverjar munu krefjast
þess, að Tékkar fallist á tillögurnar áður en Hitler og Cham-
berlain ræðast við í Godesberg, en sá fundur er nú ákveðinn kl.
3 á morgun.
Mikill ótti er ríkjandi um hvað gerast muni á þessum fundi
vegna frétta, sem borist hafa um það, að Hitler muni bera
fram kröfur um frekari sundurlimun Tékkóslóvakíu, til þess
að um leið og Súdetarisameinist Þýskalandi geti pólsku og ung-
versku þjóðemisminnihlutarnir sameinast Póllandi og Ung-
verjalandi. Komu ungverskir ráðherrar til Þýskalands í gær
til þess að ræða við Hitler, og mun þessar kröfur éinnig hafa
borið á góma.
Jafnframt harðnar mótspyrnan í Bretlandi og Frakklandi
stöðugt gegn því, að lýðræðisríkin láti undan kröfum Hitlers.
United Press.
Orðsending Tékka til
Breta og Frakka.
— Rússap liafa heitið Tékkum aðstod*
London, í morgun. — FO.
Tékkneska stjórnin hefir
beðið stjórn Frakklands og
Englands, að endurskoða þá af-
stöðu sína, að Súdetaliéruðin
verði sameinuð Þýskalandi. Þá
er lögð áliersla á það, að tékkn-
eska stjórnin sé reiðubúin til
þess, að taka fylsta tillit til
minni hlutanna, en sé ákveðin
í því, að láta hvergi ganga á rétt
tékkneska ríkisins.
Þá er í þessum boðskap
minst á gerðardómssamninginn
sem gerður var milli Þýska-
lands og Tékkóslóvakíu 1925 og
staðfestur að nýju af Þýska-
landi um leið og Austurríki var
innlimað. Samkvæmt þessum
samningi ber að jafna allan á-
greining milli þessara ríkja,
annað livort með fimm manna
gerðardómi, er skipaður sé ein-
um fulltrúa frá hvorum aðila og
þremur hlutlausum mönnum,
eða af alþjóða dómstólnum í
Haag. Þá er frá því skýrt, að
Hitler hafi lofað Póllandi og
Ungverjalandi stuðningi sínum
við sjálfsstjórnarkröfur pólsku
og ungversku minnihlutanna í
Téklcósló vakíu.
Fréttastofa í Varsjá skýrir frá
því, að Pólland hafi hótað
tékknesku stjórninni að grípa
til vopna ef ekki verði fallist iá
kröfur pólska minnihlutans og
að pólska stjórnin geti ekkert
ábyrgst viðvíkjandi landamær-
um Tékkóslóvakíu, meðan enn
séu pólskir menn innan vé-
banda liennar.
Fulltrúar Rússlands á Þjóða-
bandalagsfundinum í Genf hafa
staðfest það, að á sunnudaginn
var hafi tékkneska stjórnin
spurst fvrir um það formlega,
hvort Rússland væri reiðubúið
til þess að koma Tékkóslóvakíu
til aðstoðar samkvæmt sáttmál-
anum um gagnkvæma aðstoð
þessara ríkja, og að rússneska
stjórnin hafi svarað því, að hún
væri reiðubúin til að veita slíka
aðstoð ef til ófriðar drægi.
Chamberlain forsætisráð-
herra liefir neitað að verða við
beiðni Attlee um að kalla sam-
an þing. í svari sínu til Attlee
segir hann að þingið fái tælci-
færi til að ræða þessi mál siðar
og ráðstafanir muni verða gerð-
ar til þess að kalla það saman
þegar hann hafi i höndum á-
kveðnari og ítarlegri skýrslur að
leggja fyrir það en hann hafi
nú. í bréfinu segir ennfremur,
að forsætisráðherrann standi
nú í að leysa hið torveldasta og
viðkvæmasta mál og geti það
haft liinar alvarlegustu afleið-
ingar fyrir bresku þjóðina, ef
ekki sé með þetta mál farið af
ítrustu gætni, og lýkur forsæt-
isráðheiTann bréfinu með þvi
að segja, að sér mundi verða ó-
kleift að leysa þetta vanda-
sama starf af hendi, ef þingið
væri kallað saman nú.
HUNDRAÐ BLAÐAMENN
TIL GODESBERG.
Einkaskeyti til Vísis.
London í morgun.
Tæplega hundrað blaða-
menn fóru í gær um kl. 6/2
frá London til Godesberg við
Rín, til þess að vera þar með-
an þeir Chamberlain og Hitl-
er ræðast við. Meðal blaða-
mannanna eru menn frá öll-
um stærstu blöðum Banda-
ríkjanna og Kanada og öllum
fréttastofum heims. Fóru
þeir í þrem sérstökum vögn-
um.
Þetta eru þó ekki allir
blaðamennirnir, sem við-
staddir verða fundinn, því að
allmargir eru þegar komnir
á vettvang.
Webb Miller, fréttastjóri
U. P. í Evrópu, var í þessum
hundrað manna hóp. Er hann
elstur þeirra og án tvímæla
sá reyndasti.
United Press.
Eldnr í fötnm drnkkins
manns, sem hafðl sofnaS
nti á götn.
„FRÖNSKU EGGIN“
eru þessi loftskeyti kölluð, sem hér birtist mynd af. Flugmenn í Reims eru að koma þeim
fyrir i flugvélarnar, en slík skeyti vega 500 kíló. Flugæfingar þær, sem fram fóru á vigvell-
inum Champagne, sýndu Ijóslega hvílík spellvirki slík skeyti geta unnið, en stærð þeirra geta
menn gert sér grein fyrir, ef þeir miða skeytið við mermina, sem eru að koma þvi fyrir.
Kl. 6 í morgun urðu vegfar-
endur varir við mann, semhafði
sofnað á gangstéttinni fyrir
framan hús við Garðastræti.
Raulc úr fötum mannsins, sem
mun hafa verið að reylcja siga-
rettu, er hann lagðist þarna fyr-
ir, en liún dottið milli fala hans.
Voru fötin farin að sviðna tals-
vert, er lögreglan, sem gert var
aðvart, kom á vettvang. Flutli
hún manninn, sem er norskur
sjómaður, út i skip hans hér á
liöfninni. Talið er, að maðurinn
mundi hafa getað brenst illa, ef
honum hefði eigi borist hjálpiii
i tæka tíð.
Skátafélag Reykjavíkur.
Undanfarið hafa staðið yfir
samningar milli skátafélaganna
„Væringjar" og „Ernir“ um að
sameina félögin og var stofnfund-
ur hins nýja félags, er hlaut nafn-
ið Skátafélag Reykjavíknr, haldinn
síðastliðinn sunnudag. Fundurinn
samþykti 1)ráðahi rgðareglugerÖ fyr-
ir félagið og kaus stjórn. Stjórnina
skipa: Félagsforingi Leifur Guð-
mundsson, gjaldkeri Björgvin Þor-
björnsson, ritari Þórarinn Björns-
son, meðstjórnendur Hörður Jó-
hannesson og Daníel Gíslason.