Vísir - 21.09.1938, Page 3
VISIR
Bcetar
fréttír
Almenningur hallast
að bannlögum.
Vidtal við Pétup Sigurðsson.
Pétur Sigurðsson erindreki er
nýkominn úr ferð norðan úr
Strandasýslu, en þangað fór
liann til þess að reka erindi góð-
templarareglunnar og stofnaði
hann meðal annars stúku á
Hólmavík og voru stofnendur
18. Fór liann einnig út á Sel-
strönd og stofnaði þar stúku
með 17 stofnendum.
Tíðindamaður Vísis hitti P.ét-
ur að máli og spurði hann frétta
úr ferðalaginu.
— í Steingrímsfirði er mikill
áhugi fyrir bindindismálum og
ekki með öllu að ástæðulausu.
Hólmavík er þrifalegt pláss og
var þar annríki allmikið, þrátt,
fyrir það, að síldarsöltun væri
að verða lokið, og voru menn
við heyskap og' ýms störf önn-
ur fyrir veturinn. í Steingríms-
fjörð hefi eg ekki komið í yfir
20 ár, en viðkynning mín af
Strandamönnum var hin ákjós-
anlegasta, og kom mér það ekki
á óvart, með því að eg hafði
góða hugmynd um fólkið frá
fyrri kynningu, þótt langt væri
um liðið. Á Selströnd var dvöl
mín styttri en á Hólmavík, en
þar gisti eg á hinu prýðilegasta
heimili, að Drangsnesi, og féll
mér yfirleitt vel við fólkið á
Ströndum.
Hvernig leist yður á atvinnu-
hætti í sýslunni?
Mér leist vel á þá, að svo
miklu leyti sem eg hafði aðstöðu
til að dæma um það. Hólmavík
virðist vera uppgangspláss og
stunda menn þar jöfnum hönd-
um sjávarútveg og landbúnað
og hefir verið allmikil sildar-
söltun þar í sumar. Á Selströnd
stunda menn öllu meir sjó en
landbúnað og á eg þar einkan-
lega við Drangsnes og nágrenni.
Létu menn yfirleitt vel af hag
sínum þar nyrðra.
Hvernig fellur yður ferðalög-
in hér á landi?
Þau liafa ýmsa erfiðleika í för
með sér, en hjörtu blettirnir eru
þó miklu fleiri, og eftir þessi
8 ár, sem eg hefi ferðast hér
um, hefi eg engu minni áliuga
en fyrst fyrir starfi því, sem eg
faist við. Eg hef altaf séð mik-
il og góð tækifæri til að vinna
að ýmsum menningarmálum á
landi voru einmitt á þennan
liátt, og sé ekki einstrengings-
lega lialdið á málunum, er mað-
ur viss um að ná góðu sam-
starfi við allan almenning, og
engu síður forystumenn í menn-
ingarmálum. Auk starfs míns í
þágu bindindismálanna hefi eg
flutt erindi um almenn .menn-
ingarmál og er þeim oftast vel
tekið og aðsóknin jafnan góð,
og liefi eg því undan engu að
kvarta.
Hvað segið þér um afnám
bannlaganna?
Eg tel afleiðingarnar hafa
orðið liinar verstu, nema hvað
almenningur hefir áttað sig bet-
ur á hvað réttast er i þeim efn-
um. Ðrykkjuskapur hefir auk-
ist að mun, en á sama tíma hef-
ir bindindisáhugi farið stórlega
vaxandi, og er fult útlit fyrir,
að almenningur muni ekki til
lengdar una því ástandi, sem nú
ríkir i áfengismálunum.
Gullbrúðkaup í dag.
I dag eiga gullhrúðkaup Matt-
hías Ólafsson fyrv. alþingism.
og kona hans Marsibil Ólafs-
dóttir, en þau eru nú búsett í
Borgarnesi, Iijá tengdasyni sín-
um, Ólafi Magnússyni, skip-
;stjóra.
Þau hjónin eru hæði Vestfirð-
irigar að ætt, ætluð úr Dýrafirði
og hefir það að vissu leyti sett
svip s'inn á líf þeirra hjóna. Hef-
ír Mattliías átt sæti á þingi fyrir
fæðíngarhérað sitt og rækt allar
gkýldur sínar gagnvart héraðinu
með míkilli prýði. Sat hann á
þíngí á árunum 1912—1919 og
vann þar öll störf með mikilli
samviskusemi og drenglund, en
það hvorutveggja hefir einkent
alt dagfar hans.
Þau hjónin hafa verið búsett
Iiér í Reykjvaík um alllangt
skeið og hefir Matthías starfað
til skamms tíma að verslunar-
störfum, og munu allir vinir
þeirra hjóna senda þeim lilýjar
kveðjur á þessum heiðursdegi
þeirra. Hjónaband þeirra hefir
vefíð til l'yrirmyndar og hafa
þau áll miklu harnaláni að
fagna. Af 15 hörnum, sem þau
eignuðust, eru 11 upp komin,
en 4 hafa látíst.
í dag geta þau hjónin horft
yl'ir farinn veg og notið óskiftr-
ar gleði, með því að þau hafa
öllum gott gert, sem þau hafa
átt kynni við, og allir vinir
þeirra munu í dag votta þeím
þakklæti sitt og árna þeim allra
heilla á ófarinni leið. B.
SLYSAVARNIR
NORÐMANNA.
Oslo 20. sept.
Á ársfundi Slysavarnafélags-
ins norska í dag tilkynti for-
maður félagsins, Paust útgerð-
armaður, að ári 1937 liefði
björgunarskúturnar hjargað
alls 50 manns og aðstoðað um
2000 háta, sem á voru um 5000
menn, til hafnar, vegna hilana
tða ofveðurs. NRP—FB.
[] Edda 59389267 — fjárhagsst.:.
Listi í Q og hjá S.-. M.-. til laug-
ardagskvölds.
Veðrið í morgun.
1 Reykjavík io stig. Heitast i gær
12 stig, kaldast í nótt 8 stig. Úr-
korna í gær og nótt 0.5 mm. Sól-
skin í 2.4 stundir. Heitast á land-
inu i morgun 10 stig, hér, á Rauf-
arhöfn og Hólum í Hornafirði,
kaldast 5 stig, á Blönduósi. Yfirlit:
Alldjúp en nærri kyrstæð lægð um
400 km. suður af Vestmannaeyjum.
Horfur: Su'Övesturland, Faxaflói:
Austan og norðaustan gola. Úr-
komulaust a'Ö mestu.
Skipafregnir.
Gullfoss er i Kaupmannahöfn.
Goðafoss er á leiÖ til Hull frá Ham-
borg. Brúarfoss fór frá Isafirði kl.
7 í morgun, áleiðis til Blönduóss.
Dettifoss fer til útlanda í kvöld.Lag-
arfoss er í Leith. Selfoss er á leið
til Grimsby frá Ólafsfirði.
Ljósatími
bifreiða og annara ökutækja er
frá kl. 7 siðd. til kl. 5.40 árd.
Einn herpinótabátanna,
sem enn er að veiðum fyrir norð-
an, veiddi fyrir 10 þús. kr. í s.l.
viku. Herpinótabátarnir veiða ein-
göngu í salt.
Hjúskapur.
Síðastl. laugardag voru gefin
saman í hjónaband af síra Þorsteini
L. Jónssyni ungfrú Halldóra Guð-
mundsdóttir og Jón Ágústsson. —
Heimili ungu hjónanna er á Lauga-
veg 50.
Fjeldgaard og Flatau
fara til Akureyrar snemma í
fyrramálið. Munu þau sýna þar
dans á laugardag kl. 7.30 í sam-
komuHúsinu.
Bílaárekstur
varð í morgun við höfnina milli
strætisvagns nr. 974 og vöruflutn-
ingsbifreiðar nr. 858, sem notuð
er til kolaflutninga. Strætisvagninn
skemdist dálítið.
Gengið í dag.
Sterlingspund ......... kr. 22.15
Dollar ............... _ 4.6014
too ríkismörk........ — 183.78
— fr. frankar....... — 12.56
~ telgur ............. _ 77.57
— sv. frankar....... — 104.37
— finsk mörk........ — 9.93
— gyllini.............. — 248.79
— tékkósl. krónur .. — 16.18
— sænskar krónur .. — 114.36
— norskar krónur .. — 111.4.
— danskar krónur .. — 99-75
Register-mörk.
Gengi þýskra registermarka er
« nú kr. 96.00.
Nýjar bifreiðaleiðir.
Nýlega fór bifreiðin H 14, bíl-
stjóri Skarphéðinn Jónasson, út yf-
ir Skeifárgil á Tjörnesi, alla leið
til Breiðuvikur, og var 4 klukku-
tírna báðar leiðir. Bifreið hefir
aldrei fyr komið út fyrir Skeifár-
gil, og hefir það verið talið ófært,
en góður bílvegur er báðum meg-
in við það, út að Hallbjarnarstöð-
urn. Skarphéðinn álítnr, að gera
megi greiðfæran veg yfir gilið lneð
litlum tilkostnaði. — Fyrir skömmu
efndi Þorsteinn Jónsson, kaupfé-
lagsstjóri í Reyðarfirði, til bilferð-
ar um Brúarörœfi, — en þau liggja
norðan Brúarjökuls og aústan
Kreppu, Tveir bilar tóku þátt í för-
inni, annar frá Reyðarfirði, en hinn
úr Eskifirði. Þeim bíl ók Jón
Grímsson, bankastjóri og Markús
Jensen kaupfélagsstjóri. Leiðsögu-
maður var Sigfús Sigurðsson, Brú.
Alls voru í ferðinni 11 menn. Ekið
var frá Brú inn öræfin vestur und-
ir Kreppu, nærri Vatnajöklí. Alla
voru farnir um 50 kílómetrar frá
Brúarveginum. Innan til á öræfun-
um er greiður bílvegur. Ferðin
gekk vel. (FÚ.).
Farsóttir og manndauði
í Reykjavik vikuna 29. ágúst til
3. sept. (í svigum tölur næstu viku
á undan): Hálsbólga 58 (70).
Kvefsótt 95 (85). Iðrakvef 16 (9).
Kveflungnabólga o (1). Taksótt 1
(1). Skarlatssótt 1 (2). Munnang-
ur 1 (1). Mænusótt 3 (0). Manns-
lát 7 (9). — Landlæknisskrifstof-
an. (FB.).
Spennistöðvar.
Bæjarráð samþykti á fundi síð-
astl. föstudag, að taka tilboði frá
Ólafi Th. Guðmundssyni, um bygg-
ingu spennistöðva við Vitastig og
Grandaveg fyrir 8900 kr., svo og
að taka tilboði frá Jóni Guðjóns-
syni, Berg. 50, um að gera undir-
stöður undir 5 spennistöðvaskúra
fyrir 2200 kr.
Bára Sigurjónsdóttir,
Hafnarfirði, byrjar danskenslu í
Oddfellowhúsinu 3. okt. næstk.
Mun ungfrúin kenna ballet, step og
samkvæmisdansa, þar á meðal Lam-
beth Walk og Palais Glide. — All-
ar nánari upplýsingar fá menn í
síma 9290.
Næturlæknir:
Halldór Stefánsson, Ránarg. 12,
sími 2234. Næturvörður í Reykja-
víkur apóteki og Lyfjabúðinni Ið-
unni.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.20 Hljómplötur : Ensk lög.
19.50 Fréttir. 20.15 Útvarpssagan.
20.45 Hljómplötur: a) „Ameriku-
maður í París“, eftir Gershwin. b)
„Galdranemandinn“, eftir Dukas.
c) Lög leikin á blásturshljóðfæri.
K O N U R
I
KÍNASTYRJÖLDINNI
Meira en 10 þús. kínverskra
stúlkna liafa haft skifti á silki-
sokkunum sínum og öðrum
fínum fötum og klæðast í þess
stað svellþykkum ullarsokkum
og grófgerðum hermannaföt-
um. Eru þær flestar stúdentar,
en hafa lagt bóknámið á hilluna
og læra í þess stað að brytja
niður japanska hermenn.
Stúlkurnar hafa verið æfðar
af Þjóðverjúnum, sem voru í
þjónustu Chiangs Kai-sheks, en
eru nýlega farnir heim flestir.
Stúlkurnar þykja mjög
hraustar og ennþá hefir engin
þeirra verið tekin til fanga. —
Fremja þær sjálfsmorð, ef
þeim er ekki undankomu auðið
og Japanir ætla að handtaka
þær.
Romin heim
Helga M. Nielsdúttlr
Ijósmódip
ORGEL
frekar gott, óskast. Sendið til-
boð um verð og legund á afgr.
blaðsins, merkt: „Orgel“.
Lítid hús
í Noröurmýpi
til sölu. Lausar íbúðir.
Tilboð, merkt: „Litið“, sendist
á afgr. blaðsins fyrir 23. þ. m.
Stðlar - dívansr
1
bólstruð húsgögn hest fráokkur.
KONRÁÐ GÍSLASON &
ERLINGUR JÓNSSON,
Skólav örðust. 10. Baldusg. 30.
Nidursudu
nýkomin,
margar stærðir.
Ví5in
Laugavegi 1.
Ctbú, Fjölnisvegi 2.
Píanó
sérlega gott og vandað til sölu.
Upplýsingar Lokastíg 5. —
Aöalumboð:
porður Suisson a Co.
Reykjavílt
NiðnrsnBnddsirnar
.- bestar frá
DÖSAVERKSMIBJDNNI
Beddar
Krisliáiis Sieirssooar.
TIL MINNIS!
Kaiðhreinsað
þorskalýsi ir. 1
með A og D fjörefnum.
Fæst alltaf.
Sig. Þ. Jðnsson,
Laugavegi 62. - Sími 3858.
HREINS
HREIN S" s ápaspænir
eru framleiddir úr hreinni sápu.
í þeim er enginn sódi. Þeir
leysast auðveldlega upp, og það
er fullkomlega örugt að þvo úr
þeim hin viðkvæmustu efni og
fatnað. Reynið Hreins siápu-
spæni, og sannfærist um gæðin.
í B Ú Ð
til leigu.
3 stofur og eldhús með ölluna
þægindum i Norðurmýri, til
leigu 1. nóvember. Fyrirfram-
greiðsla til vors æskileg. TRboS,
merkt: „Þægindi“, leggist inn a
afgr. blaðsins fyrir 23 þ. nu
Maður í góðri stöðu, vel efn-
aður, óskar að kynnast stúlku
af góðum ættum. Þær sem vilja
sinna þessu, sendi nöfn sín á-
samt upplýsingum og mynd til
afgreiðslu Vísis, merkt: „A. Kr.
S.“ Óliætt að treysta þag-
mælsku. Myndimar endur-
sendast.
í réttirnar
Skeiðaréttir
Landréttir
Fijétsblíðaréttir
Ódýrap sætaf erðir
Bifreiðastððin
GEYSIR
Sími 1633 og 1216.
Ný Liinr
Kjöt & Fiskur
Símar 3828 og 4764.
feKENSLAK
KENNI íslensku, dönsku og
ensku. Jón J.Simonarson, Grett-
isgötu 28 B. (841
FIÐLU-, mandolin- og gultar-
kensla. Sigurður Briem, Lauf-
ásvegi 6, sími 3993. (216
KENSLU: Isl., Dönsku. Ensku,
Frönsku, Þýsku, lestur méð
nemöndum, undirbúning undir
skólapróf býður Púll Bjarnar-
son, Tjarnarg. 4. (60S
iTAPAfl-FUNCItil
Á MÁNUDAGINN tapaðist
hrún taska með gleraugum og
öðru smádóti nálægt V. B. K.
Finnandi er vinsamlega heðínn
að gera aðvart í síma 3778.
(1016
iTi
^FUNDIFF^TÍLKyNNlNi
St. FRÓN nr. 227. — Fuud-
ur verður annað kvöld kl. 8. —►
Dagskrá: 1. Upptaka nýrra fé-
laga. 2. Nefndarskýrslur. — 3.
Önnur mál. — Hagskrá: a)
Hólmfríður Árnadóttir, kensln-
kona: Sjálfvalið efni. h) Frón-
húi. — Félagar, fjölmennið og
mætið kl. 8 stundvislega. (1086