Vísir - 12.11.1938, Síða 2
V í S I K
VÍ3IB
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁPAN VÍSIR H/P.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Minnihluta-
stjórn.
C'átt verður þjóðinni jafn
dýrkeypt til lengdar og
máttvana, hikandi ríkisstjórn.
Síðustu árin hafa fært lands-
mönnum heim sanninn um það.
Þótt svo eigi nú að lieita, að vér
höfum einlita framsóknars tj órn,
þá situr hún af náð nokkurra
þingmanna jafnaðarmanna,
sem að líkindum eru nú svo
fylgislausir að þeir mundu ekki
ná kosningu til þings. Aðstaða
ríkisstjórnarinnar til að fara
með völdin í landinu er svo
hæpin, að hver einasti réttsýnn,
lýðræðissinnaður stjórnmála-
maður mundi telja skyldu sína,
að afsala völdunum í hendur
mönnum er liefði þinglegan og
þjóðlegan meiri liluta að baki,
eða rjúfa þing að öðrum kosti.
En núverandi ríkisstjórn skort-
ir mjög átakanlega glögt auga
fyrir öllum slíkum lýðræðissið-
um.
Sterk stjórn getur tekið föst-
um tökum á málunum, á þann
yeg er henni þykir best lilýða.
En vanmáttarkendin hefir auð-
kent stjórn Framsóknarflokks-
jiis frá öndverðu, enda hefir
flokkurinn orðið að aka seglum
eftir því hvernig blásið hefir í
herbúðum sósíalista. Áður hafa
vandræðin stafað af þvi að
jafnaðarmennirnir þóUust milc-
ils megandi. Nú munu vandræð-
in stafa af því að þeir eru lítils
megandi og í litlu áliti hjá þjóð-
inni. Með slíkum bandamanni
er erfitt að halda uppi málefna-
baráttu í andstöðu við meiri
hluta þjóðarinnar.
Því hefir stundum verið hald-
ið fram, að hverjum heiðarleg-
um stjórnmálamanni væri skylt
að gæta þess að réttur minni
hlutans sé ekki fyrir borð bor-
inn. En hér á landi er nú réttur
meiri hlutans að engu virtui’,
með því að landinu er stjórnað
að geðþótta flokks, sem er í al-
gerðum minni hluta með þjóð-
inni. Menn gerast nú Iangþreytt-
ir á slíkum stjómarháttum,
einkum þegar þegnréttur
manna er gerður misjafn eftir
því hvar þeir standa í flokki.
Meiri lilutinn lætur ekki kúg-
ast til lengdar af minni lilutan-
um. Slíkt getur haldist um
stundar sakir. Þótt valdliafarn-
ir troði fylgismönnum sínum í
öll embætti, sem losna, þótt þeir
ýti andstæðingunum úr öllum
trúnaðarstörfum, þótt þeir
brjóti á þeim lög og rétt, þá
verða slíkir valdhafar að síð-
ustu Iéttvægir fundnir og þeim
verður vikið til hliðar af þjóð-
inni sjálfri. Þeir gleymast fljótt,
en sá usli sem þeir gerðu í
þjóðlífinu með hlutdrægni og
óstjórn, er lengi að jafnast.
Þjóðin hefir nú vanmáttuga
minnihluta stjórn. Erfiðleik-
arnir eru á allar hliðar. Aldrei
hefir landsmönnum verið meiri
þörf en nú á sterkum tökum og
ákveðinni stefnu í þjóðmálun-
um. Þeir, sem undanfarið hafa
í blindni fylgt ríkisstjórninni að
málum, eru smátt og smátt að
komast að raun um, að stefna
þeirra er röng. Vandræðin auk-
ast stöðugt meðan sú stefna
ræður. Ef satt væri það sem
ráðherrarnir hafa haldið fram
undanfarin ár um árangur af
stefnu þeirra og aðgerðum, þá
ætti að drúpa hér smjör af
hverju strái. Engin vandræði
og nógur gjaldeyrir ætti hér að
vera. En hér er nú alt komið úr
skaftinu og alt í öngþveiti og’
ráðleysi.
Framsóknarmönnunum ætti
að skiljast, að slíkt vansæmdar-
ástand er engum til gagns en
öllum til bölvunar. Þeir ætti að
ihuga hið fornkveðna, að betra
er að fá skjóta sæmd en langa
svívirðing.
Hásfeölafyrirlestrar
Jean Haapt.
Seinustu tvo háskólafyrir-
lestra sína um franskar bók-
mentir á 19. öld helgaði lir. Jean
Haupt skáldsagnahöfundinum
Benjamin Constant, en það verk
lians, sem gerði liann heims-
frægan, er skáldsagan „Adolf“,
og hennar Vegna mun nafn
Benjamins Constant lifa. Benja-
min Constant var -fæddur 1765,
d. 1830, og var hann einnig
kunnur sem stjórnmálamaður.
Hr. Jean Haupt gerði í fyrstu
nokkura grein fyrir helstu ævi-
atriðum hans, lýsti veilunum i
lyndiseinkunn hans og hinu
mótsagnakenda í fari lians, og
þar næst gerði hann ítarlega
grein fyrir hinu einfalda, en
hugðnæma og sígilda verki
hans, skáldsögunni „Adolf“,
söguhetjunum tveimur, elskend-
unum, sem skorti hæfileika til
þess að g;eta skilið livorn annan
og ollu hvor öðrum þjáningum,
án þess að vilja það í raun og
veru, og gátu ekki, þrátt fyrir
ástina, fundið leið til sameigin-
legrar hamingju. Las sendi-
kennarinn ýmislegt upp úr sög-
unni.
Hr. Jean Haupt er óvanalega
snjall fyrirlesari, fjörlegur og
hressilegur, talar létt, einfalt
mál, sem auðvelt er að skilja,
jafnvel fyrir byrjendur. Er því
hér um óvanalegt tækifæri að
ræða til þess að heyra gott mál
og snjalt, enda hefir það verið
notað af þeim, sem hafa lært
og eru að læra frönsku hér. En
sérstaklega er vert að benda
þeirn, sem eitthvað liafa komist
niður í málinu, á að láta þessi
tækifæri ekki ónotuð.
Næsti háskólafyrirlestur er á
föstudag i næstu viku.
Áheyrandi.
í tilefni af 20 ára afmæh
dansk-íslensku sambandslag-
anna verður sérstakri atliöfn
útvarjiað af danska útvarpinu
1. des. n. k. Athöfnin liefst kl.
17 eftir íslenskum tíma og flytja
þeir þá ræður Stauning forsæt-
isráðherra og Sveinn Björnsson
sendiherra. Á eftir verður leik-
Vopnahlé í Palestinu?
HOfaðleiðtogi arabiskra DppreisUrmasDa
býst til að stfiðva hermdarverkia, en
vill fá sæti á LúndónaráðstefaBDiii.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Fregn> sem Daily Herald flytur í morgun, vekur
mikla athygli. Hún er þess efnis, að stór-
muftinn af Jerúsalem» sé reiðubúinn til þess
að gera þá tilslökun við Breta, að fyrirskipa, að Ar-
abar hætti öllum mótþróa sínum gegn þeim, í Pale-
stinu, svo fremi að Bretar fallist á, að stórmuftanum
Verði boðið til London.
Fregn þessi til Daily Herald er símuð frá Beirut í
Sýrlandi, en sórmuftinn er ramasti og áhrifamesti
andstæðingur Breta meðal Araba. Lagði hann á flótta
til Sýrlands og hefir skipulagt þar undirróðurs og
hermdarverkastarfsemina í Palestinu.
í gær bárust fregnir um það frá Damaskus, að „land-
varnaráð Palestinu“, sem Arabar hafa stofnað og
hefir höfuðstöð sína í Damaskus, hefði hótað Bretum
almennri uppreist Araba gegn Bretum, ef þeir félli
ekki frá skilyrðum sínum fyrir þátttöku í ráðstefnu
þeirri um Palestinu* sem þeir ráðgera að halda þar.
Vilja Arabar semja um deilumálið við Breta, án íhlut-
unar Gyðinga, þjóðabandalagsins og annara.
Malcolm MacDonald, samveldis- og nýlendumála-
ráðherra sagði fyrir nokkurum dögum í neðri mál-
stofunni, að á Lundúnaráðstefnuna um Palestinu-
málin yrði ekki boðið þeim fulltrúum Araba, sem á
hefði sannast undirróður og hermdarverkastarfsemi,
en meðal þeirra væri fremstur í flokki stórmúftinn af
Jerúsalem.
Hinsvegar verður boðið á ráð-
stefnuna fulltrúum nágranna-
ríkjanna, Egiptalands, Saud-
Arabíu, Yemen o. s. frv., en ekki
nágrannaríkjunum, sem Frakk-
ar ráða yfir. Þeim og öðrum að-
ilum, svo sem Þjóðabandalag-
nu og Bandaríkjunum, er láta
málið og lausn þess sig miklu
skifta, verður gefinn kostur á
að fylgjast sem best með í öllu,
sem fram fer.
Það væri ákaflega mikilvægt,
ef vopnahlé yrði sarnið í Pale-
stinu, meðan ráðstefnan fer
fram. En hvort Bretar geta nú,
eftir yfirlýsingu MacDonalds í
neðri málstofunni, þegið boð
stórmuftans, er annað mál.
United Press.
HERTOGINN AF WINDSOR OG FRÚ HANS.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Lundúnablaðið News Chronicle birtir fregn um það í morg-
un, eftir góðum heimildum, að hertoginn af Windsor, þ. e.
Játvarður fyrrv. Bretakonungur, og frú hans (áður Wallis-
Warfield Simpson) ætli að setjast að í Bretlandi innan
skamms. Talið er líklegt að þau ætli að setjast að i Fort
Belvedere, þar sem hertoginn bjó áður. Munu þau hjónin þá
dveljast framvegis ýmist á meginlandinu eða í Bretlandi.
Hertoginn af Windsor
(Játvarðup fyrrv. Bretakon—
ungur) og fru tians setjast
að í BretlandL
TJón Gyðinga í Þýskalandi
vegna árásanna nemnr tog-
nm mlljóna rikismarka.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Berlínarfregnir í morgun herma, að giskað sé á að
tjónið af árásunum á hús og verslanir Gyðinga nemi
13 miljónum ríkismarka, í Berlínarborg einni, og er
þá ekki meðtalið tjón Gyðinga af því, að kirkjur þeirra
voru brendar. Það verður enn ekki farið nærri um
það hvað tjónið verður mikið um alt Þýskaland, en
það má gera ráð fyrir, að það nemi tugum miljóna ríkis-
marka.
United Press.
Hý stjórs í Tyrklandi.
London í morgun.
Stjórnin í Tyrklandi hefir verið endurskipulögð að fyrir-
skipan Ishmet pasha, hins nýja forseta. Það vekur mikla undr-
un, að Rushdiaras utanríkismálaráðhen*a verður forsætis-
ráðherra. •
Shukri dómsinálapáðherra
verður utanríkismálaráðlierra,
en Hilmi Ural dómsmálaráð-
herra. Hinn nýi innanríkisráð-
herra heitir Sliukra Kaya. Rush-
diara bafði verið utauríkismála-
ráðherra frá 1925.
Útför Kemals Ataturks fer
fram fimtudag eða föstudag í
næstu viku
United Press.
inn þjóðsöngur íslands. Síðar
spilar útvarpsbljómsveitin ís-
lensk lög og loks fer fram upp-
lestur úr íslenskum bókment-
um. íslendingafélagið í Kaup-
mannaliöfn hefir ákveðið að
minnast dagsins með skemti-
samkomu í liúsakynnum iðnað-
armannafélagsins. Hefir Frið-
rik ríkiserfingi og Ingrid kona
hans lofað að koma þangað —
- (FÚ.).
Það er að sjálfsögðu einnig
mikið umræðuefni Lundúna-
blaðanna, sem nú ræða áform
hertogans á ný, að hertoginn af
Gloucester, bróðir hans, og her-
togafrúin af Gloucester, heim-
sóttu hertogann af Windsor í
gær og frú hans, í París, en her-
togahjónin af Gloucester eru nú
á heimleið frá Afríku. Hafa þeir
bræðurnir ekki hist frá því er
Játvarður afsalaði sér konung-
dómi. Vekur það að vonum
mikla eftirtekt, að sættir eru nú
að komast á út af þessu máli
innan bresku konungsfjölskyld-
unnar.
United Press.
Hinxi xxýi for-
s©ti Typkja.
Ismet Ineunu, hershöfðingi.
Ismet Ineunu, sem kosinn var
einróma forseti Tyrkjaveldis í
gær, er fæddur árið 1880 í Mala-
tíu i miðri Anatoliu. Hann var
millistéttar, en ákvað þegar á j
unga aldri að gerast hermaður
og gekk á liðsforingjaskólann
i Istambul. Þegar hann var bú-
inn í skóla barðist liann í báð-
um Balkanstyrjöldunum og
gegn ítölum í Tripolis. I heims-
styrjöldinni var hann formaður
herforingjaráðs annars tyrk-
neska hersins, sem barðist gegn
Bretum undir stjórn Allenbys í
Palestinu.
Eftir ófriðarlokin varð liann
undirliermálaráðherra — Izzel
Paslia, marskálks, var hermiála-
ráðherra —en flúði Istambul ár-
ið 1920, þegar stórvesirinn Da-
mad Ferid reyndi að bæla niður
þjóðernishreyfingu Anatolíu-
l)úa. Gekk hann þá í flokk með
Mustafa Kamal og skipulagði
lierlið þjóðernissinna.
Ineunu stóð ávalt við hlið
Ataturks, hvað sem á dundi og
hann var höfundur 5 ára áætl-
unarinnar, sem beindist að því
að bæla lifnaðarháttu lands-
manna. Hann tók járnbrautar-
kerfið og barðist með lmúum
og hnefum gegn fáfræði lands-
manna.
Einna mesti sigur Ineunus
var að fá alla liina útlendu
bandamenn Vahiddedins til að
liverfa af tyrkneskri grund,
skilyrðislaust. Síðar var hann
foringi sendinefndar Tyrkja til
Lausanne.
Hinn 29. okt. 1923 var Tyrk-
land lýst lýðveldi og var þá sol-
dáninn flúinn. Ineunu var út-
nefndur þingfulltrúi fyrir Mala-
tíu, fæðingarliorg sína í Ana-
tolíu og' árið 1925 varð hann
! forsætisráðherra. Hafði liann
það á hendi i næstum þvi 13 ár
j samfleytt, því að hann sagði
. ekki af sér fyrr en í október
i 1937, vegna ágreinings við
! Ataturk.
Meðal afreka Ineunus í for-
sætisráðherrastóli má nefna
vináttusáttmálann við Grilcki
og siðar Rússa og þátttaka
þeirra í Litla-bandalaginu. Þá
má og nefna sigur Iians á Mon-
treux-ráðstefnunni, en þar fékk
haun viðurkend yfirráð Tyrkja
einna á Dardanella- og Bospor-
us-sundum og réttindi þeirra til
að víggirða þau.
Inennu er mikill aðdáandi
Breta og Bandarikjamanna. Þá
er hann og vinveittur Rússum,
vegna stuðnings þess, er þeir
hafa veitt Tyrkjum.