Vísir - 15.12.1938, Page 2
V ISIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Géngið inn frá Ingólfsstræti).
8 í m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Þjóðar-
blessun
I Tímanum s. 1. þriðjudag
4 birtist löng grein, þar sem
lýst er öllum þeim afrekum,
sem Framsóknarflokkurinn
hafi unnið i þarfir sveitanna,
„til að veita viðnám burtflutn-
ingnum" úr þeiin, til kaupstað-
anna. Og rétt er það, að mikil
stund hefir verið lögð á það, að
hlynna að sveitabúskapnum, á
undanförnum árum. En því fer
hinsvegar fjarri, að Framsókn-
arflokkurinn hafi einn átt þar
hlut að.
í öðrum kafla þessarar
Tímagreinar er alllöng upptaln-
ing á afrekum, sem blaðið tel-
ur að Framsóknarflokkurinn
hafi unnið í þágu sveitanna.
Hann hafi lagt síma, vegi og
hrýr, eflt samvinnuhreyfinguna,
stuðlað að því að koinið yrði
upp sláturhúsum, frystihúsum
og mjólkurbúum, stutt bændur
til að fá sem best hjálpartæki,
komið upp fjölmörgum skólum
í sveitmium og borið afurða-
sölumál bænda fram til sigurs
o. fl. Hinsvegar er þvi alveg
slepf, sem gert hefir verið til
þess að auka jarðræktina í
sveitunum, þó að ætla mætti, að
það hafi ekki orkað Iivað minstu
um að gera þær hyggilegri en
áður og stemma stigu fyrir
burtflutningum. En á þvi er að
vísu sú skýring, að það voru
sjálfstæðismenn, sem frum-
kvæði átti að þeim aðgerðum,
og lögðu með því hornsteininn
að viðreisn sveitanna.
f þriðja kafla greinarinnar er
byrjað á að skopast að þvi, að
einn af „forkólfum Sjálfstæðis-
flokksins“ hafi einhverju sinni
„austur við Þjórsárbrú", sagt:
„Við erum aflaklærnar“, og
bætt því við, að aflaklær þær
„gætu látið rækta upp þessi
víðáttumiklu lönd“. En þó að
blaðið færi þannig orðum um
þetta, eins og þessi umrnæli
sjálfstæðismannsins hafi verið
geip eitt, og lítið hald reynst að
vera í „aflaklóm“ þeim, sem
hann talaði um, þá er þó sann-
leikurinn sá, að aflaklær þessar,
athafnamennirnir í kaupstöð-
unum, hafa horið allan hita og
þunga af öllu því, sem gert hef-
ir verið til eflingar sveitunum
síðustu árin og Framsóknar-
flokkurinn gumar svo mjög af
að hafa komið í framkvæmd.
Það eru þær, sem hafa „látið
rækta“ það af hinum víðáttu-
miklu löndum sveitanna, sem
komið hefir verið í rækt síðasta
hálfan annan áratuginn, og
buðu fram féð til þess. Þær
hafa staðið straum af síma-,
vega- og brúalagningunum,
sem Framsóknarflokkurinn
eignar sér einum. Þær hafa
meira að segja lagt samvinnu-
félögunum styrki til ýmsra
þeirra framkvæmda, sem blaðið
þakkar nú þessum félögum ein-
um.
En um þessar „aflaklær“
virðist blaðið ekkert vita, eða
vilja vita annað en það, að nú
séu þær svo lamaðar orðnar, að
engum komi til hugar að nefna
þær því nafni, nema í háði
Stórgi'óðareksturinn sé orðinn
að stórtaprekstri og deilan um
arðinn sé orðin að deilu um það,
hverjir eigi að bera tapið. Og
nú séu kaupstaðabúarnir famir
að heimta fé af ríkinu, til fram-
færslu fólki því, sem sest sé að
í kaupstöðum og sjávarþorpum
og geti ekki séð sér farborða.
Sjálfstæðismenn og kommún-
istar yfirbjóði hverjir aðra í
heimtufrekjunni.
„Nú, þegar erfiðleikarnir
steðja að við sjávarsíðuna“, seg-
ir blaðið, að allir séu sammála
um það, að „barátta Framsókn-
arflokksins“ fyrir viðreisn sveit-
anna „hafi verið til mikillar
blessunar fyrir þjóðina“. Það
má þó ekki skilja þannig, að
þeir, sem við „sjávarsíðuna“
búa og erfiðleikarnir steðja að,
megi vænta þess, að þessi
„blessun fyrir þjóðina birtist
þeim í þeirri mynd, að þeir geti
fengið meiri framlög úr ríkis-
sjóði til atvinnubóta Því fer
svo fjarri, að blaðið telur það
einmitt alveg óhjákvæmilegt, að
draga að mun úr þeim framlög-
um ríkissjóðs. Er það þó ekki
svo að skilja, að Framsóknar-
flokkurinn vilji láta draga úr
atvinnubótakostnaðinum. „Nú,
þegar erfiðleikarnir steðja að
við sjávarsíðuna“, er það sam-
eiginlegt álit allra Framsóknar-
manna, að þeir sem við sjáv-
arsíðuna búa, eigi að bera sínar
byrðar í hljóði. Framvegis eins
og áður eiga þeir að leggja fram
ríflegan bróðurpart af því fé,
sem þarf til þess að standast
straum af rekstri þjóðarbúsins,
en vera sem hóflegastir i kröf-
um til eigin þarfa.
Framsóknarflokkurinn er
„iiægilega sterkur til þess að
geta gefið ráð“, segir Tíminn.
Og hann er fús til þess að leggja
á ráðin um það, hvernig Reykja-
víkurbær eigi að fara að þvi að
vinna bug á erfiðleikunum, sem
steðja að honum, eins og ann-
arsstaðar „við sjávarsíðuna“.
„Ræjarfélagið ætti væntanlega
kost á að fá keyptar stórjarðir
í nágrenni Reykjvíkur“, segir
blaðið, „að setjá þar á stofn arð*
bærar framkrffemdir í stóruttl
stíl, með vínmiáfli, Sem bærinn
ræður yfir og hú ttýtistað engu“.
En hvað á þá að verða uin stór-
bændurna, sem á þessum „stór-
jörðum“ búa? Væntanlega gerir
Tíminn ráð fyrir því, að þeir
væru ekki ófúsir til þess, að
flýja undan Framsóknar-bless-
uninni í sveitinni — til Reykja-
víkur, eða einhvers annars stað-
ar við sjávarsíðuna, þar sem
erfiðleikarnir steðja að!
En hvað verður þá úr baráttu
Framsóknarflokksins „til að
veita viðnám burtflutningnuin
úr sveitunum“? Eða er engin
prentvilla i þessari setningu í
grein Tímans: „Enginn neitar
því nú.......að Framsólcnar-
flokkurinn hafi ekki gert rétt,
þegar hann háði þessa bar-
áttu.“?
Aflasölur.
f fyrradag seldu þessir togarar
í Hull: SviSi 1067 vættir fyrir 1095
stpd., Snorri go'Si 1128 vættir fyrir
675 stpd. f Grimsby seldu sama
dag: Venus 1637 v. fyrir 1494
stpd. 0g Maí 1543 v. fyrir 1884
stpd. HafSi Maí einnig meðferðis
fisk úr Júní.
Daily Telegrapli segip sd leiðtogarnlr skiftist í tvo flokka
í öðrum sé Oöbbels, Himmler o. fl. en hinum liægfara
nazistar, Géping, von Neurath, og dr. Sckacbt. — Tog-
streitan og kvíði nm framtldina vegna vidskiftamálanna
orsök Lundúnafarar tians. --------------------------
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Eitt Lundúnablaðanna skýrir frá því í morgun,
að mikill ágreiningur sé í Þýskalandi milli
leiðtoga þjóðarinnar, og vaxandi áhyggjur út
af framtíðinni. í öðrum flokkinum eru hinir róttækustu
meðal leiðtoga nasista, í hinum hinir hægfara, og hafa
þeir ef til vill stuðning hersins. Hvor flokkurinn um sig
leitar hylli Hitlers. Fregnin um þetta vekur sérstaka
athygli vegna komu dr. Schachts til London í gær. En
hann er einn af hinum kunnustu leiðtogum Þýskalands
og vissulega meðal þeirra hægfara.
Dr. Schacht var í gær gestur Montague Normans, að-
albankastjóra Englandsbanka, ásamt forstjóra Alþjóða-
bankans.
Að því er United Press hefir fregnað er för dr.
Schachts aðallega farin i þeim tilgangi, að leitast við að
finna ráð til þess, að Þýskaland geti komið viðskiftum
sínum við önnur lönd á heppilegri grundvöll en nú er,
en eins og vikið hefir verið að í fyrri skeytum, horfir
ekki vænlega um viðskiftalega sambúð Breta og Þjóð-
ver ja, og það er talið, að Gyðingaofsóknirnar hafi víða
spilt fyrir þýskum viðskiftum.
Það er einnig húist við því, að dr. Schacht ræði við
breska stjórnmálamenn um Gyðingavandamálin, hvort
unt sé að koma því til ieiðar, að Gyðingum frá Þýska-
landi verði veitt mótttaka í öðrum löndum og að ‘þeim
verði séð fyrir varanlegum dvalarstöðum. Én það er
talið vandamál, mjög erfitt úrláusnar, því í fyrsta lagi
þurfi að afla nægilegs fjár til þess að koma Gyðingum
frá Þýskalandi fyrir í öðrum löndum, og eins hitt, að
na samkomulagi um dvalarstað handa þeim.
Stjornittajafréttaritari Daily Telegraph birtir grein í blaði
sínu í morgun og segir liann m. a., að
ástæðan til þess, að dr. Schacht sé kominn til London
til þess persónulega að kynna sér skoðanir og afstöðu
bresku stjórnarinnar í viðskifta- og Gyðingamálun-
um, sé ágreiningurinn miJIi leiðtoga ]>ýsku þjóðar-
i innar.
Ferðalag dr. Schachts stað-
festir, að sú skoðun er rétt, seg-
ir stjórnmálafrettaritari Daily
Telegraph, að Þjóðverjar hafa
miklar áhyggjur af framtíðinni,
fkki síst vegna viðskiftamál-
anna og vaxandiágreiningsmilli
kepni róttæku og hægfara leið,-
toganna um hylli Hitlers.
Baráttan stendur milli dr.
Göbbels, Rosenbergs og Himm-
lers annarsvegar, en þeir eru all-
ii4 í fiokki hinna róttæku naz-
ista,og Görings,von Neuraths og
ef til vill dr. Schachts hinsvegar,
og eru þessir menn leiðtogar
hinna hægfara nazista og hafa,
að því er ætlað er, stuðning
hersins.
United Press.
Rfissnesklr njösnarar
handteknir f Banda-
ríkjnnum.
London 15. des. FjÚ.
1 Los Angeles hefir rússnesk-
ur maður verið tekinn fastur
frakkir anæoiir yflr
riB Chaierlains.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London í morgun.
Frakkneskir stjórnmálamenn
eru harðánægðir með ummæli
Chamberlains í ræðu hans í
blaðamannaveislunni, þar sem
hann sagði, að vinátta Frakka
og Breta væri svo hefðbundin
orðin, að hún væri traustari en
þótt hún væri samningsbundin.
Þess verður þó vart, að stjórn-
málamönnum Frakklands þyki
Chamberlain ekki hafa verið
nógu ákveðinn í ummælum sín-
um viðvíkjandi Spáni, í neðri
málstofunni, en eigi verður
annað séð en Frakkar séu sæmi-
lega ánægðir með þau ummæli.
United Press.
í FÚ-fregu segir, að Bonnet
hafi lýst yfir þvi, að Frakldand
muni aldrei láta ferþumlung
lands af liendi við ítali. Tilraun-
ir til þess að knýja fram slíkar
kröfur myndi leiða til styrjald-
ar. —■ von Ribbentrop sagði
Bonnet að aðeins 3000 þýskir
sjálfboðaliðar væri nú á Spáni.
von Ribbentrop sagði einnig, að
Þýskaland mundi styðja Ítalíu,
en ekki hafa beinan áhuga fyrir
Mi ð j ar ðarhaf smálunum.
og sakaður um njósnir. Hann
var stjórnandi rússneskrar
ferðaskrifstofu. Annar rúss-
neskur maður, sém orðinn er
Bandaríkjaþegn hefir einnig
verið telcinn fastur fyrir sömu
sakir. Hann hafði áður unnið
við njósnastörf í þágu Banda-
ríkjaflotans. Þá hefir þýskur
maður verið tekinn fastur í Ar-
istobal í Panama, og einnig sak-
aður um njósnir. Á hann að
hafa tekið Ijósmyndir af víg-
girðingum meðfram Panama-
adeins Loftui*.
Á AFMÆLISDEGI HITLERS
síðast, en þá varð hann 49 ára, var haldin hersýning mikil í Vínarborg, og sýnd ýms riý-
tísku hergögn. Hér sést, er brynvarðar bifreiðir fara eftir Ringstrasse í Wien. Á gangstétt-
inni standa helstu hernaðarleiðtogar þjóðarinnar.
Eins og getið var um í blað-
inu í gær, bauð Egill Vilhjálms-
son blaðamönnum að skoða
verslun sína og verkstæðí að
Laugavegi 118, og vakti þar sér-
staka athygli hinn nýi strætis-
vagn, sem vinnustofan hefir nú
lokið við að byggja yfir, en
vegna rúmleysis í blaðinu í gær
var ekki unt að gera nánari
grein fyrir honum.
Strætisvagn þessi er mun
stærri og fullkomnari en áður
liefir tíðkast og ýnisar umbætur
hafa verið gerðar á honum, til
aukinna þæginda fyrir farþega
og bifreiðastjói'a. Það er hærra
undir loft í vagninum, en verið
hefir á öðrum vögnum Strætis-
vagnafélagsins og getur hver
meðalmaður staðið þar upprétt-
ur, tveimur loftventlum af full-
komnustu gerð hefir vei'ið kom-
ið fyrir í þaki vagnsins, er soga
út ólireina loftið, aftari dyi'nar
hafa vei-ið færðar fram um eina
rúðu, þannig að útganga úr bif-
reiðinni er þægilegri en áður.
Þá liefir ljósnm verið komið
fyrir í bifreiðinni þannig, að um
leið og húrðirnar eru opnaðar
kviknar ljós, sem lýsir á stig-
þrepið og einnig getur bifi'eiða-
stjórinn ávalt séð hvort dyr eru
luktar eða ekki, með því að
Ijósuin er þannig fyrir komið í
boi-ðinu lijá vágnstjóranum,
Þá iná geta þess að Egill Vil-
lxjálmsson hefir keypt nýja bor-
vél til þess að bora upp mótors-
blokkir, en slíkar blokkir munu
kosta urn þxisund lcrónur. Þann-
ig er hægt að viðhalda göml-
um vélum um margra ára skeið
og sparar það mikið fé fyrir
bifreiðastjóra og landið í heild.
Er vél þessi bæði fljótvirk og
vandvirk.
Að öðru leyti er vinnustofa
Egils hin fullkomnasta að hús-
iými, áhöldum, loftræstingu og
öllu fyrirkomulagi, enda hafa
endurbætur verið gerðar á lienni
i samræmi við ströngustu kröf-
ur, sem gerðar eru erlendis til
slíkra vinnustofa.
Sá, er fyrstur manna byrjaði
á yfirbyggingu bíla hér á landi,
var Kristinn Jón&son vagna-
smiður, sem byrjaði á yfir-
byg'gingu vörubíla árið 1919.
Hafliði Hjartarson trésmíða-
meistari varð fyrstur manna
hér til þess að byrja á yfirbygg-
ingu 14 manna níla (í mars
1923), Stefán Einarsson tré-
smiður 1924, Egill Vilhjálms-
son 1932. Tryggvi Pétursson
setti á stofn upp á eigin spýtur
verkstæði til þess að yfirbyggja
bíla árið 1937.
Vélbáturinn Eggert
kom í gær raej 140 tunnur síld-
ar til Keflavíkur. Síldin var fryst
og söltuð. Aflahluti skipverja úr
þessum róðri er um 85.00 krónur.
Þorsteinn Eggertsson er skipstjóri
á b'átnum. (FÚ.).
Útflutningur.
í fyrradag tók Brúarfoss til út-
flutnings 134 smálestir af saltfiski
í Keflavík, og 57 smálestir af hrað-
frystum kola, og í gær tók Lyra
2150 pakka af Ameríkufiski. (FÚ.).